Skemmtilegur dagur.

Í dag var fallegur dagur, en ég set inn líka nokkrar myndir frá gærdeginum.  Þetta verður því maraþon myndasýning.  Á meðan afi les og svæfir litla skrímslið, og sú eldri borðar veetabix með sykri, þá sit ég hér og set inn myndir og texta.

En svona smá orðamynd.  Það er sunnudagsmorgun, og allt er hljótt, svo heyrir amma að sú litla er vöknuð, og þegar hún rís upp, þá stendur amma á fætur, tekur litla barnið upp og setur milli afa og ömmu í hjónarúminu.  Hún liggur samt ekki lengi kyrr, því hún er útsofin, þó klukkan sé bara rúmlega sjö.  En samt liggur hún og byltir sér svona í góðan klukkutíma.  Svo er þolinmæðin þrotin, og hún byrjar að reyna að vekja mannskapinn.  Það er eitt sem alltaf dugir þó og hún veit alveg hvaða magic orð það er, en það er einmitt orðið Kúka! Hehehehe.. maður veit svo sem að það er ekki á dagskrá, heldur bara svona orð sem litla stýrið veit að virkar.  Amma rís upp, fer framúr, litla skottið tekur í höndina og leiðir ömmu fram, stoppar smástund við morgunsloppinn sem liggur á gólfinu, bendir og amma hlýðir, fer í sloppinn.  Venjulega eru það inniskórnir og svo fötin eitt af öðru, en þarna nægir sloppurinn.  Þegar við erum svo komnar fram úr herberginu; þá segir sú stutta, Lababær hehehehe og það var allan tímann það sem hún ætlaði sér. LoL Þetta er svona venjulegur laugar- og sunnudagsmorgunrúntur.

En frá því í gær.

IMG_3080

Úbbs sleit síman hans afa úr sambandi...

 IMG_3084

Best að setja hann í samband aftur.

IMG_3085

En i fyrrakvöld þá var ömmuhelgi, þau fengu að sofa unglingarnir mínir.  Pöntuðu sér pitsu og myndir, og fengu að sofa.  Hér eru þau í gær morgun að leira.

IMG_3086

Og þeim finnst það bara gaman.

IMG_3089

En það þarf líka smávegis að vera á spjallinu, við jafnaldrana, og ættingjana, stundum vilja þau spjalla við ömmu sína.

IMG_3091

En litlu skotturnar hafa það notalegt í ömmuherbergi.

IMG_3093

Og nú á að fara út að leika.

IMG_3094

Hænuskottið lenti svo í Brandi og varð að fljúga ansi hátt til að verja sig, en hún getur það alveg.

IMG_3095

Sjáðu ! segir Ásthildur og bendir á hænuna.

IMG_3098

Það er gaman að leika í snjónum.

IMG_3099

Það er alveg sama lögmálið og þegar ég var á þessum aldri, það hefur ekkert breyst þar.

IMG_3100

Svo var komið inn og farið út aftur eins og gengur.

IMG_3103

Rosalega gaman.

IMG_3106

Í gær var mugga, ekki slæmt veður, en útlitið frekar dökkt.

IMG_3108

En Júlli er með þessa flottu sýningu í Edinborgarhúsinu.  Og hann er bara flottur.

IMG_3111

Kem aðeins nánar að því síðar.  En hér eru grýlukertin flott.

IMG_3112

Ísafjörður in the twilightsoon hehehehe...

IMG_3114

Þessi er sett inn fyrir Magný mína og líka Rannveigu Höskuldar, Engi í vetrarham.

IMG_3115

Kúlan í svona ævintýrablæ.

IMG_3117

Og börnin búin að grafa göng, vonandi að hér verði fleiri göng, í réttri stærð fyrir vegakerfið.

IMG_3118

Veðrið var yndislegt í dag.

IMG_3119

Og kúlan nýtur sín vel í svona birtu.

IMG_3123

Nýtt sjónarhorn frá mér.  En yndislega fallegt að mínu mati.

IMG_3124

Kubbinn í allri sinni dýrð.

IMG_3126

Kúlan enn og aftur.

IMG_3128

Smábrot af sýningunni hans Júlla. Þessi fremsta er geimvera.

111

Sést betur hér.

IMG_3130

Hulktrutt í góðum félagsskap.

IMG_3132

Þessi heitir óperufiskur, enda er hann greinilega að syngja La travíata hehehe..

IMG_3137

Ísfirðingar kunna svo sannarlega að gera sér mat úr góðaveðrinu. 

IMG_3139

Og það eru svo sannarlega ekki bara börnin sem skemmta sér, heldur bæði fullorðnir og foreldrar barnanna, sem gera sér gott út því sem er til staðar.  Við kunnum þetta ísfirðingar.

IMG_3140

Hér er líka verið að búa til stökkpall.

IMG_3143

Birtan er sjónarspil út af fyrir sig.

IMG_3145

Og nú á að fara í sund á Suðureyri.

IMG_3147

Allt klárt í bílinn.

IMG_3149

Og veðrið ennþá hrikalega flott.

IMG_3151

Naustahvilftin líka flott.

IMG_3157

Og við lögð af stað.

IMG_3158

Hugsandi um hvað er í vændum.

IMG_3162

Búbbsí, ætli þetta væri ekki flott auglýsing fyrir útlendinga, að koma og njóta fjölbreytileika landsins.

IMG_3166

Er það ekki alveg ótrúlega flott ?

IMG_3168

Með snjó í glasi...

IMG_3171

Og svo má ná sér í meira.

IMG_3179

Þetta er hann Jói Súgfirðingur, strigakjaftur og harðfiskverkandi.  Aldeilis flottur og daglegur gestur í lauginni.

IMG_3184

Og hér er afi búin að ná í klaka fyrir Hönnu Sól.

IMG_3193

Nammi namm

IMG_3195

Þá er að reyna að komast út í stóru laugina.

IMG_3200

Og litla skottið að ná sér í snjó.

IMG_3204

Hvað haldið þið, getur ekki verið að svona myndir trekki fólk til að koma og skoða það sem við höfum upp á að bjóða ?

IMG_3206

Jamm snjórinn ER góður hehehe

IMG_3209

Og hitin er notalegur.

IMG_3212

Svo má fara í boltaleik.

IMG_3216

Þar geta allir verið með.

IMG_3219

Já allir!

IMG_3231

Þá er best að fara uppúr.

IMG_3245

Hér liggja bátarnir uppi sem þýsku sjómennirnir hafa róið á undanfarin ár, og gefið vel af sér vonandi.

IMG_3249

Ísafjörður seinnipartinn, fallegur í kvöldsól, sem senn kveður okkur.

IMG_3253

Og afi ber litlu gimsteinana okkar heim í kúluna.

IMG_3254

Ísafjörður skartar sínu fegursta.

IMG_3255

Þegar svona mikill snjór er, þá getur afi gamli ekki komið að borða, þá er ekkert annað í stöðunni en að koma með matinn heim til hans á Hlíf.  Og það er einmitt það sem við gerðum.  Fórum öll með matinn og borðuðum hann heima hjá afa gamla.  Hann var hinn glaðasti við að fá heimsóknina. 
Elskulegust mín, þetta er eins og ég sagði maraþonmyndasýning.  Vonandi hafa einhverjir gaman af henni.  En ég segi bara góða nótt, sofið rótt í alla nótt og megi allir góðir vættir vaka með ykkur og vernda.  Oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn, því skulum við fara að hugsa sem ein þjóð.  En samt þannig að við skulum ekki láta telja okkur á að gleyma misgjörðum manna, heldur standa saman, og heimta skilagrein frá sökudólgum, og aldeilis ekki gefa þeim nýtt umboð til að halda áfram að flá okkur inn að skinni, og veðsetja börnin okkar og barnabörnin.  Nú er komið að skiladögum, þar sem hinir seku fá að taka pokann sinn, hvort sem þeir eru pólitíkusar, útrásarlið, eða þeir sem áttu að líta eftir því að svona kæmi ekki upp á, svei þeim bara.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Yndislegt, ljúft, fallegt Takk fyrir mig

Sigrún Jónsdóttir, 26.10.2008 kl. 22:10

2 identicon

Það er aldrei leiðinlegt að kíkja á síðuna þína Bestu kveðjur úr Borgarfirði til ykkar kúlubúar. Steini Árna

Þorsteinn Árnason (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 22:17

3 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Vá, þvílíkt flottar myndir. Greinilega algjörir töffarar VIÐ Vestfirðingar að vera í sundi í öllum snjónum og kuldanum.

Helga Magnúsdóttir, 26.10.2008 kl. 22:19

4 Smámynd: Þórdís Einarsdóttir

Takk fyrir mig! Alltaf gaman að sjá alvöru snjó. 

Kv. Þórdís

Þórdís Einarsdóttir, 26.10.2008 kl. 22:20

5 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð.

Gaman að sjá allar þessar myndir. Kuldalegt að sjá allan þennan snjó við hliðina á sundlauginni. Hér er mjög lítill snjór og bróðusonur minn er að ná í snjó út um allt til að búa til stökkpall. Hann myndi örugglega vilja vera á Ísafirði núna. Var mjög ánægður á Ísafirði síðast þegar við vorum þar. Flott verkin hans Júlla.

Vertu Guði falin.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 26.10.2008 kl. 22:34

6 identicon

Yndislegar myndir að vestan.  Aldeilis að þið hafið fengið snjóinn undanfarna daga, hann er nú rétt föl hér á Skaganum.

Frábær myndin af honum Jóa í sundlauginni hinar líka góðar.

Kveðja af Skaganum

Anna Bja (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 22:41

7 Smámynd: Laufey B Waage

Já það vantar ekki snjóinn hjá ykkur.

Og hann Júlli þinn er yndislegur listamaður. 

Laufey B Waage, 26.10.2008 kl. 22:47

8 Smámynd: Steingrímur Helgason

Kva, ég get enda alltaf stækkað bandvíddina á tengigetunni minni.

Takk.

Steingrímur Helgason, 26.10.2008 kl. 23:59

9 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

frábærar myndir, mikið eru börnin heppinn með ykkur afa og ömmu !

Kærleikskveðjur til þín 

s

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 27.10.2008 kl. 05:40

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.10.2008 kl. 07:22

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk fyrir að sýna okkur inn í daginn ykkar, fallegar myndir af litrófi lífsins.  Kær kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 27.10.2008 kl. 09:34

12 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Ég hélt það væri byrjuð ný keppni í Vestfjarðavíkingnum þegar ég sá myndina af Ella með grýlukertið  Skemmtilegar myndir og einstaklega flottar stelpur í sundi með snjóbolla :) Myndirnar þínar eru án efa góð auglýsing fyrir Vestfirði, hvort sem er fyrir Íslendinga eða útlendinga. Knús á þig yndislega kona.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 27.10.2008 kl. 09:37

13 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mikið er þetta fallegar myndir og allt svo gott hjá ykkur yndislegt hjá ykkur. Risa knús

Kristín Katla Árnadóttir, 27.10.2008 kl. 11:11

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Risaknús á móti Katla mín.

Hahaha Sigrún mín, já hann er vígalegur þarna með klakan hann Elli.   Takk og knús

Sömuleiðis kær kveðja Ásdís mín

Knús Jenný mín.

Takk og kærleikskveðja til þín líka Steina mín.

Hahaha Steingrímur minn, nú á maður sko að spara, það er kreppa manstu

Tall Laufey mín, já ég er stolt af drengnum mínum.

Já Anna mín, nóg af snjónum, svo sannarlega.

Takk Rósa mín, já þessi snjór kemur eiginlega alltof snemma

Einmitt Þórdís mín, það er gaman fyrir börnin, en dálítið slæmt fyrir okkur hin

Segðu Helga mín.  VIð erum töffarar, bæði víkingar og annað fólk

Sömuleiðis Þorsteinn minn, alltaf gaman að sjá þig hér. 

Takk og knús Sigrún mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.10.2008 kl. 14:44

15 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Frábær frásögn af flottri fjölskyldu í frosti (og hvað eru mörg F í því? hehe) .. Sökudólgarnir eiga að sjálfsögðu ekki að sleppa, það gerir okkur bara að meðvirkri þjóð.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 27.10.2008 kl. 22:00

16 Smámynd: Linda litla

Æðislegar myndir hjá þér Ásthildur.

Það er svo mikill snjór hjá ykkur, það er miklu minna í höfuðborginni he he he sem betur fer. Ég var að koma frá Budapest og þar var sko enginn snjór, sem betur fer.

Bestu kveðjur til þin mín kæra.

Linda litla, 27.10.2008 kl. 23:03

17 identicon

Það er svo mikil friðsæld í myndunum þínum að þrátt fyrir allan snjóinn hlýnar manni. . Kósý að sjá ykkur í lauginni í snjónum.

dísa (IP-tala skráð) 28.10.2008 kl. 08:24

18 identicon

Alltaf gaman hérna :)

alva (IP-tala skráð) 28.10.2008 kl. 10:25

19 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Dísa mín.  Já hér ríkir friður á heimilinu.  Þó ég sé reið inn í mér, vegna ástandsins, og sérstaklega þeirra sem ábyrgð þurfa að bera, en ætla greinilega að koma sér undan henni.

Búdapest er flott borg.  Þú hefur örugglega skemmt þér vel í gamla bænum Linda mín.  Já hér er mikill snjór.

Jóhanna mín Effin blíva, það er ég nokkuð viss um.   Við leiðréttum þá kúrsin ef þess þarf með ekki satt ?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.10.2008 kl. 10:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 83
  • Frá upphafi: 2020996

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband