Litill prakkari.

Sú litla er afskaplega uppfindingarsöm.  Amma hefur ekki roð við henni.  Í gær hafði hún fundið (Guð veit hvar) spúnabox frá Úlfi.  Ég gat tekið það af henni með lægni, svo varð ég vör við að hún fór inn í svefnherbergið og lokaði vendilega á eftir sér.  Hvað er nú hugsaði ég, en hélt áfram að horfa á kriminalinn í danska sjónvarpinu.  Eftir smástund kom hún fram aftur dálítið furðuleg á svipinn, svo ég spurði hvað varstu að gera?

Ekki neitt, sagði hún,

Ég fór inn og sá að hún hafði þá fundið annað spúnabox og hafði sett krókana í lakið sitt.Whistling

Hanna Sól, sagði ég.

Fyrrrirgefðu, fyrrrrirgefðu !!

Svo amma gat náð krókunum úr, og hún sættist að leggjast í holuna og horfa á eina mynd undir svefninn.  Hjúkket.  Svona krókar eru stórhættulegir í höndunum á svona litlum grísum. 

IMG_2875

Beðið eftir að fá kjúllann á diskinn sinn. 

IMG_2877

Það  er mugga í dag, og sést ekki í fjöllinn.  En prýðisveður samt sem áður. 

Ég er glöð að sjá að Jenný vinkona er komin heim aftur.  Hún er hetja sem fleiri ættu að taka sér til fyrir myndar. 

Ég vona svo að allir góðir vættir vaki yfir ykkur öllum í dag.  Og munið að brosa; ekki geyma bros dagsins þangað til á morgunn.  Ef þið eruð kærleiksrík til annara fáið þið það þúsundfalt til baka.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey B Waage

Litlir prakkarar eru yndislegir. Njóttu dagsins mín kæra.

Laufey B Waage, 27.2.2008 kl. 10:07

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það er eitt sem er alveg á hreinu, ég geymi ekki brosið til morguns   Leap Year 

Ásdís Sigurðardóttir, 27.2.2008 kl. 10:43

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sömuleiðis elsku Laufey mín.

Nei ég er alveg örugg með það Ásdís mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.2.2008 kl. 11:29

4 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

kærar kveðjur til þín kæra kona sem nýtur augnabliksins svo fallega !

Bless í daginn

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 27.2.2008 kl. 11:47

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það þarf að fela "veiðidótið" vel.  Þegar ég les svona færslur þá þakka ég guði fyrir að það tímabil í lífi mínu, þar sem barnauppeldi kom við sögu er búið hjá mér.  Það er þægilegt að börnin komi aðeins í heimsókn og svo eftir smátíma er þeim skilað til foreldrana aftur, en heimsóknirnar eru oftast mjög góðar.

Jóhann Elíasson, 27.2.2008 kl. 12:11

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ljóskveðja til þín líka Steina mín

Já Jóhann minn veiðidótið er komið upp á hæsta skáp núna  Og satt er það, að það er betra að hafa þau bara í heimsókn, en það eru líka ómetanlegir tímar að fá að njóta barnabarnanna svona eins og ég hef fengið að gera. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.2.2008 kl. 12:15

7 Smámynd: Solla Guðjóns

Í litlum uppfinningamönnun getur stundum komið upp smá skæruliðen gott að þetta fór vel...

Solla Guðjóns, 27.2.2008 kl. 12:41

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já satt og rétt Solla mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.2.2008 kl. 13:29

9 Smámynd: Brynja skordal

Já kannast við svona þögn og vera að gera eitthvað sem á ekki að gera en gott að sú stutta krækti þessu í lakið en ekki á sjálfan sig og veiðidótið komið upp í skáp hafið góðan dag þarna fyrir vestan

Brynja skordal, 27.2.2008 kl. 14:38

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég er rosalega fegin að það fór bara í lakið.  Og allt á öruggum stað núna

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.2.2008 kl. 15:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband