Smá kúlulíf.

Haustið er tími uppskeru og árangurs.

IMG_3734

Fjölskylda mín frá El Salvador bauð okkur í mat í gær í tilefni afmælisins.  Isobel er meistarakokkur. 

IMG_3736

Og veislan var fín.  Takk fyrir okkur Heart

IMG_3750

Veðrið var fallegt í dag.  Og upplagt að gera eitthvað skemmtilegt.

IMG_3755

Til dæmis að vera börn í bala.

IMG_3757

Eða setja saman kojur sem pabbi sendi stelpunum.

IMG_3759

Það var mjöööög spennandi.

IMG_3760

Sumir þurftu samt aðeins að nota sér að athyglin var annarsstaðar og fá sér tesopa.

IMG_3761

Sona þetta er alveg að koma.

IMG_3763

Jamm nammi namm!

IMG_3764

Afi þú átt að geraedda sona!!!

IMG_3765

Ég skal hjálpa.

IMG_3767

Svo eru sólberin þroskuð, við Hanna Sól týndum nokkur sólber sæt og góð.  Það finnst Ásthildi líka.

IMG_3769

en svo þarf að klæða sig, því nú á að fara upp í fjall og týna aðalbláber.

IMG_3775

Það er dálítið langt fyrir stutta fætur, en afi er líka sterkur og getur borið mann.  Svo er gott að hvíla sig á leiðinni.

IMG_3776

Og meðan við Hanna Sól týndum berin, týndu aðrir bara upp í sig.

IMG_3780

Hanna Sól er nefnilega rosadugleg að týna ber, með berjatýnu.

IMG_3782

Jammí.

IMG_3786

Best að borða bara beint af lynginu hehehe...

IMG_3789

Við höfðum líka með okkur nesti, sem var gott, því það var töluvert löng ferð upp í berin fyrir stutta fætur.

IMG_3793

Afi eru álfar í þessum steinum?  Eða dvergar?

IMG_3796

Þegar boxin voru full, var hægt að týna smávegis upp í munninn og leggja svo af stað heim á leið.

IMG_3798

Og nú er afi búin að setja kojurnar saman, og allt klárt í kvöldverkin.  Fara í bað, bursta tennurnar, fara í náttfötin lesa og sofa.  Heart

IMG_3799

Og Júlli minn gaf mömmu sinni fallega afmælisgjöf.  Heart.  Það er hægt að fá hjá honum allskonar gjafavöru, eftir pöntun.  Og þetta er allt jafnfallegt.

En eigið góða helgi elskurnar mínar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ummmm hvað mig langar í ber.

Ásdís Sigurðardóttir, 12.9.2009 kl. 21:14

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir að deila með okkur lífinu þínu.  Mér finnst svo gott að koma hér inn og fylgjast með ykkur.

Svei mér ef þú og þitt vekur ekki upp trúna á manneskjuna á þeim stundum þegar sú trú er í sögulegu lágmarki.  Knús.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.9.2009 kl. 21:32

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Tvær spurningar. Hvað eldaði Isobel...og hvor sefur svo í efri kojunni?

Ég man hvað mér fannst óréttlátt að ég fengi ekki að sofa í efri kojunni bara vegna þess að ég væri yngri.......

Hrönn Sigurðardóttir, 12.9.2009 kl. 21:46

4 identicon

Ísafjarðarbláberin eru dásamleg.Er búin að sannreyna það:)

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 21:54

5 Smámynd:

Æðislegur berjamór og flott koja í bleiku herbergi. Knús í kúluna

, 12.9.2009 kl. 22:14

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

ég skal gefa þér smakk Ásdís mín.

Takk fyrir þetta elsku Jenný mín.

Isobel var með sérlega skemmtilega kryddað lambakjöt á grilli, og svo er saladið hennar alltaf alveg einstaklega skemmtilega kryddað.  Samt finnst mér babúsas best.  Það eru litla maiskökur með kjöti inní.  En það er allt gott sem hún eldar.

Það er sama sagan Hrönn mín, Hanna Sól fær að sofa í þeirri efri, hún var strax búin að panta.

Gott að heyra Ragna mín.

Knús á móti Dagý mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.9.2009 kl. 22:40

7 identicon

Sæl Ásthildur mín.

Eins og fyrri daginn. Alltaf jafn gaman að líta við .

Kveðja

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 22:49

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta var mjög góður skammtur af myndum gaman að sjá hvað allt er fjörugt og skemmtilegt í kúlunni.  Við bræðurnir sváfum í kojum, ég fékk efri kojuna af því að ég var eldri ekki veit ég hvort ég var frekari úr því verður víst ekki skorið.  Góða nótt mín kæra og megi allar góðar vættir vernda ykkur kúlubúa.

Jóhann Elíasson, 13.9.2009 kl. 00:30

9 Smámynd: Ásta Björk Solis

Mig langar i berjamo,thad var alltaf svo spennandi thegar eg var krakki alger fjolskylduhefd bara.

Ásta Björk Solis, 13.9.2009 kl. 06:32

10 Smámynd: Ragnheiður

Takk Ásthildur, ég tek hjartanlega undir með Jennýu, þú ert farin að vera sem akkeri í ólgusjó og það er frábært

Ragnheiður , 13.9.2009 kl. 12:18

11 identicon

Gaman að sjá ykkur, vildi að ég hefði komist í berin með ykkur. Mér finns gott að borða þau, en miklu skemmtilegra að tína þau. Sérlega þegar eru fleiri með í hópnum.

Dísa (IP-tala skráð) 13.9.2009 kl. 12:25

12 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Knús á ykkur yndislega fjölskylda og takk fyrir mig

Sigrún Jónsdóttir, 13.9.2009 kl. 13:28

13 identicon

Það er rétt sem þær segja, þú og þitt fólk eruð akkerið í ólgusjónum

Kidda (IP-tala skráð) 13.9.2009 kl. 15:13

14 identicon

'ytti á vitlausan takka

Vona að við getum verið akkerið þitt á móti í ólgusjónum

Knús í berjakúluna

Kidda (IP-tala skráð) 13.9.2009 kl. 15:15

15 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Alltaf gott að "kíkja við hjá ykkur" í Kúluhúsinu, þó það sé aðeins í gegnum netið

Æðislegt að fá koju

Alltaf finnst mér jafnflott verkin hans sonar þíns. Ég vonast til að komast einhvern tíma "alla leið" þarna vestur og kíkja á þetta með eigin augum.

Hafið það gott Ásthildur mín

Ragnhildur Jónsdóttir, 13.9.2009 kl. 15:30

16 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Yndisleg ertu alltaf elsku Ásthildur mín.....knús og kossar frá okkur öllum.....

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 13.9.2009 kl. 19:59

17 Smámynd: Jens Guð

  Mikið rosalega sem er alltaf gaman að kíkja hingað inn og skoða flottar myndir - og hvíla sig aðeins frá bloggfærslum um argaþras vegna efnahagshrunsins.  Þó það sé líka ágætt að taka púlsinn á þeirri umræðu í bland.

Jens Guð, 13.9.2009 kl. 22:10

18 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Skemmtilegar myndir frá berjatínslunni  Það er svo spennó að fá kojur og sú stutta er ekkert í vandræðum með að segja afa til  Yndislegar skottur. Fallegt hjartað frá Júlla. Ég ætlaði aldeilis að koma og skoða hjá honum í ágúst, en var lasin allan tímann sem bóndinn átti frí  svo ekkert varð af þeirri heimsókn í sumar. Ég var voða spæld yfir því, var orðin spennt að heimsækja Ísafjörð, og spenntust af öllu að hitta þig  Knús og takk fyrir myndasýningu.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 13.9.2009 kl. 22:31

19 Smámynd: Steingrímur Helgason

Oftlega zagt þetta áður, þú veizt.

& það er bara enn doleiðiz...

Takk.

Steingrímur Helgason, 13.9.2009 kl. 22:46

20 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll mikið eruð þið yndæl.

Kidda mín þið eruð líka mitt ankeri, það er alveg öruggt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.9.2009 kl. 10:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 96
  • Frá upphafi: 2021019

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband