Á ferðalagi.

Nokkrar myndir frá ferðinni suður.

IMG_3410

Morgunin rís á Hólmavík, við lögðum af stað kl. 7 um morguninn og þá var niðamyrkur.

IMG_3414

Mér finnst þessir drangar magnaðir, þarna standa tröllinn á tali.

IMG_3417

Hrútafjörðurinn er magnaður líka, nú er búið að rífa Brú, Staðaskáli hinn nýji nýrisinn.  Og allt umhverfið breytt.

IMG_3419

Himnagalleríið opnaði svo um nýju leytið.

IMG_3420

Á Holtavörðuheiðinni.

IMG_3422

Í Hvalfirðinum voru hestarnir á beit.

IMG_3424

Höfuðborgin var tignarleg eins og alltaf, nema ég fyllist einhverskonar vanmætti, þegar ég sé allt rúttið og eyðilegginguna, hús hús hús, ekkert nema nýbyggð hús sem enginn kemur til með að búa í næstu árin.  Af hverju erum við svona gráðug í að skemma rífa upp gróður og eyðileggja allt í kring um okkur, meira að segja án þess að brýna þörf beri til ?

IMG_3426

Bryggjuhverfið, eitt fallegasta hverfi í Reykjavík og þó víðar væri leitað. 

IMG_3429

Og Arnar Milos, litli ömmuknúsilingurinn í Reykjavík.  Hann er orðin risastór.

IMG_3430

Hann er rosaleg líkur pabba sínum, eins og hann var á þessum aldri.

IMG_3435

Hann var dálítið feimin fyrst, en svo var bara gaman að sjá afa og ömmu.

IMG_3437

Hehehe svona fjölskyldumynd !!!

IMG_3439

Afi er líka rosalega flottur.

IMG_3441

Maður er alveg að fara að stíga sín fyrstu spor.

IMG_3445

Maður er líka farin að fikta í græjunum hans pabba, og veit að það má ekki LoLHeart

IMG_3447

en ég brá mér líka á Selfoss og svona... fékk kaffi hjá henni Hrönn bloggvinkonu minni, og með okkur eru þau Ljónshjarta svokallaður og Hlín prinsessa Heart

IMG_3449

Hér sést hann betur Ljónshjartað okkar allra.  En ég bara get sagt ykkur að við Hrönn leystum öll heimsins vandamál i eldhúsinu hennar yfir sterku og góðu kaffi og muffins.  Hitti meira að segja mömmusinnardúlludúsk, sem ég heyrði á öllu að hefur erft léttleikan og skemmtileg heitin hennar mömmu sinnar.  Takk fyrir mig elsku Hrönn mín, þetta var aleilis frábært.Heart

IMG_3451

Þetta hús heitir Nýsköpunarmiðstöð Íslands, hvorki meira né minna, það væri gaman að vita hvað fer fram þar innan dyra.  Oft hefur verið þörf, en aldei meiri nauðsyn en núna á nýsköpun í atvinnulífinu.  Það væri gaman að fá að heyra frá einhverjum sem þekkir til, hvað þarna fer fram, og hvar því er komið á framfæri, hverjir njóta þess og svo framvegis....  Allt í kring um þetta voru nefnilega risastórar verslanabyggingar, hálfkláraðar, tómar og á einhvernhátt deyjandi... sorglegt bara.

IMG_3452

En við fórum og fengum okkur dýrindis steik, naut medinum steikt með frönskum og hrásaladi, fyrir 1999.- skammtinn, og ég get sagt ykkur að fyrir utan að Búllan hans Tomma er vinaleg og kósý, þá var maturinn rosalega góður, steikin lungamjúk.  Ef fólk vill gera sér dagamun og ekki of dýrt, þá er þessi staður upplagður, elskuleg afgreiðsludama spillti ekki fyrir.

IMG_3453

Hér er allt sem lætur manni liða vel, þ.e.a.s. ef fólk er ekki sjúklega þrifið.  Þá á ég nákvæmlega við svoleiðis.  Ég á örugglega eftir að fara þarna aftur.

IMG_3454

Talandi um deyjandi verslun.  þetta er prime time í Krónunni, milli kl. 5 og 6 á föstudegi, og nánast enginn að versla.  Svona var þetta allstaðar.  Hjól atvinnulífsins eru að stöðvast, og það eina sem ráðamenn gera er að skrönglast í vinnuna, hamast við að þegja um allt, og svo er manni sagt að það sé verið á fullu að fela spor og krussa allt svo erfitt verði að rekja málin, ef þau verða rannsökuð.  Nei því fyrr sem hreinsað verður til því betra.

IMG_3455

ég fór á fróðlegan fund um fjölmiðla á vegum Frjálslynda flokksins, þar voru yfir 40 manns þrátt fyrir tímasetninguna kl. 14.00 á laugardegi, þegar allur bærinn iðaði af mótmælum,  ég sleppti göngunni fyrir þennan fund.  Framsögumenn voru Þorbjörn Broddason og Reynir Traustason, og Jón Magnússon.  Þeir héldu afskaplega fróðleg erindi um hvernig fjölmiðlar helgast af eigendum sínum, og hve mikilvægt er að fólk þekki eignarhald á fjölmiðlum, til að átta sig á hvernig túlka beri fréttirnar.  Þeir voru sammála um að fjölbreyttni væri nauðsynleg á fjölmiðlamarkaði.  þar kom fram að DV og Útvarp Saga væru fjömiðlar fólksins á götunni.  Reynir hélt mjög áhugavert erindi, þar sem hann benti á fjögur dæmi um að eigendur og/eða auðmenn hafi gripið inn í atburðarrás, nefndi hann til dæmis þegar Séð og Heyrt var tekið af sölu í búðum þegar fjallað var um Bæjarstjórann í Kópavogi og Goldfinger, sama gerðis með Ísafold, þegar þar var til umfjöllunar efni sem ekki hentaði sumum. Það versta í þessu var, sagði Reynir að hvorki siðanefnd blaðamannafélagsins eða akademían sá ástæðu til að aðhafast neitt við þessum árásum á tjáningafrelsið, og það er alveg rétt hjá honum, þar er ekki sama Jón og séra Jón. Hann benti líka á þegar Björgúlfur fékk drottningarviðtal í Mogganum, og sagði að hann hefði ekki viljað taka slíkt viðtal við Jón Ásgeir, meðan hann átti Fréttablaðið.  Já Fjölmiðlar hafa brugðist fólki, það er nokkuð ljóst, en þeir eiga líka við erfiðar aðstæður að etja, þar sem þeir eiga á hættu að missa vinnuna, segi þeir eitthvað sem ekki má segja.  Reynir benti á að þeir hefðu haft rökstuddan grun um bankakreppuna miklu fyrr í sumar, en verið sagt að ef þeir hefðu sig ekki hæga, myndi þeim verða kennt um bankahrunið, eins og þeim hafði verið kennt um sjálfsmorðið á sínum tíma.  Það lá því hótun í loftinu.

IMG_3456

ég hugsa að ég farið að kaupa DV oftar bara til að styrkja blaðið.  Það hefur skúbbað ýmsum málum upp á síðkastið, sem annars hefðu legið í þagnargildi.

IMG_3457

En í miðbænum var allt á fullu, menn að koma og greinilegt að mikið stóð til.

IMG_3458

Öngþveiti á götum, sírenur á fullu og allt á útopnu.

IMG_3459

Fólk þusti að úr öllum áttum, lýðræði var að taka á sig mynd.  Fólki loksins nóg boðið og komin tími til.

IMG_3482

Þó ríkti friður við tjörnina, og svanahjónin syntu saman út í kvöldið og nóttina. Heart

IMG_3483

Heima hjá ættingjum okkar var piparköku ilmur í loftinu, fjölskyldan sameinuð við bakstur, eins og þau hafa gert frá því að dæturnar voru litlar, núna eru amma, dætur og börnin öll saman við baksturinn, þetta er yndælt.

IMG_3484

Þau voru bara ansi myndarleg krakkarnir við að skera út kökurnar.  Svo á eftir að skreyta þær seinna.

IMG_3486

Og þrátt fyrir allt eru jólin að koma í Reykjavik.

IMG_3487

Og þá var bara eftir að koma heim, taka upp úr töskunum eitthvað sem litlar prinsessur og prinsar höfðu beðið eftir að skoða.  Vöktu eftir afa og ömmu. Heart Þetta er hún Frída hún er sænsk, voða indæl.

IMG_3489

Og stubburinn hafði saknað okkar líka og við hans.  Eigið góðan dag elskurnar. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk, þú svíkur ekki með myndirnar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.11.2008 kl. 14:12

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Og þið helvíti rennilegar þú og Ljósnhjartað ég meina Hrönnslan.

Múha.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.11.2008 kl. 14:18

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Við erum náttlega flottastar Jenný mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.11.2008 kl. 14:38

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Þú hefur aldeilis verið á ferðalagi.  

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 9.11.2008 kl. 16:31

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Æðisleg mynd af ykkur Hrönnslu og hundum og svo hinar að sjálfsögðu líka

Huld S. Ringsted, 9.11.2008 kl. 17:29

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Jóhanna mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.11.2008 kl. 17:29

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er svo gaman að hitta bloggvinina Huld mín, þið eruð einhvernveginn flottari í reynd, þó þið séuð æðisleg á netinu. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.11.2008 kl. 17:33

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Takk fyrir komuna! Ljónshjartað og Hrekkjusvínið senda kveðjur

Hrönn Sigurðardóttir, 9.11.2008 kl. 17:45

9 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þú heppin að hitta Hrönn.  Góð myndræn ferðasaga að venju, takk fyrir mig og knús í Kærleikskúlu

Sigrún Jónsdóttir, 9.11.2008 kl. 18:18

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Hrönn mín, og já þau voru flott hrekkjusvínið og Ljónshjartað.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.11.2008 kl. 18:19

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Sigrún mín og knús á móti, ó já ég var heppinn að hitta þessa frábæru manneskju

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.11.2008 kl. 18:20

12 Smámynd: Jóhann Elíasson

Flottar myndir eins og við var að búast.  Hafðu það gott í "kúlunni" þar sem allt virðist blómstra og kærleikurinn og ástin ráða ríkjum.

Jóhann Elíasson, 9.11.2008 kl. 19:52

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Jóhann minn sömuleiðis

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.11.2008 kl. 20:13

14 Smámynd: Karl Tómasson

Myndirnar þína Vááááááááááá hvað þær eru flottar, alltaf.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 9.11.2008 kl. 21:59

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk minn kæri vinur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.11.2008 kl. 22:32

16 Smámynd: Laufey B Waage

Ég var á Ísafirði um helgina. Leitt að missa af þér.

Laufey B Waage, 9.11.2008 kl. 22:44

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Æ Laufey mín, en hve það var leiðinlegt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.11.2008 kl. 22:46

18 Smámynd: Solla Guðjóns

 það er enginn svikin að hitta hana Hrönn og heldur ekki þig

Solla Guðjóns, 10.11.2008 kl. 00:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 95
  • Frá upphafi: 2021021

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 69
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband