Gróður og gott veður.

Það er brjálað að gera þessa daga hjá mér.  Og sem betur fer hjálpast allir að.  Nú var verið að tæma eitt bráðabirgðagróðurhús, svo hægt sé að koma upp aðstöðu fyrir söluna.  Á morgun vonandi kemur svo grafa og jafnar og setur möl yfir svæðið, svo það sé hægt að raða sumarblómunum þar. En fyrst skýjamyndir, gallerí himin var opinn í dag.

IMG_5174

IMG_5175

Flott sýning á skýjum.

IMG_5176

Hér er Kristján ein hjálparhellan mín.  Að flytja gróður milli húsa.

IMG_5177

Önnur hjálparhella Sædís skvísa.

IMG_5179

Og allir hjálpast að, ömmustubbar og tíkur líka.

IMG_5181

Meira að segja minnsti stubburinn var að hjálpa ömmu sinni.

IMG_5182

Jamm eins og sjá má allt á fullu.

IMG_5184

Líka borað og smíðað.  Enda gengur þetta eins og í sögu. 

En ég er eiginlega alveg búin á því.  Svo komu heilmargir að kaupa sér plöntur.  Af því að dagurinn var fallegur, og fólk er að komast í sumarskapið.  Sem er bara hið besta mál.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Himinninn er það myndagallerí sem alltaf er opið.

Sigurður Þór Guðjónsson, 29.5.2007 kl. 19:50

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já mikið rétt, en í fyrradag voru engar myndir til sýnis hér.  Því himininn var bara blár.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.5.2007 kl. 20:20

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það er ekki setið á rökstólum hjá þér heldur verkin látin tala. Duglegt fólk.

Ásdís Sigurðardóttir, 29.5.2007 kl. 20:29

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta er hörkuduglegt fólk.  Takk mínar elskulegu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.5.2007 kl. 20:38

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Flottir strákar hjá þér

Hrönn Sigurðardóttir, 29.5.2007 kl. 21:48

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þetta eru frábærar myndir hjá þér eins og að venju.

Kristín Katla Árnadóttir, 29.5.2007 kl. 21:54

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nóg að gera.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.5.2007 kl. 23:11

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm nóg að gera, ég er bókstaflega að drukkna í verkefnum.  Hehehe Hrönn mín, já þeir eru sko flottir frá tveggja og uppúr.  Takk líka kristín Katla mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.5.2007 kl. 00:10

9 Smámynd: Heiða  Þórðar

Þú ert snillingur með vélina stelpa!

Heiða Þórðar, 30.5.2007 kl. 00:40

10 Smámynd: Ester Júlía

Yndislegt að skoða myndirnar hjá þér! Ekkert smá gaman :o). Oo ég væri sko alveg til í að koma og kaupa af þér sumarblóm..ætli þau myndu deyja á leiðinni ef ég myndi leggja í hann? ;o)

Ester Júlía, 30.5.2007 kl. 08:04

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Heiða mín. 

Ester fólk hefur komið hingað allstaðar að að kaupa plöntur.  Meira að segja frá Ameríku og Þýskalandi.  Svo ef þú býrð ekki á Timbúktú eða lengra þá ................................

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.5.2007 kl. 09:30

12 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

flott líf Ásthildur mín...og flott landslag!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 30.5.2007 kl. 12:13

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Anna mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.5.2007 kl. 13:44

14 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Þú ert ljósmyndari af Guðs náð Ásthildur, endilega ekki hætta að auglýsa fegurð vestfjarða sem og fjölskyldu þinnar. 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 30.5.2007 kl. 18:33

15 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

frábærar myndir, og vestfirðir flottir !! flottastir eftir skaftafellssýslu

Ljós til þín og god arbejdeslyst

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 30.5.2007 kl. 19:20

16 Smámynd: Ragnheiður Ólafsdóttir

Hæ elskan!

Alltaf jafn dugleg og jákvæð, til hamingju að vera komin svona  langt þrátt fyrir kalsan í vor. Ég efa ekki að þú ert þreytt en þetta er góð þreyta. Gangi þér sem allra best að græða upp hjá náunganum.

Ragnheiður Ólafsdóttir, 30.5.2007 kl. 19:38

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll sömul fyrir góðar óskir og hrós.  Það gleður mig.  Já ég er eins og undin tuska.  En það er gaman að sýna ykkur frá minni veröld. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.5.2007 kl. 20:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 91
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband