Mér datt þetta svona í hug.

Grímur J í gísling fór

í gleðikvennafansa.

“Klámhundar” þær kalla í kór

og karlinn fær að dansa.

 

Ekki líkar öllum par

sú eðalgræna klíka.

Netlöggum og nöktum þar

nördar vaskir flíka. 

 

Fylgið samt er feikigott

foringinn er glaður.

Ekki má þó do do dott.

dóni gerast graður.  

 

Svo er  þykir, spurning nær

sem í betur hugið.

Hvort það fylgið haldist fær

eða fatast flugið. 

 

Svo má líka segja hvort

sætir góðu lagi.

Að tala skírt og skorinort

sko sitt af hvoru tagi.

 

Faðmsins  bláa flýr hann til

flestir hafa á trúna.

Kaffi ekki korginn vil

ég kalla saman núna.

Bara svona til gamans InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.3.2007 kl. 19:46

2 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Langaði til að senda þér mína skoðun kæra frú Cesil....


Bjó í Hollandi í 2 ár og þaðan held ég að við eigum að sækja okkar fyrirmynd um HVERNIG skuli leyfa "klám" (það vantar góða skilgreiningu á því). Það er leyft í ríku mæli, en maður verður að "velja/sækja" sér það!

Það sem hefur einkennt umræðuna hér hinsvegar er "klámiðnaðurinn " eins og hann hefur verið í Danmörku, en þar bjó ég í 6 ár og óska ekki eftir slíku hér!

Ég skal skýra mál mitt; maður á það á hættu alls staðar (geðþóttaákvarðanir?) í Danmörk að labba inn í venjulega sjoppu sem er með /ekki með svæsnar klámmyndir, jafnvel í neðstu hillu!  Ég er að hugsa um eina núna og vil alls ekki að  maður rambi óvart á skíkt með barnið sitt.

Þetta gerist ekki í Hollandi, þar er allt í boði eins og í Danmörk, en í þar til gerðum verslunum!

Þetta tel ég vera okkar lausn líka)...en vil bara taka fram að unglinga og barnaklám verður að banna og gera refsivert.)

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 7.3.2007 kl. 21:41

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er alveg sammála þér Anna mín að þetta þarf að vera skilgreint og í sínu hólfi.  Ég hef engan áhuga á þessum hlutum, og ég ætla ekki að segja hvað ég vil láta gera við barnaníðinga og nauðgara.  Það er ekki prenthæft. 

Hins vegar er allt ofstæki að skemma fyrir umræðunni að mínu mati.  Þetta þarf að ræða fordómalaust og flokka hismið frá kjarnanum.  Það er það sem skiptir máli. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.3.2007 kl. 23:26

4 identicon

Sæl Ásthildur.

Ég rakst á tilviljun á bloggið þitt og datt í hug að senda þér kveðju því við erum frænkur. Dóróthea langamma þín og Ósk amma mín voru systur. Þær áttu sama föður, Jónas Gunnlaugsson. Ég er fædd og uppalin á Lambastöðum í Álftaneshreppi en hef búið  í Borgarnesi i meira en 30 ár og á mann, fjórar dætur og átta barnabörn.  Langaði bara svona að láta vita af mér.  Bestu kveðjur, Jóhanna Skúladóttir

Jóhanna Skúladóttir (IP-tala skráð) 7.3.2007 kl. 23:59

5 Smámynd: Jens Guð

Kvæðið er vel ort og skemmtilegt.  Sem gamall Skagfirðingur er ég vísnadellukarl.  Hef einkar gaman af þegar fólk ræður við stuðla og höfuðstafi (þó að ýmis önnur atriði skipti líka máli). 

Jens Guð, 8.3.2007 kl. 01:30

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Jens minn.  

Jóhanna en gaman að heyra frá þér.  Ég man að vísu ekki eftir langömmu, en ég man eftir Magnúsi langafa mínum, en hann braut á sér hnéskel og lá um tíma sjúkrabeði heima hjá Ásthildi ömmu. En ég er alin upp hjá henni og Hjalta afa mínum, að vísu í sama húsi og mamma og pabbi. 

Ég á fjögur börn og einn stjúpson.  Einnig hef ég hálfpartin tekið inn í mína fjölskyldu fólk sem þurfti að flýja frá El Salvador, fólk sem kom hingað með einn son og barnabarn.   'Eg er því margföld amma.  En á og hef eignast gegnum fleiri aðila 17 barnabörn, litla engla sem öll kalla mig ömmu.  Ég þarf endilega að skoða það að kíkja við hjá þér og hitta ef ég á leið gegnum Borgarnes.  Ég þekki ekki svo mikið af fólki frá ömmu hlið.  Bestu kveðjur Ásthildur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.3.2007 kl. 09:38

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ekkert hálfpartinn, þau eru fjölskyldan mín.  Og ekkert hálfkák með það. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.3.2007 kl. 09:38

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Til hamingju með daginn kæra Cesil

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.3.2007 kl. 12:18

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Til lukku líka með þennan alþjóðlega dag kvenna.  Ég man einmitt vel eftir okkar kennadegi þegar við tókum okkur saman íslenskar konur og héldum saman konudag.  Það var að vísu ekki þessi dagur, en áhrif hans eru örugglega vel við líði enn þann dag í dag. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.3.2007 kl. 12:27

10 identicon

Það væri gaman ef þú litir við á leið um Borgarnes. Ég bý á Borgarbraut 37 en er að vinna í Safnahúsi Borgarfjarðar. Þú átt eina frænku, sem er einnig barnabarn Óskar (hún var alltaf kölluð Ogga)  sem er búin að eiga heima á Ísafirði í mörg ár. Hún heitir Sigríður Steinunn Axelsdóttir. Þú vissir kanski af henni. Ég held að systurnar Dóróthea og Ogga hafi aldrei hist, man það samt ekki alveg. Þarf að spyrja mömmu að því. Sá eini sem ég man eftir að hafa hitt af afkomendum Dórótheu er Ásgeir Jakobsson en hann kom stundum til Sigurrósar sem var systir Dórotheu og Oggu. Það var gaman að heyra frá þér. Bestu kveðjur. Jóhanna

Jóhanna Skúladóttir (IP-tala skráð) 8.3.2007 kl. 12:53

11 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 8.3.2007 kl. 14:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 2020894

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband