Kaupmannahöfn. og heim.

Nú er næði til að halda áfram ferðasögunni minni.  Við erum sem sagt komin til Kaupmannahafnar.

Skrifaði þetta niður þegar ég kom heim:

Fórum frá Forchenstein kl. Hálf fimm í morgun.  Höfðum ágætis tíma á Flugvellinum í  Vín, fengum okkur þar morgunmat, en fluginu seinkaði vegna þess að það þurfti að afísa vélina.  Það tók tímann sinn, en við höfðum nógan tíma, þar sem við vorum bókuð á Hótel í Köben og þurftum ekki að hafa áhyggjur af því að mæta of seint neinstaðar.  Hótelið er rétt hjá Hofbanegård, við ákváðum samt að taka leigubíl, þar sem slabb var á götunum.  En fyrst var að taka lestina frá flugvellinum í centrum.  Og auðvitað komum við inn í vitlausan enda.  Töldum okkur þekkja járnbrautarstöðina nógu vel, en svo var bara allt breytt, hvar voru veitingastaðirnir, við ætluðum nefnilega að fá okkur morgunverð á brautarstöðinni.  En komumst svo að því að það sem við vorum að leita að var nákvæmlega hinum megin á brautarstöðinni. Heheh.

Leigubílstjórinn var hálf fúll af því að við þurftum að slefa töskunum yfir götuna og óhreinka bílinn hans, og svo sagði hann frekar fúll, ef þið hefðuð bara farið hinum megin út af stöðinni, þá hefði hótelið ykkar blasað þar við.   En raunar var það ekki alveg svo, við nenntum ekki að fara að bera tvær þungar töskur lengra en við þurftum.

Hótelið er krúttlegt, allt í rangölum og furðulegurm göngum, herbergið er lítið, en þar er raunar allt sem þarf, svo  við því er ekkert að segja.

Kaupmannahöfn tók á móti okkur með snjókomu og slabbi.

Þar sem við klúðruðum járnbrautarstöðinni,  fórum við í smá gönguför eftir að hafa loggað okkur inn á hótelið.   Fundum svo engan stað opinn, og enduðum á Hard Rock þar sem við fengum ágætir Bröns.

Keyptum okkur smá bjór og rauðvín á leiðínni á hótelið í 7 eleven.  Og svo var bara að leggja sig og hafa það notalegt, því við ætlum að fara í Tívolí á eftir, rangla þar um og borða svo á Heresford, ljúffenga steik.  Á morgun erum við svo boðin í mat til systur minnar í Köge. 

Málið er að við ætluðum ekki að stoppa neitt í Kaupmannahöfn.  En tengdasonurinn bókaði fyrir okkur flugið og hótelið, og eitthvað ruglaðist hann þessi elska, þannig að við erum bókuð hér í þrjár nætur eða fram á fimmtudag.  Það er svo sem allt í lagi að hafa þetta ekki allt klippt og skorið, smá ævintýri. 

En ég lofa myndum frá Tívolí.  Við fórum ekkert á jólamarkað í Vín eða Neustadh eins og áætlað var, svo við tökum það bara út hér tvö hjónin í Köben.   Eigum það svo sem inni.

 

IMG_7479

Kaupmannahöfn fallega skreytt fyrir jólin.

IMG_7481

Komin í Heresford, mér finnst það must þegar maður kemur til Danmerkur, reyndar stendur veitingahúsið hér heima fyllilega undir væntingum líka.

IMG_7486

Við hliðina á Heresford er svo Tívolí, það er meiriháttar að fara þangað í desember, þó ekki væri nema til að skoða skreytingarnar.

IMG_7487

Sem betur fer hafði veðrið lagast þegar leið á daginn.

IMG_7488

Dálítið kínverskt þetta.

IMG_7493

Flottir svanir.

IMG_7494

Ævintýrahallir og ævintýraveröld.

IMG_7495

Það var greinilegt að margir ferðamenn leggja leið sína til Köben til að njóta þessarar fegurðar.

IMG_7498

Við hjónakornin.

IMG_7499

Við fórum reyndar ekki í karúsell.

IMG_7503

Við kíktum hins vegar á H.C. Andersen og ævintýri hans.

IMG_7523

Hér sigur hann blessaður og skrifar ævintýrin sín.

 IMG_7507

Þær eru magnaðar skreygingar.

IMG_7506

Og svo fallegt að skoða.

IMG_7508

Gott til að komast í jólaskapið.

IMG_7524

Fallegt ekki satt.

IMG_7526

Smile

IMG_7527

Rétt við hótelið og HBH er krá sem kallast jernbanekråen, þar duttum við inn í smá bjór.

IMG_7533

Heimilisleg ofskreytt krá með lifandi músikk. heilmikið fjör.

IMG_7534

Féllum strax í kramið.

IMG_7535

Virkilega skemmtilegt, fórum reyndar aftur kvöldið eftir.

En daginn eftir ætluðum við að hitta systur mína og manninn hennar.

Hún sagði okkur að það væri best að taka lestina til Köge, hún ætlaði að sækja okkur á brautarstöðina í Ölby.

Þegar til átti að taka lágu allar lestarferðir niðri vegna óveðursins. Svo við ákváðum að við færum á Fisketorvet og þau myndu sækja okkur þangað.

Við urðum að ganga frá járnbrautarstöðinni, því lestarnar voru kyrrar.  Það var öngþveiti á brautarpöllunum, þar sem starfsmenn járnbrautanna reyndu að segja fólki að það væru engar lestar, og leiðbeina þeim annað. Við urðum svo að fara yfir rosa brú sem lá yfir teinanna, og ég var þvílíkt lofthrædd og ríghélt í Ella alla leið yfir.

IMG_7540

Kakos á brautarstöðinni.

IMG_7542

Sem betur fer er þetta risamoll ekki langt frá brautarstöðinni, svo við gáum gengið þangað.

IMG_7543

Sigga mín litla systir sótti okkur þangað. 

IMG_7545

Við áttum svo yndislega stund með henni og Ragnari mági mínum. Við hlógum mikið og skemmtum okkur við að ryfja upp ýmislegt skemmtilegt.

IMG_7547

Gaman er á góðri stund, gleði lífs að njóta.Heart Takk elsku Sigga og Ragnar.

IMG_7549

Systir mín hafði eldað dýrindis máltíð, forrétt leverpostej, og svo sérvalda nautasteik beint frá slátraranum í nágrenninu. Alveg meiriháttar.

IMG_7550

Sem betur fer var lestarkerfið komið í gagnið þegar við fórum, því það er töluverður spölur að aka til Köge frá Kaupmannahöfn centrum. Hér er Sigga að aðstoða Ella við að kaupa miða.

IMG_7551

Ég hafði samband við eina frænku mína hér Önnu Margréti, og við mæltum okkur mót á kaffihúsi á Strikinu, Sigga systir ætlaði að koma líka.

IMG_7552

Hér er gamli bautasteinninn í miðborg Köben þar sem stendur að héðan séu 30 km. til Roskilde, og 60 til Korsor. Þennan spöl hjólaði Elli daglega, þegar ég hafði vinnuskipti árið 1995 og var að vinna við garðyrkju í Roskilde í nokkra mánuði. Þá fór hann á brautarstöðina fékk sér bjór og las moggann. 

IMG_7553

Við erum á leiðinni á Strikið.

IMG_7554

Á Strikinu voru danskir að spá í jólapakka, það var stemning og fólk á ferli þó veðrið væri ekki upp á það besta.

IMG_7555

Margir að spá í jólagjafir enda jólin að nálgast.

IMG_7556

Cool

IMG_7561

Það urðu fagnaðarfundir með okkur frænkunum, elsku Anna Margrét er að vinna sig út úr erfiðleikum sem hún upplifði, þegar hún var hjúkrunarkona á Grænlandi og brjálaður grænlendingur var nærri búin að drepa hana. En hún er sterk og jákvæð enda af Hornströndum.  Kjarkurinn er innstilltur í genin á okkur.

IMG_7562

Maðurinn hennar sr. Kristinn Ágúst er henni örugglega stoð og stytta. Reyndar er systir mín líka prestur. Vonandi fær hún gott prestakall þarna í Danmörku, því hún er bæði afar klár og svo góð manneskja og duglegHeart

Takk elsku Anna Margrét og Kristinn fyrir skemmtilegan eftirmiddagHeart

IMG_7566

Þegar við komum út var komið myrkur og búið að kveikja á jólaskreytingunum á Strikinu.  Svo sannarlega flott.

IMG_7567

Allt í jólalitunum. Hér er meira um hjörtu, en í Austurríki eru það stjörnurnar sem blíva.

IMG_7568

Nei þetta er ekki tívolí, þetta er prinsessubúð í fullum skrúða.

IMG_7570

Það var bara gaman að ruslast í borginni sem aldrei sefur. 

IMG_7571

Elli minn í góðum félagsskapLoL

IMG_7574

Komin á flugvöllinn á leiðinni heim, nú var flogið með wowair.

IMG_7576

 

Elskulegt fólk þar um borð, og það var mikið lagt upp úr því að ræða við farþegana. Og alls konar tilkynningar, flugstjórar sögðu frá hvar væri verið að fljúga yfir og svoleiðis. Skemmtilegt.

Fékk að taka mynd að þessari fallegu stúlku eftir að við lentum í Keflavík.

IMG_7577

Það voru ekki margir í flugstöðinni þegar við komum, og hér var verið að stilla upp stólum og slíku, annað hvort fundur eða tónleikar, spurði ekki.

IMG_7578

Komin heim. Þá er að bíða eftir syninum hér að sækja okkur og ná í bílinn og koma sér áleiðis heim. En fyrst aðeins að kíkja á litlu mennina í NjarðvíkunumHeart 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Alltaf jafn dásamlegt að flögra um heiminn með þér, þú tekur þetta svo sannarlega beint í æð.  Ég þekki Kristinn mjög vel, yndislegur maður, konuna hans kannast ég líka við, en þekkti hana ekki á þessari mynd, vissi ekkert af þessari áras, er langt síðan?  takk fyrir mig í dag.  knús 

Ásdís Sigurðardóttir, 3.1.2013 kl. 18:10

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Ásdís mín, hún lenti í þessu í haust held ég.  Já Kristinn er yndisleg manneskja og hún er það líka.  Við erum systkinabörn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.1.2013 kl. 18:57

3 identicon

Skemmtilegt að sjá Köben í snjó, bara komið þangað að sumri og hausti, en kannast við margt sem þú nefnir . Líka gaman að sjá Siggu. Prinsessurnar okkar hefðu nú kunnað að meta prinsessubúðina .

Dísa (IP-tala skráð) 3.1.2013 kl. 20:30

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Dísa þær myndu elska þessa búð.  já það var flott að koma til Köben á þessum tíma.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.1.2013 kl. 21:11

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég held ég sé ekki rugluð,en klukkan í mér ruglaðist,sofna kl 9,30 ,vakna eftir miðnætti. þá fer mín í freðalag mað Ásthildi,gratís.

Helga Kristjánsdóttir, 4.1.2013 kl. 05:18

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mín er ánægjan Helga mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.1.2013 kl. 12:16

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vonandi nær hún sér vel, þau eru yndisleg bæði tvö eins og þú segir.

Ásdís Sigurðardóttir, 4.1.2013 kl. 13:13

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Anna Margrét er dugleg og einbeitt í því að ná sér á strik aftur.  'Eg er stolt af frænku minni.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.1.2013 kl. 13:31

9 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það var virkilega gaman að taka þátt í þessu ferðalagi með ykkur.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.1.2013 kl. 16:07

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Axel minn mín var ánægjan.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.1.2013 kl. 18:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 91
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband