Kettir og börn, það er lífsins saga.

Í dag er hér 10 gráðu hiti og sól.  'Eg á eftir að fara út í göngutúr eða eitthvað.  Veðrið hefur verið ótrúlega fallegt undanfarna daga. 

IMG_0435

Hann er að verða afar eftirtektarsamur um umhverfi sitt sá stutti.

IMG_0438

Falleg teikning eftir Hönnu Sól.

IMG_0442

Hér hjálpast allir að í eldhúsverkunum, þ.e. kvenfólkið. Cool

IMG_0447

Gamlir taktar. 

IMG_0451

Og Hanna Sól hefur engu gleymt.

IMG_0456

Í gær fórum við og settum niður túlípanana.  Og ýmislegt annað smálegt.

IMG_0458

Það er nú ekki amalegt að hafa svona áðstoðarmenn, Trölli var einum og áhugasamur, og mátti þakka fyrir að halda trýninu, því hann var allstaðar með nefið þar sem ég var að moka moldinni. LoL

IMG_0460

En þetta gekk bara ansi vel, og vonandi verður lóðin litskrúðug í mars, aðríl, en þá er gert ráð fyrir að túlípanarnir blómstri hér.

IMG_0462

Þetta var skemmtilegt.

IMG_0466

Við settum svo niður lauka í grasið, svona til að lífga ennþá betur upp á.

IMG_0475

Svo rökuðum við saman laufum og breiddum yfir laukana eins og sæng.

IMG_0478

Og þá var komin tími til að huga að litla bróður.

IMG_0485

Hvað er nú þetta?

IMG_0486

Jú Púma að fá sér að drekka.

IMG_0487

Er þetta hægt Matthías?

IMG_0488

Fær maður ekki einu sinni frið á klósettinu?Blush

IMG_0489

Við köllum hann feita kisa, Carlos nýtur sín best fyrir framan eldinn eða í feldi.

IMG_0492

Við erum búnar að hlæja mikið að þessari mynd sem Bára dóttir mín tók af Carlosi. Er hann ekki algjört krútt?LoL

IMG_0493

Hann er líka sætur.

IMG_0502

Villidýrslegur.

IMG_0504

Jafnvel ógnvekjandi.

IMG_0503

Samt bara góði gamli Carlos.

IMG_0507

Lærið var skorið niður í sneiðar þ.e. aftangurinn og ég geymdi kjötið í ofninum uns tími var til að hita það upp, Carlos var afar áhugasamur um málið.

IMG_0509

Og systurnar höfðu gaman af.

IMG_0510

Síðustu tvær myndirnar eru dálítið hreyfðar en þær eru bara svo skemmtilegar.

IMG_0514

Og nú góna allir á ofninn. LoL

IMG_0517

En svo var komið að því að litli bróðir færi í sitt fyrsta balabað.

IMG_0519

Hann kom nokkrum dögum fyrir tímann, gat ekki beðið, en nú má hann fara í bað.

IMG_0520

HOnum líkaði það allskostar vel, þetta er nefnilega vellíðunar svipur en ekki eitthvert grenj. Heart

IMG_0523

 

Systurnar voru auðvitað afar hjálpsamar og áhugasamar um litla bróður sinn.

IMG_0526

Litli kúturinn okkar. Heart

En nú þarf að halda áfram að þvo þvott og hengja út í góða veðrið, og síðan bara að njóta dagsins, vona að það gerið þið líka mín kæru. Eigið góðan dagHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Alveg dásamlegar myndir    það er löngu orðið ljóst að Hanna Sól verur listakona, mig langar svo í kisu þegar ég skoða þessar fallegu kisu myndir, Carlos er æði.  Takk og njóttu dvalarinnar 

Ásdís Sigurðardóttir, 28.11.2011 kl. 11:20

2 Smámynd: Kidda

Alveg frábært að byrja daginn á að skoða myndirnar frá þér, það lífgar upp á tilveruna hjá manni. Hvort sem það eru myndir af krúttmolanum, systrum hans eða kisunum. Og ég tala nú ekki um garðinn, við hefðum sennilega getað sett niður túlípana hérna fyrir nokkrum dögum áður en frostið kom með snjókomu.

Knús tl Austurríkis

Kidda, 28.11.2011 kl. 12:41

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takkin Stelpur mínar, já Ásdís ég er viss um að Hanna Sól verður lisakona, ef til vill fatahönnuður eftir því að dæma hvenrig hún leikur sér að búa til eitthvað annað úr því sem hún klæðir sig.  Carlos er æðislegur kötturu eins og hugur manns.

Kidda mín, það er hægt að setja niður túlípana alveg þangað til botnfrýs jörðin.  Þó það sé aðeins frostskán yfir er allt í lagi, þeir koma upp fyrir því næsta vor.  Ótrúlega duglegir þessir túlípanar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.11.2011 kl. 13:49

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Æðislegar myndir, held bara að litli kúturinn sé líkur Ella afa.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 28.11.2011 kl. 16:39

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 kveðja.

Helga Kristjánsdóttir, 28.11.2011 kl. 18:25

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég held það bara Milla mín.

Kveðja á móti Helga mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.11.2011 kl. 18:31

7 identicon

Kostulegt að sjá köttinn ná sér í vatn í klósettinu, minnist þess frá því ég var mjög lítil að Ella átti kött sem pissaði í klósettið, ég skil eiginlega ekki enn hvernig kisa fór að því en horfði á það . Gaman að fylgjast með krökkunum og sjá ykkur gróðursetja. Reyndi Trölli ekki að grafa upp aftur? Bára á örugglega eftir að njóta að eiga svona duglegar barnapíur .

Dísa (IP-tala skráð) 28.11.2011 kl. 22:24

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jú Dísa einmitt hann reyndi við fyrstu holuna  En síðan hefur hann látið þær vera.  Púma fær sér að drekka úr klósettinu.  Já ég held að stelpurnar eigi eftir að gæta Jóns Ella afar vel.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.11.2011 kl. 22:52

9 Smámynd: Steingrímur Helgason

Enn & aftur,

Takk.

Steingrímur Helgason, 29.11.2011 kl. 00:56

10 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Það er alltaf jafn gaman að skoða myndirnar og lesa bloggið þitt, þessi fjölskylda þín er ábyggilega orðin fjölskylduvinur á mjög mörgum íslenskum heimilum :)

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 29.11.2011 kl. 03:04

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir innlitið Zteingrímur minn.

Takk Jóna Kolbrún mín, já ég hugsa að mörgum finnist þeir eiga svolítið í þessum elskulegu barnabörnum mínum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.11.2011 kl. 10:25

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Svo mikil hamingja í myndinni hjá Hönnu Sól ♥

Hrönn Sigurðardóttir, 29.11.2011 kl. 17:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband