Laugardagur familydagur.

Það var ró yfir fjölskyldunni í dag.  Mistrið hafði vikið fyrir sól og hlýju.  Við ætluðum að vinna í garðinum, en það fórst fyrir, ég hengdi þó þvott út á snúru.  En í morgun kom bóndi með timbur til húshitunar.  Sem Bjarki tengdasonur hafði pantað, fimm rúmmetrar, rúmmetrinn kostar um 60 evrur eða 12 þúsund krónur komið á staðiinn.  Bóndinn ók þessu sjálfur á traktor með kerru.  Svo var eftir að koma timbrinu inn í bílskúr.  Við áttum annars góðan dag.  Ég eldaði lambalæri sem ég hafði komið með að heiman, og síðan fékk ég dekurkvöld hjá dóttur minni, sem tekraði við mömmu sína, litaði hárið, og ég ákvað að fá mér topp líka. Smile

Litli guttinn okkar dafnar dag frá degi, hann er jafnvel farin að brosa, fylgist vel með og hlustar ef maður syngur fyrir hann.  Ótrúlega duglegur lítill maður.  Það var kynnt upp í kyndingunni niðri í kjallara svo ég komst í sturtu, sem var voða notalegt. 

IMG_0332

Algjör töffari þessi drengur.

IMG_0336

Litli sæti unginn okkarHeart

IMG_0338

Þessi  mynd var tekin í gær, nú var ekkert hrím né þoka lengur.

IMG_0340

Þetta er Lenný, hann er villiköttur, en hefst við í kjallaranum hjá 0mmunni, en svo kemur hann líka upp til okkar og biður um mat.  En bara þegar Trölli hundur er ekki heima, því Trölli þolir hann ekki LoL

IMG_0342

Mamman og litla barnið. Heart

IMG_0345

Svo sæt og góð mamma og dugleg þessi elska. Heart

IMG_0346

Meira að segja kóngulóarvefirnir verða að listaverkum hér í næturkuldanum.

IMG_0347

Og plönturnar fá á sig annan svip.

IMG_0356

Hann getur líka vakað heilmikið þegar hann vill hann Jón Elli.  Sendi þetta á Hellu með þökkum fyrir góðar kveðjur.

IMG_0358

Litla nei stóra tryppið er líka afar ánægð með litla bróður, og hróðug yfir að vera stóra systir. Smile

IMG_0360

Eins og sjá má er hún ánægð.

IMG_0361

 

Halló segir Jón Ellli við ykkur lesendur góðir.  Ég ætla að verða sterkur og stór.

IMG_0365

Það geriðst dálitið slæmt í gær, Ásthildur litla fékk gat á höfuðið, þetta var frekar langur og djúpur skurður.

IMG_0366

En þá er eins gott að eiga dýralæknir fyrir mömmu, því hún spengdi sárið saman og gerði að því eins vel og hver annar læknir.

IMG_0367

Og bágti gleymdist svo fljótt eins og vera ber.

IMG_0369

Það var tekið út á CarlosiLoL

IMG_0371

Annars er þetta bara eins og í sveitinni, kabyssan og svo kettirnir, hlýtt og notalegt.

IMG_0373

Svona er lífið bara.

IMG_0375

Sæt stelpa.Heart

IMG_0376

Trölli er stóri bróðir, hann kom fyrstur og hefur passað stelpurnar og síðan kettina alla tíð.

IMG_0380

Carlos lætur sér vel líka ástarhót litla tryppisins. 

IMG_0381

Stoltur pabbi.

IMG_0384

Hann er að venjast litla krílinu, annars er hann að vinna ansi mikið í járningum.  Hér er mikið lagt upp úr því að hafa hestana vel járnaða.

IMG_0385

Já þetta er notaleg samverustund.

IMG_0386

Stundum er nún Lína Úlfur, stundum hundurinn Gegglinglegg, eða Laraköttur, ég held að hún sé komin með sigg á hnén LoL

IMG_0388

En hún hefur engu gleymt fyrir framan myndavélina. Heart

IMG_0405

Hér eru sem sé þessir fimm rúmmetrar af kyndingarefni sem dugir a.m.k.hálfan veturinn ætlar heimilisfaðirinn.

IMG_0413

Og í dag skein sólin og útsýnir tært og veðrið hlýtt.

IMG_0415

Vonandi verður sama veður á morgun, þá er ég ákveðin í að setja niður túlípanana hennar Báru minnar og dytta að blómunum sem hún er að yfirvetra hér í vetrargarðinum sínum.

IMG_0416

Sjáið hvað ég fann, sagði pabbi, þetta fiðrildi var innan um timbrið og átti bágt í kuldanum.  En þegar við vorum búin að skoða það fórum við stelpurnar með það út í vetrargarðinn og settum það niður í blómin og eftir skamma stund var það farið að flögra um svæðið.  Þetta heitir eitthvað kóngsauga eða slíkt. 

IMG_0419

Hér er svo amman með krílið.  Og takið eftir að handtökin eru ögn kæruleysislegri en hjá foreldrunumWink

IMG_0422

Nágrannarnir eru svo að koma í heimsókn og skoða nýja barnið.,

IMG_0423

Lærið bragðaðist eins og vænta mátti af íslensku lambi með því betra sem finnst.  Og var gerð góð skil.

IMG_0432

Hér er svo nýja lúkkið eftir dekur dótturinnar.  Ómáluð reyndar tek það fram.   En ég er ánægð með árangurinn.

IMG_0431

Hláturinn lengir lífið.  Og ég segi bara góða nótt elskurnar og sofið rótt.  Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Flottar myndir og kveðja til þín Cesil mín, hafðu það sem allra best.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 27.11.2011 kl. 01:27

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Yndislegt líf

Hrönn Sigurðardóttir, 27.11.2011 kl. 08:12

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir GMaría mín og Hrönn.  Ég er alveg að njóta mín í botn hérna.  Ekkert skammdegi til dæmis.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.11.2011 kl. 09:18

4 Smámynd: Kidda

Til hamingju með nýja lúkkið, þú alveg ljómar að vera þarna í faðmi fjölskyldunnar. Jón Elli er alveg megakrútt og já ögn kærulausari meðferð hjá ömmunni Stelpurnar ljóma að hafa ömmu sína hjá sér, þær lifa góðu lífi þarna. Heppnar að eiga mömmu sem er dýralæknir og getur lagað sár.

Ha, er ekkert skammdegi þarna? Væri alveg til í að skipta en það fer að styttast í að daginn fari að lengja hérna.

Verður amman ekki komin heim fyrir jólin? 

Risaknús á alla krúttmola í Austurríki

Kidda, 27.11.2011 kl. 11:34

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Draumur eins og alltaf hjá þér, takk fyrir myndasýninguna, einstaklega falleg mynd af litlu Ásthildi, þar sem hún situr og þú skrifar undir um dýrin sem hun er að leika.  Knús til ykkar

Ásdís Sigurðardóttir, 27.11.2011 kl. 11:37

6 identicon

Já, þú yngist við nýtt útlit , enda eins gott fyrir nýbakaða ömmu að líta vel út . Sá litli er kunnuglegur, ég sé ýmislegt sem ég þekki frá þér og þínum. Frábært að þið getið átt góðan tíma saman. Stelpurnar eru flottar, eins og að hitta gamla vini að sjá myndir af þeim, minnir mig á að ekki skiptir máli hve langt líður stundum á milli þess að ég hitti ömmuna. Alltaf eins og við höfum hist í gær. Knús

Dísa (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 12:13

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Kidda mín, jú ég verð komin heim fyrir jól.  Get ekki annað því þar á ég tvo unglinga sem vilja hafa ömmu sína og afa heima um jólin.  Og svo er ég svona jólakerling sem vil helst vera heima á jólunum. 

Takk Ásdís mín, já Ásthildur er ótrúlega frjór krakki og flott, þær reyndar báðar.

Takk Dísa mín, já það verð ég auðvitað að gera, líta vel út svona í tilefni tímamóta

Já þær bera ýmislegt frá mömmu megin en líka pabbamegin.  Já það er ekta vinkonur Dísa mín, einmitt vinátta er tímalaus ekki í vestfirskri merkingu þó  Heldur að það skiptir ekki máli hvort við hittumst ekki í tíu ár eða nokkra klukkutíma, það er bara eins og það hefði verið áðar. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.11.2011 kl. 13:40

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 hlæ með kv.

Helga Kristjánsdóttir, 27.11.2011 kl. 18:46

9 Smámynd: Dagný

Flott nýja lúkkið. Og þú ert sko flott amma og mátt vera stolt með alla afkomendurna. Hann er gullfallegur þessi litli drengur. En það eru líka allir sem að honum standa.

Dagný, 27.11.2011 kl. 22:19

10 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þakka mjög góða syningu og fræðslu7Kveðja

Haraldur Haraldsson, 28.11.2011 kl. 00:11

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Helga, Dagný og Haraldur. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.11.2011 kl. 09:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 2021029

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband