26.11.2011 | 22:40
Laugardagur familydagur.
Það var ró yfir fjölskyldunni í dag. Mistrið hafði vikið fyrir sól og hlýju. Við ætluðum að vinna í garðinum, en það fórst fyrir, ég hengdi þó þvott út á snúru. En í morgun kom bóndi með timbur til húshitunar. Sem Bjarki tengdasonur hafði pantað, fimm rúmmetrar, rúmmetrinn kostar um 60 evrur eða 12 þúsund krónur komið á staðiinn. Bóndinn ók þessu sjálfur á traktor með kerru. Svo var eftir að koma timbrinu inn í bílskúr. Við áttum annars góðan dag. Ég eldaði lambalæri sem ég hafði komið með að heiman, og síðan fékk ég dekurkvöld hjá dóttur minni, sem tekraði við mömmu sína, litaði hárið, og ég ákvað að fá mér topp líka.
Litli guttinn okkar dafnar dag frá degi, hann er jafnvel farin að brosa, fylgist vel með og hlustar ef maður syngur fyrir hann. Ótrúlega duglegur lítill maður. Það var kynnt upp í kyndingunni niðri í kjallara svo ég komst í sturtu, sem var voða notalegt.
Algjör töffari þessi drengur.
Litli sæti unginn okkar
Þessi mynd var tekin í gær, nú var ekkert hrím né þoka lengur.
Þetta er Lenný, hann er villiköttur, en hefst við í kjallaranum hjá 0mmunni, en svo kemur hann líka upp til okkar og biður um mat. En bara þegar Trölli hundur er ekki heima, því Trölli þolir hann ekki
Mamman og litla barnið.
Svo sæt og góð mamma og dugleg þessi elska.
Meira að segja kóngulóarvefirnir verða að listaverkum hér í næturkuldanum.
Og plönturnar fá á sig annan svip.
Hann getur líka vakað heilmikið þegar hann vill hann Jón Elli. Sendi þetta á Hellu með þökkum fyrir góðar kveðjur.
Litla nei stóra tryppið er líka afar ánægð með litla bróður, og hróðug yfir að vera stóra systir.
Eins og sjá má er hún ánægð.
Halló segir Jón Ellli við ykkur lesendur góðir. Ég ætla að verða sterkur og stór.
Það geriðst dálitið slæmt í gær, Ásthildur litla fékk gat á höfuðið, þetta var frekar langur og djúpur skurður.
En þá er eins gott að eiga dýralæknir fyrir mömmu, því hún spengdi sárið saman og gerði að því eins vel og hver annar læknir.
Og bágti gleymdist svo fljótt eins og vera ber.
Það var tekið út á Carlosi
Annars er þetta bara eins og í sveitinni, kabyssan og svo kettirnir, hlýtt og notalegt.
Svona er lífið bara.
Sæt stelpa.
Trölli er stóri bróðir, hann kom fyrstur og hefur passað stelpurnar og síðan kettina alla tíð.
Carlos lætur sér vel líka ástarhót litla tryppisins.
Stoltur pabbi.
Hann er að venjast litla krílinu, annars er hann að vinna ansi mikið í járningum. Hér er mikið lagt upp úr því að hafa hestana vel járnaða.
Já þetta er notaleg samverustund.
Stundum er nún Lína Úlfur, stundum hundurinn Gegglinglegg, eða Laraköttur, ég held að hún sé komin með sigg á hnén
En hún hefur engu gleymt fyrir framan myndavélina.
Hér eru sem sé þessir fimm rúmmetrar af kyndingarefni sem dugir a.m.k.hálfan veturinn ætlar heimilisfaðirinn.
Og í dag skein sólin og útsýnir tært og veðrið hlýtt.
Vonandi verður sama veður á morgun, þá er ég ákveðin í að setja niður túlípanana hennar Báru minnar og dytta að blómunum sem hún er að yfirvetra hér í vetrargarðinum sínum.
Sjáið hvað ég fann, sagði pabbi, þetta fiðrildi var innan um timbrið og átti bágt í kuldanum. En þegar við vorum búin að skoða það fórum við stelpurnar með það út í vetrargarðinn og settum það niður í blómin og eftir skamma stund var það farið að flögra um svæðið. Þetta heitir eitthvað kóngsauga eða slíkt.
Hér er svo amman með krílið. Og takið eftir að handtökin eru ögn kæruleysislegri en hjá foreldrunum
Nágrannarnir eru svo að koma í heimsókn og skoða nýja barnið.,
Lærið bragðaðist eins og vænta mátti af íslensku lambi með því betra sem finnst. Og var gerð góð skil.
Hér er svo nýja lúkkið eftir dekur dótturinnar. Ómáluð reyndar tek það fram. En ég er ánægð með árangurinn.
Hláturinn lengir lífið. Og ég segi bara góða nótt elskurnar og sofið rótt.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 5
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 2022835
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Flottar myndir og kveðja til þín Cesil mín, hafðu það sem allra best.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 27.11.2011 kl. 01:27
Yndislegt líf
Hrönn Sigurðardóttir, 27.11.2011 kl. 08:12
Takk fyrir GMaría mín og Hrönn.
Ég er alveg að njóta mín í botn hérna.
Ekkert skammdegi til dæmis.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.11.2011 kl. 09:18
Til hamingju með nýja lúkkið, þú alveg ljómar að vera þarna í faðmi fjölskyldunnar. Jón Elli er alveg megakrútt og já ögn kærulausari meðferð hjá ömmunni
Stelpurnar ljóma að hafa ömmu sína hjá sér, þær lifa góðu lífi þarna. Heppnar að eiga mömmu sem er dýralæknir og getur lagað sár.
Ha, er ekkert skammdegi þarna? Væri alveg til í að skipta en það fer að styttast í að daginn fari að lengja hérna.
Verður amman ekki komin heim fyrir jólin?
Risaknús á alla krúttmola í Austurríki
Kidda, 27.11.2011 kl. 11:34
Draumur eins og alltaf hjá þér, takk fyrir myndasýninguna, einstaklega falleg mynd af litlu Ásthildi, þar sem hún situr og þú skrifar undir um dýrin sem hun er að leika. Knús til ykkar
Ásdís Sigurðardóttir, 27.11.2011 kl. 11:37
Já, þú yngist við nýtt útlit
, enda eins gott fyrir nýbakaða ömmu að líta vel út
. Sá litli er kunnuglegur, ég sé ýmislegt sem ég þekki frá þér og þínum. Frábært að þið getið átt góðan tíma saman. Stelpurnar eru flottar, eins og að hitta gamla vini að sjá myndir af þeim, minnir mig á að ekki skiptir máli hve langt líður stundum á milli þess að ég hitti ömmuna. Alltaf eins og við höfum hist í gær
. Knús 
Dísa (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 12:13
Takk Kidda mín, jú ég verð komin heim fyrir jól. Get ekki annað því þar á ég tvo unglinga sem vilja hafa ömmu sína og afa heima um jólin. Og svo er ég svona jólakerling sem vil helst vera heima á jólunum.
Takk Ásdís mín, já Ásthildur er ótrúlega frjór krakki og flott, þær reyndar báðar.
Takk Dísa mín, já það verð ég auðvitað að gera, líta vel út svona í tilefni tímamóta
Já þær bera ýmislegt frá mömmu megin en líka pabbamegin. Já það er ekta vinkonur Dísa mín, einmitt vinátta er tímalaus ekki í vestfirskri merkingu þó
Heldur að það skiptir ekki máli hvort við hittumst ekki í tíu ár eða nokkra klukkutíma, það er bara eins og það hefði verið áðar. 
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.11.2011 kl. 13:40
hlæ með kv.
Helga Kristjánsdóttir, 27.11.2011 kl. 18:46
Flott nýja lúkkið. Og þú ert sko flott amma og mátt vera stolt með alla afkomendurna. Hann er gullfallegur þessi litli drengur. En það eru líka allir sem að honum standa.
Dagný, 27.11.2011 kl. 22:19
Þakka mjög góða syningu og fræðslu7Kveðja
Haraldur Haraldsson, 28.11.2011 kl. 00:11
Takk Helga, Dagný og Haraldur.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.11.2011 kl. 09:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.