Safariferð til Keldudals og matur í Tjöruhúsi.

Ég fór með vinnufélögum mínum fyrrverandi í ansi skemmtilega ferð í gær, dagsferð og grill í Keldudal í Dýrafirði.

Þetta var fróðleg ferð og dálítið óhugnanleg á köflum.

IMG_3325

Ekið er gegnum Þingeyri og út fyrir Haukadal, svið Gísla Súrssonar, og yfir ófæru sem er all ófrýnileg til Keldudals.

IMG_3326

Vegurinn er torfarinn slóði, hér áður var gengið fjaran, en háls einn gengur út í fjörðin, svo ekki er hægt að fara fyrir hann á fjöru, heldur var sett vað sem menn hífðu sig upp á hann til að komast leiðar sinnar, það hefur verið þrekvirki þegar þurfti að bera byrðar heim, þar sem ekki er gott að komast að frá sjó.

IMG_3328

Við komumst samt klakklaust á leiðarenda, og fórum að leita að góðum stað til að grilla á.

IMG_3330

Besti staðurinn reyndist vera í skjóli við Hraunskirkju, sem er gömul kirkja byggð á annari árið 1880.  Hefur þarna staðið af sér öll veður og er í sjálfu sér afskaplega merkileg, var afhelguð, en hefur síðan fengið að þjóna fólki við ýmsar athafnir.  Er í eigu Þjóðminjasafns Íslands.

IMG_3331

Þær leynast víða perlurnar.

IMG_3332

Fararstjórinn okkar var Gunnhildur Elíasdóttir.  En hún er bæði fædd og uppalin til unglingsára hér í dalnum, og gat frætt okkur vel um búskaparhætti og dugnað fólks á þessu harðbýla en fallega svæði. Að vísu ekki mjög harðbýlt þannig, því dalurinn teygir sig langt iðagrænn og miklar sláttur, en vegna samgangna illbúandi. 

IMG_3333

Forláta gamlir munir eru þarna.  Handverk liðinnar tíðar, sem ber fólki sveitarinnar fagurt merki.

IMG_3335

Gunnhildur heklaði þennan altarisdúk, hún er eins og hennar ætt öll sömul sannkölluð handverkskona.

IMG_3336

Hér les hún ljóð um kirkjuna eftir föður sinn Elías Michael Vagn Þórarinsson frá Hrauni í Keldudal, og það var dýrt kveðið.  Það stóð til að rífa kirkjuna, en heimamenn gátu komið í veg fyrir það, og nú stendur þessi fagri minnisvarði sveitungum til heiðurs. Þó allir séu fluttir burtu.

IMG_3338

Predikunnarstóllinn vakti greinilega mesta athygli okkar fólks.

IMG_3339

Svo og gamla kirkjuklukkan. Sem er annað hvort gömul skipsklukka eða upprunalega kirkjuklukka.  En hún hefur fögur hljóð.  Við fengum að heyra það.

IMG_3340

En þá var að huga að veraldlegum hlutum eins og að fá sér að borða.

IMG_3341

Það var ósköp notalegt að vera í skjóli kirkjunnar, því það var dálítill vindur þó ekki væri kalt.

IMG_3343

Hér er gamall kirkjugarður, og hér eru stórar sögur og sumar all hrikalegar.

IMG_3346

Eins og sagan um hana Gunnhildi Sumarliðadóttur.  Hún varð ófrísk og sagan segir að faðirinn hafi ekki viljað gangast við barninu.  Bræður Gunnhildar en þau bjuggu á Sveinseyri, þurftu að fara yfir fjörðin til að heyja, hún fékk að fara með, en var þá barnshafandi.  Sagt er að þegar þau voru á heimleið fór veður versnandi, og þegar þau voru komin í fjöruborðið valt báturinn, bræðurnir huguðu fyrst að heyinu, en fóru svo að svipast um eftir systur sinni.  Hún fannst svo í fjörunni og þeim sýndist hún látinn, báru hana heim í skemmu.  En hún rankaði við sér, og urðu þeir þá svo hræddir að þeir gengu frá henni, héldu að hún væri draugur. 

Nema að svo gerist það að eftir jarðarförina fer hún að ganga aftur í ljósum logum um sveitina.  Þessu er reyndar lýst í kvæði eftir Elías.  Hún vitjaði hans þegar kona hans bar barn undir belti og vildi að barnið bæri nafn hennar.  Og það var gert, og er það sú sama Gunnhildur sem var fararstjóri okkar þessa ferð.  Ég ætla að láta ljóðið fylgja, því það er svo magnað.

 

 

Septembermyrkrið er svart og napurt

Sumri er brugðið, fólkip dapurt,

Á Brimnesi og Hálsum brotnar aldan

Blakta stráin við norðankaldann.

 

Við Sveinseyrarkambinn er súgur þungur

Svarrandi sleikja hann löðurtungur.

Dagsbirtan kafnar í kvöldsins grána

Kembir brimsjórinn Oddatána.

 

 

Bóndinn á Eyri er aldurhniginn

Eitthvað finnst honum vindleg skýin,

Hann eirðarlaus reikar og yfir fjörðinn

Augunum starir, en sjór og jörðin

Renna saman í rökkurmóðu

Regnskýjabólstrarnir upp sér hlóðu.

Skyldi ekki báturinn bráðum lenda

Þessir bölvuðu flutningar taka enda.

 

 

En hvað er að tala, það telst nokkur vandi

Þegar tún eru varla ljáberandi,

En úthaginn nálega yfirsetinn

Og ekkert sem getur jafnað metin.

Þeir höfðu því slegið handan fjarðar

Og heyskapinn, þennan gróður jarðar

Bundið og flutt til bjargar knúðir

Borið á skip við Helluflúðir.

 

Já, bræðurnir fóru í bítið í morgun

Að binda restina og inna borgun

Af höndum, fyrir það hey sem náðist

En hins ber að geta sem áður láðist:

Að með þeim hún Gunnhildur fékk að fara

Og fyrir það ætlaði hann að svara.

 

Því henni var erindið mjög í muna

Og meira en fólkið skyldi gruna.

Hann leyndist nú ekki sá ljóðurinn arni

Að líklega átti hún von á barni.

 

Sinn verðandi barnsföður vildi hitta

Og við hann í eitt skipti reikninginn kvitta.

Ef þráaðist hann yrði þungt í sinni

Þekki ég skapið í Gunnhildi minni.

 

Í Alviðru hafði sá vistina valda

Og vænti sér ríflegra endurgjalda.

Að setjast í búið mun beinlínis kæt‘ann

Af barnsaldri þó væri heimasætan.

 

 

En hvað sem því líður er löng orðin biðin

Hún leggst eins og mara á sálarfriðinn.

Eitt er þó víst að eitthvað tefur

Um sig í hjartanu myrkrið grefur.

 

Vaxandi brimhljóð til bæjar greinist

Bak við það óttinn og hættan leynist.

Að lenda með háfermi heys í slíku

Er hæpið að treysta, og því um líku.

Er betra að sinna á björtum degi

Svo bátur og mannafl duga megi.

 

 

Og fólkið á Sveinseyri situr og bíður

Samræður hljóðna en tíminn líður.

Þekjan á bænum er stormhviðum strokin

Það er stigið um hlaðið í vökulokin.

Hér voru þeir mættir bræður báðir

Blautir og kaldir, soltnir og hrjáðir.

Örþreyttir menn frá önn og striti,

Óskadraumurinn hvíld og biti.

Vel er að brimið ei varð til saka

En var ekki Gunnhildur komin til baka?

 

 

Spurningin féll líkt og högg frá hendi

Heimilisfólkið þeim bræðrum sendi-

-augnatillit sem andsvara krafðist,

En eitthvað fyrir þeim báðum vafðist.

Að lokum kom svarið nú seig á þorið

Menn sáu að hér hafði slys að borið.

 

 

Báturinn hjá okkur fór með flötu

Féllu brotsjóar upp í götu.

Gunnhildur sat upp við sátuhlaðann

Við sáum það eitt, hún var farin þaðan

Og héldum að heim þá hefði hún gengið,

Hita og hvíld eftir volkið fengið.

Við sinntum því einu að bjarga í bili

Bátnum og halda á réttum kili.

 

 

Þeir fóru um nóttina líksins að leita

Lagðist á hugina sorg og þreyta,

Með fjörunni gengu þeir gripnir kvíða

Geigþungt er myrkrið við að stríða.

Í Bótinni hafð‘ana borið að landi

Biksvarta hárið var orpið sandi.

Þar lá hún og starði opnum augum

Annarleg, fögur, með köldum taugum.

 

 

Til naustsins þeir báru líkið og lögðu

Á líkfjöl, en fátt hvor við annan sögðu.

Þá slokknaði ljóstýran allt í einu

Eins og nú væri fátt á hreinu.

Til bæjar þá annar bróðirinn gengur

Að bjarga við ljósinu, óttans strengu

Bærðist hjá hinum sem beið hjá henni

Bogaði svitinn af fölu enni.

 

 

Þá reis hún upp það var reginkraftur

Hver ræður þessu, hún gengur aftur.

Hann greip þá exi og gekk til hennar

Ganga um þetta sögur tvennar.

En líkið þá niður seig að seti

Sem hún í bili undan léti.

 

 

Að Hrauni skyldi nú Gunnhildi grafa

Það gat ekki leikið á neinum vafa.

En kirkjusókn þangað Eyrarmenn áttu

Og embættisverka þar krefjast máttu.

Þeir lögðu af stað í logni og blíðu

Og lentu í dalnum í veðri fríðu.

Já, kistuna skyldi til kirkju bera

En karlmenn einir það máttu gera.

 

 

Um hálfnaða leið var sem heljarþungi

Í hendurnar sigi, en kaldur drungi

Bugaði alla, þeir báru sig miður,

Best var að setja kistuna niður.

Þeir hvíldust um stund og úr limum líður

En líksins í Hraunsgarði gröfin bíður.

 

 

Er kistuna aftur í hendur þeir hefja

Hugsuðu: Númá ei lengur tefja.

Þeim brá, hún var létt eins og léki á vafa

Að lægi þar nokkur sem þyrfti að grafa.

Í Hrauni sjá menn að upp holtin hendist

Og heim yfir túnið sem örskot sendist.

Konu í líkhjúpi, kræfan anda,

Kuldi frá henni þeim virðist standa.

Inn yfir garðsvegginn kona sú hverfur

En klukknahljómurinn eyrun sverfur.

 

 

Vaxa í skuggunum vofur bleikar

Varið þið ykkur, Gunnhildur reikar.

Áratugir og aldir renna

Atvikin mark sitt í hugann brenna.

Í Hraunsgarði liggur hún loks í friði

Leiktjöldin fallin kyrrt á sviði.

Græðlingskvistur á gröfinni stendur

Gróðursettu hann vinahendur.

 

Höfundur: Elías Mikael Vagn Þórarinsson

Hrauni Keldudal Dýrafirði.

IMG_3348

Við urðum Gunnhildar ekki vör, enda hafði verið settur kross á leiði hennar nýlega.  Og ef til vill hefur hún bara fagnað fjölmenninu.

IMG_3349

Hraunshúsið hefur mátt muna sinn fífil fegri, aðeins lengra niðurfrá var svo annar Hraunbær en af honum var ekkert eftir nema grunnurinn og hluti strompsins, í því húsi fæddist Gunnhildur fararstjóri.  En hér er mikið veðravíti á vetrum.

IMG_3350

Rútubílstjórinn Elías Sveinsson og hans elskulega kona.

IMG_3352

Fólk gerði sér gott að matnum og félagskapnum.

IMG_3356

Hér les Gunnhildur upp hið magnþrungna ljóð um Gunnhildi Sumarliðadóttur.

IMG_3363

Við skoðuðum svo sumarbústað sem er rétt þarna hjá. Fólkið sem hann á hefur plantað hér ýmsum áhugaverðum trjám, sá ekki betur en hér væru nokkrar steinbjarkir m.a.

IMG_3366

Átta mig ekki alveg á þessari plöntu, það væri gott að fá nafn yfir hana.  Kannast samt við ættina, en kem henni ekki fyrirmig.

IMG_3367

Þessi horfir svo hraukfránum augum yfir landið og gætir þess örugglega.

IMG_3368

Svo var slegið á létta strengi eins og okkar er von og vísa.

IMG_3369

Margt að ræða og margir brandarar sem fuku.

IMG_3370

Þegar hér var komið sögu var farið að rigna, svona léttum úða lóðréttum, þó var hlýtt.

IMG_3373

Man ekki nafnið á fjallinu en tignarlegt er það með sinn gráa trefil.

IMG_3374

Skemmtilega staðsettur bátur.

IMG_3375

Fjölskyldan bjó svo hér uns þau þurftu að flytja þegar barnamegðin þurfti að fara í skóla.  Þá var flutt í Haukadal þar sem var skóli og félagsheimili og sannkölluð menning.

IMG_3378

Gunnhildur sagði mér að vinnukona á bænum hefði fundið þennan stein upp í fjalli, og komið með hann heim í svuntu sinni.  Í fyrsta lagi hefur svuntan verið úr ansi sterku efni og svo er líka spurning hvort vinnukonan hafi ekki líka verið að tröllakyni. En þessi steinn var notaður til að gefa hundunum mat.

IMG_3380

Hér eru svo bændurnir í ferðinni að skoða fornfálegt vinnutæki.

IMG_3382

Ég lýk svo þessari dulúðugu sögu á ævintýraskipinu, ef til vill er þetta hinn eini og sanni Hollendingurinn fljúgandi, hver veit.  Í íslenskum sveitum getur allt gerst.

Og innilega takk fyrir mig kæru vinnufélagar og eiginkonur.  Þetta var frábær ferð. Heart

IMG_3321

Vinur okkar fjölskyldunnar Stefan Abright bauð okkur að borða í Tjöruhúsinu hjá Magga Hauks.  Þessi staður er löngu orðin heimsfrægur og þangað flykkjast útlendingar allstaðar að úr heiminum og svo ísfirðingar sem vel kunna að meta þennan dýrðarstað.  Og nýveiddan fiskinn sem þar er boðið upp á.

IMG_3324

Það var yfirfullt út úr dyrum, en allir þolinmóðir og glaðir.

Takk fyrir matinn Stefan minn. Heart

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl og takk fyrir síðast.

Þær eru margar leyniperlurnar okkar hér á landi.

Þakka þér fyrir þessa fínu ferðasögu.

Kveðja,

I.

Ingibjörg (IP-tala skráð) 22.8.2011 kl. 19:58

2 Smámynd: Kidda

Þessi vegur er einn af örfáum vegum sem við höfum ekki farið, það er lofthræðslan í mér sem hefur alltaf stoppað það. Fóru þið hringinn eða bara að bænum? Höfum gert eina tilraun en .................

Takk fyrir að sýna mér þessa perlu, kannski ég fari næst þegar við förum vestur.

Knús í kúlu

Kidda, 22.8.2011 kl. 20:16

3 Smámynd: Kidda

Gleymdi að minnast á þetta magnaða ljóð, það er meiriháttar.

Kidda, 22.8.2011 kl. 20:18

4 identicon

Eins og alltaf gaman að vera fluga á vegg hjá þér. Var þetta ekki Jónas okkar sem brá þarna fyrir á nokkrum myndum?

Dísa (IP-tala skráð) 22.8.2011 kl. 21:28

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk sömuleiðis Ingibjörg mín.

Við fórum bara í Keldudal og svo aftur til baka Kidda mín.  En þetta er allt í lagi að fara að sumri til.  Já ljóðið er flott.

Mikið rétt Dísa mín þetta var hann Jónas okkar og hans ekta kvinna sem voru með í för.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.8.2011 kl. 21:50

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk ljúfust fyrir yndislegar myndir og ljóð

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 22.8.2011 kl. 22:31

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Milla mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.8.2011 kl. 23:03

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Skrítið að hafa aldrei farið lengra en í Haukadal,þrátt fyrir að búa  þarna öll bernsku árin. Mig minnir að Élías hafi rutt veg alla leið út í Svalvoga,það þótti fréttnæmt þetta einkaframtak. Takk fyrir myndir og ljóð.

Helga Kristjánsdóttir, 23.8.2011 kl. 11:54

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Elíasi Kjaran var ekki fisjað saman.  Við fórum allan hringin fyrir nokkrum árum, þetta er hrikaleg leið en afskaplega skemmtileg.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.8.2011 kl. 12:23

10 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þetta er magnað ljóð!

Hrönn Sigurðardóttir, 24.8.2011 kl. 14:57

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já og frábært að fá það lesið einmitt þarna.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.8.2011 kl. 15:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 2021029

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband