HItt og þetta af mér.

Ég hef verið frekar döpur þessa dagana.  Frá því að ég heyrði fyrst um þetta snjóflóða- og aurkriðudæmi.  Mér finnst einhvernveginn að hér sé ekki verið að hugsa um íbúana, heldur peninga sem geta komið inn í samfélagið.  Þó það sé af hinu góða oftast, þá er þetta dæmi frekar vanhugsað að mínu mati.  Í fyrsta lagi hefur þetta mikil áhrif á Eyrarhlíðina, og hlýtur að þurfa að fara í umhverfismat.  Í öðru lagi hefur komið í ljós bæði hér og á Siglufirði og ef til vill fleiri stöðum að þegar brattar hlíðar eru skornar svona niður, þá skríður neðri hlutinn fram með meiri hraða en ella.  Ef svo auk þess kemur fleiri tonna veggur fyrir neðan þennan skurð, þá hlýtur álagið að aukast og hvað þá með blokkir og hús sem standa þarna fyrir neðan?  Spyr sú sem ekki veit. 

´Nágranni minn til margra ára, sem er alin upp á Engi sem er annað húsanna sem um ræðir, hringdi í mig í gær.  Hann var alveg gáttaður á þessu. Sagðist aldrei muna eftir að hér hefði fallið snjóflóð, það féll einu sinni aurskriða á lóð innra hússins, og þá var grafinn heljar skurður þar ofan við.  En aldrei hefur reynt á þann skurð, því ekki hefur skriða af neinu tagi fallið síðan.

Ef menn ætla að fara með svona kúnstir um landið allt, þá vil ég líka að stöðluð sé hættan á suðvestur horninu með tilliti til jarðskjálfta og eldgoss.  Hef svo sem grun um að með þeim reiknikúnstum sem hér eru notaðar og fræðingunum gert ljóst að þeir beri ábyrgðina, að þá myndi allstór hluti borgar og nálægra bæja vera óbyggileg.  En á ekki jafnt yfir alla ganga?  Eða á bara að eyðileggja bæi á landsbyggðinni?

En nóg um þetta. Ég ætla mér að komast yfir þetta á einhvern hátt.  Með góðri hjálp fólks í kring um mig og allra sem hugsa hlýlega til okkar.  Lífið er til að takast á við það, og reyna að gera það besta úr öllu. 

IMG_0313

Upp úr 70 áttum við stórt hús með kjallara.  Þá var sokkabandið að æfa sig þar, og einnig leyfði ég nokkrum ungum hljómlistarmönnum að æfa sig þar, helst þegar ég var ekki heima, þá var nefnilega pönkið á fullu. Smile Og oft meiri hávaði en músik.

En nú eru ungir menn að byrja að æfa í kjallaranum hjá mér. Þeir eru allir í tónlistarskólum og tónarnir miklu þýðari en hjá þeim í fyrri tíð.

IMG_0315

Veit svosem ekki hvort eitthvað verður úr þessu.  En það verður bara að koma í ljós.

IMG_0318

Okkur til mikillar ánægju kemur stubburinn stundum í pössun.

IMG_0320

Flottastur.

IMG_0322

Og orðin svo stór að hann hefur misst tvær barnatennur.

IMG_0372

Óhó svarthöfði. 

IMG_0373

Amma má ég líka taka myndir? spurði snáðinn.  Já sagði amma.

IMG_0332

Mynd af afa!!!

IMG_0391

Mynd af mömmu og afa. LoL

IMG_0397

Svo falleg saman. Heart

IMG_0402

Amma taktu mynd af mér.

IMG_0404

 Já það er oft lítið ungs manns gaman.  Og auðvelt að hafa ofan af fyrir þessum elskum. 

Woche_3_3_2011[1]

Bára mín sendi mér þessa blaðaúrklippu frá Austurríki, tekin af Báru, stelpunum, Eriku og ég er þarna í bakvið hana.

Svo vil ég minna á vinkonu mína og hennar baráttu, sem hún skrifar um hér: http://tilfinningatorg.wordpress.com/2011/03/04/of-kurteis/  Það ættu allir að lesa það sem hún skrifar og miðlar af reynslu sinni.  Það er öllum þarft.

Eigið góðan dag elskurnar. Hér er skítaveður og lítið annað við tíman að gera en sitja hér og skrifa.  Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Flottar myndir ljúfust.
Ég sendi þér ævilega hlýjar hugsanir og vona að þetta fari vel.
Knús í kúlu

Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.3.2011 kl. 17:36

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Milla mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.3.2011 kl. 17:52

3 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Þú hefur margt á þinni könnu kona ! Og altaf se eg kærleikann fyrir fólki  í gegnum allt þitt puð !

Erla spámiðill !

Erla Magna Alexandersdóttir, 6.3.2011 kl. 19:16

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Erla mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.3.2011 kl. 20:04

5 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Knús í Kúluna elsku Ásthildur. Vonandi tekst að koma í veg fyrir þetta. Ætli mitt hús mundi ekki teljast á óbyggilegu svæði ef þessar reiknikúnstir væru gerðar hér.

Gaman að sjá myndir af káta fólkinu þínu.  

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 6.3.2011 kl. 21:06

6 identicon

Þessar áætlanir eru fáránlegar, hefur aldrei heyrst af snjóflóðum undir Gleiðarhjallanum. Þetta er planað af einhverjum sem ekkert þekkir til. En auðvitað er rétt að mannvirki sem upp eru sett breyta aðstöðu og garður gæti komið einhverju af stað sem aldrei hefði annars skeð. Vonandi verður ekkert af þessu

Dísa (IP-tala skráð) 6.3.2011 kl. 23:18

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sigrún og Dísa mín takk, ekki veitir mér af stuðningi þessu máli

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.3.2011 kl. 23:41

8 identicon

Knús í kærleiks.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 7.3.2011 kl. 07:29

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Ragna mín knús á móti.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.3.2011 kl. 11:36

10 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Elsku Ásthildur mín, það er aldrei lognmollan í kringum þig, mér finnst stundum að þú "lifir" meira en margur annar. Flottar myndir að vanda. Hér er hríðarhraglandi á köflum og gott að vera inni, þessvegna sit ég núna við bloggið.  Hafðu það sem allra best og til hamingju með stelpuna þína í Austurríki, hún er dugleg eins og mamma hennar.

Ásdís Sigurðardóttir, 7.3.2011 kl. 12:06

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Ásdís mín.  Já það er oftast mikið um að vera hjá mér.  Bæði góðir og slæmir hlutir. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.3.2011 kl. 12:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 2020847

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband