Lag við ljóð.

Ég var að rekast á lag við ljóðið mitt um Fljótavík. Lagið samdi Baldur Geirmundsson og sú sem syngur er Margrét Geirsdóttir sem hefur sungið með BG í mörg ár.  Ég er afar stolt af þessari samvinnu okkar frændkynanna. http://www.youtube.com/watch?v=GO8NoJq-tJg

Hér er veðrið orðið aðeins skárra sólin hefur brotist fram en ég held að það eigi eftir að versna, því fuglarnir eru svo æstir að borða.  Ég er búin að gefa þeim marg oft í dag, og þeir koma alltaf aftur og aftur. Munið eftir smáfuglunum. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ljóðið þitt er undurfagurt Ásthildur mín, þú átt líka fagra fljótavíkina sem allir þrá að komast til

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 7.3.2011 kl. 17:41

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Milla mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.3.2011 kl. 18:20

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 7.3.2011 kl. 20:21

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Heil og sæl! Var að koma sprengd,af saltkjöti og baunum,sem var haft í kvöld,hjá dóttur minni og tengdasyni. Þú listakona,gott að geta spilað þetta og njóta,söngurinn er líka þýður og fallegur,ekta íslensk,sm er alltaf meir og meir inn í dag þegar sótt er að fullveldi okkar. Bestu hamingjuóskir með þetta 

Helga Kristjánsdóttir, 7.3.2011 kl. 20:54

5 Smámynd: Jens Guð

  Ljúft og fallegt.

Jens Guð, 7.3.2011 kl. 22:54

6 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 8.3.2011 kl. 01:34

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég lét hugann reika að silungnum, meðan ég hlustaði, ég hef sjaldan fengið meiri afla og meðalþyngdin var um fimm pund.

Jóhann Elíasson, 8.3.2011 kl. 06:18

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll, Jóhann minn já hún er falleg bleykjan í Fljótavík.  Og hún er steikt og borin á hana sykur að hætti Fljótvíkinga.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.3.2011 kl. 09:29

9 Smámynd: Kidda

Ég væri til í að prófa sykur út á silung En textinn og lagið er flott og þið eruð öfundsverð að hafa aðgang að svona paradís á jörðu sem Fljótavíkin er. Vonandi verður aldrei auðveldað fólki að komast að henni. Vestfirðirnir eru á sumrin algjö paradís á jörðu fyrir utan vegina, sem kannski er gott því þá væri allt of mikið af ferðamanninum á Vestfjörðunum. 

Knús í kúlu

Kidda, 8.3.2011 kl. 18:02

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Kidda mín já reyndar hafa vegirnir batnað talsvert.  En Vestfirðir eru svo sannarlega paradís.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.3.2011 kl. 18:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband