Færsluflokkur: Bloggar
6.4.2008 | 17:45
Smá pæling um miðborg Reykjavíkur, Vatnsmýrina og Hannes.
Ég hef verið að spá í hlutina svona innra með mér. Það eru þrjú málefni sem ég hef tekið eftir að eru efst á baugi, svona burt frá einkaþotubusiness þeirra Ingibjargar og Geirs. Það er flugvallarmálin í Vatnsmýrinni, miðborgin og svo Hannes Hólmsteinn.
Ég ætti svo sem ekki að vera að skipta mér að þessum málum, því þau káfa ekki upp á mig, nema flugvöllurinn, og þó mjög takmarkað því ég flýg helst ekki. Ég ek suður ef ég þarf að fara þangað.
En það er ljóst að öll þessi mál eru einhvernveginn á röngu róli. Meðan til dæmis ráðamenn í borginni eru að spá í flugvallarsvæðið með húsbyggingar í huga, og láta fara fram hugmyndasamkeppni um það svæði, þá er ekkert gert í miðborginni, og hún bara látinn drabbast niður.
Þar virðast byggingarverktakar geta hagað sér eins og svívirðingar, keypt hús, látið þau drabbast niður til að geta rifið þau, og jafnvel hrekja fólk úr húsum sínum, með því að leigja misindisfólki og veikum einstaklingum íbúðir og hús, og hóta fólki að húsin þeirra og íbúðarhúsnæði lækki í verði, svo betra sé að selja þeim strax. Þetta hefur að því að mér virðist verið látið átölulaust, og ekkert gert til að koma í veg fyrir það.
Skrýtið, því í öllum höfuðborgum reyna menn að vernda miðbæinn, þann hluta sem hefur mesta sögu og nauðsynlegt að hafa einhverja yfirsýn yfir hvernig líti út. Til dæmis í París, þar má ekki hrófla við neinu í miðborginni. Ekkert rífa og engu breyta. Ef nauðsyn ber til að breyta, þá er skilyrði að framhlið hússins haldi sér, svo myndin sé hin sama.
Hvar er metnaður borgarfulltrúa Reykjavíkur gagnvart miðborginni ? Og þá er sama hver er í forsvari, því ekkert hefur breyst, þó borgarfulltrúar séu eins og jójó úti eða inni.
Svo er rifist um keisarans skegg, hvort þetta hús eigi að fara, eða hitt húsið, og hvort rétt hafi verið að kaupa þetta húsið eða hitt. Hvort eigi að skikka menn til að mála og halda við húsum, sem er bara kúkur á priki miðað við það sem raunverulega þarf að fara fram.
Þarna hefði fyrir löngu átt að vera búið að gera skipulag um hvaða götumynd fólk vill sjá í miðborginni, og hvað má missa sig. Fara í hugmyndasamkeppni um skipulag þar frekar en í Vatnsmýrinni, um hvernig á að standa að uppbyggingunni. Því miður virðist þetta hafa verið bara happa og glappa, og byggingarverktakar bara byggt ljót háhýsi af ódýrustu gerð, til að hámarka gróða sinn og út úr korti við öll hús í nágrenninu. Þar kemst engin fagurfræði að, eða umhyggja fyrir því sem fyrir er. Af hverju þarf þetta að vera svona. Ætli það geti verið að við séum ennþá með annan fótinn í moldarkofanum, og höfum aldrei almennilega yfirgefið hann ? Það er meiri reisn yfir Súðavík en miðborg höfuðstaðar okkar.
Svo er Hannes. Ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta. Þetta er svo týpiskt fyrir íslenska þjóðarsál. Nú finnst fólki hann hafa komið svo vel út úr viðtölum í sjónvarpi og blöðum, nýr Hannes, auðmjúkur og góður. Hversu mikil flón getur fólk verið ?
Getur fólk ekki séð mun á falsi og fláleika og svo almennilegri iðrun ?
Nú segist hann vera bara eins og venjulegur verkamaður með 500 þúsund á mánuði, og spyr hvernig hann eigi að komast fram úr því. Hannes Hólmsteinn hefur aldrei verið venjulegur verkamaður, hann hefur alla tíð verið í faðmi Sjálfstæðisflokksins eins og bómullar ungi. Það er líka hans akkilesarhæll, því hann hélt að hann kæmist upp með hvað sem var. Og sennilega kemst hann upp með það á endanum, því Sjálfstæðiflokkurinn sér um sína, sama hvað á dynur.
Allur málflutningur hans segir mér að hann er að klóra í bakkann, hann er auðvitað í vandræðum, sem hann hefur sjálfur komið sér í, einn og óstuddur. Og þegar herðir að og buddann orðin tóm, þá eiga aðrir að koma að og bjarga honum. Er ekki komin tími á að maðurinn bjargi sér sjálfur. Hann er orðin nógu gamall til að vita að ef maður gerir eitthvað af sér, þá þarf maður að standa fyrir því. Ég sá enga iðrun, ég horfði mann sem sá fram á alvöru lífsins, og vill nú láta bjarga sér úr snörunni. Meðulin eru sýnileg öllum sem vilja sjá. Nei sorrý ég held að Hannes blessaður hafi bara gott af því að standa skil á því sem hann hefur gert. Standa frammi fyrir sjálfum sér og standa fyrir málum sínum. Hann yrði maður að meiri í mínum huga. Það eru svo margir á undan honum sem ég myndi leggja lið til dæmis. Ég er sannfærð um að það mun þroska hann mikið sem manneskju að þurfa einu sinni að klóra sig út úr sínum eigin gjörðum. En þetta er nú bara svona pæling dreyfbýlistúttu. En ég held að fólkið sem kallað er í daglegu tali 101liðið eða eitthvað álíka, mætti aðeins fara að hugsa sinn gang. Við segjum að ameríkanar viti ekkert lengra en í sínum eigin nafla, þeir sjái ekkert utan síns heimabæjar. Þetta er svo sannarlega að heimfærast upp á það fólk sem hrærist hvað mest í miðborg Reykjavíkur og heldur að landsbyggðin taki við upp við Elliðaár.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
6.4.2008 | 13:46
Smáfrí á barnapössun og gróður beint í æð.
Elsti sonur minn Ingi Þór hringdi í mig í gær og sagði að hann skyldi taka stelpurnar í pössun í gær, og jafnvel í nótt líka. Ég varð auðvitað mjög glöð yfir hugsunarsemi hans. Hann er pabbi hennar Evítu litlu, og er grasekkjumaður eins og er. Honum fannst ekkert mál að taka þær litlu líka, og þær eru þar ennþá. Við vorum sem sagt ein í kotinu í gær, Úlfur hafði boðið frænku sinni Sóley Ebbu út að borða í afmælisgjöf, grand á því drengurinn, og gisti svo hjá annari frænku, Evu Rut.
Það var ljúft að vera bara tvö svona smátíma. En Ingi Þór hringdi svo í morgun og spurði mig hvort ég hefði vitað að Ásthildur væri komin með hlaupabóluna ? Nei sagði ég, ég var samt að spá í það í gær, vegna þess að ég sá eina bólu á hálsinum á henni í gær morgunn. Jamm hún er öll útsteypt núna sagði hann.
En ég notaði tækifærið og fór að prikla í morgun upp í gróðurhúsi.
Þau eru mörg orðin myndarleg blómin mín.
eins og sjá má.
Það er samt heilmikil vinna eftir, við vorum óheppin og fengum svepp í sáninguna, svo við urðum að endursá eiginlega öllum plöntunum. Við höfum grun um að moldin sem við fengum, hafi verið ónýt. En það er bara að byrja aftur og gera enn betur. Svo fauk plastið af stóra húsinu, svo við verðum í vandræðum með pláss, en vonandi verður fljótlega hægt að setja plast á aftur, og fara að nota húsið.
En veðrið er ágætt núna, það er hlýtt og bjart, þó sólin nái ekki fram ennþá.
En ég segi nú bara takk elsku Ingi Þór minn, fyrir að vera svona hugsunarsamur við hana mömmu þína. Knús á þig
Og knús á ykkur öll inn í daginn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
5.4.2008 | 12:34
Vor á höfninni.
Þessar myndir áttu að fara inn í gær, en ég var alveg búin á því
Smárúntur á Ísafirði, þetta er menningarhúsið okkar Edinborg.
Það var vorlegt við höfnina.
Sumir voru að þrífa og laga til.
Aðrir að ditta að eignum sínum.
Aðrir voru að sjósetja bátana sína.
Þarna lyftist hann upp.
Fljúgandi bátur hehehe
Í sjóinn með hann.
Ekki málið.
Gengur eins og í sögu.
Kominn á sinn stað.
Svo ákvað ég að fá mér harðfisk, hjá honum Finnboga.
Þarna er hann karlinn hress og kátur, með besta harðfiskinn.
Við héldum svo á Suðureyri til að sækja stelpurnar, og gefa öndunum brauð. Þær eru eins og jésú labba á vatninu hehehehe.
Þær áttu nú í dálitlum vandræðum að fóta sig á ísnum, en hvað gerir maður ekki fyrir brauð.
Þær ætluðu eiginlega bara að koma með okkur.
en við vorum á leiðinni aðeins lengar út fyrir Súgandafjörð, í Staðardal held ég að hann heiti.
Þar er ennþá kuldalegra um að litast.
Þar er þessi fallega gamla kirkja.
Hundarnir á bænum létu sitt ekki eftir liggja og fylgdu okkur úr hlaði
Gölturinn glæsilegur héðan.
en þá var bara að koma sér í vorið inn í kúlunni.
Athuga tjörnina og svona.
Svo þarf að skola af sér sandinn á eftir.
Við ákváðum að grilla af því að veðrið var svo gott.
Það er líka ágætt að sitja upp á borði, það þarf alltaf að klifra upp á hæsta punkt.
Þá er maður komin í hrein föt.
Þessi að verða tilbúinn í svefninn.
Hanna Sól með blóm í hári og í náttafötunum.
Já þessi dagur í gær var yndæll. Og það er svipað veður í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
4.4.2008 | 13:10
Hið daglega veður og mömmublogg.
Jæja þá eru það myndir sem ég tók í morgun.
Já morgunin lofaði góðu.
Og við komnar út í bíl, tilbúnar í vinnuna.
Glaðar og kátar.
Skíðasvæðið baðað sól, nú ættu allir að fara á skíði í dag hér koma svo ísfirðingar !
Úbbs ég hljóp svo hratt, að ég hrasaði og datt .....
en maður lætur nú ekki svoleiðis smámuni aftra sér frá því að halda áfram.
Inn vil ek.
Þú skalt ekkert hafa áhyggjur af hárinu mamma, við ætlum í sund á Suðureyri eftir vinnuna hehehehe..
Knock knock who´s there?
Búin að ná sér í tuskudýr.
Mín alveg orðin heimavön á leikskólanum sínum.
Þetta er Monika, þær eiga örugglega eftir að verða góða saman.
Samverustundin að byrja, þeir sem ekki er treystandi til að sitja kyrrum eru settir í stóla.
Mín stutta er ein af þeim hehehe
Það er auðséð að þau hlakka til þessara samverustunda, og hafa gaman af.
Það er alltaf einn sem er umsjónarmaður, hann er með spjöldin sem eru sett upp á vegg, um hvaða dagur er, og svoleiðis. Þessi ungi maður er umsjónarmaður í dag. Hann sækir svo líka ávextina í ávaxtartímanum.
Mér finnst þetta frábært, hvetur þau áfram til sjálfstæðis.
Þau eru bara svo flott.
Og auðvitað er báturinn aðalleiktækið í svona útgerðarþorpi eins og Suðureyri.
en veðrið er fallegt eins og sjá má, og fannhvítir jöklanna tindar.
Og ætli það séu ekki fjöllinn sem gefa okkur allan þennan kraft og orku ? Ég held það. Þess vegna hef ég trú á Vestfjörðum. Eigið góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
4.4.2008 | 11:30
Góðan og blessaðan dag.
Ég veit ekki með ykkur, sen stundum vaknar maður og finnst vera á toppi heimsins, finnst allt gott og jákvætt, það er einhver gleði og eftirvænting, þó það sé bara venjulegur dagur, og ekkert sérstakt að gerast. Þetta er bara svona tifinning sem nærir sálina og gefur manni mikið.
Svona var morguninn í morgun, við vöknuðum öll áður en klukkan hrindi, og höfðum tíma til að vakna í rólegheitum, vorum öll einhvernveginn í rósemd og gleði. Ekkert mál að borða morgunverð, ekkert mál að klæða sig, stubburinn þurfti að útbúa sig sjálfur og smyrja nestið, sem hann gerði með glöðu geði og reisn. Kom sér sjálfur í skólann.
Gaman á leiðinni í leikskólann, að vísu ropaði drekinn þegar við fórum út um munninn á honum, allavega heyrði Hanna Sól að hann ropaði og ég trúi henni alveg, því hún heyrir betur en ég.
En mig langað bara að deila þessari gleði og eftirvæntingu, ætli það sé tilfellið að vorið sé á næsta leiti? Af því að ég held að þið eigið ykkar þátt í þessu, með fallegu kommentunum ykkar og kærleikanum sem maður finnur gegnum þau.
Vor.
Nú lifnar allt og grasið grær
gleymist vetrartími.
Allt það grimmt sem var í gær
ég gref í hugans rými.
Eftirvænting ást og þor
eykst á þessum tíma.
Víst er komið langþráð vor
vafið ástarbríma.
Skýjaglenna við oss skín
Skokkar lamb í haga.
Sálin blessuð, sértu mín
um sumarlanga daga.
Ásthildur 2005
Það verða myndir í hádeginu. Gleðilegan dag mín kæru hvar sem þið eruð á hnettinum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
3.4.2008 | 22:53
Hið daglega veður og ýmislegt.
Jæja aðlögunin tókst vel í dag, þær fóru á leikskólan og ég var með þeirri litlu smá tíma, fór meðal annars með henni í samverustund, sem er höfð daglega. Það var virkilega gaman, þau syngja vísu fyrir hvern mánuð, og fóstran sagði mér að þegar þau væru búin að syngja sama söngin um mánuðinn nokkra daga, væru þau orðin fær í textanum. Svo var boðið góðan dag á íslensku, thailensku, pólsku, áströlsku(ensku), og þýsku, hefði mátt bæta við slavnesku. Hvernig segir maður góðan daginn á þýsku Hanna Sól spurði fóstran ? Guten morgen, svaraði barnið. Ó ég hélt að það væri guten tag, sagði fóstran. Já sagði ég - eftir hádegið, núna er morgun. Hanna Sól talar nefnilega perfekt Vínarþýsku með skrolli og alles. Sú litla sat og hlustaði og dillaði sér með söngnum, og söng svo frá eigin brjósti. Þetta ætlar að ganga mjög vel. Á morgun má hún vera allan tímann.
En það var skafrenningur og leiðindafærð í dag, svo ég sótti þær báðar á sama tíma, þó Hanna Sól mætti vera lengur.
Ég held að það sé eitthvað að bögga hana stóru mína. Hún er búin að láta hálf einkennilega í allan dag. Ætli henni finnist sú stutta vera að fá meiri athygli ?
Þegar ég ætlaði að fara að skipta á henni var baðið læst. Þar var engum til að dreyfa nema Hönnu Sól. Ég kallaði til hennar hvað hún væri að gera. Það var nefnilega steinhljóð inni á baðinu.
Hvað ertu að gera Hanna Sól mín ?
Ekkert amma. (skurk í stól)
Viltu ekki hleypa mér inn ég þarf að skipta á barninu, og svo ætla ég að setja hana í bað.
Ég er alveg að koma. (Þó nokkur tími)
Hanna Sól mín, amma er að bíða.
Ég er að koma.
Þegar dyrnar opnuðust kom í ljós hvað hún hafði haft fyrir stafni hehehehe.
snyrtidótið hennar ömmu, sem er hátt hátt uppi á skáp.
Sumir eru bara einfaldlega prinsessur. og hún vildi endilega fara í þessum kjól á leikskólann, og silfurskóm, hjúkket.
Sú litla fór í baðið sitt.
Það er voða gaman, stóra systir setti sápu í vatnið, ég sagði að ég vildi það ekki, en stóra mín var ákveðin á svip og setti sápuna í vatnið. Enn eitt merki um að eitthvað angaði hana.
Sú stóra fékksk nú samt til að fara líka ofan í vatnið, en hún vildi bara fara í sundbol.
Þetta þvoðist nú framan út henni í baðinu
Sigurjón Dagur kom og vildi ofan í líka. Hann fékk að fara ofan í með stelpunum, og ég tók mynd, en einhverra hluta vegna er hún ekki með. En svo beit stóra stelpan mín litla dýrið svo að það kom tannafar allan hringinn.
Ég hef aldrei spáð í hvernig vatnið fellur ofan í baðkarið. Það sýnist renna í beinni bunu, en þegar ég stækkaði myndina hér að ofan, þá kemur þetta mynstur í ljós.
Þegar ég svo var búin að setja þá litlu í rúmið sitt, og bað þá stóru að koma fram á meðan hún sofnaði, þá var ekkert nema mótþróinn, og svo fór hún upp í rúm systur sinnar.
En við náðum samt að sjatla málin fljótlega, með að semja við stóra stubbinn um að hún mætti skoða mynd í tölvunni hans um Dóru. En svona er nú lífið á þessu heimili Málamiðlanir stórar og smáar.
En veðrið í dag var svo sem ágætt, nema það var mjög blint á leiðinni niður Súgandafjörðin. Svo var dálítið hvasst. Nei annars lognið var dálítið á hraðferð segjum við hér.
ekkert svo slæmt veður.
En Alejandra og Úlfur komu heim, það hefði verið einhver skólakeppni í gangi, og þau voru með hvatningarspjald, sem á stóð Áfram Ísó, og Gí!! Alejandra hefur örugglega búið það til.
En ég segi bara góða nótt elskuleg öll.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
3.4.2008 | 00:17
Ís og ís.
Þá er kvöldið komið, og aðeins tími til að slaka á. Sú litla var frekar erfið í dag, hún svaf illa í nótt, vaknaði svo kl. hálf átta, þegar allir voru að fara á fætur, ég fór með hana í aðlögun, en þá voru veikindi, svo ég fór með hana heim aftur. Þrátt fyrir svefnleysið um nóttina sofnaði hún aðeins um hálftíma seinni partinn. Svo það var lítið um hvíld. Ótrúlegur orkubolti. Þær sofnuðu svo ekki fyrr en hálf tíu í kvöld. Svo þetta var langur dagur. Elli minn er í Reykjavík, svo ég er ein með þessa orkubolta. Stubburinn átti líka góðan dag, hann fór heim veikur úr skólanum í gær, en átti svo stefnumót við tvo sála í dag. Ekki af því að hann væri neitt trylltur, heldur er þetta apparatið, sem heldur utan um hans aðstæður, sem er mjög gott. En það var orðin ansi stuttur í mér kveikjuþráðurinn í kvöld.
Þessir yndislegu feðgar kíktu við í dag, eins og svo oft. Minn flottur svona nýklipptur.
Þeir fóru svo í heita pottinn og Hanna Sól fékk að fara með.
mmm notalegt.
Og svo hoppa hehehehe.
Og svo var fengið sér ís á eftir, ekki nóg með ísinn utan, heldur líka innann.
Allir fengu ís þ.e. smáfólkið.
Svo kom Sigga og hafði með sé pylsur, það var nú ekki dónalegt að fá svoleiðis.
Já og Úlfurinn fékk líka frænku sína í heimsókn og vinkonu hennar, þær Sóley Ebbu og Birtu.
En ég segi bara góða nótt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (32)
2.4.2008 | 14:34
Hið daglega veður, vorboðar og nostalgía frá fyrri dögum.
Það er fallegt veður á Ísafirði núna. Sú stutta átti að vera í aðlögun í morgun, en það voru nokkrar fóstrur veikar, svo hún var bara smástund og fór svo með ömmu heim. Hún hefur ekkert fengist til að sofa, en er samt mjög róleg.
Lagt af stað í leikskólann.
Þær eru voða þægar í bílnum, og þegar við förum gegnum göngin, þá förum við fyrst inn í rassinn á Drekanum, svo um magann og síðan gegnum hálsinn og svo út um munninn. Þá er eins gott að hafa ekki hátt svo við vekjum hann ekki.
Hún veit sko alveg hvar krakkarnir eru, og bankar á dyrnar til að komast inn.
svona var veðrið í morgun.
Það er eins og himininn brosi við Ísafirði.
Svona var veðrið í hádeginu, allt baðað sól.
Veðrið er reyndar svona enn.
en hún Ásthildur er búin að vera að dunda sér í sandkassanum sem afi kom með fyrir hana.
Hér má sjá snjóþotur, hjól og síðan páskaliljur komnar að því að blómstra, þannig er kontrastinn í kúlunni.
En það er að koma vor í kúlunni, brumin þanin og blómin að því komin að springa út. Það er alltaf fallegasti tíminn hér.
Mandarínurósin mín svo falleg.
Kamelíufrúin, yndæl.
Kirsuberjaknúpparnir komnir að því að springa út.
Og rósamandlan verður falleg líka.
Zakúrakirsuberinn verða stórglæsileg.
Prímúlurnar brosa glaðlega.
eins og sjá má eru rósirnar komnar á fullt, þetta er hún Pernille, hún er á stofni og er mjög flott í blóma.
Smá nostalgía, hér er hún Dísa æskuvinkona mín. Dísa ég er viss um að þú hefur ekki haft hugmynd um að þessi mynd væri til. Manstu nokkuð hvar hún var tekinn ? Er þetta heima hjá þér ?
Á einhverjum aldrei var ég ferleg með að klippa myndirnar út, og setja þær þannig inn í albúm. Hér er mynd af Dísu mömmu hennar og sennilega Snorra bróður hennar í vagni. Allt klippt og skorið hehehe
Hér er hún Dísa með pabba mínum, mömmu og Gunnari og Hjalta bræðrum mínum, þessi er tekinn inn í Hattadal minnir mig og við vorum að fara til berja.
Hér er einn skólabróðir okkar, held að þetta sé Kitti Muggs, en er ekki viss.
En á páskunum droppaði inn til mín glaðleg og falleg stúlka. Hæ manstu nokkuð eftir mér, ég er dóttir hennar Klöru vinkonu þinnar, sagði hún. Og mikið rétt ég sá svipinn. Mamma hennar er nú dáinn blessuð sé minning hennar, en hún kom oft í heimsókn með börnin þegar þau voru lítil. En hér er hægt að sjá svipinn.
Eva.
Klara Margrét. ef ykkur finnst búningurinn skrýtin þá er það af því að hún er í búningi sem við gerðum okkur þegar við vorum vinsælt tríó, 12 - 16 ára og komum fram á skemmtunum víðs vegar um bæinn, það var skemmtilegur tími. ´
Klara Margrét, ég og Matthildur Herborg í fullri múnderingu. Þetta var mjög skemmtilegur tími og við vorum mjög vinsælar.
Jamm maður hefur nú ýmislegt brallað um ævina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
2.4.2008 | 00:03
Grallari og það sem við Egill Helgason eigum sameiginlegt.
Smámömmufærsla undir nóttina. Dóttir mín sagði mér að henni þætti vænt um að fá þessar myndir og sögurnar um dæturnar sínar, þó hún sakni þeirra sárt, þá er þetta sárabót. Bara svona svo þið vitið það, af því að það kom upp hér.
Þetta gæti náttúrulega verið Denni Dæmalausi, en nei þetta er Ásthildur Cesil.
eftir volkið í garðskálanum fór hún svo í vaskinn hehehehe
Þar undi hún sér vel og hafði marga aðdáendur tíhí
Og einhvernveginn tekst henni alltaf að gera það sem hún er sett í að galadressi.
En svo var boðið upp á taco, henni fannst það gott, og Hönnu Sól líka. Svona er þetta bara.
En ég sagði hér um daginn að ég hefði lesið að Egill Helgason gengur um í sérstökum skóm, og ég komst að því að skórnir sem hann elskar eru sömu skórnir og ég gengi í daglig dags. Hann pantar sína frá Ástralíu, og þeir eru örugglega vel pússaðir og flottir. Ég fæ mína á Hellu hjá hestamönnum, og þeir eru ekki pússaðir nóg greinilega. Ég tók eina mynd af mínum svona til að sýna. Þetta eru reyndar alveg meiriháttar skór, og endast og endast. Sterkir og þægilegir ég hef arkað í þessum skóm út og suður, til Vínar og Köben og bara hvert sem er. Fæturnir stynja af unaði, og skrokkurinn þakkar mér fyrir stuðningin. Enda á skrokkurinn á mér allt gott skilið fyrir að duga mér svona vel, og vera svona dásamlega heilbrigður og hlýðin.
Jamm þetta eigum við Egill Helga sameiginlegt. Ég ætla að bera vel á þá á morgun svo þeir líti vel út, ég nenni bara ekki að þykjast, svona eru þeir NÚNA.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
1.4.2008 | 19:18
Endurmenntun mömmu.
Jamm ég er að komast að því að ég þarf að ganga í gegnum nokkur skref sem voru sjálfsögð hér í denn, en var búin að gleyma. Það eru þessi litlu atriði eins og að eiga alltaf auka snuddu Keypti næstum upp apótekið. Svo er að muna eftir að blanda í pelann fyrir nóttina, ekki nóg bara með þennan sem barnið fer með í svæfinguna, heldur þarf að hafa einn auka til að stinga upp í lítinn munn eldsnemma morguns, getur gefið manni nokkrar mínútur auka í slökun hehehehe. Síðan verður maður bara að reyna að horfa eitthvað annað þegar þau eru að subba sig út, og hugsa að föt sé eitthvað sem bara fer í þvottavélina og þvoist, og það sé til nóg af auka. Muna að þegar þau hella niður, ekki vera reið heldur bara brosa og segja þetta er allt í lagi amma þurrkar þetta bara upp, vegna þess að stress eða óp, gera bara hlutina verri ef eitthvað er. Þau verða sár og leið.
Að komast á klóið krefst ákveðinnar kænsku. Ef maður er ekki súperwoman sem situr á klóinu með barnið í kjöltunni og þarf að gera allt með annari. Annars bý ég rosalega vel að því þegar ég handleggsbrotnaði í fyrra. Get sko notað bara vinstri við næstum hvað sem er. Meira að segja að skrifa á tölvuna ef ég þarf að sitja með litla manneskju í kjöltunni heheheheh...
Þetta er allt að koma hjá mér. Það læris svo lengi sem lifir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 4
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 2023310
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar