Færsluflokkur: Bloggar
1.4.2008 | 12:17
Mömmublogg, Tjarnarborg og hið daglega veður.
Jæja þá var annar í aðlögun á Tjarnarborg. Við vöknuðum snemma fjölskyldan og fengum okkur morgunverð saman. Veðrið er aðgerðarlítið en gott bara.
Notaleg stund í morgunsárið.
En svo var haldið á Suðureyri til að fara á leikskólan Ásthildur er í aðlögun og gengur rosalega vel.
Jamm hún virkar ekki stór, en dugleg er hún.
Þessi ungi maður er kúabóndi, minnir að hann heiti Sverrir, flottur.
Þessi ungi maður heitir Gunnar og var eitthvað stúrinn yfir morgunmatnum.
en það rjátlaðist nú strax af honum, og hér er hann að hjálpa Sverri með kýrnar.
Hér er svo verið að hleypa út tuskudýrunum, þau þurfa að fara að leika sér við krakkana.
Annar stúrinn stubbur, mig minnir að hann heiti Stanislaw, vildi ekki borða heldur.
hann tók samt fljótt gleði sína, enda ekki annað hægt á þessum frábæra leikskóla, þar sem allir eru vinir og góðir hver við annan.
Hér eru Rakel og Mónika, Rakel situr, Mónika er dálítið abbó út í Ásthildi, eltir hana og reynir að klípa eða hrinda, en hún er skynsöm lítil stúlka og ég veit að þær verða góðir vinir.
Eins og sjá má fellur mín litla vel inn í hópinin og viðurkennir fóstrurnar sínar.
Hahahaha þau eldri hér eru að hlaupa fyrsta apríl. Fóstrurnar sögðu þeim að það væri lítið folald í garðinum, og þau hlupu til að gá.
Líka skottan mín.
Svo fóru þau í samverustund, þar sem er lesið fyrir þau og svo syngja þau. Hver vill koma með mér heim í Kúluna mína, sagði Hanna Sól, þegar ég gekk framhjá
en það var meira að gerast í dag á leikskólanum, þessi unga fröken á nefnilega afmæli í dag, og hún fékk að velja veitingarnar, hún valdi poppkorn. Þetta er Sara og hún er fimm ára í dag.
Hér er hún að fara með poppið inn í veislusalinn. Aldeilis hróðug.
Hér er verið að undirbúa veisluna.
Já þau eru að verða spennt að bíða eftir að veislan hefjist.
Allir að setjast og bíða.
Já þau eru þæg og góð þessir krakkar.
Undirbúningurinn í hámarki.
en fyrst þarf að gera smá serimoníur, taka myndir af afmælisbarninu til að setja á heimasíðuna.
Svo þarf að tollera hana og auðvitað syngja afmælissöngin, hún á afmæli í dag hún á afmæli í dag.... hún á afmæli hún Sara, hún á afmæli í dag.
Þá var komið að því, allir fengu poppkorn, og það var nammi namm. Það þarf ekki alltaf að vera eitthvað ríkulegt eða kostnaðarsamt til að gleðja litlar sálir, þetta einfalda er bara best, af því að því fylgir ekkert stress, bara gleði og ánægja.
Já þetta litla hversdagslega dugir alveg svo vel. Það er bara að koma auga á það.
Þetta gerði alveg sama gagn og tertur eða ís. Nema minna maus og sullumbull.
Við Ásthildur héldum svo heim á leið. Hún var ekkert sérlega spennt að yfirgefa samkvæmið. Enda þessi fína veisla í boði. Hún reyndi því að banka á hurðina eftir að við vorum komnar út hehehe.. En svo fékk hún pelann sinn og sofnaði í bílnum á leiðinni heim, ég kom henni svo í vagninn sinn og þar sefur hún nú. En á morgun fer vagninn hennar með, og síðan fær hún sennilega að vera allan tímann.
Hér er svo hið daglega veður, tekin á Suðureyri í þetta skiptið.
Eigiðið góðan dag, og takk fyrir mig. Mér þykir rosalega vænt um svörin ykkar hér á undan og ævinlega. Takk fyrir mig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
31.3.2008 | 23:26
Góða nótt.
Vil bara segja góða nótt. Tók nokkrar frábærar myndir í dag, en komst svo að því að ég var ekki með kortið í vélinni hehehe.... Svona er þetta bara. Ég er í smá upprifjun. Það rifjast nefnilega upp fyrir mér hvernig það var hér í denn að vera með smábörn, hafa lítinn tíma fyrir sjálfa sig, og endalaust að reyna að gera allt í einu, hafa unga á handlegg annan í togi, hræra í pottum. Komast ekki á klóið nema með klókindum ég er ekki að kvarta, þessar elskur gefa mér óumræðilega mikið. En það er vinna að vera með börn, ég var bara búin að gleyma því svona í praktíkinni. Verða að semja við manninn um að koma fyrr heim til að komast í búð. Vinnan fer að mestu leyti fram líka hér heima, þ.e. undirbúningurinn undir sumarið.
En ég er viss um að ég er að höndla þetta miklu betur núna með alla reynsluna, áunnu þolinmæðina og vissuna um hvað skiptir máli í lífinu, og það eru ekki peningar heldur tíminn sem maður gefur sínum nánustu og þeim sem mest þurfa á manni að halda.
En nú er ég búinn að komast nokkurnveginn skammlaust blogghringinn og er að fara að halla mér, og ég get sagt ykkur að tilhugsunin um koddann minn og sængina er sæt.
Þau fóru í sund í kvöld Elli, Úlfur og Hanna Sól, hún var svo stolt þessi elska að fá að fara með strákunum, af því að hún var svo stór. Litla skottið var hjá ömmu, hún fór í bað, og ég slefaði tölvunni inn á kló til að sitja það með henni í baðinu, meðan ég las innlegg og fylgdist með á netinu. Svo þurfti hún aðeins að fá að striplast og þá var hún tilbúin í holuna sína.
Ég fór með hana í aðlögun í morgun. Hún er eins og hún hafi alltaf verið á leikskólanum, en lítil stúlka Mona er dálítið afbrýðisöm og kleip hana og hrinti. En hún tók bara á móti sú stutta, það verður sennilega líf í tuskunum meðan þær eru að ákveða goggunarröðina á deildinni þessar tvær hehehe. Hanna Sólin var ánægð að komast á leikskólann eftir veikindin sín.
Svo allt er að færast í betra horf. En ég segi bara GÓÐA NÓTT TIL YKKAR ALLRA VINANNA MINNA ÞARNA ÚTI.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
31.3.2008 | 01:08
Krúttfærsla og hið daglega veður of kors.
Jamm þessi sunnudagur leið bara nokkuð vel, Veðrið var ágætt. Og Sigga mín kom í heimsókn með ungana sína.
Hér er Ólöf Dagmar í tölvunni hennar ömmu.
Sigga með Sigurjón Dag og Ásthildi.
Stubbar að láta sé líða vel, Sóley Ebba að skoða steinana hennar ömmu.
Úlfur að útbúa morgunverð fyrir sig og fröken Sóleyju. Það eru nú ekki allir ungir ellefu ára guttar sem meika það að útbúa slíkan flottan morgunverð.
Hér kemur svo hið daglega veður.
Það var kalt en bara samt allt í lagi veður.
Hér kemur svo krúttfærslan. Þetta er Ásthildur sem klæddi sig í sundbolin hennar ömmu, ég held að hún verði svona tískudama fatahönnuður, því hún vill klæða sig í hin ólíkustu föt og fá nýtt lúkk.
Hún er ótrúlega flott.
Sama hvar á er litið ekki satt. +
Útspekulerað þema, sundbolurinn hennar ömmu
Svona alveg ný sýn á sundbolinn hehehehe.
Hún gerði þetta alveg sjálf ég get svo svarið það.
Þetta er hið nýja andlit 2008 hehehehe
ekki spurning. Góða nótt elskuleg mín.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
29.3.2008 | 21:21
Hið daglega veður og fleira smálegt.
Við fórum í sund í dag, fjölskyldan, á Suðureyri. Það var ágætis veður allavega fram að fimmlelyti, en þá kom einhver mugga.
Svona var veðrið þegar við lögðum af stað í sundið.
Það stóð náttúrulega yfir keppni á skíðalandsmótinu, eins og gengur, en þau eru sennilega hærra upp í fjallinu, svo það sést ekki vel frá veginum að göngunum.
En það er svo sem margt annað sem minnir á þessa ágætu uppákomu.
Barnalaugin var fremur heit, og þessi litla var smeyk við vatnið, hún var því á höndum allan tímann, öfugt við stóru systur sem syndir um alla laugina, þá stóru. Stingur sér og leikur allar listir, alveg þrælklár. ég ætla mér samt ekki að taka myndir fyrr en fer að hlýna.
En mikið var gott að fá sér smálögg þegar hún kom uppúr.
Svo fá allir ís, náttúrulega það tilheyrir.
Líka stóri frændi.
Allt í sómanum með það. Hanna Sól er stúrin, af því að hún skipti um skoðun með ísinn, vildi fá vanilluís eftir að hún var komin út í bíl, og byrjuð að borða ísinn. En það bjargaðist allt saman, því hún fékk ísinn hans afa og líka Úlfs, það sem eftir var af þeim.
Litla Evíta er með rauðu hundana. Hún er öll útsteypt, en er að lagast, svo pabbi fór með hana í smágöngutúr.
Hér erum við stödd á Suðureyri, gegnt sundhöllinni.
Þessi var rosalega þæg og góð, þegar við komum heim, dundaði sér heilmikið sjálf. En Hanna Sólin fékk að fara til Tinnu frænku, og Úlfurinn er hjá Sóley Ebbu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
28.3.2008 | 21:52
Börn og bura, skíði og dagsendi.
Ég hef ekki komist nema brot af blogghring í dag. Hef svo sem reynt, en það kemur alltaf eitthvað eða einhver sem þarf athygli, og það verður ekki við gert nema að sinna því. Nú er sú litla sofnuð hin að horfa á Bamba, strákarnir í sundi og svo Úlfur í ThaiKvan Do.
Það er smánæði en þá er orkan farin Sú litla saknar mömmu mest á kvöldin þegar hún á að fara að sofa. Þá endar með að ég leggst með henni niður og bía henni. Það er dálítið raunarlegt, en við því er ekkert að gera. Hún hefur að öðru leyti alveg samþykkt ömmu sína, sem aðal, og á enn svolítið í land að samþykkja afa. Þó er hún eins og aðrar dömur, þykist ekkert vilja við hann tala, en horfir svo á eftir honum þegar hann fer, og vill að hann komi aftur, svo hún geti þóst ekki sjá hann
Mér brá verulega í dag, þegar þessi eldri kom með bleyju og sagði amma viltu binda hana á mig, ég ætla að vera með hana alltaf
Jamm.
Ekki veit ég hvaðan hún hafði þessa hugdettu.
En hún gaf ömmu sinni blóm í dag, prímúlur úr garðkálanum.
Hér eru fánarnir uppi á leið upp á Seljalandsdal, þar sem göngukeppninn fór fram.
Á Tungudal var verið að sækja keppendurnar, eftir erfiðan dag.
Einhverjir örugglega lúnir og til í að hvíla sig fyrir sigra morgundagsins.
Séð af Tungudal yfir fjörðin.
Sólarglætur hér og þar.
Líka niður í bæ.
En dagurinn í dag er á enda runninn, og á morgun er nýr dagur. Dagur til að vinna sigra og standa sig í hlutverkinu sem maður hefur tekið að sér. Reyna allavega allt sitt besta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
28.3.2008 | 14:21
Kúlubúarnir í dag.
Amman; Hanna Sól mín viltu ekki láta mig hafa þennan keramikflöskukarl ?
Nei ég vil ekki það!
En ég verð rosalega reið ef þú brýtur hann.
Það má ekki vera reið við börn.
Víst má maður verða reiður ef þau brjóta eitthvað fyrir manni.
En þá fer ég bara að gráta og gráta, og þá huggar mamma mig því að hún elskar mig svo mikið.
Já ég elska þig líka rosalega mikið. Æ takk elskan mín, ég ætla nefnilega að setja hann á öruggan stað.
Sú stutta var í smáleik í morgun.
Sandur í tjörnina.
Já það er gott að setja hann þarna niður.
Best að vökva fyrir ömmu.
Best að fá sér sopa líka.
M þetta er gott vatn.
A þetta var gott.
Ekkert jafnast á við vatnið í fiskatjörninni hennar ömmu.
Lena hin Krótíska, hér er mynd af herberginu í Kúlunni.
Ekki stórt en notalegt.
Svo er hér mynd af hinu daglega veðri.
Það er kallt ennþá, en ég heyrði að það var flogið, svo þeir sem voru veðurtepptir í gær hafa komist í dag, þar á meðal forsetinn, hann komst ekki til að setja hátíðina.
en vonandi er þetta ágætt veður fyrir skíðafólkið sem hér er. Og sólin er að brjóstast fram.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
27.3.2008 | 20:15
Skíðalandsmótið sett í dag.
var sett í dag á gamla sjúkrahústúninu. Þar hafði verið gerð göngubraut, og keppt í sprettgöngu, ísfirst stúlka vann titil stúlkna þetta árið, Rannveig Jónsdóttir, dóttir Margrétar Gunnarsdóttur og Jóns Sigurpálssonar. Flott hjá henni.
En ég var fyrir tilviljun á leið í bæinn og sá þá þessa skemmtilegu uppákomu.
Þarna voru margir og bílaröð alveg niður allt Hafnarstrætið.
Spenntir keppendur.
Allt á fullu.
Og þá þarf amman að hlaupa til. Sjáumst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
27.3.2008 | 17:56
Daglegt líf og veður.
Nú er allt að færast í samt líf hér á heimilinu. Hanna Sól er að ná sér eftir rauðu hundana. Og litla skottið er kát og glöð. Hún svaf í vagninum sínum í þrjá tíma, og ég endaði með að vekja hana, svo hún myndi sofna í kvöld. Hún hefur greinilega haft gott af svefninum. Heima hjá sér í Vín gat hún ekki sofið úti, þar sem íbúðin er á áttundu hæð. Svo það er ekki vegur að koma því við. Enn eitt góða við að vera í tæra loftinu á Ísafirði.
Hér er verið að horfa á Dóru, á morgun fer hún á leikskólann sinn, og þá byrjar rútínan hjá henni.
Ásthildur fór í náttakjólinn hennar systur sinnar, og auðvitað beint í tjörnina.
Úbbs potturinn datt og hvarf í kaf. Amma náði honum uppúr, og þá reyndi hún ekki aftur að fylla hann sjálf, heldur lét ömmu um það heheheeh...
Jamm svo er að fara með hann og vökva auðvitað.
Svona þetta er fínt.
Veðrið er að lagast, það hefur verið ágætt en nú er sólin að brjótast fram, það er notalegt.
Svona fínt.
Svo vil ég bara endurtaka þakkir mínar til ykkar allra og hlýju og fallegu orðin, þau eru geymd í hjartanu, og þegar amma verður pirruð eða er alveg að springa þá tek ég þau fram og hugsa um þau og þá mun allt verða gott aftur. Þannig er eðli góðra orða.
Þetta ljóð var á blogginu hans Þóa vinar míns, mér finnst það algjör snilld, og set það hér inn.
Gildi orðsins.
Af gnægðum hjartans mælir munnur,
mynda orðin sálargerð
Öll þau speglar andans brunnur.
eru þau hugans dýra sverð.
Orðin birta eðli manns,illt og gott í fari hans.
Góður maður gott fram setur
góðum sjóði hjartans frá.
Göfugleikans gull hann metur
grandvör orð og sannleiks-þrá.
Tungan hlýðir hugsun manns,hún er lykill sálar hans.
Vondur maður orðin illu
ávallt lætur fús í té.
Sína eykur syndavillu
saurgar heilög andans vé.
Hver sem iðkar orðin ljót,
allri blessun vinnur mót.
Því er vert að vanda tungu,
varhyggð rétta temja sér.
Gróðursetja í eðli ungu
allt,sem manni þroska ber
Orðsins gildi gullvægt er,
ef göfug hugsun saman fer!
Höfundur
Ingibjörg Sigurðardóttir skáldkona,
frá Kálfshamarsvík.
Knús á ykkur öll elsku vinirnir mínir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
26.3.2008 | 18:22
Söknuður í kúlunni.
Jæja þá er alvaran tekin við. Ég orðin mamma aftur með þrjú börn þar af eitt bleyjubarn og annað fjögurra ára.
Mamman og pabbinn fóru af stað suður í dag. Auperin kemur ekki fyrr en viku af apríl, svo ég hugsa að ég verði ekki mikið á blogginu þann tíma. Ég er dálítið sorgmædd inn í mér af því að Bára mín er farin, en þau skildu eftir það dýrmætasta sem þau eiga í minni umsjá. Hve mikið meira traust er hægt að sýna einni manneskju. Þó verð ég auðvitað ekki ein með þær. Afi og Úlfur eru duglegir við að hjálpa, og svo allir hinir, Tinna og Skafti, Ingi þór og Júlli og fullt af ættingjum sem eru alltaf tilbúin. Auperin er þýsk og heitir Júlía, þið fáið örugglega að kynnast henni þegar hún kemur. Ég vona bara að hún falli vel inn í heimilið. Stelpurnar verða hér fram á haust. Mamma þeirra kemur í júní, og svo verða þær allar hér einhvern tíma, geri ég ráð fyrir. Sú stutta grét alveg heilmikið áðan, þegar hún uppgötvaði að mamma var farinn. Ég var í klukkutímabasli með þennan litla ræfil, nú er hún sofnuð. Og ég vona að það versta sé yfirstaðið.
Blessunin mín hún Bára, ég vorkenni henni mest, en hennar fórn er mikil. Skólinn tekur allan hennar tíma og svo eru endalaus próf fram á vorið. Eg ákvað því að bjóða henni að hafa þetta svona til að auðvelda henni að takast á við lærdóminn og skólann.
Hér er kartöfluprinsessan, hún fékk svo rauða hunda ofan á allar flensurnar hér, og er alsett bólum, við settum hana í kartöflumjöls bað til svía aðeins á kláðann. það tókst reyndar mjög vel.
Svo er víst ágætt að hugleiða hehehehe
Þessi var samt tilbúin til að fara fram.
en svo fór amma með hana í labbitúr, þið sjáið að það er dálítið kalt og vindur í dag.
Svo þurfti að hjálpa pabba að raða í bílinn, henni var reyndar ekki alveg ljóst að þau myndu svo fara.
Þetta er nýjasta aðferðin við að fara á klósettið.
Það þurfti aðeins að leika sér með trommurnar.
með tilþrifum.
Já ég vona að brosið komi sem fyrst aftur á þessa litlu dömu. Hún er frábær og amma ætlar að líta vel eftir þeim báðum. Reyndar eru þær báðar búnar að komast að á besta leikskólann á landinu Tjarnarbæ á Suðureyri. Þar er svo gott að vera, yndislegar fóstrur og svo er hægt að fara í sund þar eftir leikskólann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (33)
25.3.2008 | 20:59
Krúttfærsla og fiskisúpa að hætti Júlla.
Já Júlli bauð okkur öllum í fiskisúpu í gær. Hann er snillingur í að elda fiskisúpu.
Flottur strákurinn minn. Og stolt sinnar móður.
Beðið eftir súpunni og börnin fengu pylsur.
Nammi namm.
Þau hafa gaman af að klæða sig í búninga, enda á amma kistu fulla af slíkum.
En strákarnir vilja samt heldur bara vera í tölvuleik.
Fyrir þennan aldur er það garðskálinn og....... Tjörnin.
Sulla sulla sulla.
Og meira sullum bull.
Áhuginn er mikill.
Það er eitthvað við vatn og börn. Hafið þið tekið eftir því að bara þegar maður vökvar í garðinum, eru þau komin í vatnsslönguna fyrr en mann grunar.
Þú mátt núna !
Jamm maður þarf að fara út aftur og skoða betur.
Sjá stelpuna þarna niðri.
Ætli nokkur sé að fylgjast með ?
Jamm best að skoða þetta nánar.
Þetta er aldeilis gaman.
Smá dass af sandi svona til að fullkomna málið.
Ætli það sé ekki bara komið gott í dag.
Mamma !!!
mmm já einmitt það sem ég vildi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 5
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023311
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar