Færsluflokkur: Bloggar
18.5.2008 | 02:15
Smá.... nei megakrúttfærsla.
Já þetta er svona smá krúttfærsla. Þessi dagur er búinn að vera góður, við Elli gátum unnið heilmikið upp í garðplöntustöð. Jorga og Hanna Sól fóru í sund, en Úlfur gætti að Ásthildi sem svaf sinn dagsblund, þó hún ætlaði aldrei að sofna, þó vaknaði hún kl. hálf sjö í morgunn, og sofnaði ekki eftir það fyrr en um tvö leitið.
Þetta er ef til vill svona týpiskur laugardagur í kúlunni.
Hver að dútla við sitt og svona.
Og við hjálpumst að við að bjarga býflugunum upp úr tjörninni, og núna líka geitungadrottningunum.
Já þær eru svo vinalegar og mikil krútt.
eins og sjá má. svolítið blautar eftir volkið í tjörninni, en svo glaðar að vera bjargað og komast á þurrt.
Amma ég bjarga þessari ég kann það alveg.
Svo tekur Úlfur smá sving með golfkylfurnar og kennir litlu frænku sinni hvernig á að bera sig að.
Meðan litli götulistamaðurinn fremur sínar gjörningar af miklum áhuga.
Það má ekki á milli sjá hvort þeirra er flottara, ég get svo svarið það.
Þau eru bara flottust.
Svo þarf að telja flétturnar hennar Jorgu.
Og Úlfur leggur síðustu hönd á plóginn með súpuna, þ.e. hvítlauksbrauðið. Þetta sá hann algjörlega um sjálfur, og þvílíkt góð sjávarréttasúpa hjá honum.
Amma, Ásthildur er búin að setja á gólfið svona hvítt duft.
Ha, segir amma, á kafi að horfa á inspecktor Barnaby.
Já hún er búin að setja það á gólfið... Ég gerri ekki neitt !
Ókey, amma enn að horfa á Barnaby.
Já en hún er búin að setja það út um allt.
ÚBBS !
Það var kartöflumjöl... jamms út um allt... En ókey, Barnaby varð að leysa gátuna og ekki gat ég svikið hann og hlaupist á brott.
Það lá við að ég dæi úr hlátri, þegar ég sá hvers kyns var. Og litla stýrið útötuð í kartöflmjöli, frá toppi til táar.
Vonandi fáið þið líka smá gleðihlátur yfir þessum yndislegu myndum. Ég allavega skemmti mér svo vel yfir þessum elskum mínum öllum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
17.5.2008 | 19:38
Tónleikar og annað tilheyrandi kúlusúk.
Það voru tónleikar í gær hjá stubbnum. Ég komst ekki, en Elli minn tók nokkrar myndir.
Þetta mun vera Tónlistarhópur í 4. G.Í.
Upprennandi saxófónleikari. og hann er frændi Balda Geirmundssonar, svo hann á ekki langt að sækja hæfileikana. Afi hans Kalli Geirmundsson, sem spilaði alla tíð á gítar í B.G.
Hér er svo Úlfurinn stubburinn minn á trommurnar.
Því miður missti ég af þessum vortónleikum, en það er alltaf svo frábært að fara og hlusta á börnin spila.
Hér eru svo nokkrar myndir út garðinum mínum.
Þessi situr og fylgist með gestakomum.
Þessi synti einu sinni um sjóinn, nú liggur hann bara við bæjarlækinn, svona breytast tímarnir.
Fossinn minn.
Og páskaliljurnar.
Það er nú ekki tekið út með sældinni að passa upp á tvo skæruliða þegar maður er elstur.
Þetta er skæruliði númer eitt, þarna að fá sér rauðvín.
Hanna Sól að fá sér rúgbrauðsneið.
En Úlfur bauð í fiskisúpu í kvöld, hann byrjaði reynda að elda í gær, þessar myndir eru frá þeim tíma.
Hann bar sig fel að við eldamennskuna, og gerði þetta alveg sjálfur.
Laxinn settur í pottinn.
Við borðuðum súpuna í kvöld og var hún hið mesta hnossgæti.
Hér er Úlfur að blása sápukúlur.
Hanna Sól er greidd svona flott. Þær fóru í sund í dag. Ætluðu í gær en þá var laugin lokuð. Hanna Sól og Jorga ræða saman á ensku og þýsku. Should we go swimming now ? segir Jorga
Yes segir Hana Sól. En svo ræða þær líka saman á þýsku. Þær geta alveg gert út um öll mál.
Þessi getur líka gert sig skiljanlega með fettum og brettum og líka með andlitinu
En lífið er miklu einfaldara, síðan Jorga kom.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
16.5.2008 | 20:39
Ömmurnar úr djúpinu og fleiri gamlar myndir.
Ég hitti marga daglega sem segjast lesa bloggið mitt, og sérstaklega skoða myndirnar. Ömmumyndin sló í gegn, þar sem margir hafa spáð í hvaða konur þetta eru. Ég lofaði einnii konu sem ég hitti á tónleikunum að stækka hverja og eina þannig að andlit þeirra kæmu betur í ljós.
Hér kemur svo árangurinn af því.
Ég kalla þær konur út Djúpinu.
Vona að einhver þekki þær betur núna, ég fékk nokkur nöfn í gestabókina, en þið megið alveg svara ef þið þekkið þessar flottu konur.
Hér eru svo fleiri.
Þessi eru með nöfn og kennitölu.
Hjörtur 21 árs
og Gauja 19 ára.
Hef ekki nafnið á þessari fallegu konu.
Ekki heldur þessari, en platan hlytur að vera geymd.
Hér sést hún aðeins betur.
Enn ein nafnlaus.
Þetta gæti verið hún Lilla frá Laugalandi. Heiðrós Þórðardóttir.
En ég læt Simsonkenninguna fylgja, vegna þess að sá maður var snillingur, bæði mikill listamaður, akropatik, skógrækarmaður og ljósmyndari.
Njótið mín ágætu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
16.5.2008 | 01:19
Dagurinn í dag.
Ég ætla að svara mínum elskulegu bloggvinum á morgun við þeirra svörum. En ætla að koma að smámyndum af hversdagsleikanum hér í kúlunni á blað með myndum.
Svona byrjar morguninn i Kúlunni þessa dagana.
Svo seinnipartinn þá er kvöldmatur í gær var Lasanja og Ásthildi fannst það rosalega gott.
Þið sem reykið, það er ýmislegt að varast þegar smáfólkið á í hlut. Svona stubbar geta drepið lítil börn. Sem betur fer var haft gott auga með Ásthildi í þessu tilliti, af sinni ömmu.
Hér kemur garðyrkumaðurinn upp í henni. Alleg eins og amma sín.
Tvær flottar saman, önnur étur tómat, hin gerir sér bolta að góðu
Geturðu lánað mér smá pening spurði óperan mín í dag. Ég hef verið hér í hálfan mánuð og ekkert farið út að versla.
Já sagði ég, hvað þarftu mikið ?
Mig langar bara til að versla smá fyrir stelpurnar, sagði þessi yndislega stúlka. Er þessi Bónus eitthvað svoleiðis,
Já sagði ég, og svo er auðvitað Samkaup hér lika.
Og þær fóru allar þrjár saman að versla.
Allt var rosaflott og skrautlegt.
Hér má sjá flotta hluti sem eru augnakonfekt fyrir litlar stúlkur.
Ýmislegt brallað hjá þessum þremur.
Afi líka áhugasamur um dýrðina.
Sumir eru einfaldlega bara flottar prinsessur, sama hvað á dynur.
svo eru aðrir ákveðnir einstaklingar, sem ætla sér stóra hluti í lífinu, og eru ekki sáttir ef það tekst ekki.
Jamm maður skal sko lyfta þessu flykki, þó það verði manns síðasta
Hér brosir svo Mansjúríu rósin mín við okkur öllum og minnir okkur á hörmungarnar í Kína.
svona flott var veðrið í gær, og svo hlýtt líka.
Svona var það aftur á móti í dag, en líka hlýtt veður. Hér sjáið þið hve snjórinn hefur hopað.
En nú er komin tími á mig í holuna mína. Það sem er frábærast í þessu öllu er að stúlkurnar mínar þær litlu og sú stóra ná saman, þrátt fyrir tungumálaerfiðleika. Eða þær tala ekki sama tungumál. AÐ vísu tók ég eftir í dag, að Jorga og Hanna Sól ná aðeins saman á þýskunni. En í fyrradag, þá komust þær að samkomulagi um að fara saman í sund daginn eftir.... EF Hanna Sól yrði stillt og góð. Það stóðst svo. Þannig að þær geta alveg náð saman um hluti, þó tungumálið sé ef til vill ekki alveg upp á það besta. Sú litla talar auðvitað ekki neitt, en þar blívur táknmálið og líkamstjáninginn. Aðal málið er að þær ná svo vel saman allar þrjár. Og ég má til að segja það.... þó ég ætti ef til vill ekki að gera það. En mín elskulega ópera komst að því í dag að hún á von á barni.... það blómstrar nefnilega allt hér í kúlunni.
Ég segi nú bara góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
14.5.2008 | 22:07
Stórhljómsveitin í Edinborgarhúsinu.
Já ég fór á tónleika með Írisi Kramer og stórsveitinni hennar í gær. Það var virkilega gaman, ég kom út betri manneskja með gleði í sinni, eftir þessa músikveislu.
Upphitun, þau voru smeyk um að ekki myndu koma margir, því það var ekki vel auglýst. En meðan þau voru að koma sér fyrir, fylltist salurinn af fólki, og það þurfti að bæta við helling af stólum. Sannarlega gleðileg óvænt ánægja.
Fyrst kom fram jazzband Írisar, Smári, Valdimar og Halldór, á trommurnar var Tumi, þeir voru allir frábærir. Ég hef fylgst með þessum strákum gegnum tíðina, Halldór og Valdimar hafa spilað mikið saman, og eru hreinlega frábærir músikantar, Smára hefur farið gífurlega fram á saxofóninn, hann brilleraði í gær í inproviseringum. Sannarlega talent þar á ferð, eins og hinir. Tumi er líka flottur á trommurnar.
Smári slær í gegn á saxofóninn.
Halldór á flygilinn einn af mínum uppáhalds. Sama hvort það er klassik, jazz eða rokk.
Þarna sjást líka Valdimar á bassann, líka á kontrabassa og Tumi trommari.
Ingunn Ósk Sturludóttir söngkona tók svo 2 lög með þeim, All of me og Cry me a river, bæði mín uppáhaldslög.
Íris Kramer ekkert smáflott á trompetinn.
Ylfa Mist tók tvö lög með stórsveitinni, Over the rainbow, og Fly me to the moon. Hún var frábær líka, söngurinn lá mjög lágt, svo það hefur ekki verið auðvelt að ná krafti í sönginn, en henni tókst það svo sannarlega.
Mín með tilþrifum.
Afi og amma ekkert smástolt. Villi Valli hefur aldeilis verið liðtækur á Saxofón, harmonikku og píanó, og bara hvaða hljóðfæri sem er. Hann er hættur að spila, en er að gefa út hljómdisk. Ég hlakka til að kaupa hann. Ég á fyrri diskinn hans og hann er aldeilis frábær.
Hér er ein frábær söngkona líka Guðrún Jónsdóttir sópran, ég spurði hana hvort hún væri hætt að syngja, nei nei, en núna syng ég aðallega fyrir börnin mín, sagði hún.
Salurinn var fullur af fólki, og þurfti að bæta við stólum.
Frábær aldilis. Ekki oft sem maður fær að njóta svona tónleika hér. Og þvílíkt gott að eiga þessa frábæru tónlisamenn hér. Ég vona að strákarnir okkar komi aftur heim, eftir skóla fyrir sunnan. Við megum ekki missa þá í burtu alveg.
Ég segi bara takk fyrir mig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
14.5.2008 | 09:51
Stjórnvöld færa auðmönnum landsins 60 milljarða - hvað finnst ykkur ?
Eins og ég sagði frá í gækveldi, þá fór ég á áhugaverðarn fund hjá Frjálslyndaflokknum. Tvennt var þar rætt sem vakti mikla athygli mína og annara. Það er í fyrsta lagi sú ákvörðun að fara að flytja inn hrátt kjöt frá öðrum löndum. Það mun hafa gríðarleg áhrif á störf í langbúnaði og afurðarstöðvum, og fækka störfum á landsbyggðinni verulega, sérstaklega á þeim stöðum sem hvað mest eiga nú undir högg að sækja, eða norðvestur- og austurkjördæmi. Það er engu líkara en menn ætli að láta fúlmennið sem rústaði sjávarútveginum, ganga milli bols og höfuðs á landbúnaðinum líka. Það verður fallegur eftirmáli manns sem virðist bara ganga erinda húsbænda sinna, búin að gleyma öllum loforðum og fólkinu sem kaus hann á þing. Svei attan bara. En ég hef hugsað mér að ræða þetta mál betur seinna, því það er annað mál og brýnna sem verður afgreitt frá þinginu á morgun, að öllum líkindum.
Það er gjöf ráðamanna til auðmanna landsins upp á 60 milljarða.
Hér er verið að tala um að hagnaður sölu á hlutabréfum bara á árinu 2006 sé í kring um þúsund milljarðar. Þar af er álitið að stór hluti þess sumir nefna 400 milljarða, séu fluttir beint úr landi og enginn skattur er greiddur af þeim peningum til sameiginlegra þarfa landsmanna. Hluti af upphæðinni hafi skilað sér í sameiginlega sjóði landsmanna.
Síðan hafa menn getað geymt í tvö á að greiða gjöld af þessum gróða, í þeim potti eru nú 336 milljarðar. Af þessu ættu menn að greiða 18% skatt, eða um 60 milljarða króna sem hefðu komið í ríkissjóð.
En nei nú ætla ríkisstjórarflokkarnir að gefa auðmönnum Íslands þessa 60 milljarða. Lög þar að lútandi verða samþykkt frá Alþingi Íslendinga núna á fimmtudaginn, eða á morgun. Sjá nánar hér. http://www.kristinn.is/frettirpage.asp?ID=1209
Að þessari samþykkt standa samfylking og sjálfstæðismenn. Það kom líka fram í gær að sennilega ætlar Framsóknarflokkurinn að sitja hjá í þessu eða verður ekki með í andstöðu frumvarpsins með Frjálslyndum og Vinstri grænum. Þeir verða að passa sitt fólk sennilega í orkahópnum.
Ég heyrði Kristinn H. Gunnarsson segja í gær, að þetta sé það versta sem hann hafi séð á alþingi íslendinga frá upphafi, og megi þó margt týna til sem ekki þoli mikla umfjöllun.
Nú langar mig til að spyrja alþýðu þessa lands. Eruð þið samþykk því að gefa auðmönnum landsins eftir 60 milljarða ?
Finnst ykkur allt í lagi að með einu pennastriki sér afskrifaðar allar skattaálögur af þessu tagi á auðmenn landsins. Og hér er bara verið að taka tölur fyrir eitt ár, það safnast þegar saman kemur. Þetta verður ekki aftur tekið.
Finnst ykkur allt í lagi að þessir menn sem vissulega berast á, eiga meira en nóg fyrir sig og sína, þurfi EKKI AÐ TAKA ÞÁTT Í SAMFÉLAGINU.
Hvað finnst ykkur sem kusuð Samfylkinguna, sem kallar sig jafnaðarmannaflokk landsins, að þeir standi að svona stórgjöf til handa fólkinu sem mest á í þessu þjóðfélagi. Stefna Sjálfstæðisflokksins kemur ekki á óvart. Á meðan ekki er hægt að gera eins vel við öryrkja og aldraða eins og loforð voru gefinn um. Meðan ekki er hægt að greiða þau laun í heilbrigðiskerfinu sem þarf til að viðhalda stöðugleika og öryggi landsmanna í heilbrigðismálum. Og það má margt telja upp. Landið er að sporðreisast vegna þess að landsbyggðinni er að blæða út, og þetta fólk situr bara og ákveður að gefa milljarðamæringunum eftir 60 milljarða.
Mér er sama hvar í flokki þið eruð, þetta er aðför að lífskjörum okkar. 60 milljarðar er ekki svo lítill peningur, ég er viss um að Björgúlf munar ef til vill ekki mikið um þann hluta sem hann fær út úr þessu, eða Jón Ásgeir og fleiri sem vita ekki aura sinna tal. En ætli litli maðurinn hann Jón Jónsson skilji og vilji þetta, þegar hann er að missa húsið sitt og aleiguna, vegna þess að bæði verðtryggingar, og vextir hafa hækkað upp úr öllu valdi. sem skýrir gróða auðmannanna ekki satt, þessi auður kemur frá vaxtapíningu á almenning.
Ekki vill ríkisstjórnin minnka álögur á olíu og benzín, telja sig ekki HAFA EFNI Á ÞVÍ . Eða hvað. En þeir hafa efni á að gefa ríku mönnunum sextíu milljarða. Og ekki bara 60 milljarða, heldur er þetta bara byrjunin.
Hvenær ætlum við að standa upp og mótmæla. Rökin eru, já takið eftir rökin eru þau, að annars flytji þeir bara peningana úr landi. Þeir hafa þó flutt burtu um 400 milljarða, af áætluðum gróða ársins 2006.
Indriði H. Þorláksson benti á það nýlega að hann hafi mælst til þess að menn yrðu skyldaði til að gefa upp verðbréfaeign sína, hvort heldur sem hún væri hérlendis eða erlendis. Svo hægt væri að fylgjast með hvort þeir greiddu skatta af þeim í öðrum löndum, og ef ekki að þeir greiddu af þeim hér á landi. Skattur af verðbréfum er 18% en á að lækka í 15% sem er svipað og í öðrum löndum.
Ætlar þetta fólk að horfa framan í okkur kjósendur með það á samviskunni að hafa skrifað undir þessa stórkostlegu gjöf til þeirra sem mest mega sín ?
Ætla kjósendur bara að brosa og láta þetta yfir sig ganga ? Hvað um ykkur samfylkingarfólk, eruð þið sátt, eða framsóknarmenn ? Finnst ykkur þetta bara allt í lagi ?
Og takið eftir, það er ekkert fjallað um þetta í fjölmiðlum. Af hverju skyldi það vera ? Það er nefnilega ekki í þágu auðmannanna sem eiga fjölmiðlana, og heldur ekki þeirra stjórnmálamanna sem svona haga sér. Þjóðinni skal blæða út. Þjóðinn fólkið í landinu má bara krafsa sig sjálft út úr sínum erfiðleikum. Það má missa aleiguna, grundvöllinn undir lífi sínu, og éta það sem úti frýs. Bara ef auðmennirnir fá sitt. Og hvað ætli svo pólitíkusarnir græði sjálfir á þessu ? Það er spurning sem ég vil gjarnan fá svör við. Enginn gerir svona fyrir ekkert . eða ætli það ?
Eins og þið sjáið á þessu þá er ég bandbrjáluð, út af þessu. Ég er löngu búin að fá upp í kok af framgöngu stjórnmálamanna sem ráðskast með okkur eins og við séum bjöllusauðir. Það hvarflar aldrei að þeim, að þeir hafi verið kosnir í almennum kosningum til að framkvæma það sem þeir lofuðu fólkinu. Það er gleymt um leið og talið hefur verið upp úr kjörkössunum. Og þeir geta farið að makka með þau völd sem VIÐ GÁFUM ÞEIM. Nema núna skiptum við engu máli, heldur bara þeir sjálfir og sú klíka sem stjórnar þeim á bak við tjöldin.
Vinstri grænir og Frjálslyndir eiga hrós skilið fyrir að vilja hindra þetta sóðamál. En Framsókn sýnir enn og aftur að flórinn er sá staður sem hún tilheyrir.
En við skulum ekki einblína á flokkslínur, hér eigum við öll að rísa upp hvar í flokki sem við stöndum og leiða ráðamönnum fyrir sjónir að svona gera menn ekki. Þið sem eruð á suðvesturhorninu, mikið væri flott ef þið settust á þingpalla og fylgdust með umræðunni um þetta mál, og létu í ykkur heyra. Hér sitjum við öll á sama bátnum. Þetta er okkar allra mál, sameiginlegt fé, sem átti að renna í okkar sameiginlega sjóð. Við verðum að segja HINGAÐ OG EKKI LENGRA!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
14.5.2008 | 00:25
Kúlublóm, og ýmislegt annað.
Ég ætla að tala um Bigbandið á morgun, en ég ætla að setja inn nokkrar myndir frá deginum í dag. Þetta var mjög hlýr og fallegur dagur, sól og blíða.
Byrjaði með því að koma stelpunum á fætur og núna fer Jorga með þær á leikskólann. Hún er frábær alveg hreint.
Hér sjáið þið hið fallega veður, en ég vona að þessi móska sé ekki mengun úr Funa, sorpbrennslustöðinni. Vil eiginlega ekki hafa hana þarna lengur.
Ungviðið lék sér í allskonar leikjum, þarna nýtist gerfigrasvöllurinn aldeilis frábærlega vel.
Blómin poppa upp hvert af öðru hér er anemona sem brosir svo fallega í sólinni.
Prímulan gefur henni ekkert eftir.
Og þá hepatican mín.
Og eins og þið sjáið þá er páskarósin mín ennþá rosalega falleg, og hefur ekkert látið á sjá.
Sypresinn stendur sig líka rosalega vel eftir veturinn.
Og thujan mín.
Ein stemmningsmynd frá kvöldinu, hér er Ylfa Mist að syngja, hún var frábær í kvöld.
Ég fór líka á ansi fróðlegan fund með félögum mínum í Frjálslyndaflokknum, og er ákveðin í að gera skil á því sem þar kom fram hér. Á morgun.
En Ásthildur er þreytt og lúin eftir frábært kvöld. Og Jorga stóð sig rosalega vel í pössuninni. Hún er að fá vin sinn hingað í vinnu, og svo dóttur sína, svo ég hef mikla von um að hún verði hér allavega þangað til dóttir mín kemur.
En ég segi bara góða nótt elskurnar mínar og sofið rótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
13.5.2008 | 18:32
Stórsveit Írisar. Bigband í Edinborg.
Jæja þá kemst maður á tónleika, loksins. Jorga mín ætlar að gæta barnanna fyrir mig, meðan ég bregð mér af bæ og fer og hlusta á minn elskulega eiginmann leika með bigbandinu hennar Irisar Kramer. Tónleikarnir verða í Edinborgarhúsinu öðru af tveimur menningarhúsum Ísafjarðar í kvöld kl. 20.00. Íris er þýsk en hefur verið mikið í músikkinni hér fyrir vestan ásamt eiginmanni sínum Hrólfi Vagnssyni.
Ég hlakka til að hlusta á þessa frábæru hljómlistamenn sem við ísfirðingar og Bolvíkingar eigum. Með í för verða tvær flottar söngkonur þær Ylfa Mist Helgadóttir og Ingunn Ósk Sturludóttir. Lögin eru ekki af verri endanum Chicago, Over the rainbow, My girl, It don't mean að thing, Fly me to the moon, Spinning wheel og Stella. Þarna verður líka jassband Og já það er frítt inn !!!
Allir hér fyrir vestan að drífa sig á tónleika.
Hér er stórsveitinn á tónleikum í fyrra í Menntaskólanum á Ísafirði. Frábær músik frábær uppákoma.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
12.5.2008 | 22:09
Mánudagur ekki til mæðu.
Dagurinn í dag var hlýr og notalegur, seinnipartinn byrjaði að rigna, lóðrétt, þar sem hér er logn. Svo sannarlega vorveður.
Þær eru að leika sér í dúkkuleik dömurnar.
Sigurjón Dagur vildi líka leika með dúkkurnar. Þó hann fengi að velja um bíla. Nei hann vildi bara dúkkurnar sem stelpurnar voru með.
Litla skottið vill gefa honum dúkku.
En það er ekki sú rétta.
En Jorga leikur við Ásthildi að bíl. Það er gaman.
Eins og ég sagði, þá var hið fegursta vorveður hér í dag, og snjórinn fer fljótt úr fjöllunum.
Svei mér þá skottið ætlar að detta aftur í tjörnina. Ef hún heldur þessu áfram, þá endar það með því.
Það er nefnilega allstaðar prófað að setjast niður á brúnina.
Krakkarnir fóru í sund í dag með Júlla og Siggu, þau fóru í laugina í Bolungarvík í dag, eða sundlaugargarðinn. þar er nefnilega rennibraut. Svo fóru þau upp í hlíð að steika sykurpúða. Þau komu heim blaut af regni, og golsótt af sóti en rosalega glöð.
Eins og sjá má þá er Hanna Sól afar hamingjusöm með sitt sót, og sykurpúða.
Þeim var svo heitt, að þetta var klæðnaðurinn á stubbnum.
Og Sóley Ebba þreytuleg. Þau voru hundblaut, ekki bara af regni, heldur að sulla í lækjum og mýri sem þarna er. Upp í hlíð er gott að vera fyrir börnin.
Hvað er notalegra en brosandi glöð börn beint utan úr náttúrunni ?
Eða lítil óþekktarkrýli sem þarf að fylgjast vel með?
En við ljúkum myndaseríunni með Brandi upp á burstinni. Þar hefur hann yfirsýn yfir allan heiminn.
Brandur yfir brúnir gjáist,
bannsett kattarskitinn.
Af fergju, vonar fuglinn sjáist,
feitur matarbitinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
11.5.2008 | 23:54
Annríki í kúlusúk.
Ég hef verið upptekin í dag. Við fórum aðeins upp í gróðurhús að vinna hjónin, og svo ákváðum við að gera vorverk sem ekki mátti bíða lengur, það var að hreinsa fiskatjörnin. Það var allt sett í gang, og allir hjálpuðust að eins og venjulega þegar þannig stendur á, en við tökum hana alltaf í gegn á þessum tíma.
Úbbs þetta er að vísu ekki fiskatjörnin, heldur byrjuðu þær litlu á að fara í bað í morgun hehehehe
Og hér er nýji heimilismeðlimurinn okkar, alltaf jafn yndæl og góð.
Ef Guð (Hanna Sól) lofar hehehehe þá fær mansjuríuhavairósin mín að blómstra bráðlega, hún er nú þegar búin að slíta upp tvö blóm. Af því að hún elskar blómin hennar ömmu sinnar.
Kamelíufrúin er svo glæsileg og búin að vera núna í um það bil mánuð.
Veðrið eins og best verður á kosið. Hlýtt rigningarúði og bara dýrðin ein.
Hanna Sól, ég ætla að taka af þér mynd í nýju fötunum frá ömmu Hönnu, ókey, sagði sú stutta, en ég ætla samt ekki að brosa.
Og hefst þá ævintýrið.
Litla barnið hennar Hönnu Sólar og Ásthildur voru báðar mjög áhugasamar um fiskana.
Reyndar voru ALLIR áhugasamir um það sem í vændum var.
Einn og einn voru þeir veiddir upp úr tjörninni, fiskarnir og settir í bala.
Sjáiði, segir lita skottið, alveg yfir sig hrifinn af fiskunum.
Veiðimaðurinn mikli að störfum.
Brandur hafði líka gífurlegan áhuga á þessum fiskum, sem þarna voru í boði... ekki Glitnis eða Landsbankans, heldur Kúlunnar.
Amma ég er komin með hanska, sagði Hanns Sól, eftir að hafa verið rekinn inn til að hlýja sér
Svo má alveg bregða sér á leik í hita og þunga dagsins, smá krabbaskemmtun.
Sú stutta sýndi gífurlegan áhuga á þessu öllu saman, í sjömílna skóm hehehehe.
Loksins var allt vatnið farið úr tjörninni, svo hægt var að fara að þrífa.
Mikið er nú gott að hafa gott fólk til að hjálpa til.
Það var samt tími til að sprella smá.
Loks var allt búið, og fiskarnir fengu að fara niður í hreina og tæra tjörnina sína aftur. Og þeir voru svooo glaðir.
Koma svo... komið til mín... ég vil fá einn fisk til mín...
Þá þurfti náttúrulega að fara aðeins yfir hreinsibúnaðinn.
Jamm og svo aðeins betur hehehehe.
Svo þurfti náttúrlega að kanna vatnið vel og vendilega.
Enginn mátti skorast undann..
Allir þurftu að prófa.
Jamm þannig var það staðfest að hreinsun tjarnarinnar hafði gengið að óskum, og allir ánægðir börn, fólk og fiskar.
Svo seig nóttin á, og lítil stúlka vildi bara fá smá afaknús, bursta tennur, og svo ennibein og auga. auga, nebbi flipi, hökuskegg og hálsakot, en það er þannig sem við þvoum okkur fyrir háttinn hér í kúlusúk.
Og nóttin sígur á, dimm hljóð og notaleg. Góða nótt elskurnar.
Bloggar | Breytt 12.5.2008 kl. 00:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 2023304
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar