Færsluflokkur: Bloggar

Kúlulíf og daglegt veður.

Hér var vestan þræsingur í dag, þannig að það komu fáir til að versla plöntur, skiljanlega.  En ég gat eitrað fyrir hádegið á Austurvelli með roundup, þar sem því var viðkomið, til að minnka hirðinguna í sumar.  Pólverjarnir mínir klipptu plönturnar, og á morgun munu þeir stinga upp beðin sem á að setja sumarblómin í, og svo planta þeim niður.  Austurvöllur, systurgarður Hallargarðsins í Reykjavík, sem er teiknaður af Jóni H. Björnssyni, skal vera í sínu fínasta pússi í sumar.  Heart

En eins og ég sagði þá var lognið dálítið að flýta sér í dag, sérstaklega eftir hádegið.

IMG_6714

Eins og sjá má.

En það lygndi þegar á daginn leið.

IMG_6732

Og þegar kvöldaði var veðrið orðið fallegt.

IMG_6733

Himnagalleríið opið eins og sjá má, svona undir kvöldið.

IMG_6707

En sumir vöknuðu bara hressir og kátir í morgun.

IMG_6708

Meðan aðrir geyspuðu dálítið og voru syfjaðir.Smile

IMG_6712

Ef amma á ekki ís í ísskápnum, þá á hún allavega klaka hehehehe.

IMG_6713

Já hann getur verið dálítið kaldur að halda á og borða, en hann er góður og frískandi.

IMG_6717

Það má með sanni segja að snemma beygist krókurinn, maður er ekki hár í loftinu, þegar maður fer að lesa ársrit skógræktarfélagsins, og örugglega líka Garðyrkjufélagsins.

IMG_6718

Það er greinilegt að þessi sápukúlubyssa sló rækilega í gegn í kúlunni.

IMG_6722

Svo þarf að skoða nærbuxur stóra frænda líka.

IMG_6719

Þetta litla skott, er ótrúlegt alveg.  Hún fær hjartað í ömmu sinni til að taka nokkur aukaslög á dag, eða hvað haldið þið ?

IMG_6723

Ef þetta er ekki fiktirófa númer eitt....

IMG_6724

Þá bara veit ég ekki hvað Frown

IMG_6725

en hún er eins og kötturinn, kemur alltaf standandi niður. Hjúkket...

IMG_6727

Svo hefur hún gaman af að mála, götulistamaður af Guðsnáð held ég.

IMG_6730

Afi hjálpar nú aðeins til, stundum, við að teikna Óla prik allavega LoL en áhuginn leynir sér ekki.

IMG_6728

en prinsessan þarf að máta föt og svona.  Baðfatatískan í algleymingi.

IMG_6731

Þessi er nú líka svona stællegur ekki satt LoL.

Það er komið logn, sem betur fer, því það er bara ferlega leiðinlegt að hafa svona rok, sem þurrkar allt upp, og svíður ung blöð.  En ég er að fara að halla mér, skríða í holuna mína og segi bara góða nótt. knús á ykkur öll. Heart


Nýr kúlubúi, og daglegt líf.

Ég vil byrja á að segja mikið eruð þið frábær bloggvinir mínir.  Ég hef mikið að gera, og er rosalega þreytt, en að koma svo heim og lesa hlý orð og umhyggju, þá líður mér svo vel.  Þannig að þið gerið svo sannarlega ykkar til að létta mér þessa erfiðu tíma.  Salan gekk vel í dag, fólk kemur og er bara svo glatt, og ánægt.  Finnst svo gaman að koma og skoða blómin, hlusta á fuglasönginn og bara vera til þarna hjá mér.  Að það er frábært.  Þó stjúpurnar mínar séu ennþá litlar, vegna þess að sáningin klikkaði í vetur, þá fyrirgefst mér vegna þess að öll hin blómin eru frábær, þó ég segi sjálf frá. 

IMG_6661

Hafði nú ekki tíma til að taka myndir, en ég varð með þessa litlu pæju, sem hjálpaði ömmu sinni að bera blómin, maður þarf ekki endilega að vera hár í loftinu, þegar maður vill hjálpa til. Cool

IMG_6655

Amma ég ætla að kyssa blómið þitt, sagði Hanna Sól.

IMG_6659

Hún fékk pakka frá pabba sínu, og er búin að máta öll fötin sem hún fékk, í dag, hér er hún að troða sér í sundföt utan yfir kjólinn LoL

IMG_6660

Sú stutta gefur ekki mikið fyrir svoleiðis prjál.

IMG_6662

Þessi stubbur á nú líka uppáhaldsföt, sem hann fer helst í frekar en annað.

IMG_6664

Á ég þennan pakka ? mér líkar betur við svona harða pakka, segir Ásthildur á sínu bla bla máli.

IMG_6665

Eitt dressið.

IMG_6667

Gaman saman.

IMG_6669

Og tjörnin er skemmtilegust.

IMG_6671

Maður er svo rosalega smart í flottum skóm.

IMG_6673

Unnusti og barnsfaðir Jorgu kom í dag, hann hefur fengið vinnu hjá okkur.  Þá vantar bara litla 7 ára stelpu til að fjölskyldan sé hér öll saman.

IMG_6675

Hann kom með gjafir handa stelpunum, Hanna Sól fékk svona sápukúlufisk.

IMG_6677

Ásthildur svona tæki sem spilar ýmis hljóð.  Henni fannst mikið gaman að því.

IMG_6680

Úlfur og Hanna Sól, gleymdu sér alveg yfir sápukúlum.

IMG_6683

Þar voru ýmsar stellingar og hanteringar.

IMG_6684

Jamm þetta hitti beint í mark, ég fékk svona Litháenskt nammi, og brauð frá Litháen, sem ég hlakka til að smakka.

IMG_6686

Vá ein stór !!!

IMG_6689

Hæ ég fann blöðru !

IMG_6692

Hún er voða stór.

IMG_6698

Það voru reyndar fleiri sem höfðu gaman af sápukúluvélinni.

IMG_6700

Jamm þetta er skemmtilegt.

IMG_6702

Fullt af fallegum sápukúlum.

IMG_6704

Þessi er smáhanteruð

IMG_6706

Kvöldið er fagurt sest er sól, og sefur fugl á grein.  Smá stund í næði, er dásamleg, og ég segi bara góða nótt og takk fyrir mig. Heart

 


Opnun garðplöntusölunnar, ævintýrabörn og júróvision.

Já ég er komin heim af fundi hjá Frjalslyndum, reyndar tveimur fundum, miðstjórnarfundi, sem var frekar þungur þar var margt spjallað, og margt sem þurfti að skoða og spá.  Það er gott í stjórnmálaflokkum, þegar skoðanaskipti verða og menn geta rætt saman um erfið mál, það er þroskmerki.

IMG_6620

En svo var á líka á aðalfundi landsambands kvenna í frálslyndaflokknum, hressar flottar konur

IMG_6625

Svo var rokið í Garðheima til að skoða plölnturnar, bera saman og svona og svo kaupa ýmislegt smávegis sem vantaði.  Ég er mjög ánægð með mínar plöntur, eftir að hafa skoðað mig um í stórborginni.

Á leiðinni heim tókum við ungt fólk upp í þau voru á puttanum.  Glaðlegt skemmtilegt fólk.  Einskonar lífskúnstnera.  Þau voru að ferðast um landið á puttanum með hundspott.  Voru á leiðinni til Patró, og komu frá Eskifirði.  Hann sagðist vera það sem kallað er þúsundþjalasmiður, vinna við hvað sem væri í smá tíma og svo færu þau annað.  Hann hefði starfað sem sjómaður, beitningamaður, aðstoðað við sauðburð, og allt sem til félli, hún sagðist hafa mest gaman af að þjálfa hesta.  Hann er samt rosalega góður kokkur sagði hún og hló.

En hvar ætlið þið að sofa ? spurði Elías, eruð þið með tryggt herbergi, við höfum nú ekki áhyggjur af svoleiðis, sögðu þau, þetta reddast alltaf.  Ef maður er með áhyggjur, þá gengur allt illa, en ef maður hefur engar, þá verður allt í lagi.  Við viljum bara vera frjáls, ekki eyða peningunum okkar í bíla og íbúðir.  ´Núna er ég að sýna henni vestfirði, sagði hann, ég hef oft komið hingað, og ég elska vestfirðina.  Ætla núna að reyna að komast á bát á Patró.

IMG_6631

Ævintýrabörn, þau hafa svo sannarlega ýmsilegt að kenna samferðamönnum sínum þetta unga fólk.

IMG_6633

Þau voru búin að vera þrjá mánuði á flakki, í þetta sinn.  Og hver dagur með sínar áherslu.  Ég er alltaf glaður og kátur, sagði hann.  Það er alveg sama hversu dimmt er það er alltaf ljós einhversstaðar.

IMG_6634

Ég hef það á tilfinningunni að þetta sé stytta af Viðari Guðjónsen, heheheh... allavega forföður hans.  

IMG_6639

Dynjandi var sérlega glæsilegur svona snemma vors, vatnsmikill og tilkomumikill, og hér sjást allir fossarnir.

IMG_6646

Þegar við komum heim var sú stutta auðvitað á kafi í skápnum hehehe..

IMG_6648

Svo var verið að næra sig auðvitað.

IMG_6649

Þessi ömmustubbur í heimsókn.

IMG_6650

Hér er verið að spila.

IMG_6652

Ásthildur búin að klæða sig upp í Júróvisjónmúnderinguna.

IMG_6654

Hér er verið að horfa á Regínu Ósk og Friðrik Ómar.

Ég held að þetta hafi verið síðasta Júróvisjón keppnin í þessari mynd.  Það er fullreynt að þetta er ekki spurning um hæfni eða besta lag, heldur að veita sínum vinum flest atkvæðin.  Ég hef grun um að Bretar dragi sig út úr keppninni, og þeir eru jú ein af þjóðinni sem borgar herlegheitin.  Þjóðverjar hafa líka farið illa út undanfarið, og ætli þeir hugsi sig ekki til hreyfings líka.  Af hverju ættu þjóðir að borga keppnina sem hafa enga von um að vinna.   Þetta er eiginlega of langt gengið.  Og sumar af þessum þjóðum eru ekki einu sinni í Evrópu.  Sum fyrrum sovétríki meina ég. 

Annað hvort leggst þessi keppni af, eða henni verður skipt upp í austurevrópu og vesturevrópukeppi. 

Ég er alveg klár á því að þetta getur ekki gengið svona lengur.  Og það er í rauninni ekki hægt að hafa þetta svona lengur.  Því þetta er ekki lengur skemmtileg keppni, heldur pjúra hagsmunapot, og afgreiðsla eftir því hver á í hlut.  Og sigurvegararnir eru ekki aðilarnir sem halda keppninni uppi.  Svoleiðis er nú það.

En ég bið að heilsa ykkur og vona að ég geti bráðum farið að anda aftur.  þetta er rosalegt álag á mér þessa dagana, og ég vil þakka ykkur öllum kommentin ykkar og hlý orð.  Ég kann svo sannarlega að meta það, og það gefur mér mikið.  Takk fyir mig. Heart

Hér eru svo blómin min.

IMG_6615

IMG_6616

Og hún Elísabet frá Portúgal, sem er að aðstoða mig við að halda þeim fallegum. Heart

 


Kúlur og kúlubúar, útskrift sem skiptir máli og hið daglega veður.

Við fórum í mæðraskoðun í morgun og sónar.  Hér er nýjasti kúlubúinn.

Jorgita barn.

Allt í góðu lagi þar, og litli kúlubúinn hress.  sígur á sér þumalinn.  Heart

En veðrið í dag var líka frábært, og nóg að gera við að koma öllu í sem best horf fyrir sunnudaginn, ég er búin að ákveða að opna söluna kl. 1 á sunnudaginn, þ.e. 13.00  þá þarf allt að vera komið í lag.  En ég þarf að skreppa suður á morgun á fund, en keim svo heim aftur á laugardaginn.  Kemst sennilega í tæka tíð fyrir Júrívisjón.  Ég var reglulega ánægð með okkar fólk, og sérstaklega að þau skyldu komast áfram í aðalkeppnina. Enda voru þau flott.

 IMG_6555

Eins og sjá má var veðrið það allra besta.

IMG_6562

Ýmislegt brallað í garðskálanum.

IMG_6563

Þú átt að fara til ömmu !

IMG_6566

Æ Æ Æ

IMG_6567
Þetta risti nú svo sem ekki djúpt, því þessi er tekinn þrem mínútum seinna.

IMG_6569

Og Hanna Sól hjálpar afa að grilla.

IMG_6571

Meðan skottið leikur sér að hjólinu.  Greinilega búin að dýfa öðrum fæti í tjörnina.

IMG_6576

Þetta er svo frumskógur kúlunnar.  Þetta er risastórt svæði ef maður er mús LoL

IMG_6578

Afi ég vil fá spúnin á aftur ! Ég meiði mig ekkert.

IMG_6582

Ef maður væri indíjáni myndi maður örugglega beita stönginni svona.

IMG_6584

Já það er enginn spurning að enginn fiskur stenst svona handbragð.

IMG_6585

Maður getur líka miðað með einari Tounge

IMG_6586

Svei mér hún er eins og alvanur veiðimaður með spjót.

IMG_6587

Og plamms, örugglega fiskur á oddinum....

IMG_6588

En ég fékk heimsókn í dag, fyrst komu þrír ungir menn í heimsókn, sem vissu ekki að þetta var íbúðarhús,  en svo komu þessir stubbar, þeir voru í útskrift í dag, útskrifuðst úr leikskólanum og eru þar með orðnir grunnskólanemar frá og með næsta hausti. Aldeilis stórt skref.

IMG_6590

Amma sástu blómin á borðinu, ég kom við í dag, og þú varst ekki heima.  Ég ætla að gefa þér blóm, ég týndi þau alveg sjálfur.

Nei kvað við, vinir þínir hjálpuður þér. 

Já  hérna amma mín.

Mikið er maður glöð að fá svona falleg blóm, og sérstaklega þegar lítill... nei stór ömmustubbur tínir þau beinlínis til að gefa ömmu sinni. Heart

IMG_6591

Já þetta eru alvarlega þenkjandi ungir menn, með lífið allt saman framundan.  Stór áfangi í lífinu að hætta í leikskólanum og byrja alvöruna í grunnskóla.  Gangi ykkur vel drengir mínir. Heart

IMG_6603

Ég veit að maður á ekki að setja svona mynd inn, en þessi er bara svo frábær.  Ég vil vil vil, og ég vona að hún verði alltaf svona ákveðin, ungum stúlkum er það nauðsynlegt að vita hvað þær vilja og vera ákveðnar í að fá það framgengt.  Þannig komast þær til betra lífs.

IMG_6606

Jamm svona er þetta bara.

IMG_6610

Maður þarf ekki að hafa áhyggjur af uppvaskinu. 

En þetta er nú bara svona til skemmtunnar.  Ég verð ekki heima á morgun og lungan úr laugardeinum.  Svo ég bið bara kærlega að heilsa ykkur öllum.  Ég ætla að reyna að hvíla mig í bílnum á leiðinni suður, og fara snemma að sofa og .... og....

Ég segi bara góða nótt, og takk öll fyrir hvað þið eruð yndæl og góð við mig. Heart

 


Annríki og hið daglega veður á Ísó.

Vil byrja á að segja að í augnablikinu er allt brjálað að gera hjá mér.  Ég velt í rúmið á kvöldin og skondrast upp á lappirnar á morgnana.  En það er bara eins og það er alltaf á þessum tíma, nema núna er ég orðin þriggja barna móðir svona óforvarendis.  Ég þakka því daglega góðum vættum fyrir hana Jorgu mína, og að stelpurnar eru svo þægar, þó þær séu prakkarar, þá eru þær samt sem áður yndælar, og ég elska þær svo mikið.  Og auðvitað stubbinn minn, þau komu heim í dag, hann og Sóley Ebba og Eva Rut.  Þau fengu svo leyfi til að baka vöfflur, jamm, þau bökuðu vöfflur, og sitthvað fleira LoL Einhvernveginn komst deigið út á stétt, og svo þurfti að sprauta vatni úr garðslöngunni og sona, það var held ég mjög gaman hjá þeim.  W00t

IMG_6545

Það var sólskin í morgun, en svo komu smáský eftir hádegið, en það var samt hlýtt og gott veður.

IMG_6546

Greinilegt að gallerí himin er búin að opna aftur eftir vetrar hlé.

IMG_6547

Prinsessur þurfa líka að slaka á aðeins, þá er gott að geyma kórónuna svona baksviðsTounge

IMG_6548

Afi fór út, og litla skottið vildi endilega komast út líka.... en hurðin var lokuð.

IMG_6549

Stóra systir kom þá til bjargar, málið var bara að hún átti ekkert að komast út í þetta skipti, enda á sokkaleistunum.

IMG_6550

Pepsíið hennar Jorgu, það er gaman að sjá einbeitningarsvipinn á stelpuskottinu að reyna að opna.

IMG_6552

Gengur ef til vill betur svona !

IMG_6553

Ef til vill besta bara að biðja Jorgu að opna hehehehe..

 Annars fórum við á Thai Koon í kvöld að borða, ég nennti ómögulega að elda mat, þegar ég kom inn.  Það er gott og notalegt að borða þar. 

En nú er komið nóg hjá mér, ég sé rúmið mitt í hillingum, það er rosalega notalegt að skríða í ból, þegar maður er svona þreyttur. 

Ég segi bara knús á ykkur mín kæru, og endilega ekki gefast upp á mér, þó ég sé ekki mikið við.  Ég les svörin ykkar og þau veita mér orku og gleði.

Ég segi bara góða nótt á ykkur öll Heart Lofa að fara blogghringinn minn eftir helgi, kemst að öllum likindum ekki mikið í svoleiðis lúxus fyrr. 

 


Kúlan, lífið og tilveran.

Enn einn dýrðardagurinn, ég er alveg að verða búinn á því, það er svo rosalega mikið að gera, bæði í vinnunni og svo að reyna að koma garðplöntustöðinni í lag fyrir sölu.  Ég ætla að reyna að opna á sunnudaginn næsta, en á föstudag, þarf ég að fara suður á miðstjórnarfund hjá Frjálslyndum, svo ætla ég að aka heim á laugardaginn.  En þá þarf allt að vera klárt og kvitt fyrir opnun á garðplöntustöðinni, fólk er farið að verða óþreyjufullt eftir að kaupa sér plöntur, og margir koma og kíkja og forvitnast.  

Það ríkti reyndar sorg á þessu heimili í dag, því að lítill drengur aðeins tveggja ára í fjölskyldu Jorgu dó í nótt.  Það er hræðilegt þegar lítil börn deyja, áður en þau fá tækifæri til að verða almennilega til.  En svona er lífið, sumir ætla sér ekki langa vist á jörðinni.  Þessum lífsins táradal, við bara getum ekki séð það sjálf, því verðum við sorgmædd og grátum.  Vissuð þið að það er efni í tárum sem lækna ?  þess vegna er gott að gráta.  Það er eiginlega alveg hræðilegt að frjósa og geta ekki grátið, þegar sorgin ber að dyrum. 

Almættið leiði þessa litlu sál til himna, og verndi hana og blessi. 

IMG_6530

Þetta kallast fötuspilið LoL Nei reyndar er þetta fatan sem er svo spennandi að kíkja í, þar er allskonar smádót sem safnast fyrir í eldhúsinu.  Og svo er svo rosalega spennandi að vera upp á borði.

IMG_6533

Hér er hið daglega veður, ekki amalegt. Og bara svo hlýtt líka.

IMG_6534

Aumingja Hanna Sólin mín, í gær stakk hana bífluga, og í dag beit litla systir hana, en sem betur fer var amma búin að kaupa prinsessuplástra, það er mikil notkun á plástrum þessa dagana, skal ég segja ykkur.  LoL Sokkarnir eru frá Sigurjóni dag, en amma lofaði að kaupa bleika sollu stirðu sokka við tækifæri, og sollustirðu kjól og sollustirðu.... þá eiginlega hætti amma að hlusta og sagði bara já já, svo kemur í ljós hvað við báðar munum af þessum díl.

IMG_6535

Þessi mynd gæti heitið, sitt í hvorum heimi. 

IMG_6536

Og litla skottið prakkarast endalaust.

IMG_6537

Meðan sú stóra er voða settleg.

IMG_6538

Það er svolítið merkilegt að það skuli ekki vera hægt að kaupa svona boxerbuxur á stelpur, allar buxur eru skálmalausar, eins og þetta er mikið hlýlegra, en ég hef ekki fengið Hönnu Sól í þessar buxur,  af því að hún veit að þetta eru strákabuxur.... stráka og stelpu hvað !!!, En allavega sættist hún að að fara í þessar "stuttbuxur" LoL

IMG_6539

Svo þarf að passa upp á afaskyrið, að skæruliðinn taki það ekki af manni, og jafnvel helli því yfir hausin á sér... annað eins hefur nú gerst. 

IMG_6542

Hvað ætli þetta sé ?W00t

Nei ekkert eins og þið haldið hehehehehe

IMG_6541

Hún fór út í sandinn fyrir utan, og var ekkert nema sandur út úr og innúr, þessi pæja.

Annars fóru þau á leikskólanum í sveitina að skoða lömbin í morgun, það var aldeilis gaman. 

En nú eru allir farnir að sofa, og best að fara að halla sér líka, það eru erfiðir dagar framundan, ef mér á að takast að fara til Ungverjalands 2 júní, er eins gott að halda vel á spöðunum og skipuleggja hlutina vel og vendilega.  En karlakórinn er að fara þangað í tíu daga ferð ásamt mökum, og ég hlakka mikið til.  Jorga mín ætlar að sjá um krakkana, með hjálp barnanna minna. 

En ég segi bara góða nótt. Heart


Kúlulíf og daglegt veður.

IMG_6493Hið daglega veður og smá líf úr kúlúsúk.

IMG_6490

Tjörnin hefur alltaf sama aðdráttaraflið.

IMG_6503

Einhvernveginn hef ég á tilfinningunni að litla dýrið eigi eftir að fá sér óumbeðin sundsprett aftur LoL

IMG_6507

en það er nú öryggi að hafa stóra frænda við hliðina á sér.

IMG_6505

Afi er náttúrulega bestur.

IMG_6512

Alltaf þessir krakkar hugsar Brandur hehehe.

IMG_6514

Svo borðar maður afaskyr.

IMG_6515

Og fær sér tesopa með Jorgu.

IMG_6526

Strákar og kettir eiga ýmislegt sameiginlegt.

en svo er hið daglega veður.

Það var reglulega hlýtt í dag.

IMG_6496

Þessi er tekin í morgun, og þarna sést Ísafjarðarlognið mjög vel.

IMG_6518

Síðdegis gerði úrhellisrigningu.

IMG_6519

en það var líka sól, svo það myndaðist regnbogi.

IMG_6521

Lóðrétt rigning, eins og sjá má.

IMG_6528

En svo augnabliki seinna stytti upp.  Þannig er veðrið á Ísafirði.  Alltaf gott,, stundum aðeins betra, og svo bara allra best.

Eigið góða nótt elskurnar. Heart

 


Er þetta ekki hið besta mál ?

Smá sigur í öllu þessu virkjunarfargani.  Er ekki komin tími til að náttúran fái að njóta vafans.  Það sem eyðilagt er í svoleiðis framkvæmdum verður ekki aftur tekið.  Og alltaf minnkar ósnortið land í heiminum. 

Ég óska náttúruverndarfólki til hamingju með þennan sigur.  Þetta er áfangi, orusta sem vannst, en stríðið stendur enn. 

Mér finnst stundum eins og allt of margir vilji bara stundargróða, en sjái ekki þvílík auðævi geymast í náttúrunni og hinum ósnortnu víðernum.  Ég tók líka eftir að það var skipulagsstofnun sem sagði pass, meðan umhverfisstofnun gaf leyfi.   Fagra Ísland hvað ?

En ókey ég ætla ekki að vera með leiðindi.  Bara segja að ég er ánægð með þessa niðurstöðu, þó mér komi málið ekkert við annað en að vera íslendingur og þykja vænt um landið mitt, og trúa því að þegar fram í sækir, verði ósnortin náttúra meira virði en álver, og stóriðjur. 


mbl.is Bitruvirkjun út af borðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er að hlusta...

Á tvær bloggvinkonur mínar á Útvarpi Sögu.  Ákvað að taka matartímann aðeins seinna til að hlusta á Katrínu og Huld.  Það er gaman að heyra raddirnar. Flott viðtal.  Heart

Ef afi hefði ekki skrifað bréfið.......

Ég sagði ykkur frá mynd sem ég hef í fórum mínum, frá henni Guðríði Þorsteinsdóttur.  Þar sem hún gefur afa mínum mynd af sér.  Falleg ung kona.

Guðríður

Þessi mynd hefur svo svifið fyrir augnskotsjónum mínum síðan, og smátt og smátt hefur það runnið upp fyrir mér, að þarna hefur ef til vill ekki munað svo miklu að ég yrði ekki til.  Hvað þá öll þessi dásamlegu barnabörn mín.

Þarna stendur nefnilega skrifað;

Þessa mynd á Hjalti C. Jónsson með rjéttu gefin af Guðríði Þorsteinsdóttur 1921.

Málið er að það hefur örugglega ekki verið neitt svona algengt að ungar konur gæfu ungum mönnum mynd af sér upp úr þurru, og heldur ekki áritaðar.  En af hverju amma geymdi hana, veit ég ekki.  Málið er að mamma mín fæddist ekki fyrr en í október 1922, svo afi hefur þess vegna getað verið á lausu þegar myndin var gefinn.  Eða jafnvel að þau hafi átt í ástarsambandi áður en amma klóaði í hann. 

Ef síðan þetta er rétt hjá mér, þá hefur nú ekki munað miklu að mamma mín hefði ekki fæðst, og síðan ef hún hefði ekki fæðst, þá hefði hún örugglega ekki hitt pabba minn á þessari pláhnetu á þessum tíma, og fætt mig, eller hur ?

Þannig að þessa mynd ber að geyma og sýna tilhlýðilega virðingu.  Ef til vill hefur amma geymt hana sem einskonar trófý hehehehe.... yfir sigruðum keppinaut.  En svona má auðvitað ekki tala um nafngreint fólk.  Ég er líka með aðra mynd af henni þar sem hún er orðin virðuleg frú með börn, svo það hefur greinilega verið vinskapur milli þessa fólks.

Konur úr djúpinu2

Aftan á henni stendur Frú Guðríður Þorsteinsdóttir Flateyri.  talan 40 og 2. kort.  Gaman ef einhver þekkir hana og börnin á myndinni.

 

Ég segi þetta nú bara til gamans, svona á góðum sunnudegi, þegar veðrið er fallegt, lóðréttur rigningarúði, svona vorkoma eins og hún best getur orðið.

Eigið góðan sunnudag mín elskuleg. Heart


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband