Færsluflokkur: Bloggar
4.9.2008 | 12:10
Fermingarbörn Ísafirði, fædd 1944.
Kæru fermingarsystkini mín, nær og fjær. Eins og þið hafið vonandi öll frétt, þá ætlum við að hittast á 50 ára fermingarafmælinu okkar, hér á Ísafirði þann 13. September. Okkur hér fannst að það væri ekki hægt annað en að hittast á þessu merka ári. Og það gafst ekki tími í vor til að vinna að þessu. Við höfum svo nokkrar tekið okkur saman um að koma þessum hitting á núna í haust. Þ.e. Ég, Dísa, Þorbjörg, Ásgeir, og svo Guðjón Arnar og Maggi Reynir sem hafa hjálpar til og Óli Halldórs.
Meiningin er, að hittast um eitt leytið upp á bókasafni, gamla sjúkrahúsinu, ganga þaðan um bæinn okkar, fá að skoða kirkjuna ef einhver vill, og ef einhverjar aðrar óskir berast, verður reynt að verða við því. Síðan munum við öll fara til Óla Halldórs, og spjalla saman, þar verður eitthvað gott í boði, síðan verður matur að hætti Magnúsar Haukssonar í tjöruhúsinu kl. sex um kvöldið. Magnús er orðin þekktur langt út fyrir landsteinanna með sína frábæru fiskirétti og fleira. Ég þarf að fara að gefa honum tölu í hve margir ætla að mæta. Svo ég vil biðja þau sem lesa þetta, að koma til mín upplýsingum um þátttöku, eða til Tobbu eða Dísu.
Hér er ein mynd af okkur, við gamla barnaskólann, með kennurum.
Þessi var svo tekinn á síðasta hitting í krúsinni, fyrir fjórum árum síðan. Hér með mökum.
Það var rosalega gaman, og vonandi komast sem flestir til að taka þátt í gleðinni með okkur. En endilega látið vita.
Með bestu kveðjum Ásthildur.
P.S. það eru laus sæti í tveimur bílum vestur á föstudagskvöldið, og heim aftur seinnipart á sunnudegi, ef einhver vill nýta sér það, þá er bara að láta vita.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
2.9.2008 | 20:52
Það er leikur að læra.
Allt gengur sinn vanagang hér.
Á leikskólanum í gærdag.
Já sú stutta vill mikið vera á höndum.
en það er gaman á leikskólanum.
Afi hér eru gleraugun þín !
Litla skottið er uppi fyrir kl sjö, en sú eldir vill gjarnan sofa lengur. Hér er hún kominn upp í prinsessurúmið að reyna að vekja stóru systur.
Það tekst nú á endanum. En ekki alveg strax.
Á kvöldin þarf svo að bursta tennurnar, og auðvitað ennibein og auga, nebbi, flipi, munnhola, hökuskegg, og hálsakot
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
1.9.2008 | 12:48
Smá krúttfærsla fyrir mömmur.
Þá er víst komin tími á smá krúttfærslu.
Úlfur er ótrúlega duglegur að hjálpa til með stelpurnar.
Og þær elska hann út af lífinu.
Hann tók einmitt þessa mynd af Ásthildi, hún er óútreiknanleg með hvað henni dettur í hug
Hér situr hún á tjarnarbrúninni,
Afi og Hanna Sól, góð saman.
Fín og flott eins og venjulega.
Amma sjáðu hvað ég get!!!
Grallararnir.
Hanna Sól er að verða svo stór stelpa.
En sú stutta vill bara prýla.
Eitt enn sem skilur systurnar að. Ásthildur vill kjöt og fisk, en Hanna Sól elskar ávexti og ber. Her hefur afi klippt fyrir hana niður vínberjaklasa, sem hún át með bestu lyst.
en Úlfur er að smíða sverð, með stuðningi frá afa.
Járnið er hamrað.
Og afi er vinsæll.
Hér er baby born komin úr baði.
Og systurnar fóru svo í heita pottin í gær, því veðrið var svo gott.
Það var gaman.
Og mín að verða tilbúin í holuna sína.
Sérkennileg birta, meðan sólin er að brjótast fram.
Þessi var svo tekinn áðan, sólin er að brjótast fram líka núna. Eigiði góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
31.8.2008 | 14:36
Mýrarbolti - taka tvö.
Ég lenti í smáævintýri í gær, alveg óvænt. Ég heyrði sum sé í fréttum að fólk var hvatt til að mæta inn í Tunguskóg, til að vera statistar í mynd sem bretar eru að gera um mýrarbolta. Ég hugsaði með mér að það væri gaman að taka nokkrar myndir á bloggið mitt, Ásthildur var nýsofnuð, og ég bað Úlf að hlusta eftir henni fyrir mig, meðan ég skryppi smástund inn í skóg.
En þegar ég mætti á svæðið, voru ekki margir komnir, ísfirðingar eru oft dálítið seinir á sér, og sumir feimnir, það var til dæmis fullt af fólki í berjamó hinumegin við ána, þar sem sást vel yfir En sum sé, þar sem svona fátt var, og mikið stóð til, endaði með því að ég slóst í hópinn, og tók þátt í öllu saman.
Það var reyndar alveg rosalega gaman.
Það fyrsta sem ég sá voru tveir slökkviliðsbílar á bólakafi í grasinu. Þeir höfðu verið kallaðir til, til að sprauta vatni yfir mýrarboltasvæðið. Eins gott að ekki kviknaði í einhversstaðar nákvæmlega þarna.
Strákarnir við pollinn voru svo að heilgrilla læri ofan í mannskapinn. nammi namm.
Bílliinn á kafi, byssan spennt, og auðvitað er þarna gott útsýni til myndatöku.
Klappstýrur voru þarna auðvitað, og svo Hálfdán Bjarki sem var einn af aðalkörlunum þarna, enda er hann upplysingafulltrúi bæjarins og þar að auki vanur mýrarboltamaður.
Skólabróðir minn hann Magni mættur líka í stígvélum, vanur maður.
Hér átti að fara fram heimsmeistaramót í Mýrarbolta, milli Íslendinga og Tékka, hér eru tékkarnir, einhver gárunginn sagði að hluti af þeim væru gúmmítékkar, því þeir fengu lánaða þrjá ísfirðinga
Það liggur mikil vinna á bak við svona mynd. Ég held að þetta sé stuttmynd, og verði sýnd á BBC world.
Það þarf að huga að ýmsu, og mikið um að vera hjá leikstjóra og framleiðanda.
ég held samt að þeir hafi gleymt að tala við álfana og huldufólki í dalnum, því marg gekk á afturfótunum til að byrja með.
Hér er tékkneskaliðið komið í búningana sína.
Málið er að við áttum að ganga á eftir leikmönnunum að leikvangnum, en fyrst átti að sprauta í fallegum boga vatni yfir leikvanginn. hehehehe... en málið var að úðinn fór yfir okkur öll hin, hér eru menn að forða sér undan vatninu.
En það tókst svo að lokum að sprauta á leiksvæðið en ekki fólkið.
Her er myndin svona í þverskurði. Það er maður sá sem þarna tekur myndina, sem vinnur verðlaun í ljósmyndasamkeppni á mýrarbolta.
Jæja þá fer að koma að því að fara ofan í drulluna.
Bæði liðin komin á sinn stað.
en fyrst var boðið í hádegismat.
Og fólk var orðið svangt. Þetta var ævintýri út af fyrir sig.
Og svo þurfti að koma bílunum í burtu, það var minna mál, þegar þeir höfðu tæmt 2000 lítra af vatni.
Og gekk bara nokkuð vel.
Áhorfendahópurinn var líka fjölþjóðlegur. Og það var reyndar komin ágætis stemning í mannskapinn þegar hér var komið sögu. Allirsem einn maður, bæði leikarar, leikumsjónarmenn og ´horfendur.
Það hafði líka fjölgað í áhorfendaskaranum.
Veðrið var líka gott hlýtt og logn. Hér er verið að instructera mannskapnum.
Og dómarinn komin út í drulluna Þetta er reyndar yfirmaður tæknideildar bæjarins.
Sómir sér vel þarna í drullunni.
Og hefst þá leikurinn, ég held að þeir hafi bara átt að leika smástund, en það voruallir svo spenntir, bæði leikendur og áhorfendur, að þeir léku fullan leiktíma, ótrúlegt alveg.
Það þarf endalaust að vera að skoða og athuga, næsta skref er svo sjálfur leikurinn.
Þeir voru ekki með neitt stíft prógramm eða handrit, hvað eigum við að gera næst, sögðu þeir. En í staðin fá þeir örugglega skemmtilegri og líflegri myndskot.
Hér er svo einn af leikendum framtíðarinnar. Pabbi hans var ansi vel liðtækur í slagnum.
Já svona á að gera þetta !
Og þá er drullann á fullu.
Slagurinn byrjaður.
Viðbúnir tilbúnir nú.
Íslendingarnir.
Fyrsta markið varið.
Og spenna komin í leikinn.
Hér er varið hjá tékkunum.
Og eins og sjá má, er hiti í mönnum.
Oh boy!
Örtröð við markið.
Maður og bolti.
Stundum var erfitt að greina boltan
Og smátt og smátt runnu jafnvel leikmennirnir saman við drulluna.
Ótrúlegt að horfa á þetta.
Og ef maður spáir í orkuna sem fer í þetta. Það er ekki nema fyrir fílhrausta menn og konur að spila þennan mýrarbolta.
enda var farið að draga af mannskapnum undir það síðasta.
Þetta er sko ekki auðveldasta sport í heimi.
Enn og aftur maður og bolti
Og maður á mann
Leikurinn endað svo 1x1, jafntefli. Og mennirnir gjörsamlega uppgefnir, því í mýrarbolta, skipta menn út reglulega í liðunum, þar sem þetta reynir svon mikið á. En hér var engu sliku til að dreyfa.
Svo ef til vill hefur hér verið slegið heimsmet í úthaldi í íþróttiinni, hver veit?
Leiknum lokið, og mennirnir komnir á land. Pása fyrir tökulið og leikendur, áhorfendur farnir að mjaka sér heim, og tími á mig að koma mér heim til minna unga. En mikið var þetta annars skemmtilegt, ef ég hefði vitað að ég ætti eftir að standa framan við myndavélar, hefði ég örugglega sett á mig smá málningu og allavega greitt á mér hárið en auðvitað þarf líka skessur í svona viltar myndir.
Annars takk fyrir mig og takk fyrir skemmtilegan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
30.8.2008 | 13:48
Gott veður á Ísó, og gott líf í kúlunni.
Það er dýrðar dagur í dag, milt og hlýtt veður, sólin svona við að brjótast fram.
Ég brá mér í bíó með stubbnum í gærkveldi til að sjá Mamma Mía, og ég sé ekki eftir því. Þetta var held ég sýning númer fimm hér og það var allt uppselt, sumir voru að fara í annað og jafnvel fjórða skiptið. Enda stemningin algjör. Það voru vídeóupptökur af Abba, bæði fyrir sýninguna og í hléi, svo fólkið var orðið vel upphitað fyrir sýninguna. Þarna voru margar eldri konur eins og ég, og allt niður úr. En karlmenn líka. Ég held að það sem geri útslagið með vinsældir þessarar myndar, er einlægnin og leikgleðin í aðalleikurunum öllum. Þau bókstaflega virðast elska að vera þarna með. Og Meril Streep Vá þvílíkur leikur, og gleði. Brosnan var líka flottur, mér fannt hann töff að syngja svona, og ég sá í augunum á honum að þau gneistuðu af kæti, meðan hann var að syngja. Þetta skilar sér alveg fram í kvikmyndahúsin og til áhorfenda. Svo hef ég líka grun um að við þessar eldri, höfum gaman af að sjá að eldri konur geta verið aðal, og bæði töff og töfrandi. En mér finnst hafa verið valin maður í hverju rúmi, og heildin þess vegna svona óskaplega skemmtileg og góð.
En að kúlúbúum.
Við vorum með spaghetti í gær, krakkarnir elska svoleiðis.
Tóm sæla tíhí..
Og maður þarf nú ekki hnífapör í svona mat sko!!!
En prinsessur eru nú settlegri..... eða þannig.
Og Úlfur "stóri bróðir" er mjög duglegur við að hjálpa ömmu með stelpurnar.
Hanna Sól er hér í bókmenntunum, þetta er reyndar ein af uppáhaldsbókum Úlfs, ásamt heimsmetabók Guinnes.
Hér grípur hann aðeins niður í píanóið, en trommurnar eru hans aðall.
Lillan horfir á sjónvarpið með athygli.
Afi greyið þarf að fara að skola sótið úr kajakgallanum sínum, og Úlfs. Sem betur fer slapp allur þeirra búnaður í brunanum.
Af því að haustið er að koma, er ekki úr vegi að fá nokkrar blómamyndir.
Rósir hafa aldrei verið fallegri en í sumar.
Hvaða fallega blóm skyldi þetta nú vera.
Jú bara venjuleg kartafla, ekkert flóknara en það.
ég get svo svarið það sem þessu barni dettur í hug, þetta gerði hún alveg sjálf, og þóttist sofa, bara leikaraskapur í litla grallaranum.
En afi gefur prinsessunni blóm.
Ó svona falleg Havaírós.
Hún þarf auðvitað að fara í hárið.
En veðrið er yndislegt, þó ekki sé full sól. Eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
29.8.2008 | 17:03
Lognið er að flýta sér í dag.
Veðrið var kolvitlaust í morgun, þegar við fórum á leikskólann. En það er orðið betra núna, hefur lægt heilmikið og steinhætt að rigna.
Já himininn var dálítið ógnvænlegur í morgun ekki satt ?
Þessi var reyndar tekin seinnipartinn í gær, sjáið birtuna, hún er mjög sérstök.
Minnir mann hálfgert á tröllasögur.
En svona er náttúra íslands, óbeisluð, og óviðjafnanleg.
Ekki algeng sjón hér, hvítfryssandi haföldur.
Og allir fuglarnir komnir á land. Eða að láta vindinn bera sig. Einn sem ég mætti átti í erfiðleikum með að fljúga gegn vindinum frá bílnum mínum. Ég varð að hægja á mér svo hann kæmist framhjá.
Já þeir eru allir sestir upp blessaðir.
En Hanna Sól og Ásthildur atidur, eins og hún segir sjálf, fóru til berja í gær, í yndælisveðri, og týndu nokkur krækiber. Og svo var borðað, og Sigurjóni boðið að borða líka.
Annars er góð saga að grallaranum Ásthildi frá leikskólanum. Í gær þegar ég sótti þær, var forstöðukonan alveg miður sín, þá hafði sú stutta skriðið upp úr vagninum þegjandi og hljóðalaust, hún var bæði bundinn niður í vagninn og svo með hljóðtæki. En allt í einu var hún bara komin út á tún. Þær spurðu mig hvort ég vildi að hún svæfi inni til öryggis, en ég taldi það ekki þurfa. Okkur fannst skrýtið hvernig hún gat losað sig úr vagninum, því það virtist ekkert hafa opnast.
Í dag, sagði forstöðukonan mér að vegna roksins þá svaf hún inni, og þær horfðu á hvernig hún smokraði sér úr beltinu, án þess að opna það og án þess að gefa frá sér nokkurt hljóð. Amma verður því annað hvort að kaupa nýtt beisli, eða láta hana sofa inni. Hún algjör prakkari.
Þessi var svo tekinn í morgun. Ásthildur er ekki að gráta vegna þess að hún vilji ekki fara á leikskólan heldur á ég að halda á henni hehehe.... Hin er svo að pósa í prinsessukjólnum sem hún fékk að fara í í morgun á leikskólann.
En sum sé veðrið er orðið bara nokkuð gott hér. Og vonandi allstaðar annarsstaðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
27.8.2008 | 13:49
Every time you say good bye, I die a little.
Hér er hún Solla stirða í allri sinni dýrð.
Ömmustelpan mín er nú ansi lík henni Sollu stirðu, með þennan lit og klippingu.
Krakkarnir og kisa. Það er sorg í hjarta mínu, því dóttir mín er farin suður, til að læra undir próf, síðan liggur leiðin hennar til Vínar, þar sem hún sest á skólabekkinn. Litlu stelpurnar hennar eru hér, og það hefur ekki verið auðveld kveðjustundin. Ég er líka í sárum, því ég á afskaplega erfitt með kveðjur. Í hvert sinn sem einhver kveður deyr einhver hluti af manni. En nóg um það. Ég næ mér fljótlega. Gat ekki skrifað neitt í gær, var of aum til þess.
Brandur er allavega glaður að fá frið á heimilinu fyrir þessu litla skrímsli, sem sífellt var að bögga hann. En hann hafði hina mestu skömm á, og var jafnvel hræddur við til að byrja með.
Heimilislífið dottið í sama farið, að fá afa í mat á sunnudögum.
Þessi ágæta kona, sem mér var sagt að væri bæjarstjóri, minnir í Nanortalik, kom og keypti hjá mér plöntur, hér er hún að leggja af stað út á völl, með fríðu föruneyti og blómin frá mér, til að fljúga beint heim til sín. Þar dafna blómin vonandi vel.
Ballerínan og riddarinn, eiga vel saman.
Með allt á hreinu.
Og hér er svo litla Heidy, en hún var eins og allir vita frá Austurríki.
Svo er auðvitað tekið til að að skoða gamla dótið upp á nýtt.
Prinsessur þurfa líka aðeins að sinna þeim málum.
En góða veðrið er ennþá hér. Milt og lygnt.
eins og sjá má.
Húsin í bænum standa gjarnan á haus.
Nýlega bættist í flota ísfirskra bátaeigenda. Þessi skúta er bæði afskaplega flott og kostar ekkert smá skilst mér.
Til lukku með hana Rabbi.
en það gerðist líka dálítið dapurlegt, þegar kviknaði í aðstöðu Sæfara, og margir kajakar eyðilögðust í eldi. Og húsið stórskemmdist líka. Aðstaða þeirra kajakmanna.
Lögreglan og eigandi að átta sig á aðstæðum. Sannarlega sorglegt mál. En vonandi verður þetta allt byggt upp aftur, og vonandi hafa kajakarnir verið tryggðir. Sem betur fór slapp minn karl við skemmdir á sínum kajak. En aðstaðan þeirra er mjög skemmd.
Vil óska þeim góðs gengis við endurbygginguna.
en kúlan er enn á sínum stað og þeir sem þar dvelja oft og lengi.
Litlu grallararnir mínir þar á meðal.
Þetta er miljón króna svipur á Evítu, hún er ótrúleg með svipbrigði stelpan sú.
Og svo eru þær alveg að fara að tala, það koma orð og stundum heilar setningar hjá Evítu.
Jamm grallaraspóar
Og Hanna Sól verður örugglega fyrirsæta.
Aríel litla er algjörlega hlutlaus, og búin að finna sér verðugan andstæðing
Svo fékk hún rúm, eða hún fann það eiginlega alveg sjálf.
Í nýja prinsessuherbergi heimasætunnar Hönnu Sólar.
Og veðrið er ennþá gott.
Hér er svo elskuleg fyrrverandi nágrannakona mín hún Magný. Þau búa núna úti á Spáni, í Andalúsíu, þar sem þau leigja út íbúðir Competa, Perla í fjöllum Andalúsíu, það er hægt að hafa samband við þau á www.competa.is, ef þið viljið ferðast til Andalúsíu og leigja ykkur íbúð á fögrum stað, ég var að skoða myndir. Er ákveðin í að bregða mér þangað fyrr en seinna, og ryfja upp skemmtileg ár með þeim hjónum sem nágrönnum mínum.
Þá er allt að verða klárt fyrir brottför. Síðustu mínúturunar fara í að sitja með foreldrum sínum og fá sér kaffisopa á uppáhaldsstað okkar, fyrir framan kúluna.
Og Kay hjálpar til. Hann er svo duglegur drengur og góður hann fer að byrja í skólnum í Austurríki.
Og þá er allt orðið klárt að leggja í hann. Góða ferð elsku barnið mitt, og knús þangað til við sjáumst aftur. Ég ætla að gæta litlu englanna þinna eins vel og ég get.
Og hér eru aðrir farfuglar að tygja sig til heimferðar. Þeir fara líka fljúgandi, eru farnir að hópast saman, en þeir fara gjarnan margir saman. Í augnablikinu eru þeir innan um fjárhóp, og virka svipað stórir, þetta sumar hefur því verið þeim gott og gjöfult af mat.
eigið góðan dag elskurnar mínar og takk fyrir hve þið eruð góð við mig endalaust.
Bloggar | Breytt 28.8.2008 kl. 21:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
27.8.2008 | 03:34
Heimkoma.
jamm hér eru ferðalok.
Kcöldið er fagurt.
Sól er sest og sefur fugl á grein.
er þetta ekki rómó?
Og afi les fyrir börnin.
Svo þarf að þvo sér fyrir svefninn ekki satt?
Annars getur maður nú brosað að þessu öllu saman.
Grallaraspóarnir nammi namm gosdrykkur. Ætlarðu að klára þetta allt ?
Nei þú mátt líka fá sopa.
E það er betra að fá bara glas.
Borðið þér orma Frú Norma ?
Aha kettlingurinn, amma viltu ekki taka við honum.
Það er reyndar ágætt að hvíla sig í kattarsandinum.
Og jamm hér horfðu allir á ólympíuleikana.
Hver segir að kisur og börn eigi ekki vel saman.
Nú eða Eyrnaslapi, það má pakka honum inn í rýjur, svona til tilbreytingar
Umm sítrúna er súr !!!
Leyfðu mér... ég vil smakka.
Umm kisi kiss, fáðu þér mjólk
Sona sona, hér er mjólkin'
Best að klára þetta.
Strákar geta lika elskað ketti
Og svo var dansað, þetta var síðast kvöldið, hér er hann Erik frá Maríubakkannum á útopnu.
Og hann fríkar út, þessi elska.
Sumir létu sér nægja að dansa við mömmu
Nú eða ömmu
Og það er fjör!!!!
Jamms það var dansað upp á dekki,
Já allir voru að dansa upp á dekki !!!
Já systir Eriks frá Maríubakka, með kisu hana Aríel.
Amma og afi eftir allt fjörið.
Úbbs hvar er kisa?
Hér erum við á leiðinni heim, Dynjandinn er glæsilegur foss.
Og svo stoppuðum við auðvitað á Hrafnseysi, bústað Jóns Sigurðssonar.
Og fengum þar góðan viðurgerning, kaffi, kakó vöfflur og rjóma, svei mér þá.
Þarna er svo auðvitað minjasafn um kappann.
Pottur á hlóðum.
Þessa fallegu kirkju átti að rífa, það var byggð kapella inn í húsinu, en sem betur fer dróst að rifa hana, þangað til lög sögðu til um friðun, og hér stendur hún enn, þetta gamla kirkjuhús.
Hún er líka falleg og hlýleg að innan.
Og sjálfsagt hefur verið gott að ylja sér á ofni, þegar kalt var úti.
Hrafnseyri, þaðan sem okkar sjálfstæðishetja kemur Jón Sigurðsson. Og Ketildalirnir í rigningu.
Litla skottið finnur sér ýmislegt til að skoða.
Vertu sæll Jón Sigurðson.
Amm og farið yfir Hrafnseyrarheiðina, sem er ógnvænleg, get ég sagt ykkur.
Og hér er drottning, sem betur fer ekki sú danska, því þó hún haldi á sigarettupakka þessi drottning, þá talar hún frekar í síma en að reykja líkt og danadrottninginn.
En þetta svona dekkar vikuna mína, og ég segi bara góða nótt og dásamlega drauma elskuleg.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
26.8.2008 | 10:37
Ævintýralandið.
Það kom dálítið skemmtilegt upp á hjá mér núna. En ég var með hugleiðingar á blogginu hennar Hnetu bloggvinkonu minnar, þar sem hún var að tala um að hún hefði verið að kaupa miða á leikrit vetrarins fyrir sig og sína. http://hneta.blog.is/blog/hneta/ m.a. að hún ætlaði að sjá Skilaboðaskjóðuna, ég sagði við hana, að ég hefði einmitt samið leikrit fyrir nokkrum árum, thema sem skilaboðaskjóðan byggir á.
Forsaga málsins er sú, að fyrir mörgum árum, var ég með leiklistarkennslu í Grunnskólanum á Ísafirði, í samstarfi við Litla Leikklúbbinn, við höfðum themað ævintýrin og ofbeldið í þeim. Upp úr því samdi ég þetta leikrit, þar sem tveir menn detta ofan í ævintýralandið, annar er jákvæður og hinn neikvæður, þeir sjá svo hvert ævintýrið á fætur öðru, en það er búið að breyta þeim, þannig að ofbeldið er að mestu tekið út. Það var virkilega gaman að vinna með krökkunum, við settum þetta svo á svið og sýndum í Grunnskólanum. Við sendum þetta svo inn til Bandalags ísl. leikfélaga, og þar gleymdi ég því alveg, þangað til í fyrra að það var haft samband frá grunnskólanum á Borgarfirði eystri, og spurt hvort þau fengju leyfi til að setja upp leikritið mitt. Sem var auðvitað auðsótt mál, og ég auðvitað mjög montin. Þau höfðu svo samband aftur og vildu fá eitthvað í endirinn, það varð út að ég setti saman texta við gamalt lag sem lokalag. Þetta rifjaðist svo upp fyrir mér, þegar Sigrún Hneta, fór að tala um Skilaboðaskjóðuna, sem kom svo síðar. Og ég fór að skoða hvað hefði nú orðið af þessu skemmtilega afkvæmi mínu. Og viti menn, þarna var umsögn og myndir.http://www.leit.is/thjonsla/go.aspx?r=le&url=http://www.google.com
Þetta er örugglega vonda drottningin í Mjallhvít og dvergarnir sjö.
Þetta eru nú sennilega Aulabárður og bræður hans.
Nornin í Hans og Grétu.
Rauðhetta, amma og Úlfurinn.
Hér gæti svo verið lokasöngurinn.
Því miður á ég engar myndir af okkar uppsetningu, það væri gaman ef einhver, foreldri eða aðstandendur hefðu mynd af henni í fórum sínum til að leyfa mér að sjá. En ég vil bara vona að krakkarnir á Borgarfirði eystri hafi haft jafn gaman af að setja þetta upp og við hér hinum megin á landinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
25.8.2008 | 20:25
Hin forvitnilega Flatey.
Já við fórum með Baldri yfir til Flateyjar, ég hafði aldrei komið þangað áður, en hafði lengi haft áhuga á að skoða þessa eyju. Hún er sérstök fyrir margra hluta sakir. Í dag eru þar tveir ábúendur, bændur örugglega sjálfþurftarbændur, með kindur og hænsni. En þarna erum mörg falleg hús og vel við haldið. Miklu meiri byggð en ég bjóst við. Þarna eiga menn sumarhús, og margir dvelja þarna sumarlangt. Mér var sagt að þegar kvikmynd Baltasar var gerð þarna var gengið í að fá Gemsasamband þangað, en íbúar voru víst ekki hrifnir af slíku. Og ekki vel séð að menn tali í þau tól í miðbænum.
Hér er verið að fara um borð. Vestfirðingar fá sérkjör á bátinn.
Hér eru unglingarnir okkar. Þetta var síðasta ferð sumarsins, þar sem báturinn siglir tvisvar yfir Breiðafjörðin, það voru því síðustu forvöð að dvelja þarna milli ferða.
Það þarf að fylgjast með fuglum og svoleiðis.
Okkar erlendu vinir, Kaj frá Austurríki og Leon frá Þýskalandi. Þeir skemmtu sér ekki síðu en hin börnin.
Það er gott að sitja hjá mömmu, þar er öryggið.
Þúsund eyja klasi, sem ekki er hægt að telja. En fallegt er hér.
Sumir voru nú samt dálítið sjóveikir.
Og svo var komið í Flatey og nú var bara að ganga á land.
Aðalgatan í átt að þorpinu.
Læknishús stóð utan á þessu húsi, og þarna má greina sultukrukkur sem voru örugglega til sölu.
Hér eru engir malbikaðir breiðvegir, heldur svona slóðar, alveg eins og fólkið hér vill hafa það.
Íslenskar hænur á vappi. Allt svo frjálslegt og notalegt hér.
Sumir eru einfaldlega prinsessur, og prinsessur þurfa að halda uppi kjólfaldinum, þegar þær vaða yfir polla Það er örugglega meðfætt.
Og meðan sumir príla...
Vilja aðrir sulla.
Og nóg um að vera fyrir ærslafulla krakka.
En prinsessur eru líka alltaf settlegri...
Já það var margt um að vera.
Og börn eru alltaf svöng á ferðalögum ekki satt?
Ömmur líka
Svo er gott að leggja sig aðeins eftir matinn.
Hún er alveg eins og amma sín, öll í grjótinu.
Það eru mörg falleg hús hér eins og ég sagði áðan, og öllum vel við haldið.
Hér er hótelið þeirra kaffihúsið og barinn.
Það var líka farið í kirkjuskoðun.
Bátar eru auðvitað lífsnauðsyn í Flatey.
Og heimurinn getur virkað ógnarsmár, meira að segja miðað við lítið kríli.
Kirkjan er fallega skreytt af Baltazar Samper.
Bæði altarið og kirkjuskipið.
Trú von og kærleikur heita þessir bátar.
Og ekki fer maður svo í Flatey að maður skoði ekki bókhlöðuna.
Og Flateyjarbók.
Hér er líka teikning af eyjunni frá árinu 1906.
Safnahúsið er eins og sjá má, risasmátt.
Það er komin tími til að halda af stað niður á bryggju.
Farartækin hér eru af ýmsum stærðum og gerðum.
Eins og sjá má.
Já þau eru líka mis afkastamikil.
En það er nú bara eins og það er.
Hér er meira að segja bíll.
ég hugsa að þessi skreiðarhjallur og fiskurinn á honum, sé bara mjög stór á Flateyskan mælikvarða. Þ.e. miðað við höfðatölu.
Og svo er komið niður á bryggju.
Hér er beðið eftir bátnum.
Og sumir orðnir lúnir.
Það var múgur og margmenni á bryggjunni, þegar skipið kom.
Flatey kvödd með virktum.
Og gamli vitinn lýsir leið.
Og það er notalegt að setjast niður og fá sér eitthvað í gogginn eða bara horfa á barnaefnið í sjónvarpinu. En sumarbústaðarlífið heldur áfram.
Þessi er fyrir Kiddu mína.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 2023304
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar