Færsluflokkur: Bloggar
12.9.2008 | 21:43
Á morgun er hittingurinn, fermingarbörn 1944 á Ísafirði.
Á morgun hitti ég fermingarsystkini mín, og ætla að eyða með þeim yndislegum degi. Og ég hlakka til. Ég var nú aldrei neitt sérstök í mínum árgangi. Slapp þó við einelti, en það voru margir rosalegir töffarar í árgangnum, enda hafa þeir margir orðið framarlega í þjóðfélaginu. Það er alltaf sagt að það verði gæðingur úr göldnum fola. En eftir því sem árin líða, þá einhvern veginn þykir okkur vænna hvort um annað, og það er lagt meiri rækt við þau sem á einhvern hátt urðu útundan. Já þannig er það bara. Fólki líður ekki vel með það að hafa útilokað einhvern, og það situr ekkert síður í þeim sem það gerðu, en þeim sem urðu fyrri því. Þess vegna eru svona hittingar mikilvægir, og ekki minna mikilvægt að sem flestir mæti, og sérstaklega þeir sem urðu út undan allavega að þeirra mati. Því þeir munu finna að þeir eru meðteknir með auknum þroska. Það er líka mikilvægt að við leyfum mökum okkar að taka þátt, og vera í hópnum, að þeir séu velkomnir, rétt eins og hinir. Í okkar hópi hef ég heyrt, að sumir makar séu jafnvel jafn spenntir að hitta félagana eins og skólasystkinið. Það er gott, og þroskandi. Því þegar við veljum okkur lífsförunaut, þá er það fyrir lífstíð, og engin ástæða til að hann komi ekki inn í svona hóp.
Hér ætlum við að hittast kl. eitt á morgun. Það er svo ekkert afráðið um framhaldið, nema við ætlum aðeins að rölta um þessa fallegu byggingu, sem sum okkar allavega eru fædd í. Síðan annað hvort rölt um bæinn, eða fáum rútu, fer eftir veðri. Svo hittumst við hjá Óla Halldórs, og þiggjum góðar veitingar, og svo verður stefnan á besta matsölustað sem finnst, til Magga Hauks í Tjöruhúsið.
Víu þetta verður gaman.
Veðrið er ennþá hlýtt og milt, og vonandi verður það svoleiðis á morgun.
En fjölskyldan mín frá El Salvador bauð okkur í mat í kvöld, vegna afmælisins. Þau eru svo yndæl. Svona í framhjá haldi, þá er dálítið vesen því þau fá ekki eitthvað svar frá El Salvador, og hafa þess vegna ekki fengið ríkisborgararétt. En ástandið í El Salvador er rosalegt, mafían tröllríður öllu, dóttir Pablo og hennar maður lentu í því um daginn, að mafían kom heim til mannsins, sem ekur rútu, þeir báðu hann að aka sig á einhvern stað, þar var byssan tekinn upp, og öllu rænt af honum, veskinu, peningum, meira að segja giftingarhringnum, og honum sagt, að ef hann segði lögreglunni frá, myndu þeir koma aftur, og drepa börnin. Þessi dóttir Pablo, var hér í heimsókn í fyrra. Það er rosalegt áfall fyrir fólk að lenda svona í fjandans mafíunni. Ég vildi óska að landið okkar væri opið fyrir fleiri þjóðum en Évrópu, því ég vildi reyna að koma þessari fjölskyldu hingað heim. Svo hún þyrfti ekki að lifa í endalausum ótta við mafíuna.
En svona er þetta, okkar polísía er að hleypa bara inn í landið okkar fólki frá Evrópu, einnig mafíósum þaðan, því ekki má tékka á neinu, það má ekki móðga útlendingana sem hingað koma, hvað þá biðja um heilbrigðisvottorð.
En nóg um það.
Það er alltaf góður matur hjá Isobel og Pablo, og hér er verið a kveðjast, Ásthildur kyssti alla, og var í essinu sínu.
Amma er þetta leiðinleg mynd? spurði Hanna Sól. Nei en amma er samt með hjartað í buxunum, því þetta er svo hættulegt, að renna sér á handriðinu.
Takk enn og aftur öll fyrir mig, og góða nótt. Ég heiti því að vera duglegri við að heimsækja ykkur. Þið eruð svo yndæl öll sömul.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
11.9.2008 | 20:53
Mína hjartans þökk - vinir og vandamenn.
Ég vil senda mínar innilegustu þakkir til allra þeirra sem höfu samband við mig í dag, hringdu, komu, og færðu mér góðar gjafir. Ég er innilega hrærð yfir öllu þessu. Og það var svo gaman að heyra í góðu fólki, vinum og vandamönnum. Takk. Fékk líka yndislegar gjafir, Nýja flíspeysu, sultu, nýjar heimaræktarðar karföflur, hvalkjöt, flotta skál, steinfisk, gjafabréf upp á andlitsnudd og dekur hjá Stúdíó Dan, köku, sem börnin hámuðu í sig, og svo margt og margt. Vá hvað ég er heppin manneskja að eiga allt þetta yndislega fólk að. Og allar góðu kveðjurnar hér, hafa verið settar í orkusarpinn, geymdar til betri tíma.
Prinsessa tilbúin til að fara á leikskólann.
Að leggja af stað.
Við erum með skemmtilegt Drekaævintýri í spilaranum á leiðinni, því að það heyrist ekki í útvarpinu í göngunum, og göngin eru jú Dreki sem þarf að aka í gegnum, svo drekaævintýri með söngvum er því alveg tilvalið.
Við ætluðum svo í sund eftir leikskólann, en þá hafði einhver óheppinn gröfukarl sett leiðsluna í sundur svo laugin var lokuð. Þá var bara eftir að gefa öndunum.
En það er líka gaman.
Líka að fá að halda aðeins á unga.
Svo er hægt að renna sér í rennibrautinni.
VÍÍÍ Það er gaman.
Á leiðinni heim, fórum við aðeins í berjamó, við ætluðum nefnilega að elda góðan mat, og í eftirrétt átti að vera berjaskyr, en af því að við fengum ofsalega góða heimabakaða köku, þá verður skyrið borðað á morgun.
Sjáiði bara litla prakkarann !!!
En eins og ég sagði fékk ég yndislegar heimsóknir líka í dag.
Ömmustýri sem komu, og líka ömmustýri sem hringdu til að tala við ömmu sína.
Æ já ég er heppin manneskja, að eiga allan þennan fjársjóð, sem enginn getur tekið frá mér.
Hér er fiskurinn sem ég fékk.
Veðrið var fallegt en líka dulúðugt, eins og ég vil hafa það. Spenna milli ljóss og skugga.
Birtan kyngimögnuð alveg.
Þetta er ekki sjónhverfing, heldur einskonar regnbogi, þvílíkir litir.
Takk fyrir mig allir vinir mínir og skyldfólk. Takk fyrir að gera þennan dag að einhverju mikilvægu og spennandi. Ég vildi að ég gæti gefið fleirum þessa hljóðlátu hamingju sem fyllir mig. Sent hana til þeirra sem eiga um sárt að binda, eða eru raunarmæddir. Knús á ykkur öll þarna úti.
Og já ég var næstum búin að gleyma.
Þið fermingarsystkini mín, sem ætlið að koma á helginni. Við erum komin yfir 40 stykki með mökum.
Við ætlum að hittast við gamla sjúkrahúsið, Safnahúsið kl. eitt, og labba eitthvað, eða gera eitthvað saman, það er jafnvel verið að spá í rútuferð til Skálavíkur. En ekki planað neitt. Maturinn verður svo kl. 19.00 sjö í Tjöruhúsinu. Tjöruhúsið er eitt af elstu húsum bæjarins, dálítið hrátt, og ekki alveg við hæfi galaklæðnaðar, þið skuluð því koma í þægilegum fötum. En mikið hlakka ég til að sjá ykkur öll.
TJöruhúsið, ég ætla að reyna að plata Magnús til að koma með nikkuna, og svo verður söngbók með í för, þannig að við tökum pottþétt lagið. Og það er fjör... og það er fjör, og það er fjör á Ísafirði í TJöruhúsinu á laugardaginn.
Það verða líka pottþétt myndir hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (41)
10.9.2008 | 22:08
Daglegt líf i kúlu.
Já hér gengur allt sinn vana gang.
Litli töffarinn minn á leið frá leikskólanum.
Svo þarf að skoða heiminn.
En Hanna Sól fékk að vera með í að gera sultu, hún er svo rosadugleg, þau týndu rabbabara í gær, og sultuðu í dag, og við fengum stóra sultukrukku með heim í dag.
Þessi mynd er sett inn sérstaklega fyrir vin minn Jón Steinar. Hann veit hvar þetta er, þ.e. ættaróðalið.
Við stelpurnar fórum svo í Hamraborg og fengum okkur ís, þegar við komum heim frá leikskólanum. Hanna Sól fékk sér ís í formi, þessi valdi sinn líka af kostgæfni, og svo þurfti ég að veiða hana út úr búðinni með lægni Það var svo margt að skoða og girnast, og alveg í hennar hæð sko.
Þetta er ekki tunglið heldur Sólin að brjótast fram.
Og Úlfur eldaði í kvöld með smá aðstoð frá afa, og það var Lasagna. Rosalega gott.
Með hjálp frá Hönnu Sól auðvitað.
Og litla skottið fékk vínber úr garðskálanum, nammi namm.
Já maður þarf nú aðeins að spá í matinn ekki satt
Þarf ég að gera allt ?
Og ég segi bara góða nótt elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
10.9.2008 | 00:31
Myndir undir svefninn.
Hér gengur allt sinn vanagang eins og venjulega.
Litla Evíta hefur ýmsa þröskulda yfir að fara Og lætur sig ekki muna um, þessi elska
Cat on a hot thin roof, hehehe Brandi finnst gott að sitja ofan á bílnum mínum, sérstaklega þegar ég er nýkomin heim og vélin heit.
Hanna Sól á leið með afa og ömmu í sund.
Bara svona að minna á lognið og góða veðrið á ísó.
Við höfum auðvitað okkar eigið mjólkursamlag. Og hér hefur ýmis frumkvöðlastarfssemi farið fram. Vonandi fáum við að njóta áfram mjólkursamlags Ísfirðinga um ókomin ár.
Gamli bærinn okkar "kínahverfið" svokallaða er einstakt í bæjarfélagi, og ég vona að yfirvöld, þ.e. þegar við fáum góða bæjarsstjórn sjái sóma sinn í að gera veg þess og vanda sem mestan.
Smábátahöfnin í allri sinni dýrð, bráðum verða bátarnir teknir upp á land fyrir veturinn.
Ekki þessi samt, þar sem hann hefur hlutverki að gegna árið um kring.
En við fórum sum sé í sund á Suðureyri, og tókum með okkur brauð, svona til að gefa öndunum, sem eiga heima á tjörninni þar.
Þær voru samt ansi aðgangsharðar við litlar stubbur, svo þeim þótti nóg um hehehehe
Best að forða sér
Og stóra systir engu betri
En þá er gott að eiga afa, sem bjargar öllu við...
Og það var handagangur í öskjunni...
Og jafnvel var hægt að halda á unga.
Manni stendur nú samt ekki alveg á sama, jafnvel þótt að afi sé með manni sko !
Stóra systir samt ákveðnari.
Svo fórum við í sund.
Hanna Sól syndir eins og selur, ótrúleg alveg þó hún sé bara fjögurra ára.
Og gaman í heita pottinum líka.
Og litla skottið alveg tilbúin á laugarbakkanum, eins gott að fylgjast vel með henni.
Og það þarf að huga að ýmsu.
ef þið haldið að það séu ekki myndarlegir menn í lauginni á Suðureyri, þá er það einfaldlega rangt, hér er Andrew frá Þýskalandi, Jói frá Suðureyri og Elli frá Ísafirði, allir flottir.
Svo var horft smávegis á sjónvarpið, fyrir kvöldmatinn.
Dúkkur þurfa líka að pissa sko.
Reyndar var himnagalleríið opið í kvöld eins og sjá má.
En ástæðan fyrir að ég set þetta svona seint inn, er auðvitað að ég var að horfa á góða spæjaramynd, og reyndar fyrr í kvöld horfði ég á Kurt Vallander hinn sænska, sem var þrusugóður.
Svo ég segi bara góða nótt mín elskuleg, og takk innilega fyrir mig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
Um daginn lagðist landið á hvolf yfir ungum manni sem var vísað fyrirvaralaust út landi, ég var alveg sammála því og gladdist yfir því hve fólk stóð vel saman. En ég hef hvergi séð neinn ræða um annað tilfelli sem er að mínu mati svo mannfjandsamlegt að það er ótrúlegt að það fólk sem hæst gólaði yfir Frjálslynda flokknum og meintum útlendingafjandskap þeirra, virðast ekki hafa gert neitt til að gera landið lýðræðislegra og betra fyrir erlent fólk að setjast hér að:
Kom 17 ára
sendur úr landi
23 ára_
Vísað úr landi því leyfi vantar _ Íslendingar þurfa að senda soninn til gamallar ömmu áFilippseyjum _ Hann hefur búið hjá foreldrum sínum í Þorlákshöfn í 5 ár Evu Erlendsdótturbeva@24stundir.isÚtlendingastofnun hefur úrskurðaðað Mark Cumara, 23 ára Þorlákshafnarbúi,þurfi að vera farinnaf landi brott um miðjan september.Móðir hans og uppeldisfaðireru bæði íslenskir ríkisborgarar oghafa búið á Íslandi síðasta áratug.Systir hans, amma hans og afi á Íslandieru líka íslenskir ríkisborgarar.Skiljum þetta ekkiMark er flakari hjá Frostfiski, ogþar vinnur öll fjölskyldan. Hanner duglegur, vinnur vel, mætir alltafá réttum tíma og borgar sína skattaog sín lán. Nú á bara að senda hannút, segir Alexander Aksel Andrésson,pabbi Marks.Við þekktum ekki reglurnar ogvorum ekki vöruð við því að allt í einu yrði hann ólöglegur heima hjásér. Alexander skilur ekki hversvegnavegna fjölskyldan fær ekkifrest. Útlendingastofnun segirnei. Hann trúir því ekki að vísaeigi syninum úr landi, frá foreldrumsínum, heimili og vinnustað,þar sem allt hefur verið í góðu lagiárum saman. Hann á bara einagamla ömmu á Filippseyjum,hvernig á hann að lifa þar? Mammahans fékk ríkisborgararétt 2006 enhann ekki, en okkur datt samt ekkií hug að hann ætti bara að fara frálandinu. Ofan á önnur vandræði ernú verið að útvega Mark nýtt vegabréfmeð mikilli fyrirhöfn. Súvinna fer í gegnum Noreg, því Filippseyjareru ekki með sendiráðhér á landi. Við höfum hvorki flugmiðané vegabréf ennþá og vildumhelst fá frest og hjálp við að geraMark löglegan í landinu, því hanner ekkert minni Íslendingur envið, segir Alexander. Útlendingastofnunsegir foreldra bera ábyrgðá því að börn hafi dvalarleyfi þar tilþau eru lögráða og eftir það beriþau ábyrgðina sjálf. Stofnunin getiekki tekið það að sér. Lög kveði áum að útlendingur í ólögmætridvöl fari úr landi. Mál Marks erekki í brottvísunarferli, en engu aðsíður er honum gert að hverfa úrlandi fyrir 16. sept. Hann bað umlengri frest en fékk ekki. Sækja þarfskriflega um frest og tilgreinaástæður.
Ég verð að segja það alveg eins og er að ég skil ekki þetta sjónarmið, og ég skil ekki af hverju íslensk stjórnvöld gera ekki stjórnsýsluúttekt á starfsfólki í útlendingastofu. Því þar er fólk með einhver annarleg sjónarmið, sem ekki standast almennar viðmiðanir okkar íslendinga.
Á sama tíma erum við að hleypa inn í landið allskonar vafasömum einstaklingum, sem ekki má biðja um sakarvottorð, mafíósa, og rumparalýð, sem kemur hingað í þeim tilgangi einum að ná til sín fjármunum á óheiðarlegan hátt.
Og svo erum við að senda út þekktan barnaníðing, í biblíuskóla, inn á heimili fólks með börn.
Ég verð að segja að það er eitthvað heilmikið brenglað hjá okkur heilbrigðisgenið. Hvað erum við eiginlega að hugsa, að leyfa þessa mismunum á fólki.
Þarna er á ferðinni drengur, sem er orðin íslendingur, hefur verið hér í 6 ár, talar væntanlega reiprennandi íslensku, og er orðin íslenskum háttum vanur. Og við ætlum að skutla honum burtu, aðskilja fjölskyldu og vini, og burtu bara með hann. Ég á ekki orð. Ég vil biðja þá sem tóku upp málstaðin fyrir unga manninn um daginn, Ramses að koma nú með mér og hafa hátt um þennan brottrekstur.
Við viljum að fólk sem hingað kemur til að setjast hér að, til að vera hér, fái að gera það í friði fyir einhverjum aðilum, sem eru búnir að skipta þjóðfélaginu niður í æskilega og áæskilega íslendinga.
Og ég skora á stjórnvöld að skoða hvaða meðferð fólk fær sem hingað kemur, og hvernig búið er að þeim einstaklingum sem hér vilja dvelja og vinna. Það er ansi margt gruggugt í því vatni, eins og sá ágæti Geir H. sagði einhverntíman svo smekklega um Frjálslynda flokkinn og fólkið í honum. Ætli Geir ætti ekki að skoða gruggið í eigin bakgarði, og hann má alveg hafa frúna útumalltþeytandi með sér í þeirri gruggskoðun. Og hana nú!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
8.9.2008 | 14:03
Daglegt líf.
Stóra litla stelpan mín er rosalega kúl. Það byrjaði með því að Úlfur fór í stelpuafmælið, og þurfti auðvitað að greiða lubbann, hann greiddi allt hárið út í aðra hliðina, til að vera kúl hehehe... síðan er Hanna Sól afar upptekin af því að vera kúl.
Amma er ég ekki kúl? Og svo dettur hárið alltaf niður, en það er jafnóðum greitt upp aftur. enda burstin ávalt við hendina.
Hún virðist vera alveg saklaus og hættulaus hehehe... en það er bara á yfirborðinu. Hún er mjög fundvís á allt sem ekki má. Annars er hún búin að vera rosalega dugleg í morgun, tvisvar búin að pissa í koppinn.
Það er nefnilega frí í leikskólanum, starfsdagur hjá fóstrunum. En Ásthildur hefur verið dugleg við að leika sér að byggja lestarteina.
Meðan stóra systir nýtur þess að vera bara heima í fríi.
Já hér er hún að fá sér hárnæringu. En bara alls staðar annarsstaðar en í hárið Reyndar tók Hanna Sól þessa mynd.
Í hádeginu var svo lagt á ráðin um að fanga bófa. Það á að grafa holu, og láta þá detta ofan í. Svo er spurning hvort eigi að setja þá í poka, en allavega á að færa löggunni þá.
En dagurinn er annars góður, það er sólarlaust en mjög hlýtt og notalegt. Eigið góðan dag.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
8.9.2008 | 11:56
Klukk!!!
Klukk númer tvö
Klukkuð af Margréti Hafsteins. Nú þarf ég að leggja höfuð í bleyti og finna út eitthvað um sjálfa mig, sem ég hef ekki spáð mikið í undanfarið. Hef reyndar mjög einfaldan smekk.
Fjögur störf sem ég hef unnið um Ævina
Vann í frystihúsi sem unglingur.
Líka í Apoteki, og fattaði að það er alveg rétt sem fólk segir um að læknar skrifa illa, að minnsta kosti lyfseðla.
Vann um tíma við að breiða út á steina saltfisk, þegar ég var barn.
Síðan hef ég unnið við garðyrkjustörf eða í tæp 30 ár.
Fjórar Bíómyndir sem ég held upp á
Nynd sem ég gleymi seint It´s a mad mad mad world. Út af Terry Thomas ógleymanlegur í þeirri mynd, blessuð sé minning hans.
Silent movie
Mamma Mía
Three men and að baby.
Fjórir staðir sem ég hef búið á
Ísafirði,
Reykjavík, stuttan tíma
Glasgow 2 ár.
Vimmerby einn vetur.
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkarInspector FrostColumboÞættir eftir Agötu ChristieSherlock Holmes.
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríium
Mexico
Guatemala
Belize
New Orleans.
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg
BB
Skutull
Mbl
Málefnin.com
Fernt sem ég held upp á matarkyns
Lambakjö
Melónu
Harðfisk
Hrefnukjöt
Fjórar bækur sem ég hef lesið oft
Harrý Potter
Agötu Christie
Garðblómabókin
Íslensk flóra.
Fjórir bloggara sem ég klukka
Elísabetu Liso
Icekeiko
Antoniu
Helgumagg.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
7.9.2008 | 13:22
Mömmublogg, Tjöruhús og steinfiskar.
Ég verð að biðja ykkur afsökunar á því hve ég hef lítið svarað ykkur elsku Bloggvinir. En tíminn hleypur einhvernveginn frá mér, það lagast þegar ég verð búin að ljúka af undirbúning fyrir veturinn, og við hverfum meira inn í skammdegið. Þá eykst sá tími sem maður hefur til að sinna þeim sem manni þykir vænt um.
En hér er smá mömmublogg.
Við fórum í sund í gær til Bolungarvíkur. Við skildum ekki í öllum bílunum sem við mættum, fyrr en við spurðumst fyrir útfrá, þá hafði verið fótboltaleikur BÍ/Bolungarvík gegn liði frá Reykjavík. Greinilega mikill áhugi á fótbolta. En okkar menn unnu víst. En það er rennibrautin í Víkinni sem heillar unga fólkið mitt. Annars förum við oftast til Suðureyrar. Reyndar var Úlfur á leið í afmæli, hann hafði keypt hring og fengið listaverk frá pabba sínum til að gefa frænku sinni, svo týndi hann fallegan blómvönd úr garðinum, ég er viss um að hann hefur slegið í gegn í afmælinu, því það voru mest dömur sem þar voru.
Á eftir var svo grillað. Afi fékk heilmikla hjálp við grillið.
Það vantar salt í þetta amma hehehehehe...
Nei bara að plata, þetta er fínt svona.
Og hann Brandur fékk nú líka knús, heldur meira en hann kærði sig um
En ekki lyftir hann kló móti þessum sakleysingjum. Enda eru þær rosalega ánægðar með Brand, ég er ekki viss um að það sé alveg gagnkvæmt. Og þó, honum er ekki eins leitt og hann lætur
Og þá er að bregða sér á bak.
Þær eru nú reyndar vanar stærri hestum en þessum. En hann dugir í bili.
Af því að ég er að tala um Tjöruhúsið, í sambandi við Fermingarafmælið okkar, þá eru nokkrar myndir hér þaðan. En Maggi bauð sínu fólki upp á fiskidag í Tjöruhúsinu, Júlla mínum var boðið líka.
Þessi frábæri drengur kom og skemmti gestunum við góðar undirtektir.
Hér má sjá meistarakokkinn sjálfan í góðra manna hópi.
Þetta ágæta fólk kom alla leið frá Austurríki, hafði heyrt um Tjöruhúsið, og langaði að fá sér góða fiskirétti, þau voru svo heppinn að lenda inn í veislunni hjá Magnúsi, en hann er annars búin að loka í ár. Nema fyrir svona veislur eins og við verðum með á næstu helgi.
Hér er svo Júlli minn, með aðstoðarstúlku Siggu barnsmóður hans. Hún er sænsk þessi stúlka.
En ég ætla að setja inn nokkrar myndir af því sem hann er að fást við þessa dagana. Hann er ótrúlega góður alveg sama hvort það er með blýjanti, leður eða steina.
Ætli þessi hafi ekki fengið sér einum og mikið í Tjöruhúsinu
Merkilegt hvað hægt er að gera úr einföldustu hlutum, eins og leðurreimum, grjóti og gamalli kúlu.
Fiskarnir hans eru líka flottir.
Sérstsaklega steinfiskarnir.
Ótrúlega mikið líf í steinfiski.
Flottur ekki satt ?
Þessi er líka ótrúlega flottur.
En nú þarf ég að þjóta, eigið góðan dag elskurnar mínar. Og takk fyrir mig.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
6.9.2008 | 15:18
6. september 1971.
Þann dag fæddist mér stúlkubarn. Hún kom í heimin hljóðlega og svo sársaukalaust, að ljósmóðirinn trúði mér ekki þegar ég sagði að barnið væri að koma. Nei þetta tekur góðan tíma enn, sagði hún. Svo litu tvær hjúkrunarkonur inn til mín, og skoðuðu mig, þar sem ég lá hin rólegasta, og viti menn, kollurinn er komin sagði önnur í ofboði, sæktu ljósuna.
Ég hafði nefnilega verið að lesa mér til um sársaukalitlar fæðingar. Og hvernig maður ætti að slaka á þegar verkirnir kæmu. En allt um það, í dag á þessi stúlka afmæli
Yndisleg er hún Bára mín.
Og tveggja telpna móðir í dag.
Hér er svo stóri bróðir þeirra hann Trölli.
Hér erum við svo fjórir ættliðir, að vísu ekki dóttir Báru minnar en Júlíana Lind er dóttir Skafta. Bára heitir svo í hausinn á ömmu sinni, Og hér erum við.
Innilega til hamingju með afmælið Bára mín.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
5.9.2008 | 15:16
Veðrið á Ísafirði og smá mömmublogg.
Mömmukrúttfærsla.
Það er verið að borða morgunmatinn hérna, Ásthildur vill fá bita líka
Svo er verið að gera sig klára í bílinn, og það er gott að hafa kexköku til að maula á leiðinni.
Á Suðureyri eru svo ungar á tjörninni, þeir koma hlaupandi þegar maður birtist, og nú ætlar amma að hafa með sér brauð til að gefa þeim.
Svanirnir eru farnir suður á bóginn.
Og í gær var Hanna Sól umsjónarmaður á leikskólanum, það er mikið ábyrgðarstarf, sem hún hefur áreiðanlega sinnt með miklum sóma.
Litla skottið komin á leikskólann.
Við fórum svo í sund eftir leikskólann. Úlfur kom með sem sérlegur aðstoðarmaður.
Hann er nefnilega rosalega duglegur að hjálpa ömmu sinni með stelpurnar.
Eftir sundið var haldið heim á leið.
Já það er fjör.
Afi kennir þeirri stuttu að vaska upp !
Og nú getur hún þetta alveg sjálf, enda rosalega gaman að sulla
Veðrið er dásamlegt dag eftir dag.
Hlýtt logn og friður.
Gaman að sjá allt speglast í firðinum.
Og tilkomumikið listaverkið sem umlykur allan pollinn, þegar fjöllin speglast í honum. Það kemur yfir mann ró og friður.
En þetta er næstum dagleg sjón hér á sumrin, sérstaklega á morgnana.
Eigið góðan dag elskurnar. Ég verð að biðjast afsökunar á hve ég hef lítið verið á ferðinni, en það er bara svo mikið að gera hjá mér þessa dagana.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar