10.2.2016 | 13:42
Maskadagur, samt ekki á Ísafirði, við möskum á bolludaginn.
Heima er maskadagur í dag á flestum stöðum, en ekki á Ísafirði, við höfum alltaf maskað á bolludaginn svo lengi sem ég man. Og í þá daga fékk maður bollu í stað sælgætis. Man einu sinni að ég hafði fengið gamalt sængurver frá ömmu og klippti göt fyrir augu nef og munn. Kom þannig til nágrannana og fékk bollu, og tróð henni í sængurveraklætt andlitið meðan fjölskyldan veltist um í hlátri.
En ég var í öðruvísi maskadag á sunnudaginn, þetta verður ef til vill of langt, en ég bara vildi ekki sleppa meiru úr, því þetta var svo skemmtilegt.
Það var karnival í Torriviega, Jón og Ella buðu okkur að sækja okkur og fara saman á karnivalið. Þau eru alltaf svo yndæl. Við vorum tímanlega á staðnum, en gangan átti að byrja kl. 4.
Það var búið að raða stólum eftir allri götunni.
Já ég er að tala um ALLA götuna
ALlskonar nammivagnar voru komnir á staðinn.
Þar sem við vorum snemma í því, settumst við á torginu þar sem var sól og fengum okkur eitthvað smávegis, rauðvín, bjór, kaffi og sona. En það var frekar kalt í skugganum og vindur.
Blessuð börnin voru auðvitað uppá klædd.
Ég fékk mér stól, hann kostaði3 evrur, það er enn snemmt skrúðgangan byrjaði alveg neðst, svo það var ennþá autt hér fyrir ofan.
Löggan var mætt til að fylgjast með svo allt færi nú vel fram.
En fólkinu fjölgar jafnt og þétt.
Þau voru mörg litlu krílin sem skemmtu sér hið besta.
Þessir piltar seldu aðgang að stólunum.
Jú það er eitthvað farið að bóla á skrúðgöngunni.
Hér er spiderman á ferðinni,örugglega til að hjálpa til.
Jú einhver hlýtur að hafa kallað á hjálp.
Nokkrakr kisur og svo Elín Þóra.
Prinesssur og ofurhetjur á hverju horni.
Og svooo gaman.
En nú kemur skrúðgangan af fullum krafti. Dans músik og leikur.
Og þau voru ekki öll há í loftinu þessar elskur.
En tóku hlutverk sín alvarlega.
Gætu verið blómálfar. og sumir fá að ferðast á afar þægilegan máta.
Aðrir gáfu sér smá tíma til að heilsa ljósmyndaranum.
Og áfram heldur gangan.
Hér eru kunnulegar persónur.
Blóm og fagrar meyjar.
Grimmar nornir voru þarna líka.
Og allskonar sem nöfnum tjáir að nefna.Hef svona grun um að hér séu Hans og gréta.
Ó jú ætli það ekki.
Hér eru svo einhverskonar varðmenn eða hermenn.
Þessi fuglahræða pósaði fyrir mig.
Þessi mamma er frá Hollandi, og passaði stólinn fyrir mig, meðan ég fór og fékk mér bjór.
Hverjar þessar verur eru, veit ég ekki, en ekki eru þær fríðar
Ef til vill býflugur.
OG svo fleiri persónur.
Fleiri persónur frá OZ.
Örugglega einhverskonar álfar.
Og sumir geta ekki setið kyrrir.
Aðrir eiginlega neyðast til að sitja kyrrir.
Lítill fallegur álfur.
Og ennþá minni álfur í allof stórum skóm.
Stráka álfar.
Er ykkur nokkuð farið að leiðast. Mér er allavega farið að kólna.
Þetta eru skógardýr sýnist mér.
Eins og sjá má.
Og ansi hreint liðug skógardýr.
Og svo fá sumir bara að hafa það náðugt.
Of löng ganga fyrir lítil kríli.
Og þá erum við komin að FLintstones.
Sjálfur Fred, þarna.
Með Vilmu og syni.
Betty og Vilma.
Sum eru ekki há í loftinu.
Og sum standa varla út úr hnefa.
En nú er mér orðið kalt svo ég ætla að fara að fikra mig niður götuna og að bílnum.
Þetta er ekki á tölvuöldinni.
Gott að vera búin í göngunni.
Hér er svo oggulítil leðurblaka.
Og píratarnir í Karabíska hafinu.
Ókey Ókey, þó ekki hafi allir sama áhugann, padinn er svo sem alltaf góður.
Rauða millan hvað?
Og gott að vera komin í heila höfn hjá ömmu sín.
Víkingar!
Maður getur nú fylgst með þó maður þurfi að vinna.
Fimm litlar mýs.
Eða bara tvær litla mýs.
Svolítil krúttamús.
Svo má bara sitja á öxlunum á pabba sínum og sjá yfir allt.
Fallegir kroppar.
Enn ein brúðan.
Krúttsprengjur.
Og þessi ekki síður.
Vona að ykkur sé ekki farið að leiðast.
Flott.
Jafnvel ennþá flottari.
Hér eru víkingarnir.
Og enginn hræddur.
Vel vopnaðir og í fullum skrúða.
Úbbs hér er eitthvað kunnuglegt.
Jú ekki ber á öðru Dúddi og Þórdís.
Allt tekið upp auðvitað. Þvílík sýning, þvílík skrúðganga og búningarnir frábærir, þetta er sérlega skemmtilegt. Var á svona Karnival út í New York fyrir langa löngu, en þar voru enginn börn með, en búningar rosalega flottir, mest voru það þó dragdrottningar sem settu svip sinn á gönguna þá.
En ég segi nú bara kæru skrúðgöngumenn og áhorfendur innilega takk fyrir að gefa mér þennan ógleymanlegla dag.
Þegar við svo loks gátum troðið okkur gegnum þvöguna niður að höfn, þá var það fyrsta að finna sér matsölusgað og fá sér eitthvað gott í gogginn.
Gosbrunnur á torginu í Torrievega. Og þessi flotti sófi.
Þessir hvorki dansa né syngja því síður hreyfa sig en jafn glæsilegir fyrir því.
Vona að ykkur hafi ekki leiðst í þessum langa göngutúr, og ekki orðið of kalt. Eigið góðan dag elskurna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.2.2016 | 13:03
Smá gönguferð í gær.
Í dag er skýjað og spáð rigningu, við fórum á markaðin í morgun og keyptum okkur fimmlítra rauðvínskút fyrir 7 evrur. Fengum okkur svo rif og fórum með heim og átum.
Elli á Lamarínabar. Þar hittast íslendingar oft á sunnudögum, Helena veitingakonan er íslensk. Þarna hittist fólk gjarnan í hádegismat á sunnudögum. Síðast voru að vísu bara við Elli og Aðunn Karlsson og Fríður.
Ég er að spá í hvaða tré þetta er likist helst furur, er samt ekki viss.
Hér erum við svo komin á "heimilisbarinn. En þangað fórum við oft með Kristínu og Sturla síðast.
Umhverfið hér er svolítið upp og niður alveg frá mjög fallegu og vil hirtu og niður í algjört drasl. En þeir hlaða allstaðar svona gróti kring um plöntur.
Hér býr örugglega mikil blómakona.
Mikið um allskonar þykkblöðunga og kaktusa.
Stofublómin okkar bara svona úti á götu.
Ekki amalegt að hafa svona flott sítrónutré við höndina, þegar þarf að blanda út í drykkina.
Greinilegt að enginn hefur komið hér í nokkur ár þar sem gróðurinn er búin að yfirtaka innganginn.
Hvert hús hefur tvö númer, hátt og lágt. Hér er til dæmis 1064 og 126. Annað númerið tilheyrir sveitarfélaginu en hitt er húsnúmerið, veit ekki af hverju þetta er svona.
Hér sést betur hvernig gróðurinn hefur alveg yfirtekið þetta hús.
Flott götutré.
Byrjað að rökkva og sólin að lækka.
Búin með nokkrar svona ástarþvælur, en það er nóg til af þeim, verst að þær eru allar næstum eins, svo þegar búið er að lesa eina er maður búin með þær allar. En ég er enn birg af krossgátum.
Það er frekar mikið mistur á morgnana, mengun held ég, mér er sagt aðbændurnir séu að brenna akrana sína.
En þeir eru nú ekkert sérstaklega penir,
Þessi mynd var tekin um hádegið í gær, og þar sést að hitinn var nú ekki meiri en 11°
Fórum inn á kaffihús og fengum okkur hádegismat. Það sést ekki á myndinni en þarna fyrir ofan vínflöskurnar er auglýsing fyrir Valentínusardaginn, og þar stendur öðru megin "fyrir hann" og svo hinu megin, þar sem var svona léttara vín "fyrir hana" Mér datt svona í hug orðið feministi
Minn bæði saddur og sæll.
Hér er leikvöllur og skrúðgarður, en hér vex ekki gras, sem er eðlilegt þar sem sjaldan rignir.
Hér sést vel hvernig þeir raða steinum í kringum beðin og trén.
Þetta var í gær, í dag iðaði þetta svæði af allskonar vörum og þjónustu, hér er markaður á fimmtudögum og sunnudögum.
Hér er aftur þessi "fura"
Úbbs! ég sagði ykkur að hér væri mismundandi hreint.
Hér eru svo íbúðir fyrir aldraða og elliheimili, allt tilbúið með lóð og öllu, en svo ekki söguna meir, það er nefnilega minnsta málið að byggja svo þarf að reka heimilin ekki satt?
Lirfur í sjálfsmorðshugleiðingum, þetta var svona 3ja metra löng strolla allar á leið frá gróðrinum út á götu. Þetta er víst frekar leiðinlegt kvikindi, brennir bæði menn og dýr ef þau komast í kast við slíka.
Við Elli í sólbaði hehehe..
Hér eru flest götutrén appelsínutré.
Og líkt og í Mexico er þríburablómið aðal skrautið, enda afskaplega falleg og blómsæl jurt. Bounginvillea.
Þessi eru falleg líka.
Hér hefur einhver plantað niður kryddplöntum.
Appelsínurnar beinlínis flæða niður í garðinn.
Komum svo við hjá Fríði og fengum góðgerðir hjá henni.
Svo var bara ósköp notalegt að koma heim eftir langan göngutúr.
Ljósið í myrkrinu. Eigið góðan dag elskurnar, það má svo sem orna sér við þessar myndir í vetrarhörkunum heima.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
1.2.2016 | 18:04
Hvað er samfélagsbanki?
Ég vil endilega taka undir með ágætum kunningja mínum, sem sendir Bjarna opið bréf:
http://blog.pressan.is/gunnarsa/2016/01/31/kaeri-bjarni-ben-2/?fb_comment_id=1010460785685580_1010701962328129&comment_id=1010701962328129#f19ff49aec
Og kynna í leiðinni fund um þetta mál á vegum Dögunar stjórnmálaflokks um Réttlæti, sanngirni og lýðræði.
https://www.facebook.com/photo.php?fbid=10207841288177682&set=gm.966552590086809&type=3&theater
Fiskað í gruggugu vatni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.1.2016 | 11:13
Jæja, komin í samband.
Þá er ég komin með internettengingu, það er notalegt. Þegar maður er búin að venja sig á þennan ósóma, er ekki aftur snúið.
Ég sit sem sagt hér í La Marína í sól og yndislegu veðri. Við Elli minn komum hingað síðatliðin laugardag fyrir viku, og höfum það fínt.
Við byrjuðum túrinn auðvitað í Njarðvík, hjá syni okkar og fjölskyldu, Bjössa og Marijana, hér er stóri strákurinn okkar hann Arnar Milos.
Og hér er Davíð Elías ömmustubbur.
Hann elskar ömmu í kúlu.
Flottir stubbar.
Þrengsli í eldhúsinu allir að elda mat.
Um að gera að hjálpast að, einbeitingin leynir sér ekki.
Úlfurinn kíkti við, hann var að keppa í mælskukeppni á Laugavatni.
Ykkar einlæg
Svo var förinni haldið áfram, flugum til Gattvick, þar biðum við í 5 kl. og fórum svo þaðan til Alecanti.
Beðið á fugvellinum. Rauðvíndglasið aldrei langt í burtu frá kerlingunni
Þessi elskulegu hjón sóttu okkur á flugvöllinn, Elín Þóra og Jón Gunnarsson. Ómissandi félagsskapur.
Slakað á þó það sé erfitt fyrir suma.
Aðrir una sér vel með bók eða krossgátur.
Búin að fara á markaðinn og kaupa gotterí.
Já þessi mynd þarfnast ekki útskýringar
Það getur maður keypt fimmlítra rauðvín beint af kút, og ágætis rauðvín. hehehe
Hér eru hörkuduglegir strákar að gera stétt við húsið hans Nonna.
Meðan við Ella fórum á pubbarölt í Sankti Paula.
Nutum okkar í botn að ræða um fólkið okkar heima og fréttir af hinum og þessum ísfirðingi. Hér er ströndin, þau búa hér mestan part ársins Ella og Jón.
Þegar við komum aftur voru strákarnir búnir að steypa.
Eftir dásamlegan dag, buðu þau okkur svo út að borða á uppáhaldsveitingastaðinn sinn.
Elsku Nonni og Ella innilega takk fyrir okkur. Og eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.1.2016 | 15:20
Við getum alveg ráðið ferðinni, ef við bara stöndum saman.
Þetta með lýðskrumið er nú þegar byrjað. En ég hef skrifað undir þessa söfnun, því mér þykir málið gott og þarft. Hér er ekki verið að lasta neinn, heldur ítreka vilja þjóðarinnar sem vill, samkvæmt skoðanakönnunum veita meira fé í heilbrigðiskerfið en nú er gert.
Einnig er því haldið fram að ekki sé til fé. En má þá ekki benda á allskonar bruðl á öðrum vettvangi, svo sem eins og að setja milljarða í banka í Kína? Veita milljónum í að flytja gamlan grjótgarð sem mörgum finnst ekki vera fornminjar. Selja vinum og vandamönnum fyrirtæki úr Landsbankanum þar sem þeir græða milljarða á milljarða ofan? Það er nefnilega til nóg fé í ríkisstjóði til að laga margt ófermdarástandið í landinu, en það er bara þannig að því fé skal eytt á annan hátt. Til að hygla sér og sínum.
Ég virði það við ríkisstjórnina að hún hefur gert vel í fjármálum landsins, og hvort sem það er þeim að þakka eða ekki, þá er landið að rísa. En þá kemur alltaf þetta að hygla þeim sem eiga mikið undir sér nú þegar.
Ég mun ekki gleyma neitun þeirra á afturvirkru greiðslu til aldraðra og öryrkja og vona að þeir sem í hlut eiga geri það ekki heldur.
Ég er ekki að segja að þetta séu vondir menn, en þeir eru svo sannarlega spilltir og hafa engan skilning á hvernig sumir hópar í samfélaginu hafa það.
Stjórnarandstaðan málaði sig út í horg á síðasta kjörtímabili, svo mjög fáir taka mark á þeim í dag. Þetta ætti að kenna pólitíkusum frammtíðarinnar að það borgar sig ekki að svíkja kjósendur, og þvísíður ljúga að þeim í beinni útsendingu daginn fyrir kosningar.
Þetta fræga gullfiskaminni er á undanhaldi, og kjósendur hafa breyst margir hverjir þannig að þeir eru loksins farnir að hugsa um sjálfa sig og sína framtíð og barnanna sinna, en ekki einhverja fagurgala sem svo standast sjaldnast.
Ég held nefnilega að þrátt fyrir allt hafi "hrunið" kennt okkur miklu meira en við gerum okkur grein fyrir. En það sárast er að við gætum öll haft það svo gott, ef allir fengju sama tækifæri og okkur væri ekki mismunað svona mikið.
Og það gengur ekki heldur lengur að reyna að afvegaleiða okkur með því að ráðamenn séu einmitt að vinna faglega, þegar blasir við klíkan og fyrirgreiðslan. Við erum hvorki blind né heyrnarlaus, nema nokkrir sem verja allt sem frá forystunni kemur, og þá er ég að tala um flokksdindla í öllum flokkum.
Forystumenn stjórnmálaflokkanna skálka nefnilega í því skjóli að vera alltaf varðir í bak og fyrir af "sínum mönnum" hvernig sem þeir haga sér. Ef menn gerðu það ekki, væri ástandið betra en það er í dag. Þá væru menn frekar látnir bera ábyrgð á gjörðum sínum.
En vonandi kemur sá dagur að okkur auðnast að kveða niður þessa endalausu spillingu, sérhagsmuna gæslu og klikuskap.
Reiknar með ásökunum um lýðskrum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
14.1.2016 | 17:08
Ómar Ragnarsson eða Gísli á Uppsölum.
Ein vinkona mín hringdi í mig áðan. Hún sagðist ekki sátt. Hún er nýkomin af sjúkrahúsi þar sem hægt var að kaupa og senda samúðarkort með mynd af engli, og í kortinu stóð:
Þegar raunir þjaka mig
þróttur andans dvínar
þegar ég á aðeins þig
einn með sorgir mínar.
Gef mér kærleik, gef mér trú
gef mér skilning hér og nú.
Ljúfi drottinn lýstu mér,
svo lífsins veg ég finni.
Láttu ætíð ljós frá þér
ljóma í sálu minni.
Sagði hún að þetta ljóð væri sagt eftir Ómar Ragnarsson, sagði hún það alrangt, því ljóðið væri eftir Gísla á Uppsölum.
Ég gat ekki sent kortið, sagði hún því þetta er ekki rétt með farið.
Ég lofaði henni að skoða málið.
Við leit rakst ég á tvær bloggfærslur, aðra frá Ómari Ragnarssyni og hina frá vini mínum Sigmari Þór Sveinbjörnssyni, vestmanneyjing. Þar kemur fram að ljóðið er eftir Gísla á Uppsölum, en Ómar hefur bætt við fleiri erindum.
Eins og sést hér að neðan.
http://nafar.blog.is/blog/nafar/entry/1217850/
Bæn
Þegar raunir þjaka mig
þróttur andans dvínar
þegar ég á aðeins þig
einn með sorgir mínar.
Gef mér kærleik, gef mér trú
gef mér skilning hér og nú.
Ljúfi drottinn lýstu mér,
svo lífsins veg ég finni.
Láttu ætíð ljós frá þér
ljóma í sálu minni.
Hér er svo blogg Ómars.
Gísli frá Uppsölum http://omarragnarsson.blog.is/blog/omarragnarsson/entry/753962/
BÆN EINSTÆÐINGSINS.
Jólin færa frið til manns, - /
fegurð næra hjarta. /
Ljósið kæra lausnarans /
ljómar, skæra, bjarta. /
Frelsun manna fædd nú er. /
Fögnuð sannan boðar mér. /
Ljúfi Drottinn, lýstu mér /
svo lífsins veg ég finni. /
Láttu ætíð ljós frá þér /
ljóma í sálu minni. /
Þegar raunir þjaka mig, - /
þróttur andans dvínar. /
Þegar ég á aðeins þig /
einn með sorgir mínar /
gef mér kærleik, gef mér trú, - /
gef mér skilning hér og nú. /
Ó, minn Guð, mig auman styð, -
ögn í lífsins straumi. /
Kenndu mér að finna frið /
fjarri heimsins glaumi. /
Margur einn með sjálfum sér, - /
sálar fleinn því veldur, - /
eins og steinn sitt ólán ber, - /
ekki neinn þess geldur. /
Nístir kvöl í næmri sál. /
Nætur dvöl er hjartabál. /
Leikinn grátt sinn harmleik heyr. /
Hlær ei dátt með neinum. /
Særður þrátt um síðir deyr. /
Segir fátt af einum. /
Góðar stundir og gleðileg jól !
Ég er sammála vinkonu minni, það er ekki gott að ljóð Gísla eða bæn, sé sett inn í ljóð Ómars og honum kenndur höfundarréttur. Best hefði verið fyrst hann fann sig knúin til að yrkja fleiri erindi við ljóðið að hafa Gísla ljóð fyrst. Vonandi getur Ómar útskýrt þetta betur.
Annars verð ég að segja að mér finnst það orka frekar tvímælis að taka ljóð látins manns og setja það inn í eigin ljóð, og hefur ef til vill sært fleiri en þessa ágætu og glöggskyggnu vinkonu mína.
Í bloggi Sigmars kemur fram að myndina tók Árni Johnsen.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
10.1.2016 | 16:06
Börnin okkar sem hráefni fyrir Samtök Atvinnulífsins.
Hef ekki heyrt þvílíka vitleysu árum saman, er þó af nógu að taka.
http://www.ruv.is/frett/5-ara-a-skolabekk
"Samtök atvinnulífsins leggja til að skólaskylda hefjist við 5 ára aldur og að framhaldsskólanámi ljúki við 18 ára aldur. Samtökin telja að þjóðhagsbatinn vegna þessa yrði um 70 milljarðar króna á ári". Sem sagt börnunum skal fórnað á altari Mammons, ef þau fara í skólann fimm ára, þá þarf undirbúningur skóla að byrja þegar þau eru fjögurra ára. Alvara lífsins sem sagt að byrja strax, svo atvinnurekendur geti fengið hráefni í vinnuna.
Er ekki hægt að hafa afnot af þeim örlítið fyrr, svo græða megi nóg?
"Samkvæmt tillögum SA verður skólaskyldan áfram 10 ár en með því að setjast á skólabekk fimm ára lykju nemendur grunnskólanum einu ári fyrr eða 15 ára. Með styttingu framhaldsskólans í þrjú ár væru flestir að útskrifast úr framhaldsskóla 18 ára. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, forstöðumaður mennta- og nýsköpunarsviðs SA, segir að ýmis efnahagsleg rök mæli með því að þessi breyting verði gerð".
Hélt að þú værir móðir Þorgerður Katrín, en þín börn eru væntanlega orðin eldri en fimm ára. "Ýmis efnahagsleg rök mæli með þessu" segir þú og ég segi skammastu þín.
5 ára stubbur, sem betur fer býr hann í Austurríki, þar sem engum dettur í hug að láta börnin byrja fimm ára til að auka tekjur samfélagsins.
Það eru gríðarlega miklir hagsmunir í húfi fyrir nemendur þannig að þeir flosni ekki upp úr námi og að þeir fái bestu kennslu sem völ er á. Og að við nýtum tímann í leikskóla sem er fyrsta skólastigið, í grunnskóla og framhaldsskóla betur. En ekki síður hitt að við þurfum líka að líta á blákaldar efnahagslegar staðreyndir. Fá fólk fyrr út á vinnumarkaðinn og halda betur utan um fólkið okkar í skólakerfinu, segir Þorgerður Katrín.
Og allt þetta á að lagast ef þau byrja í skóla fimm ára en ekki sex? Að þú skulir voga þér að bera þessa vitleysu á borð. Hvaða rannsóknir hafa verið gerðar á þessari fullyrðingu, þ.e. hlutlaus rannsókn fagaðila en ekki samtaka atvinnulífsins, sem sennilega er algjörlega sama um hinn venjulega íslending.
"Auk þess að leggja til að skólaskylda hefjist við 5 ára aldur leggja samtökin til að kennaramenntun verði endurskoðuð, framleiðni og samkeppnishæfni skólakerfisins verði efld og eftirfylgni aukin í kennslu og sömuleiðis endurgjöf til kennara. En með því að færa skólaskylduna niður um eitt ár yrði árleg rekstrarhagræðing hjá sveitarfélögunum um 3,2 milljarðar króna. Í stærra samhengi er talið að efnahagsbatinn gæti orðið allt að 70 milljarðar króna á ári. Það helgast meðal annars af því að ungt fólk kæmi fyrr á vinnumarkaðinn. Talið er að landsframleiðsla myndi aukast um 40 milljarða vegna fjölgunar á vinnumarkaði og um 55 milljarða ef helmingur nemenda kláraði grunnskólann 14 ára".
Er ekkert ykkur heilagt? Skera niður heilbrigðiskerfið, Almannatryggingakerfið og nú á að skera börnin niður við trog.
Það er margt svo vitlaust í þessu, fyrir nú utan að þetta endar alltaf á þessum efnahagslegu rökum sem virðast skipta öllu máli, þá er látið liggja að því að börn detti út úr skóla af því að þau byrja of seint, þ.e. 6 ára en ekki sjö. Þið hafið líka staðhæft að vegna þess að börnin byrji 6 ára, þá sé brottfall meira og þar af leiðandi fleiri sem verða öryrkjar. 'Eg á ekki orð yfir svona málflutning.
Í annan stað þá vill svo til að það eru fáir menntaskólar á landsbyggðinni, og ennþá færri háskólar á landinu, er ætlast tið að börnin flytji að heiman 15 ára á viðkvæmasta aldri til að stunda skóla í stærri samfélögum. Þú ert að miða við Garðabæ, það vill nú svo til að þar eru nægir skólar í nágrenninu, lengra nær nú ekki hugsun þín.
Leyfum börnunum okkar að að vera börn á meðan þau eru börn. Ekki sjá fyrir ykkur börnin okkar sem gróðalind fyrir græðgina sem tröllríður öllu sem þið komið nálægt. Þau eru framtíð okkar en ekki vinnuforði fyrir atvinnurekendur.
Hvernig væri að hætta að senda alla sem hingað koma burtu og ráða það fólk sem hér vill starfa og búa í vinnu sem þjóðin virðist virkilega hafa þörf fyrir? Er það ekki tvískinnungur?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
5.1.2016 | 14:56
Veganúar.
Já hvað er nú það spyrja einhverjir Það er nýjasta æðið á Íslandi. Um þetta áhugamál eða lífstíl hefur verið stofnaður félagsskapur.
http://kvennabladid.is/?s=Vegan
Það má ekki borða neitt sem kemur frá dýrum. Og fólk heldur því fram að með því sé það að minnka mengun í heiminum. Má vera rétt. En ég held að fólk hafi ekki hugsað þetta alveg til enda.
Segjum svo að fólk hætti almennt að borða dýraafurðir. Þá hætta bændur væntanlega að ala upp húsdýr eins og kindur, kýr, svín og hænur. Þá fá þessir vesalingar aldrei tækifæri á að fæðast, vera frjáls á fjöllum eða narta í grænt gras.
Væri ekki nær að einbeita sér að því að bændur færu betur með skepnurnar sínar, þ.e. þeir sem slugsa. Að leggja af verksmiðjubúskap og svipta menn leyfi til að halda dýr ef þeir meðhöndla dýrin sín illa.
Ég hef líka heyrt að fólk fyllist af lofti við að éta baunir. Mun þá Veganfólkið ekki menga meira en áður?
Sjá hér frá Doktor.is
"Vindgangur Vindgangur (prump) er mjög algengt umkvörtunarefni. Vindgangur hefur ekkert með sveppi að gera eða loft sem fólk gleypir. Magn lofts sem kemur frá endaþarmi er mjög mismunandi mikið, allt frá 500 ml til 1500 ml á sólarhring (meðaltal 700 ml). Að meðaltali prumpar einstaklingur um 14 sinnum á dag (+/- 6). Loft frá endaþarmi er samsett að 99% af 5 lofttegundum (nítrat, koltvíoxíð, methan, vetni og súrefnissambandi). Loftið myndast í ristlinum fyrir tilstuðlan baktería við niðurbrot á fæðuleifum og gerjun. Magn vindgangs fer mikið eftir því hvað fólk borðar og valda sumar fæðutegundir (ávextir, grænmeti, baunir) meiri vindgangi en aðrar vegna þess að hvatar í smáþörmunum ná ekki að melta þær þannig að bakteríurnar í ristlinum hafa meira úr að moða og mynda loft".
Hvað með að grænmeti er líka lifandi, þó tjáning þeirra sé á öðru plani en okkar í Fána.
Annað sem er athugavert er að mannskepnan hefur verið kjötætur frá aldaöðli, við erum til og með með vígtennur ætlaðar til að sökkva í safaríkt kjöt ekki satt?
Held líka að það sé ekki gott að fá allt prótein úr grænmeti á ávöxtum.
Nei kæru vinir hér gildir það sama og áður hefur verið sagt ótal sinnum, allt er best í hófi.
https://www.youtube.com/watch?v=FgRv7XWJnZs
Eigið góðan dag, það verða kjötbollur heimagerðar í kvöldmatinn hjá mér. Borðaði silung í gær og mun örugglega borða eitthvað dýrslegt á morgun. En meðlætið verða kartöflur og grænmeti bæði snöggsoðið og hrátt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
3.1.2016 | 01:03
Gleðilegt ár elskurnar, og megi ykkur öllum vegna vel í framtíðinni.
Nú er árið 2016 gengið í garð.
Þessi hátíð ljóss og lita hefur verið mér afskaplega ánægjuleg.
Hjá El Salvador fjölskyldunni okkar komu ein fjölskylda í heimsókn, dóttir Pablo með eiginmann, þrjár dætur og tengdason. Við buðum þeim í mat þann 27. janúar. Það var mikil ánægja með það, svo við ákváðum að þau myndu eyða gamlárskvöldinu með okkur líka í kúlunni.
Þetta er reyndar ágætis innlegg i innflytjendamálin, þó þetta fólk ætli sé ekki að flytjast hingað, eru bara að koma sem gestir, þá verð ég að segja að það væri fengur að þessu fólki við mannflóru okkar, yndælt hamingjusamt, elskulegt fólk.
Tengdadóttir mín to be or not to be, móðir Sigurjóns Dags Júlíussaonar var með okkur ásamt sínum börum. Og hér knúsat hún Alejöndru barnabarnið mitt.
Frá því að ég var krakki hafði ég svona ákveðin trega á gamlárskvöld. Ég man eftir sem barn að ég stóð í glugganum í svefnherbergin okkar ömmu og afa og horfði á rakettur skjótast í loftið, og fylltist trega, sem ég gerði mér enga grein fyrir af hverju stafaði. Samt gladdist ég yfir fallegum jólaljósum og rakettum.
Jólin voru tími eftirvæntingar, við fengum samt ekki í skóinn eða slíkt því það tíðkaðist ekki. En jólasveinarnir áttu samt sem áður sinn sess, en ennþá meira jólakötturinn og Grýla. Þess vegna þurftu allir að fá nýjar flíkur fyrir jólin, til að enda ekki í jólakettinum. Man sérstaklega eftir einni jólagjör þegar ég var svona átta ára, það var dúkka frá frænku minni sem var gift offiser í Ameríska hernum og bjó í Keflavík, Nonni bróðir fékk sjálfskríðandi skriðdreka með tilheyrandi hávaða og skotlátum, en dúkkuna mína kallaði ég Erlu og ég á hana enn, hún gat sagt pabbi og mamma, ´núna þegir hún þessi elska en er í heiðurssessi hjá mér
Áður átti ég dúkku sem ég kallaði Göggu, hún var með keramik höfuð og það brotnaði og það var mikil sorg segi og skrifa.
En sem sagt nú um áramótin var öll þessi yndislega fjölskyld hér í mat, El Salvardorarnir elduðu sinn mat Kalkún og komu svo með hann, ég og Sigga mín tengdadóttirinn vorum með lambahrygg. Og allt gegg þetta bara rosalega vel.
Nú langar mig að segja við ykkur sem hræðist útlendinga, við erum bara öll eins og það er bara svo frábært að upplifa annan kúltúr og menningarhefðir, og þrátt fyrir allt, þá erum við bara alveg eins.
Þannig að við getum alveg knúsast upp á það. <3
Lotta elskar athygli og vináttu og henni er sko alveg sama hvað tungumál viðkomandi talar, það eru strokurnar sem gilda.
Þessar tvær elskur eru sprottnar upp úr sömu mold, en himin og haf skilja þær af í menningu, þvðí Alejandra er íslendingur í húð og hár búin að vera hér frá því að hún var smábarn hin alin upp í El Salador, yndæl en bara úr öðru upplagi.
Hér var brugðið á leik með senjor Pablos De Díaz yndælli mann er ekki að finna
Vitið nú bara hvað, hér er fólk samankomið sitt frá hvorri álfunni að borða saman, ræða saman og þykja vænt um hvort annað. Við hvað er fólk hrætt?
Hvað er svona óttalegt við að hleypa fólki inn í líf sitt?+
Þegar allt kemur til alls erum við bara öll mennskjur með sömu væntingar til lífsgæða og vonar um frið og kærleika?
.
Fjölskylda heimsins. Hér er beðið eftir skaupinu, og svo verður farið á árlega brennu.
Getum við ekki bara skilið að við erum fyrst og fremst manneskjur og það er alveg óþarfi að óttast annað fólk.
Og skaupið búið og Sigga mín með sínar tvær rakettur, aðra sem táknar 2015 og hina sem táknar 2016.
Stubburinn minn Sigurjón Dagur fékk einn pakka og gat eiginlega ekki beðið eftir að fá að skjóta sem flestu á loft.
Og brúmm brúmm....
Glaðir ættingjar með skotfæri. Allt í friðsamlegum tilgangi til að gleðja sjálfa sig og aðra.
Og Ísfirðingar létu ekki sitt eftir liggja.
Þarna kveikir Sigríður á rakettu ársins 2015, og lýkur þar með því ári, sem er þar með komið í loftið.
Þetta er tími uppgjörs og eftirsjár sérstaklega ef maður hefur gert eitthvað sem ber að skammast sín fyrir. En málið er að það er aldrei of seint að iðrast og bæta fyrir.
Lítill föðurlaus stubbur, en ég er alveg viss um að pabbi hans vakir yfir honum alla tíð, því hann elskaði hann og bróður hans mjög mikil. Hann vakir yfir sonum sínum, þó honum hafi ekki enst tími til að fylgja þeim alla leið. Þá munum við gera það hér í þessu lífi.
Ég vil óska ykkur öllum gleðilegs nýss árs og vil þakka ykkur öllum fyrir ánægjuleg samskipti á liðnu ári og reyndar mörum liðnum árum.
Munum bara að okkur steðjar engin ógn af fólki sem hingað kemur erlendis frá hvort sem er til að heimsækja ættinga eða vilja setjast hér að og verða íslendingar. Við erum alveg í stakk búin til að taka á móti miklu fleira fólki en nú er, og ég verð að segja að lokum að ég hef skömm á innflytjendalöggjöf okkar sem er að það þurfi sem mest að halda fólki frá landinu, þegar þver á móti er okkur á alla lund í hag að fjölga íbúum og hleypa fleira fólki inn, með kærleika og umburðarlyndi að leiðarljósi. Innflytjendur eru nefnilega ekki vandamál, heldur ákveðin laust á fámenni, og ég er alveg viss um að þetta fólk getur orðið okkur blessun í framtíðinni.
......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.12.2015 | 00:15
Ekki ráðast á þöggunina, það er vont.
Ekki vera vondir við SFS/Líú þessar elskur sem eru bjargvættir landsins Hafa fórnað sér fyrir almenning í þessu landi og vita sem er að ENGINN GETUR GERT ÚT betur ein þeir, og því þurfa þeir að hafa allan forgang sem þeir komast upp með, svo sem eins og þöggun, hótanir, viðskiptaþvinganir, þannig að allir halda að þeir séu algjörir englar, bjargvættir samfélagsins. Nei það má ekki hrófla við þessum bjargvættum þjóðarinnar, það vita allir stjórnmálamennirnir á þingi, sérstaklega sjálfstæðismenn, framsóknarmenn, vinstri grænir og samfylking. Það má einfaldlega ekki hrófla við þessu dýrmæta kerfi sem komið hefur verið upp með þeirra samþykki.
Þannig er nú það. Segi og skrifa. Og síðan ANDSKOTINN HAFI ÞAÐ.
Líða ekki framkomuna mikið lengur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 8
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 2022152
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar