Hvar á að taka peningana.

Þegar verið er að fara fram á að aukið fé sé sett í málefni sem eru til heilla fyrir almenning, kemur alltaf þessi setning, hvar á að taka peninga til þess, eða hvar á að skera niður. 

Málið er að það eru til nægir peningar í þjóðfélaginu.  Þeir liggja bara ekki á lausu, þeir eru ofan í skúffum þar sem enginn venjulegur maður getur notið þeirra.  

Það sést vel núna undanfarið, það má minna á alla fjármunina sem runnu til frænda og vina ráðamanna úr Borgun, þar sem einstaka menn þáðu gull úr greipum ríkisins.  

Það má líka tala um fjárnámið úr vörslu tryggingafélaganna, þar sem átti að veita sér ekki  milljónir, heldur milljarða króna úr sjóðum þeirra til aðrgreiðslna til velvalinna auðmanna.  Og meira að segja tekið lán hjá þeim sumum til að geta nú örugglega greitt út ARÐINN.

Það er löngu vitað að stórútgerðirnar maka krókinn vel á kostnað skattborgara þessa lands og það  má ekki hrófla við þeim heilögu kúm, ekki hækka veiðigjöld né hækka krónuna, því þeir vesalingarnir þurfa að græða helst meira ef eittvað er.

Forstjórar OHF fyrirtækja og bankastjórar fá feitar launahækkanir og arðgreiðslur sem hver og einn almennur borgari gæti ekki halað inn allt sitt líf í puði og vesaldómi.  

 

Peningar_slenskir__________________jpg_280x800_q95

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er eytt í allskonar bruðl og vitleysu eins og að færa gamlan grjótvegg, sem hafði að því sagt er ekkert sögulegt gildi.  

Hvað ætl hafi verið eytt mörgum milljónum þegar Ingibjörgu Sólrúnu dreymdi um að komast í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna? Það væri hægt að telja upp margt og margt, en það væri að æra óstöðugan. 

En það þarf ekki að spyrja hvaðan á að taka peningana, eða hvar á að  skera niður.  Það liggur ljóst fyrir að einhversstaðar er til nóg af seðlum; plenty money eins og Megas sagði.  Og þeir eru heldur ekki farnir til Money heaven, þeir liggja eins og ég sagði áður í skúffum og nammikrúsuml víðsvegar um þjóðfélagið bíðandi eftir að frænkurnar Græðgi og Öfund gómi þær í sína eigin vasa, án viðkomu í þjóðfélaginu.

09-09-peningar

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og það sem verra er stjórnvöld undanfarinna ára hafa ekki lyft litlafingri til að laga þetta ástand.  Það þarf ekki að segja mér að það sé ekki hægt að koma böndum á þessa græðgi.  Setja hömlur á arðgreiðslur sem eru komnar út fyrir allann þjófabálk, hækka gengið þó útvegsmenn gráti krókódílatárum, Setja rekstrarreglur á þessi OHF fyrirtæki sem eru oft ekkert annað en græðgin sjálf uppmáluð, þó stjórnunin sé fyrir neðan allar hellur eins og til dæmis hjá Strætó, Ísavía og Símanum.  

Taka þarf til í öllu nefndarfarganinu þar sem komið hefur verið fyrir ættingjum vinum og vandamönnum sem varla þurfa að gera neitt nema hirða launin sín.  Hvað eru til dæmis margir erindrekar á fullum launum hér á landi í biðstöðu eftir að komast eittvert í póst? Og hvað hafa margir fengið nefndarstarf af því að hann/hana vantaði vinnu og pabbi, mamma eða vinur var í réttu aðstöðunni?

Það er sagt að Ísland sé ríkt land og það er alveg hárrétt, en yfirbyggingin er svo stór að hún tekur til sín allt það fjármagn sem farið gæti í að allir gætu haft það gott.  

Stjórnvöl eiga- þeim ber að skapa umhverfi fyrir fólkið í landinu, réttlátt samkeppnisumhverfi þar sem allir eiga jafnan aðgang, það er meira að segja í stjórnarskránni.   Og þegar menn segja að ekki sé hægt að reka landið nema fá nýja stjórnarskrá, ganga meira að segja svo lang að vilja hafa stutt þing næst svo hægt sé að samþykkja nýja stjórnarskrá, þá er það til lítils ef ekki er farið eftir því sem þar stendur. 

9dd4ddaf7fe5dfc421856174bea60690

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Að endingu má svo spekulera í því hvað varð eiginlega af rannsókninni úr skattaskjólum, það hefur farið ansi lítið fyrir henni, ætli henni hafi ekki verið stungið ofan í eina skúffuna, þar sem hún bíður uns allir hafa gleymt henni?

Af peningum eigum við nóg, það er bara vitlaust gefið eins og skáldið sagði. 

 

Að sigra heiminn er eins og að spila á spil

með spekingslegum svip og taka í nefið.

Og þótt þú tapir, það gerir ekkert til,

því það er nefnilega vitlaust gefið.


Nei er svarið mitt.

Veit ekki um ykkur, en það sem blasir við mér er að Samfylkingin ætlar sér á einhvern hátt að ná forsetaembættinu núna svona mitt i allri niðurlægingunni með flokkinn þann, þá er svona einhver örvænting í gangi.  Svona smá leikrit samið í bakherbergjunum frægu, þar sem allir hlutir eru plottaðir fram og til baka, ekki bara þessi flokkur heldur er þarna á ferðinni allur fjórflokkurinn, hann þekkir lítið annað en einmitt þessi reykfylltu bakherbergi til að ná vopnum sínum, skiljanlega, auðvitað, hver vill ekki völd og góða stöðu?

Málið er bara þetta afsakið orðalagið, en Samfylkingunni virðist vera mikið í mun að fá forsetastólinn. Álíta sennilega að það geti komið þeim úr krýsunni.  Það er bara ekki þannig.  Fólk virðist vilja forseta sem er ekki pólitikus.  

Rétt eins og almenningur hefur hingað til hafnað Sjálfstæðiskanditötum þá virðist vera að sá sami almenningur vilji ekki fá pólitíkusa á forsetastól núna hvorki fjórflokkinn né neina aðra slíka.  

Það mun því verða einhver íslendingur utan þessa vanabía sem mun hljóta hnossið að þessu sinni, vonandi einhver óumdeild, sómakær manneskja sem pöpullinn velur sér sem íbúa á Bessastöðun næsta sumar. 


mbl.is Bryndís íhugar forsetaframboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óþarfi að vera hugsi yfir stöðunni. Hún er bara eins og hún er, og ekkert hefur breyst.

Bara svo sem það snýr við mér Stefán Jón Hafstein, þá sé ég ekki að þú þurfir að vera eitthvað hugsandi yfir stöðunni þó Katrín Jakobsdóttir sé hætt við, nema ef þið haldið að íslendingar vilji fá ESB sinna og krata á forsetastól.  Í því sambandi má nefna botnskrap Samfylkingarinnar eftir síðust kosningar.  Það er bara greinilegt að íslendingar hafna þessu ESB brölti ykkar.  Þannig að ef ég má segja það sem mér finnst, þá hefur þessi mjög svo skynsamlega afstaða Katrínar að gefa ekki kost á sér, hreinlega ekkert að gera með breytta aðstöðu.  Nema ef vera skyldi að þú sért að hugsa um að fólk skuli voga sér að benda á þau mál sem viðkomandi hefur komið sér í og úr.  Og ef til vill þessvega verið hugsandi yfir stöðunni og hvað kæmi til með að dúkka upp, ef þú skyldir bjóða þig fram. Það á reyndar ekki bara við um Katrínu, heldur fleiri eins og til dæmis Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.  Ef elítan virkilega heldur að pöpullinn sé svo gleymin að muna ekki hvað hefur gengið á, þá er það hreinn misskilningur.  Eftir hrunið hefur það einfaldlega breyst að allir bukti sig og beygji fyrir frægðinni, upphefðinni og peningunum.  Það er einfaldlega liðinn tíð sem betur fer. 


mbl.is Stefán Jón hugsi yfir breyttri stöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vöndum valið á forsetaframbjóðanda.

Held að gagnrýnin hafi sáralítið með kyn að gera.  Heldur þær ávirðingar sem fólk hefur dregið fram, sem sannarlega eru ekki úr lausu lofti gripnar. 

En það er alltaf auðveldara að kenna einhverju öðru við en manns eigin gerðum.  Sannarlega mannlegt.  Eg er ein af þessum vondu manneskjum sem eru sennilega að hennar mati hvorki málefnaleg né innihaldsrík.  En mér hugnast einfaldlega ekki að þarna setjist fólk með þá arfleifð sem ferill Katrínar sýnir. 

Ég er aftur á móti sammála henni algjörlega um að á Bessastaði veljist góður þjónn þjóðarinnar sem er fastur fyrir, áreiðanlegur og býr að því að hafa hag þjóðarinnar fyrst og fremst í huga.  

Þess vegna myndi ég velja mann sem ég hef dáðst að lengi og hefur þann bakgrunn sem til þarf, m.a. langa þjónustu erlendis við diplómatisk störf, en það er Jóhannes Björn Lúðvíksson.   Sjá hér m.a.:

 

http://www.heimilin.is/varnarthing/frettirhagsmunasamtokin/myndskeid/45-lifandi-efni/umfjoellun-fra-fjoelmielum/1071-vietal-vie-johannes-bjoern-lueviksson.html

Hann hefur ekkert verið orðaður við framboð, en Það auðvitað aldrei að vita hvað hann myndi gera, ef skorað yrði á hann.   Jóhannes Björn er algjörlega óumdeildur, er ekki í pólitík og hefur lagt margt gott af mörkum eins og bókina Falið vald.  

Jóhannes Björn yrði forseti að mínu skapi, þó það sé auðvitað ekki algilt hvað mér finnst.

johannes-bjorn


mbl.is Katrín ætlar ekki í framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sóun á tíma, peningum og sálu þinni?

Þar kom að því að útlendingum blöskrar ránið við Bláa Lónið, íslendingar eru auðvitað löngu síðan hættir að hafa efni á þeim lúxus.  Hér áður fékk maður að fara og skoða sig um og jafnvel setjast niður og fá sér rauðvínsglasl, en nú hef ég heyrt að það sé ekki lengur hægt.  Það er svona þegar græðgin tekur völd.  Auðvitar er miklu skemmtilegra fyrir ferðamenn að fara á fáfarnari staði og njóta náttúrunnar þar í friði, svo lengi það er hægt, því allstaðar eru ferðamenn.  

Ennþá er reyndar hægt að koma á Vestfirðina, en þess verður ekki langt að bíða að það verði trampað um allar trissur.  Held að það þurfi að fara að hafa stjórn á ferðamennskunni, hún er komin úr böndum fyrir löngu síðan.  

En auðvitað er það borin von með þennan ráðherra við völd, sem er löngu fyrirséð að ræður ekki við verkefnið, frekar en heilbrigðisráðherrann okkar, þetta fólk virðist halda að það eigi bara að sitja ðá rassinum og horfa á allt fara til fjandans.


mbl.is Sóun á tíma, peningum og sálu þinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ást er....

tumblr_mnf5r2sVWU1qcpir6o1_500

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Að leyfa hvert öðru að vera til og anda.  'Eg sit hér ein í kotinu og nýt mín vel, meðan elskan mín skrapp til Valensía.  Hann bauð mér með, en ég er svoddan kálfur að ég vil bara njóta mín þar sem ég er.  Hann vill þvælast hingað og þangað og þá má hann það bara.  

Það er búið að vera frekar kalt hér undanfarið, en sólin kemur þó oftast fram allavega um tíma.  Við höfum unað okkur vel hér undanfarin mánuð meðan allt er vitlaust heima, en svo hef ég séð Ísafjörð einstaklega fallegan undanfarið í sól og fallegu veðri, ekkert er fallegra en þegar bærinn minn skartar sínu fegursta.  

Við höfum svo sem komið víða við, þökk sé Elínu Þóru og Jóni, því þau hafa verið ótrúlega duglega við að fara með okkur um svæðið og sýna okkur, það á eftir að koma síðar með myndum.

En við fórum og heimsóttum Þórdísi og Dúdda um daginn, og það var virkilega gaman.

IMG_2450

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þau seldu húsið sem þau áttu í fjöllunum og leiga þetta yndælishús nálægt Torriviega.

IMG_2452

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Öllu vel fyrirkomið og yndælt hjá þessum vinum mínum 

IMG_2454

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Elín og Þórdís að njóta sín í sólinni.

IMG_2458

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Elli og Nonni á góðri stund.

IMG_2461

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Allt í góðu kiss

IMG_2462

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og Rúnar Þór Pétursson minn, ég knúsaði karlinn frá okkur báðum. 

IMG_2463

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Flottara en Urðarvegurinn og betra veður hahahaha....

En þegar aðalvandamálið er orðið hvar maður á að snæða næsta dag, þá má segja að allt sé frekar léttvægt.  Við förum venjulega út að borða í hádeginu, en eldum eitthvað létt um kvöldið, svo er kveikt á kertum og spjallað, nuddaðar ræt og bara haft það kósí, það er verulega yndælt, þó raunar mér finnist alltaf best að vera heima hjá mér í kúlunni, þá verð ég að viðurkenna að þetta er yndælt og ljúft líf.  Vitandi að allt er í góðum málum heima, þökk sé systrum mínum og sérstaklega Ingu Báru og Jóni.

Það er ómetanlegt að eiga góða fjölskyldu.  Og svo tilhlökkunin að fara til Austurríkis og Noregs að hitta barnabörnin mín þar áður en við höldum heim í frost og snjó.

En elskurnar eigi notalegt kvöld, það ætla ég að gera, þó elsku karlinn minn sé í Valensía og ég hér í notalegheitum með kertaljós og að leika mér í tölvunni.  


Ekki verður feigum forðað, né ófeigum í hel komið.

Hann hefur ekki verið feigur blessað barnið.  Vonandi farnast honum vel í lífinu.  En eru það ekki arfavitlaus lög sem gera það að verkum að móðir grípur til þessa hryllilega ráðs að drepa barnið sitt?  Held að menn ættu frekar að skoða þann endan en að eltast við foreldrana.  


mbl.is Fannst á akri með fjölda stungusára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá hugleiðing um stjórnmálafólkið okkar.

Það er mikil gerjun í gangi í pólitíkinni. Ég hef verið að velta fyrir mér forsvarsmönnum flokkanna og hvernig þeir höndla málin.

Tek það fram að þetta er bara mín upplifun af því sem ég les og heyri. Það hafa allir sína kosti og galla, bara spurning um hvernig menn vinna úr málunum.

Bjarni Benediktsson, er örugglega vænsti maður. Hann er stefnufastur og lætur ekki teyma sig eitt eða neitt.

Hann mætti samt stundum aðeins staldra við og hugsa hvort ekki væri betra að gefa eftir.

Hans verstu óvinir í pólitíkinni eru örugglega hans nánustu ættingjar af þeirri ætt sem hann kemur úr. Þar eru valdagráðugir og klókir menn sem vilja græða sem mest og er sennilega nokkuð sama um aðferðirnar, það má sjá á Vafningsmálinu og Borgunarmálinu.

En það er samt eitt sem er verra hjá Fjármálaráðherranum, hann er orðin blindur á báðum augum við að reyna að skila hallalausum fjárlögum, og til að svo megi verða, lokar hann algjörlega augunum fyrir því sem er að gerast í þjóðfélaginu, svo sem eins og í heilbrigðiskerfinu, fátækt öryrkja og aldraðra og félagslegt óréttlæti, meðan þeir sem hærra eru settir fá fjárhæðir í hækkun launa og bónusa allskonar.

75.000 manns hafa nú skrifað undir óskir Kára Stefánssonar um meira framlag til heilbrigðismála. Þá duga ekki tölur, reiknislíkön eða slíkt. Það þarf að laga ástandið.

bjarni

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Held líka að mörgu leyti sé Sigmundur Davíð ágætis drengur, hann hefur sennilega ekki fengið mikinn aga í uppvexti, þar sem hann virðist ekki hafa lokið þeim prófum sem hann stefndi að.

Það segir líka af hverju honum finnst gagnrýni sem á rétt á sér, vera árásir á sig. Hann hefur aldrei fyrr þurft að glíma við slíkt í sínum verndaða heimi.

Mér finnst margt gott sem hann gerir, eins og að vernda gömul hús og vilja staldra aðeins við í þeirri hörmulegu kassavæðingu sem nú er í tísku. Hann vill örugglega gera meira og betur.

Það lá alveg fyrir þegar hann var gerður að forsætisráðherra að hann var brokkgengur í vinnu, það sást vel með því að lesa bókina hennar Margrétar Tryggvadóttur, þar beinlínis var rætt um hve hann mætti seint og illa og fór snemma, þá var hann bara óbreyttur þingmaður.

Ég held nefnilega að það hafi verið unnið að því bak við tjöldin að gera hann að forsætisráðherra, í eignahaldsfélagi Framsóknarflokksins, sem á sennilega upptök sín í Skagafirði, tel nefnilega að Birgitta hafi farið nálægt sannleikanum.

Hann er því ekki alveg sjálfráður um það sem hann gerir. Það sést best á því að hann passar ekki inn í þetta hlutverk. Veit ekki hvort Ólafur Ragnar hafi eitthvað komið þarna að málum, en það gæti alveg verið. Það sem hefur gerst gott í framsóknarflokknum, er að inn komu nýir þingmenn sem njóta trausts eins og Frosti Sigurjónsson, sem reyndar á ekki alveg heima þarna að mínu mati. Hann á ekki heima í baktjaldamakki, þar sem hann er of heiðarlegur fyrir svoleiðis.

Sigmundur

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Árni Páll Árnason er auðvita líka eðaldrengur, en hann er prinsiplaus að mínu mati, að halda völdum er hans aðal. Hann ólíkt Sigmundi hefur þurft að pota sér þangað sjálfur og jafnvel í óþökk Jóhönnu Sigurðardóttir. Nú er eftir að sjá hvort honum tekst að krafla sig upp aftur með því bréfi sem hann skrifaði og allt varð vitlaust út af Og eftir að hafa reynt að bæði gráta í anda Bjarna og vælupúkast eins og Sigmundur. Kæmi svo sem ekki á óvart að hans yrði saknað einhversstaðar í hópnum. Sérstaklega eftir að hafa verið gerður að blóraböggli, og sérstaklega ef Samfylkingin réttir ekki úr kútnum eftir að hafa skipt um formann. Pólitíkin er nefnilega skrýtin tík og oftast afar vanþakklát.

Árni Páll

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Katrín Jakobsdóttir er líka eins og öll hin ágætis kona. Hún virðist hafa ákveðnar skoðanir og margir treysta henni.

En það verður að segjast eins og er að hún vílar ekki fyrir sér að svíkja gefin loforð ef á það reynir, líkt og þau Steingrímur gerðu eftir kosningar þegar vinstri stjórnin varð til. Það þarf enginn að segja mér að hún hafi ekki vitað af fyrirætlunum hans og Jóhönnu um að sækja um ESB, þótt hann hafi neitað því kvöldið fyrir kosningar.

Atli Gíslason sagði að þetta hefði verið vitað inn í æðstu stofnunum beggja flokka löngu fyrir kosningar. Það er alltaf gott að hafa tungur tvær og tala sitt með hvorri, og þá verður maður vinsæll og trúverðugur ef ekki reynir á.

Katrín

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Birgitta er flott kona og mér þykir vænt um hana, vegna þess að ég þekkti móður hennar nokkur ár áður en hún yfirgaf okkur. Einlæg og yndisleg manneskja, Birgitta er það líka. Og hún er með prinsippin á hreinu. Hún veit hvað hún vill og fylgir því eftir. En stjórnmál eru bara ekki þannig í eðli sínu. Til að áætlanir fái brautargengi, verður að ræða við grasrótina og stundum að gefa eftir. Þó er gott að hafa sterkar skoðanir og þora að tjá þær.

Ég er til dæmis ekki farin að sjá að það geti gengið upp ef þau fá gott gengi í kosningum, jafnvel þó þau myndi kosningabandalag með flokkum sem óttast að deyja út, ef þau svo ná að mynda ríkisstjórn, að það fólk sem þá er komið með völdin í hendurnar vilji hafa stutt þing og svo kosningar aftur strax.

Einhvað segir mér að þar komi inn mannlegt eðli að halda áfram. Það er bara mannlegt og skiljanlegt.

Birgitta er hvatvís og ég hef grun um að hún vaði stundum áfram, án þess að gera grein fyrir því sem hún er að gera. Það getur verið óþægilegt fyrir samstarfsfólk hennar. En svo sannarlega eru Píratar að gera eftirtektarverða hluti og eiga eftir að marka stórt spor í pólitíkina héðan af. Héðan í frá verður ekki aftur snúið þökk sé þeim.

 

Birgitta

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég er viss um að Óttarr Proppé er frábær náungi og hann er örugglega meiri músikant en pólitíkus. Svo það gat aldrei vísað á neitt að hann færi í formann Bjartrar framtíðar.

Hann er of saklaus og heiðarlegur í flokki með reyndum úlfum til að það gengi upp.

Enda er saga þessa skínandi stígs, eins og bróðir minn kallar flokkinn á enda. Þetta varð aldrei annað en brot út úr öðrum flokkum þar sem Guðmundur Steingrímsson vildi fá að vera aðal, en varð eiginlega aldrei neitt annað að því er mér sýnist.

En Óttarr er flottur. Vonandi ná þau að hífa sig upp, það vantar fleira gott og heiðarlegt fólk í pólitíkina. 

Óttarr

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sorglegt með Flokk heimilanna, sem græðgin yfirtók til að sölsa undir sig peninga, og stofnendur sitja uppi með sárt ennið. Skil samt ekki af hverju peningagreiðslur voru ekki stöðvaðar, þegar ljóst var að flokkurinn fylgdi ekki þeim reglum sem settar voru. En svona gerast kaupin á Eyrinni. Og að þessu þarf að gæta. Ég get ekki annað en vorkennt Arnþrúði og Pétri hvernig fór fyrir baráttu þeirra fyrir betri heim fyrir heimilin, því ég er viss um að þau voru einlæg og heiðarleg í sinni ætlun.

Arnþrúður-001

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

   

Helga Þórðardóttir er formaður Dögunar, duglegri manneskju er ekki hægt að fá til að vinna í teymi. Hún lætur ekki mikið yfir sér konan sú, en svo sannarlega er þarna kjarnakona á ferð og á örugglega eftir að gera stóra hluti í framtíðinni.

Hún er helst til hógvær og berst ekki mikið á. Hún þyrfti að vera hávaðasamari og frekari, svo fólk tæki eftir henni og flokknum. Því fólk áttar sig ekki á dyggðum stjórnenda nema þeir sýni vald sitt. Því miður, því oftast og nær, raunar allaf er það besta fólkið sem sýnir hógværð og kurteisi.

Dögun á eftir að vekja athygli og áhuga fólks á næstu mánuðum. 

Helga-001

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Að lokum ætla ég að nefna einn flokk sem ég veit að hefur verið að vinna heimavinnuna sína, en það er Alþýðufylkingin.  Þar er í forsvari Vésteinn Valgarðsson, þeir eru einmitt um þetta leyfi að halda opinberan kynningarfund um sín málefni.  

vesteinn1_511416-001

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta eru nú bara spekulasjónir um bakgrunn pólitíkusanna okkar. Fjölmiðlar hafa raunar ekki mikinn áhuga á því að skoða mannlega þáttinn bak við þetta fólk okkar og hvað það er sem skapar þeirra ímynd.

 

Þeir sem eru að gera skoðanakannanir gera ekkert með þau félög sem eru að vinna að framboðum. Þeir einblína bara á þá sem þegar eru á þingi. Það er bara einfaldlega ekki réttlátt, því ef sanngirnis á að gæta þarf að taka alla með sem eru að huga að framboðum.

Nema skoðanakannanirnar séu eingöngu til að skemmta skrattanum, eða að að finna út hverjir gætu verið sigurverarar núverandi stjórnmálaflokka. Það þýðir nákvæmlega ekkert að tala um „önnur framboð“  undir einu heiti og  sýna eitt komma eitthvað prósent.

Stundum hef ég grun um að fréttamenn vilji svolítið ráða hverjir hljóta veganestið bæði til pólitísks frama og eins forseta fyrir utan allt annað eins og söngstjörnur og leikara. Þessi þrá þeirra er vond vegna þess að þeir eiga að gæta hlutleysis fyrst og fremst og persónulegir draumar þeirra um stjörnur eiga ekki rétt á sér, þar sem þarf að huga að eru hæfileikar manna til að höndla með vald á hvaða sviði sem það er.

Það er okkur öllum fyrir bestu að allir leiti að bestu kostunum í þeim málum og bestir til þess eru fjölmiðlamenn, en þá eiga þeir líka að vera fyrst og fremst hlutlausir, hlú að því sem vel er gert, og láta annað fara fram hjá garði. 


Markaðurinn í La Marína og heimsókn til Péturs frænda.

Ég er löt við að skrifa hér núna.  Ekki það að ég hafi ekki nógan tíma, sennilega of mikinn tíma, þá slugsar maður. smile

Það er ágætt að vera hér í La Marína, þetta er sagt vera stærsta öldrunarheimili i Evrópu.  Hér er mest megnis fólk sem komið er yfir fimmtugt, margir Íslendingar sem eiga hér hús og dvelja hér yfir vetrarmánuðina en fara svo heim yfir sumarið.  Hér er líka yngra fólk, en miklu fleiri í eldri kantinum. 

Hér er mikið um breta, þeir halda hópinn og spila saman eitthvað sem líkist póló á svæði við La Marínabar.  Svo borða þeir sunnudagsmatinn hjá Helenu, sem matreiðir enskan heimilismat fyrir þau við góðan orðstír.  

Hér má einnig sjá skandinava.  Það er ljúft að vera hér og fólk opið og vingjarnlegt.

Á þriðjudögum hittast íslendingarnir á La Marínabar og fá sér bjór og rauðvín og spjalla, spyrja frétta að heiman og gleðjast.  

 

IMG_2860

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Á fimmtudögum og sunnudögum er markaður hér rétt hjá, þar er gaman að rölta um og skoða allt sem þar er á boðstólum.

IMG_2861

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þar kennir ýmissa grasa, og hér er um að gera að prútta við þessa gaura. 

IMG_2863

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo eru hér útsala, og konurnar róta og róta í fata haugunum, sem oft kosta bara eina evru. 

IMG_2864

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þarna hittum við oftast Auðunn Karlsson og Fríði.  

IMG_2867

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessi er líka ísfirðingur, Guðmundur Richter og konan hans Jóhanna minnir mig.  

IMG_2870

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér má líka sjá ferfætlinga, þessir voru nýkomnir úr hundahlýðniskóla, urðu að sitja alveg kyrrir meðan "foreldrarnir" fengu sér bjór og rauðvín.

IMG_2871

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já hér má finna ýmislegt. 

IMG_2873

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

IMG_2876

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Litið yfir svæðið.

IMG_2878

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er að vísu ekki kafbylur hér og allt í snjó, en hann getur orðið ansi þungbúin himininn.

IMG_2879

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og það þarf að búa vel um bílana sína, áður en haldið er heim á leið, svo sólin skemmi ekki lakkið og dekkin.

IMG_2880

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En oftast er veðrið gott og hægt að fá sér í gogginn úti á balkoni.  

IMG_2881

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér eru Elín og Nonni komin í heimsókn, þau ætla að aka okkur til Péturs frænda niður í Torriviega.  Hér er auðvitað verið að skoða múrverk sem þarf að laga. 

IMG_2883

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér erum við svo komin til frænda.  

IMG_2884

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta er fjölbýlishúsið sem hann býr í á veturna.  

IMG_2886

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér eru þessar flottu svalir með útsýni yfir Miðjarðarhafið.  

IMG_2887

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Minn kall nýkomin frá Ástralíu.  Flottur hann elsku frændi minn. 

IMG_2888

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er svo íbúðin.

IMG_2890

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Séð ofan frá svölunum, þarna er verið að byggja nýja verslunarmiðstöð Lidl sem verður opnuð í sumar.

IMG_2893

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég segi oft að Pétur sé stóri bróðir minn, hann var 16. ára þegar ég fæddist, og ekki farin að heimar, og ver mesti stríðnipúki sem ég hef kynnst og hann er það ennþá. laughing

IMG_2897

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og ekki er tölvan að rugla hann í ríminu, ótrúlegur þessi töffari.

IMG_2899

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Við skruppum út í búð og Elli keypti sér nýja sko, hér er hann að henda þeim gömlu i ruslið. Hér er ruslið sorterað, pappír, plast og flöskur og svo almennt rusl.

IMG_2901

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er mikið um kaktusa af öllum stærðum og gerðum, en líka önnur blóm sem við þekkjum heiman að.

IMG_2902

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já það er gaman að skoða blómin hér.

IMG_2903

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ekkert smá flottir þessir.

IMG_2904

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo bara þessi venjulegu sumarblóm eins og hjá okkur. 

IMG_2905

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Flottustu og bestu stríðipúkarnir mínir smile

IMG_2910

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Áður en haldið var aftur heim til La Marína, fengum við okkur í svanginn.

IMG_2912

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta var yndislegur tími fyrir okkur þrjú og þökk sé Jóni og Ellu að gera það mögulegt.

IMG_2914

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það var auðvitað úr mörgu að velja á matseðlinum.  Allur matur er góður hér á Spáni.

IMG_2915

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Frábær dagur.  Eigið góðan dag líka í vetrarríkinu Íslandi kiss

 

 


Málefni og fjölmiðlar.

Málefni dagsins og hlutverk fjölmiðla. Um daginn stóð Dögun stjórmálaflokur um réttlæti, sanngirni og lýðræði fyrir, opnum fundi á Norræna húsinu um Tísamálið.

Öllum stjórnmálaflokkum var boðið á fundinn.

Fundarstjóri var Benedikt Erlingsson.

Frumælendur voru Bergþór Magnússon aðalsamningamaður utanríkisráðuneytisins i í Tisa.

Kristinn Hrafnsson starfsmaður Wikileaks á Íslandi.

Gunnar Skúli Ármannsson frá Dögun.

Frosti Sigurjónsson frá Framsóknarflokknum.

Steinunn Þóra Árnadóttir frá Vinstri Grænum.

Arnaraldur Sigurðsson fyrir Pírata.

Þrír stólar voru auðir.

Þeir voru fráteknir fyrir flokka sem ekki höfðu nægilegan áhuga á málinu, eða allavega kusu að sitja heima.

Þetta voru Sjálfstæðisflokkur Samfylking  og Björt Framtíð.

Fjölmenni mætti og var fundurinn afar málefnalegur og margar upplýsingar komu fram sem voru áhugaverðar og nýir fletir á málinu.

Eða eins og fulltrúi VG sagði: Það er augsýnilegt af góðri mætingu hér að það er eftirspurn um þessi mál frá samfélaginu.

Því miður var hvergi að sjá neina umfjöllun í fjölmiðlum um fundinn, þó alveg örugglega sé hægt að segja að þessi mál varða alla íslendinga, þó utanríkisráðherra hafi sagt að það þyrfti ekki að ræða þetta á alþingi né fara með umræður um máefni þar. Þetta er frekar sorgleg staða, og ég spyr mig, hvar er áhugi blaðamanna og fjölmiðla á svo alvarlegum umræðum sem einmitt þessi mál eru í dag, og margir hafa varað við afleiðingum af undirritun þessara samninga, sem virðist eiga að skrifa undir áður en alþingi tekur þetta til efnislegrar umræðu synjunar eða samþykktar.

Hér er slóð á fundinn.http://nordichouse.is/is/event/tisa-open-meeting/

En kæru stjórnmálamenn og fjölmiðlamenn, það er hægt að bæta úr þessu. Því næsta laugardag, þann 13. febrúar n.k. verður fundur í Norræna húsinu um Samfélagsbanka.

Frummælendur á þeim fundi eru komnir langt að. Ellen Brown lögfræðingur og rithöfundur frá Bandaríkjunum, sem hefur unnið mikið í þessum málum og Wolfram Morales framkvæmdastjóri sparkassen í Þýskalandi, einnig mun formaður Dögunar, Helga Þórðardóttir tala á fundinum. Fundarstjóri verður Erlingur Ingvarsson.

Nú fer að líða að því að stjórnmálaflokkar fari að undirbúa næstu kosningar, þá er oft talað fögrum rómi um allt sem þeir vilja gera fyrir almenning í landinu. En eitt er að tala og annað að framkvæma.

Stjórnmálaflokkar sem ekki hafa áhuga á að vinna að málefnum sem varða hag alls almennings eru ekki líklegir til að sinna því hlutverki eftir kosningar. Dögun náði ekki manni inn síðast, en fengu þó nægilegt fylgi til að fá fjármagn, því fé hefur verið vel varið í grasrótarstarf, fundi sem þessa tvo og örugglega fleiri, margar ályktanir hafa verið sendar á fjölmiðla út af ýmsum málum og svo reglulega fundi í framkvæmdaráði flokksins.

Það ætti því að vera fjölmiðlum sem virkilega vilja breytingar og fá nýja sýn á málefni tilefni til að fylgjast með Dögun og þeirri góðu starfssemi sem þar fer fram. Endilega að kynna sér málin. 

 

12654418_10207841288177682_256170358718432541_n


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 2022150

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband