11.11.2012 | 17:02
Ekki láta fagurgala stjórnmálamannanna villa ykkur sýn.
Það er rétt hjá Árna Páli að það er rétt að breyta um takt. Það er líka rétt að almenningur í þessu landi við breyta til og skapa ný stjórnmál. En Árni minn það verður ekki gert með gömlu víni á nýjum belgjum. Þú berð þína ábyrgð á því sem varð okkur að falli, og bættir um betur með Árna Pálslögunum, auk þess að vera eindreginn stuðningsmaður ESB, þó vitað sé að yfir 60% landsmanna sé því andvígt.
Hvernig hyggst þú breyta og skapa ný stjórnmál? Jóhanna var einstrengingslegur stjórnmálamaður og eintóna, vildi ekki ræða málin, og treysti engum nema sjálfri sér og Steingrími. Það verður erfiður róður fyrir arftaka hennar að rétta kúrsinn. Og ég fyrir mitt leyti ætla ekki að þegja um það sem betur hefur mátt fara í aðgerðum/aðgerðarleysi núverandi stjórnvalda. Og að eina ráðið við krýsunni sé að ganga í ESB er einfaldlega ekki boðlegur kostur fyrir þjóðina.
Það er frekar fyndið að nú keppist fjórflokkurinn við að setja fram vilja sinn til að breyta stjórnmálunum, og hvað svo? dettur ekki bara allt í sama farið, ef svo ólánlega skyldi vilja til að þið og Sjálfstæðísflokkurinn næðuð saman eftir næstu kosningar? Bjarni með sitt ískalda mat á ESB eftir kosningar, og þú með þinn einlæga vilja til að fara inn í brennandi hús ESB. Hvernig í ósköpunum á íslensk alþýða að treysta ykkur tveimur til að standa að baki þjóðinni? Þú manst með Árna Pálslögunum sem nóta bene eru kennd við þig meðan þú varst ráðherra.... Þar sem þú tókst stöðu með fjármálafyrirtækjum landsins en ekki fólkinu í landinu. Heldurðu virkilega að þú fáir að vera í friði með þau mistök? Og heldurðu svo virkilega að Sjálfstæðisflokkurinn fái að vera í friði með að gefa endanlega L.Í.Ú. allan aðgang að fiskinum í sjónum?
Ég segi fyrir mig, það er margt gott í stefnu Sjálfstæðisflokksins, sem gæti nýst þjóðinni vel. En leiðitami þeirra við sægreifana sem nóta bene gefa að mínu mati, drjúgt í kosningasjóði bæði ykkar og Sjálfstæðisflokksins er ljóður á þeim flokki sem gerir að verkum að ég myndi aldrei treysta þeim fyrir Íslandi. Og ég mun gera mitt til að koma því til skila.
Og því síður treysti ég Samfylkingunni sem er að mínu mati flokkur tækifærissinna og skoðanakannana, með enga augljósa stefnu til heilla fyrir almenning sem best lýsir sér í því að eina lausnin ykkar er að koma okkur inn í ESB. Þar á lausnin að vera, meðan allt heilbrigt fólk sem þekkir til veit að það er rugl.
Nei ágæti Árni Páll þið getið talað ykkur bláa í framan þú og Bjarni Ben um hvað allt verði gott bara ef þið fáið veldissprotann.
En það sem ég sé í þeirri stöðu er; að allt verði virkjað sem hægt er að virkja, álver reist um allar koppagrundir, jafnvel olíuhreinsistöðvar og slík mengandi stóriðja á kostnað hreinleika landsins. Síðan verði okkur demt inn í ESB með allri þeirri spillingu og metnaðarleysi sem þar viðgengst.
Ef þið þú og Bjarni virkilega viljið landi og þjóð það besta, þá dragið þið ykkur einfaldlega í hlé, leyfið nýjum öflum, nýjum framboðum að komast að, og leyfa þeim að fá tækifæri til að gera einmitt það sem fólk hefur verið að segja þér í kosningabaráttunni, að breyta um, skapa ný stjórnmál.
Ykkur er einfaldlega ekki treystandi til þess. Það höfum við séð núna undanfarna áratugi. Þegar þið hafið komist við kjötkatlana hellist yfir ykkur gleymskan. Vinavæðingin, klíkubræðurnir sem þurfa smá aðstoð og svo ættingjarnir fá að ganga fyrir og blómstra á kostnað hæfileika, heiðarleika og vinnusemi.
Að segja að Samfylkingin þurfi að vera gott og heiðarlegt samfélag, sendir ískaldan hroll, ekki "mat" niður hrygginn á mér, og sá hrollur eykst ef Sjálfstæðisflokkurinn á að vera samstarfsaflið.
Ég efast ekki um vilja margra innan þessara beggja flokka, en ég efast um að forystan í þessum flokkum hafi eitthvað afl eða vilja til að vinna gott og heiðarlegt starf að betra samfélagi, og ef það er einhver huggun þá er það sama að segja um Framsóknarflokkinn og síðan Vinstri Græna sem sem höfðu tækifæri rétt eins og þið í upphafi á að breyta og bæta samfélagið, til þess höfðuð þið traust og trúnað þjóðarinnar í upphafi, en svikuð svo gjörsamlega að traust almennings er komin niður fyrir 10%
Af hverju ættum við að treysta fagurgala núna, svo stuttu eftir að flest sem þið hafið lofað hefur verið svikið big time.
Ágætu landsmenn látið ekki svona fagurgala villa ykkur sýn. Þetta eru innantóm orð, horfið frekar á gjörðir þessara manna, loforðin, aðgerðirnar, kosningar á þingi. Ekki láta fagurgalan og tungutakið villa ykkur sýn, þegar þetta fólk hefur sýnt að þeim er í raun og veru alveg sama um kjósendur, bara ef atkvæðin skila sér í hús. Þá er hægt að taka þráðínn upp aftur, loka sig inn í reykfylltum herbergjum og byrja að plotta upp á tíu.
Ef við viljum nýtt Ísland, þá þorum við að breyta til og gefa nýju framboðunum möguleika á að koma fólki inn á þingið. Þó það væri ekki nema til að hafa glugga opinn inn í alþingishúsið eins og Hreyfingin hefur gert þann tíma sem þau hafa setið þarna
![]() |
Við þurfum að breyta um takt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
10.11.2012 | 18:57
Okkar björgun kemur sennilega að utan en ekki frá stjórnvöldum sem við höfum kosið yfir okkur.
Nú hef ég ekki mikið vit á fjármálum, segi eins og utanríkisráðherra vor, sem tilkynnti okkur að hann hefði ekki hundsvit á slíku. En er það ekki dálitið varasamt að umræður um fjárlög ESB hafi siglt í strand. Þarna er um að ræða þörf möppudýranna í Brussel fyrir meira fé til að sólunda, m.a. í allskonar mútur og styrki til okkar hér á skerinu til að dobbla okkur inn í sambandið. Það skyldi þó ekki vera svo að það myndi borga sig ef við værum svo miklir kjánar að falla fyrir þessu og fara inn.
Mér skilst að uppgjör reikninga hafi ekki skilað sér inn s.l. 17 ár eða svo, og nú er hvorki meira né minna en 9 milljarða evrugat á fjárhagsreikningnum. Það þarf engan fjármálaspeking til að sjá að þetta gengur ekki upp.
Og illa er ég svikin um mannlegt eðli ef öll 27 ríki sambandsins samþykki að auka greiðslu til lobbýistana í Brussel um 6.8, meðan ekki liggur fyrir í hvað þessir peningar eiga/ og hafa farið.
Enda sýnist mér ríkisstjórnir vera að stinga niður fótum gegn þessu, og óánægjan eykst, ekki bara hjá hinum fátækari með hræðilegum niðurskurði sem bitnar á almenningi, fyrst og fremst þeirra sem minna mega sín, heldur líka þeirra ríkari sem þykjast sjá að skattarnir þeirra fari meira og minna í að borga "óráðssíu" í hinum fátækari ríkjum.
Og nú las ég einhversstaðar að þjóðverjar séu að missa dampinn, og þrengir að þeim á alla kanta. Þó ég þekki ekki til fjármála og stadusa svona yfirleitt í þeim geira, þá þekki ég mannlegt eðli þeim mun meira. Og ég bara sé það í hendi mér að ráðamenn í þessum ríkjum fari að hugsa sinn gang þjóðhagslega séð
, þegar þeir sjá alvöruna hjá almenningi um efnahagsmál. Svo líður að kosningum og ólíkt því sem gerist hér á landi, þá eru flestar þjóðir þannig að þær refsa þeim sem halda illa á fjármálum ríkisins. Og þar sem það er afar ljóst að það eina sem þessir ríkisbubbar í hverju landi skilja eru atkvæðin upp úr kjörkössunum, þá er ég nokkurnveginn viss um að þeir sjá sjálfir alveg hjálparlaust að þolinmæði fólks er á þrotum gagnvart þessari endalausu þjónkun við einhvern draum um eitt ríki Evrópu.
Og þó við höfum hér stjórnvöld sem hvorki sjá, heyra né skilja, og þeirra draumur er sá að komast þarna inn í brunarústirnar, þá sér almenningur erlendis þetta betur og krefur sína embættismenn um skýr svör. Þetta samband mun því rottna innanfrá vonandi áður en okkar kjánum tekst að smygla okkur þarna inn með falsi og fláráði.
Rotturnar munu flýja sökkvandi skip, hver sem betur getur þegar þeir horfast í augu við kosningar og reiði almennings.
Og ofan á all er evran að lækka...http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2012/11/10/evran_laekkar_thridja_daginn_i_rod/
Þannig að sennilega kemur björgun okkar ekki frá íslenskum stjórnvöldum, heldur frá þeim löndum sem nú eru involveruð í þetta sambandsríki sem er eiginlega að falli komið.
![]() |
Viðræður um fjárlög ESB í strand |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2012 | 21:54
Ferðasagan ferðalok.
Þar sem rokið veður áfram, þó ég heyri ekki mikið í því, og snjórinn þyrlast niður er við hæfi að ljúka við ferðasöguna mína.
Ferðasagan. Fjórði og síðasti hluti. Mazatlán til Vestfjarða.
Það var gott að komast til Mazatlán, heim til mágkonu minnar, það var tilbreyting að komast inn á heimili og geta farið í venjubundið heimilislíf, þó við værum ekki komin alveg heim. Þarna var stjanað við okkur. Vöknuðum, fórum út á Patíó að lesa, fengum okkur morgunverð og svo var farið niður á strönd.
á ströndinni.
Mazatlán er mjög falleg borg, þar búa um 140 þúsund manns. Aðalgatan liggur með fram hreinlegri sandströnd, þar koma margir ferðamenn á hverju ári. Aðallega frá Ameríku eða Kanada. Þeir stytta veturinn heima fyrir, með því að koma hingað í hlýtt og gott veður. Margir eiga íbúð eða villu þarna, og svili minn sér einmitt um hótel sem er í eigu margra ameríkana og kanadamanna. Hann hefur líka séð um glæsivillur ríka fólksins, eins og frú Grímhildar, en hún átti snyrtivörufyrirtæki Lancome að mig minnir. Við fengum að skoða villuna hennar, og þvílíkan og annan eins íburð hef ég aldrei séð fyrr né síðar. Glæsikerra var í bílskúrnum sem beið komu hennar, og þernur, garðyrkjumaður og bílstjóri sem voru þarna meðan hún var í burtu. Hún er að vísu búin að selja bæði fyrirtækið og húsið núna.
Götumynd frá Cerr De Jesus Mazatlán. Íbúarnir eiga gangstéttina út að götu, og þurfa að sjá um að gera þær og þrífa. Þess vegna eru gangstéttarnar mismundandi fyrir framan hvert hús, og sumir hafa ekki gert neina gangstétt. Bara sandur fyrir frama. Aðrir helluleggja og sumir steypa. Götutréð er Fícus Benjamínus. Og yfirleitt eru það garðyrkjumenn sem koma og snyrta trén, það er sama með þau íbúarnir eiga trén og láta klippa þau eftir eigin smekk. Við betri götur eins og þessa eru varðmenn sem íbúarnir deila með sér að greiða fyrir að vakta götuna á nóttunni. Á nóttunni er allir bílar fyrir innan grindurnar sem þið sjáið, og hliðin læst.
Þarna lifa menn á rækjuveiðum, humri, ostrum og ferðamennsku. Til skamms tíma voru nokkrir íslendingar þarna í útgerð og veiðarfæraþjónustu. Rækjan er stærri en við eigum að venjast, og humarinn líka. Á ströndinni vorum við alltaf á svipuðum slóðum hjá Playja del Oro. Sjórinn er tandur hreinn og ágætlega hlýr. Á hverjum morgni um nýju leytið kom maður syngjandi upp úr sjónum, með poka á bakinu, hann var á ostruveiðum. Hann hafði smáaðstöðu rétt við hliðina á okkur. Lítinn trékassa og salt og sítrónu. Þangað hélt hann með aflann og byrjaði að brjóta skeljarnar, maður get svo fengið nýja og spriklandi ostru hjá honum á 2 pesóa.
Þarna er stöðugur straumur af sölumönnum sem ganga um ströndina og reyna að selja manni allt mögulegt frá tyggjópökkum upp í flottar tréskurðarmyndir, og málverk. Handklæði og sólgleraugu. Margir sölumennirnir eru indíjánar. Einn maður gekk þarna um á hækjum og söng aríur, ekki var nú röddinn til að hrópa fyrir, en hann fékk stundum pening, menn tóku viljann fyrir verkið.
Strandsala.
Sinalóa fylkið sem Mazatlán tilheyrir er eitt helsta Mafíusvæðið í Mexícó. Hér er friðsælt á daginn, en margt gerist í skjóli nætur. Og margir eru myrtir. Þó maður trúi því ekki þegar maður gengur um þennan vinalega bæ að degi til, með öllum sínum ferðamönnum og friðsæld.
Hérna er karnival um þetta leyti, og er þegar byrjað að skreyta bæinn.
Úti að borða morgunverð í Mazatlán með fjölskyldunni.
Tíminn leið allt of fljótt þarna, því við höfðum ráðgert að stoppa þrjá daga í San Fransisco.
Yfirgáfum Mazatlán á fallegum sólardegi, til að fara út á flugvöll, þurftum að fljúga til Mexícósity, og svo þaðan til San Fransisco. Urðum að stoppa eina nótt í höfuðborg Mexícó, gistum á flugvallarhóteli Rezor mjög fínu hóteli með tveimur herbergjum nóttin kostaði 100 pesos. Þurftum að vakna um kl. 4 a.m. til að ná fluginu.
Maður finnur svo vel þegar maður kemur aftur til bandaríkjanna hve dónalegir þeir eru og leiðinlegir, þeir sem eru í einkennisbúningum þ.e.a.s. Að vísu lentum við á afskaplega elskulegum ungum manni í útlendingaeftirlitinu, við vorum fyrstu íslendingarnir sem hann hafði séð. Maður þarf að gera vel grein fyrir sér, og á hvaða hóteli maður ætli að dvelja, og við vorum ekki ákveðin. Æ ég set ykkur bara á Holliday inn sagði hann og hló.
Síðan tók við þrautarganga gegnum eftirlit þar sem þessir venjulegu ameríkanar komu við sögu ruddalegir og ofstopafullir. Til dæmis konan sem tók við tollmiðanum, hún hrifsaði hann úr hendinni á mér með fyrirlitningar svip, svo mig langaði mest til að sparka í rassinn á henni. Þarna voru engar almennilegar upplýsingar að fá um hótel og slíkt, við vildum vera niður í miðbæ. Þegar við spurðum í upplýsingum, sagði daman með þjósti að það væri ekki hennar mál að svara til um hvaða hótel væru í miðborginni. Meðan hún athugaði neglurnar á sér. En rétti okkur samt ferðamannabækling þar sem voru upplýsingar um hótel en við vissum náttúrulega ekki hvað snéri upp eða niður á San Fransisco.
Við stautuðum okkur fram út bæklingnum og komumst að því að sennilega væri Unik square í miðbænum. Þar fundum við hótel sem heitir King George Hótel. Þokkalegt hótel og í göngufæri við allt.
Leitað eftir hóteli á flugvellinum í San Fransisco.
Slöppuðum af eftirmiðdaginn, en fórum á röltið um kvöldið. Borgin iðaði af lífi, við fórum svo á hótelbarinn þar var live djass og blues, ungir strákar alveg frábærir músikantar.
Við vöknuðum snemma morgunin eftir og löbbuðum einn og hálfan tíma til að leita að stað til að borða morgunverð, annað en kaffi hús með sætum kökum og vöfflum. Fundum loks einn.... við hliðina á hótelinu, þar sem við höfðum reyndar snætt kvöldið áður. Eftir hádegið tókum við einn af hinum frægu Cable vögnum niður í ferðamannahluta borgarinna við höfnina. Fengum okkur að borða humar og krabba á frábærum stað í Fiehermanswharf við höfnina.
Útsýnið úr restaurantinum. Listamenn að störfum.
Teflt á Unik squaire.
Síðasti stóri jarðskjálftinn hér var 1989, hann lagði stóran hluta borgarinnar í rúst. Hér eru um 32 hæðir sem mynda borgina, en hún er frá sjávarmáli upp í 929 feta hæð. Þess vegna eru göturnar eintómar brekkur. Aðal samgöngutækin frá Höfninni í miðborgina eru rafmagnsvagnarnir. Þeir ganga fram og til baka, þessir gömlu vagnar.
Cable train.
Þessir vagnar voru teknir í notkun um 1873, það var maður að nafni Andrew Smith Hallidie, sem fann þá upp, áður höfðu menn hesta til að draga vagna upp og niður hæðirnar, en eitt sinn horfði hann upp á að hestur féll og vagninn dró hann niður eina hæðina og þá hét hann að finna upp leið til að gera samgöngurnar mannúðlegri.
Fyrir 155 árum var hér aðeins þorp en svo fannst gull í nágrenninu og síðan hefur borgin þanist út. Hún er ekki síður fræg fyrir margvíslegan arkitektúr. Hér býr fólk frá öllum heimshornum.
Flottur arkitektúr.
Listin blómstrar í miðborginni.
Við sigldum svo undir hina frægu Golden gate brú. Hún var 17 ár í byggingu og lengi vel var talið ekki væri hægt að byggja brú á þessum stað. Því gífurleg rok geta orðið þarna, og mikil þoka.
themightywolfman
Golden Gate. Liturinn er táknrænn og brúin er stöðugt máluð alla daga, öll ár. Brúin sveiflast 9 metra til og frá í mestu rokhviðum.
Í mörg hundruð ár sigldu spánverjar og aðrar þjóðir þarna framhjá, án þess að uppgötva innsiglinguna. En það var fyrir tilviljum að spænskt skip hraktist þarna inn fyrir sjávarstraumum. Straumurinn er svo mikill að oft er erfitt að komast þarna inn. Brúin sveiflast um 9 metra til og frá þegar kári geisar af fullu afli. Það eru menn allt árið, alltaf að gera við brúna og mála hana. Þeir byrja á einum enda hennar og þegar þeir eru komnir yfir er byrjað aftur þar sem frá var horfið. Oft gella við þokulúðrar þegar bátarnir koma inn, í þokumistri. Þokulúðrarnir við innsiglinguna gefa frá sér mismunandi hljóð, til að sjómenn átti sig á aðstæðum.
Alcatraz hin illræmda fangaeyja. Ekki er hægt að synda frá henni í land vegna þungra strauma.
Inn á miðjum flóanum er fangaeyjan Alcatraz. Þar voru menn hafðir í haldi og afar fáum tókst að flýja. Því ekki var hægt að synda frá henni sökum straumsins. Eyjan er núna til sýnis fyrir ferðamenn. Þarna er önnur eyja þar sem innflytjendur voru geymdir. Uns þeim tókst að sanna að þeir mættu flytjast inn til landsins. Þeir urðu að eiga ættingja í landinu til að fá dvalarleyfi. Aðallega voru það kínverjar. Og eru þeir áberandi í borginni. Önnur stór brú er hér hún kallast Bay brigde öðru meginn og Oaklandsbrigde hinu meginn, hún liggur í gegnum tvær litlar eyjar og er önnur kvikmyndastúdíó. Í jarðskjálftanum féll efra dekk hennar niður og kramdi þó nokkuð marga bíla undir farginu og margir dóu.
Við fórum á nokkur söfn, vaxmyndasafnið, og safn sem heitir Ripley´s Believe it or not. Eða furður veraldar.
Elíar í góðum félagsskap. Fídel, Hussein og Napóleon. Madam Tussaud er samt flottari.
Hér er margt að sjá og mikið um að vera. Hér eru allstaðar bílageymslur, kallaðar Parkhótel. Upp á níu hæðir, og kostar 30 dollara að geyma bílinn 24 tíma.
Síðasti dagurinn lofaði ekki góðu regnið buldi á rúðum hótelsins. En það stytti upp sem betur fer. Fórum aðeins í búðarrölt, í Macys og Old Navi. Þá varð nú amman gráðug, þvílíkt úrval af barnafötum.
Um kvöldið röltum við um í höfninni hér er aðalferðamannasvæðið, og margt um að vera.
Við fengum okkur að borða á Johns steakhouse. Ég fékk mér ostrur í forrétt og grillaðan túnfisk í aðalrétt.
Röltum um og rákumst á litla sjoppu þar sem hláturmildar Havairósir buðu okkur að freista gæfunnar og velja okkur ostru og gá hvort í henni væri perla. Ef ekki væri perla þyrftum við ekki að borga. Til að gera langa sögu stutta, þá fann ég fyrst eina bláa perlu sem er mjög sjaldgæf, og svo fékk ég að prófa aftur og fékk aðra, reyndi einu sinni enn og fékk þá eina hvíta. Ég lét gera hálsmen og hring með tveimur bláu perlunum, til þess var nú leikurinn gerður, og svo hálsmen úr þeirri þriðju sem var hugsuð sem sængurgjöf fyrir dóttur mína. Þetta kostaði all plús skartgripir fyrir mágkonu mína með hennar perlum um 800 dollara. En það var svo gaman að þessu og hreint upplifelsi að kvöldinu og aurnum var vel varið.
Svo var haldið upp á hótel King George, með cable train auðvitað.
Blómabarn sem lék fyrir þá sem biðu eftir fari með cable car. Hér sést aðeins í hringinn sem var snúið við til að rétta af vagnana. Gæinn átti örugglega bílinn i baksýn, svo hann hefur ekki verið á nástráinu.
Niður á höfninni. Hér hefur verið gert stórátak í að hreinsa flóann af mengun og sæljónin eru friðuð og þessi pallar gerðir sérstaklega fyrir þau. Það var bæði mikill hávaði og fnykur af þessum elskum.
Í perluleit.
Og Voila!!! Blá perla. Þessar Hawaisku sögðu að það hefði aldrei komið fyrir áður að einhver fengi tvær bláar perlu. En þær vissu auðvitað ekki að hér var norn á ferð.
Þegar heim á hótelið kom var verið að sýna í sjónvarpinu morðsögu með Jessicu Flecher, marga þætti, eiginlega alla nóttina. Og meðal annars þegar frú Flecher fór í cable car einmitt hér í San Fransisco. Vagnarnir ganga frá Unik torgi að Fishermans Wharf, á hvorum stað er svo snúningshleri sem er handsnúið, og svo aka vagnarnir til baka.
Daginn eftir var svo haldið til Boston og það þurftum við aðeins að bíða á flugvellinum, þá var tíminn notaður til að ljúka við að lesa þær bækur sem ég hafði fengið lánaðar hjá góðum vini. Og svo var farið upp í flugleiðavél og haldið heim á kalda gamla frón.
Gamla frón, Vestfirðir, í ljósbrotum. Það er einmitt á svona stöðum sem nornir verða til.
Fullt tungl!!!
Hér með lýkur þessum ferðabrotum mínum. Eg vona að þið hafið haft gaman af, og getað upplifað í huganum ferðalagið með mér. Þegar maður ferðast svona á eigin vegum, þá kemst maður nær fólkinu sjálfu og tengist betur landi og þjóð. Það gerir ferðalagið miklu innihaldsríkara.
Sögulok.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
9.11.2012 | 03:55
Kisur og notalegheit undir svefninn.
Kisur og gestir. Svona bara í komandi stormi og leiðinda veðri. Ég er svo heppin að hafa hjá mér tvær yndislegar konur, Rosemary og Bryndísi og við vitum eiginlega ekkert hvernig áætlanir verða eða hvað gerist næstu sólarhringana, en við erum bara ákveðna í að láta þetta bara allt rúlla, og svo er auðvitað Úlfurinn minn líka. Hvernig sem allt æxlast þá erum við bara ákveðna í að gera það besta úr öllu. Ég ætla að elda kjötsúpu á morgun og svo kemur bara í ljós hvort Rosemary kemst inn í Bónus til að selja sína skartgripi til styrktar fólkinu í Kenýa og svo hvort Bryndísi tekst að komast til að sinna fólkinu sem vill fá handleiðslu um ástandið á húsinu sínu eða dýrahúsunum. Þetta kemur bara í ljós.
En ég hef verið að taka nokkrar myndir af kisunum mínum. Lotta mín situr um að fara með mér upp í gróðurhús þegar ég fer þangað til að sinna plöntunum, þá finnur hún sér notalegan stað til að liggja á og bíða meðan ég gerið það sem ég þarf að gera, og það er þvílíkur félagsskapur að henni þessari elsku.
En nú hefst myndasýningin.
Það er notalegt að kúra sig hjá Rosemary.
Jamm þetta er bara notalegt.
Svo þarf aðeins að þrýfa sig.... eða þannig.
Spá aðeins í hlutina.
Smá rauðvín hefur nú aldrei skaðað.
Kitli kitli kitl....
Mamma mamma heheheheh...
Umm svo notalegt...
Mamma það er svo notalegt að vera hjá þér
Já og það er líka notalegt að vera hjá Rosemary..
MMM notalegt.
OHH já kósý.
Flottasti kattapabbi í heimi.
Ha ertu að tala við mig?
Stelpurnar mína að hafa það notalegt..
Ah komin tími á afslöppun.
Eitthvað spennandi að gerast?
ég er sko flottastur..
Þú þarf að þrífa þig krakki... og ekkert röfl.
Oh hvað það er gott að vera laus við unglingana og geta bara slaka á.
Ert þú ennþá vakandi krakki?
Svo rífur maður dúkana af stofuborðinu hjá mömmu, því það er svo notalegt að leggja sig þar.
MMM það er líka svo notalegt að fara að lúlla sér.
Góða nótt elskurnar og sofið rótt í alla nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
8.11.2012 | 13:53
Munum eftir einyrkjunum í jólagjafaflóðinu.
Ætla að benda á blogg eins af bloggvinum mínum, sem mér finnst skemmtileg tilraun.
Hey hér er hugmynd fyrir jólin: kaupum jólagjafirnar frá fólki sem er sjálfstætt starfandi, eða er með einhverskonar, lítinn rekstur, jafnvel heima, vinnur kannski í skúrnum heima, eða er með handgerða hluti,kannski prjónaskapur,málverk, fuglar,veitngastaður í þínum heimabæ eða lítil verslun sem gæti alveg munað um að þú verslir þar fyrir jólin
http://nafar.blog.is/blog/nafar/entry/1267032/
Þetta er frábær hugmynd og í anda þess vandamáls sem við eigum við að glíma í dag, þ.e. græðgi þeirra stóru og peningaaflanna. Hlúum að hinum litla kaupmanni á horninu og gefum persónulegar gjafir.
Og svo vil ég minna á að Rosemary er ekki farin, hún er núna inn í Bónus að selja fallegu gripina sína til skólauppbyggingar í Kenya.
Margt þarna í jólapakkan fyrir þá sem ekki eiga of mikið milli handanna, en svo sannarlega gleðja.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
7.11.2012 | 13:35
Þjóðin hefur talað.
Hér um árið talaði Þorgerður Katrín um miðaldra hvíta karlmenn. Þetta sagði hún í samabandi við einhverjar kosningar man ekki lengur. Vildi meina að þeir réðu meira en gott þykir. Nú er auðvitað ekki verið að tala um alla miðaldra hvíta karlmenn, heldur ákveðin hóp fólks karla og kvenna með ákveðnar skoðanir, sem snúast mest um völd og peninga.
Í nótt sigraði hjartað græðgina í Bandaríkjunum að mínu mati.
En ég held að þetta sé merki um breytingar í heiminum. Þetta var barátta milli manneskjulegrar hugsunar og virðingu fyrir öllu sem lifir, og svo hin harða afstaða fólks sem vill ákveðna forsjárhyggju, til dæmis í málefnum kvenna, trúmálum og minnihlutahópa.
Þetta sést vel þegar litið er á stuðningsmenn Baraks Obama, en í þeim hópu voru africanamerikans, rómanska fólkið, samkynhneygðir, konur og ungt fólk. Sem sagt allt litrófið.
Um leið og þetta er skoðað kemur í ljós að rebublikanar eru búnir að mála sig út í horn með þröngsýni í trúmálum, kvenfrelsi og almennt frelsi fólks til að hafa sinn lífsstandard.
Ég til dæmis var farin að hafa áhyggjur af því að Bandaríkinn væru að breytast í eitt allsherjar biblíubelti, þar sem engin skynsemi kemst að að mínu mati. Einnig gagnrýnislausrar vináttu við Ísrael, svona a la Bush.
En í nótt sýndu Bandaríkjamenn að það er ennþá töggur í þeim, og að loks eru þeir farnir að láta að sér kveðja í að betrumbæta heiminn. Þarna gæti spilað inn í mótmælin sem verið hafa (90%) Rétt eins og ég held að 12 þúsund manna ganga Ómars Ragnarssonar niður Laugaveginn vakti okkar þjóð til vitundar um að við getum staðið saman um marga hluti, ef við viljum.
Ég held líka að þetta verði vitundarvakning í heiminum um hófsamari tíma og jafnvel renni styrkari stoðum undir lýðræði í heiminum. Þetta er auðvitað bara lítið skref, en skref samt í rétta átt.
Og ekki bara það. Ég veit að fólkið mitt frá Kenya beið í ofvæni eftir úrslitum í þessum kosningum, því þau eru viss um að ef Romney hefði sigrað, hefði núverandi stjórnvöld í Kenya haldið völdum í kosningum á næsta ári. En sögðu þau Obama hefur vakandi auga á stjórnvöldum og þekkir vel til í Kenya, hann er okkar eina von.
Það skyldu þó ekki vera fleiri þjóðir sem svo er ástatt um.
Þegar ég horfði á öll þessi glöðu og þakklátu andlit sem hafa birst í myndum frá útslitunum, er ég ekki í nokkrum vafa um að þessi niðurstaða er góð fyrir okkur öll.
Og ég verð líka að segja Romney til hróss að hann tók vel á þessu og hvatti til meiri samvinnu milli flokkanna tveggja stóru. " Ég vildi leggja mitt af mörkum til að breyta Bandaríkjunum, en þjóðin hefur talað og ég virði þá niðurstöðu".
Vonandi gefur það fyrirheit um að þessir tveir flokkar vinni betur saman að heill amerísku þjóðarinnar. Og að þeir fari frekar með friði í heiminum en hefur verið til þessa.
Þessi orð ættu að hljóma í hverju landi. Og vonandi verður sú rödd sterkari og kraftmeiri þegar fram líða stundir. Þjóðin hefur talað, hefur lýst vilja sínum og það er jú hún sem á að ráða.
Til hamingju Barak Obama og fjölskylda.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
5.11.2012 | 20:34
Rosemary er komin aftur.
Vinkona okkar frá Kenía er komin aftur til Ísafjarðar, Þau hjónin hafa verið dugleg að safna fyrir skólanum í Kenía og í ágúst opnuðu þau skólann, þar eru núna 50 börn, og það er áætlað að bæta við fleirum eftir áramótin. Vinkona mín Anna Skúladóttir fór til Kenýa í ágúst, til að hjálpa til við að kenna og koma starfskröftum að vinna á leikskóla en Anna er lærð fóstra, vann m.a. í Bolungarvík fyrir nokkrum árum.
http://tearschildren.wordpress.com/ Þau Poul og Rosemary hafa unnið þrekvirki að koma þessum skóla á laggirnar. Munirnir sem þau eru að selja eru unnir af einstæðum mæðrum, sem fá vinnu úti í Kenýa við að búa til skartgripi og myndir og allskonar fallega muni.
Tók þessa mynd í dag í Samkaupum, en hún verður þar líka á morgun, en miðvikudag fram á laugardag mun hún verða í Bónus. Þetta eru allt fallegar jólagjafir og verðin við hæfi hvers og eins.
Anna mín, ég kynntist henni fyrst þegar hún var hér kaupfélagsstjórafrú og dætur okkar voru svo samrýmdar að þær voru heimagangar hvor hjá annari.
Glöð og hamingjusöm börn að fá að ganga í skóla í fyrsta skipti á ævinni.
Og hér er skólinn, þarna læra þau m.a. íslensku.
Hér er hópur frá Akranesi sem fór út til Kenýa að kynna sér málin og hjálpa til.
Tók þessa mynd í vor þegar hún var hér.
Það er margt að skoða og bæði listaverkin og konan sjálf eru hlýt og yndisleg.
Mæli með henni og eiginmanni og því óeigingjarna starfi sem þau inna til að hjálpa fólkinu sínu í Kenýa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
5.11.2012 | 00:57
Sjónvarpskonsert og veður.
Var að skoða sjónvarpsdagskrána í kvöld, og þótti hún ekki mjög áhugaverð. En svo var heldur ekki mikið að gera hjá mér svo ég hugsaði svona að það mætti prófa að horfa. Landinn er jú alltaf þjóðlegur og fróðlegur, og svo kom dagskrá eitthvað sem nefnist Söngfuglar. Konsertinn var í Salnum, þar voru tveir söngvarar karl og kona með hljómsveit. Þau voru með á efnisskránni lög sungin og samnin af Alfreð Clausen og Ingibjörgu Þorbergs söng- skálda og útvarpskonu. Og ég hugsaði með mér Nei þessu nenni ég ekki.
En svo var eiginlega ekkert að gerast í mínu lífi, svo ég ákvað að horfa á þetta show. Og ég get svo svarið það að ég var með aulaglott allan tíman. Nostaltían á fullu. Þegar ég var krakki og unglingur þá var heimilisritið keypt á mínu heimili, og þar var alltaf á forsíðu söngvarar og frægt fólk. Og ég lék mér með þessar persónur fram og til baka, í ævintýrum. Þarna voru bæði Ingibjörg og Alfreð, bæði að mínu mati afar hallærisleg. En svo núna skil ég betur þvílíkir snillingar þetta fólk var. Og bara að hlusta á þessi lög og texta þá er smám saman að opnast fyrir mér að við erum ekki bara að slá í gegn núna með okkar Björk, Sigurrós, monsters of men, og allar þessar flott hljómsveitir og söngvara. Heldur það sem var á þessum tíma að það hreinlega vantaði internetið og þá áherslu sem núna er. Við höfum nefnilega alltaf átt tónlistarmenn og tónskáld á heimmælikvarða.
Afsakið gæðin eru ekki upp á það besta, því ég bara tók myndirnar af sjónvarpinu.
Man ekki lengur nöfn þeirra nema hann heitir Ívar Helgason en hef gleymt hennar nafni.
Hér er hann að syngja um ömmu, og reyndar les allan textan af blaðiMargar góðar sögur amma sagði mér...
Söngkonan var afar heillandi, þó ég muni ekki nafnið, og í raun stjórnaði hún atburðarrásinni.
Hljómsveitin var frábær og þeir á öllum aldri.
Ég heyrði reyndar á þeim í kvöld að þau ætluðu að halda áfram þessum konsertum, núna voru það Alfreð Clausen og Ingibjörg Þorbergs, næst verður það Ragnar Bjarnason og einhver kvensöngkona. En það kæmi mér bara alls ekki á óvart að þau hefðu hitt á eitthvað konsept sem blívur. Og að þau og hljómsveitin slái í gegn í svona nostalgíu, verði einhverskonar "hitt" sem mun slá í gegn.
En að veðri, hér sést hver mikið hefur snjóað bara í gær og fyrradag.
Ég get alveg sagt ykkur að það er hrein martröð að vaða snjóinn upp í mitti í ótroðnar slóðir til að gefa hænunum og tékka á gróðrinum upp í gróðurhúsi. Það er bara þannig að finna sig sökkva niður í hverju skrefi það er ótrúlega íþyngjandi.
En svo kemur gott veður inn á milli. Ég kalla þetta túss fjöllin, þegar þau skarta þessu flotta konsepti milli snjóa og jarðar. ótrúlega flott.
Það er algjör forgangur að hafa svona málverk fyrir framan dyrnar hjá sér, ég get svo svarið það.
Svo snýr maður sér við og horfir inn á flottan gróður. Það eru ekki allir sem eiga svona fjársjóð.
Talandi um fegurð...
Ég er svo sannarlega þakklát fyrir að fá að vera hér og finna þá fegurð sem býr í öllu kring um mig.
Stubburinn minn var að troða uppganginn fyrir ömmu sína, sem hann elskar fölskvalaust.
Jamm og svo má hvíla sig, þega hann veit að amma getur nokkurnvegið stautað sig upp heimreiðina í troðningi.
Eigið góða nótt elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
2.11.2012 | 16:30
Ferðalag á hlýjum slóðum í óveðrinu hér heima.
þar sem ég sit hér í kósýhorni með kertaljós og hef það notalegt meðan snjóar og vindurinn hvín um allt land. Langar mig til að bjóða ykkur í áframhaldandi ferðalag, nú til Belize og aftur til Mexico.
Frá landamærunum til Belizeborgar eru tveggja tíma akstur. Í Belize eru svartir menn, en þeir eru fíngerðari en þeir svertingjar sem maður sér oftast. Þeir eru fríðir og andlitsfall þeirra er meira evrópskt. Enda kalla þeir sig Creola eða blendinga. Enska drottninginn er ennþá á peningunum þeirra Belizedollurunum.
Strax sást að Belize er greinilega auðugra land heldur en Guatemala. Fallegri hús, mikið hreinlegra. Kirkjugarðarnir voru þó skreyttir á sama hátt. Með fallegum blómsveigum og allskonar litskrúðugu plasti.
Hér eru líka fallegri garðar, og meira lagt upp úr umhverfinu. Fyrsta skiltið sem við sáum var áróður um að skipta um stjórn. Of lág laun, of mikil spilling, fjármunum sóað í vitleysu. kjósum rétt, kannast einhver við svona?
Fyrst ókum við gegnum þykkan skóg, þar næst tók við akurlendi með búfé á beit. Síðan lágaxin gróður, þar voru stofublóm okkar í sínum fegursta skrúða í skógarþykkninu. Við sáum að húsin stóðu gjarnan á stöplum, og greinilegt er að hér er há grunnvatnsstaða. Allstaðar dýki, sýki og leirur. Við vorum komin til Belizeborgar um kl. 10.30. Og fórum rakleitt niður á bátabryggju og tókum bát út á eyjuna Caye Caulker. Þetta er rúmlega klukkutíma bátsferð á hraðskreiðum bát.
Eyjan er sandfláki. Hún rétt stendur upp fyrir sjávarlínu. Þarna eru fáir íbúar, mest eru þarna ferðamenn, og svo þeir sem þeim þjóna. Á kajanum stóðu þeir í biðröð leiðsögumennirnir. Rifust um kúnnana, þeir voru með hjól með skúffu aftan á þar sem dóti ferða mannanna var komið fyrir, svo fóru menn fótgangandi, því það tekur svo sem eins og tuttugu mínútur að labba eyjuna enda á milli. Sá sem náði athygli okkar heitir Kristófer. Þeir stóðu nokkrir og hnakkrifust um hver ætti að aðstoða okkur, hver hefði séð okkur fyrst og hver ætti rétt á að koma okkur á hótel. Eftir nokkurt þjark settum við töskurnar okkar á hjólið hans Kristófers, voru hálf þreytt og dösuð og vildum helst komast á hótel sem fyrst.
Svona eru leigubílarnir á Caye Culker, þeir fá vörur frá landi.
Hér tala allir ensku öll skilti á enska tungu og auglýsingar, ágætis tilbreyting frá spænskunni. Við röltum svolítið um til að velja okkur hótel. Völdum loks eitt sem heitir Tropical Paradiso. Þrifalegt lítið hótel. Alveg niður við ströndina.
Hotel Tropical Paradiso.
Á fyrsta skiltinu sem ég sá stóð: Ókurteisi er fyrsta stigið í ofbeldi. Uncourtsy is the first step to violense. Þetta er frábær lítil eyja, verðurfar mátulega hlýtt og vindur af hafi sem kælir, engir bílar nema löggubíllinn. Nokkrir golfvagnar og reiðhjól og traktorar, kókbíllinn er til dæmis traktor með aftanívagni. Hér flauta menn ekki á vegfarendur, þeir segja Bíbb bíbb. Þeir segjast ekki vilja fá mengunina af bílum og hávaðan. Öll húsin eru lágreist og lítil. Allt hér í róleg heitum. Húsin standa öll á stólpum, við héldum að það væri vegna flóða, en fólkið sagði okkur að það væri til að óvelkomin dýr kæmu ekki inn.
Húsin standa öll á stöplum.
Kókbíllinn.
Aðalgatan í Caye Culker
Belizebúar eru vingjarnlegir og þægilegir. Ekki svo langt síðan þeir losnuðu undan bretum. Kristofer var glaðlyndur og þekkti greinilega alla. Hann á fjórar kærustur og 13 börn með þeim. Hann vinnur fyrir sér með því að fara niður á bryggju þegar bátarnir koma og krækja sér í kúnna til að leiðbeina á hótelin. Hann sýnir manni í leiðinni hvar allt er. Pósthúsið, bankinn, bestu veitingastaðirnir. We are good people segir hann og hlær.
Daginn eftir fórum við að snorka. Karabiska hafið er kjörinn vetvangur til þess. Við sáum skötur, þær eru gæludýr hérna, innan um þær syntu nokkrir hákarlar, og fór nú svolítið um okkur við að sjá þá. En skipstjórinn hann Glenn hló bara og demdi sér út í vatnið og svo fóru allir á eftir. Hann var með svolitla beitu sem hann hafði tekið með sér til að laða sköturnar að, og svo gat maður klappað þeim og jafnvel tekið í fangið. Þær eru mestu krútt Ég sagði honum að á Íslandi ætum við sköturnar. Hann hrópaði Alberto!! og benti á eina skötuna, Alberto ekki synda til Íslands þeir éta þigþar.
Svo var farið á næsta stoppistað út að kóröllunum, og þar var farið í langan sundtúr. Ég sleppti því nú samt og synti bara kring um bátinn og skoðaði fiskabúrs fiskana sem þar voru. Það var stoppað á einum stað enn, til að skoða fiska og þar dró Glenn upp melónu og skar í bita og gaf öllum um borð með sér.
Hákarlar og skötur.
Þetta var mjög skemmtilegt. Og hreinn er hann sjórinn við Belize. Þarna eru kórallarnir alfriðaðir og liggur refsing við að brjóta eða skemma þá. Innfæddir Belize búar hafa sitt eigið tungumál, þeir kalla það Creola. En mest tala þeir ensku eða spænsku. Eyjan er bara sandur, og hér og þar er smágróður, og pálmar. Göturnar eru bara sandur sem og patíóin hjá þeim, og þeir sópa bara eða raka yfir sandinn.
Vorum þarna í þrjá dag og nutum góða veðursins og hvíldar eftir allt rútuferðalagið. Þegar við komum til borgarinnar fengum við að vita að rútan upp til Mexícó var farinn þann daginn. Við ætluðum sem sé ekki gegnum Guatemala í þetta sinn nenntum ekki að hristast í rútunum á leirvegunum þar. Ferðinni er heitir til Chetemal. Okkur var sagt að það væru hótel þarna skammt frá, og röltum því af stað með allt dótið. Þar hóaði í okkur bílstjóri, við ætluðum ekki að sinna honum neitt. En svo var orðið svo heitt og við þreytt þannig að við ákáðum að fá hann til að fara með okkur á hótel. Eg þekki öll hótel, sagði hann það kostar bara 5belize dollara að aka ykkur. Allt í lagði sögðum við.
Bílstjórinn fór fyrst með okkur á gististað, þar sem húsráðandinn var austurlensk, sennilega frá Kína. Herbergin voru eftir okkar meiningu algjörar rottuholur. Eg myndi ekki setja hundinn minn þarna inn sagði Elías. Ég veit um annan góða stað sagði hinn greiðvikni bílstjóri og brosti út að eyrum. þetta var hvort sem ekki ekki nógu gott fyrir ykkur sagði hann svo sannfærandi. Á næsta stað bauð okkur velkomin kona frá Pakistan, allt svæðið var víggirt við vorum niður í miðbæ, og ekki frýnilegt að fara um. Ég myndi nú ekki einu sinni þora að fara út fyrir dyrnar hér að kvöldlagi sagði mágkona mín. Já sagði bílstjórinn, ég veit um mjög góðan stað. Þarna inni sat Palestínumaður þeir eru alltaf til vandræða sagði hann þegar út í bíl var komið.
Loksins komum við að mjög fallegu stóru húsi, The Great House. Stóra húsið. Þetta er hús byggt 1927 fyrri fjölskyldu Barney Methaldo. Frægan kaupmann frá Belíze. Glæsibygging, eins og plantekru húsin í Bandaríkjunum. Við fengum stóra svítu með öllum þægindum og gríðarstóru baði. Leigubílstjórinn var mann ákafastur að fylgja okkur upp á herbergi og skoðaði allt eins og krakki sem kemst í sælgæti, hljóp inn á bað, og svo hló hann og lék við hvern sinn fingur. Bíllinn kostaði svo 15 belize dollara, vegan þess að við stoppuðum þrisvar, sagði hann og brosti blítt. Ég gat gripið í handlegginn á Elíasi svo hann hjólaði ekki í þetta náttúrubarn. Við tékkuðum okkur inn og fengum okkur hádegismat á Smokey Mermaid Restaurant. Grillaðan humar, hvað annað hér eru humrar og rækjur það besta, vegna nálægðar við sjóinn og gjöful fiskimið.
The Great house. Appelsínu uppskerutíminn er greinilega núna Appelsínurnar í bílförmum.
Við höfðum beðið bílstjórann um að sækja okkur á hótelið næsta morgun. Frúin var með honum í bílnum, hann kynnti hana fyrir okkur, þetta er kærastan mín, sagði hann hróðugur. Hún var greinilega eldri en hann, en afskaplega elskuleg kona. Hún sagðist eiga tvö börn 9 og 12 ára, frá fyrra hjónabandi. Hann hefur sennilega verið að segja frá ævintýrum gærdagsins og hana langað að sjá þetta fólk frá fjarlægum heimshluta. Hann kom mínútu of seint og afsakaði sig í bak og fyrir, sagði að yfirvöld hefðu kolranga stefnu í málefnum borgarinnar, það væri ekkert gert í að laga umferðargötur og greiða fyrir umferð. Hér væri mikil spilling stjórnmálamanna, mútur og svindl. Svo selja þeir passa til glæpamanna sagði hann hryggur. Ég kaus sko ekki síðast sagði hann ég fór á kjörstað, en biðröðin var svo löng, ég nenni ekki að standa í biðröð. Kannski fer ég að kjósa núna, ef biðröðin verður ekki of löng. Sagði hann.
Á rútubílastöðinni snérist hann í kring um okkur eins og skopparakringla, voða hjálpsamur, ég stakk 5belize dollurum í lófa hans og hann ætlaði eiginleg ekki að taka við honum. Þakkaði fyrir sig og sagði að hann yrði að fara hann væri nefnilega búin að bjóða frúnni út að borða.
Hér heilsa manni allir og brosa, jafnvel heyrist Good morning my friend. Óvenjulegt í stórborg.
Þar sem við sátum og biðum eftir rútunni heyrðum við sálmasöng. Í dag er mánudagur, og þeir hér eiga frí á mánudögum. Það var samt einhver vígsla í gangi, því það var löng strolla af hempuklæddum manneskjum, körlum og konum einhversskonar dómarar, eða þannig. Skrúðganga, með sálmasöng.
Rútan sem átti að fara klukkan tíu, fór fimm mínútum yfir ellefu. Okkur hafði verið sagt að mæta hálftíma fyrir brottför til öryggis, svo mikið fyrir Mið Amerískan tíma.
Aðalvegir í Belize eru malbikaðir, en götur í þorpum og bæjum eru bara eins og jarðvegurinn er. Þeir slá grasið meðfram veginum að mestu leyti örugglega til að halda gróðrinum í skefjum. Húsin standa öll á stólpum. Þakið mest með bárujárni, stráum eða leirþakflögum.
Við komumst klakklaut yfir landamærin, þurftum að borga 30 dollara til að komast út úr Belize. Komum til Chatemale um kl. eitt. Fórum svo með rútu til Villa Hermosa, mjög fallegs bæjar. Leituðum að góðu hóteli, fórum þar á Casa inn ágætis hótel.
Ríó Grejalva í Villa Hermosa.
Morguninn eftir fórum við á bæjarrölt. Í Borginni eru margir garða og græn svæði og mjög snyrtilegt. Um hann rennur áin Rio Grejalva, við sáum ekki brú, en ferja eða kláfur virtist ferja fólk yfir hana. Rútan til Mexícó fór ekki fyrr en klukkan átta um kvöldið, þannig að við höfðum nægan tíma, fengum að geyma farangurinn á hótelinu, og fórum og skoða dýragarð og plöntusafn sem er þarna rétt hjá, sem kallast Ymka sem þýðir á índíjánamáli Álfur sem verndar dýr og gróður. Það var fróðlegt að fara þarna um, dýrin eru að mestu frjáls, en ekið er um svæðið á traktor með vögnum þar sem eru sæti fyrir fólk.
Í Ymka
Voða notalegt.
Tókum góða rútu Linea one til Mexícó City, ákváðum svo að stoppa ekki þar heldur halda áfram til bæjarins Morelia, þar í námunda eru mjög fræg fiðrildi. Á leiðinni frá Villa Hermosa til Mexícó vorum við stöðvuð fjórum sinnum, og hermenn komu inn í rútuna og skoðu farþegana, báðu suma um passa, okkur létu þeir algjörlega í friði. Mágkona mín hélt að þeir væru að leita að fólki frá Guatemala. Það eru um 11 tíma akstur frá Villa Hermosa til Mexícó city.
Morelía er geysilega fallegur bær, háskólabær, og eiginlega er allur miðbærinn eitt allsherjar listaverk. Miðbærinn var byggður allur á sama tíma um fimmtán hundruð. Þá var reistur varnarmúr umhverfis hann með 1200 bogagöngum. Hluti þeirra er nú hulin jarðvegi, en ennþá má sjá sum þeirra og um aðalbogagöngin er ekið inn í bæinn, yfir boga göngunum er freska með tveimur stúlkum sem halda á ávaxtakörfum, tákn um frjósemi og góða uppskeru.
Með fegurstu bæjum, Morelia.
Íbúar Morelia eru 1.500.000 og búa í 800 Coloníum, eða hverfum. Það er örugglega frábært fyrir arkitekta að fara þarna og skoða þessar fallegu og stílhreinu byggingar og hve allt er ótrúlega heillandi, að vísu eru göturnar í miðkjarnanum orðnar dálítið þröngar fyrir nútíma umferð. Aðalatvinnuvegur borgarinnar er ferðamennska og smásala í kring um það, og svo skólarnir.
Hér í grendinni er bærinn Ancangeó, þar er mjög stutt í Chicua Mountain Range Sierra Chincua. Sem er frægur fyrir fiðrildin. Á fimm stöðum hér um slóðir koma um 250 milljónir fiðrilda árlega frá Canada. Bara til Sierra Chincua koma um 40 milljón þeirra. La Mariposa Monarca. Þau klekjast út í suðurríkjum Bandaríkjanna, fljúga svo til Canada og þegar fer að hitna þar fljúga þau í stórum hópum til Mexícó, alast þar upp, í apríl fljúga þau svo yfir Mexícóflóann og aftur til Bandaríkjanna til að verpa. Þau lifa í níu mánuði, meðan önnur fiðrildi lifa bara í 27 daga. Atferli fiðrildanna var uppgötvað um 1870, en varð ekki aðgengilegt túristum fyrr en árið 1965, á þá aðeins á þeim tveimur stöðum af fimm. Fyrir nokkrum árum þegar við vorum í Guadalajara þá heyrðum við fyrst af þessum fiðrildum, þar sjást þau koma eins og ský yfir borgina á leið sinni til Sierra Chincua. Einnig sjást þau í Mondevideo.
Við fengum okkur morgunmat morgunin eftir og geymdum farangurinn á hótelinu, keyptum okkur fararstjóra til að fara með okkur upp í fjöllinn, við þurftum að borga aðeins meira þar sem við vorum bara þrjú, en lágmark eru fjórir, en þessu vildum við ekki missa af.
Lagt var af stað kl. hálf níu. Af þeim fimm stöðum sem fiðrildin koma á eru einungis tveir opnir almenningi. Og Sierra Chincua er auðveldari hann er þó í um 3400 metra hæð. Fararstjórinn sagði okkur að sífellt fækkaði fiðrildunum og í ár komu bara 110 milljónir, þeir hafa áhyggjur út af þessu, og miklar varúðarráðstafanir eru gerðar. Strangar reglur eru um umferð og umgengni. Til dæmis má ekki fara nálægt svæðinu með hesta né önnur dýr ekki tala hátt og engu henda á jörðina, alls ekki snerta neinar plöngur né fjarlægja dauð fiðrildi sem liggja á slóðinni. Á öllum svæðum sem fiðrildin hafast við vex planta sem heitir Asclepia sem nærir fiðrildin hún er eitruð öðrum skordýrum og ver fiðrildin fyrri ágangi annarra skordýra, vegna þess að þau taka eitrið í sig.
Leiðin var skemmtileg. Héraðið sem við fórum í gegnum eða fylkið heitir Michoacan. Við fórum fram hjá stóru svatni þar sem bílstjórinn sagði að væru ræktuð grasker, og heitir vatnið eftir þeim Graskerjavatn. Við fórum líka gegnum stóra akra af trjám sem hann sagði að væru ferskjuakrar. Hann sagði að það væri mjög flott að sjá þessa akra á vorin fyrst stæðu trén í blóma og svo kom ávöxturinn án þess að nokkurt blað væri á plöntunni. Reyndar voru menn nýbúnir að tína ávextina núna. Þegar þeir tína ávextina, setja þeir upp markaði meðfram veginum og selja og gefa(fátækum) vegfarendum ferskjurnar. En þær eru aðalútflutningsvara þeirra.
Við fórum líka framhjá stað þar sem vöktu athygli mína einkennilegar lágreistar byggingar. Trjásúlur með þaki, ýmist úr leirflögum eða bárujárni við þessar byggingar var hlaðinn einskonar turn með þaki yfir sem lá á lágum súlum.
Bísltjórinn sagði okkur að þarna framleiddu þeir steina og þakflögur úr leir. Turnbyggingin er ofnin sem þeir kynda með timburkurli.
Leirverksmiðja.
Við fengum að skoða eina slíka verksmiðju. Þarna var fjölskyldan að búa til þakflögur allt gert í höndunum. Þeir vinna leirin úr jörðinni sem er rík af leir. Hreinsa hann í höndum uns hann er alveg laus við sand og önnur efni. Svo er hann verkaður með vatni þangað til að hann er mátulega þykkur til að móta steinana eða flögurnar. Þeir eru svo með heimasmíðuð mót. Móta flögurnar eða steinana leggja það á gólfið uns nægileg magn er til staðar svo er þessu raðað í ofninn um 1.600 flögur. Byrgt fyrir opið með aflóga steinum og síðan fyllt inn í rifur með leir. Svo er lítill trékross látinn í leirinn til að Guð sé með þeim í verki. Ofnin kynntur í 12 til 18 tíma eftir stærð og þykkt steina. Sonurinn á bænum rauf gatið á ofninum til að sýna okkur Eftir 2 daga sem liðnir voru frá kyndingu var ennþá funhiti í ofninum.
Ofninn.
Ofninn opnaður, sjáið litla trékrossinn í opinu.
Við fórum í gegnum nokkur skemmtileg þorp í leiðinni. A sumum stöðum þarna hafa indíjánarnir ennþá sitt tungumál Purepec sem þýðir Fólkið í þorpinu. En það mál er frekar talað í sveitunum. Síðasta þorpið áður en haldið er á fjöllin er fallegt þorp sem heitir Ancangeo. Þetta þorp er í miklum halla í þröngu dalverpi og húsin upp um allar hlíðar. Smátorg er í miðjum bænum og tvær stórar kirkjur sitt til hvorrar handar. Önnur tilheyrir Guadalupe en hin Ensku Gevalisku kirkjunni. Hér trúa margir á svarta krist. Fararstjórinn sagði að þorpið væri vinsælt til kvikmyndunar og þar væru teknar upp sápuóperur, eða framhaldsþættir svipaðir og Leiðarljós. Húsin voru öll fagurlega skeytt með pottaplöntum aðallega pelargoníum. Virkaði mjög flott. Svo sá maður Friðarliljuna eins og túnfífil fyrir utan lóðina. Þorpið stendur í 3000 metra hæð. Og áttum við eftir 400 metra til viðbótar að staðnum þar sem ferðin til fiðrildanna byrjar.
Götumynd í Ancangeo, sjáið kirkjurnar tvær í baksýn.
Svona lítur þorpið út.
Sierra Chincua er pínulítil húsaþyrping, þar sem eru veitingahús og sölubásar. Allt mjög hrátt og hróflað upp. Um 3ja tíma gangur fyrir konurnar frá þorpinu að labba með allt sitt hafurtask á höfðinu ef þær áttu ekki bíl, sem þær eiga auðvitað ekki. Þarna sáum við marga hesta beislaða og söðlaða, karlmenn sátu eða lágu í grasinu að bíða eftir viðskiptavinum.
Matsölustaðurinn þessi með rauða stiganum.
Fína gestaborðið, fararstjórinn í bakgrunni.
Við vorum orðin svöng og fórum inn á þann frumstæðasta veitingastað sem ég hef á ævi minni farið inna. Hann var í miðri lengjunni af samskonar húsaröð. Gólfið var steypt en ekki sléttað, inni meðfram einum veggnum var langborð með fínum jóladúk, greinilega fyrir viðskiptavini, trjábolir sem sagaðir höfðu verið í tvennt voru bekkir sitt hvoru meginn við borðið. Annað dúklaust óheflað borð var við næsta vegg greinilega fyrir heimamenn. Í horninu var skápur og nokkurs konar borð þar sem geymd voru eldhúsáhöld og koppar og kyrnur. Við hliðina á inngangnum var hlaðinn ofn með stórri pönnu sem kynt var undir, þar við hliðina var borð þar sem geymd voru fleiri áhöld diskar og vaskafat með vatni. Auk þess borð til að búa til tortillur. Við fengum kjúklingasúpu eða eitt læri og soðið með. Tortillur úr bláum maís með osti og sveppum örugglega týnda úr skóginum.
Eldhúsinnréttingin.
Þarna er gríðarstór skógur alla leið frá Ancangeó. Landslagið minnir mig á Svartaskóg, mikið af furu, greni og sýpris. Við gerðum matnum góð skil og drukkum kók með, enda orðin svöng. Það var ákveðið að leigja hesta til fararinnar, okkur leist ekki á að ganga því þarna er andrúmsloftið orðið ansi þunnt og maður er fljótur að mæðast. Við gátum valið um stóra gæðinga eða litla, svipaða íslenska hestinum, nema mikið fíngerðari. En ekki nándar nærri því eins fótafimir. Við riðum í hálftíma um skóginn eftir þröngum og krókóttum stíg.
Riðið af stað.
Nú var gróðurinn orðin öðruvísi, runnamura þistlar og þöll bættust við furuna og grenið, en ekki lengur sypris eða thuja. Sá líka víðir líkan Silfurvíðir. Loks komum við að rjóðri, þar sem stóð að hestarnir mættu ekki fara lengra. Við urðum svo að fara fótgangandi 15 mínútna leið upp og niður krókóttan stíg. Maður var orðin ansi móður og andstuttur. En Guð minn góður þetta var stórfengleg sjón sem við blasti. Milljónir fiðrilda um 40 milljón á litlu svæði, rauðbrún með svörtum rákum og svo falleg. Trén bókstaflega rauðbrún af fiðrildum og loftið bleikt af fljúgandi fiðrildum. Mariposas Monarca þvílík undur og dásemd. Og ferðin erfiða svo vel þess virði. Við sátum lengi í algjöru tómi, ekkert hljóð, og bara horfðum á þessar fallegu verur flögra um. Þetta var eins og heilagur staður.
Milljónir af fiðrildum.
Þetta er karldýr það sést á litlu svörtu doppunum á neðri vængjum.
Á ferð og flugi.
Svo var að staulast til baka skríða upp á hrossið og láta það bera sig til baka. Níu klukkutíma tók þessi fábæra ferð. Og fróðleg enda kom í ljós að fararstjórinn okkar sem ók okkur um á 2ja ára gömlum Crysler var háskólamenntaður í ferðamennsku og gat því svara greiðlega öllum okkar spurningum.
Við fengum okkur að borða á Hotel Casino og tókum því næst bíl á rútustöðina, fengum ekki rútu alla leið til Mazatlán fyrr en kl. ellefu nenntum ekki að bíða klukkan var bara átta, svo við tókum rútu til Guadalajara og komumst strax þar í rútu beint til Mazatlán vorumkomin þangað kl. 6 um morguninn.
Ef þið hafið áhuga þá er framhald seinna. Mazatlán San Fransisco.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
2.11.2012 | 00:48
Skundi litli og tónleikar.
Ég fór á frábæra útgáfutónleika í Ísafjarðarkirkju í kvöld, þrátt fyrir óveður. Sem betur fór, fór bíllinn í gang. Þetta voru útgáfutónleikar Skunda Litla en hann Þorsteinn Haukur Þorsteinsson er að gefa út nýja skífu Ljósberi.
Þetta reyndust algjörlega frábærir tónleikar, þarna var í boði allt frá sálmi upp í gospel og rokk. Gosbelkór Ísafjarðar kom einnig fram.
Álfaprinsessan úr Arnadal var kynnir kvöldsins.
Haukur og söngfólkið hans, en þarna voru líka trommari, píanóleikari og fiðluleikar, harmonikkuleikari sen öll voru frábær, ungir krakkar sem oft hafa komið við sögu tónlistar á Ísafirði þó ung séu.
Nánast öll lögin eru samin af Hauki (Þorstein Hauki) og textarnir eftir Lilju konu hans. Ljúfsár og innileg.
Lagið um Álftafjörð er fallegt, það var aðeins spilað á fyrstu plötunni hans, en nú hefur Lilja samið þennan fallega texta og þau sungu þetta eins og englar. En hér er spilaður og sungin vals. Er ekki með
programmið fyrir framan mig en hér taka þau vals þann fyrsta sem Haukur semur.
Það var frábært að sjá þessa hæfileikaríku unglinga taka þátt öll þrjú.
Músik hefur engin landamæri hún bara ER.
Það ríkti innileg gleði á þessum tónleikum, glaðværð kærleikur og allt sem prýða má slíka tónleika. Þarna voru sem sagt lög allt frá sálmum upp í rokk. Vænst þótti mér samt um þegar Haukur kynnti lagið um Júlla Tomm, en þannig er það tilkomið að þegar sonur minn dó, orti ég ljóð um hann og sendi Hauki og bað hann að semja lag og syngja það við jarðarförina. Hann gerði það og meira til. Nú hefur hann samið nýtt lag við ljóðið og það er á nýju plötunni Ljósberi, þau tóku það í kvöld og hann tilkynnti að það væri tileinkað mér. Það fóru um mig þvílíkar tilfinningar fallega samið lag, fallegur söngur og af þvílíkri innlifun. Sonur minn hefði orði stoltur, held að hann hafi verið þarna með mér þessi elska.
Gospelkórinn söng svo hressilegt gospel lag undir öruggri stjórn Auðar Höskuldar allir tóku undir og klöppuðu með.
Sunna í stuði.
Svo tóku strákarnir Sweet home Alabama með miklum tilþrifum og hörku stuði, og svo var Bubbi tekinn líka.
Allir voru farnir að dilla sér í lokin.
Með innilegri þökk fyrir mig og Júlla minn, þá skora ég á þig Haukur minn að endurtaka þessa frábæru tónleika. Mæli með því vegna þess að veðrir var þannig að fólk vildi helst vera heima. Þannig að alltof margir misstu af þessum frábæru tónleikum. Frábærum tónlistarmönnum, ljóðahöfundum og lagasmiðum. Allt í boði heimamanna. Diskurinn er einnig til sölu og svo sannarlega er hann sálarbætandi, enda þau bæði Lilja og Haukur frábærar manneskjur og reyndar þau öll sem að þessu komu.
Hér er Júlli Tomm, þetta lag er á plötunni.
En ég segi bara innilega takk fyrir okkur tvö mig og Júlla minn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 2023341
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar