Karlakórsferð

Ekið var niður Þýskaland frá Munchen til Ítalíu.  Gegnum Bæjaraland, en í Þýskalandi eins og í Austurríki og Ítalíu eru ótal smáríki sem mynda heildina, þar sem áður voru kóngar og fyrirfólk, og kastalar allstaðar.  En Bæjaraland er eitt af ríkustu svæðum Þýskalands með mesta framleiðslu per haus.  

 

IMG_5022

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

IMG_5024

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Hér er ekkert smáhýsi á ferð. 

 

IMG_5029

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Vel hirt tún og kirkja í miðju þorpi er eitthvað sem er aðal á þessu svæði.  

IMG_5030

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Brennerskarðið, þar sem var mjög hart barist í heimstyrjöldinni.

IMG_5046

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Suður Tírol var eitt af fátækustu svæðum Ítalíu, með bröttum fjöllum og erfiðleikum vegna slæmra vega, þangað til hraðbrautinn var gerð, þá vænkaðist hagur Suður Tíról, sem varð einn vinsælasti ferðamannastaður á Ítalíu, bæði sumar og vetur vegna skíðasvæðanna og einstakrar veðurblíðu og fegurðar.  Elli fararstjóri sagði okkur að þjóðverjar og ítalir byggðu þessa þjóðbraut, en það eru austurríkismenn sem rukka fyrir hana, vegna þess að hún liggur um Austurríki. Smile

IMG_5062

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

það hefur verið þrekvirki að byggja þessa hraðbraut, sem er meiriháttar vegagerð.

IMG_5063

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér má sjá virki frá styrjöld í Brennerskarðinu.

IMG_5067

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og kastalarnir víða, og allir hátt uppi, þar sem hægt var að verjast óvininum.

IMG_5070

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jæja við erum komin til Bolzano.  Bolzano eða Bozen á þýsku er norðarlega í ítölsku Ölpunum, héraðið heitir Suðue Tíról.  Frá 1190 hefur Bolzano verið mikilvæg  verslunarborg, en vegna staðsetningar hennar milli margra stórra borga, m.a. Feneyja og Augsburg í suður Bæheimi í Þýskalandi, mættust menn þar á miðri leið til að eiga viðskipti hver við annan. 

   

IMG_5073
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 Þessi kirkja er á torginu þar sem hótelið okkar er, hún vakti okkur kl. 7 á hverjum morgni, veit ekki hvort það var gott eða slæmt, alla vega svaf enginn yfir sig. 
 
IMG_5074
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Þessi höfðingi stendur á miðju torginu í Bolzano, þarf að spyrja betur um hann, það er nefnilega saga.
 
IMG_5078
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Við erum á leið í kláf til að fara upp í fjöllin.  Kláfurinn er nýr, var vígður 2009, ferðinni er heitið upp til Soprabolzano með kláf og síðan með með gamalli lest til Wolfsgruben, á leiðinni upp má sjá vínekrur og eplaekrur, ásamt leirpíramíta sem eru á náttúruminjaskrá UNESCO.  
En hér var tekið lagið hraustlega af karlakórnum á kláfstöðinni.
 
IMG_5079
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Það verður að segjast eins og er að ég var með smá fiðring í maganum, en allt gekk þetta vel, og útsýnið frábært.
 
IMG_5082
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Hér eru vínekrurnar hátt upp í fjöllunum.  Hér er líka mikil eplarækt. 
 
IMG_5083
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Borgin í öllu sínu veldi langt fyrir neðan okkur, en Bolzano liggur aðeins 265 metrum yfir sjávarmáli, þó sum fjöllinn í kring séu um 3000 metra yfir sjávarmáli. 
 
IMG_5085
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Við erum komin í sveitina, það er ekki mikið sléttlendi hér, víða hanga húsin og akrarnir rétt við þvergnípi, ekki gott að vera mjög lofthræddur hér. Wink
 
IMG_5094
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
En svona er þetta bara.
 
IMG_5097
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Og við erum komin upp.  
 
IMG_5098
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Erni Ingólfs var víst kalt, enda hitinn rétt um 36° LoL Þó aðeins svalara svona hátt uppil 
 
IMG_5100
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
En við ætlum að fara í lest og aka um fjöllinn við ætlum að skoða hunangsbú, Plattnerhofsafnið og njóta náttúrufegurðar Alpanna. Við vorum heppinn því þetta er gamla upprunalega lestinn sem við fáum að ferðast í.  Hún var eiginlega alveg eins og gömlu vagnarnir í San Fransisco.  Og þarna var öllum troðið inn.  
IMG_5101
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Það var ekki frítt við að andardrátturinn væri svolítið grunnur í þessari hæð.
IMG_5102
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Ítalir eru auðvitað mjög kaþólskir, hér hefur trúlega orðið dauðaslys.  
 
IMG_5103
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Hér var stoppað til að fara í Plattnerhofsafnið.  En það er eitt af afar gömlum bóndabæjum sem hafa varðveist í upphaflegri mynd.  Flestir voru brenndir, þegar kom upp veiki sem talin var stafa af efnivið húsanna.  
 
IMG_5105
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Svo var gengið að safninu.
 
IMG_5109
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Í þessu gamla húsi var búið alveg þangað til um 1985, en þar bjuggu tvær systur, önnur sem erfði bæinn, en hin meira sem þræll.  Þær áttu enginn farartæki en gengu niður til Bolzano til að ná í það sem þurfti til búsins.  Enginn kláfur þá.
 
IMG_5114
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Hér er inngangurinn, hér er líka sala á hunangi, með allskonar bragði, og var hægt að smakka af list.  Hunangið er algjörlega náttúrulegt og unnið samkvæmt rituali til að halda sinni upprunalegu næringu.
 
IMG_5116
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Það er auðvitað afar nýtískulegt og gott að hafa klósettið í svefnherberginu Cool
 
IMG_5117
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Svo ekki sé nú talað um eldhúsið.  
 
   
IMG_5119
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Hér er ekki verið að láta pípulagnir þvælast fyrir, bara rás fyrir vatnið og annað út á lóðina.  Happy
 
IMG_5123
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Skóladótið, pennastokkurinn og ipadinn hehe.
 
IMG_5124
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Hér má svo sjá körfurnar sem flugurnar voru ræktaðar í, svo var þetta bara allt saman pressað þegar kom að uppskerunni.  Reyndar er hunangsrækt hér ennþá, en á nútímalegri máta.
 
IMG_5127
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Svo þrufti auðvitað að tilla sér á barinn áður en haldið var af stað heim á hótel.
 
IMG_5133
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Beðið eftir lestinni.
 
 
IMG_5137
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Svo er haldið niður aftur, hér má sjá bletti sem menn slá og senda svo heyið niður í böggum.  
 
IMG_5138
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Ítölsku Alparnir, veit ekki hvort er hrikalegra Copper Canyon í Mexico e'a þessi fjöll.  En hvortveggja afskaplega myndarleg og falleg.
 
IMG_5139
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Hér voru svo leirpýramídarnir, en þeir sjást ekki á þessari mynd.  
 
IMG_5140
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Þorpin upp í fjöllunum.  Hér er mikil eplarækt. og það eru sko ekki bara epli, heldur margskonar epli.
 
IMG_5144
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Og komin heim á hótel.   
 
IMG_5145
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Gott að fá sér bjór, þessi ungi barþjónn á íslenska kærustu og heilsaði okkur á íslensku.  Hér er örugglega verið að skála í grabba.
 
 
IMG_5147
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Það er ekki mikið af betlurum hér, raunar varð ég varla var við neinn, svo er líka að klæða sig upp og vekja athygli.
 
IMG_5148
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Götumyndirnar eru mikið fallegar hér, og húsum vel við haldið.
 
IMG_5151
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Við ætlum aðeins að skreppa í labbitúr, hér má sjá annan fararstjórann okkar hana Jónu Fanneyju, þau eru alveg til fyrirmyndar þessi tvö, og allt vel skipulagt.  
 
IMG_5152
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 Það sem háir gömlum borgum er einmitt þröngar götur, það er ótrúlegt að sjá bílaumferð á slíkum.  En þetta er meira göngugata aðalverslunargata Bolzano.
 
IMG_5153
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Hér er verið að hóa hópnum saman.  
 
IMG_5154
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Hér er þessi elska eins og íslensk valkyrja, hún er búin að læra söng og hefur mikla og fallega rödd, enda er hún Konnari.  Hún er nú komin heim til að eiga litla guttann sem fylgdi okkur allar ferðir með mömmu sinni. Heart
 
IMG_5158
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Okkar strákar voru vel merktir.  
 
IMG_5160
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Hér er verið að skoða byggingar og hvernig reynt er að byggja þannig að það verði kæling þegar mest er heitt.
 
IMG_5163
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 Sum hús líka út eins og ófreskjur eða geimverur Tounge
 

IMG_5164 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér erum við komin inn í klausturgarð, en það má ekki hafa hátt til að trufla ekki íbúana.

IMG_5167

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

Ég man þetta ekki alveg, tek mér svolítið skáldaleyfi, en mig minnir að hér hafi djöfullinn verið múraður inni.   

 

IMG_5168

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er nefnilega allt til í kaþólskunni eins og annarsstaðar, djöflar, dýrðlingar og allt þar á milli.

 

IMG_5171

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Meira að segja ísmaðurinn ógurlegi, en ég segi nánar frá honum seinna.

IMG_5176

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tveir flottir.  bjórinn flaut hér um slóðir sem aldrei fyrr.

IMG_5189

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég veit ekki alveg hvað þeir voru að skoða þessir herramenn, en skondnir eru þeir LoL

IMG_5193

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En hér gerum við hlé á ferðinni.  Vona að þið hafi haft gaman af.  

Eigið góðan dag. Heart 


Að iðrast, er það rétta.

Svo sannarlega verður þeim þetta víti til varnaðar.  Unglingar gera stundum hluti sem þeir dauðsjá eftir, einhvernveginn æsast þeir upp í vitleysunni og loks ráða ekki við framvinduna.  Það var því alveg frábært hjá forráðamönnum Sæbjörgu að koma þessu á framfæri, og þar með fá drengina til að sjá hvað þeir höfðu gert.  Þetta mál hefur því leysts á farsælan hátt bæði fyrir drengina, fjölskyldur þeirra og svo björgunarsveitina, og þeir eiga örugglega eftir að vinna vel að öryggismálum sjómanna héðan í frá.  
mbl.is Piltarnir báðust afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferðin til Ítalíu.

Það myndi æra óstöðugan að ætla að segja frá öllu því skemmtilega sem við upplifðum í ferðinni.  Karlakórinn Ernir ákvað að skella sér til Ítalíu með mökum.  Við höfum farið nokkara svona ferðir og þær eru alltaf jafn skemmtilegar, því hópurinn er samhentur og góður félagsskapur, ótrúlegt því við minnir mig 85 manns.  

En piltarnir okkar byrjuðu ferðina með að halda tónleika í Guðríðarkirkju í Grafarvogi, þar var fullt út úr dyrum, því bæði eru kórinn vel þekktur og margir vestfirðingar leggja leið sína til að hlusta á þá.

IMG_4980

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tónleikarnir voru vel sóttir.

Síðan var ferðinni heitið til Munchen, þar sem fararstjórarnir tóku á móti okkur með tveimur rútum, til að aka okkur til Suður Týról, nánar tiltekið Bolzano.

IMG_5008

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Við vorum spennt fyrir ferðinni á flugvellinum.

IMG_5012

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Komin til Munchen og létt yfir  mannskapnum.

IMG_5013

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fararstjórarnir okkar reyndust vera alveg frábær.  Þau eiga sjálf þessa ferðaskrifstofu Eldhúsferðir, eða Cucina Travel.  

IMG_5017

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það var galsi í mannskapnum.

IMG_5021

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Lögð af stað.

IMG_5029

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Allt snyrtilegt hér, eins og vera ber í Þýskalandi.

IMG_5030

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sem betur fer voru engar fyrirstöður á hraðbrautinni eins og oft vill verða.  Suður Týról tilheyrði Austurríki en eftir stríðið fengu ítalir landið, og hóf Mússolíni þá nauðungarflutninga, að flytja þýskumælandi fólk til suður Ítalíu og flytja þaðan fólki til Suður Týról.  Það heppnaðist ekki mjög vel, því landbúnaður er mjög sérstakur í Týról, þar sem fjöllinn eru afar há upp í 3000 metrar, og djúpir dalir, sem fólk frá flatlendinu réði ekki við.  

IMG_5063

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Förin liggur gegnum Brennerskarðið, þar sem hart var barist, þar eru virki sem voru notuð til að verjast óvininum.  En hraðbrautin sem við ókum á er öll byggð á stöplum, og liggur meðfram hlíðum og yfir dali, ótrúlegt mannvirki, hún var opnuð einhverntímann milli 1950 - 60.  Hún liggur ekki alveg upp við fjöllinn, til að forðast skriðuföll, sem eru tíð í þessum háu fjöllum, en þau eru víða lögð netum til að varna skriðum, eins og víða má sjá í Noregi.

IMG_5067

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Kastala má víða sjá hátt upp í hlíðum.  Hér er búið langt upp eftir fjöllinn, og enn ofar má sjá bletti sem slegnir eru.  Jóna Fanney annar fararstjórinn sagði okkur sögu um hvernig jóðlið varð til.  Menn fóru upp í fjallið og slógu bletti sem þar voru, en í stað þess að bera heyið niður snarbrattar hlíðar, þá bundu þeir töðuna í bagga og rúlluðu því svon niður, en af því að skógurinn er svo þéttur, þá sást ekki til þeirra sem biðu neðar í fjallinu eftir sendingunni, því göluðu þeir Júlúhe, til merkis um að bagginn væri á leiðinni, og þegar hann komst svo niður, jahúu, kvað þá að neðan, svo þannig byrjaði jóðlið í Týról. LoL

IMG_5070

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þá erum við komin á hótelið, Stadt Hotel  Cittá.  En hér í Bolzano, þar sem við bjuggum eru allar merkingar bæði á þýsku og ítölsku, þar sem hér búa bæði ítölskumælandi íbúar og þýskumælandi.  

Reyndar er eitt tungumál til viðbótar hér elsta tungumálið ladin.  Það tungumál er talað í sveitinni og eru mismunandi mállískur vegna þess að áður en dalirnir voru vegi lagðir bjó fólkið mest á sínu svæði og þróaði sitt eigið mál, sem ennþá má heyra.  Týrólabúar tala líka allir mjög góða ensku.  

En nú verð ég að hætta í bili, en á eftir að segja frá mörgu skemmtilegu, eins og ísmanninnum Otzi, dolomitafjöllunum og ferðum í kláfum.  

En nóg í dag eigið góðan dag elskurnar Heart 


Mikið er gaman að svona fréttum.

Maður fær einhvernveginn trú á bæði mannkyninu og lögreglunni aftur, við að lesa svona.  Takk fyrir mig, kæru bjargvættir.  
mbl.is Lögreglan bjargaði kettlingi í neyð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menningarhátíð ungmenna á vestfjörðum.

Jæja þá er ég komin heim frá Ítalíu, það var skemmtileg og afar fróðleg ferð.  Ég hef hugsað mér að bjóða ykkur í ferðalag.  En hef ekki tíma núna, því nú þarf að vinna upp "tapaðan" tíma, sem ekki var tapaður því ég er algjörlega endurnærð eftir frábæra ferð með frábærufólki. 

IMG_5078

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Karlakórinn Ernir tekur lagið.  

 

En ég vil benda fólki á menningarhátíðina L.Ú.R.  Sem stendur yfir á Ísafirði núna.  Eins og segir í bækling sem unglingarnir gefa út:

"Verkefnið LÚR hófst fyrir ári síðan þegar nokkur ungmenni hittust í Menningarmiðstöðinni Edinborg.

Fundar var reglulega yfir veturinn þar sem við fundum 9. manna hópa frá Rúmeníu og Finnlandi og sóttum um styrk til Evrópu unga fólksins á mettíma sem  var afar lærdómsríkt.  

Við erum ótrúlega glöð því við fengum styrkinn og þess vegna eru ungmenninn að koma til Íslands 8. júní. og eru í heimsókn hérna til 16. júní.  Þau taka þátt í listasmiðjum  með áherslu á tabú ásamt vestfirskum ungmennum og verður afraksturinn af þeim sýndur á hátíðinni.  

LÚR-festival".

Þetta er frábært framtak þessara ungmenna, og hafa þau lagt mikið í hátíðina, unnið þetta allt sjálf.  Það er sannarlega fjársjóður í ungmennunum okkar.

Endilega sýnið þessu áhuga og látið þau vita hve frábær þau eru. Heart 

  

10334474_820178301343449_4299521962331569784_n

Kosningar - úrslit - og meðhöndlun fjölmiðla á framboðum.

Þetta eru góðar fréttir.  Með nýju fólki verða ný og betri vinnubrögð. Ég óska Í-listanum og ísfirðingum til hamingju með þetta.  

En meðan við kusum okkur nýja bæjarstjórn, var verið að skipta um forseta í El Salvador.  Fráfarandi forseti har Cartegena De Funes, en nýji forsetinn er Salvardor Cánchez Cerén. Fimmta hvert ár er nýr forseti settur í embætti þann 1. júní.  Það var því mikið um veisluhöld og gleði í El Salvador í dag.  Varaforseti er Oscar Damuel Ortiz Acencio, þessir menn eru báðir vel liðnir í El Salvador, nýji forsetinn hafði unni að því í síðustu borgarastyrjöld að færa völdin nær fólkinu.  Fyrir fimm árum var skipt um meirihluta, en í ár er sami meirihluti við völd og áður.  

 Var að horfa á herlegheitin í beinni útsendingu.  

En að okkar fólki.  það voru frábærar fréttir að samstarfsflokkar Frjálslyndaflokksins(Dögunar), Vinstri grænna, Samfylkingar og óháðra skyldu fá hreinan meirihluta.  Í fyrsta lagi treysti ég þessu fólki algjörlega til að standa við stefnumál sín, en svo má líka segja að þegar um hreinan meirihluta er að ræða, þá þarf ekki að semja um málefnin við aðra.  Samstarf þessara flokka hefur gengið hreint ágætlega síðasta kjörtímabil.  

Ef til vill er pólitíkinn að þynnast út og hrærast meira saman.  Vonandi kemur eitthvað gott úr úr því, og klíkuskapur minnkar að sama skapi.  Vissulega er áhyggjuefni ef fólk gefst upp á að mæta á kjörstað til að sinna þegnskyldum sínum og veita stjórnvöldum aðhald.  En stjórnmálamenn geta svo sannarlega sjálfum sér um kennt, því það eru þeir sem hafa virt almenning að vettugi eftir kosningar, þó loforða flaumur hafi verið yfirfljótanlegur fyrir þær.  

Það er þess vegna sem er sorglegt að fólk skuli ekki gefa nýjum framboðum meiri gaum, því flest þeirra hafa unnið mikið starf við að byggja upp góð málefni og hafa viljann til að gera vel.  

Enn verra er þegar fjölmiðlar beinlínis beita sér gegn ýmsum framboðum.   Eða reyna að tala framhjá slíkum.  Það er að mínu mati auðvirðilegt, því fjölmiðlar hafa skyldum að gegna við almenningi um að upplýsa öll um framboð og hvað þau standa fyrir.  Ég nefni enginn nöfn, en þeir sem hafa hagað sér með þessum hætti vita sjálfir hvað þeir hafa gert, og ættu að skammast sín.  

Svo eru þetta jafnvel fjölmiðlamenn sem eru að kvarta yfir klíkuskap ráðamanna og skort á lýðræði, þeir ættu svo sannarlega að líta í eigin barm.  

Það er nefnilega ömurlegt afskipti að vera búin að leggja nótt við dag við að vinna af heilindum við að setja saman málefnasamning sem skiptir fólkið í landinu máli og fá svo ekki tækifæri til að koma þeim á framfæri.  Stundum finnst mér eins og fjölmiðlamenn séu að reyna að stjórna því hverjir nái kjöri, en ekki að vera hlutlausir og kynna alla kosti.  

Ég lýsi hér með fyrirlitningu minni á slíkum fjölmiðlamönnum og fjölmiðlum.    

IMG_4200

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Landið okkar á betra skilið en klíkuskap og besservissera sem reyna að viðhalda honum.  Eigið góðan dag elskurnar. Heart 


mbl.is Bætt vinnubrögð á Ísafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að hafa réttinn til að kjósa.

Nú styttist í korningar, næsta laugardag göngum við til kosninga og notfærum okkur einn helgasta rétt sem við höfum sem íbúar þessa lands.  

Enginn á að kasta atkvæði sínu á glæ, því það er eina tækifærið sem við höfum til að láta skoðanir okkar í ljós svo eftir er tekið.  Refsa þeim sem ekki standa sig, og gefa öðrum tækifæri til að láta að sér kveða.  

Það er engum hollt að vera of lengi við völd, því valdið spillir, það bara gerist, og fólk áttar sig ekki á því, en svona er það samt.

Kosningar eru leynilegar, það er til að ekki sé hægt að refsa mönnum fyrir að kjósa samkvæmt samvisku sinni.  Útgerðarmenn hafa stundað það grímulaust að tala við starfsfólk sitt á kaffistofunni og sagt þeim, sér í lagi útlendingum að "ef þeir kjósi ekki rétt, sigli skipinn burt og komin ekki aftur" Þetta er auðvitað kolólöglegt, en ég veit til að svona hefur verið stundað áratugum saman.  Eflaust eru fleiri slíkir til.  Mönnum sést ekki fyrir að reyna að hafa "sína menn" við völdin. 

Ég hef ákveðið að veita Í-listanum á Ísafirði mitt atkvæði.  

Í-listinn er samstarf milli Frjálslynda flokksins, Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og óháðra í Ísafjarðarbæ.

Þetta samstarf byrjaði fyrir síðustu kosningar, þá var ákveðið að láta reyna á að sameinast með góð málefni og samvinnu.  Þetta samstarf tókst vonum framar, og þess vegna var ég ánægð með að sjá að það fólk sem er í forsvari ákvað að halda þessu góða samstarfi áfram.   

Í-listinn stundar góða pólitík, það eru málefnin og samvinnan sem er í fyrirrúmi, það er ekki verið að keyra á einhverjar stjörnur eða frægt fólk, heldur fólkið sem er tilbúið að bretta upp ermar og vinna til hagsbóta fyrir okkur öll.  Það sést á því að þessir flokkar hafa getað starfað vel saman svo ekki hefur komið upp ágreiningur eða óeining.  

Nú hafa forystumenn framboðsins ákveðið að bjóða fram bæjarstjóraefni, enn og aftur sýnir það víðsýni þeirra, að bjóða einum af forystumönnum Sjálfstæðisflokksins það hlutverk.  Þeir einfaldlega velja frambærilegasta manninn, sama hvaðan hann kemur.  Gísli hefur sýnt í störfum sínum að hann er sjálfs sín herra, hann hefur ekki náð upp á pallborð D-listans vegna þess að ágreiningur hefur verið með hans áherslum og hinna.   

 Mér finnst þessi vinnubrögð minna mikið á Dögun, samtök fólks um réttlæti, sanngirni og lýðræði.  Þau hafa reynt að fá önnur framboð til samstarfs, en ekki gengið vel, reyndar er Dögun samstarf milli Frjálslyndaflokksins, Hreyfingarinnar, Lýðsæðissamtaka og ýmissa annara flokksbrota. Mér finnst skipta mestu máli að fólk geti starfað saman af heilindum um þau málefni sem skipta fólkið í landinu máli.  Þá er ekki verið að spyrja hvort manneskjan sé á einhvern hátt áberandi í samfélaginu eða bara Jón og Gunna.  Þessi rödd samstöðu og sameiningar þarf að vera sterkari ef við viljum breyta einhverju.  

 Og ef okkur finnst að það þurfi að breyta til, þá er auðvelt að ákveða sig.  Óska ykkur öllum gleðilegra helgi og munið að heiðra þau réttindi sem við höfum öðlast gegnum blóð svita og tár gegnum tíðina.   


Eftirlitið talar hér, góðan daginn.

Lífið gengur sinn vanagang hjá mér þessa dagana.  Ég fékk bréf frá bæjarráði með þökkum fyrir ábendingar í sambandi við umgengni verktaka Í.A.V. og áréttað að betur væri fylgst með að þeir vinni í samræmi við samninga.

Nú vil ég taka fram að mér er ekki á nokkurn hátt illa við þá sem vinna verkið.  Þeir eru bara að vinna vinnuna sína.  Ég er reið þeim sem tóku þessa ákvörðun að eyðileggja hlíðina fyrir ofan mig og rútta öllu til, vegna "tímabundinnar vinnu verktaka" eins og stendur í skýrslunni.  Enda hefur vinnan sennilega verið farin að minnka hjá þeim, svo það hefur þurft að finna einhver verkefni fyrir allta þessa tröllabíla, ýtur, gröfur og búkollur.  Það virðist nefnilega vera þannig, eða svo er í mínum huga að þessir verktakar eru innundir hjá ráðamönnum, og Jóhanna og Steingrímur brugðust fljótt og vel við, eins og þeirra var von og vísa, enda búin að lofa 6000 störfum á kjörtímabilinu.   Þó störfin séu frekar nálægt 6 þá skiptir það ekki svo miklu máli, meðan verktakinn fær sitt... eða þannig.  

En það þarf að fylgjast með hvernig menn ganga um, og það er ólíðandi að vera í rykdrullu alla daga.  Ég vil samt taka fram að þeir hafa brugðist vel við og löguðu malarveginn upp í námu og veginn fyrir ofan mig, svo nú er miklu minna ryk, ég vil þakka fyrir það.  En það sýnir bara að það þarf að vera á verði til að við getum unað sem best í þessum hrikalegu aðstæðum.  

Það er til dæmis alveg ótrúlegt að hér skuli 4 trukka aka um íbúðargötu 6 sinnum á dag, til að fara í mat og kaffi.  Annað erindi eiga þeir ekki fram hjá húsinu mínu.  Ég skil auðvitað að þeir þurfi að næra sig, en er ekki ráð að leggja þessum risum annarsstaðar og svo verði léttari bíll sem taki við og aki þeim um íbúðagötuna, hér eru smábörn allavega í einu húsi, og mikið ónæði íbúa vegna þessarar umferðar.

 Svo er þetta mikil skemmd á malbiki, reyndar er malbikið á Seljalandsveginum orðið ónýtt, en ég er hissa á að eigandi verkstæðisins skuli ekki gera athugasemdir við að bílarnir aki upp að húsinu svona oft og mikið alla daga bara til að fara í mat og kaff.

Einhver sagði mér að þeir mættu fara þarna um tómir, þó mér þyki það truflandi, og auðvelt sé að leita annara leiða, eins og ég minntist á.

IMG_4921

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og svo liggur mönnum mismikið á að komast í kaffið eins og gengur, og losa ekki af bílnum fyrr en eftir á.

IMG_4918

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hann var heillengi að skrapast á malbikinu áður en hann kom sér fyrir, hvað ætli svona tæki sé þung með hleðslu?  Bara datt það svona í hug.  

En sem sagt ég veit að ég er algjör "pain in the ass" hjá þessum ágætu bílstjórum, en ég bað ekki um þessa aðgerð, vildi ekki fá hana, og líf mitt hefur orðið að martröð síðan byrjað var á þessu.  Þess vegna ætla ég ekki að sitja þegjandi og leyfa verktökum að komast upp með hvað sem er.  Enhvernveginn sést lítið til eftirlitsmanna.   

Vil svo bara þakka fyrir að hafa lagað veginn og sett betra yfirlag, sem rykar ekki mikið.  Nú er bara að reyna að komast að samkomulagi um að bílarnir verði geymdir annarsstaðar og bílstjórum sé ekið fram og til baka úr og í íbúðahverfinu mínu, svo við losnum við þessa umferð, sem er eins og ég segi óþarfi, því þeir eru ekki að sækja neitt eða athafnasig, en bara koma sér í kaffi og mat, og einn bílstjóri á hverjum trukk, það er ekkert smá umferð.  Mér finnst það í rauninni vera smámál að það verði skoðað hvort ekki megi minnka umferðina með þessum hætti. Smile


Kæri eftirlitsmaður bæjarins!

Þú fyrirgefur að ég skuli skrifa þér hér, en ég veit ekki hver þú ert, né hvar ég næ í þig, svo finnst mér þetta ágætis samskiptamáti, rétt eins og við höfum talast við bærinn og ég, gegnum BB.  Þetta kallast örugglega "opin og gagnsæ samskipti"  Smile

Ég ætla að byrja á að þakka fyrir það sem vel er gert.  Síðan ég kvartaði síðast, hefur Búkollan ekki sést hér akandi á veginum fyrir neðan mig, svona frekar ógnþrungið tæki til að aka um í íbúðahverfi, sérstaklega þar sem lítil börn búa, og svo er nú von á mínum barnabörnum í heimsókn líka.  En hún er sem sagt bara þar sem hún á að vera, ég er heldur ekki frá því að umferð trukkanna hafi líka aðeins minnkað fram hjá húsinu mínu, og fyrir það er ég þakklát.   Seljalandsvegurinn hefur verið minna rykfallinn undanfarið,  en s.l. tvo mánuði, ég held meira að segja að ég hafi séð sóp í gær, svo þetta er nú allt saman á réttri leið.  Örugglega fyrir þín góðu viðbröð..... eða þannig.

Þess vegna ætla ég að minnast á smámál sem ef til vill er ekki eins þrúgandi og bílaumferðin í götunni minni sem áður var friðsæl íbúagata, en er nú eins og háannatímagata á Manhattan.  En það er malarvegurinn sem verktakinn gerði þar sem trukkarnir eiga að fara um, margar ferðir á dag.

IMG_4906-1

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það ætti nefnilega að vera auðvelt að halda þessum malargötum rökum, svo þær ryki ekki svona mikið.

IMG_4912-1

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Reyndar veit ég ekki hvað svona ryk berst langt, en allavega er ég full af ryki í öndunarfærum og nefi.  

IMG_4917-1

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Held að svipað hljóti að vera um fólki sem labbar hér daglega.  Ég fór til læknis í dag og fékk að vita að ég er með berkjubólgu vegna ryksins og þarf að komast í hreint loft.  Íslenskir Aðalverktakar ættu ef til vill að bjóða mér að fara í frí, eða endurnýjun í Hveragerði. En nei auðvitað ekki, þetta eru svo miklir fátæklingar.

 Svo er ég með smá hugmynd: af hverju ekki að rykbinda malarveginn og þá alla leið að vinnusvæðinu, því rykið að ofan við mig, kemur niður, meðan rykið af Seljalandsveginum fer upp á við, hvernig sem á því stendur.  Og í þessum skrifuðu orðum eru gatnamótin við Skutulsfjarðarbrautina full af smásteinum, og allir geta ímyndað sér hvernig það fer með malbikið þegar trukkar af þessari stærðargráðu fulllestaðir aka yfir svoleiðis, datt bara svona í hug að minnast á þetta, því þessir steinar voru þarna líka í gær. Smile 

Það er misskilningur því verkstjórinn sagði við mig að allt slíkt sem fellur af bílunum sé sópað jafnóðum Smile

Og ég gat meira að segja leiðrétt, eiganda sópsins, hann hélt að sópunin væri aukaverk en ekki inn í samningnum. Smile

En þetta er nú allt á svona góðum nótum.  Verst ef ég enda með lungnabólgu, því það getur gerst ef þetta heldur svona áfram sagði læknirinn.  

Með bestu kveðjum Ásthildur.  

 

 

 


Silly me.

Ég skrifaði hér um daginn smá hugleiðingu um verktakan sem er að vinna hér fyrir ofan mig.  Sjá hér:http://asthildurcesil.blog.is/blog/asthildurcesil/entry/1386459/  

 

 

En nú verð ég að draga þetta allt saman til baka.  Því málið er að það sem var undirritað við þennan "uppáhaldsverktaka" ríkisins, að mínu mati, á bara ekki við um hann, heldur bara hina sem sendu inn tilboð.  Til dæmis þessi grein hér: 

 

„Verktaki skal gera ráð fyrir að þurfa að þrífa götur eftir sig eftir aðstæðum og reglulega (vikulega) þegar samfelldir efnisflutningar að eða frá vinnusvæðinu standa yfir“.

Þá hefur komið í ljós að göturnar hafa verið sópaðar vikulega, eða þannig.  Málið er að hvorki ég né aðrir íbúar í nágrenninu hafa tekið eftir sópnum, sem hefur farið hér vikulega yfir, þannig að sennilega er þetta einhverskonar ævintýrasópur sem sést ekki.  En hann sópar heldur ekki mjög vel, því annars hefðu íbúar bæði við í hverfinu eða aðrir sem ganga hér um orðið vör við sópunina.  En það er auðvitað okkur að kenna og okkar eftirtektarleysi, það á líka við um óhreinindi í hálsi og nefi eftir ryk sem við héldum að svifi yfir öllu, en er greinilega misskilningur.

Ég hitti nefnilega okkar ástkæra yfirmann verktakans í morgunkaffinu í morgun í áhaldahúsi bæjarins, hvar við áttum saman nokkuð "hreinskilnar umræður um "ágæti hvors annars og áliti mínu á verktakafyrirtækinu. Svo og áliti verkstjórans á mér. 

Og hann tjáði mér að hann og hans stóru vörubílar mættu aka fram hjá húsinu mínu að minnsta kosti 5 stykki a.m.k. sex sinnum á dag, rétt eins og aðrir bílar mættu aka um vegi bæjarins.  En búkollan væri ekki þarna á meðal.

IMG_4894-1

 

 

 

 

 

 

 

 

Nei nei hún ekur ekki út af svæðinu, enda stendur það skýrt að það megi ekki gerast.  Svo þetta var auðvitað hrein lygi hjá mér.

IMG_4897-1

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og ég sem fullyrti að þetta tryllitæki færi líka um götuna fyrir neðan mig, sex sinnum á dag, í kaffi, mat og kaffi, ó nei ég verð að biðjast afsökunar á þeirri lygi ekki satt?

IMG_4896

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þannig að þessi smábílahjörð sex sinnum á dag fram hjá húsinu mínu með tilheyrandi ryki og mengun er bara hugarburður minn, og auðvitað verð ég að biðjast afsökunnar á því að vera svona agressív, gagnvart þessu elskulega fyrirtæki Í.A.V.   

Það er samt eitt sem er að þvælast fyrir mér, af hverju var sett í útboðið að göturnar skyldu vera sópaðar eftir aðstæðum, og reglulega (vikulega), og aðrir sem sóttu um gerðu ráð fyrir götusópara, en þessar elskur höfðu ekki fyrir því að ganga frá því, sem gerði að auðvitað var þeirra tilboð miklu lægra en annara, af hverju þessir aðilar gerðu ekki ráð fyrir slíkum?  

En ef til vill höfðu þeir þegar gert ráð fyrir þessum ósýnilega götusópara sem sópar án þess að við verðum vör við hann, þeir hafa örugglega hugsað sem svo að við yrðum fyrir nógu miklum átroðningi með endalausum þungaflutningum bæði fyrir ofan mig og neðan, með tilheyrandi ílum þegar svona tröll bakka, svo sóparinn skyldi vera ósýnilegur og ekki heyranlegur, það má þakka fyrir það. Það hefði ef til vill verið heppilegra að þeir hefðu útdeilt andlitsgrímum fyrir okkur íbúa og saklausa skokkara, til að lifa af þetta ryk, sem auðvitað er ekki nema í nösunum á okkur.

Og auðvitað hafa þeir vætt malarveginn sem þeir gerðu, svona að því ég hélt í fyrsta skipti í dag, (my mistake), (sem var auðvitað gott mál) þ.e. að gera veginn, til að eyðileggja ekki gatnamótin frá Skutulsfjaðarnrautinni að Grænagarðsnámu, enda spara þeir sér heilmikla olíu  með þeim hliðarveg. 

Svo er þetta,  

„Verktaki skal tryggia að steinar í fyllingu í fláafleyg garðs velti ekki niður fláa og valdi tjóni á húsum, lóðum eða fólki. Greitt er fyrir girðingu neðan fláafleygs samkvæmt grein 1.1'4, sú girðing stöðvar aðeins minni steina“.

Ég er nú búin að skima eftir þessari girðingu, og hef ekki rekist á hana, nema hjá einu húsi, Seljalandsvegi 64a, en það er girðing sem eigandi hússin á, en hún er orðin frekar skökk vegna álags.  En ef til vill þarf ekki að setja upp slíka girðingu, þó greitt sé fyrir hana, hinir fátæku forsvarsmenn fyrirtækisins geta því sett þá upphæð í sína fátæku vasa.  

 

Já ég átti "vinsamleg" orð við manninn sem sér um verkið.  Hann tjáði mér að eftir að bréf barst til bæjarstjórnar Ísafjarðar frá mér um slaklegt eftirlit, þá kom eftirlitsmaður ofanflóðasjóðs til hans og þeir fóru saman yfir umkvörtunaratriðin, og fannst lítið til um, hér þyrfti að sópa, og hér tína upp smágrjót og sona..... en ég hélt einhvernveginn að eftirlitið ætti ekki að vera í höndum þeirra sem sæju um verkið, heldur í höndum stjórnar bæjarins.  Sillý me.  Auðvitað er þetta allt í höndum verktaka og ofanflóðasjóðs, og það á ekkert að vera að kvarta yfir svona tittlingaskít, og hvað með að útboðinu væri svona "hliðrað til" fyrir svona gott fyrirtæki sem er uppáhalds valdamanna Íslands, og auðvitað eiga þeir heilt lið af lögfræðingum sem eru í startholunum við að verja sína menn, í stóru sem smáu.

Þess vegna verð ég auðvitað að biðjast afsökunnar á því að hafa vogað mér að benda á það sem mér finnst augljóst, en er auðvitað ekki, því það hentar ekki við okkur smámenninn sem byggja þetta land, halda því uppi með sköttum okkar og því sem við þurfum að borga stórmennum eins og þessu fyrirtæki sem virðist sitja að öllum stór verkefnum á Íslandi í dag.  

Og hvað veit ég svo sem, sillý me.   


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2023337

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband