Unga Ísland.

Maðurinn minn Elías var að slá garðinn í gær sem raunar er ekki í frásögur færandi, nema að þar sem hann var að munda sláttuorfið sér hann ófleygan unga í Slægjunni, svo hann tekur hann upp, og kemur með hann til mín.  Ókey, þannig er það bara, ég þurfi auðvitað að taka að mér litla ungann.

1-IMG_6557

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Já en fyrirgefið, ég nefnilega heyrði ekki í útvarpi allra landsmanna, að það væri sól og blíða á Ísafirði í dag, og Ísafjörður "ætti góða veðrir" eins og iðulega er sagt um Egilstaði og Akureyri, en við erum víst ekki í náðinni hjá útvarpi þjóðarinnar. Cool

En hvað um það, unginn er núna í minni umsjá, sem er frekar erfitt þar sem ég á kött sem hefur gífurlegan áhuga á fuglum, sér í lagi ungum sem detta óvænt niður úr hreiðrum.

2-IMG_6558

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þannig að nú voru góð ráð dýr, ég var að vinna við að umbotta fjölæringunum mínum upp á lóð, og gaf litla unganum brauð leyst upp í vatni og svo snigla, og einn ánamaðk gaf ég honum en fékk þvílíkt samviskubig yfir því að slátra bestu vinum mínum í gróðri ánamökum.  

Ég fór svo að kaupa í matinn og keypti svo mat fyrir smákettlinga, en þessi ungi herra eða ungfrú þröstur er matvandari en skrattinn og vildi ekki borða svoleiðis sull.

 

3-IMG_6563

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þannig að það er víst ekkert annað að gera en að fórna mínum elskulegu ánamöðkum Blush

4-IMG_6570

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sem betur fer á á flottar systur sem umsvifalaust fundu maðka og gáfu honum að éta, sem hann þáði með bestu lyst.

 

5-IMG_6572

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jamm áhuginn leynir sér ekki Heart

6-IMG_6574

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Opnaðu gogginn góði LoL og hann var sko ekki í vandræðum með að torga nokkrum ánamöðkum. 

7-IMG_6579

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Vona að ég komi honum til fugls... þannig að hann geti flogið burt með sóma, burt frá Kettinum mínum henni Lottu.

8-IMG_6591

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er svo kóngulóin vinkona mín, sem er beint fyrir framan gluggan hjá mér, þau voru eitthvað að ræða um að gefa unganum kónguló, en nei takk, ég hef mikla ánægju af að fylgjast með henni þessari elsku.

9-IMG_6594

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í lokin er svo mynd a pelargoníunni frá honum Sigurjóni á Hrafnabjörgum, dugleg og óskaplega falleg planta og harðger.  


Ása Emanúels.

Ása Emanúels datt inn úr dyrunum hjá mér áðan.  Hún sefur reyndar ennþá í bílnum sínum blessunin, en hún er kát og skemmtileg. Rétt komin af Snæfellsnesi þar sem hún hitti marga myndlistamenn sem hrósuðu henni fyrir myndirnar sínar. 

 Hún málar nefnilega og ég verð að segja að þær eru afar flottar myndirnar hennar.

1-IMG_6547

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hún hefur verið frekar feiminn  við að sýna þær, en nú þegar hún er búin að fá hrós frá fagfólki, er hún bjartsýnni á að selja eitthvað af myndunum sínum.

2-IMG_6549

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

VIrkilega falleg mynd og skemmtilegir litir.

 

3-IMG_6552

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Mæli með að fólk skoði myndirnar hennar.  Þessi hefur vakið mikla eftirtekt segir hún og hlær, vegna þess að þarnar er geimskipið yfir Snæfellsjökli.

1-IMG_6553

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Virkilega flott gert hjá þér Ása mín. Heart

 

4-IMG_6554

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessi er líka skemmtileg, hún er af gosinu í Eyjafjallajökli.  Hún minnir mig heilmikið á myndirnar hans Júlla míns.  Ef vel er að gáð má sá mannsandlit í reyknum.  Hún segist hafa séð hana eftir á, rétt eins og gerðist svo oft hjá Júlla mínu. Heart

'Asa verður hér á Ísafirði til mánaðamóta, og símanúmerið hennar er 8936274, Endilega sýnið henni áhuga og skoðið myndirnar hennar, það er alveg vel þess virði.  

Eigið yndislegan dag.  


Smá krúttmyndir.

Smá krúttmyndir. 

IMG_6526

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Vinkona mín hún Ellen fann þennan litla kettling einan og sér og tók hann að sér.

IMG_6527

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hann er svo ungur að það þarf að gefa honum pela <3

 

IMG_6528

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Ellen er yndisleg stúlka og býr á Þingeyri.  

 

IMG_6529

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Algjör krúttmoli.

IMG_6536

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já mamma er góð Heart

 

IMG_6538

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nánast á hverjum degi fyllist bærinn okkar af erlendum gestum, í fyrradag voru 3 skemmtiferðaskip á ferðinni.  

 

IMG_6539

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og húsin sem einu sinni voru svo stór, eru nú bara smákofar sé miðað við skipinn sem koma, og meira að segja alla leið inní innri höfnina.  

 

IMG_6540

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Þessi er sérstaklega fyrir hann Gísla vin minn Svanbergsson.

 

IMG_6541

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo og þessi.  Það sést að fjöllin hafa grænkað í vætutíðinni, það þýðir að það verður gott berja ár í ár.

 

IMG_6543

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessir krúttmolar komu svo að heimsækja ömmu í gær. Heart 

 

IMG_6544

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og tveir stoltir afar ræða málin.  

 


Skömm er að alþjóðasamfélaginu í meðvirkni gegn stríðsglæpa- og hryðjuverkamönnum.

Allt þetta gerist og heimurinn horfir í hina áttina. Hvers vegna í ósköpunum má ekki hrófla við þessu hyski sem eru ráðamenn í Ísrael.  Morðingjar og hryðjuverkamenn.  Þeim er ekkert heilagt ekki einu sinni sjúkrastofnanir, börn eða konur.  

Hversu lengi ætla þjóðir heims að hylma yfir með þessum stríðsglæpamönnum? Þeir eiga sér enga afsökun.  Og þeir eru búnir að slá grimmd Hitlers við.  

Ég lýsi hér með yfir fyllsta viðbjóði yfir stjórnvöldum í Ísrael, ég veit að fólkið í landinu eru bara eins og þú og ég og ráða engu, og margir þeirra líða af samviskubiti yfir miskunnarlausri grimmd stjórnvalda, og ef þeir reyna að malda í móinn, er þeim gert ókleyft að búa í Ísrael, ég þekki dæmi um slíkt.

 En þó þessir mannhundar fari fram í offorsi gegn fólk sem á sér ekki viðreisnar von, þá er það helmingi verra að sjá að ráðamenn heimsins horfa með blinda auganu á ofbeldið og gera nákvæmlega ekkert til að bjarga vesalings fólkinu sem á allt sitt undir einu af best búna vopnaveldi heims, enda hafa ráðamenn heimsins verið duglegir við að útvega þeim vopn og verju, kjarnorkuvopn líka.

Ef þessi Guð þeirra væri réttlátu, myndi hann refsa þeim harðlega.   

Vona að þið fáið sjálfir að kenna á því sem þið hafi skapað öðrum bara tíu sinnu verr ef það er þá hægt.  


mbl.is „Í nótt grétu þær af ótta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veðurfregnir á rás2.

Já það er nú svo að það er alltaf verið að tala um góðaveðrið fyrir norðan og austan, En þegar gott veður er á Vestfjörðum er sagt að það sé gott veður á vesturlandi, sjaldnast tekið til Vestfirðir hvað þá Ísafjörður eða aðrir veðursælir staðir. 

 

Þó tók steininn úr í mínum huga í morgun, þegar krakkarnir í morgunútvarpinu töluðu endalaust um að það væri alltaf svo gott veður fyrir austan og vildu helst bara flytja austur, en bættu svo við að það væri slæmt veður í Bolungarvík, rigning og það við hefðum haft svo vont veður í sumar.

 Þetta er einfaldlega rangt.  Það hefur rignt hér eins og annarsstaðar, en ekkert meira.  Og það er enginn rignin á Ísafirði í dag, og hefur ekki verið, um tvöleiti kom svo sólin og hitinn er ekki untir 15°.

IMG_6514

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta er nú vonda veðrið á Ísafirði í dag.

 

IMG_6515

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ekki er vindi fyrir að fara heldur.

 

IMG_6517

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skuggar myndast ekki nema það sé sól ekki satt?

 

IMG_6523

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta er nú ekki beint falleg selfie af mér, en ég er einmitt að fækka fötum vegna þess að ég fór upp á garðplöntustöðina mína í síðum buxum og T-skyrtu en var að drepast úr hita svo ég varð að skipta yfir í bol og stuttbuxur.

 

Ágæta morgunútvarpsfólk, gerið þið ykkur ekki grein fyrir þeim skaða sem þið getið valdið ferðamálasamtökum út um landið með þessum eilífa áróðri um besta veðrir þar og hér?  

Fólk hlustar og ákveður að fara þangað sem sólin er, það eru auðvitað gott mál, en þá verður að gæta þess að rétt sé með farið.  

 

Sem sagt það er alveg óhætt að koma á Ísafjörð, þar er hið besta veður nákvæmlega núna og hefur verið í allan dag, og verður örugglega á morgun líka.  Það eru margir sem segja að best geymda leyndarmálið sé veðurlag á Vestfjörðum.  Það er yfirleitt miklu betra en haldið er fram í útvarpi allra landsmanna.  


Má bjóða í smá hláturkast?

Má ég bjóða ykkur í smá hláturferð?  Var að leita að kastalamyndunum mínum en fann þær ekki, en fann þessar í staðinn, held að ég hafi næstum dáið úr hlátri. 

1-IMG_0043

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hehe.

 

1-IMG_0054

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Thí Thí.. 

2-IMG_0047

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

LoL

 

3-IMG_0057

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hahahaha!!!

 

4-IMG_0059

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Djísús LoL

 

5-IMG_0064

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hahahahahaha LoL

 

6-IMG_0046

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hahahaha....

 

7-IMG_0039

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Litla krúttið hennar ömmu sín LoL

 

8-IMG_0068

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fruss!!!

 

9-IMG_0065

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Híhíhí hí LoL

 

10-IMG_0042

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

LoL

 

11-IMG_0041

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

LoL

 

12-IMG_0049

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hahahahaha...

 

13-IMG_0048

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég elska þau öll út af lífinu, en við vorum að skemmta okkur einn daginn í eldhúsinu hjá henni Tinnu minni, og hlóum eins og vitleysingar, og ég er ennþá að hlæja að þessum myndum.  

 

Eigið góðan dag elskurnar og endilega hlæjið af ykkur rigninguna.  Heart 


Fallegar sumarmyndir frá kúlunni.

Þó veðrið hafi verið frekar votviðrasamt hér undanfarna daga, hafa blómin mín dafnað vel. 

11-IMG_6480-001

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skógarmalvan mín falleg og kirsuberin tilbúin.

 

12-IMG_6482-001

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ef einhver hefur áhuga á að gera sultu úr kirsuberjum getur hann fengið þau hjá mér, þetta eru að vísu súr kirsuber, en þau eru ágæt í sultu.  Ég hef ekki tíma, en vildi gjarnan að einhver nýtti sér þau.

 

13-IMG_6484-001

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Pernillan mín er búin í bili, en þessi elska er byrjuð að blómstra.

14-IMG_6485-001

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessi gaur nýtur sín vel í tjörninni og er búin að fá heilmikinn mosa til að standa á.

 

15-IMG_6486-001

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já svona getur þetta verið fallegt.

 

16-IMG_6487-001

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Pelargonían mín er líka falleg.

 

17-IMG_6488-001

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Virkilega flott á að líta.

 

18-IMG_6489-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 Perurnar mínar byrjaðar að vaxa.
 
19-IMG_6491-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Havaírósin byrjuð að hafa sig til.
 
20-IMG_6493-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Úti er gullregnið byrjað að brosa við sólinni.
 
21-IMG_6495-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Þessi skemmtilegi hlynur er alveg niður við lækinn sem ég hef ennþá, hinn er farin vegna framkvæmdanna.
 
23-IMG_6497-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Geitaskeggið stórglæsilegt.
 
24-IMG_6498-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Síprisin er líka flottur.
 
25-IMG_6499-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Nýbúin að taka þetta beð í gegn.
 
26-IMG_6500-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 Hnoðrar steinbrjótar njóta sín vel á þakinu.
 
22-IMG_6496-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Líka búin að taka þetta beð í gegn, önnur beð bíða til haustsins, eða eftir 15. ágúst, þegar vöxtur hættir.
 
27-IMG_6501-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Þetta blágresi "grandiflora" er fallegt, en veður dálítið um, en fallegt er það.
 
28-IMG_6502-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Og tjörnin er stille og roglig.
 
1-IMG_0191-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
VInir okkar frá Þýskalandi birtust óvænt á dyrahellunni hjá okkur, þau voru að koma til að halda upp á 25 ára brúðkaupsafmæli, og einnig 25 ára vináttu okkar, en við hittum þau ásamt fylgdarliði er þau giftu sig, og gistu á hóteli í Vík í Mýrdal, þar sem við Elli vorum líka, það var upphafið af yndislegu vináttusambandi.  
 
2-IMG_0195-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Maður er alltaf ríkari að eiga góða vini, og við höfum svo sannarlega deild bæði gleði og sorg gegnum árin. Heart
 
3-IMG_0193-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Þau elska lambalæri og sósu ala Ásthildur Smile og eftirrétturinn voru jarðaber, eigin framleiðsla. 
 
4-IMG_0189-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Yndislegt fólk, sem ætlar að eyða elliárunum hér, þau hafa keypt sér hús hér sem þau vilja eyða ævinni í, og það gleður mig.
 
5-IMG_0185-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Þessi listisnekkja frá austurlöndum dvaldi hér nokkra daga meðan mesta rokið var.  Sumir virðast eiga nóg af peningum.  En það er bara ekki nóg, ef hamingjan er ekki fyrir hendi. &#39;
 
7-IMG_6472-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
ÚLfur minn fór með blóm á leiðið hans pabba síns á afmælisdaginn.  Ekkert barn á að þurfa að vera foreldralaust.  Það er bara sorglegt. Heart
 
8-IMG_6473-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
En hann spjarar sig fínt og nú er ég búin að senda hann af stað til Noregs til Inga míns, frekar en að hafa hann atvinnulítinn hér í allt sumar.
 
9-IMG_6476-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Elli fór í kajakferðalag norður í Jökulfirði, en við Úlfur ákváðum að fá okkur svínarif, hann fékk að elda sitt og ég mitt.  Þetta var voða fínt hjá stráknum og bragðgott.
 
10-IMG_6478-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Ég var reyndar alveg ánægð með mitt líka, þó það líti ekki eins vel út og hans LoL
 
29-IMG_6503-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Ég er nú ekki alveg ein í kotinu, því þessir piltar koma oft og heimsækja ömmu í kúlu.
 
30-IMG_6504-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Það er gaman að fara í kistuna og fata sig upp, þeir hlupu líka upp í gróðurhús og komu rennandi blautir til baka, og þegar ég spurði hvar þeir hefðu bleytt sig, svaraði einn þeirra, sem ekki var blautur, þeir voru að tékka á hvort þeir væru karlmenni, og þeir voru það.  
og hvernig gerðist það?
Jú með garðslöngunni hennar ömmu LoL
 
31-IMG_6505-001
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Jamm börn eru skynsamar verur og við mættum ef til vill taka þau meira til fyrirmyndar.  Það er svo gott að eiga góða vini, sagði Sigurjón þegar þeir stóðu svona saman.  Og það er nú einmitt málið.  Vinir og væntumþykja er nauðsynlegt fyrir okkur öll.  
 
Ég fór líka í jarðarför í dag að kveðja góðan vin og félaga, sem dó langt um aldur fram, Sverrir Halldórsson sem hefur verið viðloðandi mína fjölskyldu í mörg mörg ár, og giftur frænku minni.  Elsku Björk ég innilega samhryggist þér elskuleg mín og einnig fjölskyldunni þinni sem misst hefur yndislegan mann, föður og tengdason.  Blessuð sé minning hans. Heart
 
Eigið svo góðan dag elskurnar.  
 
 

 


Eftir hlátur kemur grátur.

Jamm það er svona notaleg tilbreytni að sjá stjórnmálamann gráta og reyna að útskýra af hverju hann stal frá þjóð sinni.  Tilbreyting frá hroka og munnherkju stjórnmálamanna, sem neita öllu og vonast til að komast upp með það.  Því enginn hefur nátturulega gert eitt eða neitt rangt þó allir viti betur.  

Annars datt mér í hug einn ágætur grátmaður frá Suður Afríku, sem reynir að telja fólki trú um að hann hafi ekki drepið konuna sína, þó allir viti að hann gerði það.  Smile  Hver segir svo sem að konur eigi einkarétt á því að gráta og góla?

Hefði samt vilja frá þetta textað svo ég vissi hvernig hann tæklaði málin.   


mbl.is Sá hágrátandi segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hannes var ekki valin, heldur valdi sjálfur, sem er allt annað mál.

Stundum held ég að ráðamenn haldi að við séum ennþá á tuttugustu öldinni, og hægt sé að telja okkur almúganum trú um hvað sem er.  

Það gekk vel alveg þangað til almenningur komst í  tæri við internetið, og gat bæði fylgst nánar með og tjáð sig sjálfur.  Hér áður fyrr var "plottað" í reykfylltum bakherbergjum og síðan var "fréttinni" komið áleiðis til ákveðinna aðila sem skrifuðu um það eða sögðu frá í heitu pottunum, og svo var hamrað á gjörðinni uns hún virtist vera algjör sannleikur og þjóðþrifamál, meðan þar bjó ekkert undir nema að ota eigin tota. 

Því miður er þetta brennimerkt öllum gamla fjórflokknum en ekki bara einum eða tveimur.  Þeir hafa allir gert sig seka um svona vinnubrögð, sem þess vegna augljóslega hefur orðið til þess að almenningur í landinu ber ekkert traust til stjórnmálamanna.  Því miður nær hugsunin ekki lengra en það, því fólk virðist alltaf kjósa það sama yfir sig aftur og aftur, en ég held að það breytist núna hraðar og hraðar.  Og plottið springur jafnvel framan í þá sem spinna það.  

 Þetta sést hvergi betur en einmitt í dæminu með Hannes Hólmstein, 

http://www.dv.is/frettir/2014/7/9/ekki-rett-ad-felagsvisindastofnun-hafi-valid-hannes-og-falid-honum-verkefnid/?fb_action_ids=10204193820114877&fb_action_types=og.comments

Þar sem kemur fram að Félagsvísindastofnun valdi hann ekki til starfans með rannsóknina.  Heldur var þetta undan hans rifjum runnið og var síðan borið undir fjármálaráðherra sem tók málið upp á sína arma.  Vissi Bjarni Benediktsson hvernig í pottinn var búið, eða var hann plataður upp úr skónum?

Eftir það sem nú hefur komið í ljós er augljóst að þessum tíu milljónum er kastað út í loftið, því enginn heilvitamaður mun taka mark á þessum vinnubrögðum.  

Ég hef svona hingað til haft ákveðna samúð og eftirvæntingu með þessa ríkisstjórn, en því miður er hún byrjuð að sýna tennurnar í allskonar niðurskurðarmálum, subbuskap með náttúruauðlindir, og allt virðist vera falt í þeirra augum.  

Þetta er synd, því vissulega hefur ríkt ákveðin bjartsýni í bæði atvinnulífi og fjármálum að undanförnu, en það við viljum bara ekki kosta öllu til.  Landið okkar þarf að vera verndað til að skila því til barnanna okkar þannig að þau geti lifað hér.  

Ég yrði ekki hissa þó ríkisstjórnin myndi lenda í blindgötu fyrr en síðar, því sífellt stækkar bilið milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks og hvað tekur þá við?  Ekki vil ég fá Samfylkinguna, Bjarta framtíð og Vinstri græn aftur við stjórnvölin, ég fæ bara grænar bólur af tilhugsuninni.

En eitthvað verður að gerast til að menn átti sig á því að almenningur í þessu landi er búin að fá nóg af plotti í fylltum bakherbergjum og vilja ekki lengur hafa svona vinnubrögð, hvaða stjórnmálaflokkar sem haga sér þannig.

Skora á þig Bjarni Benediktsson að endurskoða þessa fyrirætlun þína, þegar komið er í ljós að þarna er pottur brotinn.  Það er nefnilega ekki sama hvort félgasvísindastofnun valdi mann til að vinna ákveðið verkefni, eða að það kom úr hans eigin ranni og er hans hugmynd.  Það er bara allt annar hlutur, þú hlýtur að sjá það sjálfur.   

 

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981

Hvað er eiginlega í gangi?

Ég er ekki alveg á þessu, hvað gengur stjórnvöldum til að fá jafn umdeildan mann og Hannes Hólmstein til að rannsaka eitthvað eins og bankahrunið.  Og til hvers, hvað á að koma út úr þessari rannsókn?  Hvað með rannsóknarskýrsluna sem gerð var? var hún ekki nógu góð?

Hver treystir þessum annars ágæta manni til að gera hlutlausa skýrslu um bankahrunið?  Jú auðvitað innmúraðir sjálfstæðísmenn, en bara innmúraðir, sem hvort sem er trúa öllu sem þeim er sagt af sínum flokksmönnum.  

 Er þetta ef til vill tilraun til sjálfsmorðs af hálfu Sjálfstæðísflokksins?  Ætli Framsóknarflokkurinn standi einhuga með samstarfsflokknum að þessu?

Hvenær ætla íslenskir stjórnmálamenn að skilja að þeir geta ekki hagað sér eins og þeir vilja, langlundargeð íslendinga er svona um það bil að verða búið.  Og þegar það gerist, þá er aldrei að vita hvað gerist.  

Hvaða flokki sem þeir tilheyra hafa þeir orðið uppvísir að lygi, óheiðarleika, svikum, lagabrotum og þeir eru hættir að skammast sín eða fela það.  Þetta er mín upplifun af því fólki sem hefur verið í eldlínunni í stjórnmálum undanfarin mörg ár.  

En dropinn holar steininn, og stundum bara getur maður ekki annað en tjáð sig.  Hannes Hólmsteinn er auðvitað ekki slæm manneskja, né ætlar sér neitt illt.  En málið er að almenningur treystir honum ekki, frekar en öðrum samgeltendum stjórnmálaflokkanna, svo sem eins Björn Valur er fyrir Steingrím og svo framvegis.  Fólk er löngu farið að sjá í gegnum þetta.  Það er eiginlega komið nóg.  

Þegar fólk þekkir ekki sinn vitjunartíma þá er ástandið orðið frekar tvísýnt.  

Reynið nú að fara að hugsa um almenning í þessu landi og hag þess, en ekki pólitískt stolt ykkar sjálfra.   

 Sannleikann á borðið takk og engar refjar.  Og refsingu fyrir þá sem rændu og rupluðu þessa þjóð takk og engar refjar.  Takmörkun á sjálftöku örfárra á kostnað almennings takk og engar refjar.  Til dæmis að rannsaka skiptastjóra og hvernig þeir haga sér með þau fyrirtæki sem þeir hafa í sínum klóm, og hvernig þeir haga sér þar, takk og engar refjar.  

Við erum lítið og fámennt land og það er bara óþolandi hvernig örfáir einstaklingar fá einkaleyfi á að féfletta almenning endalaust með vitund og vilja stjórnvalda, af hvaða flokki sem er við stjórn.  


mbl.is 10 milljónir fyrir skýrslu Hannesar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband