Spádómur Vestfjarðarnornarinnar.

Fullt að spáynjum hafa látið ljósið sitt skina undanfarið og allt í lagi með það.  Þær hafa spáð ýmsu til  dæmis að ekki myndu verða kosningar í vor, eða  þá að það yrðu kosningar í vor.  Flokkar myndu þurrkast út.  Þessa spár eru að mínu mati mengaðar af væntinum spákvennanna, og af hverju í and......... eru það bara konur sem eru spurðar um framtiðina? eru þær eitthvað forspárri en karlmenn.  Ókey með það.

Hér er mín spá og hún er ókeypis.

Ríkisstjórnin mun reyna að hrókera meö ráðuneytisstjóra og ráðherra til að reyna að skapa frið. Það mun ekki heppnast.  Mótmæli munu ágerast og virkilega fara að hafa sín áhrif í þá átt að grafa undan samtryggingu kjötkatlafólkins.  Það munu verða kosningar í vor. 

 Samfylkingin mun líða undi lok, en upp mun rísa Alþýðuflokkur og þeir sem ekki finna sig þar munu ganga í flokkinn sem nú heitir Vinstri grænir,  Sá flokkur mun þá ekki ná nema broti af því sem hann er samkvæmt skoðanakönnum í dag.

Þá mun koma fram flokkur anarkista sem ætlar sér stóra hluti, en þeir munu ekki koma manni að.

Frjálslyndi flokkurinn munn koma sterkur inn, en með endurnýuðum liðsmönnum, sem virkilega munu taka flokkin yfir, og þar innanborðs verður lunginn af mótmælendum, sem hafa ákveðið að láta til sín taka innan flokkana, og sjá að Frjálslyndi flokkurinn er ungur og nógu lítill til að hægt sé að hreinlega taka hann yfir. 

Framsóknarflokkurinn mun ekki verða það afl sem hann vonast til þrátt fyrir allar mannabreytingar og stjörnur sem hafa gengið í flokkinn. 

Þetta mun leiða af sér að það verður róttæk endurskoðun á stjórnarskár og það inniber að aldei aftur getur framkvæmdavaldið komið fram af þvílíkum endemis hroka  og yfirgengilegheitum og nú á sér stað.  Sem segir að við munum læra af þeirri dapurlegu reynslu sem við höfum núna af valdstjórninni.

Jamm það eru breytingar í farvatninu breytinga sem engin getur séð fyrir sérstakega ekki einvhverjar spákerlingar sem hafa ekki yfirsýn yfir landslag pólitíkur, frekar en ég, og þess vegna er þessi spá mín ekkert síðri en þeirra.  Svo er bara að sjá til ekki satt?

Burt með spillingarliðið, megi ráðdeild, sanngirni og réttlæti varða veginn héðan í frá.


Frá Ísrael.

Mig langar til að setja hér inn bréf sem ég var að fá frá vini mínum frá Ísrael, segir meira en þúsund orð, og ég gef honum orðið;

Want to End the Violence in Gaza? Boycott Israel.
By Naomi Klein, The Nation
Posted on January 9, 2009, Printed on January 9, 2009
http://www.alternet.org/story/118332/
 
It's time. Long past time. The best strategy to end the increasingly bloody occupation is for Israel to become the target of the kind of global movement that put an end to apartheid in South Africa.
In July 2005 a huge coalition of Palestinian groups laid out plans to do just that. They called on "people of conscience all over the world to impose broad boycotts and implement divestment initiatives against Israel similar to those applied to South Africa in the apartheid era." The campaign Boycott, Divestment and Sanctions -- BDS for short -- was born.
Every day that Israel pounds Gaza brings more converts to the BDS cause, and talk of cease-fires is doing little to slow the momentum. Support is even emerging among Israeli Jews. In the midst of the assault roughly 500 Israelis, dozens of them well-known artists and scholars, sent a letter to foreign ambassadors stationed in Israel. It calls for "the adoption of immediate restrictive measures and sanctions" and draws a clear parallel with the antiapartheid struggle. "The boycott on South Africa was effective, but Israel is handled with kid gloves.… This international backing must stop."
Yet even in the face of these clear calls, many of us still can't go there. The reasons are complex, emotional and understandable. And they simply aren't good enough. Economic sanctions are the most effective tools in the nonviolent arsenal. Surrendering them verges on active complicity. Here are the top four objections to the BDS strategy, followed by counterarguments.
1. Punitive measures will alienate rather than persuade Israelis. The world has tried what used to be called "constructive engagement." It has failed utterly. Since 2006 Israel has been steadily escalating its criminality: expanding settlements, launching an outrageous war against Lebanon and imposing collective punishment on Gaza through the brutal blockade. Despite this escalation, Israel has not faced punitive measures -- quite the opposite. The weapons and $3 billion in annual aid that the US sends to Israel is only the beginning. Throughout this key period, Israel has enjoyed a dramatic improvement in its diplomatic, cultural and trade relations with a variety of other allies. For instance, in 2007 Israel became the first non-Latin American country to sign a free-trade deal with Mercosur. In the first nine months of 2008, Israeli exports to Canada went up 45 percent. A new trade deal with the European Union is set to double Israel's exports of processed food. And on December 8, European ministers "upgraded" the EU-Israel Association Agreement, a reward long sought by Jerusalem.
It is in this context that Israeli leaders started their latest war: confident they would face no meaningful costs. It is remarkable that over seven days of wartime trading, the Tel Aviv Stock Exchange's flagship index actually went up 10.7 percent. When carrots don't work, sticks are needed.
2. Israel is not South Africa. Of course it isn't. The relevance of the South African model is that it proves that BDS tactics can be effective when weaker measures (protests, petitions, back-room lobbying) have failed. And there are indeed deeply distressing echoes of South African apartheid in the occupied territories: the color-coded IDs and travel permits, the bulldozed homes and forced displacement, the settler-only roads. Ronnie Kasrils, a prominent South African politician, said that the architecture of segregation that he saw in the West Bank and Gaza was "infinitely worse than apartheid." That was in 2007, before Israel began its full-scale war against the open-air prison that is Gaza.
3. Why single out Israel when the United States, Britain and other Western countries do the same things in Iraq and Afghanistan? Boycott is not a dogma; it is a tactic. The reason the BDS strategy should be tried against Israel is practical: in a country so small and trade-dependent, it could actually work.
4. Boycotts sever communication; we need more dialogue, not less. This one I'll answer with a personal story. For eight years, my books have been published in Israel by a commercial house called Babel. But when I published The Shock Doctrine, I wanted to respect the boycott. On the advice of BDS activists, including the wonderful writer John Berger, I contacted a small publisher called Andalus. Andalus is an activist press, deeply involved in the anti-occupation movement and the only Israeli publisher devoted exclusively to translating Arabic writing into Hebrew. We drafted a contract that guarantees that all proceeds go to Andalus's work, and none to me. In other words, I am boycotting the Israeli economy but not Israelis.
Coming up with our modest publishing plan required dozens of phone calls, e-mails and instant messages, stretching from Tel Aviv to Ramallah to Paris to Toronto to Gaza City. My point is this: as soon as you start implementing a boycott strategy, dialogue increases dramatically. And why wouldn't it? Building a movement requires endless communicating, as many in the antiapartheid struggle well recall. The argument that supporting boycotts will cut us off from one another is particularly specious given the array of cheap information technologies at our fingertips. We are drowning in ways to rant at one another across national boundaries. No boycott can stop us.
Just about now, many a proud Zionist is gearing up for major point-scoring: don't I know that many of those very high-tech toys come from Israeli research parks, world leaders in infotech? True enough, but not all of them. Several days into Israel's Gaza assault, Richard Ramsey, the managing director of a British telecom specializing in voice-over-internet services, sent an email to the Israeli tech firm MobileMax. "As a result of the Israeli government action in the last few days we will no longer be in a position to consider doing business with yourself or any other Israeli company."
Ramsey says that his decision wasn't political; he just didn't want to lose customers. "We can't afford to lose any of our clients," he explains, "so it was purely commercially defensive."
It was this kind of cold business calculation that led many companies to pull out of South Africa two decades ago. And it's precisely the kind of calculation that is our most realistic hope of bringing justice, so long denied, to Palestine.
 
Naomi Klein's latest book is The Shock Doctrine: The Rise of Disaster Capitalism.


Silfurtorg - mótmæli.

Fundurinn var frábær.  Nú finn ég hvað það er nauðsynlegt að fólk komi saman hlýði á kjarnyrtar ræður og finni samstöðuna.  Það þyrfti að gerast í hverjum bæ og bóli til að vekja fólkið upp til umhugsunar.

Ræðurnar voru fínar fundarstjórinn góður og allt fór vel fram.

IMG_5040

Veðrið var betra en ég hélt.

IMG_5042

Fyrst var farið að ná sér í skilti.

IMG_5043

Svo að taka sér stöðu.

IMG_5044

Fólk streymdi að úr öllum áttum, ég hugsa að þarna hafi ekki verið undir 150 - 200 manns.

IMG_5047

Fólk sem ekki lét veðrið aftra sér og ekki var veikt.

IMG_5045

Stubburinn valdi sér spjald við hæfi.

IMG_5048

Hér er fundarstjórinn Guðmundur Þór.

IMG_5050

Herdís Hübner hélt góða ræðu.  Hún bar saman þegar útrásarvíkingar voru að fara í skemmtireisu fyrir skömmu sem kostaði 4 milllur á manninn, var á sama tíma verið að bera aldrað fólk út af íverustöðum sínum, nauðugt og koma þeim fyrir eins og ám í stíu tveim og þrem saman í herbergjum.

IMG_5055

Lýður sagði að hann hefði komist að því að meðan við hefðum verið um borð í þjóðarskútunni, hefðu stjórnvöld alls ekki verið þar þegar skútan sigldi í strand, þeir hefðu verið í þotunum einkasnekkjunum og heimsreisum útrásarfurstanna, það hefði verið svo gaman að þeir hefðu ekki mátt vera að því að sigla  fleyi til hafnar, því fór sem fór.

Burt með þetta lið.

IMG_5056

en ég er viss um að það verða fleiri næst.

IMG_5057

Þó veðrið sé kalt þá er bara að klæða sig vel.

IMG_5058

Það má engin skorast undan að láta álit sitt í ljósi.  Þá er ég að tala um fólkið sem vill breytingar, hinir sitja auðvitað bara áfram á sínum rassi og njóta ylsins heima hjá sér svo lengi sem hann varir.

IMG_5036

En angarnir mínir fóru út að leika í snjónum í dag.

IMG_5037

Það er gaman að leika og byggja snjókarla og hús.

IMG_5039

En eigið góðan dag elskurnar mínar.  Ég er allavega rosalega sátt við daginn.  Takk félagar mínir sem voruð með mér á Silfurtorginu og þeir sem fjölmenntu á Austurvöllinn og allir sem mótmæla í hjarta og sinni.  Samstaðan er mikilvægust.  Heart


Vakningarræðan hennar Láru Hönnu!

Ó, þjóð mín þjóð

Hvar ertu?

Hvar eruð þið, sem skrifið svo fjálglega um ástandið og spillinguna?
Hvar eruð þið, sem ræðið um byltingu í heitu pottunum og á kaffistofunum?
Hvar eruð þið, sem fordæmið bankamenn og útrásarauðmenn?
Hvar eruð þið, sem skammið ríkisstjórn, alþingismenn og embættismenn?
Hvar eruð þið, sem hallmælið gróðærinu og viljið annað siðferði?
Hvar eruð þið, sem eruð ósátt við aðgerðir og aðgerðaleysi ráðamanna?
Hvar eruð þið, sem viljið réttlæti öllum til handa, ekki bara sumum?
Hvar eruð þið, sem hafið tapað á hlutabréfakaupum?
Hvar eruð þið, sem hafið tapað á peningamarkaðssjóðum?
Hvar eruð þið, sem hafið tapað lífeyrinum ykkar?
Hvar eruð þið, sem eruð ósátt við að bankarnir afskrifi skuldir auðmanna?
Hvar eruð þið, sem viljið ekki selja þeim fyrirtækin aftur skuldlaus?
Hvar eruð þið, sem horfið á aldraða foreldra flutta hreppaflutningum?
Hvar eruð þið, sem viljið jafnræði?
Hvar eruð þið, sem sjáið húsnæðislánin ykkar rjúka upp?
Hvar eruð þið, sem hafið misst vinnuna?
Hvar eruð þið, sem viljið kosningar og nýja stjórn?
Hvar eruð þið, sem teljið réttlætiskennd ykkar misboðið?
Hvar eruð þið, sem eruð að lenda í heljargreipum verðtryggingar - sumir aftur?
Hvar eruð þið, sem viljið láta frysta eigur auðmanna?
Hvar eruð þið, sem fordæmið leynd og ógegnsæi aðgerða stjórnvalda?
Hvar er samviska ykkar?

Hvar eru þessar tugþúsundir sem eru í viðráðanlegri fjarlægð, við sæmilega heilsu og ættu að mæta á Austurvöll klukkan 15 á laugardögum og tjá óánægju sína með nærveru sinni þar? Eruð þið í Kringlunni eða Smáralind? Heima að horfa á enska boltann eða þrífa? Í sundi eða húsdýragarðinum? Hvar eruð þið?

Það eru 168 klukkutímar í einni viku. 8 tíma svefn á nóttu eru 56 tímar. 10 tímar í vinnu og ferðir 5 daga vikunnar eru 50 tímar. Eftir eru 62 tímar í viku. Hvernig í ósköpunum stendur á því að þið getið ekki séð af 1 klukkutíma til að mæta á Austurvöll og tjá með nærveru ykkar að þið séuð ekki sátt við ástandið í þjóðfélaginu og hvernig er tekið á því?

Ég bara næ þessu ekki.

Hvort ætli sé mikilvægara - hvort Manchester United vinnur Chelsea í dag eða hvort þið eigið þak yfir höfuðið til að horfa á leik eftir nokkra mánuði? Hvaða máli skiptir hvort þið farið í sund klukkan tólf eða þrjú? Eru Kringlan og Smáralind ekki opnar á öðrum tímum en milli þrjú og fjögur á laugardögum? Hvar í andskotanum eruð þið?

Hvernig réttlætið þið það, að láta okkur hin - par þúsund manns eða svo - heyja baráttuna fyrir ykkur? Hvað gerir ykkur svo sérstök að þið séuð undanþegin því að taka þátt í að berjast fyrir framtíð ykkar sjálfra, barnanna ykkar og barnabarnanna? Hvernig í ósköpunum stendur á því að þið berið ekki hönd yfir höfuð ykkar og látið aðra um að mæta á mótmælafundi fyrir ykkur? Hvar er sú gagnrýna hugsun sem ykkur var gefin í vöggugjöf?

Hvað ætlið þið að segja barnabörnunum ykkar þegar mótmæla- og borgarafundirnir eru komnir í sögubækurnar? "-Varst þú þarna, afi? -Nei, ég var heima að horfa á enska boltann. -En þú, amma? -Nei, ég fór alltaf í Kringluna á laugardögum." Eða ætlið þið kannski að ljúga og segjast hafa tekið þátt í mestu hugarfarsbyltingu Íslandssögunnar án þess að hafa lyft litlafingri eða mótmælaspjaldi? Hvar er réttlætiskennd ykkar?

Ég bara skil ykkur ekki.

Eruð þið virkilega ekki búin að fatta hvað er á seyði? Horfið þið ekki eða hlustið á fréttir? Vitið þið ekki að það er búið að arðræna þjóðina, stjórnvöld hylma yfir með sökudólgunum og enginn er látinn sæta ábyrgð? Vitið þið ekki að heilbrigðisráðherra er að leggja heilsugæsluna í rúst til að einkavæða hana og gefa auðmönnum - að hann hefur ekkert lært? Hvar eruð þið, heilbrigðisstéttir þessa lands á frívakt á laugardögum?

Ef einhver er í vafa um hvort tilefni sé til að mæta á Austurvöll klukkan þrjú í dag eru hér þrjú myndbönd til að skerpa sýnina. Þetta eru fréttir Stöðvar 2 og RÚV 8. og 9. janúar - í gær og í fyrradag. Bara tvö kvöld - og bara þarna eru ótal tilefni. Hvað þá í fréttum undanfarinna þriggja mánaða. Og myndband af Sjónvarpi Mbl.is þar sem grunur minn í síðasta pistli er staðfestur - það á að einkavæða heilbrigðisþjónustuna að amerískri fyrirmynd. Ég - fyrir mína parta - mótmæli því af alefli! En þið?

Stöð 2 - 8. og 9. janúar 2009

 

RÚV - 8. og 9. janúar 2009

 

Mbl Sjónvarp - 8. janúar 2009

 

Elskurnar mínar - ef þetta nægir ykkur ekki, ofan á allt sem á undan er gengið - þá veit ég ekki hvað þarf til að vekja ykkur af gróðærismókinu. Sjáumst á Austurvelli í dag og alla laugardaga þar til árangur næst - klukkan þrjú

http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/767334/#comment2092491


Munið mótmælin kl. þrjú á morgun.

Á morgun verða mótmæli á Silfurtorgi á Ísafirði.  Ég fór í dag til Dagnýjar Þrastar og herjaði út skilti fyrir mig og Úlf.  Hann vill endilega bera líka skilti.  Ég er náttúrlega alveg rosalega stressuð, vegna þess að ég veit að börn mega ekki taka þátt í mótmælum, en innrætingin er svo rosaleg hjá mér hlýtur að vera.  Tounge

Ég hlakka til.  Það verður spennandi að sjá hvort einhver verður svo óforskammaður að hylja andlit sittW00t.  Svo verður líka spennandi að vita hvernig veðrið verður.  Það er spáð leiðinda veðri, en var svo dregið til baka að einhverju leyti þ.e. það á ekki að blása mikið en það á samt að snjóa.

Það sem ég veit er að ræðurnar verða góðar bæði Herdis Hübner systir hans Tryggva gítarleikara og Lýður Árna eru flottir ræðumenn.  Fundarstjórnin verður líka í góðum höndum því þar heldur á veldissprota Guðmundur Þór, þó hann komist náttúrulega ekki með rassinn þar sem Hörður hefur magann.... eða þannig LoL

Ég vona að það mæti sem flestir, nú verðum við að fara að sýna samstöðu.  Mér finnst eins og sumir sitji bara og flatmagi á sófanum heima hjá sér, setjist svo niður við tölvuna og fjandist út í fólkið sem er að mótmæla, finna því allt til foráttu, og leita eftir veikum punktum.  Þó held ég að flestir séu á því að hér hafi verið framið óréttlæti sem ekki verði við unað. 

Hvað vakir fyrir þessu liði veit ég ekki, hvort að er einhversskonar sjálfskipuð fyrirhyggja, eða hvort þeim finnist að þeir séu útundan er ekki víst.  Ef til vill dreymir þetta fólk um að standa í fararbroddi og vera hetjur, en fyrst það tekst ekki, þá er um að gera að rakka allt niður sem aðrir eru að gera.  Og benda á að þetta sé nú heldur betra svona, eða geta ekki tekið þátt af því að þetta er hinsegin.  Þjóðverjarnir sem voru hér að mótmæla sögðu að við kynnum ekki að mótmæla, og sennilega hafa þau rétt fyrir sér.  Við höfum aldrei gert neitt þessu líkt áður.  Þess meiri hetjur eru þeir sem komu þessu af stað.

Ef til vill finnst þessum sjálfskipuðu fyrirhyggjupostulum sem allt vita betur, bara allt vera í fínu lagi og ekki þörf á að breyta neinu.  Spurningin er bara hve margir þeir eru og svo auðvitað hvort þetta er týnda þjóðin hennar Ingibjargar.

Ég er allavega þakklát því fólki sem fór af stað hér í minni heimabyggð.  Því mér fannst ég sitja utanvið allt, sérstaklega þegar heiglarnir stoppuðu af að sent væri beint út frá fundunum.  Sú þöggun sem þar sýndi sig var eftirtektarverð og sýnir svo ekki verður um villst að málstaðurinn er ekki beysin hjá stjórnvöldum.  Þau vilja ekki að við stöndum upp og mótmælum.  Þau vilja hafa okkur áfram sofandi sauði, helst að við förm í hár saman og eyðum orkunni í að gagnrýna aðferðir hvors annars.

En ég held að það takist ekki.  Vona það alla vega því mótmælendur eru af öllum stærðum og gerðum, á öllum aldri og þverskurður af ekki - þjóðinni hennar Ingibjargar.  Áberandi er að fremst í fríðum flokki fara þroskaðar konur.  Það eitt og sér bendir til alvarleika mótmælanna.  Konur eru ef eitthvað er seinþreyttari til vandræða en karlmenn.  En þegar sverfur að og grunngildi þeirra fjölskyldan og öryggið er í hættu þá er ekkert dýr grimmara en kvendýrið, hvort sem það er mannvera eða annað dýr.  Við verjum það sem okkur er kærast.  Og það sem þyngra vegur er að hér er ekki um að ræða eitthvað feministakjaftæði eins og sumir myndu kalla það, heldur hin venjulega húsmóðir, mamma, amma og jafnvel langamma sem stjórnvöld þurfa að díla við. 

Mætum öll þau sem finnst við vera órétti beitt og látum í okkur heyra.  Látum spillingaröflin finna að okkur er ekki sama og að við viljum breytingar. 

En svo eru nokkrar myndir svona til upplífgunar.

IMG_5030

Fiskur er herramannsmatur.

IMG_5032

Hér er verið að búa til eyju sem verður svo etin af svangri tröllskessu sem heitir SólHanna.

IMG_5027

Svo þarf auðvitað að vaska upp og ganga frá eins og gengur.

IMG_5035

svo má afi teikna kalla á handarbakið, sem er mjög spennandi.

En veðrið....

IMG_5018

Klukkan er hálffjögur og rétt að koma að göngunum Ísafjarðarmegin.  Það er byrjað að snjóa.

IMG_5020

Og það hefur snjóað töluvert á þessum klukkutíma sem tók að sækja stelpurnar.

IMG_5021

Þið hafið ef til vill tekið eftir því að það er fullt tungl, þessi er því spúkí, tekinn á 1600 Iso og dálítið hreyfð en hér gætu vappað inn álfar og tröll ef þið gætið ekki að ykkur.

IMG_5022

Aðrir litir með flassinu.

IMG_5024

Já þetta er eins og ævintýraland.

Eigið góða nótt og góða drauma elskuleg mín Heart


Upphitun fyrir mótmæli.

Þýsku vinir mínir Hnífsdælingarnir Abrecht búa lengst inn í Þýskalandi, langt frá sjónum.  Þau eru sannir íslandsvinir og hafa keypt sér lítið hús við sjóinn í Hnífsdal, þar sem þau eyða sínum fríum.  Þau hafa líka leigt húsið út til fólks sem kemur hér og nýtur þess að vera við sjóinn og í náttúrunni.  Svo var ákveðið að gera göng til Bolungarvíkur, sem ekki er nema bara gott mál.  En síðan var ákveðið að leggja veg sjávarmeginn við húsið þeirra.  Þau hafa lengi unað sér þarna í fríum veitt fisk í soðið og notið þess að vera á þessum friðsæla stað.  Nú breytist allt, enginn aðgangur að sjó lengur, og sennlega mun hávaðinn af bílum glymja í kyrrláta húsinu þeirra.  Það er því ekki sama eignin og þau keyptu af bænum á sínum tíma. 

Þau fóru því og mótmæltu þessum gjörningi á táknrænan hátt í dag.

IMG_2192

Og slagorðið er orðið klassiskt ekki satt!

IMG_2196

Þau eru bæði vel menntuð hjónin, og vita hvað þau syngja í þessu máli.  Hún er arkitekt og hann sólarorkusérfræðingur.

IMG_2197

Vonandi fær þetta að standa fólki til viðvörunar.  Því eins og þau segja, hvað gerist ef peningarnir klárast þegar gerður hefur verið hálfur vegur og hálf göng? Væri ekki nær að klára göngin og sjá svo til, hvort þörf er á þessum vegi?

IMG_5009

Ásthildi er svo sem sama, því hún étur bara appelsínur og nóg af þeim.

IMG_5014

Hún er líka tilbúin í ræktunina.  En vegna allra smáputtana sem alltaf eru á þessu heimili þá setti afi steypu ofan á pottinn.  Moldin var endalaust út um öll gólf.

IMG_5017

Hér er svo prinsessudyngjan með öllum flottu prinsessukjólunum. 

IMG_5012

Myndir af fjöllunum.  Veðrið var gott í dag eins og venjulega.  Mikið er farið af snjónum eins og sjá má.

IMG_5013

Og jafnvel þó skuggsýnt sé orðið, þá er fjallamálverkið á pollinum. 

En ég ætla að setja hér inn mynd sem var stungið að mér.  Veit einhver deili á þessu fólki?  Mér finnst ég kannast við þau, en kem þeim ekki fyrir mig.

Hvert er fólkið

Það væri gaman að fá nöfnin og söguna.

Svo verð ég að segja það fyrir mig að ég skil ekki alveg þetta niðrandi tal um þá mótmælendur sem bera grímur.  Hvað er að því að fólk hylji andlit sin ef það vill?  Svo lengi sem mótmælin eru friðsamleg og á góðum nótum.  Við hvað er fólk hrætt?  Er það of mikið gláp á erlendar fréttir?  Eða hvað er það sem vekur fólki þennan ótta. 

Er þetta sama og með fólk sem skrifar nafnlaust?

Ég skrifa alltaf undir nafni, og myndi aldrei hylja andlit mitt.  En ég get vel skilið fólk sem það gerir.  Ég veit nefnilega að Ísland er ekki meira lýðræðisríki en svo, að fólk hefur verið látið gjalda fyrir það að hafa skoðanir sem ekki hugnast annað hvort vinnuveitanda eða ráðamönnum.  Þess eru mýmörg dæmi.  Þetta kemur iðulega upp á yfirborðið í kosningabaráttu.  Ég veit ekki hve margar sögur ég hef frá fólki sem þorir til dæmis ekki að láta uppi stuðning við minn flokk, vegna hótana.  Og aðrir sem ekki treysta sér til að fara á lista.  Fólk hefur misst vinnuna vegna þátttöku í pólitísku starfi, fleiri en einn og fleiri en tveir.

Sama gæti átt við um mótmælendur sem hylja andlit sín.  Þið ættuð frekar að beina reiðinni að þeim spilltu yfirvöldum og vinnuveitendum sem haga sér þannig, en ekki fólkinu sem jafnvel er að verja sjálft sig og fjölskylduna. 

Ísland er ekki lýðræðisríki í dag, heldur gjörspillt einokunarríki, því fyrr sem þið opnið augun fyrir því, því fyrr tekst okkur að endurreisa lýðræðið og koma á réttlæti.  Meðan fólk gengur um eins og blindir kettlingar og heldur að allt sé í himnalagi eruð þið að gefa skotleyfi bæði á ykkur sjálf og alla hina.  TAKK FYRIR ÞAÐ.

Eigið svo gott kvöld elskurnar. Heart


Kajak og kvöldverður með góðum vinum.

Þrettándin var í gær, það er síðasti dagur jóla hér hjá okkur allavega. 

IMG_4957

Svona var veðrið í þá, en það rigndi heilan helling í dag svo nú er allur snjór á burt.

IMG_4958

Hnífdsdælingarnir vinir okkar frá Svartaskógi fóru með Ella á kajak í gær, enda var veður til þess.

IMG_4959

Fyrst var að velja sér kajak.

IMG_4960

Það verður svo skemmtiferð í Reykjanes um mánaðarmótin, þar sem við munum eyða helginni saman.

IMG_4962

En því miður gat ég ekki beðið eftir að þau færu á flot, því ég þurfti að fara og sækja stelpurnar.

IMG_4973

Okkur var svo boðið í mat í notalega heimilið þeirra í Hnífsdal, sem þau hafa nú dvalið yfir jól og áramót.

Þessi líka fína steikta rauðspretta.

IMG_4986

Og svo var spilað og leikið.

IMG_4989

Það var virkilega notalegt.

IMG_4999

Og Úlfur brá smá á leik.

IMG_5002

Birgit og Ásthildur skoða myndir.

Þau ætla sko að fara heim með bæði fisk og kjöt, sennilega harðfisk líka, svo er konfektið gott.  En fiskur og kjöt frá Vestfjörðum er það besta sem til er.

Svo var farið að leita að álfabrennunni, hún var svo í Bolungarvík svo við misstum af henni.

En þetta var samt frábært kvöld..


Dagný Dimmblá. Þú ert bestust.

Ég ætlaði að setja inn nokkrar myndir núna, en ákvað að fresta því þar til seinna í dag.  Ég vil nota þetta tækifæri til að ræða um málefni Dagnýjar Dimmblár litlu hetjunnar sem fullorðið fólk er að rífa í sig eins og hungraðir úlfar.  Ég held að sambærilegt dæmi gæti verið Smáralindarbæklingurinn frægi.

En hverslagt réttlætiskennd eða skilningur er það hjá fólki að börn megi ekki tjá sig, það hljóti að vera eitthvað bogið við foreldrana, eða barnið hljóti verr af.

Það er ekki skeytt um að kynna sér málið, eða lesa það sem fólk skrifar sem nærri henni stendur.  Heldur ræðst hver um annan þveran í vandlætingu að fólkinu eins og um alvarlegan glæp sé að ræða. 

Þetta sama fólk segir ekki STAKT ORÐ UM FORELDRA SEM GEYMA BYSSU Á GLÁMBEKK í húsi þar sem eru unglingar.  Úr hvaða efnivið er fólk hér gert ?

Andskotans forræðishyggja.  Það er allt í lagi að hafa sínar skoðanir á þessu, og sumir eru auðvitað hógværir.  En ég verð reið þegar ég sé að aðförin hefur ill áhrif á blessað barnið.  Hvað er þá skilningurinn og verndin?  Hvar er hún í ykkar huga, sem hér ráðist af vandlætingu fram á ritvöllinn, eða haldiði ef til vill að 8 ára barn kunni ekki að lesa.  Eða haldið þið virkilega að hún hafi ekki viljað sjá hvaða áhrif ræðan hennar hafði.  Auðvitað hélt hún að hún fengi plús fyrir frammistöðuna, við þráum öll viðurkenningu.  Og hvað blasir svo við?

Jú fordæming á foreldrum hennar.   Og að það hefði ekki átt að leyfa henni að tala.

Ég segi nú bara, fjandans afskiptasemi alltaf í fólki, og forræðishyggjan.  Já ég er orðin reið fyrir hönd litlu stúlkunnar og ég segi nú bara.

Dagný Dimmblá mín takk fyrir að þora að koma fram og segja ÞÍNA meiningu.  Ég veit að jafnvel átta ára gömul börn hafa meiningar, og oft heilbrigðari en fullorðna fólkið, sem lætur mata sig endalaust og ætlar því öðrum það sama. 

En hér ætla ég svo að endingu að setja inn færslu frá móðursystur hennar:

Innlegg frænku hennar.

Sjaldan hef ég heyrt jafn marga, opinbera fordóma sína og skinhelgi. Börnin eru líka þjóðin, ekki satt! Heldur fólk, að það sé hægt að vernda börn fyrir upplýsingum í upplýsingaþjóðfélagi? Heldur fólk, að börn hafi enga greind og geti ekki myndað sér skoðanir? Heldur fólk, að börn þessa lands verði ekki vör við kreppuna og allt krepputalið? Á sumum heimilum á fólk ekki fyrir mat, á öðrum heimilum eru foreldrarnir búnir að missa vinnuna. Heldur fólk, að það sé hægt að pakka börnunum inn í bómull og vernda þau fyrir raunveruleikanum?Stúlkan sem um ræðir, Dagný Dimmblá, er bróðurdóttir mín. Bráðskír, ófeimin og fylgin sér. Hún ákvað sjálf á sínum tíma, að búa til sitt mótmælaspjald, því hún vildi mótmæla á Austurvelli. Hún fór með pabba sínum á nokkra mótmælafundi, þessir fundir eru afar fjölskylduvænir svo ekki sé meira sagt: Fólk á öllum aldri, frá ungum börnum í barnavögnum upp í háaldrað fólk, og allt fer friðsamlega fram. Á einum fundinum fór hún til Harðar Torfasonar og bað um leyfi til þess að ávarpa næsta fund, því henni fannst vanta upp á að raddir barna heyrðust þarna líka. Pabba hennar leist ekkert á þessa hugmynd til að byrja með, og vildi í fyrstu ekki samþykkja þetta (hann sá fyrir ofstækisfull viðbrögð fordómafulls fólks, það gekk líka eftir). Hann lét þó undan henni að lokum, mest vegna þess að það eru mannréttindi barna að fá að tjá sig. Hún skrifaði ræðuna sjálf, pabbi hennar hjálpaði henni að hreinskrifa og þetta var alls ekki æft heima. Að hún hafi verið heilaþvegin eða fjölskyldan hafi att henni út í þetta er algjör fjarstæða. Allir sem þekkja Dagný Dimmblá vita það mæta vel. Henni varð heldur ekkert meint af atburðinum. Hún hefði getað átt mjög góða minningu um þetta: Hún hélt ræðu, sem hún skrifaði sjálf og hún stóð sig vel og fólk klappaði. Nei, það má hún ekki. Það þarf að eyðileggja upplifunina og snúa þessu upp í ofstæki og einelti. Henni hefur orðið meint af viðbrögðum ykkar bloggara við þessu. Eitrið sem vellur út úr sumum pennum hérna á moggablogginu, meðal annars, er til háborinnar skammar. Fjölskylda mín er kölluð kommúnistar! (ég hélt að þeir væru allir dauðir með kalda stríðinu!) Það á að senda barnaverndarnefnd á okkur! Við erum ásökuð um barnaníðslu og heilaþvott! Svo ég nefni lítið brot af þeim svívirðingum sem velta út úr bloggurum þessa síðustu daga. Dagný litla þorir varla út úr húsi og hefur átt erfitt með svefn síðustu daga. Hún verður sennilega líka að skipta um skóla vegna þessa. Þetta er á ykkar ábyrgð.

Þið bloggarar standið ykkur vel í því að brjóta niður unga sál, undir því yfirskini, að þið séuð að vernda barnið og berið hag þess fyrir brjósti. Mig langar að kasta upp. Þjóðin er greinilega ekki bara gjaldþrota í peningum, hún er líka að tapa vitinu að mínu mati, og svona skrif eru ekki greindu fólki sæmandi á neinn hátt. Þau sýna aftur á móti gjaldþrot andans og umburðarlyndisins.

http://siggahulda.blog.is/blog/siggahulda/  Hér er hægt að hlusta á ræðuna hennar líka.


Ætlar þetta engan endi að taka - er ekki komið nóg?

Ætli þetta eigi að vera brandari?

Ótrúlegt að horfa upp á þetta.  Heila þrjá klukkutíma ætla þeir að "gefa" Palestínu á degi hverjum, og drepa þá svo í 21 tíma þess í milli.  Opna hvað MANNÚÐARLEIÐ!!!  Er ekki allt í lagi með þetta lið.  Æ nei fyrirgefið, það er auðvitað aldrei í lagi með fjöldamorðinga, þeir þurfa blóð og mikið af því til að finna að þeir eru teknir gildir í samfélagi þjóða.  Eða hvað? 

Ég held að ráðamenn í Ísrael geri sér enga grein fyrir þvílíkan viðbjóð þeir hafa vakið hjá almenningi heimsins.  Þeir munu aldrei þvo þann blóðblett af sér, og eins og íslendingar hafa skuldsett börn og barnabörn, hafa þessir menn blóðgað alla sína niðja í þúsund ár.  Ó vei Ó vei mikil er reisn ykkar morðhundar og mikil er reisn ráðamanna heimsins meðan blóðið flæðir niður heimasvæði Palestínu og allt svínaríið liggur undir steinum. 

Megi þið hljóta þau örlög sem þið hafið skapað öðrum.  Megi allt það henda ykkur sjálfa sem þið ætlið palestínsku þjóðinni. 

Mér er farið að líða virkilega illa út af þessu öllu, og var þó ekki á bætandi  þegar haft er í huga ástandið sem ríkir hér á heimaslóðum.  Ætlar þetta engann endi að taka?  Hvar byrjaði talið um mannlega reisn?  Eða dýrslegar hvatir?  Og hvar er skilgreiningin þar á milli?  Er nema von að ég spyrji.   


mbl.is Hlé gert á árásum á Gaza
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erum við ennþá í moldarkofunum? Höfum við ekkert lært eða þroskast?

Það er eitt sem hefur spillt fyrir mér gleði nýgenginnar hátíðar, sett svartan blett á allt.  En það er ofbeldi Ísraels gagnvart Palestínu.  Mér ofbýður gjörsamlega hvernig þetta getur átt sér stað, og að þjóðir heims geti hreinlega setið og gert lítið eða ekki neitt. 

Þegar einelti á sér stað, þýðir ekkert fyrir kennarann á skólalóðinni að segja bara skamm skamm.  Það þarf að taka í hnakkadrambið á hrekkjalómnum og setja af stað vinnuferli til að stemma stigu við ofbeldinu.

Að þjóðir heims geti bara setið og horft upp á þessa villimenn murrka lífið úr saklausu fólki er mér algjörlega óskiljanlegt.  Yfirklór eins og fordæming (skamm skamm) skiptir nákvæmlega engu máli fyrir þessa ofbeldisfullu þjóð Ísrael.  Ég veit svo sem að alþjóðasamfélagið er ennþá að skammast sín vegna meðferðar sem gyðingar fengu hjá Hitler og nasistum.  En eru ísraelskir ráðamenn ekki nákvæmlega sömu gerendur nú, eins og þeir voru fórnarlömb áður?

Ef maður tekur þetta lengra, hvað ætlar svo samfélagið gera þegar ísraelar hafa murrkað lífið úr palestínsku þjóðinni?  Brotið sjálfstæði þeirra á bak aftur og skilja eftir rústir einar?

Ætla þeir þá að burðast með sektarkennd yfir Palestínskri þjóð næstu öldina?  Og hvar staðsetur það morðingjana í náinni framtíð?  Þeir munu fyrirlitnir og smáðir af öllu hugsandi fólki.  Samúðin sem þeir hafa alltaf treyst á, er ekki til, nema hjá því fólki sem sér ekkert fram yfir biblíuna og að þeir séu Guðs útvalda þjóð.  Svo satt sem það nú trúlega er, eða hitt þá heldur.  Ég er viss um að Jesús Kristur hefði skipt um ríkisfang, hefði hann getað og allir spámennirnir með. 

Það þýðir heldur ekkert að hóta að taka friðarverðlaunin af Peres, þó það sé auðvitað alveg sjálfsagt mál.  Þessi verðlaun eru hvort sem er honum til háðungar í dag.  Hann hefur fyrirgert rétti sínum til að hafa þau í eign sinni blóðugur upp fyrir axlir af saklausu blóði barna og kvenna.

Sérstaklega svíður mér að hlusta á íslenska ráðamenn eins og Þorgerði Katrínu éta upp eftir bandaríkjamönnum við að réttlæta drápinn.  Skömmin er algjörlega hennar, enda þykir mér einsýnt að daga hennar séu taldir í pólitík, bæði vegna þessa og annarra spillingarmála í hennar fjölskyldu.  

Ég hef lengi haft lítið álit á ráðamönnum í Ísrael, ég veit að margir ísraelar eru friðarsinnar og vilja ekki hafa þetta svona, sumum sem ég þekki til,  líður hreint og beint illa yfir þessu, enda brottrækir og eiga ekki endurkomu til heimalandsins.  En þetta litla álit hefur nú breyst í hreinan viðbjóð.  Ég spái því að mannorð þjóðarinnar verði orðið þannig að þeir geta hvergi komið eða verið í friði.  Fólk muni allstaðar fyrirlíta hvern og einn af þeirra þjóðerni.  Við vitum sjálf hve auðvelt það er að dæma heila þjóð sem glæpamenn, þó við séum örþjóð. 

Ísrael er að leggja grunninn að sjáflseyðingu sinni.  Það sem þeir munu uppskera og reyndar allir sem tala þeirra máli í heiminum verður fyrirlitning og hatur. 

Níðingsverk þeirra munu fylgja þeim í þúsund ár.  Og ég vorkenni þeim ekki.

Annað sem ég vil segja hér er að margir hafa fordæmt foreldra átta ára gamallar stúlku fyrir að leyfa henni að tala á friðsamlegum mótmælum á Austurvelli.  Talið þetta bera vott um slæma foreldra, og þeim er ætlaður allskonar ásetningur með þessu.  Þó höfum við frá fyrstu hendi frásögn af því að þessi litla stúlka bað sjáf um að fá að tala.  Hafði frumkvæði að því við Hörð Torfason að fá að tala.  samdi ræðuna sína sjálf meira að segja. 

Á sama tíma hef ég ekki séð þetta sama fólk fordæma foreldra sem höfðu marghleypu og skot á glámbekk með börn, eða allavega ungling á heimilinu.  Maðurinn þar að auki sérsveitarmaður og lögregla, sem ætti að vita betur. 

Ég get ekki kallað þetta annað en tvískinnungshátt. 

Og svo er freistandi að spyrja hvar ætlar þetta fólk að draga mörkin.  Má ekki leyfa þroskaheftum að tala á friðsamlegum mótmælum?  Eða á að banna fóki yfir áttrætt að tala, þau geta jú verið orðin elliær.  Fíklar mega heldur örugglega ekki tjá sínar skoðanir þarna eða hommar og lesbíur.  Enda hefur nú aldeilis verið veist að Herði Torfa og hann kallaður allskonar nöfnum.

Þetta er forræðishyggja að mínu mati.  Fólk sem vill ráða hverjir mega tala og hverjir ekki.  Bara það að tæp 50% ætla ennþá að kjósa þessa ríkisstjórn yfir okkur aftur, segir meira en þúsund orð.  Núna þegar ljósara verður með hverjum deginum spillingin, eftirlitsleysið, yfirhylmingin og ráðaleysið í núverandi stjórnvöldum, jafnframt því að hanga eins og hundar á roði á völdum sínum hvað sem tautar og raular. 

Við erum sem sagt ennþá föst í moldarkofunum, eða höfum rétt troðið okkur út fyrir dyrnar, klifrað upp á bæjarburstina og reynum að sjá út að túnfætinum, en sjáum aðeins okkar eigið bæjarhlað.  Er nema von að fólk sem vill berjast, vill réttlátara samfélag og vill leggja á sig að reyna að mótmæla ástandinu sé orðið uppgefið.

Það vantar ekki að fólk sjái misskiptinguna, óréttlætið og ég efast ekki um að allir sem ekki eiga hlutdeild í kjötkötlunum vilji breytingar.  En annað hvort er fólk hrætt við að breyta til, eða kærulaust um lýðræðislegan rétt sinn.  Eða eins og ein kona sagði við mig fyrir nokkrum árum, þegar ég stóð í kosningabaráttu; mér finnst málefnin hjá ykkur afskaplega góð, og mér lýst vel á fólkið sem er í forsvari hjá ykkur en ég hef alltaf kosið sama flokkinn, og ég kann ekki við að fara að breyta til núna.  Er þetta ef til vill hugsunin?  Er þetta ef til vill lýðræðið sem ríkir hér í dag. 

Ég vona ekki.  Ég vona svo sannarlega að við getum fundið flöt á pólitíkinni, sem verður okkur öllum til góðs, sem við getum sameinast um.  Þetta ástand getur ekki varað lengur ef við viljum vera ein þjóð í einu landi.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 2023221

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband