Ég fór í leikhús.......

Ég fór í leikshús í gær og ég skemmti mér þvílíkt vel.

IMG_5914

Þetta var úr leiksmiðju Jóns Múla og Jónasar Árnasona unnið upp af Elvari Loga bloggvini mínum og leikhúsmanni.  Við heimtum aukavinnu heitir afurðin, en er mest söngvar og skemmtilegheit upp úr verkum bræðranna góðkunnu.

Ég verð að segja að þetta var frábær skemmtun, Elvari Loga tókst vel upp eins og hans er von og vísa, hvergi dauður punktur, leikgleðin réði ríkjum og sum atriðin óborganlega fyndin, því miður mátti ég ekki taka myndir á sýningunni, en reyndi að nappa myndum eftir hana.

Hér sést uppröðunin, það var líka opinn bar og fólk gat setið með bjór og rauðvín og virkilega slakað á.

 

IMG_5919

Þetta er eitt af lokaaatriðunum, þegar leikararnir fara út í sal og sækja eitt stykki Jörund Hundadagakonung setja á hann kórónu og hylla hann.

IMG_5920

Þau voru óborganlega fyndinn.  Ég horfi með mikilli bjartsýni á Litla leikklúbbinn með allt þetta unga skemmtilega fólk innanborðs.  Og það var ekki hægt að sjá að þau væru ekki professional, það skrifast að einhverju leyti á Elvar Loga, en líka á þau sjálf og þá útgeislun sem þau hafa.

IMG_5921

Ég get bara sagt fyrir mig að ég grenjaði af hlátri á stundum.

IMG_5923

Hljómsveitin var líka flott, enda Gummi Hjalta þar í forsvari.

IMG_5924

Þetta stelpuskott syngur hreinlega eins og engill.  Og það var ekki síst hún sem gaf sýningunni þetta frábæra yfirbragð.

 IMG_5926

Þau voru ótrúlega flott öll sem eitt.

IMG_5936

Baksviðs, ég vildi fá þau til að pósa fyrir mig eftir sýningu, en á laugardagskvöldi eru allir að fara að gera eitthvað.  Ég sé eftir að hafa hlýtt reglunum og ekki tekið myndir af þeim meðan á sýningunni stóð, þá hefðuð þið séð hve flott þau voru.

IMG_5937

Palli minn ansi þungur á brún hehehehe... gamall í hettunni, en þetta eru reyndar Skuggasveinn og Ketil skrækur.

IMG_5941

Að öllum öðrum ólöstuðum fór þessi unga dama svo gjörsamlega með mig þegar hún söng fylleríislagið sitt, og brilleraði þvílíkt, þessi með Smirnovið Elín Sveinsdóttir, Guð minn góður hvernig er hægt að vera svona fyndinn...

IMG_5943

eins og í heyrt og séð, slummað og sleikt og soleiðis eigum við okkar stjörnur líka, hér eru Harpa og Gauji litil okkar, flott í leikhúsinu, þau þekkjast út körfuboltanum og Ísfólkinu.

IMG_5946

Ásthildur ekki taka mynd af mér!!! hehehe Guðrún á Rúv að skemmta sér LoL

Elvar Logi enn eitt skiptið hefurðu sýnt hve mikill snilli þú ert að vinna með fólki.  Þetta var áreynslulaus sýning, gekk snurðulaust og aldrei nokkur glufa, allt smalll vel saman og allt var bara ótrúlega gott og skemmtilegt.  Ég átti yndislega stund í leikhúsinu okkar, og vil bara þakka innilega fyrir mig.  Á svona erfiðum tímum er nauðsynlegt að geta hlegið og skemmt sér, ég ætla bara rétt að vona að þessar sýningar verði fram yfir páska, og vil virkilega hvetja fólk til að fara og upplifa skemmtun sem stendur fyllilega undir væntingum.  Batnar örugglega ef eitthvað er.  Ég vildi samt óska að ég mætti vera á einni sýningu og taka myndir af öllum þessum skemmtilegum mómentum sem verkið býður upp á. 

Elsku LL, Elvar Logi og leikara, söngvarar tónlistarmenn, og allir baksviðs innilega takk fyrir mig, luv jea. HeartOg er rosastollt af ykkur.

 


Nokkrar myndir.

Til hamingju með Valentínusardaginn.  Hann er sérstakur í mínum huga vegna þess sem gerðist fyrir nákvæmlega tveimur árum, þegar lítil stúlka kom í heiminn.  Mamma hennar hafði rembst við í um 18 klst. og svo þegar ákveðið var að skera keisara, var lyftan á sjúkrahúsinu biluð, svo hún þurfti að labba sig niður á næstu hæð fyrir neðan með allar slöngur og dót í sér niður á skurðstofuna. 

En þessi litla hnáta er hún Evíta litla Cesil. 

evita3

Einn af ljósgeislunum mínum. Heart Til hamingju með afmælið Evíta mín, þú fæddist á degi Valentínusar með ljósmóður sem ber nafnið Ásthildur og ömmu við hlið þér sem líka ber nafnið Ásthildur Cesil, svo þinn dagur var fullur af ást.

IMG_1965[1]

Dóttir mín fór með pabba sínum á kajak í dag, og Halldór Sveinbjarnarson tók þessa mynd af þeim, Valentínusarmynd.  Heart

IMG_1962[1]

Veðrið var eins og best verður á kosið.  Milt og sólskin.

IMG_1952[2]

Þessir herramenn gengu á vatninu, það var svo vel frosið þarna úti á pollinum að það var manngengt.  Sá ágæti ljósmyndari Halldór Sveinbjarnarson tók allar þessar kajakmyndir í morgun.

IMG_5809

Birtan var falleg í dag.

IMG_5811

Þessi er síðan í fyrradag.

IMG_5820

Þessi er síðan í gær.

IMG_5821

Kvöldmynd.

IMG_5814

En stelpurnar fengu lánaða naggrísi hjá vinkonu Báru, og það er þvílíkt gaman að leika sér með þessi litlu grey.

IMG_5848

Brandur er líka voða spenntur fyrir þeim, en það er af öðrum ástæðum. Devil

IMG_5851

Það var svo skíðadagur í skólanum á fimmtudaginn var, og hér er Úlfur á leið á dalinn.

IMG_5863

Brandi finnst líka gaman að lesa, í milli þess sem hann skoðar naggrísina.

IMG_5865

Júlli og Sigurjón skoða fiskana hans "pabba"

IMG_5870

Mamma tilbúin á kajakinn.

IMG_5871

Naggrís í góðum höndum.

IMG_5873

Prakkarinn.

IMG_5875

Sólin skín glatt á alla ísfirðinga í dag.

En ég ætla að setja myndir úr afmælinu hennar Evítu litlu inn hér seinna í kvöld, ég er reynar að fara í leikhúsið í kvöld, við heimtum aukavinnu í leikstjórn Elvars Loga bloggvinar míns,  ætli ég megi ekki taka myndir i frammklappinu, sjáum til með það. 

En svo er ein tilkynning.  Ef einhverjir þarna úti hafa áhuga á að koma til leiks við Frjálslynda flokkinn, og reyna að hafa sín áhrif í beinni, þá getið þið haft samband við mig í einkapósti.  Ég skal koma þeim á framfæri sem hafa áhuga.  Það er alltaf hægt að hafa áhrif í litlum flokki og koma sínum áhugamálum fram.  Það er samt best að kynna sér stefnuskrána, og sjá hvort eitthvað er þar sem fólk vill, við erum með mjög góða stefnuskrá, og höfum haldið henni til streitu allan tímann.  Það er hægt að skoða það á www.sf.is  Endilega skoðið þar og gáið hvort ykkur hugnast það sem þar er sett fram.  Eins og er er allt opið, og landsþing verður haldið í Stykkishólmi dagana 23 og 24 marz.  Þar er aðstaðan til að koma sínum málum áfram í málefnavinnu. 

Það hefur skapast svigrúm núna undanfarið, þar sem fólk sem ekki vildi stefnu okkar hefur yfirgefið flokkinn.  En knús á ykkur og eigið góða helgi.  Heart

 


Gátuvísur og ljóð í tilefni aðstæðna.

        Ég mun setja inn myndir seinna í dag.  En ég er að grúska í safninu mínu og þar er ýmislegt skemmtilegt.

 Hér er til dæmis ljóð þýtt af Helga Hálfdánarsyni.  Gott að vita í kreppunni, þegar fólk hefur ekki of mikla peninga til að bruðla með mat.



MATARÆÐI


Enn þjakar Adams niðja

ýmisleg bölvuð mæða,

sárlegust samt af öllum

sú sem er kölluð fæða.

 

Fiskurinn eyðir óðar

öllum krafti úr skrokknum

allt kjöt er óhollt líka

einkum úr gæðaflokknum.



 

Mjólk dregur merg úr beinum

máttleysi veldur rjómi

enginn sem ostinn spænir

aftrað fær skapadómi.

 

Kál sýkir lungu og lifur

laukur er viðsjáll sagður

hver sem á baunum bragðar

brátt verður kistulagður.



 

Kæfa sem kemst í magann

kvelur sárt innan rifja

alla sem átu pylsur

óhætt mun strax að kryfja.

 

Þeir sem af súpu sötra

senn munu helveg troða

svali menn sér á kaffi

sálarheill er í voða.



 

Brauðið herðir á hungri

hvar sem það er til sölu

vitsmuni vora slekkur

vatnið, alla með tölu.

 

Súrt kveikir synd í huga

sætt spillir hjónabandi

salt verður fljótt og að fullu

fjárhag vorum að grandi.

 


Hvorki varð hrátt né soðið

heilsunni gæfuvegur

mun það og mála sannast

að matur er háskalegur.

 

Íþrótt er vond, og vinna

verður engum til þrifa

óhollast samt af öllu

það uppátæki---að lifa.

 

 Svo er hér vísukorn um Gildi orðsins ort af Ingibjörgu Sigurðardóttur frá Kálfshamarsvík.  Líka gott að hafa í huga á þessum tímum þegar menn eru að fara í kosningabaráttu og kenna hvorir öðrum um hitt og þetta.   

 

Gildi orðsins.

Af gnægðum hjartans mælir munnur,

mynda orðin sálargerð

Öll þau speglar andans brunnur.

eru þau hugans dýra sverð.

 

 Orðin birta eðli manns,

illt og gott í fari hans.

Góður maður gott fram setur

góðum sjóði hjartans frá.

Göfugleikans gull hann metur

grandvör orð og sannleiks-þrá.

 

 Tungan hlýðir hugsun manns,

hún er lykill sálar hans.

Vondur maður orðin illu

ávallt lætur fús í té.

Sína eykur syndavillu

saurgar heilög andans vé.

 Hver sem iðkar orðin ljót,

allri blessun vinnur mót.

  

Því er vert að vanda tungu,

varhyggð rétta temja sér.

Gróðursetja í eðli ungu

allt,sem manni þroska ber

Orðsins gildi gullvægt er,

ef göfug hugsun saman fer!

 

    Svo til gamans ég dundaði mér við það fyrir nokkrum árum að setja saman svona gátuvísur.  Þær eru barn síns tíma og ekkert sérstakar, en þær eru þannig að þær erum um eitt orð.  Hver setning á að lýsa einni meiningu sama orðsins, sem getur merkt mismunandi hluti eða hugtök.  Hér eru tvær slíkar.  Getið þið giskað á hvaða orð hér er verið að leita að? hver hending er sérstök upplýsing um sama orðið.   

Það er löngum sagt um leitarmann

Líka er  gáfan  náðar.

Á höfuðfötum þetta fann.

Á fyrirlestrum sá‘ ða.   

 

Hvaða orð erð þetta?  

 

Konunafn þið kunnið eitt.

Enginn vill slíkan bera.

Orðanna hljóðan,  illa breytt.

Aldnir oft það gera.

Og svo þetta hér?


Þroskasaga karlanna!!!

Svona til gamans í hugleiðingu vegna jómfrúarræðu Ragnheiðar Ólafsdóttur á Alþingi í gær. 

 


1.


Barnaskólaárin eru mörgum fersk í minni

því miklar verða breytingarnar á líkamsstarfseminni.

Mörgum fer þá bráðlega að leiðast lestrarstritið

þá læðist gjarnan inn í kroppinn fyrsta hvolpavitið
 

.

2.

Svona kringum fermingu þá fá menn bassaróminn

og finnast vera tilbúnir að kenna leyndardóminn.

En þetta er oftast klúður og klaufalegir fundir

því kynlífið á líka sínar raunalegu stundir


.

3.

Fram að tvítugsaldri er talsvert um að vera

taumleysið er algert og mikið oft að gera.

Núna er það fjöldinn sem mestu skiftir

og margur maður óttalaus Grettistaki lyftir
 

.

4.

Frá tvítugu til þrítugs blómstrar lífsins leikur

löngunin er stöðug og andi holdsins veikur.

Þú lætur eins og knapi á ljónfjörugum hesti

þig langar til að gera það á klukkutímafresti .

5.

Frá þrítugu til fertugs nú gjarnan góðar stundir

geysilegur vilji og margir ástarfundir.

Af talsvert meiri nákvæmni þú tilfinningar metur

þú treinir þetta lengur, og gerir þetta betur .


6.

Síðan næsta tímabil fram að fimmtugsaldri

finnst þér alveg sjálfsagt að beita nýjum galdri

kroppurinn er fullur af fiðringi og vonum

þú ferð að vilja sofa hjá miklu yngri konum .

7.

Þessi löngun fylgir þér fram á sextugsaldur

þér finnst þú vera töffari og svakalega kaldur.

Um sextugt fer að hrella þig viðsjáll vöðvaslaki

þú verður oftar þreyttur og tollir illa á baki .


8.

Um sjötugsaldur finnst þér aftur fjörið vera að lægja

þú ferð nú yfirleitt að láta gömlu brýnin nægja.

Það miðar hægt ef vindurinn stendur beint í stefnið

þú stundar þetta bara til að halda þér við efnið
 

.

9.

Um árætt virðist sjálfsagt að hafa hug á konum

í hjartanu er ylur og löngunin að vonum.

þér finnst það skifta máli hjá meyjunum að vera

en mannst samt stundum ekki hvað þú ætlaðir að gera
.

10.

Eftir þennan tíma er löngun best að leyna

og láta ekki glepjast þó konan vilji reyna.

Í átökunum getur sálin gengið öll úr lagi

þú gætir orðið bráðkvaddur úr elli"reiðar"slagi.


 

Þá vitum við það hvernig eru á öllum áratugum

okkar kæru karlmenn, þeir leita í öllum smugum.

munum þetta  grínið vel á  góðum skemmtistundum

og gjarnan ræðum þetta vel á hinum ýmsu fundum.

(Smábreytt)
 

Goggikáboy


 


Frú Ragnheiður Ólafsdóttir þinn er heiðurinn.

Ég vil byrja á að lýsa hreykni minni yfir frammistöðu minnar ágætu vinkonu Ragnheiðar Ólafsdóttur á alþingi í dag.  Ég hlustaði á ræðuna hennar og svo sannarlega eins og hennar er von og vísa brilleraði hún algjörlega;

 

Ragnheiður Ólafsdóttir.

Innlent | mbl.is | 11.2.2009 | 14:11

Látið karpið bíða til kosningabaráttunnar

  • bíða til kosningabaráttunnar, sagði Ragnheiður Ólafsdóttir, nýr varaþingmaður Frjálslynda flokksins, sem las þingmönnum pistilinn á Alþingi í dag.

Ragnheiður tók til máls undir liðnum störf þingsins. Hún sagðist lengi hafa fylgst með Alþingi en þó sérstaklega eftir að hún vissi það í síðustu viku að hún myndi taka sæti á þinginu.

„Miðvikudaginn 4. febrúar, þá var mikið karp um kosningu forseta Alþingis. Ótrúlegt. Fimmtudagur 5. febrúar. Fyrsti heili starfsdagur Alþingis með nýrri ríkisstjórn. Þá var umræða um greiðsluaðlögun. Rifrildi, frammíköll og  að  mínu mati hálfgerð upplausn um hver samdi frumvarpið eins og það skipti fólk úti í þjóðfélaginu einhverju máli, eða hvað?

Föstudagurinn 6. febrúar. Umræða um Seðlabankann. Karp, frammíköll, málþóf.

Í gær, minn  fyrsta dag hér á Alþingi þá upplifði ég ekki mjög málefnalegar umræður; frammíköll og ýmis upphrópunarefni og mér fannst ég vera komin á framboðsfund vestur á fjörðum hér í gamla daga með Matta Bjarna, Sighvati Björgvins, Vilmundi Gylfa og Karvel Pálma. Þá var ekkert sjónvarp svo allir íbúarnir voru að fara á skemmtifund og höfðu gaman af.

Mér finnst sorglegt að horfa upp á sjálfstæðismenn eiga mjög erfitt með að vera í stjórnarandstöðu hér og ekki getað fótað sig. En almenningur, sem heima situr og horfir agndofa á slíkar umræður, bíður í ofvæni eftir að Alþingi segi eitthvað og geri eitthvað í til að hjálpa heimilum og fyrirtækja þessa lands.... Ég bið ykkur þingmenn að hafa  aðgát í nærveru sálar. Sýnið þingi og þjóð þá virðingu að láta karpið bíða til kosningabaráttunnar," sagði Ragnheiður. 

Þetta er algjörlega brilliant.  Og ég verð að segja að ég á minn þátt í því að þessi flotta kona er þarna í dag og ekki lítinn.  Því hreyknari er ég af hennar frammistöðu vitandi að það var mikið til fyrir mín orð og baráttu sem hún er í þessum sporum í dag. Innilega til hamingju elsku Ragnheiður mín fyrir frammistöðuna í dag, ég er svo hreykin af þér.

490076A

Flottust mín.Heart

 

 

En svo ætla ég að setja inn nokkrar myndir undir svefninn.

IMG_5733

Litla skottið mitt á það sammerkt með ömmu sinni að hún er algjört dansfífl.

IMG_5734

Sjáið hvernig hún notar allan líkaman í dansinn, meira að segja puttana.

IMG_5735

Og allur likamin er með í dansinum við glansmyndina.

IMG_5736

Lílfsgleðin er svo sönn.

IMG_5738

Og svo er allt sett upp í grín og gleði.

IMG_5740

Stóra prinsessan aftur á móti er kúlasta stelpan í heiminum.

IMG_5760

Og svo er bara litað og haft það gott.

IMG_5766

Og hér er bein útsending frá landsfundi Framsóknarflokksins, þar sem fram fer námskeið í hnífastungum LoL

IMG_5776

Flottar litlar gellur í garðskála.

IMG_5783

Yndislegust mín Heart

Nokkrar fjallamyndir fyrir fjallafólkið mitt.

IMG_5724

Þvílík birta.

IMG_5750

Himnagalleríið opið.

IMG_5753

Ísinn... er kaldur.

IMG_5756

Ísilagður pollur, en enginn smápollur, heldur Pollurinn hehehe þetta skilja ísfirðingar og sumir jafnvel muna eftir því þegar pollinn lagði og allir fóru á skauta.

IMG_5757

Þetta er náttúrulega ekkert síðra en himnagalleríið, bara sjórinn pikkfastur í ís, en svona líka flottur.

IMG_5758

Nema himininn er hvolfþak, sjórinn flatur.

IMG_5759

Elska þennan stað og alla sem þar eru.Heart

IMG_5773

Naustahvilftin hér dansa dísir.

Það dregur að skiladögum, þar sem við ágætu landar mínir þurfum að velja milli þess sem er heiðarlegt og fullt af vilja til að breyta og laga, og svo þess sem vill bara halda í það sem var, og notar öll meðul til þess. Þeir sem vilja bara halda í forréttindin munu nota allar leiðir til að afvegaleiða okkur, ljúga, vera með áróður og reyna að telja okkur trú um að það eina sem muni bjarga sé einmitt þau sem völdin hafa borið s.l. sautján ár.  Og þó allt sé í rúst einmitt vegna þeirra framlags í þessi sautján ár, þá munu þau reyna allt til að telja okkur trú um að allt annað sé það versta sem fyrir okkur geti komið.  Þau munu koma í flokkum, segja sömu lygarnar mörg sitt úr hvorri áttinni, eins og hýenur í veiði, til að réttlæta tilveru sína.  Því þau hafa aldrei upplifað neitt annað en að deila og drottna, og þau skilja einfaldlega ekki að það geti neinn annar komið og gert betur.  Þau eru sum ef til vill ekki vond eða óheiðarleg, en samt sem áður gjörspillt og trúa virkilega því sem þau segja.  En eins og hjá öðrum trúfélögum, þá eru flest þeirra nytsamir sakleysingjar, sem virkilega trúa að þau séu að fara með rétt mál, meðan markaðs- og forræðishyggjan liggur i leyni og lætur þau tala eins og búktalara.  Verum á verði fyrir falsi og fláræði, látum ekki plata okkur lengur eins og gert hefur verið síðastliðinn átján ár.  Hlustum, meðtökum og verum á verði, því í fyrsta skipti á okkar dögum skiptum við litli jón og litla gunna máli, því landið hefur ekki fyrr lent í öðru eins fyrr á okkar tímum, svo það skiptir miklu máli að við allavega skoðum á hvern hátt við getum sjálf hjálpað til að reisa landið úr þeirri krýsu sem það er í í dag.  Og ég get alveg lofað þvi að það verður EKKI með þátttöku svokallaðs sjálfstæðisflokks, heldur með sameinuðu átaki allra hinna.


Áherslupunktar Frjálslyndaflokksins.

Eins og fólk eflaust tók eftir, þá var Frjálslyndi flokkurinn inn í myndinni í upphafi með Framsóknarflokknum í að styðja þessa ríkisstjórn.  Svo var allt í einu hætt að telja hann upp í því sambandi, svo ég spurði Guðjón Arnar hverju það sætti. 

Hann sagði mér að hann hefði sett fram fjögur atriði sem yrði að vera til staðar svo hann gæti varið stjórnina.  Sagði að vísu að hann myndi halda áfram sem hingað til að styðja góð málefni, þessir áherslupunktar sem ekki var hægt að verða við eru eftirfarandi;

Að nota þessi 30.000 tonn sem aukið var um til að opna fyrir nýliðun í sjávarútvegi.

Að opna fyrir handfæraveiðar, sem allir gætu stundað sem hafa til þess tæki og tól.

Að halda inni leyfi til hvalveiða.

Frysting verðtryggingar þegar í stað. 

 

00000000000

 

Eitthvað vafðist þetta fyrir stjórnarliðum, svo Frjálslyndi flokkurinn var þess vegna ekki með í stuðningnum. 

Tek það samt fram að ég óska þessari ríkisstjórn alls hins besta, og að þeim takist að koma góðum málum í verk.  Skil samt ekki alveg af hverju ekki var hægt að fara þessar leiðir sem hér er minnst á.

 

Ég fékk líka í hendur bækling sem Ungir Frjálslyndir hafa gefið út.

Þar stendur;

Þetta viljum við sjá hjá Ungum frjálslyndum:

Höfnum algerlega Evrópusambandsaðild íslendinga.  Ríkisstjórnin og Alþingi athugi hvort tvíhliða viðskiptasamningar Íslands við sambandið séu hentugri fyrir þjóðina en núverandi samningur um Evrópska efnahagssvæðið.

 

Slítum stjórnmálasambandi við Bretland.  Breski sendiherrann verði sendur heim.  Beiting hryðjuverkalaga á Ísland var aðgerð sem við sættum okkur ekki við.

 

Krefjumst algerrar uppstokkunar og breytinga í stjórnsýslunni.  Aðskiljum framkvæmdavaldið og löggjafarvaldið skýrt og ákveðið.

 

Íslensk matvælaframleiðsla er spurning um þjóðaröryggi. Það er alger nauðsyn að við íslendingar séum sjálfbær þegar kemur að matvælaöflun.

 

Harðari dóma fyrir kynferðisafbrot.  Dómar í málaflokknum eru allof vægir og til háborinnar skammar.

 

Elta uppi þá fjárflæframenn sem komu þjóðinni á hauginn. Ákæra þá fyrir landráð.

 

Koma fiskveiðiréttinum aftur til fólksins.  Haga fiskveiðistjórn lanldsins þannig að mannréttindi séu ekki brotin.  Gefa ungu fólki tækifæri til að hefja rekstur í sjávarútvegi.

 

 Kraftur í unga fólkinu sem betur fer.

Annars var það fyrsta sem ég sá í fréttum að lögreglan hafi fengið mótmælendum bréf þar sem þeim er bent á að mótmæli sem þessi séu ólögleg og megi ekki nema með leyfi lögreglu. 

Manni dettur nú ýmislegt í hug við að heyra þetta.  Í fyrsta lagi sýnist mér á öllu að Davíð karlinn sé að fara á taugum.  Dettur ekki í hug að þetta komi frá nýjum dómsmálaráðherra, vona allavega ekki.  En mér finnst samt að hann þurfi að leiðrétta ef svo er. 

Í öðru lagi þá er þetta valdníðsla sem ekki á að líðast í lýðræðisþjóðfélagi.  En hægt er að benda á lönd eins og Kína ef við viljum bera okkur saman við einhverja.  Nú eða heimaland Aung  San Suu Kie.  Ekki leiðum að líkjast þar. 

Aung San Suu Kyi

En þetta er ef til vill framtíðinn hjá okkur, ef við gefumst upp fyrir einræðisherranum í svörtuloftunum.  Þá verður sennilega ekki langt í svona hanteringar.  Og þetta má örugglega spyrða saman við "Sjálfstæðisflokkinn", sem reyndar fer að verða háðsyrði, því hann er ekki sjálfstæður frekar en ég veit ekki hvað, heldur dindlaflokkur aftan í einum manni, þar sem allir dansa sama dansinn eftir borunni á honum.  Er það það sem við viljum?  Áframhaldandi þöggun lygar og drottununarsíki?

Nei ég held ekki.  Ég vona svo sannarlega að fólk hugsi sig alvarlega um áður en það fer á kjörstað í vor, og gefi öllum öðrum sitt atkvæði en því fólki sem við höfum horft upp á núna undanfarið, sem hefur nánast alla fjölmiðla enn á sínu valdi auk spillingarinnar í öllu stjórnkerfinu sem plantað hefur verið þar markvisst í 17 ár.

Ég ætla líka að vona að minn litli flokkur fái sitt.  Að fólk lesi stefnuskrána sem er mjög góð, og líti til þeirra mála sem okkar menn hafa lagt fram á alþingi undanfarið.  'Eg mun setja það hér inn síðar.  Það er erfitt að stofna nýja flokka svo vel sé, og erfitt að komast að.   Það getum við séð á Íslandshreyfingunni í síðustu kosningum, með mikinn meðbyr vegna Kárahnjúkavirkjunar og umhverfismála en náði ekki inn manni.  Þess vegna er betra að skoða stefnuskrár flokkanna, og líka uppbygginguna, og skoða hvort fólk getur hugsað sér að ganga til liðs við þá sem fyrir eru.  Í litlum flokki er líka auðveldara að koma sínum sjónarmiðum að ef þau eru í samræmi við stefnu flokksins.  Þess vegna vil ég hvetja fólk til að lesa og skoða hvað við höfum fram að færa.

Segi svo bara áfram Búsáhaldabylting! þið eru hetjur og allt sem þið gerið þarna er í mínu nafni líka.  Vonandi verður svo mótmælafundur á Ísafirði líka, ég er að hugsa um að taka með mér pott og sleif til að sýna samstöðu.  Áfram Nýja Ísland. 

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981

Íslandi allt, þjóðinni allt.   


Nokkrar myndir fyrir svefninn.

Nokkrar smámyndir fyrir svefninn.

IMG_5692

Hér er litli Arnar Milos serbinn okkar.  Það stendur til að fara til Belgrad næsta sumar í giftingu.  Það verður gaman.

IMG_5694

Afi og stubbur skemmta sér vel.

IMG_5699

Hann er nýorðin eins árs og alveg við að fara að labba. Heart

IMG_5721

Knúsírófurnar mínar að undirbúa sig að fara á bretti með pabba og mömmu.

IMG_5722

Hanna Sól alveg tilbúin.

IMG_5851

Með pabba á dalnum.

IMG_5865

Vei!!! gaman að renna sér.

IMG_5875

Og litla skottið hefur gaman af líka.

IMG_5793

Gaman að knúsast með mömmu.

IMG_5823

Gaman að leika, í heimsókn hjá Sunnu frænku og Stefáni.

IMG_5824

Yndislegar frænkur og bestu vinkonur Bára mín og systkinadætur Sunna, Hafdís og Thelma. Heart

IMG_5829

Með pabba, nú er hann farin suður aftur, en kemur í afmælið hennar Hönnu Sólar.

IMG_5883

Það er rosalega gaman að leika sér með þessa leikfangalest úr Ikea.

IMG_5886

Þessi mynd er ekki tekinn í stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins, heldur stjórnmálaskóla Framsóknar, þetta trix heitir að fá hnífasett í bakið LoL

Segi svo bara góða nótt elskurnar. Heart


Með pottaglamur í eyrum.

Mig dreymdi í nótt að ég stóð vaktina fyrir framan Seðlabankann og barði potta og pönnur.  Ætli þetta þýði ekki að innst inni sé það einmitt það sem ég hef þörf fyrir núna til að fá reiðina og leiðindin út úr systeminu hjá mér.  Það hreinsar ótrúlega vel út að hitta annað fólk og standa saman við að láta hugsanir okkar í ljós með þessum hætti.

Ég er líka hugsandi yfir gærdeginum og svo miklu fleira auðvitað.  En ég get ekki hrakið myndina úr huga mér þar sem blaðamenn eltu bankastjórann númer eitt um allar trissur, þar sem karlinn reyndi að hrista þá af sér.  En er greinilega ekki vanur svona hlutum, og fórst það klaufalega úr hendi.  Þetta er svona tragikómiskt, ef ekki bara sorglegt.

Og ég get ekki varist því að hugsa; hvernig líður fólki sem hefur komið sér í þessa aðstöðu?  Maður sem hélt að hann ætti heiminn, gæti ráðið öllu og var búin að koma sér upp hirð fólks sem hann hafði kring um sig, sennilega flestir vegna ótta, aðrir af einlægri aðdáun á meistara sínum.  Svo hrinur heimurinn gjörsamlega fyrir fætur honum.  En ekki á sama hátt og veröldin hrundi fyrir þjóðinni.  Nei hann þarf ekki að hafa áhyggjur af efnahag, hann hefur gætt þess að mylja vel undir sig fjárhagslega, með fjórföld eftirlaun og þau ekki af verri endanum.  Nei hann þarf ekki að kvíða atvinnuleysi eða að eiga ekki salt í grautinn, því síður þarf hann að hanga fyrir utan mæðrastyrksnefnd og sníkja mat.  Hann taldi sig hafa búið vel um hnútana, svo vel að ekkert gæti haggað honum. 

En þá kemur þessi skríll til sögunnar, rumpulíður og vesalmenni sem fara út á göturnar og velta ríkisstjórninni hans.  Ég hugsa að aldrei hafi honum dottið í hug eitt augnablik að þetta gæti gerst.  Þess vegna er han algjörlega óviðbúin árás úr þeirri áttinni.  Þarna er sagan um Davíð og Golíat enn og aftur, nema nú er það Golíat sem fellir Davíð. 

Ég hef verið að reyna að setja mig inn í þær hugsanir sem bærast í hausnum á þessum tveimur sem neita að víkja, og ætla sér að sitja þangað til..................... ætli þeir hafi hugsað það til enda?

Hver pantaði líka bréf frá Alþjóðagjaldeyrisstjóðnum, og hvers vegna vissu sjáflstæðismenn það fyrstir manna?  Getur verið að þeir hafi að kvistlinga sið haft samband af fyrra bragði til að bjarga sínu eigin skinni?  Alveg gæti ég trúað því.  Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú sýnt sitt rétta andlit, grímulaust er það ekki falleg sjón.  Þeim er í fyrsta lagi ekkert heilagt nema foringinn.  Þjóðin, þeirra eigin samviska, öllu skal fórnað á altari egósins og flokksins. 

Það var aumkunarvert að sjá Svein Andra í Kastljósinu í gær, hann var flóttalegur, og ætlaði að byrja á því að æsa Helga upp, til að verja Samfylkinguna.  En Helgi sá við honum, þarna sat hann pollrólegur og brosti, kom svo með það að auðvitað bæru þau öll ábyrgð á þessu hruni.  Og enginn ætti að skorast þar undan.  Þeirra mál yrðu svo lögð í dóm kjósenda í kosningum í vor. 

Í svona málum hafa Sjálfstæðismenn alltaf getað snúið sig út úr vandanum, með allskonar smjörklípum, enda er þeirra kosningamaskína vel smurð.  Nú er búið að leggja línurnar, það virðist alltaf vera gert þannig, að fyrst eru upphugsaðar smjörklípurnar, síðan er vel völdum snötum beitt til að byrja með áróðurinn, og svo er tekið undir af fleirum, þar sem fólk veit að ef þú segir lygina nógu oft fer fólk að trúa henni. 

Svona lítur þetta út;

Í fyrsta lagi Davíð Oddsson er lagður í einelti.

Jóhanna Sigurðar er bara flugfreyja og hefur ekkert vit á pólitík.

Jóhanna var í ríkisstjórninni og ber því fulla ábyrgð á ástandinu, ríkari ábyrgð en forsætisráðherrann og fjármálaráðherrann í síðustu ríkisstjórn.

Það á ekki að klína hruninu á sjálfstæðismenn, því þetta var öllum að kenna, sérstaklega heimskreppunni miklu.

Á þessu er hamrað eins og það sé sannleikurinn hinn eini.  Og ég held að forysta sjálfstæðisflokksins trúi því sjálf að þetta dugi til að fólk trúi þeim og kjósi þá aftur í næstu kosningum.   'Eg segi nú bara ef fólk hefur ekki meiri yfirsýn á líðandi stund en það, þá eru okkur allar bjargir bannaðar. 

Samt eru þeir að mælast með yfir 30% í skoðanakönnunum.  Er þetta í lagi?  Ég segi nei.  Flokkurinn hefur verið við völd í 17 ár, og mest allan þann tíma haft völdin í forsætis- og fjármálaráðuneytinu.  Þeir hafa komið sínu fólki allstaðar inn í kerfið, og bera þyngstu ábyrgðina á ástandinu, ásamt auðvitað Framsóknarflokknum, sem nú hefur breytt yfir sig lambsgæru til að sýnast saklaus. 

En ég get ekki ímyndað mér að okkar manni líði vel þessa stundina, með pottaglamur í eyrunum og eltingaleik við blaðamenn til og frá.  Þetta sýnir að mínu mati að það er sama hversu menn halda að þeir hafi búið sér öruggt skjól, ef innrætið er ekki í takt við talið, þá falla þeir á eigin bragði fyrr en síðar.  Og því hærra sem menn klifra upp á stallinn, því hærra verður fallið þegar að því kemur. 

En við skulum halda áfram að láta til okkar taka.  Halda ráðamönnum við efnið.  Það góða sem þessi ríkisstjórn vill gera, verður hún að fá frið til að framkvæma.  Hér er þjóðarheill í húfi en ekki sært stolt nokkurra pólitíkusa, sem halda að lífið á Íslandi snúist um þá og þeirra ráð eða ráðaleysi. 

Við skulum auðvitað ekki persónugera vandann, heldur reyna að standa saman um að hreinsa til og rísa upp til varnar almenningi í landinu.  Látum ekki hatursfull skrif trúarhóps Sjálfstæðisflokksins villa okkur sýn.  Hér er Ísland og þjóðin í spilinu. 


Má bjóða ykkur með á rúntinn?

Nokkrar stemningsmyndir frá ferðalaginu suður og heim aftur. Í Bongóblíðu allan tímann.

IMG_5661

Sólarupprás á Steingrímsfjarðarheiði.

IMG_5664

Roðagullið ský hér sjáum við niður í Staðardalinn.

IMG_5665

Áleiðis á Hólmavík.

IMG_5668

Eins og eldsumbrot þetta ekki satt.

IMG_5670

Sólin gægist upp fyrir fjöllin.

IMG_5671

Flottir drangar.

IMG_5673

Ofan af Ennishálsinum.

IMG_5675

Gti verið frá tunglinu.

IMG_5676

Á Holtavörðurheiðinni. Það var hér sem ég fór að hugsa um Ástralíu og hitabylgjuna þar 47-8°er enginn smáhiti.  Ekki er hægt að klæða hann af sér.  Púh vesalings fólkið, og ofan á allt bætast svo skógareldar.

IMG_5677

Baula svo hvít og falleg.

IMG_5678

Himnagalleríið opið í Borgarfirðinum.

IMG_5679

Þessi líka.

IMG_5680

Yfir Akrafjalli.

IMG_5681

Þröstur Þrastarson situr upp í tré í Reykjavík.

IMG_5683

Hvað ertu alltaf að glápa svona á mann, er ekki hægt að baða sig í friði segir Þröstur og blimskakkar augunum til mín. LoL

IMG_5687

Sólstafir.

IMG_5701

Ótrúleg fegurð sem getur verið í okkar fallega landi.

IMG_5702

Á leið heim aftur.

IMG_5706

Og máni gamli fullur eins og venjulega einu sinni í mánuði.

IMG_5710

Kvölda tekur sest er sól.

IMG_5712

Stundum getur verið hálf einmanalegt á enstaka bæ á Ströndunum.

IMG_5714

Mánin fullur fer um heimin, fagrar bjartar nætur.

IMG_5718

Ljós og skuggar.

 

IMG_5720

Er hann kanski að hæða heiminn, hrjáðan sér við fætur.

Eigið góðan dag elskurnar.


Frostrósir og annað fallegt.

Smá góðanótt færsla.

IMG_5244

Óli Lokbrá stráði duftinu sínu í fallegu augun hennar svo nú sefur hún rótt eins og öll góð börn gera.

IMG_5252

Prakkarinn minn var aðeins lengur að sofna, því hún er að passa upp á mömmu sína, nú er amma í öðru sæti.

IMG_5270

Enn einn fallegur dagur.

IMG_5647

Sólin fikrar sig niður fjallið og kemur svo seinnipartinn alveg niður í garðskálann.

IMG_5648

Pollurinn aðeins lagður, og allt stillt og hljótt.

IMG_5650

Sólin alltaf einhversstaðar nærri, en það tekur hana tíma að klifra upp yfir fjallatindana.

IMG_5651

Sama mynd bara aðeins blárri.

IMG_5653

Heart

Frostrósir...

IMG_5641

Þær eru svo fallegar.

IMG_5642

Og sjást varla lengur með öll þessi tvöföldu gler.

IMG_5643

en er til eitthvað fínlegra og fallegra?

IMG_5644

Sérstaklega ef maður gefur þeim smá lit.

IMG_5645

Yndi alveg hreint.

Eg var að horfa á einn af mínum uppáhaldsþáttum Johnny Creek eða hvað hann nú annars heitir, og í upphafi stóð, vinsamlegast takið eftir í þessum þætti eru bæði blótsyrði og kynferðislegar athafnir sem krefjast þess að fullorðnir séu með börnunum sínum Smile  Minnist þess ekki að hafa séð svona hér á okkar landi.  Auk þess eru þetta gamanþættir um spæjarapar sem leggur meira upp úr því að vera fyndnir en nokkuð annað.  Að vísu var sýnt nakið fólk í baði LoL

IMG_5655

ein litil alveg tibúin í svefninn, mamma að tala við pabba í símann, og við segjum bara góða nótt!Heart

P.S. gleymdi að segja ykkur að ég þarf að skreppa suður og verð fram á helgi, verð víst lítið við netið.  En hugsa því meira til ykkar. Heart


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 2023212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband