Lýðræði og íslendingar - tveir andstæðir pólar.

Lýðræði.

 

 

Nú er mikið rætt um lýðræði og að færa valdið til fólksins.  Þetta eru háværar raddir, og allskonar framboð í bígerð.  Fólk með fullt af væntingum og von um að geta komið lýðræði á í landinu og komið á Nýju Íslandi.

  

Ég er farin að hallast að því að það sé tálsýn.  Samfélagið vill ekki lýðræði eða breytingar  Samfélagið sem samanstendur af okkur mótmælendum og öðrum, margir eru einlægir en alltof margir vilja bara hjakka í sama farinu áfram. Kjósa sinn Sjálfstæðisflokk, Framsóknarflokk, Samfylkingu eða Vinstri græna hvað sem tautar og raular.

  

Af hverju segi ég þetta?  .......................... Jú það gerðist nefnilega dálítið í dag, sem er sorglegt.  Nei það hefur ekkert með Davíð og kó að gera, þessi útbrunni karl yfirgnæfir svo samfélagið að það er meira að segja rætt um fyrir og eftir Davíð.

 

Þetta hefur með að gera að í dag sá fylking fólks sem fór af stað fyrir síðustu kosningar, til að breyta samfélaginu, það einu útleiðina að ganga í Samfylkinguna.  Ég er að tala um Íslandshreyfinguna.  Stolt fólk sem vildi breytingar, og fremst þar var einmitt ákallið til landsins og umhverfisins.  Það er hlálegt að daginn sem þau ganga í Samfylkinguna er gengið frá enn einni virkjuninni.  Það er reyndar bæði grátlegt og sorglegt. Skipsbrot lýðræðisins að mínu mati.

  

Við í Frjálslyndaflokknum höfum þraukað núna í um það bil tíu ár, með þrautsegjunni einni saman.  Sífelld þöggun hefur átt sér stað, og endalausar dómdagsspár um að nú sé flokkurinn búinn að vera, eða dauður.  Það hefur farið fram jarðarför fyrir hverjar kosningar hvort sem um er að ræða bæjarstjórnarkosningar eða í alþingiskosningar.

Eftirtektarvert er  að núna er mikið rætt um pólítík, og ef ekki er hægt að komast hjá að minnast á Frjálslynda, þá eru fengnir menn út í bæ til að ræða um endalok flokksins, menn eins og Þórhallur Baldursson eða hvað hann heitir sá ágæti maður, sem hefur sýnt á ósmekklegan hátt að hann þolir ekki flokkinn.  Það er ekki rætt við fólkið sjálft sem ber hita og þunga af starfi flokksins.  Það hentar sennilega ekki, meðan verið er að reyna að drepa þetta frumkvæði niður.  Það eiga nefnilega bara að vera fjórir flokkar í umferð ekkert annað. Skemmtileg tilhugsun fyrir alla þá aðila sem núna sitja við að semja málefnaskrár og finna fólk í framboð. 

Íslandshreyfinginn varð líka fyrir því að þó hún fengi ágætis kosningu á einum stað dugði það henni ekki yfir landið til að koma að manni.  Það þarf nefnilega að passa upp á að það komi ekki eitthvað nýtt fólk inn, sem getur rokkað bátnum, þetta á allt að vera í föstum skorðum, og ef mönnum bara tekst að sparka frá sér þessari óþægilegu flugu sem kallar sig F, þá er björnin unninn.  Ekkert svoleiðis vesen.  Og það sem grátlegast er fólkið dansar með.  Tekur undir drápskórinn og er búið að panta pláss til að dansa á gröfinni.

 

Lýðræði hvað?  Fólk vill bara hafa þetta sama aftur og aftur, það vill fá að röfla og skammast, garga og láta öllum illum látum, en að gefa einhverjum utanaðkomandi pláss, nei það fittar ekki inn í hið íslenska samfélag.  Samt er svo skrýtið að ég hef heyrt raddir sem hafa áhyggjur af því að ef flokkurinn hverfur, þá verði enginn rödd á alþingi sem talar gegn kvótakerfinu, en tekur um leið fram að það kjósi ekki flokkinn. 

  

Ég held að við séum grátlega aftarlega á lýðræðismerinni, svo aftarlega að við dveljum eiginlega neðst á taglinu þar sem við slettumst sífellt í skítnum.  Meðan hugsunarhátturinn er svona, þá breytist ekkert.  Þó fólk vilji fara fram með nýjar hugmyndir og lýðræði að leiðarljósi, þá er þjóðin einfaldlega ekki tilbúin í svoleiðis, hvort það verður nokkurntíma veit ég ekki.  En í dag var til moldar borin Íslandshreyfingin, það var varla fréttnæmt, því allir voru svo uppteknir af því hvort Davíð myndi fara í framboð, eða hvort hann ætlaði að skrifa bækur, eða hvað hann tæki sér fyrir hendur.

Það getur vel verið að einhverjir séu að rumska, en dásvefninn er þungur og í raun og veru öruggur, þó allt sé að fara til fjandans, þá er þetta ástand eitthvað sem við þekkjum og viljum ekki breyta.

 

Þess vegna getur hreyfing eins og Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn lifað góðu lífi í okkar samfélagi, þó þeir hafi í raun og veru sett á okkur og börnin okkar og barnabörnin, hlekki sem við komumst ekki út úr fyrr en Guð má vita hvenær.  Það er skrautlegt að sjá þá núna, hvernig þeim er skítsama um fólkið í landinu, og gera allt til að setja fót fyrir þá stjórn sem nú ríkir, og er þó að reyna að gera eitthvað.  En kemst ekki áfram fyrir brúnum rassförum sjalla, sem allt í einu hafa svo miklar áhyggjur af fólkinu í landinu að það þarf að gaumgæfa allt vel og rækilega, af því að það eru ekki þeir sem eru í forsvari. Bíðið aðeins meðan ég æli.    Og fólk gleymir að meðan þeir réðu gerðist nákvæmlega ekki neitt til bjargar venjulega jóni og gunnu.  Þau máttu þegja og borga.  Meðan Jón og Gunna lifðu í vellystingum praktuglega.  Heldur fólk virkilega að þetta sé eitthvað náttúrulögmál?  Já ég held að fólk haldi að allt fari til fjandans ef Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki tögl og haldir í samfélaginu, enda hvernig má annað vera.  Þeir hafa einokað alla fjömiðla síðustu tuttugu árin og jafnvel lengur, endalaus áróður þeirra til að halda völdum hefur gjörsamlega lamað alla sjálfstæða hugsun fólks.

 

Ef til vill einhverntíman þegar börnin okkar vaxa út grasi og sérstaklega ef þetta fólk fæt nú langt frí frá kjötkötlunum, verður fólk aftur sjálfstætt í hugsun og getur umborið lýðræðisöfl sem vilja koma einhverri réttlætingu á.  Þó það sé ekki annað en að berjast fyrir byggðir landsins, ef einhverjar verða þá eftir til að verja.   Meira að segja Einar Oddur heitinn var búin að gera sér grein fyrir að allt stefndi í borgríki á Íslandi.  Og núna er svo heitasta óskin og aðalbjargræðið að koma sér í hlýjuna í ESB. 

  

Aftur að mínum flokki Frjálslynda flokknum, menn eru að tala um að hann komist ekki í fréttir, nema ef minnst er á að við séum nú að þurrkast út.  Við höfum góð málefni, heiðarlegt fólk og góðar ætlanir.  Ég hef stundum leitt hugann að því hvað hægt væri að gera til að vekja athygli á okkur, og stundum hefur mér dottið í hug í alvöru hvort ég ætti ekki bara að ganga niður laugaveginn í mínu eigin skinni einu fata með plakat sem á stendur; F-listi frelsi einstaklingsins til athafna! til að vita hvort það muni fá fólk til að tala öðruvísi um flokkinn!

Eitt að lokum, mynd frá deginum í dag.  Þrátt fyrir allt þá skein sólin yfir Ísafjörð.

IMG_6196

Svo segi ég bara góða nótt.  Munið að lýðræðið er ekki náttúrulögmál, að er pjúra vinna, við að halda vöku sinni og hleypta lýðnum að með það sem hann hefur fram að færa.  En ekki velja bara út það sem fólk vill heyra, og keyra hina niður í skít og drullu.  Heart  Þessu er mest beint að fjölmiðlafólki, en svo má segja, það sér ekki þessi orð mín.  En einhvernveginn komast þau samt til skila held ég eftir krókaleiðum. 


Maskar, mamman og fiskarnir.

Við hér á Ísafirði möskum á mánudeginum bolludag.

IMG_6169

Kátir maskar.

IMG_6167

Sumir voru með einkabílstjóra hehehe... En það er gaman að þessum sið.  Og þetta hefur lítið breyst síðan ég var krakki. Nema búningarnir eru oftast viðameiri og flottari í dag.  Við vorum gjarnan í búning búnu til úr sængurveri málað andlit á og klippt út fyrir munninn, svo var erfitt að troða bollum gegnum gatið, og var hin besta skemmtun fyrir gefendurna.  En það voru líka maskaböll og þar var oft mikið lagt í búninga.

IMG_6172

á leið á leikskólann.  Þær hafa skipt um leikskóla, Hanna Sól er á Sólborg, sem er miklu stærri skóli og Ásthildur í Bakkaskjóli sem er lítill skóli í Hnífsdal.  Þær eru mjög ánægðar í þessum skólum, alveg eins og á Suðureyri.

IMG_6176

En svo er komin kveðjustund.  Mamma er farin aftur til Vínar og hversdagsleikinn tekinn við.  Við vorum allar dálítið sorgmæddar í gær svo gengur lífið bara sinn vana gang.

IMG_6179

Beðið eftir flugvélinni.

IMG_6180

Skyldi hún vera að koma.

IMG_6182

Ja þarna kemur hún til að taka mömmu í burtu.

IMG_6184

Bless elsku mamma mín, sjáumst í sumar Heart

IMG_6187

Og Júlli vinnur hörðum höndum að því að gera listaverk sem samanstendur af mörgum fiskum.  Segi meira um það síðar. 

Eigið góða nótt elskurnar mínar. Heart


Ertu nokkuð á leið í Sjálfstæðisflokkinn Kristinn minn?

Ég var undrandi þegar mér barst það til augna gegnum Vísi.is að Kristinn H. hefði sagt sig úr þingflokki Frjálslyndaflokksins.

 Það eru nefnilega ekki nema fjórir dagar síðan við vorum saman á kjördæmaráðsfundi að Reykjum, þar sem hann hélt skelegga ræðu um stöðu flokksins og bauð sig fram í fyrsta eða annað sætið í Norðvesturkjördæmi.  Það voru fimm manneskjur sem buðu sig fram til forystu þar, svo ákveðið var að efna til póstkosninga og er undirbúningur þegar hafinn að því. 

IMG_6143

Hér talar Guðjón Arnar.  Þetta var góður fundur og mikill hugur í mönnum um uppbyggingu og bætta stöðu flokksins.

IMG_6146

Hér tekur Kristinn svo til máls og ræddi um stöðuna og var ekki annað hægt að heyra en hann vildi leggja sitt af mörkum.  Bauð sig svo fram í fyrsta og eða annað sætið hér fyrir vestan.

Þar var reyndar fríður flokkur Sigurjón Þórðarson bauð sig fram í hvaða sæti sem var, Ragnheiður Ólafsdóttir bauð sig fram í annað sætið, Magnús Þór einnig.   Þetta er öflugur hópur og góður.

Það var svo ákveðið að efna til póstkosninga meðal þessa ágæta fólks. 

Þetta er dálítið snubbótt útganga að mínu mati Kristinn minn, svo mér er dálítið þung í sinni þú fyrirgefur.   Af því tilefni komu þessi brot upp í hugann.

 

Frjálslyndiflokkurinn.

 

Fúasprek og kalakvistir

 

Keppast við að skipt‘ um vistir.

 

Stendur eftir stofninn hreinn.

 

Stífður vel og tálgabeinn. 

 

 

Kætast munu karlafans

 

Kíma beint til andskotans.

 

En við munum aftur rísa.

 

Enn á ný og málin prísa. 

 

 

Okkar stefna öll er skýr.

 

Öðrum betri, við mér snýr.

 

Þó móti blási þetta fokk.

 

Við munum rétta okkar flokk.  

 

 

Mestu skipta málin góð.

 

með þeim alla tíð ég stóð.

 

Leitt mér þykir lýðsins tal.

 

Að leikslokunum spyrja skal. 

 Við erum þá sem sé kominn aftur til upprunans. Við því er ekkert að gera, en það er ekki inn í myndinni að gefast upp fyrr en í fulla hnefana.  Þó gefin hafi verið út dagskipun um að þegja okkur í hel, af stóra helbláa flokknum, sem aldrei hefur þolað tilvist okkar, þá skulum við berjast ótrauð áfram samt. 

Og þó okkur takist ef til vill ekki að saxa af ykkur atkvæðin, þá legg ég á og mæli um að það muni verða gert af einhverjum.  Það er komið nóg af ykkur, og þið hafið fengið nóg frá okkur. 

Ef þið haldið að þið eigið ennþá eitthvað inni hjá þjóðinni þá er það misskilningur.  Hvað sem þið æpið og ljúgið, þá veit fólkið hverjum það er að kenna að þjóðin er hnýpin í sárum, og hver það var sem ykkur stóð að baki lengstan tímann.  Ég ætla allavega að gera mitt til að það gleymist ekki.


Trúum ekki öllu sem að okkur er rétt. Látum verkin sýna merkin.

Já ég var að enda við að hlusta á Kastljósið frá því í gær, hafði ekki tíma eða nennu í gærkveldi.  'Eg er ekki sammála þeim sem finnst Sigmar hafa staðið sig illa.  Mér finnst hann einmitt hafa staðið sig vel.  Hvað var annað hægt að gera í stöðunni, það er greinilegt að Davíð er ekki í jafnvægi, og skildi ekki umhverfi sitt.  Honum fannst allar spurningarnar vera árásir á sig.  Hér fer greinilega veikur maður, og það er ekki hægt að gera neitt í svoleiðis.  En af hverju var verið að hafa þetta viðtal?

Maðurinn hefur ekkert fram að færa sem skiptir máli í raun og veru.  Það er hægt að túlka þetta og hitt út úr því, eftir því sem menn kjósa.  Alveg eins og listamenn túlka atómljóð eða abstrakt list.  En þegar málið er skoðað, þá var þetta tilraun manns sem er búinn að vera, að reyna að fá uppreisn æru.   Það er ekki hægt í einu viðtali.  Það er ekki hægt að reisa æruna við, hafi menn hagað lífi sínu þannig að fólk ber ekki traust eða virðingu fyrir þeim.

Þetta er eins og þegar alþingismenn og ráðherrar kvarta yfir virðingarleysi því sem menn sýna alþingi, þeir virðast ekki skilja að einungis þeirra eigin vanhæfni og skilningsleysi veldur því að fólk er hætt að bera virðingu og traust til þeirrar stofnunnar.  Virðing og traust eru hugtök sem hvorki verða keypt né tilskipuð.  Slíkir eiginleikar verða aðeins unnir af eigin verðleikum sérhvers manns.  Orðspor deyr aldreigi hverjum sér góðan getur, er sagt.  Og það er alveg rétt.

Mér finnst það sama um þegar dómarar dæma orð dauð og ómerk.  Hvaðan hefur manneskja leyfi til þess að dæma slíkt.  Hver gaf það leyfi og að hverjum beinist það?  Það er nefnilega þannig að ef við breytum ekki þannig í okkar lífi að samborgarar okkar vili treysta okkur eða virða, þá er það vegna þess að við höfum einfaldlega ekki staðið okkar pligt og eigum hana því ekki skilda.  Það getur svo sem vel verið að reynt sé að rægja og úthrópa fólk, en ef viðkomandi hefur ekki sýnt neitt í þá átt, þá er ekki hlustað á slíkt.

Davíð talaði mikið um rógherferð á hendur sér, og óvinveitta fjölmiðla.  Ég held að enginn maður hafi farið með jafnstórtækri rógsherferð á hendur mönnum en einmitt hann sjálfur.  Má þar til dæmis geta um Sverrir Hermannsson, þegar hann var rekinn úr Landsbankanum, af því að hann vildi ekki gera eins og til var ætlast.  Mútumálið gegn Jóni Ásgeiri og þær eru margar smjörklípurnar sem hafa runnið undan ryfjum þessa manns sem nú þykist vera fórnarlamb.

Og ekki bara slíkar herferðir, heldur hefur þessi maður í krafti síns embættis og stöðu í samfélaginu lagt niður stofnanir sem ekki gerðu eins og hann vildi.  Við megum ekki gleyma fortíðinni og hvernig þessi maður hefur komið fram gegndarlaust gegnum tíðina.  Þó við auðvitað vorkennum gömlum útbrunnum manni sem á enga framtíð fyrir sér lengur, þó hann langi til þess.  Hann má vel við una með allan eftirlaunaforréttinn sem hann á inni.  

Og svo er allt þetta bara hatursáróður, við sem þannig tölum hötum þennan mann.  Gott og vel það getur vel verið að sumt fólk hati hann.  En það eru miklu fleiri sem eiga um sárt að binda eftir stjórnartíð hans í rúman áratug, og þær áherslur sem hann lagði, og komst ansi langt með í krafti þess að hann var nánast einræðisherra.  Gat til dæmis sett okkur á lista yfir viljugar þjóðir til að ráðast inn í Írak, ásamt með undirskrift annars manns Halldórs Ásgrímssonar.  Sat svo fyrir svörum og taldi að það þyrfti að koma þessum ofbeldismanni frá með öllum tiltækum ráðum.  Ég man að ég hugsaði þá; hvað með alla hina einræðisseggina í okkar veröld?  En það var ekkert spurt að því.

Ég er ein þeirra sem áttu framundan ágætis líf í góðum málum að hlú að mínum, það var að engu gert núna í haust, vegna þess að m.a. þessi maður brást okkur þjóð sinni.  Ekki bara að hann ásamt sínum mönnum steinsvaf á verðinum, heldur er þetta ferli allt saman rauður þráður í hans spunavef mörg unanfarin ár.  Þjóðfélag sem hann á mestan þátt af öllum í að skapa hefur nú gert Ísland rústir einar.  Ég kann honum litlar þakkir fyrir það.  Ég hata ekki þennan mann, en ég vil að hans gjörðir séu upp á borðum og til viðvörunar þjóðinni um að læra af mistökum sínum og treysta ekki lengur þeim fagurgala sem þetta fólk hefur nú uppi.

Ég verð að segja þegar Davíð talar um ófrægingarherferð og Baugsmiðla sem skekkja myndina, þá er það nokkuð ljóst að sjálfstæðismenn eru með tögl og haldir í öllum íslenskum fjölmiðlum,  og það sést reyndar vel ef að er gáð.  Fréttir undanfarið eru nánast þannig að við fáum það á tilfinninguna að stjórnin sem nú situr þvælist fyrir hinum góðu sjálfstæðismönnum sem eru að reyna að bjarga þjóðinni.  Þetta er gert með lúmskulegum hætti hvernig fréttir og umræður eru matreiddar ofan í okkur alveg eins og alltaf hefur verið að hætti Sjálfstæðisflokksins.  Þar er ekki skeytt um neitt annað en að reyna af almætti að halda völdum.  Þeim hefur tekist það nokkuð vel hingað til, ég vona bara að fólk sé nú orðið meðvitaðra um landsmálin og hvernig pólitíkin er rekinn, að það trúi ekki öllu sem sagt er af þessu fólki.  Þar sem oftar en ekki "sannleikurinn" er matreiddur að Valhallar sið, og svo er velsmurð kosningamaskína sjálfboðaliða látinn malla sínkt og heilagt.  Maður festir hvergi hönd á þessu en finnur vel hvernig það virkar.  Óheilindin allstaðar sem hafa gegnsýrt þjóðfélagið núna lengi.  Og aðrir hafa auðvitað tekið þetta upp eftir þeim, því eftir höfðinu dansa limirnir.  Og loks erum við orðin svo rugluð að við hreinlega vitum ekki hvort svart sér svart eða hvort það sé ef til vill hvítt. 

Það sem af þessu leiðir svo er upplausnarsamfélag, þar sem enginn treystir lengur neinum. 

Ég ætla að vona að íslensk þjóð gleymi ekki af hverju við erum í þessum vanda. Að við látum ekki fagurgala, falshugulsemi þeirra gagnvart okkur nú og sýndaráhyggjur þeirra villa okkur sýn.  Þetta er allt saman svikamilla til að fá okkur að kjörborðinu með xD í huga og svo megum við eiga okkur eftir það fram að næsta kjördegi.  Einhverjir allavega hljóta að hafa lært það núna að lýðræðisást þeirra sem lengst hafa farið með völdin er hjóm eitt, og einungis til að reyna að halda í þau völd sem þeir þrá svo mikið og óttast að missa.  Þetta á líka við um Framsóknarflokkinn, þar sem ekkert hefur breyst nema að búið er að mála framhliðina nýjum spennandi litum, til að plata Hans og Grétu aftur inn í kökuhúsið, þar sem nornin bíður eftir þeim. 

Íslensk þjóð á einfaldlega betra skilið en þessa sýndarveröld sem við virtumst vera að losa okkur út úr, en gerir allt til þess að fá að vera áfram. 

Förum að opna augun og horfa í kring um okkur, viljum við þetta sama aftur og aftur, eða þorum við að breyta til, krefjast meira lýðræðis og sannleika? 

Ef svo er, þá verðum við líka að sýna að við þorum.  Lítum til annara úrræða en þessara spillingarafla sem tröllríða nú umræðunni svo ekkert annað kemst að.  Eða eins og einhver sagði; hættum að öskra svo við getum hlustað, tölum hljóðlegar svo við heyrum orðaskil.  Og trúum ekki öllu sem að okkur er rétt, látum verkin sýna merkin.  Eigið góðan dag elskurnar.


Afmæli, unglingapartý og þorrablót.

Í dag var hinn raunverulegi afmælisdagur litlu prinsessunnar Hönnu Sólar.  Það var líka maskadagur í leikskólanum, og allar stelpurnar voru prinsessur, nema mín hún var í sollustirðu búning, og alsæl með það.  Hún er nefnilega prinsessa í sínu daglega lífi svo það var meira sport í að vera eitthvað annað LoL

IMG_6165

Komin heim af leikskólanum, með mömmu sinni.

IMG_6036

En á laugardaginn var haldið upp á afmælið hér heima, pabbi var rosalega duglegur og bakaði fullt af pizzum, en það var líka hrekkjavökupartý hjá unglingunum um kvöldið, svo það þurfti að baka extra mikið.

IMG_6039

Hér er verið að leggja á prinsessuborðið, allt í stíl. Og mjallhvít sest við borðið.

IMG_6041

Uppáklædd og tilbúinn í veisluna sína.

IMG_6043

Hér er svo ein kakan úr uppskriftinni frá Sigrúnu minni kæru. 

IMG_6044

Þessi vakti líka stormandi lukku.

IMG_6048

Pizzurnar biðu í röðum eftir að verða bakaðar.

IMG_6050

Veislugestirnir fóru svo að týnast að.  Bara svona til að árétta, þá segjum við hér að börnin skýrist í tjörninni, þau hafa flest dottið þar ofan í og í dag var það litla Evíta Cesil sem datt í tjörnina, pabbi hennar sagði að héðan í frá hlyti hún að sjá álfa og tröll, eftir slíka skírn LoL

IMG_6054

Glæsilegt veisluborð.

IMG_6055

Rugguhesturinn vekur alltaf lukku.

IMG_6059

Úlfur fékk prinsessurnar til að dansa.

IMG_6062

Og hér var bara ansi fjölmennt, ætli það hafi ekki verið um 50 manns eða meira þegar best lét.

IMG_6067

Stórir og smáir.

IMG_6069

Og ég held bara að allir hafi skemmt sér vel.

IMG_6071

Fjölskyldan var auðvitað öll, og hún er stór.

IMG_6073

Og þröngt mega sáttir sitja, og þar sem kærleikur ríkir er alltaf nóg pláss Heart

IMG_6075

Suðureyrarvinkonurnar.

IMG_6077

ég vona svo sannarlega að þær haldi hópinn, þær eru svo góðar vinkonur, hér vantar reyndar Sóldísi Björt en hún var veik þennan dag.

IMG_6084

Má ég ekki fá líka, spyr Sorró.

IMG_6087

Unglingarnir mínir, þau verða áfram í partýinu í kvöld.

IMG_6090

Siný mí krúsídúllann hennar ömmu, og stelpan hennar mamadí Blush

IMG_6091

Já það var bara fjör.

IMG_6094

Og hér eru stóru krakkarnir í herberginu hennar ömmu, búin að hreiðra um sig í hjónarúminu hehehehe

IMG_6097

Þetta eru góð og falleg börn.

IMG_6098

Og gamla brýnið búið að klæða sig upp á þorrablót.

IMG_6107

Tvær Ásthildar Cesil og einn Elías LoL

IMG_6114

Tvær knúsírófur.

IMG_6119

Hér erum við svo actually komin  á þorrablótið.

IMG_6121

Hluti af skemmtinefndinni, en þar er alltaf kosnir fulltrúar frá öllum stöðum, Fljótavík, Hornvík, Aðalvík og svo framvegis.  Allir verða að taka þátt, enda er alltaf fullt hús á Þorrablóti slétthreppinga.

IMG_6124

Hér er svo kórinn að syngja.

IMG_6129

Smá yfirlits mynd fyrir fólk sem vill reyna að þekkja hehehehe...

IMG_6133

Ísbjörnin var svo ekki langt undan frekar en fyrri daginn.

IMG_6134

Björgunarsveitinn Tindar reka félagsheimilið og þjónusta þorrablótsgesti, hér hvíla tveir sín lúnu bein í eldhúsinu í félagsheimilinu í Hnífsdal.

IMG_6135

En á sunnudeginum fór ég svo á fund á Reykjum í Hrútafirði, segi nánar frá honum seinna, en það er margt sem gleður augað á svona ferðalagi.

IMG_6137

Já það er margt sem er svo fallegt og alveg ókeypis í okkar fagra landi, bara ef við nennum að stoppa til að njóta... ekki satt?

IMG_6141

Hæ sæti hvað segirðu gott ?

IMG_6142

Nú allt þetta bara fína en þú!!!

IMG_6052

Þessi er fyrir fyrrverandi nágranna minn Gísla Svanbergsson frá Engi sem hringdi og þakkaði mér fyrir bloggið mitt og myndirnar.  Það hafa reyndar margir aðrir gert, bæði hringt og líka komið til mín og mér þykir alltaf jafn vænt um að fá svonleiðis viðbrögð.  Takk fyrir mig.  Það er alltaf notalegt að finna að fólk kann að meta það sem maður er að gera.  Knús á ykkur öll og innilega takk fyrir mig. Heart


Þorrablót og frumsamið ljóð.

Ég er að fara á þorrablót í kvöld.  Þá verður frumflutt lag Baldurs Geirmundssonar við ljóðið mitt um Fljótavík.  Baldur útsetti lagið fyrir kór, og það var dálítið sérstakt að heyra heilan kór fara með ljóðið mitt.  Ég er mjög stolt af þessu. 

Fljótavík.

  

Einn á ég unaðsreit.

Engan ég betri veit                   

 

 Paradís, prýði slík

 

Perla engu lík.

 

Ég löngum þar legg mína leið.

 

Þar lífið er auðnan greið.

 

Í norðrinu fagra og falda.

 

Þú  fryssandi hvíta alda.

 

Syngur við kvöldsins kyrrð.

 

 

 

Mín fagra Fljótavík

 

Af friði ertu rík.

 

Þögnin er eðal þitt

 

Þakklætið er mitt.

 

Tiplar þar tófa létt um sand.

 

Tilheyrir henni það land.

 

Í ánni svo silungur syndir

 

Sál mín þann unaðinn fyndir,

 

fylgja þar landvætta hirð.

 

 

 

Svo Dísir á ströndinni dansinn sinn stíga.

 

Stormurinn ógnandi brýtur þar land.

 

Öskrandi helkaldar öldurnar hníga

 

Og ærslandi leika við fjörunnar sand.

 

   

Svo hljóðnar Ægisönd

 

Og andar sær við strönd.

 

Létt fer um vog og vík

 

volgran engu lík.

 

Hvíslar angurvær og hlý

 

hafsins golan enn á ný.

 

Og lýðurinn gleðst yfir ljóði.

 

landsins, og biður í hljóði

 

Um hollvætta nálægð og firrð.

  

 

Þú ert reyndar alls engu lík

 

Mín ástkæra Fljótavík.

 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir 9. október 2008. 

  En í dag hefur staðið yfir afmælisveisla fyrir Hönnu Sól, hún á reyndar ekki afmæli fyrr en á mánudag.  En mamma hennar og pabbi ákváðu að halda upp á það í dag.  Hér er búið að vera fjör.  Ég set inn myndir af tertunum seinna.  Tinna tengdadóttir á mestan heiðurinn af kökunum, en notaðar voru uppskriftirnar hennar Sigrúnar bloggvinkonu.  Takk fyrir það Sigrún mín.  Í kvöld eru svo unglingarnir með hrekkjavökupartý, hér verða um 10 unglingar, Bjarki ætlar að baka pizzur og það verður allskonar gúmmilaði.  En við verðum sum sé á Þorrablóti, eða réttara sagt Góublóti.  Konudagurinn á morgunn og alles.  Þá ætla ég að skælast alla leið norður í Húnavatnssýslu í Reykjaskóla á fund.  Elli minn ætlar að aka mig, en það er kjördæmaráðsfundur hjá Frjálslyndum.  IMG_5989

 

Hönnuðurinn Hann Sól með sýningarstúlkuna sína.  

IMG_6009

 

Amma á Hellu sendi henni skólabækur, sem hún er mjög ánægð með, reiknisbók og lestrarbók, nú þarf að læra að lesa.  Hér er verið að vinna verkefnin. 

IMG_6013

IMG_6024

 

Þetta er alveg kjörið hrekkavökuveður.  En ég óska ykkur góðrar helgi mín kæru.  Og góða skemmtun.  Ég er ákveðin í að skemmta mér vel. Heart

.

   

 

 


Nýjustu lögin frá alþingi. Bara fyrir konur, stranglega bönnuð körlum og öðrum sem ekki eru konur.

 

 

Stjórnartíðindi B 59 – 2006.

Nr. 969.

23. febrúar 2009.

   

Reglugerð

Um veiðar og nýtingu villtra karla.

   

1. gr.

Í reglugerð þessari merkir:

Friðun:       Bann við veiðum og öðrum aðgerðum, sem geta aukið vanhöld eða dregið úr   viðkomu karla.  Þegar rætt er um friðun, tekur hún einnig til þeirra karla sem njóta algerrar eða tímabundinnar friðunar.

  

Veiðar:       Að fanga og/eða komast yfir villta karla.

   

Nýting: Tímbundinn eða langvarandi not af bráð eða þeim hluta bráðar sem löngun stendur til hverju sinni.

  

2.gr.

  Reglugerð þessi nær til Friðlandsins á Hornströndum.   

3. gr.

   Öllum konum eru karlaveiðar heimilar á almenningum, á afréttum, við sumardvalarhús.  Landeigendum einum er heimilar karlaveiðar og ráðstöfunar réttur er þeirra á landareign sinni, nema í undarntekningartilfellum.

Nú er landareign í óskiptri sameign og eru þá öllum veiðar heimilar þar.  Sé forn réttur til að veiða við stöðuvötn og aðra baðstaði fylgi, skal sú venja gilda eftirleiðis.

  

4. gr.

Veiðar eru aðeins heimilar í þeim tilgangi að nýta skrokkinn.  Í öllum tilfellum skal athuga hvort limir eru sárir og skylt að veita viðeigandi meðhöndlun þar til bráðin hefur hlotið uppreisn æru.  Séu veiðar stundaðar af fleiri en einum, er samnýting bráðar heimil.  Ef í ljós kemur að fengur þreytist lítt, er harður af sér og almennt í góðu standi, er æskilegt að deila honum með þeim sem minna hafa veitt.  Nýting bráðar skal ekki lokið fyrr en árangur er fullnægjandi.

   

5. gr.

  

Við veiðar má nota eigin útgeislun, þar sem önnur geislavopn eru bönnuð. 

 Auk þess eftirtalið:

1.                Eitur – eða svefnlyf.

2.                Steina, strokur, barefli og skutla.

3.                Efnirlítinn fatnað.

4.                Snörur og fótboga.

5.                Æti og örvandi drykki.

6.                Rafeindatæki  er stækka bráðina eða hluta hennar.

7.                Umhverfisráðherra getur í samráði við ráðgjafanefnd um veiðar villtra karla, veitt tímabundna undanþágu til að nota ofbeldisfullar veiðiaðferðir í vísindaskyni, þó er beiting búrhnífa neðan mittis óheimil.

  

6.gr. 

 Bráðin skal dregin af veiðisvæði og skal dráttuinn hefjast svo fljótt sem auðið er.   

 

7. gr.

Mynda- og kvikmyndataka af bráð er  óheimil meðan á nýtingu stendur. 

 8.gr.

Engir karlar, þar með taldir þeir sem koma reglulega eða flækjast til landsins eru undanþegnir, nema annað sé tekið fram í reglugerði þessari.

  

Um friðun gildir eftirfarand:

1.                Allt árið:  Karlar í kvenfatnaði.

2.                Daglega milli 8 og 17: Karlar sem þegar eru fullnýttir reglulega.

3.                Þeir sem eignast hafa afkvæmi á síðustu 6 mánuðum eru alfriðaðir.

4.                Frá 1. sept. Til 30. maí: Veiðar á þeim sem engin viðbrögð sýna við síendurteknum og breytilegum veiðiaðferðum.  Óheimilt er að veiða karla í mútum.

5.                Umhverfisráðherra getur veitt undanþágu til þes að handsama villta karla til ræktunar og undaneldis.

  

6           gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 64/2006 um vernd friðun og nýtingu villtra karla. 

          Reglugerð þessi öðlast þegar gildi. 

  

              Moggabloggi þann 20. febrúar 2009.     

   old-man-bali-2002av-5305 GudniLand Og svo er smá útskrift úr Pétrískri orðabók, í tilefni af gjaldþroti okkar þá er nauðsynlegt að vita allt um fé ekki satt?    

Að bera fé: Afklæða kind (eða að halda á kind)


Aflafé: Kindur sem stunda veiðiskap


Áhættufé: Fífldjarfar sauðkindur


Eigið fé: Kindur sem maður á sjálfur


Fégirnd: Afbrigðileg kynhneygð (Að girnast sauðfé)


Fégræðgi: Að vera einstaklega sólginn í sauðaket


Féhirðir: Smali


Félag: Lag sem samið er um sauðfé


Félagi: Sá sem leggur lag sitt við sauðfé


Félegur: Eins og sauður


Féleysi: Þegar skorið hefur verið niður vegna riðuveiki


Fjárdráttur: Samræði við kind


Fjárhagur: Einhver sem er afar laginn við sauðfé


Fjárhirslur: Geymslur fyrir sauðfé


Fjárlög: Mörg lög sem samin eru um sauðfé


Fjármagn: Þegar margar ær koma saman


Fjármál: Tungumál sauðkinda/jarm


Fjármálaráðherra: Yfirsmali


Fjármunir: Lausamunir í eigu sauðkinda


Fjárnám: Skóli fyrir kindur


Fjárplógsstarfsemi: Jarðyrkja þar sem sauðfé er beytt fyrir plóg


Fjársöfnun: Smalamennska


Fjárútlát: Þegar ærnar eru settar út á vorin


Fjárvarsla: Það að geyma kindur


Fjárveitingar: Þegar boðið er upp á sauðket í matarboðum


Fjáröflun: Smalamennska


Fundið fé: Kindur sem búið er að smala


Glatað fé: Fé sem ekki hefur komið aftur af fjalli


Grímsá: Kind í eigu Gríms


Handbært fé frá rekstri: Kindur sem menn hafa gefist upp á að reka og ákveðið að bera á höndum sér


Hlutafé: Súpukjöt


Langá: Einstaklega löng kind


Lausafé: Kindur sem eru lausar á afréttinum


Norðurá: Kind að norðan


Opnibert fé: Kindur í eigu ríkisins


Sauðburður: Þegar handbærar kindur eru bornar að á milli staða


Sparifé: Kindur sem ekki eru notaðar hversdags


Stofnfé: Fyrstu kindurnar sem maður eignast


Tryggingafé: Öruggt sauðfé


Veltufé: Afvelta kindur


Þjórfé: Drykkfelldar ær


Þverá: Þrjósk kind


 

bilde   

                                                      


Krúttfærsla fyrir svefninn.

Þessar myndir tók Bára mín.

IMG_6618

Krútt.

IMG_6625

Sorró er einn af kúlubörnunum.

IMG_6638

Systur.

IMG_6643

Skondin staða.

IMG_6648

Sorró er líka krúttmoli.

IMG_6679

Hanna Sól er ennþá á sundnámskeiði, hér eru Suðureyrardömurnar.

IMG_6715

Svo þarf að ræða við leiðbeinandann.

IMG_6725

Væntanlegir sundkappar framtíðarinnar.

IMG_6813

Þau er sko flott.

IMG_6835

Bankar á glugga í kúlu krútt.

IMG_6839

Svo má fara upp á þakið.

IMG_6900

Örugglega með meirapróf á tryllitækið.

IMG_6926

Svo er hægt að vera inni og lesa.

IMG_6931

Brandur og Hanna Sól eiga sínar góður stundir á morgnana.

IMG_6933

Þá er engin að trufla þau. Heart

IMG_6937

Skúta úr smiðju Júlla míns.

En þetta er bara svona krúttfærsla undir svefninn. Og ég segi bara Góða nótt. Heart


Pælingar um Frjálslyndaflokkinn vegna opins bréfs Guðrúnar Maríu til Guðjóns Arnars.

Ég ætla að eyða þessari færslu minni á að reyna að svara opnu bréfi frá Guðrúnu Maríu til Guðjóns Arnars.  Ég er auðvitað ekki hann, en ég þekki töluvert til þarna, og veit að Guðón og forystan hefur of mikið að gera til þess að svara.  Í litlum flokki mæðir mikið á þeim sem sjá um forystuna.

Ég vil að minnsta kosti að sýna Guðrúnu Maríu þá viðleitni að segja hlutina eins og þeir blasa við mér. 

 

Opið bréf til Guðjóns Arnars Krisjánssonar formanns Frjálslynda flokksins.Frjálslyndi flokkurinn átti 10 ára afmæli s.l. haust. Flokkurinn fékk tvo menn á þing fyrir 10 árum og árið 2003 og 2007 fjóra þingmenn kjörna. Samt sem áður er flokkurinn í dag með 1.5% fylgi í könnunum. Hvernig má það vera spyrja margir? Stefnuskrá flokksins er framsækin fyrir land og þjóð
Frjálslyndi flokkurinn vill standa vörð um frelsi einstaklingsins, lýðræði og mannréttindi.
Frjálslyndi fllokkurinn vill kvótann aftur til þjóðarinnar.
Frjálslyndi fllokkurinn vill gera landið að einu kjördæmi.
Frjálslyndi flokkurinn vill afnema verðtrygginguna.
Frjálslyndi flokkurinn vill standa vörð um íslenskan landbúnað.
Það virðist sem forysta fokksins skorti áhuga á að stækka flokkinn, efla innra starf flokksins og hleypa nýju fólki að. Það liggur ljóHvernig bregst forystan við nýju framboðunum? Jú, hún ákveður að flýja til fjalla með þingið. Það þarf ekki flokksmenn til að sjá að hér er verið að hindra endurnýjun á forystu flokksins. Landsþing í Stykkishólmi á kosningaári, þýðir minni aðsókn, og minni athygli. Allt virðist helst miðast við að engin endurnýjun verði og sömu menn haldi um valdataumana í flokknum, hvað sem það kostar. Hvað veldur ? Ósk um póstkosningu meðal flokksmanna um kjör í embætti flokksins fékk dræmar undirtektir en sú ósk var sett fram í ljósi þess að fjöldi félaga í flokknum hafði látið í ljósi andstöðu sína við staðsetningu þingsins. Hvað veldur Guðjón Arnar að engin í forystunni sér né hlustar á kall flokksmanna um breytingar? Þýðir eitthvað að safna undirskriftum Guðjón Arnar ? Við viljum sjá Frjálslynda flokkinn opinn og lýðræðislegan flokk þar sem hver getur nýtt sinn lýðræðislega rétt sem flokksmaður í stjórnmálaflokki. Guðjón Arnar, hver er þín sýn á hið nýja Ísland?

Guðrún María Óskarsdóttir.
    ´

 

 

Og svo það komi nú fram þá höfum við oft mælst með svona fylgi í upphafi kosningabaráttu og verið spáð útrýmingu.  Og ég held eins og Sigurjón Þórðar að við munum ná vopnum okkar í vor.

   Ég hringdi í framkvæmdastjóra flokksins og spurðist fyrir um þessi fjöldamótmæli við staðsetningu fundarins og hann kannaðist ekki við neitt slíkt.  Einstaka menn hafi hringt og spurt, en fengið þá skýringu að það yrðu sætaferðir á fundarstað.  Bara svo að það komi skírt fram.  Þar er einhver misskilningur á ferðinni.  Annað sem þarf að koma fram hér er að það er skýrt tekið fram í lögum flokksins að forystuna skal kjósa á Landsþingi, en ekki í póstkosningum, svo það atriði var ekki inn í myndinni.   

Eitt af aðalsmerkjum Frjálslynda flokksins er góð málefnaskrá.  Þú spyrð hvort forystuna skorti áhuga á að stækka flokkinn og efla innra starf.  Það getur vel verið að það hafi ekki gengið nógu vel að hlú að innra starfi flokksins.  En má ekki líka leita sökudólganna meðal þess fólks sem vildi efla það í Reykjavík, jafnvel á kostnað landsbyggðarinnar?     

Í mínum huga eru það málefnin og það sem flokkurinn var upphaflega stofnaður utan um sem skiptir máli.  Ekki fólkið sem þar vinnur.   Nema ég áskil mér rétt til að styðja það fólk sem ég veit að hefur verið trútt sinni sannfæringu og hefur staðið ótrautt vörð við þau málefni og sjónarmið sem flokkurinn vill kenna sig við.  Þar er fyrst og fremst að afnema þetta kvótakerfi, hlú að landbúnaði og virða réttindi eins og þú telur fram þarna í upphafi.     

Ég frétti frá fólki sem ég treysti að nokkrir  þeirra sem unnu í Reykjavík, vildu gera flokkinn að borgarflokki, með öðrum áherslum en þarna er talið upp.  Til dæmis heyrði ég að fólk vildi taka út áherslur um sjávarútvegsmál, það væri ekki upp á borði lengur.    Þær ávirðingar og upphrópanir sem fólk hefur viðhaft, hef ég ekki getað fundið stað.    

Að fólk hlaupi upp til handa og fóta yfir því að landsþingið er haldið á Stykkishólmi en ekki Reykjavík sýnir bara að mínu mati í hnotskurn áherslurnar á Reykjavík.  Það er nefnilega nákvæmlega jafn langt frá Reykjavík til Stykkishólms, eins og frá Stykkishólmi til Reykjavíkur.   Það eru líka boðaðar rútuferðir og laus pláss í bílum fyrir þá sem þess óska.    

Það getur vel verið að einhver hræðsla sé á smölun á fundinn, án þess að ég hafi orðið vör við það, en við höfum nú nýleg dæmi um slíkt, þegar fólk úr öðrum stjórnmálaflokki  var fengið til að koma inn og kjósa ákveðna einstaklinga.  Það er ekki skemmtilegt að vita að óviðkomandi fólk geti mætt til þess eins að spilla fyrir.  Það hefur ekkert með frelsi að gera.    

Við urðum líka fyrir því að hópur fólks gekk í flokkinn til að breyta honum í eitthvað annað.  Auðvitað var þar ekki við allan hópinn að sakast, en það er nokkuð ljóst að forysta þeirra kom inn með því hugarfari.  Enda talaði þeirra foringi þannig að það þyrfti að breyta málefnaskránni.  Þegar ljóst varð að gamla kjarnanum yrði ekki hnikað með málefnin, þá hvarf áhugi þeirra á að vera áfram í flokknum, margir þeirra hafa sagt sig úr honum, og  foringinn hefur nú gengið í herbúðir Sjálfstæðisflokksins.  Margrét Sverrisdóttir þekkti þetta betur, og ég get nú skilið hennar reiði út af því.  Málið er bara að maður getur ekki bannað fólki að ganga til liðs við stjórnmálaafl.  En maður ætti að geta komið í veg fyrir að slíkt fólk yfirtaki flokkinn og geri hann að einhverju öðru.      

Eitt dæmið um ávirðingar á forystuna  er  með Höllu Rut.  Hún var ráðin til starfa sem framkvæmdastjóri fyrir Reykjavíkurfélögin.  Dugleg og skelegg kona, en forystunni  fannst  ekki hægt að ætlast til þess að Frjálslyndi flokkurinn greiddi henni laun, það hefði verið að mismuna landsfélögum.  Forystan bauð þeim að hún mætti vinna í húsnæði flokksins, og nota þar tölvur, síma og annað, fyrir sitt fyrirtæki og flokkinn.  Það var ekki þegið.  Sagt að forystan væri með klíkuskap og einræðistilburði.      

Ég hef það eftir Guðjóni Arnari að hann margbauð Reykjavíkurfélögunum að koma á fund og ræða málin og finna lausnir.  Það var einfaldlega ekki áhugi.  ‘Eg þekki  Guðjón Arnar mjög vel, og ég veit að hann hefur þurft að glíma við endalausar deilur milli manna.  Það hefur verið bæði erfitt og sálartætandi og ég er viss um að flestir í hans stöðu hefðu gefist upp fyrir löngu síðan.  ‘Eg veit líka að Guðjón er einlægur í því að vinna að málefnum flokksins og þeim loforðum sem við höfum gefið.  Hann hefur sýnt þvílíkt langlundargeð og rósemi að undrun sætir.     

Það kom fram á síðasta miðstjórnarfundi að Magnús Reynir, þessi framkvæmdastjóri sem “aldrei gerir neitt nema hirða launin sín” að sögn (Eríkur Stefánsson og fleiri), hefur greitt allar skuldir og samið niður aðrar, þannig að flokkurinn er skuldlaus í dag, og á inni nokkurt fé að auki.  En ef ég man rétt þá skuldaði flokkurinn um 17 milljónir eftir síðustu kosningar.  Svo sannarlega er þetta ekki neitt.... eða hvað? Það þarf  auðvitað að skipta út svona liði.     

Mér þykir auðvitað leitt þegar fólk finnur sig ekki og finnst jafnvel að því hafi ekki verið hampað nóg eða hrósað.  Það á að láta fólk finna að það hefur gert vel, og það hefur sýnilega misfarist.  En það er þá af því að álagið hefur verið gríðarlegt á forystu flokksins, og þau hafa ekki haft aukaorku til annars.  Það er alls ekki nógu gott, og þarf auðvitað að bæta þar úr.  En það gerir maður með því að vinna saman og standa saman um að gera betur.  Ekki hlaupa burt og geta síðan ekki stillt sig um að reyna að spilla fyrir.  Því hvað annað er hægt að kalla þá niðurrifs starfsemi sem hefur viðgengist undanfarið?   

Ég hef líka rætt um það á fundum við Guðjón og forystuna að umræðan sé ekki nóg,  um það góða sem þau gera, það kemst ekki til skila, en svo er hlaupið með allt sem miður fer í fjölmiðla.   Það er mjög neikvætt.  Þar er aðallega við fjölmiðla að sakast, sem hafa gert sitt til að þegja flokkinn í hel yfir góðum málefnum, en flenna upp slæmar fréttir.  Núna síðast makalausar árásir Eiríks Stefánssonar á Guðjón Arnar og aðra forystumenn flokksins á Útvarpi Sögu sem er ekkert annað en svívirðingar og ærumeiðinga af ósvífnasta toga og afar einkennilegt að Útvarp Saga sé ekki vandara að virðingu sinni en þetta.     

Ég er sjálf orðin hundleið á þessari niðurrifsstarfssemi og illindum.  En ég treysti því fólki sem nú situr við völdin til að framfylgja hugmyndafræði flokksins, og þess vegna styð ég þau.     

Fyrir mér er þessi flokkur samsafn af góðu fólki með fallegar hugmyndir um að gera þjóðlífið betra.  Aldrei hef ég heyrt annað en að þingmenn og forystumenn virði sáttmálann og vilji einlæglega gera sitt besta til að vinna samkvæmt honum.      

Mér finnst það mjög gott að sem flestir gefi kost á sér til starfa fyrir flokkinn, og mér finnst það ekkert síður gott að konur hafi  nú gefið sig fram til starfa í forystunni.   Þess vegna þótti mér leitt að heyra í morgun að þú hefðir dregið framboð þitt til baka.  Það er gott mál að konur séu virkar í forystu flokksins.     

Ég vil svo nota þetta tækifæri til að vísa því á bug að hér sé eitthvert plott í gangi til að halda fólkinu okkar frá Reykjavíkursvæðinu frá flokknum.  Málið er einfaldlega að það er miklu dýrara að halda fundinn í Reykjavík, og við erum að tala um 800.000 til 1.000.000.-  annarsvegar eða 60.000.-  hinsvegar,  svo það sér hver maður að örflokkur sem er að fara inn í erfiða kosningabaráttu þarf að huga að fjármálum sínum.     

Eg vil svo að lokum setja hér inn yfirlýsingu frá kjördæmum í Norðaustri og Suðvestri, en ég er nokkuð viss um að félagar mínir í þessum kjördæmum meti ástandið eins og ég.     

Kraginn: lýsa yfir stuðningi við Guðjón Arnar

Stjórn kjördæmafélags Frjálslynda flokksins í Suðvesturkjördæmi tekur heilshugar undir stuðningsyfirlýsingu aðildarfélaga Frjálslynda flokksins í Norðausturkjördæmi. Yfirlýsingin barst í gær (16.feb.) en hún hljóðar svo:Aðildarfélög Frjálslynda flokksins í Norðausturkjördæmi lýsa hér með yfir eindregnum stuðningi við Guðjón Arnar Kristjánsson til áframhaldandi setu sem formaður flokksins. Við þær aðstæður sem nú eru teljum við brýnt að halda í heiðri þeim stefnumálum sem Frjálslyndi flokkurinn stendur fyrir og hefur gert alla tíð frá stofnun hans, en stefnuskrá flokksins er einstök meðal íslenskra stjórnmálaflokka, enda aðall hans og auðkenni. Guðjón Arnar hefur í raun orðið persónugervingur flokksins og fáir þekkja betur til þeirra aðstæðna sem stefnumál hans höfða til. Nú sem aldrei fyrr er nauðsynlegt að Frjálslyndi flokkurinn sé trúr sínum hugsjónum og teljum við engum betur treystandi til að framfylgja þeim, sem og til að leiða flokkinn í komandi kosningum, en núverandi formann. Stjórnir kjördæmisráðs og svæðisfélaga Frjálslynda flokksins í Norðausturkjördæmi.  

Það sem við þurfum á að halda núna er að standa saman, vinna saman að því að rétta flokkinn við.  Ég vil skora á alla sem vilja hag flokksins sem bestan að hætta að rífast og fara að vinna málefnalega að komandi kosningum.

Það er hið besta mál að takast á og bjóða sig fram til forystu.  En það vinnur enginn neinn sigur á því að ráðast að öðrum.  Maður vinnur fyrst og fremst á því að segja frá því hvað þeir ætli sjálfir að gera og vinna að, nái þeir kjöri.  Enda er það einmitt það sem skiptir mestu máli.  Ekki að ala á illindum meðal fólksins í flokknum.    

Ég vil líka óska þeim alls góðs sem hafa ákveðið að yfirgefa flokkinn, og vona að þeir hafi fundið sinn rétta farveg.  Því málefnalega erum við sammála um flesta hluti.  Einhverra hluta vegna hefur samt ekki verið grundvöllur fyrir það ágæta fólk innan raða hans.    

Ég ætla svo ekki að tjá mig meira um innri málefni flokksins opinberlega.  Það fer best á því að leysa vandamálin innan flokksins og á þeim stöðum sem leysa á ágreiningsmál.  Að rífast svona opinberlega gerir ekkert annað en að skemmta skrattanum.    

Vona að þetta skýri eitthvað af þínum pælingum Guðrún María mín.  Í fyrsta lagi er þetta orðið svo langt að enginn nennir að lesa það til enda í öðru lagi hef ég svarað þessu eftir bestu vitund minni og því sem ég hef heyrt og hrærst í. 

 


Karlarnir í lífi mínu.

Það er búið að vera heilmikið að gera hjá mér fyrir utan vinnuna.  Aðlögun hjá stelpunum á nýjum leikskólum, Guði sé lof fyrir að mamma þeirra er hérna núna, kennarafundur hjá stuppnum, og svo dittedatte annað.

En dóttir mín sagði við mig um daginn, hefurðu ekki sett inn myndir af karlmönnunum í lífið þínu mamma.  Nei sagði ég, mér hefur ekki dottið það í hug. 

Þú verður að setja inn myndir af þeim, sagði hún ákveðin.  Svo hér koma þeir þessar elskur.  Ég er eini kvenmaðurinn á mínum vinnustað, og er borin á höndum. 

IMG_5858

Þeir mæta tímanlega á morgnanna og bíða eftir verkefnum.  Sumir fara út að moka snjó, aðrir upp á skíðasvæði að vinna við lyfturnar.  Þeir setja niður haustlauka og bara gera það sem gera þarf.

Hér má sjá Steina, hann er hestamaður meðfram sinni vinnu á skíðasvæðinu og í öllu sem þarf að gera í verkamannavinnu.

Þarna er svo Doddi yfirverkstjóri, hann er líka í hestunum og skemmtilegur karl. 

Hinum myndunum er smellt af í kaffitímanum.

IMG_5748

Þetta er hann Guðni, hann er afskaplega hagur maður, hér er hann að laga stytturnar hans Simsons og gerir það vel eins og allt annað.

IMG_5804

Kaffitímana notar hann svo til að smíða svona skip, þetta er björgunarskipið okkar, það á eftir að málast og gera klárt.

IMG_5802

Þetta er hann Bjössi, hann leggur á flótta út úr kaffistofunni þegar við byrjum að ræða pólitík.

IMG_5805

Óli heldur um alla þræði í áhaldahúsinu, gerir við allt sem bilar svona smálegt, og hefur bókhald um allt sem kemur inn og út.  Ég veit að hann sparar bænum fleiri þúsundir á hverju ári með því að passa vel upp á allt sem honum tilheyrir.

Svo er Svenni hann er gröfukarl og eðalgrillari í ferðalögum sem við skellum okkur í á sumrin.

IMG_5806

Jónas er verkstjóri og svo er hann í karlakórnum Erni.

IMG_5807

Flosi er viðgerðarmaðurinn og hann gerir við allt sem bilar í bílunum og tækjunum.  Á sumrin þeysist hann um fjöll og firnindi sem rútubílstjóri með erlenda ferðamenn.

IMG_5808

Hjálmar er líka gröfukarl og svo er hann bóndi í Hrauni.

IMG_5861

Hér er Ari fróði.  Hann veit afskaplega mikið, þekkir mjög víða til og er hafsjór af fróðleik.  Ari er hinn íslenski verkamaður sem er vel lesin og víðsýnn.  Svoleiðis er margt alþýðufólk þessa lands, ég held að það sé ekki víða erlendis sem maður rekst á svoleiðis, og ber að virða slíka menn.

Það vantar örugglega einn það er hann Jói, Jói er alltmúligmaður í áhaldahúsinu, hvort sem það þarf að grafa eitthvað, höggva tré eða senda í hafnarvörslu á firðina í kring, þá er kallað í Jóa.  Hann er líka í björgunarsveitinni. 

Þetta eru karlarnir mínir í áhaldahúsinu.  Okkur kemur alltaf vel saman, og við eigum oft ágætis stundir saman förum meira að segja í ferðalög.  Ég er ánægð með mína vinnufélaga og móralinn hjá okkur.  Og svo eiga þér líka afskaplega yndislega konur þar á ofan. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband