9.3.2009 | 20:49
Smá grín svona undir nóttina!!!
Já ég var einmitt að fá svona líka skemmtilegan brandara frá litlu systur minni um daginn og ég er ennþá að hlæja, en ef til vill er það vegna þess að ég er þess fullviss að mínum gamla lífsförunaut hefði aldrei dottir batman, súperman eða spiderman í hug í þessu sambandi heldur stokkið á bráð sína umsvifalaust, en þannig er það nú bara segi ég og skrifa, sumt bara er, og sumir þroskast ekkert sem betur fer. Sumir einfaldlega eru bara Börn náttúrunnar hehehehehe... en hér er svo sagan. Hlátur í boði Ásthildar Cesil.
The other day I had lunch
with 2 of my unmarried friends.
One is engaged, one is a mistress, and of course I have
been married for 20+ years.
We were chatting about our relationships and decided to
amaze our men by wearing a black leather bra ; bodice,
stiletto heels and a mask over just our eyes. We agreed to
meet in a few days to exchange notes. Here's how it all
went :
My engaged friend:
The other night my boyfriend came over and found me wearing
a black leather bodice, tall stilettos and a mask.
He saw me and said, 'You are the woman of my dreams.
I love you.' Then we made love all night long.
The mistress:
Me too! The other night I met my lover at his office and
I was wearing the leather bodice, heels and mask over my
eyes and a raincoat. When I opened the raincoat he
didn't say a word, but we had wild sex all night.
Then I had to share my story:
When my husband came home I was wearing the leather bodice,
black stockings, stilettos and a mask over my eyes. As soon
as he came in the door and saw me he said.
"What's for dinner, Batman?"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.3.2009 | 23:59
Afmæli stubbsins míns.
Afmælið gekk vel hjá stubbinum. Það kom fullt hús af flottum krökkum og þó megi segja að hávaðinn hafi verið nokkuð mikill, þá voru þau öll bara svo flott og skemmtileg. Ég ætla að vona að þau fari saman gegnum þessi erfiðu ár sem eru framundan, og að þau hlúi hvort að öðru, til að ekkert þeirra fari út í vitleysu, því þetta er viðkvæmur aldur og með sameiginlegu átaki þá geta þau stutt hvort annað og passað upp á hvort annað hvert á sinn hátt, þannig að þau komist öll í gegn um nálaraugað.
trommusettið var náttúrulega spennandi, og sumir voru hreinlega rosalega flottir að þeyta kjuðana svo að aðdáunarver var.
en strákarnir komu líka með græjur til að spila, þetta var sko alvöru....
Og sífellt komu fleiri.
Já það voru pitsur og gos, og nammi og hvað eina.
ég held að þau hafi bara skemmt sér vel yfir veitingunum.
En það þurfti að koma græjunum í lag, og þar eru strákar bestir, nema ef enginn er til að gera hlutina, þá tökum við stelpurnar við og gerum nákvæmlega það sem þarf. Bara ekki þegar þeir eru viðstaddir... hafiði tekið eftir þessu lífsreyndu konur?
en músikinn dunaði og það var dansað.
ég get alveg samsamað mið þessari rauðhærðu stúlku, ég er líka svona dansfífl, með jákvæðum formerkjum.
Hér er verið að leika fyrir framan myndavélina
Flottar stelpur.
Það er bara eitthvað svo heilbrigt og skemmtilegt við krakka sem eru af hjartans einlægni að skemmta sér.
Jamm hehehe sumir eru rólegri en aðrir.
Úlfur í prinsessuherberginu.
stelpurnar mínar sváfu hér, það var notalegt, amma skaust svo inn um morguninn og stalst til að taka mynd heheheh.... Þetta eru ömmukrútt.
Svona var nú veðurútlitið í morun. snjór og vindur...
Og að lokum undir svefninn, Gulli er bangsi sem hefur verið á Bakkaskjóli yfir 25 ár. Krakkar taka ástfóstri við hann og hann fær að fara með þeim heim yfir helgi. Mamma á svo að skrifa um það hvernig helgin gengur. Það fylgir honum bók til að skrifa í. Við settum þessa mynd inn í bókina hans Gulla, því okkur fannst við hæfi að hann fengi líka mynd af sér og aðdáanda sínum. Og hér er sú mynd.
en svona að lokum, krakkar mínir ef þið kíkið hér inn til að skoða myndirnar, þá vil ég segja þetta.
Ég vil þakka ykkur fyrir prúðmannlega framkomu, og umhyggju fyrir mér. Þið eruð yndæl og góð, ég óska þess að þið standið saman og standið bæði með ykkur sjálfum og hinum krökkunum um að verjast öllu utanaðkomandi sem áreitir ykkur. Ég sé að þið eruð hæfileikarík og flott, og það mun fleyta ykkur langt, en besta vörnin sem til er, er að þið ákveðið að standa saman, verja hvort annað og taka tillit til hvors annars. Ég verð 65 ára á þessu ári, ég hef hitt mín skólasystkin núna á fimm ára fresti í allmörg ár og við rifjum upp skólagönguna, við munum öll svo margt frá okkar skólaárum, við munum ekki bara það sem við gerðum vel, við munum líka alltof vel það sem miður fór, og við hefðum svo gjarnan viljað laga. En það var þá of seint. Þið aftur á móti eigið þetta allt eftir og örugglega hittinga gengum ykkar tíð. Látið þær minningar verða fallegar og gleðiríkar með því að breyta rétt og vel, það er ykkar val. Knús og mikið var ég ánægð með ykkur öll í gær.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
8.3.2009 | 11:11
Krúttfærsla - að dansa.
Í gær meðan verið að að undirbúa veisluna, fengu litlu krakkarnir að skemmta sér, Úlfur var að prófa músikina og þau tóku fullan þátt í að dekka borð og svo að dansa.
Evíta litla var í heimsókn og þær skotturnar voru að skemmta sér saman.
Þær voru nefnilega að dansa.
Þær eru nefnilega alveg eins og amma sín, algjör dansfífl
Á meðan voru Hanna Sól og Sigurjón Dagur að gefa fiskunum í tjörninni.
Dansa hvað er betra en að dansa
Hér lyftir daman herranum upp hehehehe...
Og dansinn dunar enn.
Dansi dansi dans!!!
Hér sýnist Evíta vera komin út í Riverdans hehehe...
Dansi dansi dúkkan mín, dæmalaust er stúlkan fín.
Mjallhvít komin líka.
Já það er gott fyrir líkaman að dansa.
Ólöf Dagmar tilbúin í slaginn með stóru krökkunum.
En svo verður maður þreyttur og þá er gott að eiga sterka arma að. Mamma á ég ekki að taka litlu stelpurna með mér heim og leyfa þeim að sofa þar, ég þekki nefnilega til svona krakkapartýja og veit að þar er ógurlegur hávaði, þær munu ekki sofna í slíku. Og hann reyndist hafa rétt fyrir sér, það var hávaði, en allt fór samt vel fram og ég mun fjalla betur um það síðar.
En eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
7.3.2009 | 15:54
Vorið kemur hlýtt og grænt.
Hér er verið að undirbúa afmælispartý stubbsins, á morgun verður hann 12 ára, og hefur fengið leyfi til að bjóða til sín krökkum í kvöld. Það er allt að verða klárt undir partý.
En þið voruð að tala um vor í kúlunni, vorið er vissulega byrjað.
Páskarósin er búin að standa svona lengi, þó ekki séu komnir páskar.
Kínveska runnabóndarósin komin á fullt líka, bráðum birtast hennar stórkostlegu knúppar.
Krisuberin fara að sýna blómin.
Sakúrakirsuberni líka.
Rósamandlan vill ekki láta sitt eftir liggja.
Og drottningin sjálf komin af stað.
Og margarítan.
Þessi var tekin í gærmorgun, morgunin að rísa við sjóndeildarhringinn.
Eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.3.2009 | 21:09
Stemningsmyndir.
Þemað er ljós og skuggar.
Allar teknar í dag.
Kubbinn í morgunsárið.
Hnífsdalur í morgun.
En morgunin biður þess að taka við.
Vegaskiltin eru á kafi í snjó.
Það er unnið í gangnagerð af flullum krafti.
Birtan leikur sér að komandi degi.
Hægt og rólega tosat dagurinn áfram.
Líkt og í ævintýralandi. Og ég segi bara góða nótt elskurnar mínar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
5.3.2009 | 13:33
Smá hugleiðingar um frambjóðendur, frá hjartanu mínu.
Kæru vinir ég hef verið upptekin í gróðurstússi, þar sem ég tók að mér að vera með fyrirlestur um nytjajurtir sem vaxa hér fyrir vestan. Það er af mörgu að taka, og erfitt að gera upp á milli. Ég kaus að nota mér lítið rit frá 1880, um íslenskar nytjajurtir til lyfjagerðar. Þessi bók er enn í fullu gildi þrátt fyrir aldurinn, og plönturnar eru þær sem eru hér allt í kring um okkur, eins og njóli, fífill, vallhumall og fleiri. Ég ætla að koma með þetta hér inn seinna ykkur til fróðleiks, því það er margt hægt að gera við þær plöntur sem við í daglegu tali köllum illgresi.
kvöldið var í gær og tókst mjög vel, þó ég segi sjálf frá. Það var húsfyllir, þau héldu jafnvel að þetta væri mesta aðsókn sem verið hefði, og ég er stolt af því, einnig var fjarfundabúnaður notaður til að fólk á Hólmavík gæti verið með okkur. En þetta tók allan minn tíma. Svo þess vegna gerðist ekkert hér.
En ég ætla að setja nýjar myndir inn á eftir, frá snjónum og veðrinu hér, sem er mjög gott í dag, og í gær reyndar líka, þó umferð hafi verið erfið á götum, því mikið var að moka og skafa snjó. Karlarnir okkar hér snjómokararnir eru sem betur fer vanir og eldsnöggir að ryðja þá vegi sem þarf, sumir þurfa þó að bíða aðeins, því þetta tekur allt sinn tíma.
Ég var svona að hugs um það áðan, nú þegar allt er komið á fullt í kosningabaráttu hjá þeim sem vilja bjóða sig fram, að nú þurfum við aðeins að stoppa við, skoða hlusta og kynna okkur það fólk sem býður sig fram. Það þarf að meta unnin störf þeirra líka. Það ætti nefnilega ekki að vera nóg að hafa bara hátt og láta mikið á sér bera. Vera duglegur að kynna sig og sitt, ef ekkert liggur svo á bak við það annað en að komast að völdum.
Nú ríður á mín kæru að vinna að lýðræðisbyltingunni, því ég hugsa að það sé ekki nóg að stökkva bara á eitthvað nýtt, heldur er sennilega affærasælast að reyna að hafa góð áhrif á frambjóðendur í þeim flokkum sem við ætlum að kjósa yfir okkur í vor.
Ekki láta glepja okkur með fagurmælum, ef viðkomandi hefur ekki sýnt neitt í þá veru áður, þá er hann svo sannarlega ekki líklegur til að fara að taka upp á því eftir kosningar.
Ekki heldur láta plata okkur með því að viðkomandi sé svo duglegur að afla fylgis. Það er ekki grunnurinn undir lýðræðið. Því oftast er slíkt mest byggt á að mylja undir sig sjálfan sig.
Nei þið skuluð taka eftir þeim sem er rólegur þögull en hefur sýnt af sér að vilja vinna í þágu fólksins. Hann þarf ekki að gala hátt til að heyrast, því hann vill einmitt láta meta sig að verðleikum. Það er til svona fólk, það er bara að gefa sér tíma til að finna það í öllum þessum hamagangi. Ég bendi til dæmis á Jóhönnu Sigurðardóttur, af því að hún er gott dæmi, en það eru Jóhönnur í öllum flokkum trúíð mér. Þær verða bara oftast undir af því að fólk glepst á þá sem hafa hærra.
Málið er að nú ríður á að vanda valið. Ekki bara á þeim flokk sem viðkomandi ætlar að styðja, heldur líka að taka þátt og vanda valið á frambjóðendum þar.
Reyndar kemst það vonandi á koppinn að hafa óraðaða lista, það er vilji til þess hér hjá mér, og ég mun beita mér fyrir því að svo verði. Að vísu verður það sameiginleg ákvörðun frambjóðenda og forystu, en ég hef trú á því að fólk setji sig ekki upp á móti þeirri lýðræðislegu gjörð sem það er.
Annað sem vert er að hafa í huga er að það er líka á ykkar ábyrgð að veita konum brautargengi í flokkunum. Það fer alltaf best á því að sjónarmið beggja kynja komi sem mest að málum. Oft var þörf en nú er nauðsyn.
Látið aldrei telja ykkur trú um að þessi eða hinn sé ómögulegur, af því ..... eitthvað bara, eða að þessi sé ómissandi af því .... eitthvað bara.
Við erum oft svo fljót að dæma, og taka mark á því sem við okkur er sagt. En það er einmitt í svona tíð sem reynt er að olnbogast í gegnum skarann og þá er sama hver verður fyrir, hann skal burt. Það er í okkar valdi að láta ekki olnbogarana troðast fremst, og láta hina sitja eftir af því að þeir troða sér ekki. Ég vona að þið skiljið hvað ég er að fara.
Skoðum hvern og einn fyrir sig, og hugsum hverjum treysti ég best til þess að vinna að því að koma þjóðinni út úr þessari vansæmd. Hvað hefur þessi manneskja gert, og hvað hefur hún sagt. Fer það ef til vill ekki saman?
Ekki bara hlusta á næsta mann og trúa því sem sagt er. Nú ríður á að við sýnum hæfni okkar sem kjósendur til að lyfta lýðræðinu upp á æðra plan. Gera það skilvirkara og dempa aðeins niður í olnbogurunum, þeir eru oftast fullir af sínu eigin lofti, og sjá ef til vill ekki neitt fram fyrir eigið nef. Ef þið spáið í það, þá sjáið þið að það er oftast satt. Narrzissus horfði bara í spegilinn, af því hann var flottastur, við höfum ekkert að gera með slík spegladýr á þessum tímum. Heldur alvöru fólk sem vill vinna fyrir okkur.
Þetta er bara hugsun sem sækir á mig í öllum þessum æsingi fólks við að kynna sig. Ekki halda að ég hafi á móti því að fólk láti uppi þau góðu verk sem þau hafa gert. Heldur þarf einmitt að skoða hvort það stenst. Hvort viðkomandi hafi í raun og veru þann kaliber til að bera að vinna þjóðinni sinni og okkur öllum sem best í hag en það er einmitt það sem þarf núna.
Eitt að lokum, sumir gerast rosalega lýðræðislegir rétt fyrir kosningar, þó þeir hafi ekkert sýnt annað en hroka. Biðjast afsökunar á þessu og hinu og skilja allt svo vel. Þetta fólk treystir á gullfiskaminnið fræga. Ekki láta slíkt fólk glepja ykkur til að vinna þeim brautargengi, við höfum nákvæmlega brennt af okkur allar stélfjaðrir með slíkt fólk í fararbroddi undanfarin svona 20 ár.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
3.3.2009 | 11:02
Snjóflóðahætta og illfært um götur.
Jæja mín kæru, þá er veður vont, ófært um Kirkjubólshlið, Óshlíð og Eyrarhlið. Svo ekki komst litla skottan mín í leikskólann, en sú eldri er á Sólborg og það er ennþá fært innanbæjar, þó það sé orðið þungfært. Og svo á að hvessa upp, svo það má segja að ekki sé hundi út sigandi.
Svona er útlitið úr mínum bæjardyrum núna.
Jamm það er komin ansi mikill snjór.
Rétt grillir í Engi. Og nú var verið að hringja bæði frá Grunnskólanum og Leikskólanum Sólborg og tilkynna að það væri verið að loka skólunum vegna ófærðar. Þetta er nú meira ástandið.
Já svei mér ef ég tek ykkur ekki bara með mér á ættarmót í Reykjanesi. Hér er mamma mín sem situr, Dóróthea systir hennar næst henni, Pétur bróðir hennar næstur og Kristín kona hans.
ég Aron bróðir Úlfs Júlíana og Úlfur. Þetta var áriði 1999, sem systkini mömmu hittust, og svo var farið fram í Hraundal og Selið heimsótt, en þar ólst mamma og systkinin upp að einhverju leyti.
Það þurfti að vaða yfir Hraundalsána, því yfir hana er enginn brú. Og eftir allan þennan tíma, mundi Pétur frændi hvar vaðið var. Sumt gleymist ekki.
Hér er svo Selið, moldarbær sem mamma mín ólst upp í, svona erum við nú nálægt fátækt fyrri ára. það er bara ekki lengra síðan en þetta. Og Kreppa hvað!!!
Mamma og Júlíana Lind. þetta var síðasta árið sem mamma mín lifði, og gott að hún skyldi upplifa þessa ferð með ættingjum sínum.
Ein hlýleg og notaleg. Skafti minn í sundlauginni í Reykjanesi með Júlíönu dóttur sinni.
En ég kveð ykkur héðan út snjónum og þeim hættum sem steðja að íbúum hér, verið samt alveg róleg það er vel hugsað um okkur, og almannavarnirnar á vaktinni. Væsir ekki um okkur meðan við höfum rafmagn og svoleiðis.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
2.3.2009 | 14:10
Kolbrún Bergþórsdóttir drullar upp á bak.
Það barst mér til eyrna blaðagrein í Morgunblaðinu í gær eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur, ég varð að lesa hana tvisvar yfir, til að skilja að hún var að ræða um Frjálslyndaflokkinn. Fyrir utan að greinin er á allan hátt Kolbrúnu til háborinnar skammar, þá eru hún ein staðreyndavilla út í gegn. Ég vil ráðleggja henni að kynna sér málefnahandbók Frjálslynda flokksins, hún er aðgengileg á www.xf.is, þar kemur meðal annars fram að flokkurinn hefur mörg góð mál á sinni stefnuskrá.
Ég er reyndar mest hissa á Morgunblaðinu sem vill láta taka sig alvarlega sem fjölmiðil að birta svona sora og ómerkilegheit.
Í þessari grein ræðst hún með offorsi á þingmenn flokksins, og segir eftirfarandi; Það var mikið mein þegar fulltrúar þessa flokks komust á þing og töldu sig vera gilda fulltrúa þjóðarinnar, jafn illa talandi og illa þenkjandi og þeir sýndu sig vera.
Og svo síðar: Það má svo sem halda því fram með nokkrum rökum að ágætt sé að menn sem hafi engan áhuga á þjóðfélagsmálum en því meiri áhuga á sjálfum sér safnist saman í einn flokk, en dreifi sér ekki á milli bæja.
Og hérna;
Það er svo margt furðulegt við Frjálslynda flokkinn þar á meðal sú staðreynd að formaður flokksins virðist vera ágætis maður sem virðist aldrei átta sig á því að flokkur hans var kominn út á hættulegar villigötur. (Leturbreytingar eru mínar)Nú langar mig að spyrja þig Kolbrún Bergþórsdóttir;
Hvað áttu við með því að Guðjón Arnar, Sigurjón Þórðarson Magnús Þór Hafsteinsson og Sverrir Hermannsson séu illa talandi og illa þenkjandi, eða ertu ef til vill að vísa í Grétar Mar, Jón Magnússon eða Kristinn H. Gunnarsson? Ég veit ekki til þess að Guðjón Arnar né neinn þessara manna sé illa þenkjandi og ekki eru þeir illa máli farnir, svo mikið er víst.
Og hvað áttu við með að flokkurinn hafi verið kominn á hættulegar brautir? Útlendingaumræðan var blásinn út m.a. af Jóni Magnússyni, sem er nú gengin til liðs við Sjálfstæðismenn, svo þessi hættulega umræða er nú komin heim í föðurhús sín. En við í Frjálslynda flokknum höfum góða stefnu í málefnum útlendinga, sem þú getur kynnt þér ef þú nennir að lesa samþykktir og málefnaskrá flokksins áður en þú ryður út úr þér lyginni og ómerkilegheitunum.
Þar stendur m.a. þetta;
Úr málefnahandbók bls. 34.
Innflytjendur og flóttafólk.
Leggja þarf aukna áherslu á íslenskukunnáttu innflytjenda til að auðvelda þeim þátttöku í íslendsku þjóðfélagi. Tryggja ber að þessi hópur njóti félagslegs jafnréttis og geti tekið fullan þátt í samfélaginu, öllum til hagsbóta.
Íslenskt þjóðfélag mun í framtíðinni að hluta til verða myndað af hópum fólks sem á rætur að rekja til ólíkra menningarheima. Frjálslyndi flokkurinn telur að tilkoma fólks af erlendu bergi brotið leiði til víðsýni meðal þjóðarinnar og auki samkeppnishæfni hennar á aljóðavettvangi.
Ísland á ekki að skorast undan ábyrgð í málefnum flóttafólks. Einnig ber íslendingum að taka þátt í mannúðar- og hjálparstarfi á erldnum vettvangi.
Hvar sérð þú hættulegar yfirlýsingar hér.
Nei Kolbrún Bergþórsdóttir, með þessum skrifum hefur þú svo sannarlega sýnt skítlegt eðli, og fyrir mér allavega verður þú hér eftir ómarktæk. Þar sem þú hirðir ekkert um sannleikann, eða það sem rétt er, heldur þína bjöguðu sýn á menn og málefni. Ég vona svo sannarlega að þú kunnir að skammast þín, og vinsamlegast biddu okkur fólkið í Frjálslyndaflokknum formlega afsökunar á lygum og illa ígrunduðum áróðri þínum.
Að þú skulir kalla þig blaðamann er algjörlega út úr korti. Þú ert hér á við Eirík Stefánsson Útvarpssögu hetju í sleggjudómum og skítkasti. Lýðræðið er þér greinilega ekki ofarlega í huga, þegar þú vilt þagga niður í fólki sem kosið hefur verið á þing út á sín góðu málefni og áhuga að að bæta kjör fólksins í landinu, því ef þú nennir að skoða þau þingmál sem flokkurinn hefur lagt fram, þá sérðu að þar eru mörg þörf og brýn mál sem ættu svo sannarlega að koma fram, en því miður þá er í gangi þöggun á Frjálslynda flokkinn, nema þegar fólk eins og þú finnur hjá sér hvöt til að afbaka og falsa málefnin sem flokkurinn stendur fyrir.Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (37)
1.3.2009 | 23:57
svona undir svefninn.
BörniTakk elskurnar er búin að lesa og ætla að fara hringin á morgun.
En hér eru nokkrar myndir teknar í dag;
Veðrið i dag var yndislegt.
Þessi var tekinn í gær á leíð í sund á Suðureyri flottustu sundlaug ever.
Á tjörninni ís mjög sterkur.
Já og hér er alveg nýtt, hús við pollinn, Elías hér að verki.
Og Gölturinn í sínu fulla veldi hér á Suðueyri.
Ísafjörður á sólríkum febrúardegi.
Jamm birtan er flott hér á þessum tíma
Segi og skrifa.
Og persónulegra.
Börnin mín svo yndæl.
stigin er bestur hehehe
Hann passar nefnilega svo vel við öll tækifæri,
Jamm tómatsósan er góð.
Jamm það er hægt að sættast á tómatsósuna hehehe
eins og ég sagði er veðrið upp á sitt besta.´
Eins og ég sagði þá er vorið að koma á Seljalandsvegi 100.
Afi með tvær skottur.
Ja það þarf að mörgu að hyggja.
Ó þú fagri Ísafjörður.
svo getur maður fengið sér smáblund í bílnum hjá ömmu. hehehehe
Dularfull getur umhverfið verið stundum.
en við fórum í smáheimsókn inn í hesthúsahverfið.
Að ósk litlu manneskjunnar.
Þessi fór í fjörufeð með Júlla að týna steina til að gera fiska úr. Svona ætlar hún á leikskólann á morgun, segir hún. en þetta var dýrðardagur í dag. Og ég segi bara góða nótt mín elskuleg.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
1.3.2009 | 15:14
Nokkrar myndir.
Það er fallegt veður á Ísafirði í dag, líka í gær. Ég set fleiri myndir inn seinna, en ég hafði Evítu litlu í pössun í nótt, þær skiptust á að vakna og biðja um að súpa, fyrir utan smáatriði eins og að biðja um pabba og mömmu hehehehe... en afi hjálpaði til sem betur fer.
Þessi er tekinn í fyrradag.
En það er byrjað að vora í kúlunni og bæði í gær og fyrradag grilluðum við þar frammi.
Þær litlu voru mjög áhugasamar um grillið og afa sinn.
Það er samt tjörnin sem alltaf heillar mest.
Sulla sulla sulla.....
Og svo er líka málað en sem betur fer bara með vatni.
Jamm það er málað og penslarnir svo skoðaðir vel.
ég komst að því að stelpan er hörkudugleg, hún málaði eins og hún væri í akkorði og hvergi helgidagar. Ótrúlegt af litlu 2ja ára barni.
En eigið góðan dag elskurnar. En ég set mjög líklega nýrri myndir inn seinna í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 54
- Frá upphafi: 2023206
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar