Einhvernveginn svona hljómaði frétt í vetur. En þá fannst gömul kona dáin í íbúð sinni og hafði legið þar í marga mánuði án þess að nokkur saknaði hennar.
Menn voru undrandi og hneykslaðir á þessu. En þessi kona var fyrir flesta bara kenniltala og númer.
Það vill svo til að í gær kom þessi saga einhvernveginn upp að mér. Og þar sem hún var einstæðingur sem enginn saknaði, langar mig til að senda henni kveðju frá jörðinni, með virðingu. Ég veit nefnilega að hún er hamingjusöm og ánægð því hún hefur horfið til ástvinar síns að lokum.
Birna bjó á Vitastíg. Hún átti þar þriggja hæða hús og var velstæð að hætti þess tíma.
Birna kynntist amerískum hermanni og eignaðist með honum son. Ekki veit ég hvort Bidda eins og hún var kölluð elskaði þennan mann, en allavega áttu þau ekki samleið. Ef til vill var hann giftur ytra, eða þau áttu ekki saman, nema drenginn. Nafn drengsina var Knútur Lister, kallaður Kúddi.
Kúddi ólst upp á Vitastígnum og átti nokkra góða vini þar í kring. Mamma hans átti og rak Vitabar. Hún var vel stæð og þess vegna fékk Kúddi meira umleikis en leikfélagar hans. Hann var vinsæll meðal félaga sinna. Í húsinu var meira að segja stúkað af á efstu hæðinni herbergi sem var afdrep fyrir viltar dúfur í miðbænum þar áttu þær skjól og gátu flogið út og inn. Mér er sagt að Kúddi hefði líka fengið lausari taum með flest en vinir hans. Þó þeir brölluðu ýmislegt saman.
Birna elskaði þennan einkason sinn, og hann var eini fjölskyldumeðlimurinn hennar í þessu stóra húsi.
Birna var bráðdugleg manneskja og sá vel fyrir syni sínum.
Sorgin barði að dyrum hjá Birnu þegar Kiddi var 18 ára, hann datt niður stiga og dó.
Það var stóra sorgin hennar Birnu. Það hlýtur að vera hræðilegt að missa eina barnið sitt, og eina fjölskyldumeðlim sinn.
Vinir hans muna vel eftir honum, og jafnvel er hægt að heyra á þeim að þeir sakni hans ennþá. Þeir tala oft um hann, þegar þeir hittast. Hann hefur því verið einstakur drengur.
Í sumar gekk einn af vinum hans framhjá Vitastígshúsinu, hann sá að verið var að bera út jarðneskar eigur móður þessa vinar síns. Hann gaf sér tíma til að stoppa, þetta voru þá starfsmenn frá ríkinu, skiptastjórar eða eitthvað álíka. Hann spyr hvað sé um að vera, hvort hún sé dáinn.
Þá fær hann að frétta að þetta sé einmitt þessi gamla kona sem kom í fréttunum í sumar.
Hann sagði mér líka að gamla konan sem var einstæðingur, átti þó vini, gott fólk sem leit til hennar af og til, en býr ekki á landinu, sem hafði ekki séð hana lengi, en þar sem hún hafði stundum farið til Ameríku til að hitta föðurfólk sonar síns, og ekki látið af sér vita. Þá hélt fólk að hún hefði farið slíka ferð. Þess vegna varð málið eins og það var.
Vinirnir sem ég veit um eru Elías Skaftason, Sturla Fjeldsted, Hörður Torfason, Jakob Guðmundsson.
Ég man að ég tók einu sinni fyrir langalöngu Sturla með mér á miðilsfund í Hnífsdal, þar kom Kúddi fram og gerði svo vel grein fyrir sér og öllu sem þeir þekktu saman, að Sturla gat ekki efast um að þetta væri hann í raun og veru. Enginn sem var á fundinum þekkti til.
Þannig er sagan um hana Birnu. Hún er stutt, því ég sá hana aldrei eða hitti, en minn maður var einn af þessum vinum, og ég veit að þeir tala oft um hann Kúdda vin sinn.
Það er nefnilega svo að það er enginn bara nafn og kennitala. Bak við allt slíkt býr fólk með vonir og drauma, og ævistarf.
Það væri gaman að heyra ef einhver hér þekkir þessa gömlu sögu og getur bætt einhverjum fróðleik við. Þannig að Birna og Kúddi eignist smá pláss í hugum fólks.
Kúddi og Sturla mynd tekinn árið 1959.
Kúddi fyrir framan Vitabar. Líka tekinn árið 1959.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
21.9.2007 | 18:12
Mikið er gott að maðurinn er fundinn.
Um leið og ég votta aðstandendum mína dýpstu samúð, þá fagna ég því að lík hans hefur fundist. Ég veit að það er fátt jafn erfitt fyrir syrgjendur og að jarðneskar leyfar finnist ekki. Það eru líka allskonar flækjur í sambandi við jarðarför og annað, þar sem ekki má jarðsyngja ástvin fyrr en eftir ákveðinn tíma, sem er í raun og veru furðulegt, þegar ljóst er að enginn von er til að viðkomandi finnist á lífi. Þó það sé skiljanlegt ef maður hverfur og enginn veit hvert hann hefur farið.
Hér á Ísafirði hafa menn fundið einskonar lausn á þessu. Inn í nýja kirkjugarði, hefur verið komið fyrir minningarreit, þar sem fólk getur sett nöfn ástvina sinna á fallega steina, sem þar hefur verið komið smekklega fyrir. Það gefur fólki heilmikið að geta farið að slíkri "gröf" með blóm og kærleika.
![]() |
Karlmaður sem féll í Sogið fannst látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
20.9.2007 | 23:40
Tónleikar.
Alveg eins og ég bjóst við voru tónleikarnir framar bestu vonum. Drengurinn er gjörsamlega frábær. Enda hefur hann þetta allt í sér, frábær, leikari, leikstjóri og tón- og ljóðskáld. Þegar allt þetta kemur saman, þá getur það bara einfaldlega ekki klikkað.
En fyrst fórum við litla fjölskyldan á Thai Koon.
Þegar maður fer að skemmta sér á annað borð, þá á auðvitað að gera það almennilega.
Thai Koon er mjög vinsæll Thailenskur matsölustaður. Alveg frábær.
Svo á tónleikana. Vá hvað það var gaman.
Svo segir hann sögur inn á milli. Sögurnar um hvernig ljóðin verða til.
Upp brekkuna maður fer.
Amma var ekki allt í lagi að hann skrifaði nafnið mitt á áritunina.
Jú jú, sagði amma, þú átt hvort sem er að erfa þetta seinna.
Já égi veit, en þú mátt nú hafa ýmislegt með þér á Hlíf.
Vorum nýbúin að var gegnum þetta í sambandi við Kúluhúsið. Þau ætla öll að flytja og búa í kúlunni þegar við deyjum barnabörnin.
Jamm það fylgir að árita og selja diskana.
Og syngja um allan tilfinningaskalann.
Laufey I love you, I really really really do. hehehehe... Það var aukalagið.
Það er svon sannarlega gefandi fyrir sálina að koma sér út úr húsi og leyfa sér að upplifa listina. Hvort sem það er leiksýning, konsert eða tónleikar. Það nærir sálina og skilur eftir gleðitilfinningu, jafnvel þó maður sé dálítið dapur inn í sér. Þá gefur þetta augnablik svo mikið. Takk fyrir mig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
20.9.2007 | 17:47
Er að fara á tónleika í kvöld.
Jamm við hjónin förum alltaf á tónleikana hans Harðar Torfasonar. Hann er snillingur með stóru Essi.
Hörður Té, drekkur te. Hehehe... hann kemur alltaf við í eldhúsinu hjá mér, þegar hann er á ferðinni þessi elska.
Hér skoða þeir æskufélagarnir gamlar myndir af Vitastíg og Njálsgötu. Rifja upp strákapörin og svoleiðis.
Svo litu þau við sonurinn, Matta og litla Evíta Cesil.
Nammi namm gott að fá sér brauð og ost hjá ömmu.
Hér er reyndar fullt hús af strákum með stubbnum, þeir komu með honum heim úr skólanum.
En þið sem ekkert sérstakt ætlið að gera í kvöld. Þá verða frábærir tónleikar hjá Herði Torfasyni í stóra sal Edinborgarhússins klukkan 8.30 í kvöld. Og ég get alveg lofað því að þetta verða góðir tónleikar. Hann Hörður er snillingur í að skemmta fólki, og skapa stemningu.
Hann er hinn eini sanni trúbator.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
20.9.2007 | 14:35
Fundur færður.
Set þetta inn af blogginu hans Jens Guðs.
Vonandi verður góð mæting og góð stemning.
20.9.2007 | 14:26
Fundur færður
Fyrirhugaður fundur eða kaffispjall grasrótar Frjálslynda flokksins sem átti að vera hjá Sægreifanum í kvöld hefur verið færður á Grand hótel. Á fyrsta kaffispjalli vetrarins, fyrir hálfum mánuði, mættu um þrjátíu manns. Núna stefnir allt í að mun fjölmennara verði á kaffispjallinu í kvöld. Forysta flokksins ætlar að mæta og sitja fyrir svörum og heyrst hefur af fólki á landsbyggðinni sem ætlar að leggja land undir fót. Þess vegna þótti ekki boðlegt annað en færa fundinn í stærra húsnæði.
Fundurinn er sem sagt á Grand hótel (rétt hjá þar sem gamla Blómaval var). Hann hefst stundvíslega klukkan 20:00. Búist má við afar fjörlegum umræðum. Ég biðla til allra sem þetta lesa að taka þetta upp á sinni heimasíðu þannig að upplýsingarnar berist sem víðast.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.9.2007 | 14:28
Guð láti gott á vita.
Ég fylgdist ekki vel með fréttum í morgun, en heyrði samt að eitthvað mikið var um að vera. Blaðamannafundur og alles.
Það var eins og maður kæmi allt í einu inn í miðjan Rambóleik. Ég veit það ekki, þetta er allt svo kómiskt ennþá. Eins og menn séu að hengja á sig öll stríðsmerkin úr skúffunni.
En ég er sammála því að það er mjög gott mál að þessi farmur skyldi nást. Það er bara einhvernveginn svo, að það svona flýgur að manni, hvort þarna sé um einsdæmi að ræða. Maður hefur svo sem heyrt talað um gámainnfluttning á svona stuffi, og eitt er víst, að landið er uppfullt af svona efnum, því miður.
En það virkar bara svona á mig, blaðamannafundur, sem í raun og veru var eiginlega ekki um neitt. Þar kom svo sem ekkert fram annað en sagt var um í fréttunum, skúta að landi, tveir menn handteknir um borð og einn í landi. En heilmikið talað um hve lögreglan stóð sig nú rosalega vel, og hvað uppbyggingin hefði gengið frábærlega vel og alles.
Það svona hvarflar að manni að það sé verið að nota þetta mál til að upphefja lögguna. Æ ég er bara svo vitlaus, og það hvarflar svo margt að mér.
En ef þetta er stefnubreyting þá fagna ég henni innilega, ég hef sagt það áður. Það gengur undarlega lítið að finna fíkniefni sem streyma inn í landið. Og það á 300.000 manna eyju. Sem er bara smábleðill miðað við allar milljónirnar þarna úti.
![]() |
Tugir kílóa af fíkniefnum í skútu í Fáskrúðsfjarðarhöfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
19.9.2007 | 14:23
Komið með í smá-safariferð um Óshlíð.
Átti leið til Bolungarvíkur, og datt í hug að taka myndavélina með. Fyrst fer maður gegnum Hnífsdal. Ótrúlegt að þeir ætli að taka alla fjöruna af þorpinu undir vegstæði, þar með geta enginn börn lengur leikið sér í fjöruborðinu á litla sjávarþorpinu Hnífsdal. Hnífsdælingar geta heldur ekki notað þannan fína veg, hann er bara fyrir Ísfirðinga og Bolvíkinga til að komast framhjá Hnífsdal. En sumir Hnífsdælingar halda ennþá að þetta sé gert fyrir þá, til að losa þá við gegnum akstur um þorpið. Málið er bara að þorpið er allt ofan við núverandi veg, nema 2 íbúðarhús, með fullorðnu fólki, sum sé í Stekkjagötunni. Hægt verður að komast inn á þennan veg á tveimur stöðum sitt hvoru meginn við Hnífsdal.
Og í norðangarra verður sjávarvegurinn sennilega í svo miklum sjávargangi að menn freistast til að aka gamla veginn. Og allt þetta til að spara þeim sem fara í gegnum þorpið 13 sekúndur í tíma. Er það virkilega þess virði.
Öll þessi náttúrlega fjara fer, og þarna verður bara stórgrýti lang fram í sjó.
Hér er verið að skoða berglög við væntanlegan gangnamunna.
Úbbsí ekki vildi ég vera þarna að moka.
Þetta er það fyrsta sem við blasir, þegar lagt er á Óshlíðina.
Þarna stóð í gamla daga akið viðstöðulaust næstu 6. kílómetrana.
Þetta er það næsta sem við blasir. Sorrý ég tók myndirnar út um gluggan á bílnum.
Alltaf lagast svo hryllingurinn.................. eða þannig.
Hér sést svo fyrsa þakið á leiðinni. en þau eru alls fjögur.
Oft má sjá að loftið hefur orðið fyrir loftsteinum og stundum eru stór göt þar.
ég held að þessi vegur sé einstæður í heiminum.
Svona er þetta endalaust alla leið.
Já hér má sjá hvað það er sem gerist ef þessi skýli værum ekki.
O jamm.
Svo blasir líka svona við.
Ég held að ég hafi aldrei farið svo þarna fram hjá að ekki væru fersk blóm við krossinn.
Og enn hækka vegriðin.
Hólpinn og hér blasir Bolunvarvík við í sólinni.
Og hér dansa álfarnir á fjallsbrúnum. Þeir dansa í takt við hrun grjótsins.
Á meðan saklaus aldan gælir við ána og ósinn.
En lífið heldur áfram og eftir 2 ár eða svo aka Bolvíkingar í gegnum göng til Ísafjarðar og við að sjálfsöðgu líka þangað. En það er verst með fjöruna. Ég vildi að menn gerðu eins og þeir ætluðu, að breikka gamla veginn, færa hann fjær byggðinni og laga hann til. Það væri sennilega öllum fyrir bestu svona til lengri tíma litið. Það er komið nóg af rútti.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (32)
18.9.2007 | 18:33
Umhverfisskoðun, köflótt veður og kirkjuskreytingar.
Veðrið í dag var köflótt, það er hlýtt, en það er sól og rigning til skiptis. Við Árni Steinar höfum eytt deginum í að skoða aftur alla byggðakjarnana. Árni Steinar er afskaplega skemmtilegur maður, og manni leiðist ekki í návist hans.
Við kíktum í kaffi til hennar Lilju Rafneyjar.
Hann vildi líka svona í framhjáhlaupi skoða altarisskreytinguna í Ísafjarðarkirkju. En hún er með því sniði að almenningi gafst tækifæri til að búa til leirfugla, svo voru þessir fuglar notaðir í listaverkið. Sannarlega skemmtileg hugmynd og góð útfærsla. Svona friðardúfur er hugsunin. Og það er hægt að fá blað þar sem allir fuglarnir eru merktir með nafni þess sem gerði fuglinn.
Gamla sjúkrahúsið var kosið eitt af merkustu mannvirkjum á Vestfjörðum, eins og sjá má á BB:;
Sjö merkustu mannvirki Vestfjarða voru valin í Bjarkarlundi um helgina. Alls bárust dómnefnd tæplega 70 tilnefningar, en auglýst var eftir tilnefningum frá almenningi í sumar. Mannvirkin sem þykja merkilegust eru: Síldarverksmiðjan í Djúpavík, jarðgöngin á Arnarnesi við Ísafjarðardjúp, gamla sjúkrahúsið (Safnahúsið) á Ísafirði, Skrúður við Núp í Dýrafirði, vegurinn út í Svalvoga (Kjaransbraut), mannvirki Samúels Jónssonar í Selárdal og þorpið í Flatey á Breiðafirði.
Tók þessa í dag. Aritekt að húsinu var Guðjón Samúelsson, en hann var ísfirðingur. Eins og Rögnvaldur Ólafsson.
En veðrið var eins og ég sagði köflótt í dag. Svona var það mestanpartin, og alveg á meðan við vorum í garðaskoðuninni við Árni Steinar.
En svo fóru skýin á stjá.
Regnbogar og alles.
Bæði hægri og vinstri.
Þetta er sól en ekki máni.
Ég er ótrúlega hrifin af þessum birtu, skuggamyndum.
En vonandi eigið þið góðan þriðjudag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
18.9.2007 | 07:58
Í upphafi skal endinn skoða, og jafnvel alla leiðina frá byrjun.

![]() |
Menn ætluðu greinilega ansi langt á bjartsýninni" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
17.9.2007 | 20:45
Eitthvað hlýtt og notalegt, þó það séu bara minningar.
Já það er búið að vera rosalega kalt í dag. Ég byrjaði daginn á fundi með bæjarstjóranum og yfirmanni tæknideildar, og tæknifræðing, þar var líka mættur Árni Steinar, umhverfisstjóri í Fjarðarbyggð. Þeir höfðu beðið hann um að taka út svæðin hér í Ísafjarðarbæ, með tilliti til útboðs og ýmsar ráðleggingar utanaðkomandi. Við fórum svo skoðunarferð um alla byggðarkjarnana. Veðrið var hundleiðinlegt, ískalt og rigning. Ég var köld i gegn þegar ég kom heim. Svo mér datt í hug að setja smá lit og hlýju inn á bloggið mitt.
Hér er sölutorg í litlu indíjánaþorpi í suður Mexíco. Í kirkjunni getur maður fengið heilun, með því að kveikja á kerti eða slátra hana.
Þessi er ansi liðtæk við að prjóna.
Búningarnir eru ansi skrautlegir og hver kynstofn hefur sinn eigin búning.
Fórum í heimsókn inn á þetta heimili. Hér eru stúlkubörn gefin eiginmanni þegar þær eru um 7 - 8ára gamlar. Þessi maður átti 7 konur, og svo tók hann að sér systur einnar líka. Hann spókar sig meðal karlanna í þorpinu en þær vinna.
Þær virðast ánægðar með hlutskifti sitt, þekkja ekkert annað.
Við vorum dubbaðar upp í búninga, en þær eru svo miklu minni en við, bæði á lang- og þververg.
Karlarnir eru jafnvel ennþá skrautlegri í klæðaburði.
Hér er eldhúsið, og það er verið að baka tortillur, auðvitað var okkur boðið upp á slíkar.
Svona eru mótin hjá þeim.
Þessi ágæti leigubílstjóri er alveg stálheiðarlegur. Við höfðum tekið leigubíl, og föttuðum svo nokkru seinna að við höfðum gleymt myndavélinni í bílnum. Þar sem við gengum aðalgötuna kallaði hann til okkar að við hefðum gleymt myndavélinni í bílnum hans. Við vorum ekki einu sinni farin að sakna hennar. Bíðið augnablik sagði þessi öðlingur, ég fór með hana niður á stöð, ég sæki hana eftir augnablik. Og það stóð. þess vegna eru þessar myndir til.
Hér erum við komin að landamærastöð Guatemala. Ætlum yfir sundið.
Þessi ungi maður var í rútunni sem við ferðuðumst með, hann var 7 ára, og fór margra kílómetra ferðalag í næsta þorp til að sækja nagla, hann var að hjálpa pabba sínum að smíða. En hann fór samt nokkra klukkutíma á dag í skólann.
Á inkaslóðum í Guatemala.
Hér er í komin til Belize, á eyju sem heitir Caye Caulker. MM heitt og notalegt, hreinn sjór. Hér meira að segja eru kórallarnir alfriðaðir, þeir stúta þeim ekki eins og við gerum.
Svo snorkar maður, hér voru hákarlar og skötur, þau voru gæludýr, það fór samt svolítið um mig þegar ég renndi mér niður til þeirra.
Hér er sko ekkert verið að pakka appelsínunum inn í neytendapakkningar.
Jamm hér ríður maður á hesti. Við fórum upp í 3400 metra hæð yfir sjávamáli til að skoða fiðrildi sem eru alfriðuð í heiminum. Hér í Mexícó þar sem við erum er einn af örfáum griðarstöðum þeirra. Þau koma fljógandi alla leið frá Candada og lifa í 8 mánuði, sem er met hjá fiðrildum.
Þau eru þarna í milljónavís, en hefur fækkað gríðarlega vegna mengunar.
Hér er svo ströndin í Mazatlán, í Mexico, hér var fiskimaður sem fór út á hverjum morgni og kom með ferskar ostrur upp á ströndina, þar var hægt að kaupa þær spriklandi fyrir 1 pesó.
Æ það er ágætt að rifja upp suðlægari slóðir þegar kári kuldaboli ræðst á mann óforvarendis.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar