Umhverfisskoðun, köflótt veður og kirkjuskreytingar.

Veðrið í dag var köflótt, það er hlýtt, en það er sól og rigning til skiptis.  Við Árni Steinar höfum eytt deginum í að skoða aftur alla byggðakjarnana.  Árni Steinar er afskaplega skemmtilegur maður, og manni leiðist ekki í návist hans.

IMG_9032

Við kíktum í kaffi til hennar Lilju Rafneyjar. 

IMG_9036

Hann vildi líka svona í framhjáhlaupi skoða altarisskreytinguna í Ísafjarðarkirkju.  En hún er með því sniði að almenningi gafst tækifæri til að búa til leirfugla, svo voru þessir fuglar notaðir í listaverkið.  Sannarlega skemmtileg hugmynd og góð útfærsla.  Svona friðardúfur er hugsunin.  Og það er hægt að fá blað þar sem allir fuglarnir eru merktir með nafni þess sem gerði fuglinn.

IMG_9037

IMG_9039

Gamla sjúkrahúsið var kosið eitt af merkustu mannvirkjum á Vestfjörðum, eins og sjá má á BB:;

Sjö merkustu mannvirki Vestfjarða voru valin í Bjarkarlundi um helgina. Alls bárust dómnefnd tæplega 70 tilnefningar, en auglýst var eftir tilnefningum frá almenningi í sumar. Mannvirkin sem þykja merkilegust eru: Síldarverksmiðjan í Djúpavík, jarðgöngin á Arnarnesi við Ísafjarðardjúp, gamla sjúkrahúsið (Safnahúsið) á Ísafirði, Skrúður við Núp í Dýrafirði, vegurinn út í Svalvoga (Kjaransbraut), mannvirki Samúels Jónssonar í Selárdal og þorpið í Flatey á Breiðafirði.
Tók þessa í dag.  Aritekt að húsinu var Guðjón Samúelsson, en hann var ísfirðingur.  Eins og Rögnvaldur Ólafsson.

IMG_9038

En veðrið var eins og ég sagði köflótt í dag.  Svona var það mestanpartin, og alveg á meðan við vorum í garðaskoðuninni við Árni Steinar.

IMG_9041

En svo fóru skýin á stjá.

IMG_9042

Regnbogar og alles.

IMG_9051

Bæði hægri og vinstri.

IMG_9046

Þetta er sól en ekki máni.

IMG_9045

Ég er ótrúlega hrifin af þessum birtu, skuggamyndum.

En vonandi eigið þið góðan þriðjudag. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: kidda

Flott altaristafla, og flottar myndir. Ertu með myndavélina alltaf með þér, ef svo er, haltu því áfram

kidda, 18.9.2007 kl. 19:27

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Stubburinn sagði við mig í dag. Amma þú ættir að skoða að láta græða í þig myndavél, þá gætirðu bara klikkað strax á það sem þú sérð.   Og þegar ég hleypi inn til að sækja myndavélina, þá segja barnabörnin aha amma gallerí himin

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.9.2007 kl. 19:29

3 Smámynd: Guðný GG

Fallegar myndir , ég kom til Ísafjarðar þegar ég var held ég 10 eða 11 ára gömul .Þá var ég í Kársneskórnum hennar Tótu (sem sonur minn er í í dag) .Ég á bara góðar minningar frá þessari ferð  yndislegur staður

Guðný GG, 18.9.2007 kl. 19:33

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

ÆÐISLEG altaristafla, hef aldrei séð svona hugmynd. Yndisleg útfærsla.  Svo eru hinar allar líka geggjaðar eins og alltaf. Takk.

Ásdís Sigurðardóttir, 18.9.2007 kl. 19:41

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Fallegar myndir að venju og sniðug þessi altaristafla, frábær hugmynd.

Huld S. Ringsted, 18.9.2007 kl. 19:55

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já hún er frábær þessi altaristafla.  Og gaman að vita að hinn almenni íbúi hefur tekið sig til og gert fugl.  Líka þýsku vinirnir mínir, þau eiga þarna hver sinn fuglinn.  Gaman að heyra að þú hefur komið hingað Guðný mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.9.2007 kl. 20:08

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gamla sjúkrahúsið er svo mikið Guðjón.  Altaristaflan er frámunalega flott.  Man eftir því um páskana þegar fólk var að dunda sér við fuglagerð.  Frábær svona lifandi listaverk.

Smjúts

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.9.2007 kl. 20:21

8 Smámynd: kidda

Held þú ættir að taka til athugunar ráðið frá Stubbnum

kidda, 18.9.2007 kl. 20:58

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ólafía hehehehe...

Knús til baka til þín Jenný mín.  Já presturinn spurði mig ætlar þú ekki að búa til fugl Ásthildur mín.  Nei sagði ég, þó mér finnist þú alveg frábær, þá hef ég sagt mig úr kirkjunni og er komin í annan söfnuð.  Nú sagði Séra Magnús, ég hélt að þú værir utan trúfélaga.  Nei sagði ég ég hef gengið í Ásatrúarfélagið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.9.2007 kl. 21:06

10 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Flott hús sjúkrahúsið. Guðjón var snillingur - mörg skemmtileg hús sem hann teiknaði. Gaman líka að spá í það að á þessum tíma þegar hvorki voru efni né aðstæður byggði fólk svona falleg hús. Í dag eru bara byggðir kassar......

Mér hefði nú fundist allt í lagi þó þú hefðir gert eins og einn fugl þó þú sért í Ásatrúarfélaginu

Smjúts

Hrönn Sigurðardóttir, 18.9.2007 kl. 21:42

11 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

  • Guðjón teiknaði líka landsbankann, Húsmæðraskólann Ósk og Sundhöllina minnir mig. Gott ef ekki eitthvað fleira. Skildi eftir sig spor í heimabænum sínum. Mér fannst sjúkrahúsið alltaf gífurleg höll...sérstaklega, þegar ég var þar langdvölum sem barn.  Nú er þetta bara svona miðlungs danskur herragarður í augum manns. Var svo á stofunni þarna efst til hægri, þegar botnlanginn var tekinn úr mér á 12. ári, horfði mikið á bátana koma og fara út um þann glugga.

Jón Steinar Ragnarsson, 18.9.2007 kl. 22:28

12 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Gleymdi náttlega Alþýðuhúsinu. Mjög týpisk bygging eftir Guðjón, eins og lítið þjóðleikhús.

Jón Steinar Ragnarsson, 18.9.2007 kl. 22:31

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já hann var flottur, enda varð hann húsasmíðameistari ríkisins er það ekki ? Flott nafn.  Það er líka gaman að hafa svona margar bygginar eftir hann hér.  Ætli það sé ekki eitt einsdæmið enn ?

Jamm Hrönn mín, sennilega hefi ég átt að síða svo sem eins og einn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.9.2007 kl. 22:44

14 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mikið er gaman að skoða þessar frábæru myndir ljúfust.

Kristín Katla Árnadóttir, 19.9.2007 kl. 10:03

15 Smámynd: Laufey B Waage

Já Guðjón stóð fyllilega undir nafni sem húsameistari ríkisins. 

Mikið held ég að nýja altaristaflan ykkar sé stórkostleg. Ég ætla pottþétt að skoða hana næst þegar ég kem í faðm fjalla blárra. 

Laufey B Waage, 19.9.2007 kl. 11:43

16 Smámynd: Ragnheiður

Hjalti minn er einmitt fæddur þarna á sjúkrahúsinu...þykir vænt um þetta gamla fallega hús

Ragnheiður , 19.9.2007 kl. 12:17

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Kristín Katla mín

Sammála Laufey, og það er gaman að skoða þessa altaristöflu.  Hún er sennilega upphafið að nýjum straumum í slíkum.

Gaman að heyra Ragnheiður mín.  Ég er fædd þarna líka, og átti öll min börn í þessu fallega húsi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.9.2007 kl. 14:04

18 Smámynd: Solla Guðjóns

Þarna í þessu merka húsi fæddist ég fyrir fáeinum árum og nokkrum til

Hafðu það gott Gallerí amma himinn

Solla Guðjóns, 20.9.2007 kl. 00:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 93
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband