Fjölskylduhátíð, veraldarvinir og fleira gott.

Vinnudagur í dag, og lítill tímí fyrir sjálfa mig. Ég tók sum sé að mér að stjórna Veraldarvinum að gróðursetja tré í minningarreit á Flateyri.  Það var virkilega gaman að fylgjast með ungmennum frá fjarlægum heimshlutum, og verð með þeim aftur á morgun.

En fyrst um gærdaginn.

IMG_6293

Var að týna kirsuber, sem eru þroskuð.

IMG_6295

Jamm girnileg og nóg til sko.

IMG_6299

Þetta er svona svolítið fyrir og eftir, þessi sonur minn átti afmæli í gær.  Ég ákvað að bjóða þeim öllum í mat, og vinnu í garðinum, svona heimilislega samveru stund, sem var alveg frábær í alla staði.

IMG_6301

Tengdadæturnar á kafi í vinnu hjá tengdó.  hehehehe

IMG_6304

Jamm þær voru sko duglegar þessar elskur.

IMG_6307

Enn stækkar fjöruhrúgan hjá syninum, og sá stutti hjálpar til.

IMG_6309

Afi var náttúrulega í því að passa eins og gengur.

IMG_6318

Jamm hér pósar ein tengdadóttirin, flott ekki satt.

IMG_6324

Jamm hehehe og svo þessi !!!

IMG_6333

Afi var náttúrulega í grillinu, með dyggri aðstoð ungra sveina.

IMG_6336

Jamm, þeir voru áhugasamir blessaðir.

IMG_6340

Og enn stækkar fjaran.

IMG_6349

Já allir hjálpuðust að, eins og vera ber hjá fjölskyldum.

IMG_6354

Allir áttu að mynda eina rós í fjörusteinana, þetta er frábært hjá afmælisbarninu.

IMG_6356

Allir að búa til steinarósir. Heart

IMG_6360

Það var ákveðið að borða úti, því veðrið var svo gott.

IMG_6374

seinna færðum við okkur þó inn í garðskálann, og þá var tjörnin auðvita spennandi fyrir ungviðið.

IMG_6376

Úbbs !!!

IMG_6377

Hehehehe svamlað í tjörninni, bara að fiskarnir verði ekki hræddir.

IMG_6380

Já eins gott að nota allar varúðarreglur. 

IMG_6392

Geislandi bros, eða hlátur.  Hvað er yndislegra ?

IMG_6408

Jamm fyrir ísfirðingana mína, þessa brottfluttu, það er Ísafjarðarlognið sko !

IMG_6409

Nefnilega sko.

IMG_6410

Gallerí himin alltaf opin.

IMG_6411

Nefnilega.

IMG_6413

Og svo veraldarvinir að gróðursetja.  Þau koma og vinna einhver verk, fá húsnæði og mat, þúsundkall á dag, og gera eitthvað skemmtilegt og uppbyggjandi, þau eru frá öllum heimshornum, Eistlandi til dæmis og Japan.

IMG_6415

Þessi unga dama er frá Japan skemmtilegt höfuðfat, þau eru náttúrulega vön miklu meiri hita en hér tíðkast, þó  okkur finnist hlýtt og notalegt.

IMG_6416

Tilburðirnir eru líka skemmtilegir, það má segja að þau bregði sér í skófludans hehehehe.

IMG_6417

Ein himnamynd að lokum.

Þetta hefur verið erfiður dagur, en svo ljómandi skemmtilegur.  Og ég hitti þetta ágæta fólk aftur á morgun.  Það er alltaf gaman að kynnast nýju fólki, frá framandi heimi, og finna, að þrátt fyrir allt erum við bara öll eins inn við beinið.  Við ættum bara að læra það, og virða að fólk er bara fólk, hvaðan af heiminum sem það kemur.  Hvaða trú það aðhyllist, og hvaða lífs skoðun það hefur, þá eigum við samt sem áður það sameiginlegt að vera manneskjur.  Vonandi lærum við einhverntíman að virða hvort annað.  Virða skoðanir annara og trú þeirra.  Virða þau hver sem þau eru, og hvaðan þau koma.   Þetta er einn heimur og við erum öll eins. 


Sól, gallerí himin og annað fallegt í dag.

Enn einn yndislegur sólardagurinn í dag.

IMG_6292

Þessi er tekinn fyrir svo sem hálftíma.

IMG_6265

En það er kryddkynningin.  Hér situr Níels kokkur og bíður eftir forvitnu fólki.  En klukkan er ekki alveg orðin tvö.  Það er allt klárt, hann marineraði kjúklingabringur og niðurskorið lambalæri.  Hann notaði basiliku á kjúklinginn, og thymian, blóðberg á lærið. Þetta var alveg rosalega gott.

IMG_6267

Hér er hann að gefa einum að smakka.  Hann er líka með litla miða, þar sem hann hefur sett hverja plöntu fyrir sig, og segir til um ræktunina og hvernig er best að nota hana.  Hann er alveg frábær hann Níels.

IMG_6269

Hér fer hann yfir miðana með einni frúnni.  Hún er mjög áhugasöm eins og sjá má.

IMG_6270

Galleríið opið, þetta eru hvítir hvalir sem synda um himininn. 

IMG_6272

Hér er auga alheimsins, þarna er það og fylgist með öllum okkar gjörðum.

IMG_6291

Magnþrungin kvöldbirta í gærkvöldi.

IMG_6274

Hér er verið að gefa thuju frelsi.  Hún er búin að vera föst í hjólkopp í nokkur ár, og var orðin ansi aðþrengd.  Nu fær hún sína eigin holu, með fullt af skít og nóg pláss, sú held ég að verði ánægð.

IMG_6277

Hér er sýpris sem hefur plummað sig vel þarna úti. 

IMG_6278

Litla fröken Evíta Cesil hjá móður afa sínum, honum séra Valdimar, hann var að koma frá því að gefa saman brúðhjón, en hér voru ekki færri en 5 giftingar í gær á þessum 070707degi.

IMG_6280

Falleg mynd af fallegu fólki. Knús og koss.

IMG_6283

Meydómsvígsla lady Cesil að pissa á blómin hennar ömmu.  Allir krakkarnir pissa á blómin hennar ömmu. Heart  Á ág að pissa hérna pabbi ?

IMG_6287

Hér er svo kerlingin sjálf með á mynd svona einu sinni. Náttúrulega algjörlega ótilhöfð.

IMG_6289

Pabbi segir brandara hehehehe......

Jæja ég er farin út í góða veðrið, í dag ætla krakkarnir mínir að koma og vinna með mér í garðinum.  Ég vona að þau komi og nenni.  Pabbinn segir að þau muni ekki nenna, við sjáum til.  Það verður allavega grillað í kvöld sérkryddað læri eftir Níels Kokk og nótabassann.  Svo það verður fjölmennt hér í kúlunni.  Krakkar og pabbar og mömmur, afar og ömmur.  Eigiði góðan dag. Heart


Myndir frá í gær. Kryddkynning og grill.

Já sólin er farin að skína aftur, það rignir á nóttunni og sól á daginn.  Aldeilis frábær ráðstöfun hjá almættinu.

IMG_6257

Gallerí himin var opinn í gær og í fyrradag.

IMG_6258

IMG_6261

 

 IMG_6263

IMG_6260

En það var líka grillað.  Hamborgarar á borðum hér.

 

En nú kl. eitt til þrjú ætla ég að standa fyrir kryddkynningu, það er Níels Kokkur sem er aldeilis frábær kryddari. Hann er búin að marinera kjöt síðan í gær, og ætlar að grilla upp í garðplöntustöinni.  Kenna ísfirskum húsmæðrum og feðrum að nota eigið krydd,  lifandi og ferskt.  Þannig er það líka hollast og best. 

Sjáumst.  Heart


Litla Hraun, gróðrarstía glæpanna.

Það er ekki nóg að menn séu sviptir frelsi sínu, heldur geta þeir orðið fyrir stórskaða meðan á innilokun stendur.

Nú veit ég ekki hvað þessi maður braut af sér.  En hvernig stendur á því að enginn  vaktmaður var við þegar samfangar réðust á manninn. 

Ég veit að menn eru dauðhræddir við að fara inn, ef þeir eru í einhverjum fíkniefnaskuldum.  Því glæpamennirnir sem stjórna þessu,  ráða lögum og lofum innan fangelsisins, virðist vera.  Þetta er að verða eins og í BNA, þar sem sumir afbrotamenn eru réttdræpir innan fangelsismúranna, eins og barnaníðingar til dæmis.  Það er beinlínis talið vera hreinsun að koma þeim fyrir kattarnef, hef ég heyrt.  En menn sem ekki hafa borgað sínar skuldir, eða ekki staðið við sitt í fíkniefnaheiminum hér á landi, eru logandi hræddir við að fara inn á Litla  Hraun, hræddir við hefnd eiturbarónanna.  Í hvurslags andskotans landi búum við eiginlega, þegar það er ekki hægt að passa upp á menn, sem eru lokaðir inni.  Hvernig á þá að vera hægt að passa upp á fólk úti á götu.

Það hefur komið fyrir að menn hafa verið drepnir fyrir utan fangelsið, meðan þeir biðu eftir bíl til að flytja þá til Reykjavíkur.  Menn eru bara látnir út fyrir dyrnar kl. átta um morguninn, hvernig sem viðrar og þurfa það að bíða eftir því að vera sóttir.  Og a.m.k. í einu tilfelli var maður keyrður niður meðan hann beið.  Sumir sögðu þá að það hefði verið aftaka.

Af hverju á þrjúhundruð þúsundmanna þjóðfélag að þurfa að burðast með syndir milljóna samfélags.  Það þarf enginn að segja mér að það sé ekki auðveldara að finna skúrkana í svona fámenni...... ef viljinn er fyrir hendi.  Hvar er sá vilji, og af hverju er þetta svona voðalega erfitt ?


mbl.is Fótbrutu samfanga á Litla-Hrauni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vökvun alla leið frá himninum.

Já það byrjaði að rigna um kl. hálf sjö í kvöld, loksins.  Mér var mikið létt.  En það leit út fyrir í dag, að sólin yrði áfram.  Hun kemur aftur blessunin, en það þarf bara að vökva.

IMG_6253

Svona var í  morgun.

IMG_6254

jamm svo birti til.

IMG_6255

Birtan er frábær hérna.

IMG_6250

En þar sem ég var að færa vatnið til, sá ég þessi yndælu börn og leiðbeinendur þeirra í leik á Austurvelli.

IMG_6251

Hvað er klukkan spurði annar hópurinn, og hinn svaraði einhverju, sjö.... og þá tók hinn hópurinn sjö skref í átt að þeim hópi.

Síðan var hlaupið og klukkað og það var rosalegt fjör hjá þessum litlu skottum.

IMG_6252

Stubburinn er í vinnu hjá mér núna, hann kemur í vinnuna kl. 10 til 12, og þarf að gera ýmislegt vökva blómin og hitt og þetta smávegis.  Hann er ákveðin í að "vinna" þangað til Bára frænka kemur í heimsókn með Hönnu Sól og Hildi Cesil, þá ætlar hann að taka sér frí.  Hann mætir alltaf tímanlega.  Ég held að það sé þroskandi fyrir hann. 

Annars er allt gott af mér að frétta, bara svo ósköp þreytt eftir alla vökvunina.  Það lagast stórlega eftir þessa hellidembu. 


Hann ætlar sennilega að rigna loksins.

Loksins komu nokkrir dropar.  En það vantar ærlega rigningu.

IMG_6229

Það sást á himninum í morgun.

IMG_6243

Þessi er svona geislamynd. 

IMG_6244

Æ geitungur !!!

IMG_6245

Látt'ann bara koma.

IMG_6246

Litli gröfukarlinn.

IMG_6248

Og afi fylgist með.

IMG_6249

Brumm brumm brumm.

Sé ykkur seinna elskurnar.


Til hamingju stubburinn minn.

Æ amma er bara svo þreytt í dag, að hún treysti sér ekki í afmælið þitt.  En ég sendi þér bara innilegar hamingjuóskir með afmælið elsku ömmu stubbur.

IMG_6158

Spidermann númer eitt. Heart

IMG_6168

Vinnumaðurinn hans afa.

IMG_6171

Rabbabaraprins.

IMG_6175

Strákastrákur.

IMG_6182

Litli bróðir.

IMG_6187

Afa hjálparkokkur.

óðinn freyr

Ömmusnáði.

 

IMG_6195

Svo nokkrar skýjamyndir. Þessi tekin í gær.

IMG_6226

Þessar í morgun.

IMG_6227

IMG_6228

En bara að lokum........

Til hamingju með afmælið Óðinn Freyr.


Að kolefnisjafna af hugsjón.

Þessi dagur er eins og aðrir góðir sumardagar.  Dagurinn byrjaði með því að góður vinur okkar droppaði við í morgunkaffi eða þannig, reyndar drekkur hann bara te.

IMG_6201

Það var nú ekki amarlegt, og við fengum ferðasögu beint í æð, frá Kína og Tíbet, svo ljóslifandi að það var eins og við hefðum fengið að fara með í ferðina.  Hann var hér að skoða Act alone hátíðina, en annars kemur hann alltaf við í morgunmat, þegar hann kemur með konsert og er alltaf gleðigjafi.

IMG_6203

Nýtt sjónarhorn hjá mér.

Reyndar höfum við hjónin verið að planta trjám undanfarin ár, og í dag eftir að Hörður fór, fórum við í göngutúr um trjáræktina okkar.

IMG_6205

Þar kennir margra grasa.

IMG_6206

Ilmurinn er yndæll og bragðið eftir því.

IMG_6207

Þetta er svona yfirlits mynd yfir hluta af skóginum okkar.

IMG_6208

Sum trén orðin ansi há.

IMG_6209

Eins og sjá má.

IMG_6210

Sum bara nokkuð flott.

IMG_6211

Hér fara að myndast ber, sem týna má seinna í sumar.

IMG_6214

Hér er myndarleg ösp.

IMG_6215

Furur hafa komið vel út í vor.

IMG_6217

En púkarnir okkar voru ýmislegt að bralla á meðan, meðal annars fundu upp nýjan leik sem er að renna sér á svefnpoka niður kúluna, rosalega skemmtilegur leikur.

IMG_6220

Vííí en gaman.

IMG_6223

Strákarnir mínir sáu um matinn í kvöld, og það var svo sannarlega flottur matur.

meðal annars var grillaður camenbert ostur, sem er algjört sælgæti snæddur með bláberjasultu.

IMG_6225

Nammi namm. 

Svo  bara að slaka á og njóta þess sem eftir er af helginni.  Stubburinn er niður við höfn að veiða, með frænda sínum og afa hans.  Þeir eru örugglega rosalega ánægðir.

Og svo erum við líka hjónin.  Knús til ykkar allra.


Við uppskerum eins og við sáum.

Jamm ég er með smámóral yfir hve lítinn tíma ég hef til að rækta sambandið við bloggvinina mína, en það er bara svo mikið að gera hjá mér, og ég hef ekki næga orku til að sinna því sem sinna þarf.  Vona að mér fyrirgefist það.  En hér eru nokkrar myndir frá því í dag svona sem sárabót.

IMG_6128

Gallerí himin, flottur að venju.

IMG_6130

Það er svo ótrúlega fallegt samspil milli skýja og himins, hið fullkomna samspil.

IMG_6131

Smile

IMG_6136

Stubbur og hundurinn hans, hann fékk snyrtingu hjá Siggu dýralækni, og er mjög flottur. Það er að segja hundurinn Zorrow.

IMG_6140

Afi og stubbur að slá lóðina.

IMG_6141

Hey og svo kom ísbíllinn, þá þurfti að fara og kaupa ís, auðvitað.  Dingalinga ling.

IMG_6143

Jamm og allir fengu ís, nema Zorrów, en hann fékk samt að sleikja upp það sem niður fór.

IMG_6149

svo þurfti náttúrulega að leika sér í heyinu. 

IMG_6157

Og leika sér í tjörninni.

IMG_6160

Viðl hljónin skruppum til Önundarfjarðar á fund, um málefni Flateyrar og minningargarðins þar.

IMG_6163

Fórum í kaffi til þessarar kempu, og þó mér líki ekki pólitíkin, þá erum við systkin í gróðri.  Og hér er karlinn stoltur við hlyn sem ég seldi honum fyrir nokkrum árum, sem plummar sig aldeilis fínt á Sólbakka.

IMG_6165

Já hann hefur aldeilis gróðursett, og hefur græna putta þessi ágæti maður.

IMG_6166

Himininn var líka fallegur yfir Flateyri.

IMG_6167

Eins og sjá má.  og Sara mín, ég sá meira að segja lundinn ykkar, hann er bara flottur að sjá svona úr fjarlægð.

IMG_6170

Þetta er vinnumaður að vinna sko !

IMG_6171

Og svo fundu þeir rabbabara, og komu með heim

IMG_6172

Og stubburinn var kosin rabbabarakóngurinn.

IMG_6173

Og enn er gallerí himin opinn.

IMG_6174

Og strákar leika sér, þannig er bara lífið.  Ærsl og læti eru þeirra ær og kýr, þannig er að vera strákur í dag.

IMG_6177

Hmm strákar, þessi er ögn stærri, en það er ekki óalgengt að sjá menn á sjóskíðum á pollinum, og lengi vel var stökkpallur þar sem menn gátu þreytt sig við að stökkva, veit ekki hvað varð af þeim palli.  Mætti alveg endurnýja hann.

IMG_6180

En Stubbarnir hennar ömmu vildu tjalda og fara í útilegu, og hvað er betra og öruggara en að tjalda upp á lóð.

IMG_6195

Jamm og ein svona himna mynd í viðbót, meðan drengirnir og afi tjalda.

IMG_6193

Þetta er alveg að koma, og allir hjálpast að. IMG_6195

Og enn ein falleg himnamynd.

IMG_6196

Já og þá er ekkert eftir annað en að flytja inn, með sængur dýnur og svefnpoka,  vitandi að afi og amma í kúlu vaka yfir þeim og vernda.

IMG_6197

Jamm það átti nefnilega að setja svona flottar dýnur inn í tjaldið, en þær voru of stórar.  Svo það varð að skila þeim til baka. 

Málið er að það er ævintýri að vera hjá ömmu og afa í kúlu.  Og þar getur allt gerst. 

En nú er þessi dýrðar dagur til enda runninn, og bara eftir að fara í holuna sína og sofna, eins og litlu ungarnir í tjaldinu og afi sem nú þegar kúrir og steinsefur í sinni holu.

Hvað lífið er ljúft og gott, ef maður vill hafa það þannig, og skapar sér það andrúmsloft að það bara verði þannig.  Eins og vinkona mín Katrín Snæhólm er svo oft að segja.  Og Steina og fleiri.  Við ráðum ótrúlega mikið yfir okkar eigin sálar heill og hamingju.  Bara með þvi að bregðast rétt við lífinu, eins og það er.  Gefa kærleika, og fá hann tífalt til baka, það er enginn galdur, eða kaupmennska, bara einföld sálarfræði, það sem við sendum frá okkur fáum við tífalt til baka.  Bara spurningin um hvað við viljum senda frá okkur og fá til baka.  Svari því hver fyrir sig, en við uppskerum eins og við sáum.  Það er staðreynd sem ekki verður hrakinn á neinn hátt.

Og ég segi bara góða nótt. Heart


« Fyrri síða

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júlí 2007
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband