Vökvun alla leið frá himninum.

Já það byrjaði að rigna um kl. hálf sjö í kvöld, loksins.  Mér var mikið létt.  En það leit út fyrir í dag, að sólin yrði áfram.  Hun kemur aftur blessunin, en það þarf bara að vökva.

IMG_6253

Svona var í  morgun.

IMG_6254

jamm svo birti til.

IMG_6255

Birtan er frábær hérna.

IMG_6250

En þar sem ég var að færa vatnið til, sá ég þessi yndælu börn og leiðbeinendur þeirra í leik á Austurvelli.

IMG_6251

Hvað er klukkan spurði annar hópurinn, og hinn svaraði einhverju, sjö.... og þá tók hinn hópurinn sjö skref í átt að þeim hópi.

Síðan var hlaupið og klukkað og það var rosalegt fjör hjá þessum litlu skottum.

IMG_6252

Stubburinn er í vinnu hjá mér núna, hann kemur í vinnuna kl. 10 til 12, og þarf að gera ýmislegt vökva blómin og hitt og þetta smávegis.  Hann er ákveðin í að "vinna" þangað til Bára frænka kemur í heimsókn með Hönnu Sól og Hildi Cesil, þá ætlar hann að taka sér frí.  Hann mætir alltaf tímanlega.  Ég held að það sé þroskandi fyrir hann. 

Annars er allt gott af mér að frétta, bara svo ósköp þreytt eftir alla vökvunina.  Það lagast stórlega eftir þessa hellidembu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Farðu nú vel með þig, kelli mín. Ekki vil ég missa þig.

Hrönn Sigurðardóttir, 5.7.2007 kl. 21:05

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já ég seigi það sama.

Kristín Katla Árnadóttir, 5.7.2007 kl. 21:27

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vona að það rigni ærlega fyrir þig. Knús og kveðja.

Ásdís Sigurðardóttir, 5.7.2007 kl. 21:50

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Missa hana hvað?? Eruð þið að trúa því að konan gufi upp?  Svo dramatískar þessar bloggvinkonur okkar Ásthildur mín.  Bíð sjálf eftir rigningu, er orðin svo andlega þurr.

Smjúts.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.7.2007 kl. 22:57

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehehe hér er hellirigning og það er SVO NOTALEGT að heyra dropana á gluggunum, þeir eru á þakinu sko, því hér er logn  Æ ég vil heldur ekki missa ykkur, þið eruð hrein dásemd og upplifun, það er voða notalegt að eiga í svona fjarvinasambandi.   Og ég er viss um að svoleiðis samband getur orðið nánara en annað, vegna þess að við gefum meira frá okkur svona skriflega.  Það er bara þannig.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.7.2007 kl. 23:10

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Jamm...hvíslið í rigningunni, þytur í vindi.  Er ekki merkilegt hvað illviðrin svokölluðu geta fyllt mann þakklæti.  Þakklæti fyrir að eiga skjól og hlýju, þakklæti fyrir að eiga litla vinnumenn, sem koma að hjálpa ömmu og létta lundina eins og stubburinn þinn.  Úr þakklætinu spretta svo frekari ávextir eins og regnið eykur sprettuna. 

Jón Steinar Ragnarsson, 6.7.2007 kl. 10:14

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Alveg rétt hjá þér Jón Steinar minn.  Rigningin stóð reyndar bara fram á morguninn, það var hætt að rigna í morgun, og nú er sólin að brjótast fram aftur.  En það er allt svo ferskt og nýtt, og gróðurinn hefur fengið að drekka.  Það er gott. 

Já Arna mín einmitt, maður er glaður gróðursins vegna.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.7.2007 kl. 12:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 2020845

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband