18.7.2007 | 12:17
Leiðandi og meiðandi fyrirsögn.
Ég hef nú ekki mikið vit á hvernig eftirliti á flugvélum er háttað. En ég er nokkuð viss um að að vélar eru ekki skoðaðar þó þær millilendi einhversstaðar. Þess vegna er þessi frétt sett upp á þann máta að fólk er látið halda að það sé vegna slælegrar aðstöðu á Ísafirði að slys varð.
Þetta hefði örugglega gerst sama hvar vélin hefði millilent. Enda fylgir fréttinni síðar að vélin hefði þá þegar millilent á Grænlandi. En dæmigerður fréttaflutningur til að skapa úlfúð og æsing.
Héðan var um tíma flug til Grænlands sem gekk áfallalaust, ekki veit ég allavega betur. Það var svo vegna 9/11 voru gerðar meiri varúðarreglur m.a. hér. Og þar með missti Ísafjörður af þessu flugi. Alveg eins og það þurfti að víggirða höfnina. Þetta er náttúruleg bölvað bull og vitleysa að hlaupa svona eftir einhverju utan úr heimi, eins og terroristar tækju upp á að koma hér og sprengja allt í tætlur.
Ég segi nú bara, fólk ætti að taka fyrirsagnir með fyrirvara, því þær geta verið leiðandi og meiðandi. Þetta slys hefur að mínu áliti ekkert með millilendingu vélanna á Ísafirði að gera.
![]() |
Þyrla sem nauðlenti fékk sérstakt leyfi til brottfarar frá Ísafirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
17.7.2007 | 22:33
Hvað ætlarðu að fara þangað ?!! þangað fer enginn.
Þessi setning hljómar því miður oftar en menn gera sér grein fyrir, þegar ferðamenn sem koma á eigin vegum ætla að ferðast um landið okkar og vilja komast til Vestfjarða.
Þetta er ekki paranoja, heldur bláber staðreynd, sem ég hef heyrt af fleiri en einum ferðalangi sem ætlar sér að koma vestur en fær þessi viðbrögð, þegar leitað er til ferðaskrifstofa eða rútufyrirtækja.
Vinafólk mitt frá Þýskalandi sem hefur komið hér árvisst í yfir 15 ár, fengu þessi viðbrögð í fyrstu, þegar þau hugðust koma sér vestur í byrjun. Þau sögðu mér frá þessu alveg hneyksluð að fá svona svör, af hverju ætlarðu þangað, það er ekkert að sjá þar.
En núna nýlega þá heyrði ég svipaða sögu og þá af rútubílaferðum, að þegar fólk vill komast á Vestfirði, þá fá þau þessi svör; Af hverju ætlarðu þangað, þangað fer enginn.
Ég veit ekki hvað liggur að baki svona ósvífni, og óheiðarleika. En ég held að ferðalangar séu ekki að ljúga þessu. Þeir hafa engan hvata til að segja ósatt.
En málið er að hér er einmitt margt að skoða, og margir vilja koma, og þrátt fyrir fyrirstöðu óheiðarlegra ferðaskrifstofa, þá koma samt sem áður túristar hingað vestur. En ef til vill færri en ef það væri tekið vel á móti þeim, og menn gæfu upp það sem er í boði og greiddu götu þeirra sem vilja komast hingað.
Ég vil vekja athygli á vefsíðu sem hefur verið opnuð um ferðamál á Vestfjörðum og svo pistil frá Ómari Ragnarssyni, og Inga Þór Stefánssyni.
http://search.live.com/results.aspx?q=www.westfjords.is&FORM=USNO Hér má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar, og fallegar myndir, sem vert er að kynna vinum og vandamönnum erlendum sem íslenskum, sem vilja koma og njóta Vestfjarða.
http://www.bb.is/Pages/26?NewsID=103233 Hér má sjá hvað Ómar Ragnarsson segir um þennan landshluta.
http://www.bb.is/Pages/26?NewsID=103213 Og svo þessi ágæti piltur, sem ég þekki mjög vel, sem hefur ákveðið að taka á málunum.
Vestfirðir lengi lifi. Það er bara þannig, að við virðumst þurfa að berjast til síðasta blóðdropa til að halda lífi. Svo legg ég til að við stofnum sjálfstætt ríki á Vestfjörðum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
16.7.2007 | 19:26
Kastljósið í kvöld.

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
16.7.2007 | 16:37
Hvað verður næst til að drepa niður Vestfirðina ?
bb.is | 16.07.2007 | 15:25Fengu sérstaka undanþágu af flugöryggislegum ástæðum
Loftförin sex sem lentu á Ísafjarðarflugvelli í morgun á leið sinni frá Evrópu til Norður-Ameríku fóru í loftið áleiðis til Grænlands upp úr klukkan tvö. Eins og sagt var frá voru vélarnar fastar á Ísafirði vegna reglugerðarbreytingar sem fól í sér að Ísafjarðarflugvöllur er ekki skilgreindur sem alþjóðaflugvöllur. Það var gefið út sérstakt leyfi til þessara loftfara, og það var gert eingöngu af flugöryggislegum ástæðum, segir Valdís Ásta Aðalsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar, og vísar þar til þess að þyrlurnar hafa ekki flugdrægni til að fljúga beint til Grænlands frá Akureyri eða Reykjavík. Það skal tekið sérstaklega fram að þetta var undanþága, eingöngu gefin út til þessara loftfara á þessari leið. Hún felur ekki í sér að loftförin geti farið sömu leið til baka.Vélarnar lentu á Höfn í Hornafirði á leið sinni frá Evrópu, en þar er heldur enginn millilandaflugvöllur. Aðspurð hvort það muni hafa einhverjar afleiðingar segist Valdís ekkert geta sagt á þessari stundu, en málið sé í athugun.Getur einhver sagt mér af hverju stjórnvöld kipptu enn einum stoðum undan tilveru okkar með því að einangra flugvöllinn svona. Héðan var farið að fljúga til Grænlands, og það var lagt af, vegna einhverra fáránlegra reglna. Það er allt gert til að drepa okkur niður og gera okkur ókleyft að bjarga okkur. Og svo í ofanálag hótanir, þið skuluð ekki halda að við leyfum fleiri lengingar hjá ykkur.Ég er orðin dauðleið á öllu þessu reglufargani sem er uppfundið í Ameríku og á bara alls ekki við hér. Það liggur við að okkur sé bannað að taka á móti skemmtiferðaskipum, ætli það verði ekki næst á dagskrá ?Það þurfti að víggirða alla höfnina, og hún var tekinn af tollskráningu. Ég held að stjórnvöld ættu að fara að hugsa sinn gang alvarlega. Og ég held líka að við þurfum að fara að hugsa að því að gerast sjálfstætt ríki hér Vestfirðir, áður en við verðum drepinn niður af stjórnvöldum þessa lands. Segi og skrifa. Bendi á gott viðtal við Einar Odd Kristjánsson þar sem hann talar um Borgríkið Ísland eftir nokkur ár ef ekkert verður að gert.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
16.7.2007 | 16:31
Manni léttir nú óneitanlega.
Þá er þessi hasar búinn, eins gott að ekki var búið að taka drengstaulann af lífi án dóms og laga. Það munaði satt að segja ekki miklu. Æra hans er grútskítug eftir þetta mál allt saman, og það mun taka langan tíma fyrir hann og aðra sem voru blandaðir inn í málið að hreinsa af sér það sem á þá hefur verið borið.
Ég vona bara að það komi fram formleg afsökunarbeiðni frá þeim sem verst létu.
![]() |
Hundurinn Lúkas á lífi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
16.7.2007 | 12:27
Ferðin sem endaði ekki......
Ferðalagið varð styttra en ég bjóst við, því nýji bíllinn bilaði á Klettshálsinum, og við urðum að stauta heim aftur mikið svekkelsi hjá stubbunum tveimur. En það byrjaði bara nokkuð vel.
Vestfirsku fjöllin láta ekki að sér hæða, tignarleg og fögur, og ekki skemmir gallerí himin fyrir dýrðinni.
Það er bjart yfir Ketildölunum. Þaðan eru nokkrir skrýtnir fuglar eins og Gísli á Uppslum og listamaðurinn með barnshjartað í Selárdalnum. Og þaðan eru auðvitað Hannibal og synir.
Og flottur er hann Dynjandi.
Þessi er líka flottur, en hann er í Svínánni, á leiðinni upp á Dynjandisheiðina.
Magnþrungin fjöll og skýjafar.
Virkar frekar dimmt, en það er samt bjart.
Hvar endar sjóriinn og hvað byrjar himininn ?
ÉG held að þetta sé Kaldbakur þarna í bakgrunni.
Þetta eru greinilega eldgýgar. En fallegt og tignarlegt fjall.
Hér erum við komin á tjaldsvæðið á Tálknafirði, yndislegt tjaldsvæði. Þar er meira að segja heitt rennandi vatn. Það er nú ekki allstaðar.
En þetta húshræ er farið að láta á sjá, það fauk meira að segja í vetur í óviðri, og endasentist marga metra, en á lappirnar komst það fyrir því, nema hvað það vantar lappirnar Við hífðum það bara upp á pallinn.
Spennandi að vera í útilegu með ömmu og afa.
Svo er hægt að dunda sér við ýmislegt.
Jamm ég elska svona birtuskilyrði.
Og þá er að fá sér morgunmat.
Hér má sjá Bíldudal vafinn inn í fjallakrans.
Þessi foss var líka á leið okkar.
Áð á fögrum stað. Við erum á heimleið, því miður bilaði bíllinn okkar, fór einhver slanga og hann varð alveg kraftlaus, svo við urðum að paufast heim aftur, mikil sorg hjá stubbunum. Þeir tóku þó fljótt gleði sína.
Því það er gaman að ferðast með afa, sem segir þeim frá umhverfinu og álfum tröllum og hverskyns verum. Mest voru þeir hræddir við útilegumennina.
Þó þorðu þeir að klífa tindinn. Þetta er á tunglinu sko !!
Já, fjöllinn eru slétt að ofan, þetta eru þessi vestfirsku fjöll.
Urð og grjót og upp í mót.
Og íslensku heiðarvötnin blá.
Geimskip ef til vill.
Við brunuðum svo beinustu leið á Suðureyri, en þar voru sæludagar, og fullt af fólki. Hér eru ofurhugar að stökkva í höfnina, þar var glens og gaman.
Eins og sjá má.
Hoppikastalar sem eru einkar spennandi fyrir stubba á öllum aldri.
Lífið lék við Súgfirðinga og aðra gesti og gangandi.
Hér má sjá Sóley Ebbu sem vann söngvakeppni Sæluvikunnar 3ja árið í röð. Hún er algjörlega frábær og ég hugsa að Jens Guð fari nærri því þegar hann segir að hún verði næsta stjarna Vestjfarða. Sumir voru málaðir í framan, og stubburinn tók trommusóló við mikinn fögnuð á barnaballi sem þar var haldið.
Kóngulóarmaðurinn ógurlegi.
Sem breyttist í RICE AND CURR'Y hehehehe þegar hann þvoði sér upp út tjörninni.
Svo eru það Cesilijarnar tvær sú gamla og sú unga, litla og stóra....
Svona fór um sjóferð þá. Maður veit aldrei hvernig það endar sem lagt er upp með, en það er okkar sjálfra að gera það besta úr hverju sem kemur fyrir. Ég hafði til dæmis hlakkað mikið til að fara á Málverjahitting, en missti af því. Það verður bara næst.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.7.2007 | 09:24
Himnamyndir enn og aftur.
Hér koma nokkrar himnamyndir svona áður en ég legg í hann.
Svo ein leynimynd af prakkaranum, fyrir Jón Steinar.
Og svo fjaran mín sem sonur minn bjó til og ég er svo ánægð með.
Svo vona ég að þið hafið það gott yfir helgina og ekki gleyma mér please
Ég tek örugglega fullt af myndum á leiðinni. Sjáumst í síðasta lagi á þriðjudaginn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
12.7.2007 | 20:53
Dýrin mín stór og smá, flóra og fána. Skordýr og aðrir fuglar.
Jamm dýrin mín stór og smá. Ég held að ég hafi séð maur ég get svarið það. Ég þekki þetta dýr ekki fyrir annað. Nema hann var með vængi.
Hvað haldið þið ?
Annars sat ég í sólinni í dag og virti fyrir mér iðandi bíflugur og geitunga. Reglulega gaman að fylgjast með þeim. Greinilega fannst þeim varablómin best, kattarblómið og Laminum. Þar var iðandi kös allt í einum graut, bíflugur og geitungar.
Þessi er barn einnar drottningarinnar sem ég bjargaði í vor upp úr tjörninni.
Þessi er líka flottur, einnig sá ég minni geitung eða vespu, sem var eins og með þyrluspaða. Náði ekki mynd af henni, hún var svo snögg. En svo var líka þessi tígulmunstraði, en þá var ég ekki með myndavélina, ég held að hann sé grimmastur, sú elska. En hann þvældist bara í kring um mig og fór svo burt. Ég beið heillengi eftir að hann léti sjá sig aftur.
Hænurnar mínar eru líka flottar.
Þetta er dverghaninn, hann neitar að pósa nema svona framan frá, því tíkin Ísold nagaði af honum fallega stélið. Honum varð svo mikið um að hann lá i varpkassanum í nokkra daga, en hann er að taka gleði sína aftur.
Þessi er náttúrlega með allt sitt stél og stolt í lagi.
Og eggin eru bragðbetri en búðaregg. Miklu betri sko. hehehe...
Notalegt að vappa frjálsar í sólinni og ná sér í snigil eða orm.
Þið hafið áður kynnst Brandi bílastæðaverði. Hér lítur hann ábyrgðarfullum augum á ykkur, til að vita hvort þið hafið parkerað vitlaust.
Sum blóm eru bara flott ekki satt. fyllt sporasóley í sínu fegursta skarti.
Og rauðtoppurinn Fremri Stekkur skartar hér líka sínu fegursta.
Vestmannaeyja Baldursbráin er ekki sem verst heldur.
Og þessi hreina hvíta drottning blómanna.
Elínor ber hér við himin með sína fallegu klasa.
Gullregnið gefur ekkert eftir með sitt blómaskrúð.
Lambarunninn er að blómstra, hann á ekki að geta þrifist hér fyrir vestan að mati sérfræðinga, en hann er nú samt hér og blómstrara eins og ekkert sé. Bræður hans Bersarunninn og Úlfarunninn blómstra líka fel og fallega.
Blóðrifs hér i sínu fallega skrúði. Og bak við það en sést ekki er svo hunangsviður, sem er að verða þakin í berjum.
Þetta er nú sumarið hér í hnotskurn elskurnar.
Á morgun fer ég á smáferðalag til Rvíkur en verð komin aftur á mánudagskvöld. Sé ykkur vonandi hress og kát. En þangað til hafið það gott. Kíki auðvitað á ykkur af og til
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
12.7.2007 | 08:21
Á Flateyri er margt að gerast.
Jæja þá er aðeins smá hlé hjá mér. Er búin að vera á kafi á Flateyri að stjórna her veraldarvina í útplöntun á trjám í minningargarð um þá sem létust í hinu hryllilega snjóflóði fyrir nokkrum árum. Flateyringar hafa rifið sig upp, og horfðu bjartsýnir fram á veginn, þegar nýjasta áfallið reið yfir, nú vita þeir ekki alveg hvað þeir þola af stjórnvaldsaðgerðum. En þarna eru kempur sem eru ákveðnar í að halda áfram. Ég finn samt reiðina út í stjórnvöld, fyrir niðurskurðin á þoskveiðum. Vegna þess að sú viðmiðun sem er miðað við er algjörlega óábyrg og mjög umdeild. Að setja fólk í þessa aðstöðu er hreint brjálæði, og þeir sem eru ábyrgir skulu fá að axla þá ábyrgð. Hvort sem þeir heita Geir H. Haardi, Ingibjörg Sólrún eða Einar Kr. Guðfinnsson. Þeirra verður skömmin.
En það er svo sem margt að gerast þarna. Sérstaklega vegna þess að þar hafa komið duglegir einstaklingar og ýtt hlutunum áfram. Guðrún Pálsdóttir komst í samband við spænskan mann, sem hefur unnið með Veraldar vinum. Þau í sameiningu unnu að því að fá hóp á Flateyir, sem hefur verið að vinna ýmiss verkefni þar til fegrunar.
En þar má líka sjá þjóðverja spranga um, og ég sá fararstjóra ganga um og setja frá sögu Flateyrar. Það er hamhleypan Elías Guðmundsson sem dregur þjóðverjarna til Flateyrar og Suðureyrar í veiði. Þetta er mikil lyftistöng fyrir þorpin bæði. Og allir eru ánægðir, ekki síst þeir sem koma til að veiða. Þeir dvelja í viku, og fara á sjó, og skoða svo það sem hér er sérstakt. Ég tók tvo þeirra upp í bílinn í gær, þeir voru á puttanum á leið til Ísafjarðar, þeir voru yfir sig hrifnir af þessu. Þeir sögðu mér að í þýskalandi hefði rignt stanslaust núna í þrjár vikur, og þar væri 14°hiti, sem er mjög lágur hiti í Evrópu, sérstaklega á þessum tíma. Það er nefnilega ekki sami hiti og 14°hér. Þeir voru með kort af city Ísafjörður, og ég ók þeim niður á turist information in city center hehehehe.....
Þetta er Önundarfjörður og Flateyrin þarna í baksýn. En dulúðugt mistur liggur góðlátlega yfir fjöllunum og bænum.
Hér erum við komin aðeins nær. Skemmtilegur skúlptúr.
Og hér er lundurinn hennar Söru vinkonu okkar og fjölskyldu hennar, en þau eru ættuð frá Flateyri, og settu þennan lund upp fyrir nokkrum árum. Þarna eru myndarleg reynitré og aðrir runnar, mjög þrifalegir, en þyrfti að hreinsa í kring um þá.
En Flateyringar eru að fá gerfigras sparkvöll, og hér eru vaskir menn að vinna í undirbúningsvinnu við það verk.
Maður er búin að gleyma að það sé til aðrar myndir af Ísafirði en svona.
Bílasstæði kúlunnar er fullt, og allir komnir heim úr vinnu. Þarna sést Brandur bílaststæðavörður. Honum finnst gott að liggja í skugganum undir þessum rauða.
Hér eru blómarósir í njólastóði. Ekkert smáræði af njóla þarna.
Þessa fjölskyldu rakst ég á á leiðiinni til Flateyrar. Foreldrar með tvíbura á leið í sund.
Ekta afaknús. Minn var ekki alveg sáttur, hann er nefnilega í vinnu frá 10 - 12. En vill fá kaffitíma. Afi sagði honum að það væri enginn kaffitími milli 10 og 12. Og af hverju ræður þú mig þá í vinnu á þeim tíma sem ekki er kaffitími spurði stubburinn. Já það er auðvitað alveg satt sagði afi. á morgun byrjar þú klukkar níu og vinnur til 11, þá er kaffitími tuttugumínutur í tíu til tíu.
Sumsé mikið látið eftir þessum pilti.
Þrjár skýjamyndir.
Þessi eiginlega flottari.
Hugsið ykkur hve fallegt þetta er sem við höfum fyrir augunum, alveg ókeypis. Og margar útgáfur. Bara að njóta augnabliksins, því eftir smástund er allt orðið breytt og nýjar myndir komnar í staðin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
11.7.2007 | 18:41
Það skyldi þó aldrei vera.
Ég tek það fram að ég veit ekkert um þetta, en segi bara þar sem er reykur þar er oftast eldur. Og okkur ber að rannsaka málið ef við sjáum einhversstaðar reyk. Ekki satt?
Spyr sem ekki veit.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar