31.7.2007 | 18:16
Að drekka áfengi utan dyra !
Getur einhver sagt mér hvers vegna það er bannað að neyta drykkja utandyra ? Eru þessar reglur ekki barn síns tíma, eins og dómsmálaráðherra orðaði það hér um árið.
Það er svo sem enginn að tala um að menn labbi sig með glös eða flöskur um bæinn. En að menn megi ekki sitja utan dyra og sötra sinn bjór er alveg með ólíkindum. Það eru svona lög í bandaríkjumum um að það megi ekki drekka af flösku utan dyra, þess vegna hafa menn flöskuna í bréfpoka. Og hver er svo munurinn ?
Sum lög skilur maður bara ekki. Ætli lögreglan hafi nú ekki nóg að gera við bófahasar og eiturlyf, þó hún bæti ekki á sig að svipast um eftir bjórþömburum utan við vínveitingastaði? Segi nú bara svona.
![]() |
Bannað að taka drykki með sér út af veitingastöðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
31.7.2007 | 11:42
Hlýr og góður dagur á Ísafirði í dag.
Í gærkvöldi hellirigndi, en dagurinn í dag rann upp bjartur og fagur. Og svo hlýr.
En í gær stóð til að sofa í tjaldi. Tveir stubbar voru búnir að fá leyfi til að sofa í tjaldi. Svo vildi litla skottan sofa líka, og þá vandaðist málið, því hún er bara þriggja ára, en afskaplega ákveðin ung dama. Og svo hellirigndi svo það var ekki kræsilegt.
En þá fengum við snjalla hugmynd hehe..
Málilð er bara að haga sér eftir aðstæðum...
Ef maður getur ekki tjaldað úti.... þá.............
Setur maður tjaldið bara upp inni ekki satt !
svo fór allt í háaloft og einhverjir voru handteknir, þetta er að verða normið í dag.
En amma fær bara bjart bros.
Frá báðum yndilegu Cesiljunum sínum. Þessi er ögn meira hugsandi enda mánuði eldri.
Mikið er maður ríkur, og mikið er gaman að vera til.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
30.7.2007 | 17:42
Lífið gengur sinn vanagang.
Hér er ekki beint sól, en hlýtt og hið besta veður.
Gallerí himin opin eins og venjulega.
Ýmist eða...
Og blessuð börnin lilla fengu það verkefni að þvo bílinn hans afa.
Síðan var farið í fjallgöngu. Hér er svona fjallakeppni, menn ganga á nokkur fjöll, með passa og stimpla sig inn, og taka myndir. Skemmtilegt sport fyrir alla fjlölskylduna, allir geta verið með.
Svo má taka skemmilegar myndir, þetta er hugsuðurinn mikli.
Og ýmsar skemmtilegar sveiflur.
Eins og sjá má.
En svo eru komin ber, það varð ljóst í fjallgöngunni.
Nammi namm aðalbláber.
Líka krækiber.
Hér er stimplað í fjallapassann. Fólk tekur þessu mjög alvarlega.
Dularfull mynd, ærli þetta séu álfar, eða ef til vill landdísirnar sem dansa í Naustahvilftinni ?
Skýin dansa allavega sinn sólardans.
Og leyfa himninum að sjást.
Þetta er örugglega einhver vatnapúki, eða nykur.
Amma er allavega hugs - andi yfir þessu öllu saman.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
30.7.2007 | 01:07
Hugleiðing.
Þegar atburðir gerast eins og í morgun, setur þjóðina hljóða. Við finnum flest til samúðar með því fólki sem nú stendur mitt í harmleiknum. Mér finnst einhvernveginn eins og við skiptum svona harmleikjum niður í flokka. Ef þetta hefði verið uppgjör í fíkniefnaheiminum, eins og svo sannarlega margir héldu, þá hefði málið einhvernveginn snúið öðruvísi. Það er allavega mín tilfinning. ´
Ég þekki dálítið til þar, og veit að það ólánsfólk sem þar lifir, er einhvernveginn ekki metið á sama hátt og fólkið í okkar veröld. Þetta er ef til vill harkalega sagt, en það er svo sannarlega sannleikurinn. Ég hef orðið vör við það, að slíkt fólk hefur hreinlega ekki sömu réttindi og aðrir þegnar landsins. Og ef enginn úr okkar veröld er tilbúin til að tala máli þeirra, þá eru þeir í vondum málum.
Ég var ásökuð um það í dag að fara offari, þegar ég talaði um að sennilega væri þetta uppgjör vegna fíkniefna. En ég held að flestir hafi strax sett þar samasem merki. Þó það hafi ekki verið í þessu tilfelli, þá situr samt eftir allt ofbeldið sem framið er í fíkniefnaheiminum. Og það sem bitnar á öðrum borgurum. Mér finnst einhvernveginn gæta þarna ákveðinnar hræsni. Að menn hafi meiri samúð vegna þess að þarna var ekki slíku til að dreyfa. Ef til vill er það vitleysa hjá mér. En samt...
Það er alveg jafn sárt að missa ástvin þó hann sé í hinum heiminum (undirheimum), sem við þekkjum bara af afspurn. Í kring um hvern einasta fíkil er fólk sem elskar hann/hana, og hefur áhyggjur. Ég lýsi auðvitað fullri samúð með því fólki sem nú á um sárt að binda, og vona að þau fái áfallahjálp.
En ég vek líka athygli á því, að þegar menn eru myrtir í fíkniefnaheiminum, þá hef ég ekki séð þá ósk til handa þeirra aðstandendum að fá slíka aðstoð. Þarna er verið að skipta fólki í lið, góða liðið og vonda liðið. Ég vil ekki vera leiðinleg, en ég vil bara vekja athygli á þessu og segja; að foreldrar og aðstandendur fíkla sem eru myrtir hafa nákvæmlega sömu tilfinningar og annað fólk. Og það sem meira er, þessir aðstandendur hafa jafn vel svo árum skiptir liðið sálarhvalir og ótta í brjósti um sína nánustu. Ekki fengið hjálp til að takast á við vandamálið, og eru oftar en ekki brotnar sálir fyrir.
Fólk er bara fólk, þó það sé háð einhverri óáran sem það ræður ekki við. Þá getum við ekki bara afskrifað það. En það er nefnilega gert í dag. Þau eru ekki til í samfélaginu, nema sem einhver byrði sem best er að loka inni og gleyma helst af öllu.
Málið er bara að hverjum slíkum einstaklingi fylgir heil fjölskylda sem þjáist oftast í kyrrþey. Brotið fólk sem á erfitt með að leita sér aðstoðar. Fólk sem hrópar út í tómið og þar er oftast litla hjálp að fá. Mest er af fordómum og þegjandahætti. Þetta gengur ekki lengur. Við verðum að fara að taka á rótum þessa vanda. Skoða hvað er hægt að gera, og hvernig við eigum að bregðast við. Og þá á ég við allt samfélagið. Þetta er málefni okkar allra. Ekki bara þeirra sem þjást.
Hver ert þú sem dæmir ?
Hvaða forsendur hefur þú til þess ?
Varst þú móðirin sem fæddi barnið ?
Fylgdist þú með uppvextinum og hlustaðir á alla draumana sem hann átti, þegar hann yrði stór ?
Hvað veist þú um sjálfsáskanir móður, og hvernig henni líður?
Eða andvökunætur og áhyggjur ?
Reiði, vonleysi, sársauka, hróp út í eyðimörkina, þar sem enginn er til að svara ?
Eða hefurðu ef til vill bara staðið álengdar og dæmt út frá eigin fullkomleika ?
Að þetta snerti þig ekki, bara aðra.
Við erum öll jöfn fyrir almættinu.
Og þeir sem setja sig á háan hest gagnvart öðrum, og telja sig þess umkomna að dæma, verða sjálfir dæmdir að lokum.
Því við erum í sjálfu sér ófullkomin, hvert og eitt okkar, og enginn getur sagt hvað býr í sálinni.
Það mun ekki skýrast fyrr en við stöndum við dyr himinsins, knýjum á, og þá er spurning fyrir hverjum mun upplokið verða.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
29.7.2007 | 13:22
Er ekki kominn tími á aðgerðir, alvöru aðgerðir og á réttum stöðum ?
Erum við ekki komin ansi nálægt Chicago á dögum mafíunnar ? Alveg með eindæmum að heyra þetta. Maðurinn á sendiferðabílnum, hefur sýnt fádæma kjark og á heiður skilinn, hefur sennilga bjargað lífi mannsins.
Nú er mál að lögreglan hætti að taka þessi mál lausum tökum, og fari að einbeita sér að stóru körlunum í eiturlyfjaheiminum. Ekki bara smápeðunum. Það er krafa hins almenna manns í þessu landi.
![]() |
Lögregla lýsir eftir vitnum að skotárás í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
28.7.2007 | 14:48
Háskólafyrirlestrar og kvikmyndaleikur.
Tvo skemmtileg atvik hjá mér núna undanfarið.
Fyrst eins og ég sagði ykkur frá með nemana amerísku sem voru hér að vinna að allskonar rannsóknum, tvær voru hérna hjá mér þær Laura og Jessika.
Ég fór svo á kynningu hjá hópunum, þar sem þau gerður grein fyrir athugunum sínum. það var virkilega fróðlegt.
Einn hópurinn hafði farið til Hraðfrystihússins Gunnvarar að reikna út hagstæðasta kost við ísun á fiski. Annar hópur var að reikna út olíusparnað á smábátum, meðan þriðji hópurinn reiknaði út hagkvæmni á kúabúi.
Þær voru með ansi skemmtilegar hugmyndir um að breyta mykju í gas.
Svo voru stúlkurnar mínar að reikna út besta kostinn við gerð gróðurhúss. 'Eg hugsa að ég noti mér flestar tillögur þeirra, ef ég fer út í að byggja stærra gróðurhús.
En svo í dag, þá breyttist húsið mitt í stúdíó. Ungur maður bankaði upp á hjá mér í fyrradag, og spurði hvort við hjónin vildum leika fyrir hann í stutt mynd sem hann er að gera.
Við vorum náttúrulega alveg til í það. Og svo var skotið hér núna áðan.
Var raunar virkilega skemmtilegt. Hér eru myndatökumaðurinn og aðstoðar manneskja hans, ásamt mínum heittelskaða.
Komin í heimsókn.... hehehe..
Smá ástarsenur.
Og leikurinn berst út um víðan völl. Sagan er hins vegar leyndarmál.
Svona var himininn í morgun, en nú er sólin farin að skína aftur.
Hér eru tvö skemmtiferðaskip í dag, og í hvert skipti sem ég lít út er fólk að taka myndir hingað upp. Sumir koma alla leið og heilsa upp á mann, og tala um hve húsið mitt sé dásamlegt.
Það er það reyndar líka. En hér er dóttir mín og Hanna Sólin hennar ömmu sinnar.
Vonandi eigið þið öll góðan dag. 'Eg er farin út í sólina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
27.7.2007 | 16:36
Gerfigras og gerfiblóm.
Ég minntist á það lauslega hér einhversstaðar að það væri maður að leggja gerfigras á lóðina hjá sér. Ég smellti nokkrum myndum af fyrirbærinu. Og ég er alveg viss um að fleiri koma á eftir honum. Fyrir Þá sem ekki kæra sig um að slá gras, eða hirða lóðina er þetta kjörin lausn. Og svo má setja plast pálma og silkirósir og allt viðhaldsfrítt.
Svona lítur þetta út, samt ekki alveg búið að ganga frá.
Sniðugt og auðvelt hehehe....
Annars er veðrið þungbúið og frekar kalt. Hér er stórt skemmtiferðaskip og fullur bærinn af erlendum túristaher.
Hjá mér er húsið fullt af barnabörnum hvað ætli þau séu mörg ..... Jú þau eru átta talsins. Vill til að taugarnar eru sterkar.
Nú þarf ég að fara að útbúa kakó það er ekki gefinn neinn griður hjá smáfólkinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
26.7.2007 | 20:01
Ferðin suður á bóginn.
Eins og þið hafið ef til vill tekið eftir sum ykkar a.m.k. hef ég verið fjarverandi. Fór sum sé í ferðina sem við lukum aldrei við í síðustu viku.
Þetta er eiginlega stubbasaga eins og þær gerast bestar.
Í upphafi ferðar, hér er sérkennileg birta yfir hestinum.
Og þessi sérkennilega birta var um allt djúpið.
Eins og ég segi, gallerí himinn opinn og eins flottur og hann getur orðið.
Svona lítur húsið okkar út að innan, og gott fyrir stubba að fá sér epli.
Og þar sem átti að gera svo margt í ferðinni var eins gott að fjárreiður væru góðar og í lagi. Jafnt skipt og svoleiðis.
Tjöld og vagnar voru af ýmsum gerðum í Laugardalnum, þetta kallaði ég kóngulóna.
Hér er svo samloka.
Náttúunnendur voru þarna líka auðvitað.
Sumir vilja lúxus....
Meðan aðrir láta sér nægja minna eins og bara er í lífinu.
Sumir vilja hafa þetta sértækt hehe...
Svo eru það náttúrulega dreyfbýlistútturnar að vestan.
Það var náttúrulega Húsdýra og ríkrafjöldkyldugarðurinn, það kostaði 1700 kr. á hvert barn, með dagmiða í öll tæki, ekki fyrir einstæðar mæður eða aðra sem eiga ekki mikið í handraðanum.
Litlir snúðar spá auðvitað ekkert í það, heldur skemmta sér konunglega. Þetta var náttúrulega vinsælast. Fyrst þorðu stubbarnir ekki svo starfsmaður fór með þeim í fyrstu ferðina, þær urðu sex eða sjö.
Svo var farið í bílaleik, engir smábílar þar á ferð.
Og í bátsferð. Mikið fjör og mikið gaman.
Þessir eru í fríu fæði og húsnæði og njóta sín vel í góða veðrinu.
Laugardalurinn var ómissandi fyrir ömmuna, en stubbar höfðu meiri áhuga á geitungagildrum.
Þar taka brúðhjónin brúðarmyndirnar í fallegu umhverfi.
Svo var endað í tívolí, góður dagur að kveldi kominn.
Þetta er ógnvænlegt tæki svei mér þá og líkist innrás frá mars.
Daginn eftir var farið í Bláa Lónið, dóttir mín og fjölskylda var kominn í heimsókn ásamt austurrísku pari sem hafði komið með henni frá Vín.
Drengur í mosa.
Aðkoman að lóninu er mjög flott, en dýrt er það drottinn minn, 1800 kr. á manninn. Ef til vill ekki mikið miðað við Fjölskyldugarðinn.
Lítil dama, eitt af barnabörnunum.
Gamla brýnið komið í fötin.
Yndislegur staður og örugglega einstæður í veröldinni.
Og allt tekur enda, loks tókst að koma stubbunum uppúr lóninu.
Ólíkt er nú suðurlandið frá Vestfjörðum. Hvað eru fjöllinn ?
Það var grillað og svo léku börnin sér fram eftir kvöldi.
Yndislegar systur Þær koma heim með ömmu og afa, og það verður spennandi að sjá Cesiljarnar tvær saman.
Við gistum svo í Stykkishólmi á frábæru tjaldsvæði. Sambærilegt við tjaldsvæðið á Táknafirði, en við gistum fyrstu nóttina á tjaldsvæðinu í Borgarnesi, ég tók enga mynd og ætla ekki einu sinni að segja meira en Djísús kræst, eyðimörk algjör, alveg við þjóðveginn, ferðaklósett voru þar fjögur stykki en bara tvö virk. Enginn vaskur nema einhver renna með nokkrum krönum af köldu rennandi vatni, það góða við staðinn var, að það virtist vera ókeypis. En sundaðstaðan er góð í Borgarnesi.
Komin heim í faðm fjölskyldunnar, og þarna eru Cesiljarnar tvær sú rauða og sú bláa að hittast í fyrsta skipti. Það var fagnaðarfundur.
En ekki meira í bili elskurnar, því ég þarf að koma mat á borðið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
19.7.2007 | 09:39
Harrý Potter og leyndarmálið mikla.
Já ég er einlægur Harrý Potter aðdáandi, en er þetta ekki orðið aðeins of mikið tilstand í kring um eina bók ? Einhverjir geta ekki beðið og selja "bara nokkrar" bækur svona af því bara hehe.... Og svo hafa nokkrir aðrir fengið bókina "óvart" og þeir beðnir um að opna hana ekki fyrr en á föstudag. Ef þetta er ekki mesta sölutrykk aldarinnar þá veit ég ekki hvað. Ætli það komi svo ekki fleiri á eftir. Þráin Bertelsson með splunkunýja bók, og það má ekki byrja að selja hana fyrr en kl. 13.00 laugardaginn 22. desember. Og enginn má segja frá hvernig hún endar fyrr en allir hafa keypt sér eintak. Hver og einn verður að lofa því að steinþegja um endalokin.
Þetta er orðið meira leyndó en skjöl frá Pentagon og allri leyniþjónustu Bandaríkjanna, sem gubbast upp svona af og til.
Ja hérna hér ég segi nú bara eins og forðum; Er þetta hægt Matthías ?
![]() |
Kærur lagðar fram vegna sölu nýju Harry Potter bókarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
18.7.2007 | 16:32
Meira af Alejöndru og hennar fólki. Himnamyndir og lífið og tilveran fyrir Vestan.
Meiri umfjöllun um málefni litlu Alejöndru og er bara af hinu góða fyrir fjölskylduna:
http://www.bb.is/Pages/26?NewsID=103260
Og flott mynd sem fylgir sem tekinn er í kúlunni fyrir nokkrum árum.
Svo nokkrar himnamyndir.
Jamm og svo stubbur þetta er sko næsti Tiger Woods hehehe
Myndarlegur ungur maður ekki satt ?
Skrapp í Samkaup í gær sem er ekki í frásögur færandi í sjálfu sér, nema undanfarið hefur borið á því að kassarnir hafa þagnað og biðraðir myndast. Ein stúlkan sagði mér að kerfið væri samtengt um allt land, og þegar mikið álag væri á Suðvesturhorninu þá færi allt í stopp á útkjálkum. Reynar var biðin um 20 mínútur og náðist ekki einu sinni samband við fyrirtækið fyrir sunnan. Hér biðu fullt af þýskum ferðamönnum, veiðimönnum sem höfðu dvalið hér í viku við veiðar, og áttu að fara í flug.
Þeir ásamt öðrum ferðamönnum og ísfirðingum sýndu fádæma biðlund meðan ástandið varði, sem var allt að 20 mínútum eða hálftíma.
Og stelpugreyin á kössunum, það hefur ekki verið auðvelt fyrir þær að sitja þarna og brosa allan tímann, en satt að segja þá held ég að hluti af rólegheitunum hafi veri hve elskulega og svo sætar þær voru, að enginn kvartaði eða sagði styggðaryrði. Flottar bara.
Ég fékk svo góða heimsókn í morgun, tvær bandarískar háskólastúdínur sem ætla að taka orkumálin í gegn hjá mér, partur af námi þeirra. Elskulegar ungar stúlkur, það var virkilega gaman að kynnast þeim.´
I got two lovely girls visiting my home this morning, students from U.S.A. I enjoyed there company very much. They are going to do something about my use of electrity, and lower my costs. This is for them becouse I´m sure they will have a look at my blog. Hello girls, loved your visit. And don´t hesitate to call me.
Svo hrundi skjárinn af heimatölvunni minni. Sem er keypt hjá BT fyrir um það bil tveimur árum. Ábyrgðin er tvö ár. Ég þarf að snúa húsinu við til að leita að kvittuninni, það sorglega er að ég er viss um að ég greiddi tölvufjandann með peningum. En umboðsmaðurinn hér lofaði að tala við þá stóru fyrir sunnan og vita hvort þeir finna eitthvað út úr því. Málið er að ég man að ég keypti tölvuna um sumarið, hvenær veit ég ekki. En ég er stór kúnni hjá fyrirtækinu, og þeir opnuðu verslunina hér áramótin 2004-5. Svo ég vona að þeir bæti mér upp skjáinn.
Ég fór með hana til sérfræðinga og þeir sögðu mér að sennilega væri skjárinn gallaður. Allt í einu varð hann bara svartur, og ég slökkti og kveikti aftur, og eftir smátíma varð hann aftur blank. Þetta sama gerðist hjá Netheimum, þar sem ég fór með hann í tékk. Sé til með þetta. En það er meira en að segja það hvar ég hef sett ábyrgðarskírteini fyrir tæpum tveimur árum síðan. En ég get náttúrulega sannað að ég keypti tölvulna hjá þeim, vitnið er sölumaðurinn, og svo að verslunin opnaði á þessum tíma. Ef þið eruð að lesa BT menn, þá hugsið til mín hehehehe.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar