Félagsmiðstöðin Kúlan....

Helgin í kúlunni var eins og félagsmiðstöð.  Vinir Úlfs komu og þetta var svona Lanhelgi.  Við Alejandra höfðum það samt kósý.  Og í Gær elduðum við pizzur reyndar nóg fyrir alla, ég bjó til deig sem dugði í fjórar stórar pizzur og svo fengu sér allir ofan á pizzurnar það sem þeir vildu fá sér.

IMG_1786

Þessir drengir eru allir yndislegir og flottir strákar. Þeir voru hér fimm stykki fyrir utan Úlf, það er sama hér og þegar mín börn voru unglingar ég vil heldur hafa þá heima og vita hvað þeir eru að bralla, en að hafa þá einhversstaðar út í bæ. En þessir drengir eru flottir og góðir drengir.

IMG_1788

Allir skeyttu sínar pizzur.

IMG_1789

Úlfurinn sá samt um pizzur drengjanna.

IMG_1790

Það er þroskandi fyrir unglingana að þurfa að bera ábyrgð á sjálfum sér og öðrum. Enda stóð hann sig vel bæði í þessu og að taka til eftir Lanpartýið, það var skilyrði.

IMG_1794

Mér þykir vænt um þessa krakka, þau eru heilbrigð og góðar manneskjur.

IMG_1795

Og ég segi hlustum meira á æskuna, börnin, unglingana og ungafólkið, þau hafa heilmikið að segja okkur og við eigum að hlusta á þeirra heilbrigðu skoðanir.

IMG_1802

Í raun og veru eru þau lengra komin en við á mörgum sviðum, þó sumum finnist erfitt að viðurkenna það. En þau eru framtíðin, og sú framtíð veltur á því hvernig við tökum þeim. Viljum við vera vinir og taka mark á því sem þau hafa fram að færa, eða viljum við heldur sýna hroka og neita að hlusta á það sem þau hafa að færa fram?

Um það snýst málið í dag.

En ég er á því að ef við gefum þessum elskum sjens, elskum þau og sýnum virðingu uppskerum við margfalt það sem við leggum inn.

Eigið góða nótt elskurnar.


Frávísunartillagan.

Ég hlustaði á megin hluta umræðnanna í dag um frávísunar tillöguna, skrýtið því ég hef í sjálfu sér afar lítin áhuga á þessu máli.  Ræðan hans Atla Gíslasonar var mér minnisstæðust.  Hann var skorinorður og skýr og flutti mál sitt af mikilli sannfæringu og réttlætiskennd.  Strax sá ég að hallaðist á verjendur þess að vísa þessari umræðu frá.  Það var mér óskiljalegt af hverju menn vildu ekki taka þetta mál efnislega til umræðu á þinginu, það eitt og sér var eins og að forðast umræðuna, sem er ekki gott. 

Þó niðurstaðan hafi verið þessi í dag, er ekkert sem segir að tillaga Bjarna Ben og sjálfstæðisflokksins verði samþykkt.  En það er mikilvægt að þessi umræða eigi að fá að eiga sér stað, og er bara af hinu góða.  Ég er ein af þeim sem var verulega ósátt við að Geir Haarde væri einn settur fyrir landsdóm, því mér fannst réttlætinu ekki fullnægt ef hinir þrír fengju að sleppa, sem var pólitískt skipulagt af Samfylkingunni.  Ég er sammála Atla og fleiri að þar umsnérist málið og varð að klúðri einu saman.  Ég vissi strax að Geir yrði tekin í tölu fórnarlambs þegar hin sluppu.  Og þar með yrði málið máttlaust og sennilega vísað frá.  Ég er sorgmædd yfir áliti minnar ágætu Birgittu að láta leiða sig í þessa gildru.  Því það setur eiginlega blett á allt það sem þau Hreyfingin hefur staðið fyrir.  Að vilja kæfa umræðuna, það hefði ég ekki haldið að ég ætti eftir að sjá.  En svona er það því miður. 

Hér er ekkert sem segir að réttlætið fái ekki fram að ganga, heldur einungis að málið verði tekið upp aftur á alþingi og fái málefnalega umfjöllun það var það sem málið snérist um.  Ekki að ekki ætti að gera upp við hrunið. Því það er bara þannig að Geir var ekki einn í þessu klúðri.  Ábyrgð Samfylkingarinnar og ef út í það er farði Framsóknar þarf að gera upp, en ekki bara með því að láta einn mann standa þarna.  Heldur þarf að draga allt þetta fólk fyrir dóm, og ef tíminn er útrunninn, þá verður að finna flöt á því að láta þau svara til saka öll, og gera upp hrunið frá A til Ö.

Það er einmitt þetta sem ég held að þeir - fyrir utan sjálfstæðisflokkinn hafi verið að reyna að koma til skila og þeir eiga þakkir skildar fyrir að standa sína pligt.   Þarna urðu þáttaskil í sögu alþingis sem vonandi eiga eftir að endurtaka sig aftur og aftur. 


mbl.is Frávísun felld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snjór, tré og færð.

Hér er snjórinn ennþá og efstalag nýfallinn.  Veðrið er gott og allt hér á sínum stað.  Fullt hús af strákum að "lana", ég í tölvunni er að fara að glápa á sjónvarpið bráðum.  Er búin að vera að hlusta á Alþingisumræður í mestan partinn af deginum, sem er rosalega fyndið, því þar er verið að ræða mál sem mér er eiginlega alveg sama um, frávísun á frávísun er það víst kallað.  Ég hallast að því að það sé rangt að vísa þessu máli frá þinginu.  Búin að komast á þá skoðun að leyfa þessari tilllögu að fara í efnislega umfjöllun á alþingi.   Mest áhrif hafði ræða Atla Gíslasonar á mig, vel rökstudd og sanngjörn.  Finnst einhvernveginn þeir sem vilja vísa málinu frá fara halloka í umræðunni, og einhvernveginn aumkvunarverðir.  Af hverju ekki að leyfa umræðurnar og taka svo efnislega afstöðu eftir það?  Skil ekki svona.

En svona á milli þess að horfa á sjónvarpið og okkar vörpulegu alþingismenn, þá fór ég í bæinn, í Bónus við Alejandra báðar, keyptum í matinn á morgun sem verður Pizza og huggulegheit.  Og fór að gefa hænunum og tékka á vatninu hjá þeim, hafði með mér myndavélina og tók nokkrar myndir á leiðinni upp á lóð.

IMG_1775

Horft út um útidyrnar, það er lágskýjað en gott veður.

IMG_1776

Það er töluverður snjór á leiðinni upp í hænsnakofann og eins gott að feta sig í fyrri spor til að sökkva ekki niður, en það móar fyrir sporunum frá því í fyrradag.

IMG_1777

Leikkofi barnanna.

IMG_1778

Hér er svo hænsnakofinn.

IMG_1779

Hér sést svo í skóginn fyrir ofan garðplöntustöðina.

IMG_1780

Það er gaman að rölta þarna í snjónum, maður sé allskonar för, músaför, fuglaför, rjúpnaför og jafnvel katta og hundaför, já það eru margir sem rölta hér um.

IMG_1781

Já lóðin mín í vetrarham.

IMG_1782

Ekkert síður fallegur en á sumrin.

IMG_1783

En það er notalegt að vita að öll dýrin mín eru búin að fá að borða.  

Segi bara eigið gott kvöld og notalega nótt Heart

Það hafði samband við mig maður áðan og vildi hjálpa mér í mínum málum, ég er honum afar þakklát, og ætla að leyfa ykkur að heyra hvernig það gengur þegar þar að kemur.   


Svolítið um pólitík - hugmynd.

Lesið í Bæjarins besta:

bb.is | 19.01.2012 | 10:55Krefjast þess að eignarhald auðlindarinnar liggi hjá þjóðinni

"Stjórn Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ og í Bolungarvík hvetur ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur til að leggja fram hið fyrsta frumvarp að lögum um nýtt fiskveiðistjórnunarkerfi og framfylgja þar með fyrirheiti samstarfsyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um breytingar á stjórn fiskveiða. Stjórnin telur brýnt að ekki verði látið undan þrýstingi hagsmunaaðila heldur staðið fast við það grundvallaratriði að ríkið fyrir hönd þjóðarinnar verði hinn eini sanni eigandi fiskveiðiauðlindarinnar,“ segir í ályktun sem félögin hafa sent frá sér.

Stjórnin væntir þess að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur afnemi þann ójöfnuð sem hlotist hefur af núverandi kvótakerfi og innleiði án tafar nýtt fiskveiðistjórnunarkerfi sem byggir á jöfnum rétti landsmanna til nýtingar fiskimiðanna, að eignarhald fiskveiðiauðlindarinnar liggi ótvírætt hjá þjóðinni og að réttlátur arður af veiðunum renni til fólksins í landinu.

Stjórn Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ og Bolungarvík gerir kröfu um að hvergi verði hvikað frá markmiðum ríkisstjórnarflokkanna um: Ótvírætt eignarhald þjóðarinnar yfir fiskveiðiauðlindinni, þar með fullur ráðstöfunarréttur og forræði. Þjóðhagslega hagkvæmni af sjálfbærri nýtingu fiskistofnanna við landið. Eflingu byggða, nýliðun og atvinnusköpun innan greinarinnar. Sem mest jafnræði við úthlutun veiðiheimilda og þar með atvinnufrelsi í samræmi við stjórnarskrá lýðveldisins og álit mannréttindanefndar SÞ. Örugg og fyrirsjáanleg rekstrarskilyrði greinarinnar á grundvelli almennra reglna við úthlutun veiðiheimilda. Og að nýting fiskveiðiauðlindarinnar sé tímabundinn afnotaréttar gegn gjaldi til samfélagsins.

Samfylkingin í Ísafjarðarbæ og Bolungarvík tekur undir þau sjónarmið sem þingmenn kjördæmisins Ólína Þorvarðardóttir og Lilja Rafney Magnúsdóttir hafa sett fram um nýjar áherslur í fiskveiðistjórnun sem þjóna sjávarbyggðunum og því fólki sem þar býr og starfar. "

http://www.bb.is/Pages/26?NewsID=172688

Þetta lýst mér vel á.  Þetta er afdráttarlaus yfirlýsing og áskorun á ríkisstjórnina og Jóhönnu Sigurðardóttur um að vinna að vilja fólksins og efna kosningaloforð sín. 

Ætli þetta verði ekki litið illum augum af þeim forsætisráðherra sem telur að öll umvöndun eða ábendingar séu af hinu illa.  Setur Samfylkingu Bolungarvikur og Ísafjarðar á bekk með Samtökum Atvinnulífsins og ASÍ, með þennan grímulausa áróður. 

Ég var að hugsa í morgun geri það oft á morgnana þegar ég er vöknuð en þarf ekki að fara fram úr, því ég á minn tíma sjálf, og þá gerist margt í kollinum á mér.

Það sem hér er að gerast í samfélaginu er að fólk sér að þessi ríkisstjórn er alls ekki að gera sig, hún er líka haldinn algjörri veruleikafyrringu af verstu sort, þegar allir sem reyna að sýna fram á á hvaða leið hún er, er tekið illa og ákveðið að það sé af hatri eða illvilja einum saman.  Það er slæmt.

Það sem heldur þessari ríkisstjórn enn við völdin er.... já óttin við að Sjálfstæðismenn komist að völdum á ný.  Það er ekki beint skemmtileg né upplífgandi hugsun, því þeir hafa örugglega engu gleymt.   Ég veit að það er fullt af góðu fólki í Sjálfstæðisflokknum, mikið af hugsjónafólki sem fær því miður ekkert annað hlutverk en að þjóna elítunni í flokknum.   Meira að segja einn sjálfstæðismaður tengdur mér og innarlega í flokknum sagði mér að hann væri ósáttur við að ekkert væri hlustað á grasrótina í flokknum, menn bara ákvæðu það sem þeim hentaði og enginn spurðu, og þó aðildarfélög sendu ályktanir til ráðamanna flokksins, þá væri ekkert tilllit tekið til þess ef það strýddi gegn hugsunargangi þeirra. Ég trúi þessum manni og veit að þrátt fyrir allt er hann gegnheill sjálfstæðismaður.  Sem segir mér að jafnvel þó menn sjái hvað er að gerast þá geta þeir ekki slitið sig lausa frá trúfélaginu Sjálfstæðisflokkur.  Þetta segi ég til að sýna fram á að ótti fólks er á rökum reistur.   Þarna er mikið í húfi kvótakerfið fyrst og fremst, þeir myndu byrja á að festa það í sessi um aldur og ævi og fara algjörlega að vilja L.Í.Ú, enda er það hönd sem gefur rausnarlega.

En þar sem þessi vansæla ríkisstjórn hangi á þessu roði, og enginn vill í raun og veru slíta henni nema þeir áðurnefndu, þá datt mér si svona í hug lausn á þessu fram að næstu kosningum.  Auðvitað veit ég að það verður ekkerkt mark á mér tekið, en ég læt þetta flakka samt.

En sem sé, tveir ráðherrar til viðbótar verði látnir taka pokann sinn, það eru Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir.  Í stað þeirra verði ráðnir fagmenn til að sinna forsætisráðherraembættinu og utanríkisráðuneytinu.

Össur blessaður er góður maður ég fer ekki ofan af því.  En hann er gjörsamlega vanhæfur ráðherra.  ÉG held að hann sé búin að lofa einhverju upp í ermina á þjóðinni þarna úti, þar sem gráðugir einræðisvannabees sitja og vilja gína yfir auðlindum landsins.  Hann getur hvorki sagt þeim að hann hafi lofað of miklu, né sagt okkur að hann sé komin út á hálan ís.  Þess vegna verður hann að víkja til að landið fái trúverðugleika.   Þetta sannaðist nú fyrir skömmu þegar Steingrímur upplýsti okkur um að enginn samningsmarkmið hefðu verið samin.  Þau sem einmitt áttu að liggja fyrir, fyrir umsóknina.  Hvað er hægt að klúðra meir en það? Ég bara spyr.  Bændur hafa aftur á móti unnið sína heimavinnu og eru með varnarlínur fyrir landbúnaðinn tilbúnar.

Jóhanna hefur sýnt að hún veldur ekki þessu starfi, hún er stöðnuð.  Meira að segja Össur hefur lýst yfir að það þurfi að skipta um kaptein í brúnni.  Hún er ósveigjanleg, frek og mjög sennilega komin með ofsóknaræði, því allir sem reyna að gagnrýna stjórnina eru skammaðir og taldir hatursmenn.  Það sjá það allir sem vilja sjá það að þetta gengur ekki með æðsta mann ríkisstjórnar í kröggum.  Svo er hún sennilega líka undirförul, því hvaða samningsmarkmið var hún að kynna Merkel, ef þau eru ekki til?

Ég er alveg viss um að Jóhanna hefur gert margt gott gegnum árin og hefur verið hugsjónamanneskja hér áður fyrr, en yfir 30 ára seta á alþingi er hverri manneskju ofviða.  Hún er komin á þann stað sem svo margir falla í að telja sig eiga stólinn og allt sem undir hann telst. Telur sig vera ómissandi.  Þetta er bara mannlegt. 

Um Steingrím veit ég svo sannarlega ekki hvar á að staðsetja hann, annað hvort er hann snillingur eða algjört fól. Það á eftir að koma í ljós. En með sterka fagráðherra í forsæti og utanríki, ætti að vera kominn meiri staðfesta fyrir fólk til að geta unað við þessa ríkisstjórn í 17 mánuði. Meðan grasrót og ný framboð kynna sig og koma með áherslur og sýn á hvernig hlutir megi betur fara.

Ég ætla meira að segja að koma með tillögu að þessum tveimur embættismönnum, ég sé fyrir mér Jóhannes Björn sem forsætisráðherra og Gunnar Tómasson sem utanríkisráðherra. Báðir þessir menn eru víðförulir hafa unnið mikið erlendis hjá opinberum stofnunum bæði fyrir Íslan og önnur ríki. Báðir þessir menn eru réttlátir staðfastir og hafa svo sannarlega þekkingu á okkar málum.

Þetta er það sem ég held að gæti bjargað okkur tímabundið, og aukið trú fólks á stjórnmálin og eytt óttanum um að allt fari hér yfir um ef kosið verður núna.

Eigið annars góðan dag elskurnar.


Hugleiðing um líf og heilsu.

Það hefur verið þungt í mér undanfarið.  Það er ekki auðvelt að sitja undir því að eftir tæp 30 ár komist yfirvöld að því að það eigi að kaupa af mér heimilið mitt og allt um kring sem ég hef verið að búa mig undir frá árinu 1986, eða fyrr.  Rústa því algjörlega, henda mér út úr húsinu, eyðileggja 30 ára skógræktun og skera niður garðplöntustöð sem ég hef rekið þarna á milli með greinilegri ánægju bæjarbúa, flestra.  Ég hef einnig þurft að sæta því að yfirvöld bæjarins hafa haft samband við mig mestmegnis gegnum það ágæta blað Bæjarins Besta, þó það sé flott og gott blað, þá á maður einhvernveginn meira von á svona persónulegri samskiptum um jafn mikilvæg málefni.

Ég hef þess vegna legið undir feldi eins og ljósvetningagoðinn um árið.  Mér hefur liðið illa, og ég skil ekki þörfina á þessari rústabjörgun, því það er langt seilst til að telja þetta eignarnám á lífi mínu almannahagsmuni, þar sem ég bý á jaðrinum og eini almannahagsmunaaðilinn er ég og mín fjölskylda sem bara viljum fá að vera í friði.

En undir feldinum, þ.e. undir sænginni minni í andvökunóttum þrátt fyrir róandi lyf og jafnvel svefnlyf, þá hef ég haft tíma til að skoða líf mitt gegnumheilt.  Og ég hef komist að niðurstöðu.

Ég ætla ekki að eyðileggja líf mitt og heilsu með að láta þetta draga mig niður andlega.  Ég tók ákvörðun um að láta bara hvern dag hafa sinn tíma, og hætta að velta mér upp úr þessu máli.  En ég mun ekki gefast upp. Ég ætla mér að reyna allt til að fá að halda áfram með lif mitt á þessum stað.  Og berjast fyrir því sem ég hef byggt upp.  Núna þegar ég er orðin ellilífeyrisþegi og hætt að vinna fyrir þetta sama bæjarfélag, sem mér þykir reyndar óskaplega vænt um og vill  hvergi annarsstaðar vera, þá finnst mér bæði hart og óréttlátt að þurfa að lúta því að eitthvað fólk geti bara skikkað mig til að gefa allt upp á bátinn sem ég hef unnið að frá því að ég var full af orku og trú á framtíðina. 

002-001

Láta einhverja teikniglaða arkitekta strika út allt mitt líf, án þess einu sinni að koma á staðinn og kynna sér málin. Ég og umhverfi mitt er allt í einu bara strik á blaði sem þeir leyfa sér að teikna út og suður, án þess að átta sig á því að þeir eru að þurrka út 30 ára lífsstarf.

En ég er komin að niðurstöðu. Ég ætla ekki að láta þetta eyðileggja heilsuna mína. Ég ætla sem sagt að lifa áfram hér ánægð og örugg, og gera það sem þarf til að vinna mitt mál.   Ef það tekst ekki, þá verður bara að hafa það, ég get þá sagt að ég hafi gert allt mitt og tapað.  En ef mér tekst á einhvern undarlegan hátt að fá leyfi til að vera bara hér áfram og vera til hér þar sem ég tilheyri, mun ég fagna.  Ég er nefnilega ekki ein í þessari baráttu, ég hef kallað til vætti og náttúruna sjálfa, svo er bara að sjá hvort það gengur upp.  En fyrst og fremst þarf ég að trúa á það góða í fólki, að það skynji að hættan er enginn, og allir vinna, ég að fá að vera hér áfram og þeir að þurfa ekki að eyða dýrmætum peningum í að rústa lífi mínu. 

IMG_1738-001

Mitt vandamál er sennilega að vera bundinn þessum bæ, ég hef reyndar unnið honum allt það besta sem ég hef átt, núna í fegrun síðan 1978, en alls með hléum frá árinu 1966.   

Mér líður vel með þessa ákvörðun. Ég átti þess kost að verða reið og hatursfull og óska þessu fólki norður og niður. En það eina sem ég hefði haft upp úr því væri að skaða bæði sálina mína og líkamann. Og það vil ég alls ekki, eða að bara taka þessu eins og hverju öðru hundsbiti og reyna að láta mér þykja vænt um þetta fólk, og hugsa sem svo að það viti ekki hvað það er að gera, en muni reyndar fá sín málagjöld óháð mér.

Þess vegna ætla ég að berjast með þeim vopnum sem ég hef, en jafnframt ekki fara út í sálfræðilega vegferð haturs og illvilja.  Heldur þvert á móti treysta á að ég uppskeri eins og ég sái, góðvild, skilning og vilja til að sjá í gegnum fingur við mig með þetta óskamál mitt. 

Eigið góða nótt elskurnar. Heart  


Já einmitt Ólína.

Lýst vel á þessar áhyggjur þínar.  Og það er engin spurning í mínum huga að það þarf óháða rannsókn á málinu.   Við hin sem bíðum eftir okkar úrbótum fyrir austan og vestan,  bíðum og hlustum eftir ákvörðunum ríkisstjórnarinnar um hvort hér eigi að vera eiginhagsmunapot norðanmanna, eða eðlileg forgangsröðun í samgöngumálum á landinu.  Hef trú á að þú standir fast á þínu í þessu máli. 
mbl.is Ekki hægt að afgreiða málið eins og sakir standa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endilega endurmetið stöðuna Guðfríður Lilja ekki bara tala svona og gera svo allt annað eins og venjulega.

Tek undir þetta með Guðfríði Lilju, þetta er reyndar sama og Ólína Þorvarðar sagði í Silfri Egils, ef uppi eru tvímæli um arðsemi af þessum göngum, þá ber að setja þau á samgönguáætlun og fylgja þeirri tímaröð sem er þegar á dagskrá. Ég er algjörlega sammála þeim tveimur í þessu og hafi þær þökk fyrir.   Þetta er svo greinilega hagsmunapot í heimabyggð Kristjáns Möllers að það er augljóst hverjum sem gengur með augun opin.  Það verður fróðlegt að vita hvernig atkvæði falla um ríkisábyrgð á gönginn. Ef fólk fer eftir sinni sannfæringu og lætur ekki Steingrím J og  Jóhönnu hóta sér stjórnarslitum eða einhverju álíka, er nokkuð ljóst að það er spursmál um hvort þetta verði samþykkt á Alþingi ég meina alþingi.  Vil einnig benda því fólki á að ÞAÐ ERU EKKI TIL PENINGAR Í ÞARFA HLUTI EINS OG UMÖNNUN ELDRI BORGARA OG ÖRYRKJA, OG MÖRG ÖNNU VELFERÐARMÁL.  Svo það er nóg til að eyða peningum í sem er betur komið en í Vaðlaheiðargöng.
mbl.is „Hljótum að þurfa að endurmeta stöðuna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forgangur, loforð og efndir.

Það er öllum ljóst að mikill niðurskurður er á öllum sviðum, það er eiginlega sama hvar borið er niður, heilbrigðisstofnanir, öryrkjar, barnameðlög hafa víst lækkað um 30 %  og allt þetta í boði Norrænu velferðarstjórnarinnar.

Samanber þessa grein í stjórnarsáttmálanum;

Veitt verði heilbrigðisþjónusta við hæfi á viðeigandi þjónustustigi, óháð efnahag og búsetu.
Hlutverk sveitarfélaga í velferðarþjónustu við börn, fatlað fólk, aldraða og fjölskyldur verði aukið með flutningi verkefna frá ríki til sveitarfélaga.

Heilsugæslan um land allt verði sett í öndvegi sem fyrsti viðkomustaðurinn í heilbrigðiskerfinu.  
Aðgerðaráætlun í málefnum barna- og ungmenna verði fylgt eftir.

Stefnt verði að því að fólk geti búið heima eins lengi og kostur og vilji er til, meðal annars með því að samþætta heimaþjónustu og heimahjúkrun. Staðið verði við framkvæmdaáætlun um ný hjúkrunarrými fyrir aldraða.

Já Þetta átti nú aldeilis að vera í forgangi.

Svo er nú líka loforðin um heimilin, þau hljóða svona:

Greiðslu- og skuldavandi heimila

Djúp niðursveifla í kjölfar bankahrunsins hefur skapað misgengi á milli greiðslubyrði og greiðslugetu margra heimila í landinu. Þetta misgengi verður að leiðrétta með lækkun á greiðslubyrði þeirra sem verst standa þar til verðmætasköpun atvinnulífsins tekur aftur að aukast. Markmið ríkisstjórnarinnar er að koma í veg fyrir að tímabundinn greiðsluvandi leiði til vanskila og gjaldþrots, svo sem með hækkuðum og breyttum vaxtabótum og húsaleigubótum. Lykilatriði er að tryggja húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga. Greiðslujöfnun sem nú nær bæði til verðtryggðra og gengistryggðra lána gerir kleift að laga greiðslubyrði að lækkandi tekjum. Þá gera ný lög um greiðsluaðlögun sem samþykkt voru á síðasta þingi það mögulegt að taka á vanda þar sem fyrirsjáanlegt er að greiðslu- og skuldabyrði verði  skuldurum ofviða til lengri tíma litið.  Loks gera frystingar greiðslna sem eru í boði hjá lánastofnunum heimilum kleift að bregðast við bráðavanda vegna skyndilegs tekjumissis. Ofangreindum úrræðum þarf að fylgja fast eftir.

Hér má til gamans lesa þessi háleitu markmið sér til heilsubótar og ánægju. http://www.stjr.is/Stefnuyfirlysing/

En eins og allir vita eru ekki til peningar til að styðja öryrkja, eldriborgara, heilbrigðiskerfið, skólakerfið, svo það verður allt að bíða. Það þarf að koma Vaðlaheiðargöngum í gegn, hátæknisjúkrahúsi og síðast en ekki síst snjóflóðavörnum hér vestra.

Um það mál segir svo í frummatsskýrslu ofanflóðasjóðs:

Ríkisstjórnin ákvað á þessu ári að til margþættra aðgerða á Vestfjörðum væri þörf og um einn þáttinn segir: "I. Aðgerðir vegna efnahagslegs samdráttar og efling innviða,  Markmið aðgerðanna er að hafa jákvæð skammtímaáhrif með tímabundinni fjölgun starfa auk áhrifa af umsvifum verktaka, en jafnframt jákvæð langtímaáhrif með bættum samkeppnissikilyrðum efnahagslífs og samfélaga á Vestfjörðum" (leturbreyting mín.)48) gerð ofanflóðavarna undir Gleiðarhjalla mun skapa störf tímabundið og skapar öruggari skilyrði til búsetu á því svæði. 

 Á bls. 2 um samantektir á niðurstöðum frumrannsóknarinnar stendur eftirfarandi:

Stór snjóflóð hafa aldrei fallið úrhlíðinni neðan Gleiðarhjalla svo vitað sé. Eftir að snjóathugunarmaður tók til starfa hafa fimm lítil flóð verið skráð á svæðinu en þrjú þeirra eru innan við framkvæmdasvæðið.  Eitt snjóflóð féll eftir Stakkaneshrygg og stöðvaðist um 100 m. ofan við efstu hús en annað féll sunnan við Stakkaneshrygg og stöðvaðist í um 110 m. hæð yfir sjávarmáli.  Einnig eru til óljósar heimildir um flóð sem féll kringum 1950 á svæði þar sem byggð stendur núna en var þá óbyggt. 

Ég hef búið undir þessari hlíð alla mína ævi og ég hef aldrei orðið vör við ótta hjá bæjarbúum.  Ekki hafa húsin verið svo vitað sé verðminni en önnur hús í bænum, þó skýrslan láti að því liggja, einnig er sagt að þessi 14. hái veggur muni hafa talsverð "jákvæð áhrif á samfélagið"

Einnig segir að garðarnir muni "dempa hljóð sem berast frá bænum og gæti upplifun af hljóðum úr náttúrunni (fuglasöng) fyrir ofan garðanna verið meiri. 

Þetta er nú samt sem áður útúr dúr, það er margt þarna sem orkar tvímælis, og að mínu mati ekki verið að gera ráðstafanir fyrir fólkið, heldur að RÉTTLÆTA hlut sem valdhafar vilja framkvæma, ég held í óþökk meirihluta bæjarbúa. 

En ég segi, væri nú ekki nær að nota þessa peninga sem virðast handbærir til varanlegrar uppbyggingar, til dæmis til að styrkja atvinnuuppbyggingu á svæðinu, nú ef þetta er eyrnamerkt jarðverktökum þá væri nær að nota þennan pening í Dýrafjarðargöng.  Það er nefnilega þannig að það eru fleiri sem farast á vegum úti í bílslysum en þeir sem farast í snjóflóðum, sérstaklega þar sem enginn stór snjóflóð hafa fallið svo vitað sé.

Þetta kalla ég öfuga forgangsröð. Meðan allt er í kalda koli í marglofaðri velferð að þá dansa menn í kring um Gullkálfinn eins og forðum, byggja  Hof, Hörpur, spítala sem ekki verður hægt að manna, og verið er að loka sjúkradeildum og sjúkrahúsum.

Getum við ekki á einhvern hátt komið vitinu fyrir þetta fólk, eða er það algjörlega heillum horfið? 

Það þýðir ekkert að segja að þetta sé svo nauðsynlegt eða að þessi peningur dugi ekki, og svo framvegis.  Það er nefnilega hægt með ráðdeild og sparnaði einmitt með  því að klippa niður svona ónauðsynlegar framkvæmdir sem geta orðið til þess að bjarga þeim sem minnst mega sín.  Bara ef forgangurinn er réttur, loforðin haldin og skynsemin fái að ráða. 

IMG_1737

 

IMG_1738

Þessar myndir teknar í fyrradag.  Fallegt vetrarveður á Ísafirði.


Síðbúin spaugstofa á Rúv.

Já þegar maður verður vitni að svona atburði þá hreinlega verður maður kjaftstopp.  Jón reyndi að svara eftir bestu getu og við verðum að virða hann fyrir það.   En hvort svona maður er hæfur í það embætti sem hann hefur komist í er svo allt annað mál.  Við hljótum samt að finna til þess  að hann er að minnsta kosti einlægur í því sem hann er að gera, þegar við miðum við fláræðið og lygina sem aðrir á hans nótum eru tilbúnir til að verja sig með. 

Málið er að við þekkjum og látum okkur hafa helv... lygina og hrokann í þeim sem á undan honum hafa farið.  En á sama tíma aumkvumst við yfir karlangann sem hefur komið sér í þessi ósköp af græðginni einni saman, og stendur nú svo til einn í að svara fyrir hana á mörgum vígstöðvum, og fréttamenn hafa svolítið gaman af að gera lítið úr honum. Enda hefur hann sjálfur skapað sér sviðið, en í staðin fyrir að geta bara kúlað og sprellað, þá er það alvaran sem hann þarf að glíma við. 

Ég viðurkenni að ég hef aldrei þolað hvorki tvíhöfða, fóstbræður né fígúru Jóns í vaktamálum enda nennti ég ekki að fylgjast með þeim þáttum.  En ég held að Jón og hans félagar hafi virkilega ætlað að breyta og laga pólitíkina.  Málið er bara að pólitíkin gleypti þá hráa, af því að þeir treystu á flokksmaskínu sem eins og nornin í Hans og Grétu, buðu þeim inn í pönnukökuhúsið, hvaðan varð ekki aftur snúið. 

Nú er alvaran að renna upp fyrir þeim, og það er erfitt að afsaka síðustu daga það þýðir ekki að reyna að segja fólki að svona sé Ísland, né að það sé ekki sé ekki hægt að sandbera götur af því það þurfi að sópa upp, og að salt dugi ekki í hláku.   Það er ekki einu sinni hægt að fela sig á bak við það að þeir hafi  haldið að andlega fatlað fólk hafi ENDILGA VILJAÐ BORGA matinn sinn, og það meira en borgarstarfsmenn fá matinn sin á. 

Guð minn góður hvað það var erfitt að horfa upp á manninn tala um þessi mál, ég held að Reynir Pétur hafi gert þessu betri skil ef út í það er farið.   Hann kann þó allavega að reikna.

Hvar er pólitíkin á vegi stödd, þegar trúðar af þessum kaliber fá umtalsvert fylgi án þess að hafa sýnt að þeir hafi neitt til þess að bera að geta ráðið við einföldustu hluti.  Á hvaða leið erum við að hafa lygamerði við stjórnvölin sem ef til vill eru að gerast föðurlandsvikarar til að eyðileggja sjálfstæði okkar og ekkert að gert.  Á hvað vegi erum við stödd þegar ekkert viðvörunarkerfi virðist í gangi til að stoppa slíka af?

Forsetinn á að geta gripið inn í það ferli, en gerist það án þess að til þurfi að koma undirskriftir?

Já hann getur það.  samkvæmr 24 gr. Forseti lýðveldisins getur rofið Alþingi, og skal þá stofnað til nýrra kosninga,( áður en 45 dagar eru liðnir frá því er gert var kunnugt um þingrofið) enda komi Alþingi saman eigi síðan er tíu vikum eftir að það var rofið. 


mbl.is „Þetta var ófremdarástand“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að skammast sín.

Margrét ég get vel skilið að þú skammist þín fyrir að vinna í þessu trúðaleikhúsi.   Og víst hafið þið þrjú í Hreyfingunni reynt að siðvæða starfsvettvanginn.  En nú er lag,  það er gerjun í gangi og þú að því mér sýnist ert hluti af henni.   Því þætti mér miður ef þú ætlar að framlengja sirkusinn með því að verja þessa ríkisstjórn vantrausti.  Það hefur nefnilega aldrei verið jafnslæmt þarna eins og núna, þegar vanhæf ósamlynd ríkisstjórn reynir að lafa á hverju sem gengur.

Ég segi fyrir mína parta ég mun fylgjast mjög vel með hvað þið gerið í þeim málum.  Ég vil nefnilega burt með þessa ríkisstjórn og fá inn meira af grasrótarfólki og minni áhrif fjórflokksins.  Ég er viss um að slíkt væri möguleiki núna og aldrei meiri ein einmitt núna þegar fjórflokkurinn er með allt niður um sig gagnvart fólkinu í landinu.

Ef þú meinar eitthvað með þessari skömm, þá geturðu sýnt það svart á hvítu þegar kemur að vantrauststillögu á ríkisstjórnina.   Ef þú aftur á móti verð stjórnina, þá myndi ég í þínum sporum hætta að skammast mín, því þá ertu bara ein af þeim sem þú segist skammast þín fyrir.

Ég ætla að fylgjast vel með.


mbl.is Skammast sín fyrir að vera þingmaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.9.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 74
  • Frá upphafi: 2024191

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband