Aftur til framtíðar - Fljótavík.

Þá er maður komin úr vikudvöl í Fljótavík, perlu jarðarinnar.  Datt í hug að setja inn nokkrar myndir af þeirri ferð, en eins og vanalega get ég ekki gert upp við mig hvað á að velja úr, svo þetta verða því tvær færslur.

IMG_2775

Smáleikur áður en lagt er af stað. Við áttum að mæta út í Bolungarvík kl. átta um kvöld til að fara norður, og ákváðum að sjóða kjötsúpu í kúlunni og koma þar öll saman og borða áður en við færum norður.

IMG_2777

Það er eftirvænting í loftinu hjá ungviðinu.  En við erum 12 krakkar á öllum aldri og fjögur fullorðin.

IMG_2780

Komin um borð.  Evíta dálítið smeyk og þá er gott að vera hjá mömmu.

IMG_2787

Fjölskyldan okkar út Svartaskógi kom með. Enda elska þau Hornstrandir og sérstaklega auðvitað Fljótavík.

IMG_2797

Allar tilfinningar verða einhvernveginn meiri og innilegri, þegar maður er í nánu sambandi við náttúru landsins.

IMG_2800

Tvær flottar saman.

IMG_2803

Þessar ekki síðri pæjur hehehe...

IMG_2807

Land í augsýn og Leon tilbúinn til að hjálpa skipstjóranum að flytja fólki og farangur í land.

IMG_2809

Klárir í bátana.  Og Ásthildur á fullu að kyssa hundinn LoL

IMG_2812

Og þá fara fyrstu farþegarnir í land.

IMG_2814

sumir á útkikkinu sko!!!

IMG_2817

Og það þarf að gæra vel að öllum.

IMG_2819

Komnar upp í bústað, þreyttar en í góðu skapi.

IMG_2821

Í bústaðnum loksins, eftir klifur upp úr fjörunni og Matta þurfti að bera bæði Evítu og Símon Dag, alla leið, um veit ekki 4 km.  Ég bar Ásthildi eina og þótti nóg um. 

IMG_2824

Símon í góðu formi. Hann er bara þriggja mánaða, en er stinnur sem sönn hetja og flottur eftir því.

IMG_2836

Hér er svo tryllitækið sem notað er til að transsportera farangri heim í bústaðinn.  Við urðum reyndar að geyma hann hjá Boggu í Atlatungu (Fljótavíkurmóru), því ásóknin var slík í að leika sér í honum.  LoL

IMG_2844

Börn og hvönn er algeng sjón í Fljótavík.

IMG_2829

Krakkarnir hreinlega elska Fjótavík og hlakka til allt árið að fara aftur.

IMG_2831

Allt verður þeim að ævintýrum og þau geta bara verið þau sjálf í eina viku, nó matter the age.

IMG_2848

Og Hvönnin blívur.

IMG_2849

Hér er verið að setja mjólkina í "kælinn".

IMG_2852

Lítil kríli elska að fara í bað, þegar þau hafa sullað í vatninu eða bleytt sig í röku grasinu.

IMG_2857

Þess vegna er gott að hafa djúpan sturtubotn með tappa.

IMG_2861

Svo þarf að hugsa um börnin...

IMG_2863

Líka gott að hita á sér bossan við eldinn.

IMG_2867

Vá ætli þetta sé það sem þau kalla Jól?!!!

IMG_2870

Já og kærleikurinn blómstrar svo sannarlega. LoL

IMG_2876

Þetta er Daníel Örn ömmustrákur.

IMG_2879

Og lífið er yndislegt.

IMG_2881

Það finnst Símoni Degi líka.

IMG_2882

Og svo þarf að pússla, og segja sögur, helst draugasögur.

IMG_2886

Og Matta prjónar, hún er rosalega dugleg.

IMG_2894

Svo þarf líka að sinna heilsunni LoL

IMG_2904

Og allir hjálpast að.

IMG_2905

Og ég meina ALLIR Tounge

IMG_2912

Og það er ýmislegt hægt að dúlla sér, þó maður sé táningur.

IMG_2916

Og mikil ósköp hvað hægt er að dunda ser við smíðar og allskyns útiveru.

IMG_2929

Ætli Leon sé ekki bara að hugleiða í rökkrinu?

IMG_2931

Hér er indíjána prinsessa alvöru sko.  Matta er flott hárgreiðslukona og hefur gaman af að flétta og greiða flottum prinsessum.

IMG_2933

En litla skrímslið gerir allt af heilum hug sem hún tekur sér fyrir hendur.

IMG_2934

Og pabbi Abrecht kom svo gangandi frá Látrum og það urðu fegnaðar fundir hjá þýsku fjölskyldunni okkar.

IMG_2935

Og það er stússast í eldhúsinu, krakkar eru alltaf svangir í útilegum.  Og sérstaklega tápmiklir strákar sem eru í örum vexti. 

IMG_2936

Og ýmislegt var  hægt að gera sér til dundurs, ef það rigndi og ekki var hægt að komast út.

IMG_2938

Ég fíla dilla dilla... ég fíla dilla dilla... dilla!!!

IMG_2941

Prinsessan.

IMG_2943

Með fastafléttur...

IMG_2948

Kristján að lesa.

IMG_2953

Hanna Sól og Kobbi.

IMG_2956

svo sæt og fín.

IMG_2901

Veðrið getur verið kyngimagnað þarna á norðurslóðum.

IMG_2914

Bæði kalt og svo hlýtt.

IMG_2919

Með sólarlag engu líkt.

IMG_2958

Og sína hráu fegurð og friðsæld.

IMG_2959

Bústaðurinn sem tvær stórar ættir eiga, og skipta á milli sín mest í sátt og samlyndi, sem er ótrúlegt því við erum öll skapstór og forn í skapi. En með hjartað á réttum stað.  Ætli það sé ekki málið.

IMG_2960

Svo erum við öll samtvinnuð í frændskap.  Og hér eru ekki færri en þrír flugvellir get ég sagt ykkur.

IMG_2962

Og Hvönninn allsráðandi og fleiri eðaljurtir.

IMG_2963

dagur á ströndinnni.

IMG_2964

Litlar skottur búnar að ganga aðeins og langt.

IMG_2966

Þá er nú gott að geta fengið far hjá Pabba, stórum og stæðilegum.

IMG_2967

En sumir kjósa að bara labba sjálfir í rólegheitum.

IMG_2970

Tveir víggreifir guttar.

IMG_2971

Og prinsessa, sól, sandur og vatn.

IMG_2979

Það er einfaldlega bara best.

IMG_2986

Aðallega sandur.

IMG_2988

Og það má moka honum ansi mikið.

IMG_2990

Reyndar alveg rosalega mikið.

IMG_2994

Alveg upp í háls..

IMG_2995

eða þannig...

IMG_2996

Já þetta er skrýtið ég vil líka segir Aron Máni.

IMG_2999

Hehehehe talandi um skrýtið...

IMG_3006

Hundur og barn.

IMG_3009

Og það var veiddur silungur, bæði fóru Elli og Ingi Þór fram í Reiðá og veiddu í matinn ,og til að grafa og svo veiddi Stefan í matinn niður við ós, og fyrri matreiðslan var a la Fljótavík, sem er steiktur silungur með sykri og svo í seinna skiptið pott í panna a la Maggi Hauks í Neðsta Kaupstað, special.

IMG_3016

Og það var ekki alltaf verði að klæða sig upp fyrir morgungöngu.

IMG_3031

Á kvöldin var svo spilað við kertaljós.

IMG_3043

Og það er hægt að elda pizzur á grilli ef maður hefur réttu græjurnar og svo Möttu til að sjá um eldamennskuna.

IMG_3036

Já ég sagði spilakvöld kvöld eftir kvöld.

IMG_3046

Hér er verið að undirbúa för á ströndina í rigningu.

IMG_3048

Út út allir mínir menn.

En hér eru svo nokkrar sólarlagsmyndir.

IMG_3019

Ótrúleg fegurð.

IMG_3020

Ótrúlega falleg birta.

IMG_3023

Fallegt.

IMG_3025

Blóðrautt sólarlag. 

Og nú er ég komin heim. Það var reyndar bandvitlaust veður í tvo daga, og ég veðurteppt, og varð að fljúga heim, sem tekur reyndra bara korter, og það var besta flugveður ever, en samt.  Ég þakka bara fyrir mig og þessa yndislegu viku með hluta af fjölkyldunni.  Svo verður meira á morgun.

Eigið góðar stundir mín kæru. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ, Ásthildur.

Alvegn magnaðar myndir.

Þetta hefur verið ógleymankegt líf með  fjölskyldunni úti í náttúrunni. Bíð eftir framhaldinu.

 Kveðja til allra !

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 22.8.2009 kl. 19:59

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Velkomin til baka Ásthildur ég var orðinn hálf smeykur um að eitthvað hefði komið fyrir en létti mjög mikið þegar ég fór inná bloggið þitt áðan og sá að þú hafðir verið í dýrðinni í Fljótavík....  Fórstu ekki að veiða????

Jóhann Elíasson, 22.8.2009 kl. 20:46

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei Jóhann minn það vantar í mig veiðilöngunina.  En það voru aðrir sem veiddur fiskinn og ég eldaði ofan í liðið.  Takk fyrir að hugsa til mín.

Þói minn já þetta var alveg magnað og meiri háttar.  Þetta er svona árleg dýrð sem ég leyfi mér eða hef gert, svo er að sjá hvort á því verður framhald.  Það er orðið svo dýrt að komast þangað, allt hefur hækkað rosalega.  En sennilega þarf ég bara að fara að spara fyrir næstu ferð, því þetta er svo gott fyrir sálina.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.8.2009 kl. 21:44

4 identicon

Ohh hvað þið hafið haft það æðislegt. Það er meiriháttar að fara þar sem tíminn skiptir litlu máli, hægt að borða þegar maður er svangur og gera það sem mann langar til. Og það besta að hafa allt liðið með.

Dísa (IP-tala skráð) 22.8.2009 kl. 21:50

5 identicon

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 22.8.2009 kl. 21:52

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ójá Dísa mín einmitt, þú þekkir þetta frá Aðalvíkinni. 

Knús Ragna mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.8.2009 kl. 22:04

7 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Lífið er yndislegt og börnin gefa lífinu lit enn og aftur frábærar myndir og yndisleg fjölskyldavið sendum ykkur stórt knús og kram og vonum að næsta vika verði ykkur góð og notalegt......:O))

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 22.8.2009 kl. 22:29

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Paradís á jörðu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.8.2009 kl. 12:51

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þvílíkar myndir bæði af náttúru og fólki, þetta hefur verið dásamlegt, ekki spurning. Takk fyrir mig og góð kveðja til ykkar.

Ásdís Sigurðardóttir, 23.8.2009 kl. 13:56

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góð kveðja til þín líka Ásdís mín.

Já Jenný mín Paradís á jörð og nauðsynleg fyrir mig og sálina.

Stórt knús til þín líka Linda mín og takk.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.8.2009 kl. 15:01

11 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Yndislegt!

Ragnhildur Jónsdóttir, 26.8.2009 kl. 17:07

12 Smámynd: Laufey B Waage

Allt of langt síðan ég hef komið í Fljótavík. Bogga er alltaf að reka á eftir mér - og nú er enn eitt sumarið að líða án þess að ég láti verða af því að fara. Þú varst einmitt fyrir norðan þegar ég skrapp vestur um daginn og ætlaði að kíkja á þig.

Laufey B Waage, 27.8.2009 kl. 22:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 2020856

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband