Ferðasagan. Giftingin - fullkomið brúðkaup.

Giftingardagurinn rann upp bjartur og fagur.  Marijana og Bjössi hafa staðið á haus undanfarnar vikur við að undirbúa mótttöku gestanna og hafa ofan af fyrir þeim.  Dugnaðarfólk.  Marijana réði unga konu til að sjá um allt batteríið í sambandi við giftinguna og fórst henni það vel úr hendi.

Sem betur fer kom mamma Marijönu úr sveitinni til að vera henni innan handar og passa Arnar Milos.  En hann var þvílíkur engill allan tímann ótrúlegur þessi litli gullmoli. 

Dagurinn hjá okkur Ínu mömmu Bjössa, Marijönu og mömmu hennar fór allur í að láta dúlla við okkur, mála, greiða og gera okkur fínar.  Sem betur fer voru Marijana og Bjössi í stórri svítu, því þar var bókstaflega allt að gerast. Þar var heilt ljósmyndastúdíó, Þrír ljósmyndarar, kvikmyndatökumaður, þrír hárgreiðslumeistarar, förðunardama, og svo komu ættingjarnir margir til að heilsa upp á.

Bjössi, pabbi hans og nánustu vinirnir fánaberinn Geir og svaramaðurinn Palli voru í öðru herbergi því þau máttu ekki sjást fyrr en þau fóru af stað í kirkjuna.  Ég var eitthvað að spá í hver ætti að leiða hana inn kirkjugólfið.  Hvort tengdapabbi ætti að gera það eða hver?? Nei sagði Marijana vinkona mín verður með mér.  Þá veit maður það.  Ekkert svona pabba eitthvað.  En samt sem áður þá átti Elli að leiða hana til Bjössa upp á hótelherbergi þegar þau voru tilbúin til að leggja af stað í kirkjuna.  Íslenski fánin og sá serbneski léku líka stór hlutverk, því þeir voru settir út um glugga á tveimur bílum sem fóru undan brúðarbílnum.  En það var bifreið Títós sem fékk það hlutverk. Á eftir kom svo rútan með gestunum.

IMG_1707

Hér er Ína mamma Bjössa í greiðslu.

IMG_1708

Fánarnir tilbúnir.

IMG_1710

Arnar Milos alveg rólegur yfir öllu þessu umstangi.

IMG_1713

Í greiðslu.

IMG_1714

Mamma brúðarinnar.

IMG_1718

Brúðurin sjálf.

IMG_1721

Allt að gerast. Ljósmyndarar og kvikmyndarar.

IMG_1722

Og litli Arnar Milos bara að dunda sér.

IMG_1724

Hann hafði líka mikinn áhuga á öllu dótinu sem ljósmyndararnir voru með.

IMG_1728

Svo er að mála brúðina.

IMG_1738

Kjóllin kominn ekkert smáflott stúlka.

IMG_1744

Besta vinkona og svaramaður. Mér varð oft hugsað til textans hans Bubba eitt lítið serbneskt blóm.  Serbneskar konur eru nefnilega engin blóm, þær eru valkyrkjur.  Þær eru allar mjög sterkar og viljafastar og ákveðnar. Það voru konurnar sem voru mest ógnvekjandi á landamærunum.  En þær eru líka alveg frábærar.

IMG_1745

 Marijönu Vinkona Marijönu.

IMG_1747

Og mamma glæsileg kona.

En við skulum bregða okkur yfir í karladeildina.

IMG_1752

Feðgarnir ekkert smáflottir.  Takið eftir skónum.

IMG_1754

Fánaberinn Geir og konan hans Edda.  Stórglæsileg. Það var grænt Thema í brúðkaupinu.

IMG_1756

Hér gefur Elli Bjössa brúði sína.

IMG_1760

Fallegt par.

IMG_1765

Prúðbúnir gestirnir eru þegar farnir að bíða úti.

IMG_1769

Tilbúnir í veisluna.

IMG_1766

Fyrir utan er líka verið að skreyta bílinn.

IMG_1771

Og orðin klár, þetta er bíllinn hans Títós gamla.

IMG_1770

Og Ína mamma með fallega skreytta körfu með grænum orkideum.

IMG_1785

Svo var haldið af stað.  Fánabílar, brúðarbíll og rúta. 

IMG_1787

Og takið eftir mótorhjólinu, kvikmyndarinn situr öfugt á hjólinu, og myndar alla leið. 

IMG_1794

Komin að kirkjutröppunum.

IMG_1802

Ótrúlega flott þarna inni.  Serbar eru mjög trúaðir, þeir játa Serbien Orthodox.  Sem er komin frá Grikklandi.

IMG_1805

Athöfnin í fullum gangi.

IMG_1815

Sjáið hvernig presturinn bindur saman hendur þeirra.

IMG_1817

Brúðhjón, svaramenn og brúðarmeyjar.

IMG_1822

Kóróna á höfuð.

IMG_1828

Flott eru þau.

IMG_1836

Síðan gefur hann þeim rauðvín.  Síðan eru kirkjugestir látnir dreypa á víninu eftir athöfnina.

IMG_1842

Blessunin.

IMG_1846

Brúðarkossinn.

IMG_1851

Og fjölskyldan.

IMG_1853

Svaramenn.

IMG_1858

Músikk fyrir utan kirkjuna.

IMG_1863

Hér má sjá hrísgrjónin.

IMG_1870

Og meiri músik.

IMG_1871

Og komin inn í bíl.

IMG_1893

Veislan er að komast í gang. Ætla að laga þig aðeins góði minn.

IMG_1895

Rosaflott hljómsveit lék svo allt kvöldið, og fyrir dansi.  Þeir dansa þjóðdans sem er ekkert ólíkur þeim færeyska.  þau spiluðu bæði þjóðlagamúsik og svo allar tegundir bara að nefna það.

IMG_1897

Og auðvitað höfðu þau heimsótt Ísland.  Ekkert ólíkur Keith Ritchard þessi serbneski tónlistarmaður.

IMG_1908

Brúðhjónin dansa.

IMG_1910

Og haldiði ekki að þau hafi verið búin að æfa þennan líka flotta dans öllum að óvörum.

IMG_1913

Vöktu mikla lukku.

IMG_1917

Þetta var frábært kvöld.

IMG_1919

Walking lika an Egypsen.

IMG_1922

Ótrúlega skemmtilegt.

IMG_1936

Afi og stubbur horfðu á.

IMG_1942

Og sólin ljómaði yfir Savaánni.

IMG_1953

Og sá litli reyndist ekki vera eftirbátur foreldrana.

IMG_1954

Náði sér í dömu og dansaði líka.

IMG_1969

Og amma fékk að vera með.

IMG_1981

Og konurnar í lífi Ella náðu vel saman.

IMG_1982

Japan - Ísland.

IMG_1987

Og svo myndatökur.

IMG_1990

Hann var rosakrútt þessi prestur.

IMG_1994

Og íslendingarnir og japanarnir.

IMG_2004

Kvöldsólin með sína skugga og birtu.

IMG_2015

Og svo hneig hún til viðar.

IMG_2019

Og nú hófst dansinn fyrir alvöru; allir dansa kónga!!!

Það var borið vín í mannskapin svoleiðis að um leið og kláraðist úr glasinu var komið nýtt á borðið.  Maturinn var líka rosalega góður eins og alltaf hér.

IMG_2021

Arnar Milos og eina af ömmunum.

IMG_2025

Og ég skal segja ykkur að fólk dansaði með tilþrifum.

IMG_2029

Og Elli komin á trúnó.

IMG_2030

Hér er svo kakan skorin.  Þau gerðu okkur rosalegan grikk, því kakan var borin út á svið sem var þar, og á miðri leið missti kokkurinn tertuna, allir tóku andköf, en ... þetta var allt í plati.  Átti bara að koma okkur á óvart. Svo var flugeldasýning þarna úti í kvöldhúminu.

IMG_2037

Við erum komin í fjölskyldubönd við Serba, þau eru hluti af þeirri fjölskyldu núna.

IMG_2038

Fjölskyldufaðirinn.  Serbar eru gott fólk.

IMG_2039

Mæli alveg með því að fara til Belgrad í sumarleyfi. Maður verður ekki svikin af því.

IMG_2049

Ójá þá er maður komin á knúsistigið hehehehe..

IMG_2050

Þessi mynd er líka alveg óborganlega fyndin. LoL

IMG_2051

Þið sjáið að það er fjör....

IMG_2062

Og auðvitað tók ég lagið.  Stelpan er hörkusöngkona og mér finnst hún lík Heru Björk.

IMG_2070

Þetta var gaman.

Brúður og skámamma1

Svo að lokum ein af okkur Marijönu.

Ég skemmti mér rosalega vel.  Stóð reyndar upp og var sú eina.  Ræðuhöld tíðkast víst ekki þarna.  En ég vildi þakka fyrir mig og þetta dásamlega kvöld.

Ég flutti brúðhjónunum líka smá drápu, sem ég set hér inn.

Í sólríku Serbíulandi

Sameinast halur og sprund.

Helgun á því hjónabandi,

hefst því á erlendri grund.

 

Og gestirnir safnast hér saman,

frá Serbíu, japan og... já.

Íslandi - þetta er gaman

og allt eins og best verða má.

 

Hvar sem á jörðinni erum

öll stígum á hvers annars reit.

Og allt það gott sem við gerum,

til gæfu oss verður - ég veit.

 

Bjössi og Marijana mætust

mergjaðan sendi ykkur knús.

Þið erð sérstök og sætust

og sérlega erumvið dús.

 

TIL hamingju brúðhjónin bestu

og blessist vel um ár og síð.

Megi gæfan og Guð svona að mestu

gleðja ykkur all'ykkar tíð.

Hér með lýkur hápunkti ferðarinnar. En ég mun sam sem áður setja inn eina færslu í viðbót.  Það er ferð sem við fórum daginn eftir á sveitakrá sem er kanínusafn, og svo ferðina til hjarta Serbíu. Sveitina hennar Marijönu.  

En vona að einhver hafi haft af þessu gaman.  Og verðið örlítið fróðari um land sem hefur verið okkur fjarlægt, en þó svo mikið í fréttum hér fyrir nokkru.  Það voru öðruvísi fréttir.  En ég upplifði landið og fólkið allt öðruvísi en þar var gefið til kynna. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Skemmtileg frásögn og fallegar myndir.  Til hamingju með brúðkaupið. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 8.8.2009 kl. 02:22

2 identicon

Kæra Ásthildur. Yndislegur pistill um fallega athöfn. Hafðu þökk fyrir að leyfa okkur að njóta þessa með ykkur. Innilegar hamingjuóskir og kveðjur úr Borgarfirðinum.

Arndís Ásta Gestsdóttir (IP-tala skráð) 8.8.2009 kl. 02:47

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir það Jóna Kolbrún mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.8.2009 kl. 02:49

4 identicon

Takk elsku Cesil fyrir að leyfa okkur alltaf að koma með ykkur í ferðalögin. 

Knús í kærleikskúluna

Kidda (IP-tala skráð) 8.8.2009 kl. 08:51

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Kidda og Dísa mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.8.2009 kl. 09:57

6 identicon

Kærleikur umvefur þig allstaðar Ásthildur mín.Í kúlunni,og handan hafs.Kveðja til þín og til hamingju með allt saman.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 8.8.2009 kl. 12:03

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir þessi hlýju orð Ragna mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.8.2009 kl. 13:24

8 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk fyrir flottar myndir og bestu hamingjuóskir með brúðkaupið.

Sigurður Þórðarson, 8.8.2009 kl. 13:29

9 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Takk fyrir 'Asthildur mín, alveg yndisleft að fá að fylgja ykkur á ferðalaginu.Og til hamingju með herligheitin.

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 8.8.2009 kl. 14:15

10 identicon

Óska ykkur til hamingju með þau, þetta hefur verið yndislegur dagur og öll ferðin. Takk enn og aftur fyrir að mega fylgjast með.

Dísa (IP-tala skráð) 8.8.2009 kl. 15:46

11 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

ja hérna elsku vinkona, þetta hefur verið stórkostleg upplifun fyrir ykkur.
Hjartanlega til hamingju og takk fyrir að leifa okkur að vera með.

Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.8.2009 kl. 19:19

12 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Hjartanlega til hamingju með soninn og tengdadótturina Ásthildur, mikið eru þau falleg og flott klædd, og litli prinsinn alveg dásamlegur, og fötin hans meiriháttar.  Það er líka yndislega falleg myndin af þér og brúðurinni.  Og flottur dansinn þeirra brúðhjóna, maður sér alveg klassatakta og lokin flott hjá þeim. 

 Það er svo mikil virðing yfir þessu brúðkaupi en samt svo mikill húmor, fegurð og gleði, samanber dansinn og kakan.  Og svo það,  að,  Presturinn batt þau semsagt í hjónaband,  í orðsins fyllstu merkingu,  sérkennilegt. 

 Þetta hlýtur að hafa verið alveg dásamleg upplifun.  Þú segir frá svo mörgu sem maður hefur ekki íhugað fyrr.  Þakka þér kærlega fyrir að deila þessari merkilegu ferðasögu með okkur hér á blogginu.  Og enn og aftur til hamingju með þetta allt  saman.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 8.8.2009 kl. 23:46

13 Smámynd:

Glæsilegt brúðkaup og stórskemmtilegar myndir  Ég þurfti aðeins að hugsa til að skilja fjölskylduböndin en þau eru svo ekkert flóknari en hjá flestum öðrum. Glæsilegt par og flottur brúðarkjóll. Til hamingju með þau

, 9.8.2009 kl. 08:54

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Dagný mín.

Lilja Guðrún mín, svo sannarlega var þetta stórkostleg upplifun.  Ég fór að heimsækja þjóð sem var nánast búið að telja okkur trú um að væru illmenni og nauðgarar.  En hitti fyrir elskulegt fólk, með ríkulegar tilfinningar og hjartað á réttum stað.  Þeir voru líka ósáttir við að heimurinn hefði ákveðið að þeir væru vondu gæjarnir og Króatar góðu.  Það er ekkert svoleiðis.  Menn lenda í aðstæðum sem gerir þá að einhverju sem er ekki þeirra.  Ég er ánægð með að hafa farið þarna og heimótt einmitt þetta fólk og að það sé orðið tengt mér.  Takk fyrir hlý orð.

Takk Elsku Milla mín.

Takk Dísa mín og já þessi ferð var dásamleg.

Takk Sirrý mín.

Takk fyrir það Siggi minn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.8.2009 kl. 09:43

15 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Hjartanlega til hamingju með þetta allt saman. Þvílíkt gaman að fá að sjá inn í þennan heim, smá kíkk inn í þjóðina og þetta dásamlega fallega brúðkaup.

Takk kærlega fyrir að leyfa okkur "með í ferðalagið".

Ragnhildur Jónsdóttir, 10.8.2009 kl. 09:36

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mín er ánægjan Ragnhildur mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.8.2009 kl. 11:12

17 identicon

Þeir sem hafa áhuga þá er hér smá brot

http://www.youtube.com/watch?v=7_hX_EoZ9sI

Eihverja hluta vegna var lagið sem var notað höfundavarið hjá youtube og var þetta lag valið í staðin

Bjossi (IP-tala skráð) 11.8.2009 kl. 09:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 83
  • Frá upphafi: 2020991

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband