Telpur og túlípanar.

Ásthildur hefur tekið upp á því að vilja máta prinsessufötin frá stóru systur.  Hún er ef til vill að breytast úr skæruliða og grallara í prinessu, ég vona samt ekki, því hún er frábær eins og hún er.

IMG_3361

en Lababæ er nú samt mest í uppáhaldi.

IMG_3362

Áhuginn leynir sér ekki Smile

IMG_3364

HEhehehe....

IMG_3365

Það er bara einn þáttur í Lababæ sem hún er hrædd við, og það er þegar Glanni leikur geimveru, þá fer hún venjulega fram, en gægist af og til inn um dyrnar, eða kallar í ömmu til að sitja hjá sér, eða í síðasta lagi, einfaldlega slekkur á sjónvarpinu.  En hún deyr ekki ráðalaus.

IMG_3366

En hún getur nú líka verið flott...Heart

IMG_3367

Þegar hún vill svo við hafa.

IMG_3370

Auðvitað þarf hún líka að máta Sollu stirðubúningin.

IMG_3373

Og svo dansar hún með músikinni. Heart

IMG_3376

Stóra mín lætur sér fátt um finnast, hún er klár í að fara á leikskólann.  Annars er hana farið að hlakka mikið til, því pabbi kemur á morgun, og verður með þær hér í kúlunni, meðan við afi skreppum suður.  Það verður gaman fyrir þau öll að fá að vera saman.

En sem betur fer tókst mér að fara að setja niður laukana.  Eða mínir menn. Ég tímdi ekki að skemma sumarblómabeðin í haust, svo snjóaði, en nú er hann loksins farin svo hægt er að koma laukunum niður.

IMG_3377

Það eru engin vettlingatök hjá mínum mönnum við að koma laukunum niður í moldina.

IMG_3378

ég hef nú grun um að innst inni finnist þeim gaman að þessu.

IMG_3379

Að minnsta kosti er ég alveg viss um að þeim finnst gott að horfa yfir störfin sín í vor.

IMG_3382

Þegar túlípanabærinn skartar sínu fegursta.

IMG_3384

Vona að þið eigið góðan dag mín kæru. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.11.2008 kl. 14:42

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk fyrir mig

Ásdís Sigurðardóttir, 3.11.2008 kl. 14:47

3 identicon

Vona að ég komist vestur í vor og fái að njóta haust verka þinna (ykkar)   Kv.úr Borgarfirði..Steini Árna.

Þorsteinn Árnason (IP-tala skráð) 3.11.2008 kl. 14:54

4 Smámynd: Laufey B Waage

Gott að eiga marga menn. Hvern öðrum duglegri og myndarlegri.

Laufey B Waage, 3.11.2008 kl. 20:30

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Alltaf jafn gaman að koma hér við.  Knús á ykkur í Kærleikskúlu

Sigrún Jónsdóttir, 4.11.2008 kl. 00:39

6 identicon

Sæl Ásthildur,

 Flott sem fyrr.

Kærleikskveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 03:16

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 4.11.2008 kl. 09:55

8 Smámynd: Herdís Alberta Jónsdóttir

Bara að kvitta fyrir mig og senda ástarkveðjur vestur.

Herdís Alberta Jónsdóttir, 4.11.2008 kl. 11:34

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Dásamlegar telpur kær kveðja.

Kristín Katla Árnadóttir, 4.11.2008 kl. 11:43

10 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Krúttlegar stelpur  og flottir karlarnir að setja niður túlípanana verður gaman að sjá afraksturinn næsta vor

Guðborg Eyjólfsdóttir, 4.11.2008 kl. 12:23

11 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Flott íþróttastelpa hún Ásthildur. Ég er viss um að hún verður líka flott prinsessa. Hún mun örugglega geta skipt sér; prinsessa eða grallari, eftir þörfum  Til hamingju með að vera búin að koma túlipönunum niður. Það verður dásamlegt að sjá þá kíkja upp í vor  Knús á þig

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 4.11.2008 kl. 14:08

12 Smámynd: Jóhann Elíasson

Alltaf er jafn gott fyrir sálartetrið að fara inn á síðuna þína mér líður alltaf betur sama hvað gengur á hjá mér.  Innilegar þakkir.

Jóhann Elíasson, 4.11.2008 kl. 18:22

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott að vita Jóhann minn.  Takk

Já ég er vill um það líka Sigrún mín, þessi stelpa er ótrúlega kraftmikil

Já Guðborg mín, bærinn skartar sínu fegursta á vorin.

Takk sömuleiðis Katla mín

Takk Herdís mín, knús á þig, gaman að sjá þig kíkja við

Knús Hrönn mín

Kærleikskveðja til þín líka Þói minn.

Knús til baka Sigrún mín

Amm þeir eru flottir karlarnir í áhaldahúsinu Laufey mín.

Já þá kíkir þú við Þorsteinn minn.

Knús Ásdís mín

Knús Jenný mín

Já Búkolla mín, reiðin er víst í okkur öllum.  Knús á þig elskuleg.

En ég hef verið í ati í dag, Hanna Sól var lasin, og Ásthildur kvefuð, svo ég gerði víst ekki mikið meira í dag en að hugsa um þær.  Og orkan eftir því hehehe... en pabbi þeirra kom áðan og ætlar að vera hér meðan við skreppum suður, við förum eldsnemma í fyrramálið af stað.  En ég ætla að lofa sjálfri mér því að kíkja aðeins á ykkur seinna í kvöld, þegar telpurnar eru komnar í ró.  Sjáumst þá elskuleg mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.11.2008 kl. 18:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband