Hið daglega kúlulíf.

Dagurinn í dag var yndislegur eins og allir hinir núna á undan.  Ég fór í vinnuna mína, pantaði áburð upp á sumarið, og eftir það fór ég og priklaði, Elli minn náði í börnin, ég vann með þremur pólverjum, sem eru að prikla með mér.  Þeir eru ljúfir og rosalega duglegir allir saman.  Svo fór ég á fund hjá Staðardagskrá  Agenda21, en ég var skipuð í þá nefnd eftir siðustu kosningar.  Við höfum verið að vinna á fullu að aðlaga Staðardagskrána að áherslum bæjarins í umhverfismálum.  Nú fengum við nýtt verkefni að svara spurningum í sambandi við Aðalskipulag 2008 - 2020.  Skemmtilega vinna og gefandi. 

En svo eru það börnin og heimilið.

IMG_5524

Leikskólinn, það er sko ekki sama í hverju maður fer í skólann.  Það þarf að vera prinsessulegt... eða þannig.

IMG_5525

Hér er allt til reiðu, sænginn pelinn og barnið LoL Svo og græna teppið.

IMG_5527

Og þá er maður klár í slaginn.

IMG_5528

Eins og sýningardama, húfan er sérhönnuð af Úlfi, og saumuð.

IMG_5529

Svona var veðrið í dag, hið daglega veður, sem er svo rosalegt á Ísafirði, að fólk neitar að senda börnin sín í fótbolta í júní, vegna snjóflóðahættu.

IMG_5530

Og krókusarnir gæjast upp úr moldinni, og brosa móti sólinni.

IMG_5531

Jamm hér má sjá manngert fjall. 

IMG_5532

Hér eru svo nokkrar kvöldmyndir, teknar nú fyrir nokkrum mínútum síðan.  Þessi rauði litur er af ljósastaurunum.

IMG_5533

Setur samt skemmtilegan svip á þessar kvöldmyndir. En hið fræga Ísafjarðarlogn sést vel á þessum myndum.

IMG_5534

Já þetta er útsýnið mitt. 

og ég segi bara góða nótt.Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Góða nótt kúlukona, megi fagrir draumar sækja þig í nótt

kv. Linda litla

Linda litla, 22.4.2008 kl. 23:07

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Búkolla mín ég er EKKI að grínast, það átti að halda eitthvað polla-púkamót í knattspyrnu, og þá kom þetta, að foreldrar þorðu ekki að senda börnin út af snjóflóðahættu.  Jamm þetta voru foreldrar út Reykjavík.

Takk Linda mín elskuleg.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.4.2008 kl. 23:10

3 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Þetta manngerða fjall er svo hreint, það er sjaldgæf sjón, að sjá svona hreint manngert fjall,  hér um slóðir. -   Eins og venjulega eru þetta fallegar myndir, af fögrum og friðsælum stað.  Góða nótt

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 22.4.2008 kl. 23:26

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Umm, lognið.  Reyndar var rauður himininn í vestrinu, hérna í borginn í kvöld, mjög fallegur.

Góða nótt Ásthildur mín

Sigrún Jónsdóttir, 22.4.2008 kl. 23:28

5 Smámynd: Heiða  Þórðar

Stórkostlegt útsýni - fallegt fólk og skemmtilegar myndir. Góða nótt elskan.

Heiða Þórðar, 22.4.2008 kl. 23:30

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.4.2008 kl. 23:35

7 identicon

Hélt nú að fólk hefði meiri skynsemi en þetta með flóðahættu í júní

Myndirnar sýna vel hve veðrið getur verið gott fyrir vestan allt árið.

Hvernig er það, tekurðu ekki að þér að prikla fyrir þá sem nenna því ekki

Knús í hamingjukúluna

Kidda (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 23:38

8 Smámynd: Brynja skordal

oh langar svo vestur þegar ég sé þessar fallegu logn myndir og fegurð fjallana En það kemur að því að ég rúlla vestur ekki spurning með það fyrirsæturnar fallegar að vanda hafið góða nótt innan um fallegu fjöllin

Brynja skordal, 23.4.2008 kl. 00:02

9 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Bíi frændi segir að það sé alltaf gott veður á Ísafirði....líka þegar er ekki flogið, og ekki lýgur hann og ekki þú heldur þannig að ég trúi ykkur bara áfram Fallegar myndir eins og alltaf og kúlan verður alltaf meira og meira spennó hjá mér og enn meira spennandi fólkið sem í kúlunni býr......Risaknús á flotta fólkið í flottu kúlunni í flotta veðrinu

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 23.4.2008 kl. 00:05

10 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Smá viðbót, þar sem amma mín var að vestan var ég alin upp við að fá að heyra með reglulegu millibili að hvergi væru aðalbláberin betri en fyrir vestan og úthafsrækjan engu lík

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 23.4.2008 kl. 00:16

11 Smámynd: Helga skjol

Knús á kúlubúana

Helga skjol, 23.4.2008 kl. 06:23

12 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Sunna Dóra Möller, 23.4.2008 kl. 09:22

13 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Knús í kúlu

Hrönn Sigurðardóttir, 23.4.2008 kl. 09:33

14 Smámynd: G Antonia

Flottar myndir eins og venjulega, maður kemur ekki að "tómri" kúlunni hjá þér Ásthildur mín. Fallegar fjölskyldumyndir og landslagsmyndir..... og alltaf gott veður þarna hjá ykkur.
Segi bara Gleðilegt sumar á morgun (er að skreppa til útlanda aftur i viku)..... sumarknús**

G Antonia, 23.4.2008 kl. 09:45

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll, yndislegt að fá öll þessi hlýju knús í morgunsárið.  Þið eruð æði  Knús á ykkur allar á móti.

Elín mín, það ER alltaf gott veður á Ísafirði  Og aðalbláberin eru best og inndjúpsrækjan, reyndar, meðan hún var og hét.  Nú er þroskurinn búin að klára hana, því það má ekki veiða hann, og þá þarf hann að éta eitthvað áður en hann étur sjálfan sig.  Jamm skrýtin þessi friðun. 

Einmitt Lilja mín, þetta fjall vakti einmitt athygli mína af því að það var svo hvítt og flott.

Brynja mín, það er örugglega komin tími á að rúlla vestur.

Hehehe Kidda mín komdu bara með plönturnar og ég skal prikla þær fyrir þig.

Sigrún, Heiða, Jenný Sunna Dóra, Helga, Hrönn Risaknús á ykkur allar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.4.2008 kl. 09:52

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sömuleiðis G Antonía mín, sumarknús til þín líka, og innilega góða ferð og góða skemmtun.  og takk.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.4.2008 kl. 09:57

17 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk fyrir ævilega góðar myndir Ásthildur mín, ertu farin að sjá glitta í græna litinn í fjallinu.?
                              Kveðja vestur.
                                  Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 23.4.2008 kl. 10:47

18 Smámynd: Katrín

Æ mikið er nú lífið fyrir sunnan orðið fólki flókið  Eru allir hættir að tengja? Halló Vestfirðir eru á Íslandi ´nu góða

Katrín, 23.4.2008 kl. 11:14

19 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei Emilía mín, það er ekki enn farið að sjá í grænt, en snjórinn er óðum að hverfa í sólinni og hlýjunni.

Já ennþá eru þeir það, hvað sem verður Katrín mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.4.2008 kl. 12:43

20 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

 Góða nótt og kominn dagur!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 23.4.2008 kl. 14:00

21 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég var að reyna að finna sterkt,rosalega sterkt lýsingarorð yfir þá staðreynd að fólk hafi ekki þorað að senda börnin vestur vegna snjóflóðahættu í júní.Fann ekkert annað en heimska.....mikil heimska.

Frábæerar myndir af frábærum stað og falllegu fólki.

Solla Guðjóns, 23.4.2008 kl. 16:22

22 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Hallgerður mín

Já Jóhanna hehehe komin dagur, og hann er yndæll.

Takk Jóhanna mín.

Jamm það er heimska af stærstu gráðu ever að halda að það geti komið snjóflóð á Ísafirði í Júní.   Takk fyrir mig,

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.4.2008 kl. 16:48

23 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég held að ég hafi spurt að þessu áður. HVAÐ í ósköpunum er að prikla? Flottar myndir af frábæru útsýni og íðilfögrum börnum.

Helga Magnúsdóttir, 23.4.2008 kl. 17:10

24 Smámynd: Tiger

  Ég er mjög hrifinn af vorinu, þegar allt byrjar að stinga upp kollinum og fuglarnir æða um allt með söng og æslagangi. Tala nú ekki um þegar fyrsti sláttur hefst og maður finnur fyrsta ilmangan af nýslegnu grasi.. æði!

Það er nú meiri dugnaðurinn í þér Ásthildur mín. Með stærðar heimili með fulltaf börnum - mikill hamagangur og mikil gleði - líka með gróðurhúsalæti - og svo bætist á störf á öðrum vettvangi sem nefndum fylgja! Krafturinn í þér yndislega kona!

Ég er handviss um að þínir Pólverjar séu flottir á því, enda eru Pólverjar nú upp til hópa til mikilla fyrirmynda þó alltaf séu svartir sauðir innan um - líkt og með okkur sjálf. Gott að vita að þú hefur aðstoð við að "prikla" - en hmmm... hvað er að prikla? Eigðu yndislegan dag elskulegust og knús á þig. P.s. myndirnar eru yndislegar eins og alltaf!

Tiger, 23.4.2008 kl. 17:24

25 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Krakkar mínir að Prikla er að dreyfplanta, þegar maður sáir fræjum þá sáir maður mörgum fræjum í einn kassa, svo þegar þessar litlu elskur koma upp, þá verður allof þröngt um þær, því þær þurfa sitt pláss.  Þá þarf að taka þær upp og setja í sér potta, hverja um sig, stundum nokkrar saman, en stundum eina og eina.  Þetta er mikið og erfitt verk, en skilar miklum árangri, þegar þau vara að vaxa og sýna sig í fegurð og þokka.

Knús á þig TíCí minn og Helga, pólverjarnir eru góðir starfsmenn, ég hef líka unnið með fleirum t.d. í fyrra við að setja niður haustlauka, og það er sama hvað þeir vinna, þeir gera það fljótt og vel, og það þarf ekki að segja þeim sama hlutinn nema einu sinni. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.4.2008 kl. 18:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 2020867

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband