Nei er svarið mitt.

Veit ekki um ykkur, en það sem blasir við mér er að Samfylkingin ætlar sér á einhvern hátt að ná forsetaembættinu núna svona mitt i allri niðurlægingunni með flokkinn þann, þá er svona einhver örvænting í gangi.  Svona smá leikrit samið í bakherbergjunum frægu, þar sem allir hlutir eru plottaðir fram og til baka, ekki bara þessi flokkur heldur er þarna á ferðinni allur fjórflokkurinn, hann þekkir lítið annað en einmitt þessi reykfylltu bakherbergi til að ná vopnum sínum, skiljanlega, auðvitað, hver vill ekki völd og góða stöðu?

Málið er bara þetta afsakið orðalagið, en Samfylkingunni virðist vera mikið í mun að fá forsetastólinn. Álíta sennilega að það geti komið þeim úr krýsunni.  Það er bara ekki þannig.  Fólk virðist vilja forseta sem er ekki pólitikus.  

Rétt eins og almenningur hefur hingað til hafnað Sjálfstæðiskanditötum þá virðist vera að sá sami almenningur vilji ekki fá pólitíkusa á forsetastól núna hvorki fjórflokkinn né neina aðra slíka.  

Það mun því verða einhver íslendingur utan þessa vanabía sem mun hljóta hnossið að þessu sinni, vonandi einhver óumdeild, sómakær manneskja sem pöpullinn velur sér sem íbúa á Bessastöðun næsta sumar. 


mbl.is Bryndís íhugar forsetaframboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála þér Ásthildur, algörlega.

Hvernig líst þér annars á prestinn eða Sturlu..??

Finnst þeir báðir koma til greina, allavega presturinn.

Kv,

Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 10.3.2016 kl. 22:23

2 Smámynd: Stefán Þ Ingólfsson

Kona á að verða næsti forseti svo jafnréttis sé gætt.

Stefán Þ Ingólfsson, 10.3.2016 kl. 22:46

3 identicon

Hvort næsti forseti verður kona eða karl finnst mér engu máli skipta. Kosin verði sá sem hæfastur er verði það kona er það gott, eins ef það er karl.

Filippus Jóhannsson. (IP-tala skráð) 10.3.2016 kl. 23:17

4 identicon

Stefán..!!

Þetta embætti hefur ekkert með "jafnrétti" að gera.

Ef við ætlum að setja okkur í þá villu, þá skiptir engvu

máli hvaða hæfileika eða menntun fólk hefur, ef

jafnrétti ætti að ráða för, bara að því hún sé kona.

Jafnrétti næst ekii með ójafnrétti.

Hæfasti einstaklingurinn hlýtur að veljast með kosningu.

Svo einfalt er það.

Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 11.3.2016 kl. 00:34

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sigurður ég gæti alveg sætt mig við bæði Sturlu og prestinn, en minn óska forseti er Jóhannes Björn.  Get auðvitað alveg sætt mig við konu i þessu embætti, en hef ekki séð neina frambærilega sem hefur gefið kost á ser.   

Stefán mig skiptir engu máli hvort um karl eða konu sé að ræða bara ef það er sátt um viðkomandi og hún se frambærileg.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.3.2016 kl. 06:54

6 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Forsetakosntingar eru of opnar fólki sem hefur enga getu til að valda embættinu.

 Þarna vantar að fólk hafi mentun- framtak og se ekki í almennum vandræðum.

 Skúringakonur þurfa helst stúdentóf.  EN FORSETI GETA ALLIR ORÐIÐ VEGNA FORMGALLA .

Erla Magna Alexandersdóttir, 11.3.2016 kl. 19:25

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Reyndar þegar þú segir það Erla mín, þá er þetta rétt hjá þér.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.3.2016 kl. 19:34

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Margir hafa ekki íslenskuna á valdi sínu.Algengustu villur eru beygingar og oft einfaldar á nafnorðum. 

Helga Kristjánsdóttir, 12.3.2016 kl. 03:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband