Kosningar - úrslit - og meðhöndlun fjölmiðla á framboðum.

Þetta eru góðar fréttir.  Með nýju fólki verða ný og betri vinnubrögð. Ég óska Í-listanum og ísfirðingum til hamingju með þetta.  

En meðan við kusum okkur nýja bæjarstjórn, var verið að skipta um forseta í El Salvador.  Fráfarandi forseti har Cartegena De Funes, en nýji forsetinn er Salvardor Cánchez Cerén. Fimmta hvert ár er nýr forseti settur í embætti þann 1. júní.  Það var því mikið um veisluhöld og gleði í El Salvador í dag.  Varaforseti er Oscar Damuel Ortiz Acencio, þessir menn eru báðir vel liðnir í El Salvador, nýji forsetinn hafði unni að því í síðustu borgarastyrjöld að færa völdin nær fólkinu.  Fyrir fimm árum var skipt um meirihluta, en í ár er sami meirihluti við völd og áður.  

 Var að horfa á herlegheitin í beinni útsendingu.  

En að okkar fólki.  það voru frábærar fréttir að samstarfsflokkar Frjálslyndaflokksins(Dögunar), Vinstri grænna, Samfylkingar og óháðra skyldu fá hreinan meirihluta.  Í fyrsta lagi treysti ég þessu fólki algjörlega til að standa við stefnumál sín, en svo má líka segja að þegar um hreinan meirihluta er að ræða, þá þarf ekki að semja um málefnin við aðra.  Samstarf þessara flokka hefur gengið hreint ágætlega síðasta kjörtímabil.  

Ef til vill er pólitíkinn að þynnast út og hrærast meira saman.  Vonandi kemur eitthvað gott úr úr því, og klíkuskapur minnkar að sama skapi.  Vissulega er áhyggjuefni ef fólk gefst upp á að mæta á kjörstað til að sinna þegnskyldum sínum og veita stjórnvöldum aðhald.  En stjórnmálamenn geta svo sannarlega sjálfum sér um kennt, því það eru þeir sem hafa virt almenning að vettugi eftir kosningar, þó loforða flaumur hafi verið yfirfljótanlegur fyrir þær.  

Það er þess vegna sem er sorglegt að fólk skuli ekki gefa nýjum framboðum meiri gaum, því flest þeirra hafa unnið mikið starf við að byggja upp góð málefni og hafa viljann til að gera vel.  

Enn verra er þegar fjölmiðlar beinlínis beita sér gegn ýmsum framboðum.   Eða reyna að tala framhjá slíkum.  Það er að mínu mati auðvirðilegt, því fjölmiðlar hafa skyldum að gegna við almenningi um að upplýsa öll um framboð og hvað þau standa fyrir.  Ég nefni enginn nöfn, en þeir sem hafa hagað sér með þessum hætti vita sjálfir hvað þeir hafa gert, og ættu að skammast sín.  

Svo eru þetta jafnvel fjölmiðlamenn sem eru að kvarta yfir klíkuskap ráðamanna og skort á lýðræði, þeir ættu svo sannarlega að líta í eigin barm.  

Það er nefnilega ömurlegt afskipti að vera búin að leggja nótt við dag við að vinna af heilindum við að setja saman málefnasamning sem skiptir fólkið í landinu máli og fá svo ekki tækifæri til að koma þeim á framfæri.  Stundum finnst mér eins og fjölmiðlamenn séu að reyna að stjórna því hverjir nái kjöri, en ekki að vera hlutlausir og kynna alla kosti.  

Ég lýsi hér með fyrirlitningu minni á slíkum fjölmiðlamönnum og fjölmiðlum.    

IMG_4200

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Landið okkar á betra skilið en klíkuskap og besservissera sem reyna að viðhalda honum.  Eigið góðan dag elskurnar. Heart 


mbl.is Bætt vinnubrögð á Ísafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Já, þetta var gott og blessað hjá ykkur á Ísafirði eins og annars staðar á landinu. Annað með Reykjavík. Ég er að vona, að Halldór og Sveinbjörg geti komið í veg fyrir, að Reykjavíkurflugvöllur verði lagður niður að fullu og öllu. Mörgum hefur ofboðið framkoma fjölmiðla bæði fyrir og eftir kosningar, eins og að blása út þetta svokallaða "moskumál", sem varð þó til þess, að þær komust tvær inn frá Framsókn. Ég lét þess líka getið í bréfi mínu til Samfylkingarinnar, þegar ég sagði mig úr flokknum, að eitt af því, sem mér mislíkaði, væri, hvernig flokkurinn misnotaði Ríkisútvarpið, eins og það hefði gert, og þverbrotið lög um hlutleysi þess æ oní æ. Mönnum er líka tíðrætt um lélega þátttöku unga fólksins í kosningunum. Á leið minni á kjörstað mætti ég ungu fólki, sem spurði mig, hvað ég ætlaði að kjósa, því að það myndi kjósa eins og ég, því að það hefði ekki hugmynd um, hvað það ætti að kjósa. Ég held, að foreldrarnir, afar og ömmur, þurfi að ræða við börnin um kosningar, og hvaða gildi þær hafa fyrir okkur, og kenna unga fólkinu að gera upp hug sinn, líkt og foreldrar okkar gerðu, þegar við fengum kosningarétt. Ég held, að enginn geti gert það betur en foreldrarnir. Það er ekki hægt að varpa allri ábyrgð á skólana og kerfið, og ekki bæta fjölmiðlarnir um betur. Fjarri því. Mér er stundum um og ó, hvernig málflutningnum er hagað þar. Það þyrfti að veita þeim meira aðhald. Tókstu annars eftir því, hvað Hallgrímur Thorsteinsson misnotaði aðstöðu sína í þættinum sínum að morgni kjördags? Enginn segir neitt við því. Er þetta í lagi? Það er bara spurningin, hvað er hægt að gera í þessu máli.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 2.6.2014 kl. 11:48

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hlusta yfirleitt ekki á Hallgrím Thorsteinsson, finnst hann svo hlutdrægur að ég verð bara reið. En ég heyrði af þessu. Já það er alveg furðulegt að fólk skuli ekki rísa upp og mótmæla svona hlutdrægni í útvarpi allra landsmanna.

Strákurinn minn 17 ára kom heim og spurði mig, amma var það Sjálfstæðismenn sem við eigum að hata? Nei sagði ég við hötum ekki neitt, heldur skoðum málefnin. En þau sem voru að gefa pylsur í Bjartri framtíð sögðu við okkur að Sjálfstæðismenn væru kommúnistar og allt það illa sem til er.

Mér brá, ég held auðvitað að þetta hafi verið sagt í unggæðishætti, en samt hvar er fólkið sem á að vinna með unga fólkinu og koma í veg fyrir svona óhróður.

Auðvitað eigum við að ræða við unga fólkið um stjórnmál og leggja áherslu á að þau kynni sér málefni og efndir. En það þarf líka að leggja áherslu á að fjölmiðlar sýni ábyrgð og tali hlutlaust um flokkana og þau málefni sam þau standa fyrir. Allt annað er ekki í boði.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.6.2014 kl. 13:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 96
  • Frá upphafi: 2021019

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband