17.3.2015 | 12:20
Barcelona fögur borg.
Við vorum komin til Barcelona. Þetta er afskaplega falleg borg. Mínar uppáhaldsborgir hingað til hafa verið New York (Manhattan) og Kaupmannahöfn. En ég held að þessi fallega borg slái þeim báðum við. Við höfðum pantað okkur hótel á netinu sem heitir Quatro Naciones, ágætis hótel sem kostaoði okkur 214.29 evrur fyrir þrjár nætur. Quatro er afar miðsvæðis við La Rambla í miðbænum þaðan sem hægt er að rölta um og skoða, til dæmis gamla bæinn. Þetta er breiðstræti og í miðju hennar eru veitingatjöld í röðum og allskonar uppákomur.
Barcelona er höfuðborg sjálfstjórnarhéraðsins Kataloniu, með 1.6 milljón íbúa í borginni sjálfri en með um 4.5 milljón íbúa á svæðinu öllu. Barcelona er næststærsta borg landsins. Hún var stofnuð sem Rómversk borg. Á miðöldum var borgin höfuðborg County Barcelona.
Hér má drekka vatnið úr krönum.
Barcelona hélt áfram að vera mikilvæg borg. Borgin hefur ríka menningarlega arfleifð og er í dag mikilvæg menningarmiðstöð og mikill ferðamannastaður. Sérstaklega frægar eru byggingarlistaverk Antoni Gaudi og Lluís Domenech i Montaner , sem hafa verið tilnefndir frá UNESCO World Heritage Sites . Höfuðstöðvar sambandsins fyrir Miðjarðarhafið er í Barcelona. Borgin er þekkt fyrir ólympíuleika og heimsklassa ráðstefnur og sýningar og einnig mörgum alþjóðlegum mótum í íþróttum .
Borgaryfirvjld leggja mikið upp úr hreinni borg og gera sitt til þess að halda mengun í lágmarki. Hér eru líka bæði veitingastaðir og salerni tandur hrein.
Sóparar mættir. Hér sést mikið til lögreglu, en það er vinalegt fólk sem spásserar tveir og tvö saman og eru þarna bara til að láta sjá sig. En við urðum samt vör við að það er vel fylgst með, þegar allt í einu komu æðandi 7 lögreglubílar í röð með blikkandi ljós og fyrirgang. En í það heila er borgin friðsæl og falleg.
Aðal ferðamátinn hér eru vélhjól og reiðhjól. Borgin hefur reiðhjól til reiðu á ýmsum stöðum, þar sem fólk getur gripið til þeirra og komist áleiðis og skilað þeim á næsta áfangastað.
Hér má sjá reiðhjól á vegum borgarinnar.
Við vorum afar heppinn að fá gott herbergi við Ramblas, eina af aðalgötum bæjarins, og það var ekkert dýrt 214 evrur fyrir þrjár nætur.
Sum strætin eru svo þröng að þar er einungis hægt að ganga í gegn.
Og húsin eru flest falleg og vel skreytt.
Casa Mila.
Merkilegast þótti okkur samt að skoða arkitektur Gaudis. Hann er svona eins og Hundertwasser í Vín. Allt mjúkar línur og flottar.
Svo segir í Vikipetia.
"Sérstaklega merkileg eru verk arkitektsins Antoni Gaudi , sem hægt er að sjá víða í borginni. Þekktasta verk hans er gríðarlega tignarleg kirkja "Sagrada Familia" , sem hefur verið í smíðum síðan 1882, og er enn fjármögnuð með framlögum frá einkaaðilum. Frá og með 2007, lokið er áætlað fyrir 2026".
Það má geta þess að endalaus straumur ferðamanna er inn í kirkjuna og borgar hver maður um 20 evrur bara fyrir að fara inn, og svipað við að fara upp í turna kirkjunnar, svo fjáröflun ætti að ganga vel.
Við fórum og skoðuðum eina byggingu frá honum, og fórum alla leið upp á þak, og ég sem er svo lofthrædd.
Tröppur upp og tröppur niður, en mikið er þetta tilkomumikið, þó ég væri skíthrædd.
Ég reyndi þó að bera mig mannalega
eða þannig.
Jamm þar var langt að horfa niður og upp.
Gaman að sjá þetta ekki satt?
Svo
Útrýnið er líka flott.
Þassi bygging er alveg óviðjafnanleg. Elli fór og skoðaði hana. Og varð alveg heillaður.
Íburðurinn er alveg ótrúlegur.
Ekkibeit fyrir lofthrædda skal ég segja ykkur.
Svo má labba niður
En þegar maður fer til stórborga og ætlar bara að vera í þrjá daga, er besta ráðið að taka túristastrætí, þeir aka ákveðna hringi í borgum og stoppa á ákverðnum stöðum og þá getur maður skoðað allt það markverðasta, sem annars tæki miklu lengri tíma. Það eru heyrnartól sem maður fær og það er hægt að velja um nokkur tungumál, þar sem sagt er hvað er að sjá.
Við lögðum af stað frá styttunni af Columbusi.
En hún er einmitt í Ramblas stræti. Málið er að hér er hægt að rölta í allar áttir og allt við hendina.
Arc de Triomf
Hér er íþróttamiðstöðin í Barcelona en ekki Stadiumið sem er miklu stærra og tilkomumeira.
En það fara fram heimsmeistarakeppnir og allskonar fótboltaleikir.
Enginn smá bygging þarna.
jamm...
Casa Amatller.
Fyrir þá sem hafa gaman af rómverskum rústum er afar heilleg bygging hér í miðbænum.
Eða eins og segir Barcelona var upphaflega rómversk borg.
En það er alveg að æra óstöðugan að ætla að gera öllu skil hér, en ég mæli eindregið með þessari fallegu og merkilegu borg.
Hér erum við Gaudi saman.
Maturinn er hér góður, en það er svo sem ekkert verið að snyrta lærin fyrir sölu.
Inn í einu af mörgum tjöldum sem voru sett upp við götuna.
Rákumst oft á þennan ferðalang. Fyrst hélt ég að hann væri lifandi, en svo kom í ljós að hann var bara svona velgerður karl anginn.
En nóg um það, þessu fer nú að ljúka. Þó ég gæti haft þetta mikið lengra. En loksins skín blessuð sólin fyrir utan hjá mér, og rokið búið. Það sagði einn starfsfélagi minn í gær sem ég bauð í kaffi, að hann gæti varla hellt í bollan fyrir hristing. Og það var ekki orðum aukið.
Og þá er bara að kveðja í bili. Og vona að þið hafið notið ferðarinnar. Því næst förum við til Osló og í siglingu á risaskemmtiferðaskipi til Keel í Þýskalandi. Eigið góðan dag elskurnar og skál
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 17. mars 2015
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.4.): 0
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar