Munið mótmælafundinn kl. þrjú í dag á Austurvelli.

Munið fundinn í dag kl 15.00.  Klæðið ykkur vel, og takið með ykkur potta og pönnur.  Látið í ykkur heyra.  En verið samt róleg.  Ég verð með ykkur í huganum, því ég kemst ekki, því miður.

Fyrir ykkur sem eruð að spá, eða hugsa hvort þið eigið að fara, þá vil ég segja þetta, ég var þarna síðasta laugardag, og mér leið mjög vel, það er gott fyrir sálina að finna samstöðuna, finna að allt í kring um mann er fólk sem hugsar eins, líður eins.  Það er eiginlega sálarhreinsandi.  Gott að hlusta á ræðurnar sem haldnar eru, hróp fólksins við því sem þar er sagt, til samþykkis.  Það er góð tilfinning.  Þannig að endilega bara drífa sig af stað.

Ég ætla að setja inn nokkrar hrímkaldar róandi myndir sem ég tók í gær.  Við eigum fallegt, yndislegt land, látum ekki svívirða það meira en nú hefur verið gert.  Krefjumst þess að fólkið sem kom okkur í þessa ömurlegu aðstöðu fari frá, og hleypi nýjum aðiljum að, til að bæta og laga. 

IMG_3533

Sólin er lágt á lofti þessa dagana, við munum ekki sjá hana hér fyrr en í janúar.

IMG_3535

En hún mun sýna okkur fallega liti, skreyta fjöllin, himininn og vötnin.

IMG_3538

Drekkið í ykkur kraft fjallanna, og andið að ykkur tærri fegurð þeirra og fáið frið í sálina.

IMG_3539

Ekkert er jafn friðsælt og íslenskir firðir.

IMG_3541

Karlinn í tunglinu vakir líka yfir okkur.

IMG_3545

Við eigum mikið undir því að koma þessum spilltu valdhöfum frá, svo ný sýn fáist á hinar dreyfðu byggðir landsins.  Lýðræði fyrir alla.

IMG_3547

Notið tölvupóst til að senda á stofnanir landsins, með fánanum hans Jóns Steinars.

IMG_3551

Hugsum um framtíð barnanna okkar, ekki viljum við að þau verði skilin eftir skuldug upp fyrir haus, undir bretaveldi. 

c_documents_and_settings_jon_steinar_desktop_hvitur_fani2

Friður veri með ykkur öllum.  Og gangi ykkur öllum vel kl. þrjú í dag. 

Nú er staðfest að Stöð2 mun sýna beint frá fundinum, gott mál. http://visir.is/article/20081115/FRETTIR01/604521488/-1


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rannveig H

OMG hvað þetta eru fallegar myndir. Ég arka til mótmæla í föðurlandi og pels.

Rannveig H, 15.11.2008 kl. 11:39

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vel við hæfi Rannveig mín.  Föðurlandið er náttúrulega best.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.11.2008 kl. 11:55

3 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Mér heyrðist ég heyra í útvarpinu áðan að Stöð 2 mundi sýna beint frá Austurvelli.. sel það ekki dýrara... Alveg stórfurðulegt að RÚV, í eigu landsmanna, skuli ekki sýna þetta beint

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 15.11.2008 kl. 13:56

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

já ég var að heyra þetta líka.  gott mál.  Nei það hefur ekkert heyrst frá Rúv, enda eru þau undir hæl sjálfstæðisflokksins og stjórnvalda.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.11.2008 kl. 13:57

5 identicon

Ég samdi um að fara ekki í dag en tvöföld næsta laugardag. Það er að segja við bæði hjónin En mun þá horfa á stöð 2 í staðinn í dag. Vona bara að enginn ,, skríll,, láti sjá sig þarna og hleypi öllu í bál og brand.

Knús vestur í veturinn

Kidda (IP-tala skráð) 15.11.2008 kl. 14:06

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sigrún Jónsdóttir, 15.11.2008 kl. 14:15

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er ágætt Kidda mín, ég ætla mér að horfa á stöð2 á eftir.  Knús á þig líka

Knús á þig líka hryðjuverkakonan að Westan

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.11.2008 kl. 14:43

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það var sjónvarpað og útvarpað úr öllum áttum, svo það er nokk víst að á er hlustað. Batnandi mönnum er best að lifa. Það var heldur ekki verið að gera lítið úr tölum. Mörg þúsund manns. Ég saknaði breiðari hóp sköruglegri ræðumanna en þetta var friðsamlegt og fór vel fram.

Jón Steinar Ragnarsson, 15.11.2008 kl. 15:55

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm og Jón Steinar ég sá allavega 2 hvíta fána.  Vonandi verða þeir fleiri næst.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.11.2008 kl. 16:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 91
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband