7.10.2008 | 11:59
Í ósigrinum er styrkur hvers manns fólgin... Frá mínum bæjardyrum séð.
Drottningin í Apalandi.
Þegar syrtir að, og menn komast í þrot, þá fyrst reynir á styrk hvers og eins. Hér hafa orðið umskipti, hamfarir segja sumir. Ég vil nú ekki taka svo djúpt í árinni, en samt vil ég segja að þegar Geir H. Haarde segir að ekki hafi farist nokkur maður, þá segi ég á móti, að það getur sá maður ekki fullyrt á þessari stundu, því að það er svo því miður að það brennur við að menn geri eitthvað afdrifaríkt, þegar þeir standa frammi fyrir óleysanlegum vanda. Einnig geta þeir sem eru veilir á einhvern hátt, átt erfitt með að þola svona álag.
Það skal því fara varlega með að fullyrða eitthvað sem menn geta svo ekki staðið við. En eins og svo oft vill verða, þegar kreppir að, þá fara menn að leita að sökudólgum. Og vissulega eru hér sökudólgar á ferð. En þeir eru margir og koma víða að. Ekki ætla ég að réttlæta peningagreifana, en mér finnst samt leitt að heyra þegar fólk hlakkar yfir óförum þeirra. Það lyktar af öfundsýki, sem er ein af dauðasyndunum sjö. Það sem mér finnst samt verst að hugsa til, er, að ef einn af helstu ráðamönnum þjóðarinnar, hefur notað þetta ástand til að freista þess að veita fólki náðarhöggið, fólki sem almannarómur segir að hann hafi notað stöðu sína á óþverralegan hátt til að koma höggi á áður . Sérstaklega ef sá sami maður hefur svo tipsað vini og kunningja, eins og ýjað er að.
Þeir verða að tapa sem eiga, sagði eitt sinn gamall maður hér, sem hafði orðið uppvís að því að taka ýmislegt nytsamlegt ófrjálsri hendi til eigin nota. Og í sjálfu sér er það alveg rétt. Þeir eiga að missa sem eiga. Málið er að hingað til, hefur það verið þannig að þeir sem EIGA hafa sankað að sér því sem þeir sem minna mega sín þarfnast.
Græðgin hefur verið þeirra leiðarljós, og kæruleysi fyrir lífi og limum fólks í kring um þá. Þeir hafa sólundað, og örugglega komið undan fullt af peningum, sem þeir geyma á reikningum erlendis, og bíða betri tíma. Margir þeirra allavega. Þó það sé fjarri mér að hlakka yfir óförum þessara manna, þá get ég ekki vorkennt þeim heldur. Þeir hafa farið eins og engisprettufaraldur yfir bæði landið og nágrennið, og eira engu.
En við skulum ekki gleyma því, að það voru stjórnvöld sem gerðu þeim þetta kleyft, þeir brutu engin lög, þeir kunnu bara að spila á kerfið. Það kerfi sem stjórnmálamennirnir bjuggu til. Stundum sniðið að þörfum greifanna. Eins og til dæmis sjávarútvegskerfið, sem er beinlínis í andstöðu við stjórnarskrána, og felur í sér gríðarlegt óréttlæti og eignaupptöku hins almenna manns í dreyfbýlí. Og jafnvel þótt Mannréttindadómstóll hafi dæmt kerfið óverjandi, þá er ekkert gert til að laga það. Vegna þess að það hentar ekki sjávarútvegsgreifunum. Þeir ætla að gleypa allan kvótann og gína yfir hverjum fisktitti sem í sjónum syndir, meðan stjórnarskráin segir að auðlindir þjóðarinnar séu eign þjóðarinnar. Nei þeim skal verða gert kleyft að drepa niður alla einyrkja landsins, þar til þeir hafa náð öllu í sínar gráðugu krumlur. Ætli þeim verði þá ekki gert kleyft að selja fiskimiðin til erlendra aðila ? Kæmi það ekkert á óvart.
Þess vegna finnst mér einhvernveginn falskur tónn í Geir H. Haarde þegar hann er að tala um að bjarga almenningi í landinu. Hve lengi er hann búin að horfa upp á fólk gert eignalaust úti á landi, án þess að lyfta litlafingri til bjargar. Ég er til dæmis alveg viss um að við værum ekki svona illa stödd, ef fylgt hefði verið eftir tillögum Frjálslynda flokksins um betri sjávarútvegsstefnu.
Er fólk í dreyfbýlinu ef til vill ekki almenningur. Er það það sem verið er að segja ? Spyr sú sem ekki veit.
Það er líka falskur tónn í Þorgerði Katrínu, þegar hún talar um sjávarútveginn sem traustan, þegar hann stendur eiginlega á brauðfótum. Skuldugur upp fyrir haus. Og meðan allir firðir eru fullir af fiski, er mönnum meinað að veiða hann, sér til viðurværis. Fólk hefur staðið uppi eignalaust, og rúið inn að skinni, án þess að forystan hafi haft af þvi minnstu áhyggjur.
Ég geri mér grein fyrir því að ástandið er alvarlegt núna. Og að það slær alla í landinu, og að stjórnvöld eru ekki öfundsverð af þeirri stöðu sem þau eru í í dag. En ég bendi líka á að þessi sömu stjórnvöld hafa haft tíma og ráðleggingar vísra manna nú um langa hríð til að bregðast við. Mjög langan tíma meira að segja, ef marka má orð nokkurra hagspekinga eins og Þorvaldar Gylfasonar og fleiri. En þau kusu að loka eyrunum og gera ekkert. Meira að segja var forsætisráðherran svo óforskammaður að hann stærði sig af því að hann hefði ekki gert neitt, og að það hefði bjargað öllu. Hversu andvaralausir geta menn orðið. Nú eða þessi hallærislegi eltingarleikur um að komast inn í Öryggisráðið, allar þær milljónir sem lagðar hafa verið í það, bæði kostnaður ráðamanna flandrandi um heiminn, svo og gjafir, og styrkir til hinna og þessara þjóða, til að kaupa sér atkvæði.
Og það á sama tíma, og aðstaða aldraðra og öryrkja er með þeim hætti að þeir draga fram lífið, á bótum sem eru ekki sæmandi þessari ríkustu þjóð heimsins, ef maður trúir stjórnvöldum.
Nei við skulum ekki að hlakka yfir óförum annara, en einbeita okkur að því að láta stjórnvöld á okkur skilja að við viljum ekki svona ríkisstjórn, sem situr bara og gerir ekkert, fyrr en út í foræðið er komið svo djúpt, að það þarf haldreipi langt að til bjargar.
Gamli faðir minn hefur tapað miklu fé, svo er um fleiri sem hafa treyst á þessi stjórnvöld að fara með valdið í landinu. Þetta gamla fólk, sem sumt er veilt fyrir, er ómögulegt að segja til um hvernig reiðir af í þessum ólgusjó. Ég óttast allavega um minn föður. Ég vona bara ef hann kemst heill út úr þessu róti, að hann læri að treysta ekki á Sjálfstæðisflokkinn og hans pótintáta endalaust. Að það sé ekki allt sem sýnist í frjálshyggjunni, og einkavæðingunni. Sem betur fer hefur sú stefna komist í þrot, og nú þarf að huga að nýjum leiðum. Það segir sína sögu, þegar orðið "hagræðing" er orðið ógnvaldur sem hríslast eins og kaldur straumur niður bakið á manni. Því það þýðir bara það eitt, að gera einhvern ríkari á kostnað annars. Herða að einum, meðan losað er um hinn. Hagræðing eins og hún hefur verið framkvæmd hér á landi og örugglega allstaðar, hefur ekki verið hagræðing fyrir fólkið í landinu, sem forystunni er svo umhugað um núna, heldur til að þeir sem fara með völdin fái meira í sinn vasa. Og gildir þá einu hvað verður um þá sem eru fórnarlömb hagræðingarinnar.
Nei það er vonandi að þetta ástand verði til að bæta siðferðið í landanum. Að það verði til að opna augu fólks fyrir því hve lánið er fallvalt. Og hvað græðgin getur áorkað, þegar hlúð er að henni með öllum tiltækum ráðum.
Ábyrgðin er fyrst og fremst stjórnvalda, sem hafa hagað sér eins og dansendur kring um gullkálfinn, hafa lokað öllum skynfærum fyrir hættunni sem allir áttu að vera löngu búnir að sjá. Ekki hlustað á varnaðarraddir. En hlustað vel á þá vini sína, sem hafa eignast Íslands smátt og smátt, á kostnað hins almenna borgara. Þess vegna segi ég enn og aftur, það er einhver falskur tónn í rödd sem núna allt í einu vill sátt og allir eiga að leggjast á eitt, til að bjarga málunum. Gegnum tíðina hefur fólkið í landinu lagt sitt af mörkum, með þolinmæði og þraustsegju. Þrælað í sveita sína andlitis, og ekki orðið vör við þetta góðæri sem alltaf er verið að tala um. Og svo núna þegar veislan er búin, þá eiga þeir sem stóðu fyrir henni, að þrífa sjálfir eftir sig, þeir eiga svo að gera meira, þeir eiga að segja upp og fara. Hér þarf fólk sem þorir og getur tekið á vandanum. Það er allavega komin tími til að skipta út liðinu, hleypa ferskari vindum inn í stjórnmálin og fara að skilja að afdankaðir pólitíkusar eru ekki hæfir til að gegna lykilembættum í þjóðfélaginu, meðan ráðamenn eru að stæra sig af því að eiga velmenntað og velgefið fólk, þá þarf líka að treysta þeim til að fást við þau verkefni sem þau hafa menntað sig til. Slíkt á að vera sjálfsagt í þjóðfélagi árið 2008.
Lifið heil og megi allir góðir vættir vaka með ykkur öllum og vernda, á þessum hrollkalda haustdegi. Við skulum muna að öll él birtir upp um síðir, og við skulum líka átta okkur á því, að nú sem aldrei fyrr er einmitt tíminn til að fara að huga að því einfalda og smáa. Hlú að hversdagsleikanum, og sjá að hamingjan er ekki fólgin í því sem mölur og ryð fá grandað. Heldur í því að hlú að fjölskyldu og vinum. Hætta að hlaupa eftir innantómum lífsgæðum, en þess í stað halda utan um það sem næst manni er, og svo brosa sig í gegnum þennan vanda. Hann lagast, og vonandi kennir hann okkur sem flestum hve lífið er í raun og veru dýrmætt og hve það er mikilvægt að þekkja sjálfan sig, og sálina sem þar býr. Knús á ykkur öll.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 57
- Frá upphafi: 2023221
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er náttúrlega bara frábær grein hjá þér, sammála hverju orði & ekki orð um það meir.
Steingrímur Helgason, 7.10.2008 kl. 12:38
Mjög góð grein Ásthildur.
Hér syðra er reyndar ekki hrollkaldur haustdagur eins og er, - heldur bjart og hlýtt.
Laufey B Waage, 7.10.2008 kl. 13:00
Þessi grein er frábær, er alveg sammála þér
Björn Bjarnason, 7.10.2008 kl. 13:04
Þú kemur inn á margt sem er búið að fljúga í hugum landans.....
Kannski er ég óskaplega saklaus sál.....en ég spurði mig....hvar eru allir peningarnir sem Ísland gærdagsins átti.........
Skemmtilegar myndir frá reyjkanesi hér að neðan.Ég væri til í að vera að stinga mér í slímuga laugina NÚNA
Solla Guðjóns, 7.10.2008 kl. 13:14
Góð grein og svo satt. Knús á þig og í kúluna
Kristín Katla Árnadóttir, 7.10.2008 kl. 13:38
Þetta er alveg frábær pistill hjá þér, eins og talað frá mínu hjarta. Nema ég gæti aldrei komið þessu svona vel frá mér. Takk fyrir þetta.
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 7.10.2008 kl. 14:14
Jamm.... ef við gætum nú sparkað þeim út.
Það fer sæluhrollur niður eftir bakinu á mér við enda greinarinnar. Enda ég ein af þeim heppnu sem á ekkert og skulda enn minna og þykir alveg svakalega vænt um mína.......
Elín Helgadóttir, 7.10.2008 kl. 14:50
Takk öll sömul. Já ég vona bara að flestir komist sem minnst skaddaðir út úr þessu öllu saman. Eitt bros getur gert kraftaverk. Og aldrei er meiri þörf á brosi og hlýju, en einmitt þegar erfiðleikar steðja að. Knús á ykkur öll.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.10.2008 kl. 15:00
Heyr heyr, ég seigji eins og einn hér að ofan í moggan eða fréttablaðið með þessa grein ekki spurning, svo sönn.
Knús á þig og þína ljúfan mín
Helga skjol, 7.10.2008 kl. 15:42
Takk Helga mín, ég get reynt að senda hana inn. Svo er annað mál hvort hún fæst birt.
Knús á móti, flott mynd af þér.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.10.2008 kl. 15:53
Það var gott að lesa þennan pistil Ásthildur mín
Sigrún Jónsdóttir, 7.10.2008 kl. 16:18
Takk fyrir það Sigrún mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.10.2008 kl. 18:19
Virkilega góð og falleg grein hjá þér Ásthildur Cecil mín. .. Tek undir þín orð ..og sendi þér knús á móti *
G Antonia, 7.10.2008 kl. 21:11
Takk fyrir þessa fínu grein Ásthildur mín. Þú ert mikill og góður penni og það hef ég svosem alltaf vitað.
Gangi þér og þínum allt í haginn, alltaf.
Bestu kveðjur úr Mosó frá Kalla Tomm.
Karl Tómasson, 7.10.2008 kl. 21:26
Frábær hugleiðing hjá þér, varla við öðru að búast frá þér
Já.. þessi grein á svo sannarlega erindi í blöðin þar sem sem flestir vonandi lesa þessa gagnrýni, sem er svo frábærlega lögð á borð fyrir lesandann... Takk fyrir bloggið þitt Ásthildur. ..Það er gaman að fylgjast með fjölskyldunni þinni og allar þessar skemmtilegu myndir sem prýða síðuna.
Kær keðja úr Borgarfirði.
Steini Árna
Þorsteinn Árnason (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 23:17
Þakka þér þessi skrif. þau eru þér til sóma. Hnitmiðuð og réttmæt eins og þín var von og vísa. Bestu kveðjur í Kúluna. Guðni og Sigrún
Guðni Ásmundsson (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 00:06
Mæltu manna heilust, mín ágætasta westfjarðardrottning! Þú veist hvað skiptir máli.
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 8.10.2008 kl. 02:41
Takk Helga Guðrún mín
Takk Sigrún og Guðni. Bestu kveðjur til ykkar líka, og Sigrún ég er að melta það sem þú baðst mig um. Það kemur strax og ég fæ fyrstu góðu hendinguna. Læt þig vita.
Takk Steini minn gaman að sjá þig hér, bið að heilsa frúnni. Og knús á ykkur bæði.
Takk Kalli minn og bestu kveðjur til þín líka minn kæri.
Takk G. Antonía mín, knús til þín líka.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.10.2008 kl. 11:15
Orð í tíma töluð!!! Snillingur ertu Ásthildur Cesil.
alva (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 11:40
Takk Alva mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.10.2008 kl. 11:57
Takk fyrir og kær kveðja til þín og þinna.
Ásdís Sigurðardóttir, 8.10.2008 kl. 23:52
Knús á þig á móti Ásdís mín. vona að þú hafir það gott.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.10.2008 kl. 09:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.