Á leið á Taekwondomót í Keflavík.

Ég er komin heim aftur eftir frábæra ferð.  Við komum að vísu ekki heim fyrr en um hálf tvö í nótt, ogo ég er ennþá lurkum lamin eftir aksturinn.  En það var fyllilega þess virði.  Ég held að ég segi ykkur söguna í tveimur eða þremur færslum, annars verður þetta svo langt að enginn nennir að lesa.

IMG_5645

Ég var farin að sakna þeirra áður en ég fór af stað.  Þessar myndir eru teknar á föstudagsmorguninn,  litlu telpurnar að gera sig klárar í leikskólann.

IMG_5646

Það þarf ýmislegt að brasa áður en prinsessur eru tilbúnar á leikskólann.

IMG_5648

Vængirnir, kórónan, og svo náttúrulega blóm í hárið. 

IMG_5649

Veðrið var dásamlegt.

IMG_5650

Afi fór með þær á leikskólann.

IMG_5652

Úlfur kveður litlu frænkur sínar. Hann er orðin mjög spenntur að komast af stað.  En hann á að vera í samfloti með hinum krökkunum í smárútu, ég verð svona trússhestur með farangur.

IMG_5655

Tilbúin og bíður eftir að bílinn komi. 

IMG_5661

Planið var að fara inn í Reykjanes til að byrja með, leyfa þeim að fara í sund, og grilla svo, halda því næst sem leið liggur til Keflavíkur.

Þessir svanir voru í Mjóafirðinum, greinilega að koma úr langflugi og biðu eftir að snjóinn leysi við fjallavötnin fagurblá.

IMG_5662

Þar voru líka æður og bliki í tilhugalífinu.  Þegar ungarnir skríða úr eggjunum yfirgefa blikarnir fjölskylduna, og láta æðarkolluna eina um uppeldið.  Þá hópa þeir sig saman líkt og karlpeningurinn í afdrepinu í Smáralindinni LoL Og nýtur lífsins.

IMG_5665

Báran var líka köld og freyðandi.

IMG_5670

En það var notalegt í lauginni í Reykjanesi. 

IMG_5674

Sigga fararstjóri við grillið.  Hún sá svo sannarlega vel um börnin allan tíman.  Þau komust ekki upp með neitt múður og kunnu því bara vel.

IMG_5676

Móðir og sonur, reyndar segist hún ekki birtast á myndum, en ég slæ á þá mýtu hér með. Tounge

IMG_5681

Og krakkarnir tóku hraustlega til matarins, eftir sundsprettinn.  En svo var haldið af stað, suður.

IMG_5689

Það er margt sérkennilegt í landslaginu á ströndum.  Þetta eru áreiðanlega tröll sem dagað hafa uppi fyrir margt löngu.

IMG_5693

Hér er hópurinn yfir utan KFC í Mosó, þar var snæddur kvöldverður. 

IMG_5697

Vorum komin um tíu leytið til Keflavíkur.  Þeir eru skemmtilegir við að finna upp listaverk, og fara ekki troðnar slóðir.

IMG_5699

Hér biðum við eftir því að vera lóðsaðar í skólann þar sem krakkarnir áttu að gista, ég fékk mér gistsingu á B&B, get ekki sofið á dýnu á hörðu gólfi í skólastofu.  En það fór vel um krakkana, og fararstjórinn harkaði af sér.

 Taekwondo félagið á Ísafirði er ekki gamalt.  Það eru svona tvo til þrjú ár síðan ungur maður, fjórtán fimmtán ára, hafði samband við Íþróttasambandi, og spurði hvort hægt væri að gefa honum tíma í íþróttasalnum gamla fyrir taekwondoíþróttina.  Það varð úr, og hann er búin að vera að æfa krakka í tvö eða þrjú ár. Hann er sjálfur sextán ára í dag, sá elsti í liðinu er held ég 23 ára, og svo allt niður í stubbinn sem er 11 ára gamall.  Það er ótrúlegt hvað þessi sextán ára piltur hefur áorkað, og hve hann er ábyrgðarfullur og duglegur ekki eldri en þetta. 

Þau tóku þátt í móti á Selfossi í fyrra, svo þetta er annað mótið sem þau fara á.  Íþróttin er víst nokkuð gömul hér á landi, allavega sögðu akureyringarnir okkur að þeir hefðu verið til í 20 ár.  Stærsta félagið er í Keflavík, en Selfoss er líka mjög virkt.  Það sást að þessi tvö félög voru kröftug.  Margir sem fylgdu krökkunum, og vel haldi utan um allt.

Mótið í Keflavík var sérlega vel skipulagt, og gekk mjög vel fyrir sig, þarna voru um 213 keppendur á öllum aldri.  Og það eru mörg belti, sem þarf að hafa í huga, hvítt með gulri rönd var skilyrðið til að komast í keppnina, svo eru gul belti, blá belti appelsínu gul, rauð, og svört og allt með röndum og slíku, sem ég kann ekki skil á.

En það sem ég tók eftir var breyddinn í félagsskapnum, og hve allir voru samtaka og umhyggjusamir hver fyrir öðrum, enda gengur þetta út á kurteisi, virðingu og hjálpsemi, fyrir utan hreyfingarnar, og keppnirnar. 

Ég sá að þetta er mikil fjölskylduíþrótt, því í stað þess að þar væru einhverjir flokkstjórar og fararstjórar, þá voru það foreldrarnir sem héldu utan um þetta allt saman.  Mér var sagt að Keflvíkingar hefðu verið viku í að undirbúa mótið, og það voru allt saman foreldrar barnanna og þau sjálf sem tóku þátt bæði ungir og gamlir.  Í þessu er ekki kynjaskipting, þar sem stelpur keppa við stráka, og menn keppa upp eða niður m belti og svo framvegis.  Ég sá að stelpurnar stóðu strákunum fyllilega á sporði.  Það var gaman og yndælt að sjá þetta.

IMG_5701

Eftir morgunmat, smurt brauð hjá Siggu fararstjóra var haldið út í íþrótta sal, þar sem keppnin átti að fara fram.

IMG_5704

Það þurfti að fara yfir stöður og spá í keppnina.

IMG_5708

Hita sig upp.

IMG_5718

Teygja sig vel og vendilega.

IMG_5722

Knúsa og auka liðsheildina. 

IMG_5724

Hér er ísfirski hópurinn.  Það sést hve ungt félagið er, því hér eru þeir allir með gul belti. 

IMG_5737

Svo þurfti að fara yfir pappírana, hvar hver átti að keppa, og á hvaða gólfi, en þau voru 3, A.B. og ´C.

IMG_5740

Svona eru menn klæddir í bardaga, spörkin geta verið hörð og óvægin, ef menn eru kappsfullir.  En allir eru samt vinir að lokum.

IMG_5741

Það eru líka öklahlífar, legghlífar, armhlífar og tannhlífar.  Já við erum samt að tala um virðingu, kurteisi og hjálpsemi.  En þetta getur svo sem allt samræmst. Það sást á þessu stórmóti, þar sem allir voru í raun og veru góðir hver við annan.

IMG_5746

En það er barist af hörku.

IMG_5750

En allt eftir settum reglum.

IMG_5751

Hjalti kennari að leggja sínum manni heilræði.

IMG_5753

Hneygja sig og setja í stellingar og byrja..

IMG_5756

Þannig gengur það.

IMG_5764

Þeir voru ekki allir háir í loftinu keppendurnir, og þessi stubbur með blátt belti, hann verður einhverntímann góður.

IMG_5765

Þessi mamma fór að æfa til að styðja við son sinn.  Það er mikið um svona foreldravirkni í Taekwondo, og það er mjög gott.  Her er það sonurinin sem er að hjálpa henni í keppnisbúninginn og telja í hana kjarkinn. 

IMG_5778

Já þau eru ekki öll há í loftinu þessar elskur.

IMG_5784

Mitt lið hér á pöllunum, ég er viss um að þau hafa haft mjög gott af þessu.

IMG_5787

Og það var smurt ofan í liðið, enda þurfa þau orku, meðan þau eru að keppa.

IMG_5791

ég er ekki mikið inn í þessu ekki ennþá allavega, en ég held að þessi ungi maður sé sá sem er næst æðstur í félagsskapnum á Íslandi.  Hann stóð sig mjög vel, eins og reyndar allir sem að þessu móti komu.

IMG_5799

Hér er okkar fólk að búast.

IMG_5800

Svo er verið að leggja stubbnum línurnar.

IMG_5802

Hér má sjá að stelpur berjast við stráka, og þær gefa ekkert eftir, áttu stórkostlega sigra á þessu móti.

IMG_5813

Stubbur komin út í alvöruna.  Og þó hann ynni ekki, þá er það sigur í sjálfu sér að taka þátt, skorast ekki undan og taka því sem manni ber.  þannig miðar manni best áfram.

IMG_5818

einn af okkar mönnum sem berst við stelpu.  Þau virðast vera jafnvíg, en hann sigraði hana reyndar.

IMG_5826

Fyrri dagur að kveldi komin og fallegt veður í Keflavík, að visu kalt og vindur, en fallegt. 

Ég skrapp frá og hitti tvær bloggvinkonur mínar á kaffi DUUS þær Helgu Valdimars og Elísabetu Markúsdóttur, það var yndislegt að sitja og spjalla við þessar tvær hversdagshetjur, sem reyndar hafa þurft að glíma við sömu vandamál og ég svo við höfðum um margt að spjalla. 

En Ísfirðingarnir stóðu samt uppi eftir daginn með 6 brons og eitt gull, og geri aðrir betur, fyrir svona ungt félag.  Og sumir að keppa á sínu fyrsta móti.  En ekki síst þegar haft er í huga að kennarinn, og sá sem kom þessu öllu á koppinn er aðeins sextán ára ungur maður.

En ég ætla að setja meira inn um þetta mót seinna.  Ég sá engar myndatökuvélar, ekki blaðamenn, eða neina fréttamenn, svo ég ætla mér að reyna að gera þessu skil út frá minni eigin reynslu. 

Niðurstaðan eftir fyrsta daginn var; frábærlega vel skipulagt mót, mjög mikið af ungu ábyrgðarfullu fólki, sem var þarna í ábyrgðarstöðum eins og dómarar, aðstsoðarmenn og eftirlitsmenn.  Það var áhrifamikið að mínu mati, og það voru jafnt ungar konur sem drengir. 

En meira um þetta næst.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Gott að þið eruð komin heim, heil á húfi.  Fjölmiðlar hefðu aldrei gert þessu eins góð skil og þú Ásthildur mín og það var mjög gaman lesa/skoða þessa færslu þína með fréttum frá þessu móti.  Flottur þjálfarinn!

Sigrún Jónsdóttir, 28.4.2008 kl. 16:47

2 identicon

Til hamingju með velheppnað mót. Ég er sammála þér að það er ekki aðalmálið að koma heim með verðlaun því þátttakan er útaf fyrir sig sigur. Að vera með og gera sitt besta. Svo gengur bara betur næst. Ferðalagið og undirbúningurinn og allt sem fylgir og að hafa ömmu með hefur líka mikð vægi.

Litlan mín tók þátt í sinni fyrstu ballettsýningu á dögunum og það var stórkostlegt að sjá þessi litlu stýri koma fram og leggja sig fram þó ekki fengi hver hópur nema örfáar mínútur. mér fannst sárast að sjá eina litla (yngstu 3-4 ára) sem missti kjarkinn og þurfti að leiða hana út af sviðinu. Andlitin sem voru mjög stressuð ljómuðu að lokinni sýningu yfir því að hafa sigrað sjálfar sig.

Ég er sannfærð um að ömmukrílin þín eiga oft eftir að hugsa til ömmu á komandi árum, ömmu sem gerði svo margt sem í dag er sjálfsagt, en verður séð frá annarri hlið síðar. Þú færð það allt borgað seinna þegar upp verður skorið. Mamma sagði alltaf að kæmi fram í seinna verkinu sem gert væri í því fyrra og maður ynni fyrir sálu sinni þegar gott væri gert. Þær sitja örugglega og fylgjast með mæður okkar hvernig gengur.

Dísa (IP-tala skráð) 28.4.2008 kl. 17:00

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

Velkomin heim aftur Ásdís.  Skemmtilegar ferðamyndir

Huld S. Ringsted, 28.4.2008 kl. 17:51

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Að sjálfsögðu átti þetta að vera Ásthildur!!! stundum er gott að flýta sér hægt

Huld S. Ringsted, 28.4.2008 kl. 17:52

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er sko alveg greinilegt að vorið er komið á Ísafjörð og eins og venjulega eru myndirnar þínar algjört augnakonfekt.  Mikið eru barnabörnin heppin hvað þið hjónin eruð dugleg að "snúast" í kringum þau.

Jóhann Elíasson, 28.4.2008 kl. 18:14

6 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Flottar myndir af flottum krökkum. Það hefur verið gaman að fara með og horfa á stubbana standa sig.

Helga Magnúsdóttir, 28.4.2008 kl. 18:24

7 identicon

Velkomin heim mín kæra

Sé ekki betur að þú hafir náð einum frænda mínum á mynd. Stubburinn með bláa beltið.

Knús í hamingjukúluna

Kidda (IP-tala skráð) 28.4.2008 kl. 18:51

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Velkomin heim Ásthildur mín og mjög gaman af myndunum flottir stubbar.

Knús á þig

Kristín Katla Árnadóttir, 28.4.2008 kl. 19:01

9 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Ásthildur er svo mikil töfradís að það er kannski ekki nema von að Huld ruglist!   Frábærar myndir og skemmtileg ferðasaga.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 28.4.2008 kl. 19:31

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir skemmtilega frásögn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.4.2008 kl. 19:51

11 Smámynd: Linda litla

Velkomin heim í kúluna aftur. Ég sé á myndunum að þetta hefur verið heljarinnar ferð og án efa skemmtileg. Það geta ekki allir unnið, en samt eru allir sigurverarar, það er nokkuð rétt.

Takk fyrir skemmtilegar myndir. Hafðu það gott.

Linda litla, 28.4.2008 kl. 19:51

12 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Velkomin heim Ásthildur og til hamingju með Ísfirðska liðið. - Þetta kallar maður nú sannkallaða sigurför, 6 brons og eitt gull. - Til hamingju með þitt fólk og hjartanlega til hamingju með "stubbinn" þinn, hann er svo flottur.  Frábær þessi pistill hjá þér, hlakka til að heyra meira. 

 Sumarkveðjur héðan úr miðbæ Reykjavíkur með óskir um gleðilegt sumar og kærar þakkir fyrir skemmtilegan og gefandi bloggvetur.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 28.4.2008 kl. 22:35

13 Smámynd: Laufey B Waage

Velkomin heim aftur. Það hefur greinilega vorað aðeins meðan þið skruppuð suður.

Laufey B Waage, 28.4.2008 kl. 22:46

14 Smámynd: Solla Guðjóns

Til hamingju með þetta frábæra lið.Auðvita er Ísfirðingar standa sig hvar sem er.Mikið dáist ég að stráknum sem kom þessu af stað og heldur svona vel á spöðunum ekki eldri en þetta.hann á mikið hrós skilið.

Svo er ávallt gaman að heyra af foreldrum sem gefa börnunum sínum tíma og fylgja þeim eftir.

les að þú hefur farið Djúpið og fram hjá jörðinni okkar og bústaðnum á Eyri í Skötufirði

Knús á þig duglega kona.

Solla Guðjóns, 29.4.2008 kl. 00:13

15 Smámynd: Helga skjol

Velkomin heim Ásthildur mín og frábærar myndir að venju.

Knús í kúluna

Helga skjol, 29.4.2008 kl. 06:37

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll sömul, ég var svo  þreytt í gær eftir ferðina, að ég bara gerði nákvæmlega ekki neitt nema dúlla við litlu skotturnar mínar, svo voru rosalega glaðar að sjá ömmu.  Má ég kalla þig mömmu líka, spurði Hanna Sól.  Já sagði ég auðvitað alveg þangað til mamma þín kemur heim til okkar. Já sagði barnið.

Litla skottið segir annað hvort mamma eða amma, og svo babbi eða afi, en hún er farin að sjá að bara með því að segja "afi" vefur hún honum algjörlega um sinn litla fingur.

 Huld mín maður getur nú mismælt eða misskrifað sig

Takk Jóhann minn.

Já Helga M. mín ég var mjög stolt bæði af honum og svo öllu liðinu.  Þetta var bara frábært.

Vá Kidda mín er þessi flotti drengur frændi þinn.  Til lukku með hann.

Takk Katla mín og knús á þig líka.

Hehehe Jóhanna mín, takk fyrir mig elskuleg.

Takk sjálf Jenný mín.

Einmitt Linda mín, þau voru eiginlega öll sigurvegarar sem tóku þátt í þessu glæsilega móti. 

Takk Lilja mín og innilegar kveðjur til þín líka í miðborgina.  Takk fyrir góðar óskir.  Já þetta var bara svo frábært, og best var að kynnast hvað þetta er í raun og veru fjölskylduvæn íþrótt.  Hvað allir voru ákveðnir í að sýna samhug þvert á hópa og hjálpast að.  Ungir gamlir, og allir þar á milli, konur jafnt og karlar.  Ég held að ég hafi ekki upplifað svona stóra samkomu, þar sem allt gekk jafn smurt og vel og þarna, þó eitthvað drægist til, eða upp kæmu vandamál, þá voru þau bara leyst ljúflega, fljótt og vel.  Þeir sem voru þarna æðstir, voru ekki með neina stjörnustæla, heldur töluðu við alla bæði börn og fullorðna eins og jafningja.  Það er besta uppeldisaðferðin sem ég þekki.

Já Laufey mín, þó það sé kalsaveður, þá hefur snjórinn hopað mikið.  En nú skín sólin aftur.

Veistu það Solla mín, að því meira sem ég hugsa um það, því frábærari finnst mér bæði hvað hann er duglegur, og að honum skyldi takast að fá allt þetta fólk með sér.  'Eg er viss um að næsta vetur fær hann fleiri.  Hann gerði þetta mest í sjálfboðavinnu, en slíkt gengur ekki til lengdar, nú þarf að taka á því, og umbuna honum fyrir vel unninn störf.

Knús á þig líka Helga Skjól mín, og takk.

Ég segi góðan dag, Gréta mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2008 kl. 10:44

17 Smámynd: Anna Lilja

Hann er ekkert smá flottur! Við komumst ekki núna að horfa á en vonandi seinna Þetta er merkilegt með unga þjálfarann og gaman að lesa um árangurinn. Kveðja til allra á Ísó.

Anna Lilja, 29.4.2008 kl. 15:44

18 Smámynd: Anna Lilja

Og sérstaklega til stubbs sem fær vonandi töskuna sína fljótlega.

Anna Lilja, 29.4.2008 kl. 15:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.1.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 2022456

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband