24.4.2008 | 22:15
Sumardagurinn fyrsti - stóð undir nafni í dag.
Á morgun legg ég í hann til Keflavíkur með litla stubb sem er að fara á Taikwondomót. Við munum leggja af stað um tíu leytið í fyrramálið, og koma við í Reykjanesi fara þar í sund og grilla. Síðan er ferðinni heitið í Mosó, þar sem verður snætt á KFC, kjúklingur með tilheyrandi, og svo mun leiðin liggja til Keflavíkur.
Það mun sennilega vera minna um blogg og myndir af þeim sökum um helgina. En hér eru myndir frá sumardeginum fyrsta.
Hún var undirleit.
En þessi unga dama var ákveðin.
Já við klæddum okkur upp í tilefni sumardagsins fyrsta.
Hér er tildæmis kóngur og drottning.
Drottningar þurfa margt að brasa skal ég segja ykkur.
Veðrið í Ísafirði var hið besta eins og sjá má.
Ekki lýgur maður um lognið, víst er það.
Frænkurnar litlu komnar á kreik.
Svo þarf aðeins að rífast um hluti og sona
Spurning hvor hefur betur.
Jamm þetta verður sennilega jafntefli enda nógu margir litir í boði.
Þá er best að drífa sig bara í sandkassann.
en sumir stubbar þurfa meira svæði til að vera á.
Og eins gott að þessar litlu séu orðnir vinir.
Þá finnst öðrum gott að leika sér einum.
Aðrir vilja hoppa yfir lækinn.
Hoppa í parís eða bara njóta þess að vera til. Það er jú sumardagurinn fyrsti.
Það þýðir að það má fækka fötum ekki satt.
Fá sér afaskyr og lita smá.
Ég á lítinn skrýtinn skugga skömmin er svo líkur mér, hleypur með mér úti og inni alla króka sem ég fer.
Jamm það er nefnilega bara ansi notalegt veður.
svo er hægt að húla húla....
Eða kæla sig í tjörninni.
Eða bara fá sér blóm í hárið.
Gleðilegt sumar öll sömul.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 2022455
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það hefur verið ljúft "Kúlulífið" í dag, yndislegar myndir. Gangi þér ferðin suður vel og farið varlega. Gleðilegt og gott sumar
Sigrún Jónsdóttir, 24.4.2008 kl. 22:36
Gleðilegt sumar og gangi ykkur vel á mótinu
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 24.4.2008 kl. 22:38
Gleðilegt sumar sömuleiðis.
Þ
Þórdís Einarsdóttir, 24.4.2008 kl. 22:42
Gleðilegt sumar og góða ferð.
Jenný Anna Baldursdóttir, 24.4.2008 kl. 23:23
yndislegar myndir af krílum Góða ferð á morgun og hafið góða skemmtun og gott gengi hjá prinsinum ykkar knús inn í helgina
Brynja skordal, 24.4.2008 kl. 23:26
Takk allar, knúsínurnar mínar
Helga mín, þú finnur gemsan minn í símarkránni, endilega hrindu í mig og við finnum tíma til að hittast. Og jafnvel fengið fleiri til að koma á hitting. Ég ætla að gista á B&B gistiheimilinu.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.4.2008 kl. 00:11
Frábærar myndir kæra Áthildur eins og vanalega. Góða ferð út og hafið það sem allra best. Njóttu einnig vel heimsóknarinnar í fallegu sveitinni Mosó.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.
Karl Tómasson, 25.4.2008 kl. 00:25
Gleðilegt sumar, dugnaðarforkur og dúlla!
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 25.4.2008 kl. 00:35
Gleðilegt sumar Cesil, með þökk fyrir veturinn.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 25.4.2008 kl. 00:39
Gleðilegt sumar !
Sunna Dóra Möller, 25.4.2008 kl. 09:03
Sæl Ásthildur mín.
Þetta er sko fjölskylda í lagi.
Kveðja.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 09:20
Gleðilegt sumar mín kæra. Njóttu suðvesturhornsins um helgina.
Laufey B Waage, 25.4.2008 kl. 09:24
Takk öll fyrir góðar óskir, og gleðilegt sumar til ykkar allra. Þið fáið örugglega myndir frá keppninni og ferðinni líka.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.4.2008 kl. 09:25
Skemmtilegt blogg eins og venjulega Ásthildur. Mikið er annars alltaf gott veður hjá þér! Við grilluðum í rigningu í gær í Hafnarfirðinum en með þrjóskunni má hafa það
Góða ferð og hafið nú gaman og gott um helgina
Ragnhildur Jónsdóttir, 25.4.2008 kl. 09:43
Takk Ragnheiður mín, hér er blíða líka í dag. Vonandi verður það alla leið.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.4.2008 kl. 09:50
Kúlan og börnin eru greinilega sköpuð fyrir hvort annað. Gleðilegt sumar.
Helga Magnúsdóttir, 25.4.2008 kl. 13:56
Yndislegt eins og alltaf að fá að kíkja í KÚLUNA..kærleikskúlan finnst mér réttnefni. Góða ferð og hafið það gott fyrir sunnan..Bestu sumarkveðjur
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 25.4.2008 kl. 14:25
Sæl og blessuð.
Gangi ykkur vel. Vonandi getur þú hitt Jakob í Keflavík og þið getið rætt um framtíðarplön.
Baráttukveðjur/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 25.4.2008 kl. 15:55
Frábærar myndir eins og alltaf. Já og gleðilegt sumar mín kæra.
Góða ferð suður og farið þið varlega.
Góða helgi.
Linda litla, 25.4.2008 kl. 19:01
Börnin í tjörninni eru englum líkust.
Solla Guðjóns, 25.4.2008 kl. 21:04
Alveg frábærar myndir að vanda. Vona að stubbur skemmti sér vel í ferðinni. GLeðilegt sumar og nj´jottu vel ´með fólkinu þínu
Ásdís Sigurðardóttir, 25.4.2008 kl. 23:45
Það er alltaf gaman að kíkja á myndirnar þínar Cesil, núna fær maður bara himnaríkistilfinningu (ég er nú reyndar lítið trúaður!).
Haukur Nikulásson, 26.4.2008 kl. 00:29
það hefur aldeilis verið sumarlegt með snjóinn í bakgrunninum !!!
Takk fyrir yndislega bloggvináttu í vetur
knús í krús
frá mér steinuSteinunn Helga Sigurðardóttir, 26.4.2008 kl. 06:11
Gleðilegt sumar! Hafðu það gott í Keflavík
Huld S. Ringsted, 26.4.2008 kl. 11:24
Sæl Ásthildur og þið dyggu lesendur þessarar síðu. Frábærar myndir sem þú tekur Ásthildur og gaman að sjá hvað það er mikið líf í kringum þig.
En ég get ekki orða bundist og er hreinlega hissa á að enginn skuli hafa tekið þetta upp. Finnst ykkur allt í lagi að setja myndir af nöktum börnum inn á veraldar vefinn? Ég var á mjög áhugaverðu (en fámennu) málþingi á vegum SAFT, um öryggi á netinu og þar var verið að vara við akkúrat þessu. Þar kom fram að það sem okkur þykir bara krúttlegt getur valdið kendum hjá öðrum, einhvers staðar út í heimi. Það hafa fundist myndir af íslenskum barnalands síðum á rússneskum klámsíðum. Og það voru ekki nakin börn. Ég vildi bara benda á þetta, enda mjög upptekin af því sem kom fram á þessu málþingi. Það er okkar hlutverk að vernda börnin okkar.
Sóley Veturliða (IP-tala skráð) 26.4.2008 kl. 12:12
Hafðu það gott um helgina Ásthildur mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 26.4.2008 kl. 12:23
Yndislegar myndir Ásthildur mín og svo mikil hamingja og glettni í kringum blessuð börnin. Það er svo mikið greinilegt hve hamingjan er mikil og gleðin allsráðandi hjá þér og þeim. Þetta er sannkallaður sælureitur þetta kúluhús þitt og ég er handviss um að börnin sem alin eru þarna upp í kringum þig eiga eftir að verða dásamlegar manneskjur í framtíðinni.
Ég skil vel þessar áhyggjur Sóleyjar Veturliða. Það sem okkur þykir svo fallegt og einstaklega yndislegt, svo saklaust og krúttlegt - gæti auðvitað virkað á vitlausar stöðvar hjá sjúku fólki um allan heim. Málið er þó að það er svo margt sem gæti orsakað hitt eða þetta - að maður má ekki leyfa sér að lifa í stanslausum ótta við að þetta eða hitt sé ekki æskilegt eða leyfilegt. Við verðum að vega og meta, og fara eftir eigin sannfæringu. Við verðum að vona að heimurinn horfi á svona myndir með einlægum krúttaugum, en næsta víst er sannarlega satt að það geta þó ekki allir.
En, knús á þig Ásthildur mín og eigðu yndislega helgi. Hlakka til að sjá myndir af helginni...
Tiger, 26.4.2008 kl. 15:44
Takk öll sömul fyrir yndisleg innlegg. Og það er raunar satt sem Sóley segir, að það eru alltaf til fólk sem misnotar myndir af börnum. Það er reyndar allstaðar illt fólk í leyni sem notar sér allt sem við segjum og gerum. Og erfitt við það að eiga. Ég mun auðvitað tgaka þetta til athugunar, eins og sagt er það sem okkur finnst fallegt getur öðrum fundist .... öðruvísi. Og vissulega vil ég ekki setja mín yndislegu barnabörn í þá aðstoðu. Það er líka ekki sama hvernig myndir eru birtar, og ég hef reynt að hafa myndirnar mínar þannig, að þær særi ekki bligðunarkennd fólks.
Point taken, það væri bara gott að fá álit fleiri á þessu. Því satt að segja þá væri það fróðlegt að vita hug fólks. 'Eg er satt að segja dálítið hugsi yfir þessu, því í mínum huga er nekt eðlilegt ástand. Og börnin mín byrja oft á því að fara úr fötum í kúlunni, því það er svo notalegt. Sérstaklega yfir sumarið, þegar allt er svo heitt, og umhverfið allt þannig að föt eru nánast óþörf.
En annars gengur allt vel hér á taikwondomótinu, okkar menn stóðu sig bara vel, þó þau væru greinilega óvanari en þeir sem oftast hafa farið á slík mót. Ég held að við förum allavega heim með eitt gull. En það er alltaf þetta næst, og þá verða okkar menn viðbúnar og öfllugri. Æfingin skapar meistarann. Knús og kveðja úr Holtaskólanum í Keflavík.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.4.2008 kl. 20:52
Gleðilegt sumar Ásthildur mín.
Mikið á börnunum eftir að þykja gaman að skoða allar þessar frábæru myndir þegar þau eldast
Eyrún Gísladóttir, 26.4.2008 kl. 22:47
Ja gledilegt sumar.Her er ekkert haldid upp a sumardaginn kannski aetti eg bara ad byrja a thvi med barnabarnid mitt.Thad er betra seint en aldrey
Ásta Björk Solis, 27.4.2008 kl. 19:02
Gleðilegt krúttsumar Ásthildur, ... varðandi myndbirtingarnar, þá benti ég einmitt dóttur minni einu sinni á þetta sama en hún hafði sett ferlega krúttlegar myndir af syninum berstrípuðum í sólinni. Hún læsti myndasíðunni eftir það, en um það er ekki að ræða hér á blogginu, s.s. að hafa læstar myndasíður. Auðvitað er ljótt að það sé fólk að pikka út svona myndir í annarlegum tilgangi, en tja.. ég sjálf hika við að birta bossamyndir af börnunum eftir að ég einmitt las um svona dæmi.
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 27.4.2008 kl. 22:30
Gleðilegt sumar Ásthildur! Vonandi hefur ferðin hjá ykkur, gengið óskum, og drengurinn heill og hamingjusamur eftir velheppnað mót.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 28.4.2008 kl. 01:00
Það er ömurleg tilhugsun að það skuli vera til svo margt sjúkt fólk sem notar krúttmyndir í annarlegum tilgangi.
Hef oft lent í því að ef ég er að reyna að copýa myndum á netinu, þá er það ekki hægt einhverra hluta vegna. Spurning hvort hægt sé að læsa myndunum svo að það geti ekki hver sem er copýað myndirnar.
Vona að þið séuð komin heim í hamingjukúluna eftir góða helgi.
Knús
Kidda (IP-tala skráð) 28.4.2008 kl. 10:32
Gleðilegt sumar öll , Já það er alveg satt, það er ömurlegt til þess að vita. Takk Lilja mín, já þetta gekk allt bara mjög vel, og stubburinn ánægður þó hann ynni ekki inn medalíu, nema fyrir þátttökuna, en það er líka sigur að heyja sinn bardaga, skorast ekki undan og taka ósigri. Það gengur bara betur næst.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.4.2008 kl. 15:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.