Kominn tími á göng.

Hugsið ykkur þrátt fyrir alla vegskálana yfir verstu kaflana, grjóthleðslur og víranet, kemur ennþá grjót niður á þá örfáu óvörðu bletti sem ennþá eru. 

Maðurinn minn var mjög hætt kominn í fyrra, þegar skriða kom niður rétt fyrir framan bílinn hans, hann gat stöðvað og bakkað frá, en var ansi sleginn. 

 Þess vegna er orðið tímabært að gera gönginn.   En það ætti að gera göng líka til Súðavíkur.  Þá yrði þetta svæði ein heild, það væri hægt að sameina alla kjarnana í eitt sveitafélag. 

Það er hræðilegt að sjá hvernig búið er að fara með Kirkjubólshlíðina, súðavíkur meginn, hún er öll skröpuð í snjóflóðaskápa.  Skemmdarverk að mínu mati, en svo sam hvað er hægt að gera, þegar öll líðin iðar af snjóflóðum.

Óshlíð.

ruv.is | 08.08.2007 | 16:27Fimm tóku þátt í forvali vegna Óshlíðarganga

5 verktakar og verktakahópar skiluðu inn gögnum vegna forvals um gerð Óshliðarganga en frestur til að skila inn gögnum rann út í gær. Um er að ræða jarðgöng milli Hnífsdals og Bolungarvíkur, ásamt byggingu forskála og vega. Göngin eiga að vera 8,7 metra breið, og 5,1 kílómetri að lengd. Einnig á að byggja um 310 metra langa steinsteypta vegskála, og 3 kílómetra langa vegi og tvær 15 metra langar steinsteyptar brýr.

Verið er að meta gögnin og þeir sem þykja hæfir til verksins fá send útboðsgögn. Vonast er til að ljóst verði í haust hver hreppir verkefnið.


mbl.is Stórir grjóthnullungar féllu á Óshlíðarveg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Þessi vegur er alveg stórhættulegur og skömm að því að það sé ekki löngu búið að laga hann

Ragnheiður , 10.8.2007 kl. 10:38

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er EKKI á leiðinni eftir þessu vegi.  Það er á hreinu.  Skelfingarkall.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.8.2007 kl. 10:52

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Laga þá strax ekki spurning. kveðja vestur.

Ásdís Sigurðardóttir, 10.8.2007 kl. 12:25

4 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég var einmitt að koma frá Bolungarvík þegar ég kíkti á þig.

Á leiðinni var ég að útskíra fyrir stelpunum hvað allt þetta þýddi,víravirkin og grjóthleðslurnar,,,skálarnir héldu þær að væru bara svona göng,,,,,,,,þeim leist nú ekkert á þetta þegar þær skyldu að það gætu komið grjót og aurskriður,,,ekki bara snjóskriður en það höfðu þær heyrt um áður.

Solla Guðjóns, 11.8.2007 kl. 01:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 2020894

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband