Ferð í Skrúð, skýjalausar myndir og köttur og mús.

Nú verða ekki sýndar neinar skýjamyndir. Því þau eru hreinlega ekki á sýningunni.  Enginn ský í dag. En við hjónin fórum í Skrúð í morgun.  Ég hafði bak við eyrað hvort ég sæi blómið mitt þar.  SKrúður er grasagarður og þar eru allar plöntur merktar.  En því miður var blómið mitt ekki þar.

En ég tók þessar líka fínu myndir.

IMG_5088

Út um dyrnar, eins og sjá má enginn ský.

IMG_5091

Hér blasir Þingeyri við handan fjarðar.  En fjöllinn eru stórkostlega falleg. 

IMG_5093

Sérkennileg myndun hér á ferðinni. 

IMG_5098

Hér er svo garðurinn sem allir aðrir skrúðgarðar heita eftir.  Og fyrir ofan trónir Núpurinn. 

Séra Sigtryggur

Þessi fallega lágmynd er af Séra Sigtryggi og konu hans.  En hann stofnaði garðinn og á þarna mörg handtök. 

IMG_5107

Á bakaleiðinni.  Fjöllinn eru hrikaleg en kraftmikil og fögur.

IMG_5110

Úbbs og inn í gönginn.  Þökk sé þeim, þá er hægt að ferðast milli staða á þessum tíma og á hvaða tíma sem er. 

IMG_5113

Hér blasir svo Ísafjörður við baðaður sól. 

IMG_5087

Hér sjáum við stubbinn hann er tilbúin í kajakróður með afa sínum.  Reyndar fer hann á námskeið 3. júní, til að læra alla klækina, velta sér og allt sem litlir stubbar þurfa að vita til að geta róið á kajak.  En hér eru góðar aðstæður, og landsins bestu kajakræðarar.  Og þeir róa á hvaða tíma ársins sem er.

IMG_5116

En það voru fleiri sem fengu bónus.  Kisi var svo heppinn að inn slæddist mús, og hann er hér í veiðiham.  Veit ekki hvort hann er búin að ná henni.  Vona helst að hún hafi sloppið út.  hehehe

IMG_5119

En það má greinilega sjá að hann er alveg tilbúin að grípa. 

Ég er afskaplega tímabundinn og get ekki farið blogghringinn minn fyrr en seinna í dag.  Ég er að vinna upp í garðplöntustöðinni minnni.  Núna ætla ég að reyna að verðmerkja sem mest ég má.  Og skipta blómum.  En ég bið að heilsa öllum blogvinum mínum og hitti á þá seinna í dag. 

Ég er reyndar búin að bjóða pabba mínum í mat í kvöld.  Ég ætla að gefa honum hangiket og grænar baunir.  Svo matartilbúningurinn tekur ekki langan tíma.  Kjötið soðið og ekkert eftir nema að gera uppstúfin og hita baunirnar. 

Eigiði góðan Hvítasunnudag.  Og njótið góða veðursins, því það er víst sama sólskinið um allt land, eftir því sem sagt er.  Ef svo er ekki, skuluð þið bara renna inn í myndirnar mínar og sóla ykkur þar.  Kærar kveðjur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða  Þórðar

Vá! Alveg hreint himneskar myndir! Eigðu ljúfan dag elskan

Heiða Þórðar, 27.5.2007 kl. 14:23

2 Smámynd: Ragnheiður Ólafsdóttir

Meiriháttar! Sakna þess að vera ekki fyrir vestan núna, en vona að ég geti farið með þér í Arnarnesið í sumar það er fyrir utan Skrúð í Dýrafirði sá staður sem Hemmi minn Gunn hefur farið á til að fylla sig orku ég fór með hann í fyrsta skipti ég held að hann fari alltaf þegar hann kemur vestur þegar fært er út í Arnarnes.  Óumdeilt Vestfirðir fallegastir á Íslandi.

Ragnheiður Ólafsdóttir, 27.5.2007 kl. 15:13

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Fallegt hjá þér í dag.

Eigðu góðan dag ljúfust

Hrönn Sigurðardóttir, 27.5.2007 kl. 15:35

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir góðar óskir og innlegg stelpur mínar.  Og Já Ragnheiður það væri gaman. Sömuleiðir góðar óskir frá mér til ykkar allra.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.5.2007 kl. 17:44

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Fallegar myndir Ásthildur mín  þú ert frábær og yndisleg.

Kristín Katla Árnadóttir, 27.5.2007 kl. 21:45

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gaman að heyra hvernig Skrúð garður varð til, hefð aldrei dottið þetta í hug. Fallegar myndir  bros vestur.

Ásdís Sigurðardóttir, 27.5.2007 kl. 22:37

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk stúlkur mínar.  Knús til ykkar allra

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.5.2007 kl. 23:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 91
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband