4.9.2015 | 17:46
Kúlan heil aftur og innilega takk fyrir okkur.
Jæja gott fólk loksins er búið að gera við garðskálann minn. Það gerði Elli minn, synir okkar þrír og fleiri lögðu hönd á plóg. Mig langar til að þakka öllum hjálpsemina, styrkina og velvildina sem allstaðar var til staðar.
Svona leit þetta út í vor, hræðilega sorglegt.
Missti allar stammrósirnar mínar, reðurtáknið var svarbrúnt og jukkann fór niður í rót, perutréð og nektarínan mín líka. Þetta var svo ömurlegt.
Þarna er búið að rífa restina af garðskálanum, Elli minn fékk Einar Halldórs með gröfu til að rífa restina, annað var ekki hægt.
Svo var byrjað á því að byggja upp á nýtt.
Ingi Þór, Skafti og Bjössi komu allir og lögðu sitt af mörkum, Ingi í nokkrar vikur og Skafti, og Bjössi yfir góða helgi. Jón tengdapabbi Báru minnar kom líka í heimsókn og fór að aðstoða Ella minn, Því þetta er ekki hægt að gera einn.
En það gleðilega við þetta allt var að með börnunum mínum komu barnabörnin, svo það var líf og fjör í kúlunni í sumar.
Og allir hjálpuðust að.
Einn vinur minn færði mér nokkra stóra þorska, og það var farið í að gera að, flaka, skera og hakka restina. Börnin voru aldeilis kát með þetta.
Hann er svolítið hissa blessaður að ung falleg stelpa skyldi kyssa hann beint á munninn.
Og hér voru allir að hjálpast að eins og ég sagði.
Þessi "róla" var sett upp og allir vildu auðvitað róla sér.
Hér vor líka sjóræningjavalkyrjur.
Tilbúnar að bregða brandi.
Blómastúlkur líka.
Verðandi múrari hahaha.. Hann er bara þriggja og hálfs þessi stubbur.
Já það var líf og fjör í kúlunni, þó garðskálinn hafi verið í kaldakoli.
Hann komst sjálfur upp á belginn, duglegur lítill pjakkur hann Jón Elli.
En verkið gengur vel.
Já hér voru allskonar furðudýr.
Meira að segja spidermann kom til að róla sér.
Já rólan var vinsæl.
En garðskálinn rís til himins.
Lítill stubbur.
Hanna Sólin líka.
Og Ásthildur Cesil.
Já það var fjör í kúlunni.
Og allt er þetta að koma aftur.
Það er að koma lag á þetta.
Sólveig Hulda í "skóginum" lóðinni við kúluna.
Það var svolítil spenna hvort allt gengi upp. Hér er verið að leggja lokahönd á grindina.
Evíta Cesil og Sólveig Hulda.
Svona þetta er alveg að koma.
Nú er eftir að setja glerið og policarbonatið á.
Cesiljarnar mínar, svo líkar, en samt svo ólíkar. Báðar sterkar stelpur, en önnur er svona heimilisleg hin er meiri villimey <3
Það þurfti mikið að spá í teikningarnar og velta fyrir sér næstu aðgerðum. +
Sigurjón kom líka oft í heimsókn.
Hér er svo Símon Dagur töffari.
Já það þarf að huga að ýmsu.
Þessi elska er orðin sjötugur, en það er ekki að sjá, hann er algjör hetja í mínum augum <3
Margir komu í heimsókn hér er dóttir bestu vinkonu minnar Linda, sem kom hér með sínum manni til að hanna og vinna að leikskólalóð á Eyrarskjóli, ég mun segja betur frá því síðar. Lík mömmu sinni þessi elska.
Já það er ekki alltaf friður og ró á heimili þar sem Svona margir krakkar eru, en það var yndælt að hafa þau öll, og ég vona að þau komi aftur næsta sumar því að fjölskyldan er það besta sem við eigum, og það nauðsynlegasta. Mesta trygging hvers manns.
En börnin hjálpuðu líka til, hér er Aron og Evíta að hjálpa afa.
Hér er verið að skrúfa, já börn geta gert ýmislegt ef þeim er bara trúað fyrir hlutunum.
Hér er þessi elska mín.
Jón Elli.
Aron Máni töffari.
Það var margt brallað í kúlunni, hér er verið að halda tombólu og það var gott að geta losað sig við nokkrar svona styttur
Þau voru allt upp í 11 stykki hér í sumar, og amma algjörlega hamingjusöm.
Já börnin voru svo dugleg.
Evíta og Símon.
Vígaleg í vinnunni.
Hér er svo nýji garðskálinn minn risinn og ég er svo glöð og hamingjusöm. Bara innilega takk fyrir mig allir sem lögðu hönd á plóg. Bæði drengirnir mínir allir sem lögðu hönd á plóg, elsku kallinn minn sem á heiðurinn af þessu öllu saman, þeir sem styrktu okkur og þeir sem sýndu okkur samúð og góðan velvilja, og þeir sem lánuðu okkur það sem þurfti á að halda, og þeir sem hjálpuðu okkur í vetur þegar ósköpin dundu yfir. Það er gott að búa í góðu kærleiksríku samfélagi, en það verður það fyrst og fremst þegar við sjálf sköpum okkur það rými og kærleika.
Og í kvöld kemur fallega góða fjölskyldan mín frá El Salvador í heimsókn og býður okkur í Bubusas El Salvadorskan mat sem ég elska. Það gera þau í tilefni þess að garðskálinn er nú kominn í lag.
Elsku yndæla fjölskyldan mín frá El Salvador við erum þvílíkt heppinn íslendingar að fá þau til okkar. Það skulum við hafa í huga núna þegar allt er á hvolfi vegna flóttamannastraums. Þetta er örugglega allt besta fólk, og þau eru einmitt að flýja vegna þess að þau vilja ekki vera í samfélagi öfgamanna. Það skulum við endilega hafa í huga. Og bjóðum sems flest þeirra velkominn til okkar.
Eigið góðan dag elskurnar mína. Ég er nýkomin heim frá Austurríki var að skila börnunum dóttur minnar og meðan ég dvaldi þar var þessi skelfilega uppákoma með flóttamennina sem voru látnir deyja drottni sínum í flutningabíl, sem reyndar var bara rétt hjá það sem ég var. Næsta þorpi, sem var svona á stærð við Flateyri. En þau dóu ekki til einskis, því austurríkismenn tóku verulega við sér og nú er mikil samúð í garð flóttafólks hjá almenningi þar rétt eins og hér.
Veislan að byrja, þau eru að halda upp á að kúlan er heil aftur þessar elskur.
Alejandra mín er ein af þessum flóttabörnum, en foreldrarnir þurftu að flýja mafíuna í El Salvador, þá var hún aðeins 6 ára.
Bubusar komið á borðið. Nammi namm.
Nýja flotta kúlan mín.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju Áshildur og þvílíkur dugnaður í þínu fólki. Njóttu vel í Kúlunni.
Margrét (IP-tala skráð) 4.9.2015 kl. 23:22
Takk Margrét mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.9.2015 kl. 00:56
Elska þetta fólk, og elska barnabörnin mín, og ég hreinlega elska að vera partur af svona frábærri fjölskyldu sem ég á.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.9.2015 kl. 01:19
Mikið óskaplega er nú gott að allt skuli vera komið í gagnið. Það kemur ekkert í staðinn fyrir það sem fór örin verða alltaf en með jákvæðninni þinni og þrautseigjunni verður allt bærilegt á ný. Og eins og þú sagðir sjálf, þú átt stóra og góða fjölskyldu.
Jóhann Elíasson, 5.9.2015 kl. 13:47
Glæsileg er nýja kúlan ykkar Ásthildur mín og hjartanlega til hamingju með hana
Jóhanna Ósk Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 5.9.2015 kl. 13:54
en hvað þetta er flott og mörg þörf orð sem þú skrifar.
Ragnheiður , 5.9.2015 kl. 17:26
Takk Jóhann minn, svo sannarlega það skiptir öllu máli.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.9.2015 kl. 19:34
Takk Jóhanna Ósk mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.9.2015 kl. 19:35
Takk fyrir það Ragnheiður.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.9.2015 kl. 19:35
Íja mín,til hamingju,Þvílíkur dugnaður!
Erla (IP-tala skráð) 6.9.2015 kl. 13:24
Takk Erla mín, þð var annað hvort að gefst upp eða láta vaða. Og ég vil ekki gefast uppö
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.9.2015 kl. 10:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.