Fallegt veður og svanir á polli.

Veðrið var yndislegt hér í morgun.  Við elskulegur eiginmaður fórum í göngutúr.  Sólin skein og það var hlýtt, nýfallinn mjöll merlaði undir fótum okkar, og útsýnið upp á það besta.  SKemmtileg birta.  Og svo voru svanir á Pollinum, já ég get svarið það.  Sex tignarlegir svanir, fyrst hélt ég að ég væri inn í miðri sögu um Dimmalimm.  En þarna voru þeir og syntu tignarlega innan um æðafuglana.  Það er komið vorhljóð í fuglana á Pollinum. 

Ég tók nokkrar myndir.  Vona að þið hafið gaman af þeim.

Ísafjordur1Skemmtileg birta, þegar sólin lék við skýin og reyndi að stjaka þeim burt.

svanirSvanirnir á sundi.

svanir2 Takið eftir birtunni á sjónum.  svanir3Þeir eru svo flottir. 

Vorið er ekki langt undan.  Bráðum fara kirsuberin að blómstra í garðinum hjá mér.  Og skálinn klæðist vorskrúðanum. 

Ó hve þetta er fallegur dagur á Ísafirði. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Í faðmi fjalla blárra, þar freyðir aldan köld,

í sölum hamra hárra á huldan góða völd,

sem lætur blysin blika um bládimm klettaskörð,

er kvöldsins geislar kvika og kyssa Ísafjörð.

..
  Minnir mig á "þjóðsöng" Ísfirðinga, sem pabbi hans Gulla í bokabúðinni samdi. Jónas Tómasson tónskáld.

Jón Steinar Ragnarsson, 17.3.2007 kl. 19:01

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er fallegt ljóð. Og vel við hæfi í okkar fallega bæ. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.3.2007 kl. 19:14

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Yndislegt Ásthildur, myndirnar fallegar, svo kyrrar, nánast hugleiðslukenndar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.3.2007 kl. 22:19

4 Smámynd: Jens Guð

Æðislega flott efsta myndin. 

Jens Guð, 18.3.2007 kl. 00:20

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Fallegar myndir Cesil og einhvern veginn táknrænar.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 18.3.2007 kl. 01:29

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk elskuleg, kyrrð er vissulega þarna sannleikanum samkvæmt. Þetta var yndislegur morgun. og allt svo kyrrt og hljótt og þetta samspil sólar og skjýja sem er svo heillandi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.3.2007 kl. 03:46

7 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Minnir mig á tímann þegar ég var fyrir vestan.

Efsta myndin er næstum óraunveruleg.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 18.3.2007 kl. 11:11

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Hanna Birna mín það er að koma vor.  En núna er mikill snjór og snjóflóð falla á vegunum á Kirkjubólshlíð og Óshlíð.  Vonandi gera þeir göng alla leið til Súðavíkur.

Veistu Katrín mín að þessi birta í gær var næstum órauneruleg.  En um leið svo falleg.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.3.2007 kl. 12:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 2023212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband